Lögberg - 15.07.1915, Qupperneq 8
8
LÖGJBERG, FIMTUDAGINN 15. JÚLÍ 1915.
Bhe
RlBBéfí
GolllS
"Ssj?
fílielíCíjyrL
Blue Ribbon
KAFFI
og Bökunarduft
Það getur verið að þú sért bezta
matreiðslukona í veröldinni en ef
gerefnið sem þú notar er lélegt, þá
getur þér ekki hepnast matreiðslan.
Notaðu aldrei annað en Blue Ribbon
bökunarduft, með því getur þú bú-
ið til bezta brauð og kökur.
Blue Ribbon er mælikvarði fyrir
gæði þegar talað er um te, bökunar-
duft, krydd og bragðbætir.
Ur bænum
Næsta sunnudagskveld kl. 7.30
prédikar séra H. J. Leó í Skjald-
borg. ____________
Bækur sendar Lögbergi: Um Har-
ald hárfagra. Frásagnir Heims-
kringlu og annara fornrita vorra.
Eftir Eggert Briem frá Viöey. —
Haustlöng. Stórt 'hundrað hring-
hendur eftir Guömund Friðjónsson.
Þann 6. þ.m. gaf séra Guðmundur
Árnason saman í hjónaband Mr. Sig-
urö Sigurðsson frá Elfros og Miss
Kristínu Johnson frá Leslie, Sask.
Hjónavígslan fór fram á heimili Mr.
Páls S. Pálssonar. Brúöhjónin fóru
sama dag til Swan River, þar sem
þau ætla aö dvelja stuttan tíma áöur
en þau setjast aö í Elfros.
Jr ------------
Nefnd sú, er kosin var á síðasta
kirkjuþingi til að annast um gamal-
mennaheimiliö og sjá því fyrir föst-
um verustað, hefir nú keypt hús eitt
allstórt í Gimli-bæ fyrir $4,000. Er
búist viö aö viðgerð á húsinu kosti
alt aö $2,000, og mun nefndin hafa i
hyggju aö láta ljúka því verki svo
íljótt, aö flutt verði í húsið áður en
vetrar.
Mr. og Mrs. Ingvar Olson komu
til borgar um helgina úr ferðalagi til
ýmsra staða í Saskatrhewan, sérstak-
lega Foam Lake og Kandahar, þar
sem Mr. Olson hafði timburverzlan-
ir, sem hann nú hefir selt. Mr. Ol-
son ætlar að dvelja í borginni um
tima.
Herra Jón Brandsson, frá Garðar,
N.D., skrapp vestur til Árgyle, að
loknu kirkjuþingi, og ferðaðist þar
um nokkra daga, en þar hafði hann
aldrei komið áður. Honum leizt vel
á þá bygð, búskapur blómlegur og
einkum tók hann til þess, hve akrar
væru þar fagrir og vel hirtir. Mr.
Brandsson fór heimleiðis á laugar-
daginn.
Herra Arni Eggertsson, formaður
þeirrar nefndar, sem staðið hefir
fyrir hlutakaupum hér vestra í Eim-
skipasjóðinn og, unnið ötullega i þvi
efni, sagði oss, er vér spurðum hann,
að ekki séu enn ráðstafanir gerðar
til að kjósa íuiltrúa hluteigenda hér
vestra, til að fara með umboð þeirra
á aðalfundi félagsins
Jón Jónsson smiður dó á fimtu-
dagskveldið að heimili sínu, 792
Toronto stræti, tveim mánuðum mið-
ur en áttræður að aldri. Ekkja hans
er á lífi, háöldruð, og þrjú börn, Mrs.
Jón Ólafsson í Leslie, Sask., Þóra og
Jóhann, ógift hjá foreldrum sínum.
Hann var ættaður úr Borgarfirði,
var þar búandi maður i Reykholts-
dal, kom hingað fyrir meir en 20 ár-
um. Jón sái. var mikill iðjumaður
og vann meðan kraftar entust.
