Lögberg - 26.06.1913, Blaðsíða 8

Lögberg - 26.06.1913, Blaðsíða 8
LiAi. i.*UL)AGi-SN 26. Júní 1913. Kjörkaup á Gleraugum er það, þegar þér eruð ánægður með þau. Ódýr gler- augu, sem eiga illa við augu yðar, eru vissulega dýr, þeg- þegar til alls kem- ur, I Vér munum gera yður ánægða, með hvaða prís sem þér borgið fyrir þau. Limited H. A. NOTT, Optician 313 Portage Ave. Ur bænum Forestersstúkan ísafold heldur fund í kveld (26.) í Good Templars’ Hall. MeÖlimir fjölmenni. Mrs. H. Herman fór til Árborgar fyrir helgina síöustu, og dvelur þar um tveggja mánaöa tima á bújörö þeirra hjóna. Ofsa hiti hefir veriö hér um slóöir siöustu dagana, og mikið regnfall á mánudag og þriðjudag í þessari viku. Var það kærkomin sending, því þurk- ar hafa verið miklir og bagalegir. Engir fundir veröa í bandalagi Fyrsta lút. safn. um tíma í sumar; en til starfa tekur félagiö aftur með nýju fjöri um mánaðamótin Ágúst og Sept- ember. Hr. Jósef Davíðsson og Guöbjörn Báröarson frá Baldur, Man., komu til bæjar á þriðjudaginn. Ekkert eöa lítið regn sögðu þeir hafa komiö þar vestra og jaröargróður því mjög seinn vegna þurka. Þær systur, Kirstín og Halldóra Herman, skólakennarar hér í bæ, fóru stiður til Dakota fyrir síðustu helgi, hin síðarnefnda til Grand Forks og dvelur þar meðan skólafrí stendur, en hin fyrnefnda til Mountain á bandal. þing og ætlar siðan að dvelja syðra um tveggja vikna tíma. Mr. Þórhallur H. Herman, sem síð- astliðinn vetur stundaði verkfræðinám viö háskólann í Grand Forks, N. D., lauk bur.tfararbrófi þar á þessu vori. Hann kom hingað til bæjar um miðja fyrri viku og tók þegar til starfa hjá Dominion Bridge Co., sem hann hafði verið hjá áður. Á þing hinna sameinuðu bandalaga, sem haldið var i sambandi við ársþing kikjufélagins ísl. að Mountain, N. D., fóru héðan frá bdl. Fyrsta lút. safn. þau Miss K. Herman, Mr. Gunnar J. Thorláksson og Mrs. Ó. Eggertsson. “DAUFIR TÍMAR” er réttl tfmlnn til aö níi f j?68ar hyggingalóftír, vel inn 1 borgrinni. I»eir er kaupa nú og kanpa hygjfi- leRa mitnu stórffræha á þvf. J,áti8 ekki peningana iiRgrja iðjulausa. Ef í nokkrum efa hvar sé bezt aí kaupa, þá finnift mig eCa skrifiC Paul Johnston 312-314 Nauton BuJkling A hornl Main og Portage. Talsími: Main 320 SNOWDRIFT BRAUÐ er vel bakað brauð, alveg eins í miðju eins og að utan Er létt í sér og bragðgott, og kemur það til af því að bað er búið til i beztu vélum og bakað í beztu ofn- um. 5c brauðið TheSpeirs-Parnell Baking Co. Ltd. Phone Garry 2345-2346 Pappír vafin utan um hvert brauð Sunnudaginn 8. þ.m. lézt að heimili sínu við Siglunes P.O., konan Jenny Egertína Pétursson, eftir langa og þrautamikla sjúkdómslegu. Banamein hennar var krabbi í brjósti, sem, þrátt fyrir ítarlegar lækninga tilraunir og itrekaðar varð ekki yfirunninn. Hún var búin að ganga með sjúkleik sinn um tveggja ára skeið og borið hann með þreki og stillingu. Jenny heitin var 47 ára er hún lézt; hún var ættuð úr Þingeyjarsýslu, dóttir Sigtryggs heitins Sigurðssonar verzlunarmanns í Húsavík; kom hingað til lands fyrir tæpum 20 árum og giftist skömmu síð- ar eftirlifandi manni sínum, Kristjáni Péturssyni Jónssonar frá Húsavík; dvöldu þau hér í bæ nokkur fyrstu ár- in en hafa lengst af búið að Siglunesi, þar sem hún lézt. Ekki varð