Lögberg - 09.04.1914, Qupperneq 1
THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD.
Hcnry Avc. East, - - Winnipegr, |4an.
VIÐUR, LATH,
ÞAKSPÓNN.
Fljót afgreiðsla.
Ábyrgst að vel líki.
ef ®.
THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD.
Honry Ave. East. - - Winmpog, Man'
VIÐUR, LATH,
ÞAKSPÓNN
Fljót afgieiðsla.
Ábyrgst að vel líki.
27. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 9. APRÍL 1914
NÚMER 15
Hjálpsemi við C. N. R.
$88,101,524 veittar,
NýskeS kröft5ust libéralar þess
í sambandsþinginu, aö iá aö vita
gerla um landveitingar og fjárveit-
ingar þær, er sambandsstjór.ún
hefði rétt aö C. N. R. félaginu.
Var stjórninni sýnilega óljúft aö
hreyft var viö því máli, en meö
nokkurum eftirgangsmunum, fékst
þaö þó af ráöherrunum, að viöur-
kenna, aö stjórnin hcfði styrkt fé-
lagið með $28,354,942 fjárveitingu,
og auk þess ábyrgst skuldabréf
þess fyrir upphæð, sem nemur
hvorki meira né minna, en $59,-
746,582. Fyrir utan þessa hýru
hefir félagið fengið h]á sambands-
stjórninni landflæmi sem er 4,002,-
846 ekrur að stærð. Voru lönd
þau fyrst veitt járnbrautarfé-
lögum, Lake Manitoba, Winnipeg
og Hudsons Bay og Manitoba
South Eastern félaginu, en við
járnbrautar stúfum þess tók C. N.
R. félagið. Þessar fjárveitingar
og hlunnindi sem C. N. R. félagið
hefir orðið aðnjótandi á ekkert
skylt við þann styrk er hin ýmsu
fylki hafa veitt því.
Ofviðri á sjó.
Miklir mannskaðar við Newfound-
land.
Eftir fyrri helgi komu ofviðri
mikil við austurströnd Norður-
Ameríku, einkum er við brugðið
aftaka 'veðri, sem var fyrra þriðju-
dag þar eystra. Kom veðriö harð-
ast við, gufuskip, sem voru að sel-
veiðum í Belle Isle sundi, hröktust
þau langar leiðir og lesktust sutn,
en menn björguðust á ísjökum
og var náð þaðan eftir veðrið, bæði
kölnum og kumluðum. Skip það,
| er menn vita um með vissu að
! farist hafi, hét Newfoundland.
[ Fórust á því milli fimtíu og sextíu
manns, en um fjörutíu var bjarg-
að, nær dauða en lífi, af sárum og
: ineiðslum. Um annað skip, sem
! Southern Cross hét, eru menn
1 orðnir hræddir, því að ekkert hef-
ir spurst til þess síðan í þriðjudags
I bylnum. Á því skipi voru 173
’ menn. Þykir nú nærri fullvíst, að
það hafi farist, með allri áhöfn.
Torreon tekin herskildi
Nefndarskýrslan
Þrungin af blygfiunarlausri hlut-
drægni.
Undanfarið hafa staðið lang-
ar umræður í sambandsþingi um
skýrslu nefndarinnar sælu, er
Bordenstjórnin fól að rannsaka
Grand Trunk málið. Liberalar
hafa haldið því fram að skýrslan
beri þess ljós vitni, að hún sé sam-
in af hlutdrægni og flokksfylgis
hvötum, og árásir á fyiwerandi
sambandsstjórn séu bygðar á örg-
ustú ýkjum og hóflausri ósann-
girni, því að enn sem komið sé,
hafi ákærendmn ekki hepnast að
færa rök fram fyrir því, að nokkr-
um dál aT ~því fe, er stjórnin lét
verja til brautarinnar, hafi verið
varið sviksamlega, eða öðruvisi en
lögum samkvæmt. Um nefndar-
skýrsluna fórust Sir Wilfrid
Laurier meðal annars svo orð í
þiriginu 2. þ. m.: Skýrslan er
þrungin af blygðunarlausri hlut-
drægni. Flokksfylgi rýkur úr
henni alstaðar eins og reykur úr
kerlingareldi, og rangfærslur og
hártoganir eru óteljandi. En í
gegnum ryk og mððumökk ósann-
indanna, má þó sjá eina staðreynd
sem er ljós og ódyljanleg, og hún er
sú, að engin fjársvik hafa átt sér
stað í sambandi við lagning Nation-
al Transcontinental brautarinnar.