Herra Hallur O. Hallson, bóndi að
Silver Bay við Manitoba vatn, segir
góða líðan í þeim bygðum. Kvrk-
ingur hefir verið í grasgróðri vegna
kulda, en vafalaust muni rætast úr
þvi, þegar hitarnir koma. Maðkur
hefir gert skaða á nokkrum stöðum.
til dæmis alveg sviðið akur er Bjöm
bóndi Jónasson átti, og á tveim öðr-
um ökrum hefir hann gert skaða þar,
en annars lítið unt hann. Lönd eru
mikið til öll numin þar nyrðra, nema
þau, sem eru öll í skógi, svo að land-
þröngt gerist úr þessu, en bændur
þurfa miklar slægjur fyrir gripabú
sín. Nú er svo lágt í vatninu, að
varla eru dæmi til og má slá hvert
strá niður í fjörusteina.
Robson dómari hefir skipað stræt-
isvagnafélaginu, að láta vagna ganga
yfir Arlington-brúna, en bærinn lof-
ar að hafa gæzlumenn við brúar-
sporðana
Herra Eiríkur Þorbergsson hefir
tekið upp sína gömlu atvinnu, ljós-
myndasmíði, sem hann lærði í Kaup-
mannahöfn og stundaði um mörg ár
á Húsavík á íslandi. Hann hugsar
til að ferðast ofan til Árborgar og
ef til vill um bygðirnar umhverfis,
um næstu helgi og fram eftir vik-
unni.
B. Davis auglýsir í þessu blaði,
að hann selur og gerir við úr og
klukkur. Hann hefir nýlega sezt að
í snoturri búð á Sherbrooke stræti
milli William og Elgin stræta.
RAKARASTOFA og KNATTLEIKABDRD
694 Sargent Cor. Victor
Þar líður tlminn fljótt. Alt nýtt ogmeð
nýjustu tízku. Vindlar og tóbak selt.
S. Thorsteinsson, eigandi
Eg hefi nú nægar byrgðir af
‘granite” legsteinunum “góðu”,
stöðugt við hendina handa öllum
sem þurfa. Svo nú ætla eg að biðja
þá, sem hafa verið að biðja mig um
legsteina, og þá, sem ætla að fá sér
legsteina í sumar, að finna mig sem
fyrst eða skrifa. Eg ábyrgist að
gera eins vel og aðrir, ef ekki betur.
Yðar einlægur,
A. S. Bardal.
Sálmabókin.
Hin nýja sálmabók kirkjufé-
lagsins er nú til sölu hjá féhirði
félagsins herra Jóni J. Vopna.
Utanáskrift Box 3144 Winnipeg,
Man. Afgreiðsla á skrifstofu
Lögbergs. •
Bókin er sérstaklega vönduð að
öllum frágangi. Kostar $1.50,
$2.25, $2.75, eftir gæðum bands-
ins; allar í leðurbandi. — Söfn-
uðir kirkjufélagsins, sem panta
20 bækur eða fleiri, fá 25% af-
slátt áð frádregnu burðargjaldi.
Þessi sálmabók inniheldur alla
Passiusálma Hallgrims Pétursson-
ar og einnig hið viðtekna messu-
form kirkjufélagsins og margt
íleira, sem ekki hefir verið prent-
að áður i neinni isknzkri sálma-
bók.
Halldór J. Eggertsson er nýkom-
inn úr ferðalagi um bygðirnar í
nánd við Lundar, Man. Var hann í
erindum fyrir Mutual Life Assurance
Co. of Canada, sem hann er umboðs-
maður fyrir. Lætur hann v’el yfir
Iíðan bænda þar yfirleitt, og hafa
þar margir stór kúabú og vel arð-
berandi. Eru þar nokkrar bújarðir
til sölu með mjög rýmilegu verði, og
er Mr. Eggertsson fús að veita upp-
lýsingar ókeypis því viðvíkjandi.
Hann biður oss að geta þess, að hann
hefir komist i samband við menn,
sem hafa nú á herrdi peninga til að
lána í Winnipeg, á hús, og ættu
þeir, sem þurfa að fá lán, að finna
Halldór J. Eggertsson sem fyrst.
Hann er að hitta á starfstofu bróður
sins, Árna Eggetrssonar, 204 Mcln-
tyre Block, Winnipeg.
Miss María Hermann hjúkrunar-
kona kom fyrir helgina frá Dauphin,
Man., þar sem hún veitir forstöðu
hjúkrunarstörfum á allmiklu sjúkra-
húsi. Miss Hermann dvelur hér um
stund hjá foreldrum sínum og syst-
kinum og hefir í hyggju að ferðast
suður til Dakota áður en hún hverf-
ur aftur til Dauphin.