þeim hjónum barna auðið, en fósturdóttur /bróðurdóttur Kristjáns) hafa þau alið upp. Fyrir skömmu lézt móðir Jennyar heit., Sigríður Sigurðardótt- ir, í Argyle-bygð, á níræðis-aldri, og var frá því sagt þá hér í blaðinu. Frá einni fiskistöð við Winni- peg vatn, “Big Black River”, er oss skrifað að veiði sé í tregara lagi um þessar mundir, en gæftir þó fullgóðar. Mr. Edward Thorlakson, sem stundað hefir nám í vetur á Wesley College, fór heim til sín til Churchbridge, Sask., á mánu- daginn var. Guðsþjónustur fara fram sunnudaginn 29. Júní í Kristnes skólahúsi kl. 2 e. h. og í Leslie þann sama dag kl. 5 e. h. Allir velkomnir. H. Sigmar. Frá íslandi komu fyrir helgina, þeir Jóhann kaupmaður Jjóhannes- son í skemti og kynnis för, eink- um að hitta bróður sinn, Sigurð lækni í Wynyard, og Guðmundur Johnson, eftir vetrar dvöl á ætt- jörðinni. Þeim varð samferða frá Englandi Jón Ólafsson Jjónssonar, frá Geldingaholti í Árnessýslu, er dvalið hefir alllanga hríð á Bret- landi. Lögberg hefir verið beðið að geta þess, að séra Hjörtur Leó messi i Skjaldborgar kirkju á sunnudags kveldið kl. 7. Frá Peace River bygð er til borkar kominn Mr. Sheridan Lawrence, er þar hefir dvalið' í 26 ár, og sýnt manna bezt, að þar má rækta hveiti, engu síður en annars staðar vestanlands. Mr. Law- rence segir gull vera þar í hverj- um fljóta flúðum og spáir að þangað verði bráðlega eins mikil aðsókn af gullnemum, einsog til Yakon eða Alaska. Hann lét yf- irleitt mikið yfir framtíð þessa héraðs og framförum, sem þar eru næsta stórstígar. Meðal annars má geta þess, að stjórnin í Alaska hefir gert samning við Jj. D. Mc- Arthur að leggja járnbraut til héraðsins, er sé fullgerð fyrir 31. Desember 1914. Hér í borg lézt á laugardaginn að heimili Jósefs sonar síns, 378 Mary- land St., Björn Skaptason, eftir nokk- urra daga legu í lungnabólgu. Hann var nálægt 76 ára gamall, fæddur 1837 á Hnausum í Þingi, sonur Jósefs læknis Skaptsonar, nafnkends manns og vel þokkaðs á Norðurlandi um sína daga. Þar ólzt Björn heitinn upp og kvæntist árið 1871 Margrétu Stefáns- dóttur; þau tóku við búi og bjuggu í Hnausum þar til þau fluttust til Can- ada árið 1883, og bjuggu lengi þar sem nú heitir Hnausa P.O. í Nýja ís- landi. Eftir 37 ára sambúð misti Björn heitinn konu sína fyrir 5 árum, og voru þau þá flutt búferlum til Winni- peg. Þau áttu fimm börn er til aldurs komust: Jósef, stjórnarráðsritari, Hallsteinn, fasteignasali, dætur þrjár, Alfa og Anna hér i Winnipeg og Mrs. A. F. Reykdal að Árborg, Man. Björn heitinn var maður í gildlegra lagi á vöxt og afl, sem aðrir þeir frændur, trúmaður einlægur á efri árum, hjartagóður maður, svo að hann mátti ekki aumt sjá og allra manna greiðviknastur, fjörmaður og frábærlega vel lyntur. — Hann var jarðsunginn á mánudaginn að við- stöddu fjölmenni; séra R. Marteinsson om sunnan af þingi til að framkvæma kirkjulegar athafnir við útförina. HÚSNÆÐI og FŒÐI.