Andstæðingar vorir segja, að hún
hafi kostað $150,000,000, en ekki
einum einasta dal af því hefir verið
varið óreiðusamlega. Hverjum
einasta dal hefir verið varið til
brautarbyggingarinnar. Eina ásök-
unin, herrar mínir, ér sú, að vér
höfum bygt brautina of vel, að
vér höfum gert oss of glæsilegar
vonir um framtíðina, og boriö of
mikið traust til lands vors, Can- ;
ada. Traust vort á þessu landi
hefir verið mikið, en ofmikið hefir
það aldrei verið, og ekki meira en
það hefði átt að vera. Vér gerðum
oss háar vonir, en engu hærri held- j
ur en vér hefðum átt að gera oss. [
Og að endingu vildi eg mega bæta
, því við, að þessi braut mun verða
1 það í reyndinni, sem menn hafa
búist við að hún yrði, það er að
segja, ef þeir menn, sem nú eiga
að sjá um hana, spilla því ekki. —
Nefndarskýrslan var borin undir
atkvæði í þinginu eftir umræðurn-
ar, og greiddu allir conservativar
atkvæði með henni, en liberalar á
móti. Atkvæðamunur 38.
Um hálfan mánuð höfðu upp-
reistar menn -í Mexico setiö um
Torreon borg, það hið trausta vigi
sambandsmanna, er um var getið
i síðasta blaði. Á fimtudaginn var
tókst þeim loks að ná borginni á
sitt vald, eftir harða viðureign og
miklar blóðsúthellingar. Upp-
reisnármenn tóku fjölda fanga.
Um það fer tvennum sögum, hvort
fyrirliði sambandsmanna í Torre-
on hafi náðst eða ekki. Sumir
segja hann á Villa valdi, en aðrir,
að hanti hafi flúið með nokkrum
leifum hers síns til fjalla. —
Uppreistarmenn kváðu hafa mist
allmarga menn í þessari síðustu
stórorustu, og sagt er að sárir og
fallnir samtals muni vera um 2000.
Það er orð gert á því, hve sókn
uppreistarmanna hafi verið rösk-
leg og uieö miklu narðfylgi gerð.
Fyrst kom fyrirliði hersveitum sín-
um til Torreon með nn meira
snarræði og flýt’ e~ uæmi eru fyr
til í sögu Mexico manna. Hann
hafði og áður lagt á öll ráð um að-
sóknina, og var þeirri fyrirætlun
fylgt fram með djörfung og kappi,
smáþrengt að hinum umsetnu og
alt af skift um áhlaupsmenn, er
aðrir tóku að þreytast, unz hinir
gáfust upp, sem borgarinnar
geymdu og hún féll í hendur
mönnum Villa.
Hryllilegt morð í Van-
couver-
Krafchenco-málið
hefir nú staðið yfir um hrið i
Morden, og blöðin verið full af
framburði vitna þeirra er leidd
hafa verið. Lauk vitnaleiðslu af
hálfu hins opinbera fyrir helgina
síðustu, en síðan hefir lögmaður
ákærða leitt nokkur vitni. Eitt
Jiessara, hebreskur maður, hefir
borið það, að Krafchencó hafi
heimsótt sig klukkan 4 þriöja eða
fjórða Desember síðastl. Þykir
sennilegt, að vitnaleiðslunni verði
lokið um miðja þessa viku og kvið-
dómendur kveði upp dóm sinn fyr-
ir næstu helgi, og Krafchenkó-mál-
ið verði þá til lykta leitt.
Bordenstjórnin og
tollarnir.
Neitað um tollafnám á hveiti. Toll-
ar hœkkaðir á stálvarningi.