Miss Inga Johnson, hjúkrunarkona
við Almenna spítalánn hér, og systur
hennar tvær, Jenny og Laura ("Mrs.
BurnsJ, fóru fyrir helgina í kynnis-
för til systur sinnar, Mrs. K. S.
Thordarson, sem heima á vestur í
Saskatchewan.
Síðastlíðinn sunnudag prédikaði
sera Carl J. Ólson við hádegisguðs-
þjónustuna í Fyrstu lút. kirkjunni
hér, en hjá Skjaldborgar-söfnuði um
kveldið.
Það er að heyra á þeim, sem mest
hafa með hermál að gera hér, að
þeim þyki ungu mennirnir heldur
seinir til að gefa sig fram til her-
þjónustu. Sinni of mikið bolta- og
öðrum leikjum, en skoði ekki málin
frá alvarlegu hliðinni.
Heitasti dagur, sem komið hefir á
þessu ári, var á mánudaginn 13. þ.
m., hæst rúm 85 stig, en lægst 38;
nóttina eftir gerði ákafa skúr með
hagli. í fyrra vgr hitinn 94 stig og
hálft betur þann 5. Júlí.
Dumas hjónin lentu enn í höndum
réttvísinnar fyrir það sem þau virð-
ast hafa stundað sem atvinnu, en í
þetta sinn dó kona sú, er til þeirra
hafði leitað. Hjónin voru dæmd til
fimm ára tugthúsvistar. Hann í
Stony Mountain hér í fylki, en hún
í Kingston, Ont.
Nöfn ungmenna, sem fermd voru
á Point Roberts á hvítasunnudag
1915, af séra Sigurði Ólafssyni: —
Jón Goodman
Hallgrímur P Vog
Gunnlaugur Thorsteinsson
Guðrún Thorsteinsson
Gróa Sæmundsson
Ingibjörg Helgason
Þorsteinn J. Sæmundsson.
Jónas Thorsteinsson.
Ungmenni fermd í Blaine, sunnu-
daginn 6. Júní 1915:
Margrét Grandy.
Sigvaldi Goodman.
Pétur V. Pétursson.
Það sem annarsstaðar segir í blað-
inu um contractarann Kelly, er borið
til baka af blöðum í dag, er segja
hann kominn og honun? heimilaða
frjálsa landvist til að vera v'iðstadd-
ur réttarhöld um dómskröfu hans,
sem sótt er og varin í dag ('mið:
vikudagý.
Fyrirspurnir.
I.
1. Eru allir menn skyldugir að
gefa braut yfir lönd sín, hvort sem
þeir hafa fengið eignarbréf eða
ekki? — Svar: Nei.
2. Ræður ekki landeigandi, hvar
braut er lögð ? — Svar: Nei, sé um
þjóðveg épublic highwayý að ræða.
3. Getur umfarandi nokkuð mælt
á móti því. þó hann þurfi að fara í
gégn um og láta aftur hlið, sem á
veginum kunna að vera? — S-var:
Já, sé um þjóðveg að ræða.
4. Geta umfarendur heimtað marg-
ar brautir ? — Svar: Nei.
5. Hvað segist á því að rifa nið-
ur vírgirðingar og höggva pósta á
annars manns landi? — Svar: Að
gera slíkt varðar hegning og skaða-
bótum.
Búþegn.
II.
Eg tók heimilisréttarland í sumar,
eftir að skóla-“Inspector”’ hafði stað-
fest matskrá skólahéraðs þess, sem
land mitt liggur í. Er eg skyldur að
lögum að borga skólaskatt af landinu
fyrir þetta ár, þar sem búið var að
halda “Court of Revision” áður en
eg tók Iandið?— 'Svar: Nei.
Þau blöð afturhaldsins í Austur-
Canada, sem auglýstu það með af-
ar stóru letri á framsíðum sínum, að
nýju stórnarherrarnir í Manitoba
væru sakaðir um mútuþágu í sam-
bandi við síðustu kosningar hér, svo
sem sjá mætti af ákærum Fullertons
á hendur þeim, láta sér nú lynda að
geta um úrslit þeirra mála fyrir dóm-
nefnd Perdues, með smæsta letri,
sem þau eiga og birta þá frásögn
á þeim stöðum í dálkum sínum, þar
sem einna minst ber á henni.
