Lögberg - 16.04.1914, Síða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 16. APRÍL 1914
5
HALLGRÍMR PÉTRSSON.
(1614—1914.;
Eftir séra Hjört J. Leó.
1. Þú komst til vor í vorri dýpstu neyí5
sem voldug hetja, send af guði í stríð.
Þú kveiktir vonar Ijós hjá föllnum lýö
og lýsir oss um margra alda skeið.
2. Já, föllnum djúpt. Hvaö var—og ennþá er
vort erf'ðatjón, vort böl, vor höfuðsynd?
Sú þjóð, sem er af óbilgirni blind,
alls ekki vill né getr bjargað sér.
3. Þú kornst til vor að segja sannleikann
og sj úkdómskross þinn barst í helgri ró.
Þín hjartans játning: Drottinn Jesús dó—
dó fyrir mig, svo lifi’ eg fyrir hann.
4. Þú kvaðst; oss veittust holl og heilnæm ráð
og hvöt til starfa meðan dagr vinnst,
og er í vestri hnígr kvöldsól hinzt,
oss huggun veitir drottins eilif náð.
5. í sannri auðmýkt enginn var þér jafn.
Þú eygðir glöggt, hve hyggja vor er blind.
Þú kennir: Allir játi sinj synd,
er sigra vilja’ í trú á Jesú nafn.
6. Guð var þér allt, því hjarta þitt var hans,
frá honum streymdu spámannsorðin þín
um synd og náð, um ást, sem aldrei dvín,
um eining heilags guðs og syndugs manns.
7. Þú hvíldist hljótt við hjarta lausnarans
sem hann, er drottinn sjálfr unni mest; f
þar lærðir þú að lifa’ og starfa bezt
og laða vora þjóð að krossi hans.
•*
8. Þú barst þinn kross með Jesú æfi-ár,
af ást til hans og trú þitt hjarta brann,
en ,,hvern sem drottinn elskar agar hann“,
hans ást þér skein sem bros í gegnum tár.
9. Og þegar sorgin svall i hjartans und
og síðsta striðið var að enda kljáð,
„Guð komi sjálfr nú með sína náð”,
í neyð þú baðst á þinni dauðastund.
10. Þinn heiðr: einlæg iðrun syndarans,
þitt andvarp: bœn til guðs um hjartans frið,
þín hreysti: máttr guðs, er ljær þeim lið,
sem leggja allt sitt traust á miskunn hans.
11. Hann leiddi þig til sigrs yfir synd
og sorgarþyrnum krýndi höfuð þitt,
og stillti hörpu hjarta þíns við titt.
Hann var þinn guð, og lifs þíns fyrirmynd.
12. Þú hafðir áhrif, af því hugr þinn
var—einsog mjöllin—hreinn og laus við tál.
Þitt untboð var frá drottni: sekri sál
að sýna leið til guðs í himininn.
13. Hann vígði skáldið sitt til starfs og stríðs
unz storma lægði bak við dauðans höf;
þú, Hallgrímr! varst herrans náðargjöf
frá honum send til vor, hans breyzka lýðs.
14. Menn hrifnir stara’ á heimsins dýrö og prjál,
heimspekisóra, flærð og sjáifsblekking,
en hrokans brautir enda’ í örvænting
og allt vort dramb að lokum reynist tál.
15. Hví gengr seint með öll vor trúmál enn?
Er ekki guð hinn sami nú og fyr
°g þörfin söm við dapðans myrku dyr
á drottins hjálp við syndum hláðna menn?
,* •
16. Það gengr enn svo ömurlega seint.
því oft vér kjósum heimsins tylli-sátt
og treystum þrátt um of á eigin mátt
og öðrum kennum meira lært en reynt.
17. Bjarga’ oss, vor guð ! vér biðjum þig í neyð
Lát blessun þína lýsa hvert vort spor.
Send annan Hallgrím mitt á meðal vor
af miskunn þinni’ að sýna’ oss rétta leið.
—“Sam.”
Jieim skilningi. En þá kemur ann-
að til athugunar. Hver var eða
er þessi Krafchenco? Hverjir
voru íoreldrar lians eða forfeður ?
Hvaðan fékk hann eðli sitt? Und-
ir hvaða kringumstæðum var hann
fæddur og alinn upp? Hvaða öfl
voru það, sem viðburðirnir létu
hafa mest áhrif á hann ? 1 hvaöa—
eða öllu heldur i hvers—móti var
hann steyptur? Hversu mikið er
honum sjálfrátt af verkum sínum
og hversu mikið ósjálfrátt? Hvers
konar voru þær ástríður og þrár,
sem hann var skapaður með af
náttúrunnar hendi? eða til þess að
fylgja gömlu hugsuninni; undir
hvaða merki var hann fæddur?