—Mrs. Hll. grímsson, 640 Burnell Str., selur hús- næði og fæði. Good Templarar fóru sina árlegu skemtiferð á jónsmessudag, í’ þetta sinni til Gimli. Var margt manna í för inni, og skemti sér við ræðuhöld og söng og íþróttir í skemtigarði Gimli- /búa, þar til rigningin skall á síðari ‘hluta dags. Ræður héldu þar prest- arnir, Guðm. Árnason og R. Mar- teinsson, svo og Jóhann Jóhannesson og A. S. Bardal. Kvæði voru sungin, er orkt voru við tækifærið, eftir G. J. Hjaltalin, Björn Pétursson og Mrs. Margrétu Sigurðsson. Herra Gunn- laugur Jóhannsson stýrði skemtisam- Harry Preece, er fékk hættulega á- verka við það, að verða fyrir bifreið, er nú á batavegi, með því að hann hafði ekki meiðst innvortis. ITilboð. Tilboðum veitir undirritaður móttöku fram að 5. Júlí um að leggja til veitingar á Þjóðhátíð íslendinga þann 2. Ágúst næst komandi, er haldin verður í sýningar garðinum. Tilboðin mega vera um hressingar eða máltíðir eða hvorttveggja. Hæfi- legt húsrúm verður lagt til. Til- boðin segi til hvernig máltíðir séu og verðið fyrir þær. Ytarlegri upplýsingar gefur Ó. S. THORGEIRSSON, 8krifari nefndarinnar. Mr. John Mayer.. UmboSsma&ur New York Life ábhrgðarfél. Mig langar til að geta þess við yður, að 15 ára ("Endowment) lífs- ábyrgð sú, er þú seldir mér fyrir 15 árum síðan, er nú fallin i gjalddaga, og má eg nú velja um $3,660,84 útborgað eða $8,166,60 hvenær sem eg dey. Taki eg fyrra tilboðinu fæ eg $623,34 fram yfir það sem eg borgaði til félagsins, auK þess að hafa haft $3000,00 lífsábyrgð í 15 ár. .Taki eg hinu tilboðinu, borgast til erfingja minna $5,128,50 fram yfir það sem eg borgaði frá byrj- un; í þriðja lagi er mér boðið $200,97 árlegur lífeyrir. Ekki veit eg hvað er bezt að taka, en eg veit nú með vissu, að New York Life lífsábyrgðir er fullkomin trygging og sparibanki. Margur maður borgar lífsábyrgð sína með þeim pesisgum, sem hann annars eyddi í óþarfa. Þ<að ættu ungu mennirnir að athuga sem allra fyrst. Svo þakka eg þér fyrir áreiðan- legheitin og er þinn einlægur, M. Borchardt. CANADA BRAUD HREIN FÆÐA Þér getið ekki verið of hugsunar- samur um brauðið sem þér etið — heilsa yðar og heimafólksins er kom- in undir hreinni faeðu. Canada brauð inniheldur hina mestu næringu úr bezta hveiti J Canada. Ðiðjið um CANADA BRAUÐ 5c. brauðið Tals. Sherbr, 2018 20 prct. vextir á að kaupa agreement. Eitt nú til sölu fyrir $1800; góð trygging. Kom- ið eftir upplýsingum til The Teskey Realty Oo. 206 Carlton Blk. 3B2£ Portage Ave. Phone Main 2900 Tals. Sher.2022 R. HOLDEN Nýjar og brúkaðar Saumavélar. Singer, White, Williams, Raymond, New Home.Domestic.Standard.Wheeler&WiIson 580 Ellice Ave., við Sherbr.St. Winnipeg Tvíbökur er hollur og hentugur brauðmatur alla tíma ársins, en einkum í hitum á sumr- in. Seljast og sendast hverjum sem hafa vill í 25 punda kössum eða 50 punda tunnum á nc pundið. Einnig gott hagldabrauð á ioc. pundið. — Aukagjald fyrir kassa 300., fyrir tunn- ur 25C. G. P. THORDARSON, 1156 Ingersoll St., Winnipeg . HOLDEN REALTY Co. Bújayðir og Bæjarlóðir keyptar seldar og teknar í skiftum. 580 Ellice Ave. Talsími Sher. 2022 Rétt við Sherbrooke St. Opið á kveldin FRANK GUY R. HOLDEN Hver sá, sem kynni að vita eitthvað um Helga Nordmann (Þorgrímsson frá Nesi), er vinsamlegast beðinn að gera mér aðvart. Adam Þorgrímsson (frá Nesi) 640 Burnell St., Winnipeg Winnipeg. Hitar miklir voru fyrir síðustu helgi, alt að 90 stigum í skugga þegar heitast var. RAILWAY RAILWAY RAILWAY RAILWAY SUMARFERÐIR UM STÓRYÖTNIN TIL AUSTUR CANADA OG BANDARIKIA I VM Om’TH. Hin hentugasta ferS á stærstu og fegurstu skipum, er finnast