Enginn af þeim fjórtán þingmönn-
um, sem skrifuðu undir ákærurnar á
Norris stjórnarformann og aðra
liberala, var kallaður af lögmanni
þeirra Fullerton til að bera vitni fyr-
ir rannsóknarnefndinni; sagði lög-
maðurinn að enginn þeirra fjórtán
hefði áreiðanlega vitneskju um
sakir þessar og því ástæðulaust að
kalla þá fyrir rétt.
Af íslandi komu tveir ungir menn
í vikunni, Þórarinn Þorvarðsson úr
Dölum, bróðir Jónasar kaupmanns,
og Stefán Stefánsson, ættaður af
Rangárvöllum. Stefán sagði svo, að
þeir fóru frá Reykjavík með Botníu
þann 12. Júní, kom skipið í Leith, en
enginn fékk að stiga þar fæti á land
nema skipstjóri og stýrimaður; urðu
þeir félagar því að fara krókinn til
Khafnar, þaðan til Hull og svo vana-
lega leið. Góða tið sagði Stefán á
íslandi, grasvöxt i betra lagi, hátt
verð á varningi, innlendum og út-
lendum, og engan skort á neinum
vörum. Engin kol flytjast þangað
nú frá Englandi, en ein kolaverzlun-
in í Rvík fBj. Guðmundss.J hafði
sent skip til Ameríku eftir kolum.
Fiskverð er afar hátt og fiskveiði
svo mikil, að aldrei hefir slik verið;
botnvörpungar íslenzkir hafa fengið
mokafla og önnur' fiskiför að sama
skapi. Svo sagði Stefán, að í vetur
var hann í Vestmannaeyjum og var
þar seldur fiskur upp úr salti fyrir
130 kr. skippundið og síðar komst
v'erðið upp í 140 kr. Sá fiskur fór til
Khafnar. Stefán hefir skósmíði fyr-
ir atvinnu, en þykir óvænlegt að setj-
ast að hér í borg að svo stöddu og
vill leita til sv'eita. Hann biður
Benjamín Jónsson, er að heiman
kom fyrir tveim árum, að hitta sig
eða^gera sér aðvart að 439 Victor
stræti.
Orangemenn höfðu hátíð mikla hér
í borg 12 þ.m. Halda þeir slika há-
tið árlega, sem kunnugt er, til minn-
ingar um bardaga þann er stóð á Ir-
landi fyrir mörgum öldum milli
prótestanta og katólskra manna þar i
landi, og lyktaði með því að prótest-
antar unnu sigur og rifu sig þannig
undan oki katólsku kirkjunnar. Þeg-
ar Orangemenn halda slíkar hátíðir,
komast þeir í mikinn móð svo að
jafnvel hálf-niræðir menn úr þeirra
flokki ganga með í fylkingum marg-
ar mílur til að heiðra með því frægð
forfeðranna. Þannig er getið um
tvo háaldraða Orangemen sem um
daginn gengu alla leið innan úr bæ
og suður í Riv'er Park, þar sem aðal
hátíðin stóð, og þóttust jafngóðir
eftir sem áður, þótt mikill hiti væri
þá um daginn.
Frá 30. Júní til 10. Júlí hækkaði
vatnið i Rauðánni um 3 fet og 6 þml.
Enn hefir hækkð i ánni og er talið
víst, að nú sé vatnið fjórum fetum
hærra en það var um mánaðamótin
síðustu.
Maður, sem vann í Royal Alex-
andra hótelinu hér í bænum, hrapaði
niður um lyftivélar-op á mánudaginn
og beið bana af.
Hvaðanœfa-
—Svo mikið hefir hrunið úr aust-
urbakka Panamaskurðarins, að skip,
,sem rista meira en 25 fet geta ekki
þomist um skurðinn. Ekki þarf að
óttast, að þessi þröskuldur fái lengi
að hefta umferð skipa.
Þrjú “county” af fjórum í Minn-
esota urðu “þur” er atkvæði voru þar
greidd um vínsölubann 28. Júni.
-» - -» *»
Maður varð fyrir bifreið í Van-
couver og beið bana af. Hann ætlaði
að taka sér far með sporvagni og
hljóp út af gangstéttinni. Bifreiðina
bar að í því bili og maðurinn fékk
þann áverka, er dró hann til bana.