Bændum gleymt, munað
eftir verksmiðjueig-
endum.
Fyrir skemstu hvarf kona nokk-
ur í Vancouver, og eini maðurinn,
sem á heimili hennar var, kinversk-
ur, 17 ára gamall, þóttits lengi
vel ekkert vita, hvað af henni
hefði orðið. Síðar meðgekk hann
að hann hefði ráðið konunni, hús-
móður sinni, bana, eftir að þeim
hefði sinnast útaf heimilisverkum.
Hefði hann síðan skorið hana í
stykki og brent í “furnace”. Fund-
ust þar beinin. Piltur þessi hafði
verið á heimilinu, þar sem hann
framdi þennan glæp, í fimm ár, og
farið vel á með honum og hús-
bændum lians. Verður því þetta
ódáðaverk enn óskiljanlegra. Sagt
er að morð þetta hafi orðið til þess
að vekja á ný óvild þá, er hvitir
menn vestra hafa haft á Austurálfu
mönnum. Er svo sagt, að mörgum
austurlenzkum vinnumönnum hafi
verið sagt upp vist af hvítu fólki,
og ekki trútt um að skærur hafi
orðið úti á borgarstrætum milli
austrænna og vestrænna manna.
Ríkasti maður í heimi
er nú nýlátinn í Pasadena í Cali-
forníu. Það var Frederick Weyer-
haeuser miljónaeigandi frá Minne-
sota og trjáviðarsali mikill. Hann
var þýzkur að ætt, fæddur 1834;
er mælt að hann haíi átt fjörutíu
miljónir ekra af trjáviðarlöndum
og eignir hans taldar að vera hálf
önnur biljón dala.
Fjögur herskip voru seld í
Lundúnum um mánaðamótin á
uppboði. Eitt þeirra Renoon skip-
ið, sem konungur og drotning
sigldu á til Indlands fyrir nokkr-
um árum. Það var selt fyrir
$i9og.ooo.
A mánudaginn var lagði Hon.
W. T. White fram í þinginu toll-
málabreytingar stjórnarinnar. Eins
og kunnugt er, hafa bæði bændur
og verksmiðjueigendur lagt að
stjórninni, fyrnefndir um tollaf-
nám hveitis og mjöls, og á fleiri
varningi, en verksmiðju-eigendur
hrópaö um tollhækkun í gríö. Þó
að stjórnina langaði til að sinna
hcldur kröfum vina sinna verk-
smiöjueigendanna, mundi margur
liafa ímyndað sér, vegna þeirrar
miklu dýrtíðar, er hvílir á þjóð
vorri eins og mara, að ráðherrarn-
ir daufheyrðust ekki algerlega við
tolllækkunarkröfum bænda, og
léttu eitthvað ofurlítið á hátolla-
farginu, sem alþýðán stynur und-
ir. En Bordenstjórnin er þykk-
eyrð fyrir kröfum almennings,
sem marka má á því, að White
ráðgjafi sagðist strax vilja taka
það fram, að þess væri enginn
kostur að stjórnin gæti numið toll
af hveiti og mjöli. En þess gat ráð-
gjafinn ekki að vísu, hversvegna
stjórnin neitar um þetta tollafnám,
en það er vitanlega gert í því skyni
að tryggja hagsmuni mylnueigenda
í Canada, og girða fyrir það, að
haggast megi einveldi auðfélag-
anna um flutningana. Hinsvegar
var litilf jörleg tolllækkun fyrirhug-
uð á nbkkrum akuryrkju verkfær-
um. En við verksmiðjueigendur
var Bordenstjórnin svo hugulsöm,
að hækka toll á fjölmörgum vöru-
tegundum þeirra, einkum járni, og
stálvarningi frá 10—20%. Revnd'st
þar þunt móðureyra stjórnarinnar
við hróp auðkýfinganna, þó að
hún gleymdi bændum að mes'tu
leyti.
Rússastjórn andvíg vínsölu.