á vötnum. Einum degi lengur fyrir sama verS. Fara frá Winnipeg á hverjum degi kl. 6 siSd. og 7.40 árdegis; koma til Duluth 8.25 árdegis og 10.40 sfSdegis. Brauta samband um Chicago eSa “Soo”. N’OTA VINSÆLTJ UM PORT ARTHUR. Samband viS allar gufuskipa- Ilnur. Lestin rennur niSur á bryggjur. Allar bryggjur og hðtel fast viS vagnstöSvar Canadian North- ern járnbrautarfélagsins. Fer frá Winnipeg á hverjum degi kl. 6 siSdegis. IÆSTIRNAR The Albertti Express milli Winnipeg, Saskatoon og Edmonton. The Capital City E.xpress millí Winnipeg, Brandon, Regina, Saska- toon og Prince Albert. NIDURSETT FAR FYRIR SUMARFERPIR Um frekari upplýsingar ber að leita til hvers umboSsmanns Canadian Northern félagsins, eSa skrifiS R. CREELMAN, General Passenger Agent, Winnipeg. Gísli Goodman TINSMIÐUR VERKSTŒÐJ: Korni Toronlo og Notre Dame Phone ; Helmllfs Garry 2988 Garry 899 ASHDOWN’S SILFURVARNINGUR, SLÍPAÐ GLER, HNÍFAR. GAFFLAR og SKEIÐAR Vér viljiun benda á þetta sem hentugar brúðargjafir. SIUFUR-VARNIN GUR. Te set, 4 stykki......$10.00, $20.00 til $50.00 Te set, 5 stykkl...... 27.50, 30.00 til .60.00 Bökunardiskar............. 5.00, 7.50 tU 15.00 “Casseroles”.......... 5.00, 7.50 til 14.00 Opnir smjördiskar og hnífar .. 2.25, 3.00 tU 3.60 Sykur og rjónia ílát...... 3.60 og 7.50 Köku körfur..........$4.00, 5.00, 7.50 til 23.00 MARGSTRENT GDER Skálar................ $3.50, $ 5.50 tU $17.50 Könnnr................ 5.00, 6.00 til 20.00 Glös, dús. á.......... 8.50, 10.50 til 32.00 Sykur og rjóma ílát ....$3.60, 4.00, 5.00 til 17.50 Hnetu skálar.......... 7.50 til 15.00 Blómsturvasar........$3.50, 6.00, 7.50 til 30.00 SJERSTAKT Isrjóma bakkar............................$5.00 HNÍEAP6R OG SKEIBAR. tylft Reliance Plate teskeiðar í kassa..$2.10 1 tylít Reliance Plate teskeiðar I kassa.. 3.50 CUT GUASS og SIUVER WARE DEPARTMENT Skoðið inn í glugg- ana hjá.......... ASHDOWN’S iShaws! t * I 479 Notre Dame Av. £ 4, * 4» f»*l'e|7«l»4»«l''l-l',l’,i',i',l,,l',l,,l''l’,l'4,,l',l’,l',l’ T •i* **■ •h Stærzta, elzta og ^ bezt kynta verzlun + $ meö brúkaöa muni + * í Vestur-Canada. $ Alskonar fatnaöur J keyptur og seldur ? ^ Sanngjarnt verö. % | Phone Garry 2 6 6 6 % UNGAR STÚLKUR óskast strax til að læra að setja upp hár og snurfusa neglur. Kaup borg- að meðan lært er. Aðeins fáar vikur þarf til þess. Stöður útveg- aðar eftir að námi er lokið’. Komið og fáið fagurt kver ókeypis og sjáið Canada’s fremstu hár- og handa prýði og fegurðar stofu að 483 Main St., beint á móti City Hall, uppi. Hvaða skollans læti. Nei, nei, eg hef ekki núna hangi- ket fyrir tíma, en strax og eg fæ það skal eg gala það svo hátt, að allir landar heyri. En eg hef á boðstól- um saltað, reykt og nýtt svínaflesk. Nýtt og saltað nautaket og nýtt sauðaket. Svo hef eg allskonar könnumat, já, og tólg og svínafeiti. Auðvitað bara þessa viku nýorpin hænuegg 12 fyrir 25c. Flestalt er það óheyrilega ódýrt hjá ketsalanum ykkar S. 0. G. Helgason Phone: Sherbrooke 85 0 530 Sargent Áve., Winnipeg Skrifstofu Tals. Mam 7723 Heimilis Ta.ls. Shcrb.1 704 Miss Dosia C. haldorson SCIENTIFIC MASSAGE Swedish r ick Gymnasium and Manipula- tions. Diploma Dr. Clod-Hansens Institute Copenhagen, Denmark. Face Massage and Electric Treatments a Specialty Suítc 26 Stecl Block, 360 Fortage Av. KJÖT, alskonar tegundir höf- um við til sölu með sanngjörnu verði. Þér gerðuð vel í því að koma hingað landar góðir og mun yður vel líka. ANDERSON & GOODMAN, eigendur G. 405. 