—Tv'eir þingmenn Japana hafa
verið settir í varðhald, og eru-kærð-
ir tim að hafa svikið flokk sinn og
þegið fé fyrir.
Grafskrift.
Roblin stjórnin önduð er,
eftir valda gaman;
hún var orðin beina ber,
blökk og skæld í framan.
/.
íslendingadags-fréttir.
Að eins 17 dagar til íslendinga-
dagsins.
Nefndin er öll á hlaupum daglangt
og gefur sér varla svefnfrið um
nætur, svo vinnur hún kappsamlega
að undirbúningi hátiðahaldsins.
íslendingadagurinn verður að
þessu sinni betri en nokkru sinni
áður, fullyrðir nefndin, — ef að áð-
sókn er góð, bætr hún þó við.—Þann
vamagla ætti ekki að þurfa að setja,
—það er svo sent sjálfsagt, að þang-
að v'erður vel sótt og það úr öllum
landshornum.
Ræðumenn eru fengnir. Og nöfn
þeirra verða birt í næsta blaði. En
það má þó segja nú, að valdir eru
þeir.
Skáldin eru langt komin með
kvæðin. Ekki þó fast ákveðið undir
hvaða lagi þau verða, nema ekki
verða þau undir laginu Gamli Nói;
það er nokuð sem er áreiðanlegt.
Söngflokkurinn hans’ Brynjólfs
Þorlákssonar æfir sig kappsamlega.
VeitTr hann tvímælalaust góða
skemtun á þeim heiðursdegi.
Er sitjum vcr öll þar sarnan,
sú verður tíðin ei löng —
alt verður ein gleði og gaman
við glymjandi, Ijómandi sóng.
En þetta verður þó ekki sungið.
*Vér höfum fullyrt það áður, að
prógram hátíðarinnar verður fjöl-
breytt og hið vandaðasta. Vér end-
urtökum enn á ný þá fullyrðingu.
Sjaldan er góð vísa of oft kveðin.
A. S. Bardal er sérstaklega “inter-
estaður’YIJ í base-ball kvenna. Hann
er þó maður kvæntur.
íslendingadagurinn er allsherjar-
íþróttamót Vestur-íslendinga.
Þráðlaust skeyti hefir borist til
þess, sem þetta ritar, um að feitar
konur væru að æfa sig undir kapp-
hlaupin ' á Islendingadagirin. En á
stríðstímum er ekki vel hægt að reiða
sig á alt, sem berst í skeytum.
Iþróttafélögin æfa kappsamlega
ýmsar íþróttir. — Það er skeytalaus
sannleikur.
Sem iþróttamót á íslendingadag-
urinn ekki sinn jafningja v'or á
meðal.
Hér fylgja hámörk þau, sem hin-
ir ýmsu íþróttamenn vorir hafa náð
í íþrótta samkepni íslendingadags-
ins tvö síðustu árin. 1914 því að
eins nefnt, að eitthvert hámarkiíj þá
yfirstigi hámark»sömu íþróttar árið
áður, 1913. Á eftir nafni íþrótta-
mannsins er nafn íþróttafélagsins,
sem hann heyrir til.
John Baldwin fVikingj hljóp 100
yards á 1ÖJ4 sek. 1913.
Einar Jónsson ('GrettirJ hljóp 220
yards á 23 3-5. sek. 1913.
Einar Jónsson (GrettirJ hljóp 440
yards á 56 sek. 1914.
S. B. Stefánsson . (Grettir) há-
stökkshámark 5 fet 5 þml. 1914.
A. Ö. Magnússon fGrettirJ hljóp
eina mílu á 4 mín. 55 2-5. sek. 1914.
A. O. Magnússon (Grettirj hljóp
fimm mílur á 30 mín. 29 sek. 1914.
Jón Magnússon ('Vikingj hljóp
mílu á 2 mín. 11 sek. 1913.
Ben. Baldwin ('VikingJ langstökks
hámark 19 fet og 7J4 þml. 1913.
Sigurgeir Bardal ('VikingJ lang-
stökkshámark án tilhlaups 9' fet og
5þml. 1913.
M. Kelly ('SelkirkJ hopp—stig—
stökk 40 fet og 9j4 þml. 1913.