I?egar menn eru dæmdir, hvort
sem það er af almenningsálitinu
eða fyrir dómstóli laganna, þá má
ekki ávalt hafa sama mælikvarð-
ann. Sama meðal gagnar ekki við
alla sjúkdóma; og rneira að segja,
sama meðal gagnar ekki öllum við
sömu veiki. Til þess að geta vænst
nokkurs árangurs, verður hver
læknir að lesa ofan i kjölinn hvem
sjúkling, sem hann hefir undir
höndum. Það er ekki nóg að gefa
meðal eftir föstum, ófrávíkjanleg-
um reglum; eðli sjúklinganna,
likamsbygging þeirra, kringum-
stæður þeirra og ótal margt fleira.
verður læknirinn að taka til greina,
áður en hann kemst að þeirri nið-
urstöðu í huga sér, að liann verði
að gefa ákveðið meðal i ákveðnum
styrkleika. Þ’að er sama með dóm-
arann; hann verður að vikta og
ntæla allar ástæður; hann verður að
setja sjálfan sig í spor þess, sem
kærður er, hugsa sér hvað hann
mundi hafa gjört i hans sporum;
hvað hafi knúið hann til yfirsjón-
arinnar; hvað hafi hrundið honum
af réttri leið. Það er engin dygð
að drekka ekki fyrir þann sem ekki
hefir tilhneiging til víns; það er
engin dygð að stela ekki fyrir þann
sem ekki hefir neina þörf né til-
hneiging til þess. Allir helztu
mannfræðingar vorra daga eru
komnir á þá skoðun nú. að glæpir
og yfirsjónir séu fremur veiki en
nokkuð annað ; þurfi fremur lækn-
ing en hegningu. Menn; sem^ eru
brjálaðir, og hættulegir mannfélag-
inu fyrir þá sök, eru hafðir á sér-
stökiim stofnunum, ekki fangels-
um. Ef það skyldi verða sannað
í framtíðinni að glæpir værtt af-
Ieiðing veikleika, meðfædds, ovið-
ráðanlegs, eða litt viðráðanlegs eðl-
is, hvílíkar voðasyndir væru það
þá, sem mannkynið ætti á baki sér:
allir dauðadómarnir — öll löghelg-
uðu morðin — því dauðadómar
eru ekkert annað. Þ'að er ekkert
sanngjamara, ekkert mannúðlegra,
ekkert réttláara að lífláta mann
fyrir brjálsemi, en fyrir taugaveiki
eða lungnabólgu.
“Guð vill ekki dauða syndugs
manns, heldur að hann snúi sér og
lifi”, stendur einhversstaðar i
biblíunni. Þjóðirnar, sem þykj-
ast hafa hana fyrir reglu og mæli-
snúru, veigra sér ekki við þvi að
taka syndarann og svifta liann
lífi, eins og það er líka gjört
á geðslegan hátt venjulega. Sé
maðurinn sekur um synd, þá er
frá honum tekinn möguleiki iðrun-
ar og yfirbótar, ef hann er sviftur
lífi. Sé hann aftur á móti sann-
iðrandi og hafi snúist hugur, þá er
lítil afsökun fyrir hinu löghelgaða
morði.
Dauðadómurinn er því frá þessu
sjónarmiði þannig, að honum verð-
ur ekki mælt bót; hann er í beinni
mótsögn við kenningar og verk
þess, er sagði að fyrirgefa ætti sjö-
tíu sinnum sjö sinnum.
Engum dettur það i hug að þeir
menn ættu að leika lausum hala, er
hættulegir gjörast þjóðinni með
breytni sinni. En það má fyr rota
en dauðrota; eins lengi og fangelsi
eru til, eru þau rétti staðurinn fyr-
ir brotamenn; þegar timar líða
fram verða það sjúkrahús.
Mörgum beztu mönnum þjóð-
anna rís hugur við dauðadómum
og eru þeim andstæðir. Meira að
segja sá er málið sótti á móti Kraf-
ehenco lýsti því yfir að hann væri
dauðadómum mótfallinn. Menn
heyrðu klökkva í nöddinni og sáu
sorg í svipnunt á hinum harðvit-
uga lögmanni þegar dauðadómur-
inn var upp kveðinn, og óx hann
stórum að virðingu fyrir. Það er
ekki alt af karlmenskuverk, að
bægja frá sér öllum bljúgum til-
finningum ; þeir hafa verið mestu
mennirnir, sem mest hafa getað
fundið til.