Rússar virðast vera að vakna til
meðvitundar um þá bölvun, sem
af áfengissölunni stafar. Keisar-
inn og þingið virðast þar taka
saman höndum. Það er einhuga
álit hans og þess, að eitthvað verði
að gjöra til þess að stemma stigu
fyrir því þjóðarböli. Witte greifi
hafði lagt það til, þegar hann var
fjármálaráðherra fyrir 10 árum,
að stjórnin hefði sjálf einkaleyfi á
áfengissölunni, og var það gjört.
Honum hefir nú snúist svo hugur
eftir þá reynslu að hann kallar þá
aðferð glötun Rússlands og þjóð-
areyðilegging; árangur þess hefir
orðið gagnstæður því sem búist var
við, segir hann. Það hefir aukið
víndrykkjuna og áhrif hennar; og
náð stjóminni á band vínsalanna
og móti þjóðinni. Hann er nú með
því, að sem minstar tekjur séu
fengnar af vínsölu, og þeim varið
til útbreiðslu bindindis. Núver-
andi fjármálaráðgjafi er þessu and-
stæður; telur hann einn fjórða af
öllum tekjum stjómarinnar vera
af sölu áfengra drykkja, og segir,
aö öll fjármál landsins kæmust í
óreiðu, ef vit af væri breytt í þessu
atriði.
Bindindislög allströng voru þó
samþykt í þinginu; er það líklegt
til þess að koma á vínsölubanni í
stórum parti landsins. Bæir og
sveitafélög mega banna vínsölu
með einföldum meirihluta atkvæð-
isbærra manna, og hafa konur einn-
ig atkvæði um það í’bæjum. Efri
málstofa þingsins samþykti frum-
varpið með fáeinum breytingum.
Keisarinn liefir lýst velþóknun
sinni á þessari siðbótahreyfingu og
beðið ráðgjafa sína að finna upp
einhvern veg til inntekta fyrir rík-
isfjárhirzluna, sem ekki sé bygð'ur
á siðferðisglötun þjóðarinnar, eins
og áfengisarðurinn sé.
W. P. Rogers skólastjóri í Cin-
cinnate, segi\svo frá, að 12 málum
hafi verið ráðið til lykta á frið-
samlegan hátt á friðarþingum í
Hagne, sem áður hefðu verið viss
að valda stríðum'.
Japanar hafa stofnað félag í
New York með því augnamiði að
sjá um að landar þeirra, sem koma
til Randaríkjanna, fái rétt til að
verða borgarar landsins.
VINSÆLL RITSTJÓRI
STEFAN 15JÖKXSSOX.
Stefán Björnsson.
Maður sem stjórnað hefir eins
útbreiddu og áhrifamiklu blaði og
Lögberg er um níu ára skeið sam-
fleytt, hann er þjóð sinni sannar-
lega kunnur, andlega að minsta
kosti. Menn sem í opinberum
málum standa og nokkuð kveður
að, eiga oft í vök að verjast, að
því er vinsældir snertir. Það er
meiri vandi aö s'.jóma blaði sem
eindregið vinnur ineð vissum mál-
efnum, og þarafleiðandi eindregið
á móti öðrum, án þess að skapa sér
óvild, en nokkuð annað, sem menn
taka ser fyrir hendur.
Flestir ritstjórar pólitískra blaða
koma úr þeim bardaga, eins og
hundar úr áflogum. Það þarf sér-
staka hæfileika, sérstaka lipurð,
sérstaka geðprýði, sérstaka still-
ingu til þess að standa á þeim
vígvelli svo árum skiftir og skapa
sér engan óvin, en vinna þó ein-
arðlega að áhugamálum sínum og
ákveðinni stefnu blaðs sins, og þeir
eru örfáir, sem það hlotnast. Þessa
hæfileika hefir Stefán Bjömsson
sýnt að hann á, og þeir eru mikils
virði. Enginn maður hefir stjórn-
að blaðinu eins lengi og hann; al-
drei hefir það verið útbreiddara,
aldrei meira lesið, aldrei vinsælla
og áhrifameira, en einmitt í hans
höndum. Persónulega má vera, að
fáir fslendingar vestra þekki
Stefán, því hann er dulur maður,
laus við það að trana sér fram og
fjarri öllu yfirlæti. Hann hefir
einn stóran galla, og ha,nn er sá,
LOKAFUNDUR
ísl. Liberal klúbbsins verður haldinn næst-
komandi þriðjud. kvöld í neðri sal G. T.