W. Thorsteinsson vann hámark í
einnar mílu kappgöngu á 8 mín. 24
sek. 1914.
Einar Johnson ('Grettir) vann
stangarstökks hámark með 9 fetum
3 þuml. 1914.
Guðm. K. Stephansson ('VikingJ
kastaði 16 punda lóði 32 fet og 9
þml. 1914.
Sam. Johnson ('VikingJ kastaði 16
punda hamri 76 fet 1914.
Hámörkin skiftast þannig á hin
3 íþróttafélög:
Grettir heldur 6, hámörkum.
Víkmgur heldur 6 hámörkum.
Selkirk heldur 2 hámörkum.'
En þessir eru hámarkshafar"eða ít-
urstigsmenn: Einar Johnson, með 3
hámörk; A. O. Magnússon, með 2
og /. Baldwin, Ben. Baldutin, M.
Kclly, S. B. Stefánsson, Sigurgeir
Bardal, Gtcðm. K. Stephmsson, W.
Thorsteinsson og Sam. Johnson, allir
með eitt hámark hver til síns ágætis.
Margan grunar að þessi hámörk
verði úr sögunni eftir næstkomandi
íslendingadag. Það er kapp í þeim
piltunum og metnaður ekki svo lít-
ill og er hvorttveggja slíkt nauðsyn-
legt í hverskonar samkepni, — ekki
hvað sízt í íþrótta samkepni.
Mikið mun á ganga á Hofmanna-
fleti!
íþróttamót íslendingadagsins —
verður okkur til sóma.
Verður dansað? Já, maður lif-
andi! Það má nú svo sem ekki
sleppa uppáhaldsskemtuninni unga
fólksins, sem um langan tíma hefir
verið að iðka og læra alla hina
helztu nýtízku dansa: Fox Trot,
Tango, Turkey Trot, Bunny Hug,
Zig Zag Rag, Fandango, Gaby Glide,
Grisly Bear og aðra slíka óviðjafn-
anlega og stórfræga dansa. En ekki
nóg með það: Heyrst hefir og, að
einn mikils virtur landi vor, sem er
bæð latínulærður og skáldmæltur
vel, væri að kenna nokkru öldruðu
fólki Vikivaka, sem hann ætlaðist
svo til að það dansaði á íslendnga-
daginn.
Verður dansað ? En sú spurning !
Eins og nokkuð geti verið alfull-
komið án dansins!
Umsóknir um þátttöku í hinum
ýmsu íþróttum, er undir dómþing
há íþrótta sambandsins heyra, verða
að vera komnar til ritara íþrótta-
nefndarinnar, H. J. Pálmasonar, fyr-
ir 21. þ.m. Hverri umsókn verður
að fylgja 25 cents sem iþróttagjald.
Hver mun hreppa bikarinna?
Guðmundur glímukappi Sigurjóns-
son æfir drengi sína í Sleipnir kapp-
samlega í íslenzku glímunni. Má
vænta, að hún verði bæði fögur og
knálega sótt að þessu sinni. — Marg-
ur girnist beltið góða!
íslendingada’gsnefndin hefir látið
búa til mjög smekklega einkennis-
hnappa, fyrir þjóðminningardaginn;
eiga þeir ekki einasta við hér heldur
og hvar sem íslendingadagur er
haldinn — sama daginn — 2. Ágúst
1915. Hnapparnir eru með brezka
og íslenzka flagginu, krosslögðum í
efra vikinu milli flagganna er mynd
Jóns Sgurðssonar forseta, en neðar,
milli stanganna áletrunin 2. Ágúst
1915. Aftur er “íslendingadagur”
áletraður í boga yfir flöggin og
myndinni. Þ.eir utan bæjar menn,
sem standa fyrir hátíðarhaldi í sínu
bygðarlag og sem mundu vilja fá
þessa hnappa, verða að senda pant-
anir til A. P. Jóhannssonar, 796
Victor stræti. Hnapparnir eru mjög
ódýrir, en samt er talsverður afslátt-
ur gefinn séu margir keyptir.
Mæður! munið eftir barnasýning-
unni á íslendingadaginn. Óv'enjulega
góð verðlaun vett.
Verðlaun verða veitt fyrir fegurð-
ar-dans og fegurðar-glimu.
Sérstakir strætisvagnar flytja fólk
ókeypis út í sýningargarðinn um
morguninn. ■
Munið eftir fslendingadeginum!