836| Burnell St. Sumt af þelm vörum, sem vér seljum, sjá- 18 þér sjálf a8 eru g68ar. En um sumar ver8I8 þér a8 öllu leyti a8 vera komin upp á lyfsalann. Til dæmis a8 taka eru me8ul eftir Iyfse81I. Þau ættu ekki a8 skeika hI8 allra minsta frá réttu og ekkert vera I þelm nema þa8, sem læknir til tekur. Þa8 er komi8 undir samvizkusemi lyfsalans hvort læknislyf hafa nokkra verkun e8a ekki. Eigum vér traust y8ar skili8 ? Ef svo er þá komi8 hinga8 me8 lyfseðl- ana og fái8 me8öl út á þá. Ver8i8 er sanngjarnt og afgreí8hlan fljót. FRANKWHALEY Jlrfðmptiott úruggtst 724 Sargent Ave., Winnipeg Phone Sherbr. 258 og 1130 Isrj *ntni i molum eöa í UUll heilu lagi ÁVEXTIR, SÆTINDI, VINDLAR, TÓBAK Og SVALADRYKKIR. Leon Foures, 874 Sherbrook St. TIL SÖLU: Motor flutnings vagn í góðu ástandi. Getur borið l 500 pund. Mjög hentugur fyrir Con- tractara eða til afhendingar um bæinn. Verðurað seljast af því hann er of lítill fyrir þann, sem nú á hann. Frekari upplýsingar fást hjá 761 WILLIAM Ave. Tals. G. 735 Winnipeg Fréttir um Íslendingadaginn. ....A. S. Bardal er mestur hestamaður vor á meðal, og á marga íslenzka gæð- inga. Við einn þeirra er sagt að hr. M. Marl^ússon ætli að reyna hlaup á þjóðhátíðinni 2. Ágúst. Það er sagt, að ein af skemtunum, em fram eigi að fara á Islendingadag- inn sé sú, hver sé fljótastur að rista torf. Engir fá að taka þátt i því nema fasteignasalar, sem eru í nefndinni. Sagt er að ritstj. H.kr. fG.T.J eigi að halda aðalræðuna á íslendinga- daginn.—Þá verður ekki langt á milli orðanna. Sagt er að allir þeir, sem vigta yfir 250 pund eigi að hafa kapphlaup á Is- lendingadaginn. Þar kemst Joe S. að. Þeir sem fljótastir reynast að hnoða “clay” á Islendingadaginn, fá medalíu. —Trygvi er góður, Steini betri.— Þ. Þ. Þ. á að koma mönnum til að hlæja á Islendingadaginn. Hann er orðinn grín-ritstjóri Hkr. “Consolation Prize” fyrir bezta dans á íslendingadaginn er í ráði að gefa. R. Th. Newland sagður líkleg- ur til að verða drjúgastur. Allir verða fullir og feitir á íslend- ingadginn. O. S. Thorgeirsson á að sjá um matinn. Hvaðanœfa. — Suður í Dakota dóu tvö börn nýlega af nöðrubiti. Rúmföt höfðu verið látin út um daginn og viðruð i grasi. Um kveldið voru börnin háttuð; eftir stund heyrði móðir þeirra annað segja: “Vertu ekki að klípa mig”. Hitt svaraði: “Hættu að klípa mig!” MóSir þeirra hagræddi kodda og ábreiðu og bað þau sofa. Um morguninn, þegar hún ætlaði að vekja þau, voru þau örend, og á milli þeirra lá eiturnaðran. — Suður í Washington D. C. var unglingur fyrir rétti sakaður um rán á almannafæri. Þegar málið stóð sem hæst, tók unglingur þessi upp skammbyssu og byrjaði að skjóta í ákafa. Dómarinn faldi sig bak við borð sitt, en lögreglu- þjónar skriðu undir bekki og stóla. Sumir stukku út um glugga og létii sig detta tvær þrjár mannhæðir, og varð þar felmtur mikill og skelkur, þartil eitt vitnið greip fyrir kverkar unglingsins og hálf- vegis kyrkti hann. — Ein lest C. P. R., full af fólki var á ferð skamt frá Van- couver; var þá skotið> úr einhverj- um felustað við brautina. Kom