hússins. Ræður fluttar. Nógir vindlar að
reykja. Allir velkomnir. Byrjar kl. 8 síðd.
að hann tekur sjálfur of lítinn þátt,
í félagsmáluin, því hann á til þess
góða hæfileika og grefur þar pund
í jörðu. En svo er þess að gæta,
að sá sem hefir blaðstjórn á hendi
og vill vinna verk sitt samvizku-
samlega, hann hefir. ekki ráð á
miklum tíma afgangs.
Eg þekti Stefán heima á íslandi,
þegar við vorum í skóla; duldist
það engum þar að hann átti mikla
andlega hæfileika. Eina hlið gáfu
sinuar hefir hann annaðhvort \an-
rækt í seinni tíð eða dulið fyrir
öðrum, og það er hagmælskan;
hann orti þó nokkuð þegar hann
var í skóla, og voru sum kvæði hans
cinkar fögur.
Stefán Björnsson er fæddur á
Kolfreyjustað 14. Marz 1876,
hann er því 38 ára gamall. Ilann
lauk stúdentsprófi í Reykjavík ár-
ið 1900 og embættisprófi við
prestaskólann þremur árum síðar.
Kona hans er Helga Jónsdóttir frá
Rauðseyjum á Breiðafirði, hafa
þau eignast fjögur börn og tvö
þeirra dáið, en tveir- drengir á
lífi. Faðir Stefáns er Björn bóndi
í Dölum í Fáskrúðsfirði sonur
Stefáns umboðsmanns Jónssonar
frá Snarfastöðum, en móðir hans
var Margrét dóttir séra Stefáns
Jónssonar á Kolfreyjustað.
Stefán hefir í hyggju að flytja
til íslands og taka þar prestskap.
Hpfir hann ávalt borið hlýjan hug
til fósturjarðar sinnar. Fylgja
þeim hjónum hugheilar óskir allra
V esturíslendinga.
Sig. Júl. Jóhannesson.
kæmi eða hið gagnstæða.
Mér finst að hann ætti að geta
átt hér góða framtíð. Vilja nú
ekki Vestur-íslendingar sýna þann
drengskap að bjóða honum hingað?
Þeir þyrftu að leggja fram fé til
þess að flytja myndasafn hans
vestur og hafa til handa honum
sæmilegt húsrúm, bæði fyrir sjálf-
an hann og safn hans.
Eg er sannfærður um það, að
annað eins safn drægi að sér at-
hygli manna, væri það á góðum
stað hér í bæ; eg efast ekki um að
hann gæti fengið svo mikla sölu
fyrir listaverk sín hér, að hann
brátt yrði fjáður maður; gæti það
orðið íslendingum hér í álfu til
mikils sóma. Einar gæti orðið
meiri og sterkari lyftistöng þjóð-
erni voru hér, en nokkuð annað.
Vilja menn gjöra svo vel og hugsa
þetta mál, og láta Lögbergi í té
niðurstöðu þá, sem þeir komast að.
Vestur-Islendinga yfirleitt munar
ekkert um að kippa safni Einars
yfir hafið og hýsa það hér sóma-
samlega.
BITAT}.
Heimskringla segir að á gull-
aldarárum framsóknarflokksins
hafi þeir dregið asnann og nautið
upp úr piltinuiu, þótt á Sabbats-
degi væri, en nú vilji þeir ekki
rétta Ný-lslendingmn sinn minsta
fingur til að hjálpa þeim. Fögur
eru nöfnin sem blaðið gefur Ný-
íslendingum.
gjöf ? Beint svar væri æskilegt við
beinum spurningum.
. Gæti það undir nokkrum kring-
umstæðum verið afsakanlegt ef
nokkur bindindismaður greiddi
Roblinstjóminni atkvæði sitt eftir
alla meðferðina. á þeim?