NEFNDIN.
Drotning í skotgröfum
Einu sinni vildi svo til er
Eli’zabeth Belgiu drotning kom í
skotgrafirnar, að enginn þekti
hana. “Komið þér hingað,” sagði
einn hermannanna, “og látið eins
og þér séuð heima hjá yður.”
“Varið yður,” sagði annar,
“þessi gröf er hættuleg.”
“Ekki fyfir mig,” sagði drotn-
<<e& er svo Htil.”
Einn af hermönnunum tók nú
poka, braut hann vandlega saman,
lagði hann á stein og bauð drotn-
ingu sæti; hún tók boðinu, settist
niður, opnaði tösku sína og út-
býtti súkkulaði og vindlingum á
tvær hendur. Meðan þessu fór
fram bar liðsmann þar að er
drotning sat sem þekti hana.
Heilsaði hann henni með miklum
lotningarsvip. Rendu hinir þá
grun í hver gesturinn var, risu
upp sem einn maður og heilsuðu
á hermanna vísu. Þégar drotn-
ing hafði lokið erindinu, útbýtt
gjöfunum og mælt nokkur hetju-
orð, fór hún.
En hermaðurinn sem lánað
hafði pokann tók 'blekblýant og
málaði stórum stöfum þessi orð á
hann:
“Á þessum poka hefir drotn-
ingin setið.”
Einn af félögum hans spurði
hvort hann vildi selja pokann.
“Nei, ekki þó þú gæfir mér eins
mikið af gulli og í hann kemst.”
Fyrsti plógurinn.
Spitsbergen hefir löngum verið
talin óbyggileg sökutn vetrarríkis
og gróðurleysis. Nú er| plógur
kominn þar á land, sá fyrsti.
Sandve heitir sá sem hygst að
setjast þar að og stunda grasrækt.
Hann lcveðst hafa fundið þar
víðlendar grassléttur er vaxnar
séu þriggja feta háu grasi og
jarðvegurinn sé mjög frjór. Ef
landkostir eru eins góðir og hann
lætur, ætti nautgriparækt og
geita að borga sig vel, þótt vet-
urinn sé langur og strangur.
Hægara verður og námumönnumi
að afla sér vista ef kvikfjárrækt
getur þrifist í landinu. — Norð-
menn hafa veitt 3000 krónur til
safnaðarstarfsemii á eynni. Fimm
prestar hafa þegar sótt um starf-
ið og verður það veitt innan
skammis. Sá som Wutskarpastur
verður tekur við starfinu á næsta
hausti.
“ WILKINSDN & ELLIS
Matvöru og Kjötsalar
Horni Bannatyne og Isabel St.
Sérstök kjörkaup á hverjum Föstu- og Laugardegi. Sím-
ið oss eftir kjörkaupum á hænsum, öndum, tyrkjum,
smjöri og eggjum. GŒÐA VÖRUR FYRIR LITLA PENINGA
Tals. Garry 788
‘f+‘f*+*f*+*f'+tf*+++‘f'+*f+‘f*+
p m 4-
-ý 4- W. H. Graham 4* -♦ f -♦ 4«
-♦ 4- KLÆDSKERI' ♦ •í*
-♦ 4- t ♦ 4- 4-
4- t ♦ •♦ -h •♦ 4<
+ * Alt verk ábyrgst. ♦
*r * Síðasta tízka ♦ * *
-♦ 4* ♦ ♦ -♦ ♦ •f* t
+ * 190 James St. Winnipeg
* Tals. M. 3076 + t
1t*tt'4*t+t14-F-f4-t •F4-F4-
* Ný deild tilheyrandi +
4- X
t The King George |
I Tailoring Co.
LOÐFÖT!
LOÐFÖT!
gerð upp og endurbætt
NO er T.MINN
4-
♦
t
♦
4-
♦
♦
♦ ^
♦
■i-
♦
*
♦
4-
>4-
LOÐFÖT!
$5.00
$5.00
Þessi miði gildir $5 með pönt-
un á lcvenna eða karlmanna
fatnaði eða yfirhöfnum.5
*
t
-i-
*
-♦
♦
•i-
•♦
♦
*í-
-♦
d-
-♦
•i-
-♦
•i-
-♦
-i-
T/yiSIMI íh. 2932 '676 ELLICE AVE.