skotið i hö-fuð manni er sat í aft- asta vagninum, fauk hatturinn af honum en skotið rauf skinnið alt að höfuðkúpu og var það svöðu sár. Ein kona fékk sár af gler- brotum. Ódáðamannsins var þeg- ar leitað af mörgum, en ófundinn er hann enn. — Stór verksmiðja brann í Montreal í vikunni sem leið; þeg- ar veggirnir hrundu, urðu sjö eld- liaðr undir þeim, dóu fjórir strax en þrír eru mikið meiddir. Bruna- tjónið er metið 225 þúsundir dala. — Fátækur fjölskyldumaður er vinnur við G. T. P. í Fort William, gekk heim til sín eitt kveld úr vinnu og rakst á greni í skóginum. Hann fékk sér skóflu.og byrjaði að grafa út grenið og náði loksins tveim yrlingum lifandi. Þjrem dögum seinna seldi hann þá fyrir 3000 dali út í hönd; yrlingarnir eru blágráir, af svokallaðri “silver fox” tegund. Umboðsmaður “tóubænda” i austur Canada keypti yrlingana til undaneldis. ar , Frá Mountain er nylega kominn Mr. Guðmundur Jiohnson, og ætl- ar vestur að vitja landa er hann og synir hans hafa tekið í Quill Lake héraði. Mr. Johnson frestaði för sinni um nokkurt skeið af því að hann meiddist af slysi, hestur hafði fælst með hann, og hefir hann legið rúmfastur um hrið. Synir hans' eru komnir þangað a undan honum, en kona hans er syðra enn- þá. Mr. Johnson er bróðir Mr. J. Th. Clemens hér i borg, og faðir Stefaníu leikkonu í Reykjavík. — Klaus Berntsen hefir látið af stjórn í Danmörku, en við hefir tekið C. Th. Zahle, er áður hefir staðið fyrir stjórn hinna rauðustu umbótamanna. Ekki getur hann myndað stjórn sína án aðstoðar sosialista, eða einhvers annars þingflokks, en ekki hefir heyrzt hverjir helzt styðja hann til valda. Edward Brandes er fjármála ráð- gjafi en E. Scavenius utanríkis- ráðherra í þessu ráðanevti. VITANLEGA viltu fá beztu ,kaup á sápu eins og -----_________ á öðrum varningi, þá ættirðu að kaupa Royal Crown Soap, því þá færðu ekki ein- göngu fyrirtaks sápu, heldur líka fagra verðmæta muni.— Sendið eftir premíu-skrá. Hýn fæst ókeypis, Vér sýnum fáeinar hringa premíur hér:— Hringur No. 515. Hringur No. 514. | Drifinn í höndunum, Með þrem ávölum fagurlega gerður — gimsteinum fyrir 75 fyrir 125 umbúðir. umbúðir. Hringur No. 508. Með tveim ávölum steinum og tveim smáum gimsteinum fyrir 125 umbúðir. Hringur No. 513. —Frúa eða meyja 2 steina hringur, með tveim ávölum gimsteinum, fyrir 100 umbúðir. STÚLKUR OG KONUR, þessir hringar eru góðir, með gullhúð, munu revnast vel. Sendið eftir einhverjum þeirra strax. ÞAÐ MUN BORGA SLG AÐ GEÝMA UMBÚÐLRNAR The Royal Crown Soaps, Limited PREMLUM DEPT. WLNNLPEG MAN. Graham Eyjan, B.C. Skuldlaust Heimili fyrlr sama vertS og utanbæjar 16Í5, þar sem milt er loftslag, aldrel frost á sumr- um, aldrel kuldl á vetrum og ekkert 6- ræktarland. Fast vltS hinn bezta markað með ódýrastan flutn- Ing. Aíborgun melr en 4 ár. SenditS eft- Ir vorum stóra bækl- ingi metS myndum,— fæst ókeypis. Queen Charlotte Land Co. Limited 401-404 Coníederation Uife Bidg., Winnipeg. - Tals. Main 203 BEZTU VINNUSTOFUR, BEZTU PRENTARAR, BEZTU AHÖLD OG BEZTI VIUI á að gera gott verk fyrir hvern sem í hlut á, ætti að mæla með því, að þér létið o$s prenta fyrir yður. The Columhia Press, Limited Cor. WiUiam and Sherbrooke Phone: Garry 2156

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.