Á hvaða ástæðum gæti það verið
bygt ef Roblinstjórnin teldi sér
nokkra liðveizlu vísa af hálfu
kvenna, eftir svivirðing þá, er hann
sýndi þeim í þiáginu?
Roblinstjórnin er á móti kven-
réttindum, á móti beinni löggjöf,
á móti frjálsri verzlun, á móti vín-
sölubanni, á móti skyldumentun.
1 Hún er því me'ð kúgun kvenna,
með krókalöggjöf, með verzlunar-
kúgun, mcð drykkjuskap fsem er
óhjákvæmileg afleiðing af vínsölu)
og með því að láta það draslast,
hvort börn þjóðarinnar læri nokk-
uð eða ekki neitt.
Auðmenn í New York hafa ver
ið að ráðgera að koma upp feikna''
miklum safnabyggingum, þar sem
sýna skuli ýmsar merkar upp-
fyndingar og verkfæri, alt frá
loftfara-áhöldum ofan i járðyrkju-
verkfæri. Það er ráðgert, að þess-
ar safnabyggingar muni kosta um
$25,000,000.
Björgunarstöö ætla Bandaríkja-
menn að reisa í Goat eyju við
Niagarafossa, í því skyni að frelsa
líf manna er lendi þar í vatnið á
háskasamlegum stað, og ná þeim
áður þeir hrekist fram af fossun-
um. Stöðin kvað eiga að kosta um
$10,000.
í Worchester urðu tvær aldrað-
ar manneskjur bráðdauðar af
hræðslu, sjötugur öldungur og
kona hátt á sjötugs aldri. Þau
höfðu séð þrjá menn berjast á
götu úti út af lítilræði, og fékk öldr-
uðu manneskjunum þáð svo mikils
að leið yfir bæði, hvort í sínu lagi,
og þau vöknuðu ekki aftur til þessa
lifs.
Lög hafi verið samþykt í þing-
inu í Washington, sem banna inn-
flutning allrar iðnaðarvöru, sem
unnin sé af glæpamönnum og |
þurfamönnum.
Frakklands stjórn er að semja I
lög, er ákveða að allir verkamenn
skuli hafa frí síðari hluta dagsins,
cins og nú tiðkast á En|landi og
Vesturheimi.
Brezka þingið hefir það á
prjónunum að fá allar kvenrétt-
inda konur, sem einhverja upp-
reisn gjöra, dæmdar vitskertar með
lækna vottorði, og sendar á spítala.
Hvar hafa “þeir frjálslyndu”
heitið því að fé skuli ekki lagt til
umbóta vegum og samgöngum í
Nýja íslandi og norðurhluta Gimli
kjördæmis, fái þeir að ráða? Hkr.
er náttúrlega ekki svo óhlutvönd
að staðhæfa neitt slíkt án þess að
byggja á einhverju, sem sagt hefir
verið eða skrifað. Hvar og hve-
nær var það?
Hverjar eru hinar viðsjárverðu
aðferðir framsóknarmanna, sém
talað var mikið um á fundi ís-
lenzkra íhaldsmanna 30. Marz og
Heimskringla getur um?
Þykir þeim það viðsjárvert að
heitið er árás á brennivínsvaldið ?
eða þykir þeim það viðsjárvert að
heitið er að leyfa konum þátttöku
í stjómarfari landsins? cða þykir
þeim það viðsjárvert að fólkinu
skuli sjálfu leyft að segja álit sitt
um sin eigin mál með beinni lög-
Th. H. Johnson lagði fram, á-
kærur gegn E. L. Taylor og Rob-
linstjórninni og heimtaði að málin
væru rannsökuð. Taylor kom með
mótkærur gegn andstæðingum sín-
um, þó ekki beint. Th. H. John-
son og hans menn kröfðust þ'ess,
að hvorartveggja kærurnar væru
rannsakaðar, en því var neitað.
Taylor lofaði þó að málið skyldi
rannsakaö, ef Johnson tœki fyrst
aftur katrurnar á sig.. Hvor finst
mönnum að liafi komið sanngjarn-
ara fram í þessu máli?