Rurt með dauðadóma; btirt með
löghelgað morð-
Hlutir keyptir
í ísl. eimskipafélaginu vestanhafs.
Áður auglýst........kr. 154,700
Jónas Kristjánsson, Wyn-
yard..................kr. 50
Sigurður Thomasson, Grafton 100
Vigfús Erlendson, Vancouver 200
Skúli Skúlason, Hove P. O. 20
Jón Kemested, Winnipeg
Beach...................... 100
Páll Halldórson, Bifröst .. xoo
Gísli G. Johnson, Narrows 200
Guðm. Thorkelsson, Narrows 100
Guðm. Pálsson, Narrows .. 100
Jón Sigurðsson, Narrows .. xoo
Bjöm Jónsson, Marrieta Wash. 100
A. Jónsson, Húsavík Man. 100
S. Baldvinsson, Narrows .. 100
Mrs. Sigriður Egilsson,
V'ancouver................. 25
Thorkell Gíslas'on, Wmni-
pegosis.................... 500
Sigurður Sigfússon, Oakview 100
Björn Jónsson, Churchbridge 100
M. J. Matthews, Siglunes . . 100
Paul Kjernested, Narrows .. 100
Jón Matthews, Siglunes .... 75
Katrín G. Egilsson, Winni-
pegosis..................... 50
Jón Nikulásson, Víðir . . . . 500
Hinrik Gislason, Churchbridge 100
K. O. Oddson, Thingvalla .. 100
Sigurður Hjaltalin, Mountain 100
Frá Victoria:
Einar Brynjólfsson........... 625
Bina Helga Brynjólfsson .. 100
Sigurður Mýrdal.............. 100
Jón Halldórsson............... 100
G. M. Thorlaksson .... .. 25
Olina Guðbrandsdóttir .... 25
Bjami Bergman................ 375
Margrét Gower................. 25
Pétur Christianson............ 100
Éinar Brandson................ 100
Bjarni Brandson *............. 25
Jón H. Jónsson................ 100
Olafur Jónsson .. .. .. .. 200
Guðrún Jónsson................ 100
Lilian Jónsson................ 100
Anna Dagmar Jónsson .. .. xoo
MICKELSÖfTS
RCCISTCREO
GUARANTEED
TO
KILLTHEMQUICK
EASYTOJUSE PRICE St.25
MiCKELSON DRUC’‘Í' CHEMÍcÁl CO., LTD.
WINNIPCO CANAOA
>
V
Hver pakki af
MickelsorTs
Kill-Em-Quick
Gopher E i t ri
verður aS liafa mynd og hand-
skrift þá sem hér fylgir til þess
þér séuö viss um aö fá þá teg-
und, sem tilbúin er meö ströngu
eftirliti Anton Mickelsons. SÍÖ-
asti pakki, sem tilbúinn var hér
meö hans eftirliti án þessa miöa,
var búinn til fyrir 1. Júni 1913.
Pessi miði tryggir þaö ekki ein-
ungis aö þaö sé hiö ðbrigðula
KilX-Em-Qiiick, heldur og þaö,
aö hiö bezta gopher éitur fáist.
prjár stirrðir. $1.25, 75c., 50c.
Sclt í öllnni góðum apótekutn.
Mickelson Drng & Chemical Co., Ltd.
Office og Factory: C’or. Young & Portagc Ave., WINNIPEG.