Roblinstjómin lét taka menn
fasta og varpa þeim í fangelsi rétt
férir kosningar og hélt þeim þar
þangað til þær voru atstaðnar. Þá
er þeim slept út. Þeir spyrja
hvenær mál sitt verði rannsakað,
þeim er sagt, að ekkert mál verði
hafið gegn þeim. Þeir heimta það
að þeir séu dæmdir sýknir eða
sekir, en því er ekki sint. Til-
laga kemur fram í þinginu þess
efnis að krefjast rannsóknar, en
stjórnin neitar því með öllu. Nú
liggja fyrir þessar spurningar: Ef
mennirnir voru sekir, var þá ekki
skylda hinnar svokölluðu réttvísi,.
sem er í höndum stjórnarinnar að
rannsaka málið og dæma þá til
hegningar? Var það ekki skylda
stjórnarinnar samkvæmt embættis-
eiði hennar, gagnvart mönnunum
og gagnvart fólkinu? Ef þeir
j voru saklausir, var það þá ekki
! skylda að rannsaka málið og sýkna
mennina Braut ekki stjómin
skyldu sína í þes'su tilliti, hvort sem
þeir voru sýknir eða sekir?
Einar Jónsson.
Fyrir skömmu birtist i Lögbergi
stutt grein um Einar Jónsson, lista-
manninn islenzka í Kaupmanna-
höfn og verk hans ; var þess getið
þar, að hann ætti við fremur þröng-
an kost að búa og nyti sín ekki
sem skyldi.
Mér hefir nýlega borist bréf
heiman af fslandi, sem tekur í sama
strenginn, og er þess minst þar,
hvort það niundi ekki tiltækilegt
fyrir Einar að flytja til Winnipeg.
Eg hefi verið að brjóta heilann um
það síðan, hvort Einar mundi sækja
auðnu til þessa lands ef hann
Ötnefning þingmannaefna hefir nú farið fram i
fyikisins, og skuiu hér taldir þeir, sem hafa boðiS sig
meS vissu:—
Kjördæmi.
flestöllum kjördæmum
fram og vér vitum um
BRANDON CITY..
GILBERT PLAINS
GLENWOOD
KILLARNEY .......
KILD. & ST. ANDREWS ..
LA VERANDRYE
MINNEDOSA .....
PORT. La PRAIRIE
ROCIvWOOD .....
ST. BONIFACE .
ST. CLEMENTS
STE. ROSE.......
SWAN RIVER .....
TIRTLE MOUNTAIN
VIRDEN..........
Ijiberalar. Conscrvatívar
. J. W. Wilton J. T. Haig
John Williams A. M. Lyle Hon. G. R.Coldwell
. G. H.Malcolm W. M. Taylor
. Robt. Paterson Hon. J. H. Howden
... T. B. Molloy A. Prefontaine
... .T. Christie Geo. Steele
.... E, A. August Sir R. P. Roblin.
.... Dr. Thornton J. C. W. Reid
... John Steele W. Buchanan
... Geo. Walton Dr. McFadden
... Dr. T. Glen Hamilton H. D. McWhirter
... Wm. Shaw
.... E. S. Jónasson S. Thorvaldson
Col. A. L. Young
—- Dr. Armstrong Ashery Singleton
... J. H. MeConnell Wm. Fergu^on
.... S. M. Hayden Hon. Geo. Lawrence
Geo. W. Prout Dr. H. W. Montague
.... T. C. Norris
.... C. D. McPherson J. J. Garland J. B. Lauzon
V. Winkler W. J. Tupper
.. Wm. Molloy Jacques Parent
.... Dr. I. H. Davidson J. Morrow
J. F. Dale
- Geo. A. Grierson W. B. Waddell
R. F. Lyons
Hon. Hugh Armstrong
Isaac Riley
E. Graham
.... Thos. McLennan F. W. Newton
.... D. A. Ross Thos. Hay
... Skúli Sigfússon E. L. Tayior
... J. A. Campbell Thos. Hamelin
.... W. H. Sims J. W. Stewart
.... Geo. McDonald Jas. Johnson
Dr. Clingan Harvey Simpson