Jón Valdimar Jónsson .... ioó
Bjami I. Jónsson............ ioo
Olafur H. Sæmundson .... 50
Helga Sæmundson ..! .. .., 50
Pétur Johnson................ 25
Christian Sivertz............ 25
EHnborg Sivertz.............. 25
Henry -George Sivertz .... 25
Valgerður Miller............. 25
Mrs. Pétur Christianson .. 50
Miss Jane Christianson .... 50
Frá Icelandic River:
Halli Björnsson............. 250
Stanley H. Stefanson .... 25
Stella M. Stefanson.......... 25
Guðrún Illhugadóttir...... 375
Frá Hecla:
Bjami Stefanson.............. 25
Sigríður Stefanson........... 25
Jón Sigvaldason............. 125
Thorgrímur Jónsson .. .. -.. 100
Jón J. Hoffman.............. ioö
Jóhannes Halldórson .... 50
Benedikt Kjartanson .... 50
Ámi Johns'on . . ........... 100
Frá Selkirk:
B. S. Benson .. ........... 1000
B. Dalmann.................. 250
P. Magnússon.................100
Bros. Benson............... 1000
O. J. Olafson.............. 100
Miss V. A. J. Bardal .... 25
Sigurbjörn Benson........... 100
Gtiðm. Erlendson............ 100
F. K. Austdal............... igo
Kristján Sæmundson .... 50
B. Thorsteinson............. 100
N. S- Thorlaksson .. .. ó.. 100
A. T. Jónasson.............. 100
Gunnar Jónsson.............. 100
Eiríkur Jónsson............. 100
Vilhjálmur Guuðmundson .. 100
Einar B. Daxdffl............ 100
Illugur Ólafsson............ 100
Runólfur Hinriksson .. . . 100
Mrs. Guðrún H. Johnson .. 100
Oli Eggertson............... 100
Jón Sigurdson............... 100
Björn Björnson.............. 100
Kl. G. Jónasson _........... 100
Thorarinn Thorkelsson .... 75
Eggert Sigurdson............ 100
B. Johannesson.............. 100
Berent Berentson . .......... 50
H. W. Gíslason .............. 50
Einar Thorvaldson............ 50
Hjörtur Sigurgeirson .... 25
CANADAÍ
PINEST
TMEATRí
Föstudag og I.augardug. 17-18 Apríl,
og Matinee á Laugardag
leikur Winnipeg Operatic Society
Celler’s fagra söngleik
— DOKOTHY —
með leyfi Messrs. Chappell and Co.,
London, Eng.
50 fagrir samsöngar verða sungnir
Fagrir bún’ingar. Margir leik^arar
ALLA VIKUNA SEM KEMUB
og Matinee á MiSvd. og Iiaug.d.
ieikur I Walker hinn nafnfrægasti
leikari Englands, þeirra er viö
ástaleiki fást
— MARTIN IIAKVEV —
með aðstoð Miss M. de Bilva og gðös
leikflokks frá Englandi.
Mánuds., Miöv.d. og Fimtud. kveld:
“Thc BKEED OF TIIE TKESHAMS”
priöjud., Föstud. og Laugard. kveld:
og Laugardags Matiuee
“THE ONIjY WAY"
Miðvikud. Matinee
“A CIGAKETTK MAKEK'S
BOMANCE”
Sætasala byrjar Föstudag 17. Apr.
Kveld: $2 til 25c. Mat.: 81.50 til 25c.
Vikuna frá 27. Apríl og
Matinee á Miðv.d. og Laug.d.
leikur HENRXETTA CROSMAN
í leiknum
sem uuglýstur skal í næsta blaði.
Sigurgeir Sigvaldason .... 25
Samtals .... kr. 166.600
Aths. — Þessi listi átti að birt-
ast fyr, en það hafði fyrirfarist;
er það ekki féhirði Eimskipafé-
lagsins að kenna, heldur vangá
blaðsins. — Ritstj.
Norðurljósið.
Vinsælasta heimilisblaðið á
gamla landinu. Kemur út í hverj-
um mánuði, 8 bls. í hverju blaði
eru góðar myndir, "'heimilislækn-
ingar” (1. bls.J og fjölbreyttar
greinar. Margir álíta það “ómiss-
and i á hverju heimili”. Blaðið
er á kristilegum gmndvelli. 2. ár-
gangur byrjaði í Jan. 1913. (1.
árg. alveg uppseldur;. Kostar að-
eins 30 cent, fborgað fyrir fram;.
Pantið strax hjá Miss J. Gillis, 500
Victor St., Winnipeg.
JBóksalar snúi sér til útgefand-
ans. Arthur Gook, Akureyri, Ice-
landj.
The Empire Sash & Door Co.
-------------- Limited ----------
HENRY AVE. EAST - WINNIPEG
VIÐUR ”LATH“ ÞAKSPÓNN
Fljót afgreiðsla. Ábyrgst að kaupendur séu ánægðir
1000
manna, sem orðið hafa
heilsulitlir, hafa haft stór-
mikið gagn af hófsamlegri
brúkun á
DREWRYS
Redwood Lager
Hreinasta malt-tonic
Æfinlega eins á bragð
ið og jafn góöur.
REYNIÐ ÞAÐ
>VWWWWWV
J. J. BILDFELL
FASTEIOnA8ALI
RoomSÍO Union Bank - TEL. 2S8S
Selur hús og lóðir og aanast
alt þar aOlútandi. Peningalán
Gísli Goodman
TINSMIÐUR
VERKSTŒÐI:
Horni Toronto og Notre Dame
Phone
Oarry 2988
HelmitU
Oarry 899i
Fáið ánægju
af skóakaup-
um með því
að kaupa þá í
Quebec Shoe Store
639 Main Street, Winnipeg
Rétt fyrir norðan Logau Ave.
>[ARKLT ff0TEL
við sölutorgið og City Hall
$1.00 til $1.50 á dag
Eigandi: P. O’CONNELL.
Thorsteinsson Bros.
New York Shoe House
Kurlinahna *kór úr briinu
kálfsskiiini og Gun Metal kálfs-
sklnni, hneptir eðn reimaðir
$3.50 og $4.50
Fárió þar beina leið upp á loft og
sparið yóur Dollar
M || Með því að borga eins lága húsaleigu og
^JI við gerum, og með því að kaupa alt fvrir
peninga út í hönd, eins og við gerrnn, get-
um við selt ykkur hvaða tegund af skóm sem þið
aeskið fyrir að minsta kosti $1.00 til $2.00 lægra
verð en nokkur önnur skóverzlun, sem borgar
frá $500 til $1,000 húsaleigu um mánuðinn.
Karlm.skór, Gun Metal kálfssk.
brúnir, “Russian” og Vici Kid.
$3.50 og $4.50
Við höfum aðeins tvennskonar verð á öllum
skóm, kvenna jafnt sem karla; og það er:
$3.50 og $4.50
Við höfum einnig allar tegundir af barna og unglinga skóm, sem kosta 9^c og
þar yfir. Við seljum skó sem fara vel á fœti, skó sem endast vel og umfram alt
seljum við skó sem þið sparið peninga
með að kaupa.
Ef þið einu sinni hyrjið á því að kaupa skóna ykkar
áf okkur, þá er það víst, að við höldum framvegis verzl-
un við ykkur. Það gera vörugæðin og lága verðið.
$3.50 og $4.50
Gun Metal, brúnt kálfsskinn,
•Kussian” og “patent” leður
$3,50 og $4.50
NEW YORK SHDE HOUSE
[264 PORTAGE AYE.
Uppi á lofti yfir Woolworth’s nýju 5, 10 og 1 5c búð
“Patent” leður. “Carveneth”
að ofan; samskonar úr Gun
Mctal
$3-50 og $4.50
Byggja hús. Selja lóðir. Útve*8
lán og eldsábyrgð.
Fónn: M. 2»92. 815 Somerset Bid«
Heimaf.: G .736. Winnipeg.
Alþýðuvinurinn
BLAÐIÐ aem allir vilja
lesa, af því að það er
bæði gagnlegt og
skemtilegt; auk þess eina
í 3 1 e n z k a hindindisblaðið
vestan hafs. Takið eftir dórai
lesenda þess á hðrum stað í
þessu blaði. Mánaðarrit.-
Verð 75c ár*. Utanáskrift;
692 Banning St., Winnipeg
þ++++-M-++++++-f+-l-b++++++-M-++++-f+++-l-i"l-t++++++++>++++E.M-+++++++++++♦+++♦+♦+♦+++-♦-+♦+-►+.♦•+•*.*♦-*♦+•♦+-►+-♦-+++♦+++-f+-l-é
Ef þér viljið fá fljóta og góða
afgreiðslu þá kallið upp
WINNIPEG WINE 00.
685 Main St. Fóa M 40
Vér flytjum inn allskonar yln
og líkjöra og sendum tll ailra
borgarhluta. Pantanir ílr sreit
afgreiddar fljótt og vel. Sérstakt
verö ef stöBugt er verzlaö.
Piltar, hér er tæki-
færið
Kaup goldið meðan þér laeriö rakara
iðn í Moler skólum. Vér kennum rak-
ara lðn til fullnustu á tveim mðnuöum.
Stöður útvegaöar aö loknu n&mi, ella
geta menn sett upp rakstofur fyrir
sig sjálfa. Vér getum bent yður &
vænlega staöi. Mikil eftirspuin eftir
rökurum, sem hafa útskrifast fr&
Moler skólum. Varið yöur á eftir-
hermum. Komiö eöa skrifið eftir
nýjum cataiogue. Gætið aö nafninu
Moler, á hornl King St. og Pacifte
Ave., Winnipeg, eöa útibúum 1 1709
Road St., Reglna, og 230 Simpson St.
Fort William, Ont.
Þér fáið yður rakaðan og kliptan
frítt upp á lofti frá kl. 9f.h. til 4 e.h
J. J. Swanson & Co.
Verala meS fasteignir. Sjá um
leigu á húsum. Annast lán og
eldsábyrgðir o. fl.
1 ALBERT/\ B10C+.. Portage & Carry
Phone Main 2597