Eruö þér reiðubúnir
aö deyja?
ef ekki, þá finnið
E. H. Williams
Insurance Agcnt
606 tilndsay Block
Plione Main 2075
Pmboðsmaður íj-rir: The Mut-
ual Life of Canada; The Ðominion
of Canada Guar. Accident Co.; og
og einnig fyrir eldsábyrgðarfélög,
Plate Glass, Bifreitar, Burglary
og Bonds
Viðgerðum sérstakur gaumur gefinn
(Alt verk ábyrgst í 12 mánuði
R DAVÍS Örsmiður,
L). \-JtA. V l»-/j GullsmiÖur
Xður hjá D. R. Dingwall, Ltd.
874 Sherbrook St., Winnipeg
Nálægt William Ave
Kennara vantar.
Hérmeð auglýsist eftir kennara
í frönSku. þýzku og fleiri náms-
greinum við Jóns Bjarnasnoar
skóla í 8 mánaða tíma, sem byrj-
ar með i. okt. næstkomandi. Um-
sækjandi karlmaður eða kvenmað-
ur, verður að hafa lokið stúdents
prófi (B. A.). Tilboðum í þessa
stöðu verður veitt móttaka af
undirrituðum til 19. þ. m. Um-
sækjandi tiltaki kaup. Skólaráðið
áskilur sér rétt til að hafna hverju
tilboði sem vera ska1, eða öllum.
Winnipeg. 5. júlí, 1915.
M. Paulson,
ritari skólaráðsins.
784 Beverley Street.
Sumarf ríið í nánd
Hafið þér hugsað fyrir dyrum og öðr-
um útbúnaði í tjaldið ? Meira en tími
til kominn að hugsa fýrir því. Vér
æskjum viðskifta yðar, því vér spörum
yður fé og gerum yður ofurlítið meiri
þénustu en aðrir, sem bezt gera. Höf-
um sérstaklega Tjald-rúmstæði o g
dýnur. Gólfdúkahreinsun stendur nú
yfir. Reynið oss—vér gerum alt hitt.
Phone Sherbr. 4430.
WINNIPEG Carpet & Mattress Co.
589 Portage Avenue
ITALS. G. 2252
Royal Oak Hotel
GHflS, GUSTAFSQN, Eiganoi
Eina norrœna hótelið í bænum.
Gisting og máltíðir $1.50 á dag
Sérstakar máltíðir 35c.
Sérstakir skilmálar fyrir stöðuga gesti
281-283 Market St., Winnipeg
Nýjustu tæki
GERA OSS MÖGU-
LEGT AÐ FRAM-
LEIÐA PRENTUN
SEM GERIR VIÐ-
SKIFTAVINI VORA
ANÆGÐA
The Columbia Press,
Limited
Book, and Commercial
Printers
Pbone Garry2156 P.O Bcx.' 172
WINNIPKG
A eftir þvotti eða baði.
Gott “talcum” duft er þægilegt og
notalegt þessa hitadaga. þaS mýkir
og græðir alt hörund, sem sprungiS
er eSa upphlaupíö ogð heldur þvl
svölu og þurru.
TALC’UM TOWDERS.
Vér höfum til sölu allar góðar teg-
undir af Talcum dufti—sem er sam-
an sett af örsmágerSu talcum og ger-
ileyðandi lyfjum. Duft þetta er stór-
um betra en þau, sem eru búin til úr
hrisméli og öSrum lifrænum efnum.
KaupiS hjA oss þaS sem þér þurfið í
þessu efni.
FRANKWHALEY
llrcsctiption 'ílrwggtet
Phone She*,br. 258 og 1130
Horni Sargent og Agnes St.
Meðala
ráðlegging.
SANOL LÆKNAR nýrna og
blöðru sjúkdóma. VerS $1.00.—
Sanol Anti-diahetes læknar þvag
sjúkdóma. Sanol Blood Build-
er enduraærir blóðiS. Sanol dys-
pepsia salt bætir meltlnguna.—
Ráðleggingar ðkeypis. Læknis-
skotSun ef um er betSiS, — Sanol
fón Sher. 4029. 465 Portage ave.
KENNARA vantar fyrir
Vestri School Distrtct nr. 1669
fyrir fjögra, mánaða kenslu.
Kenslutíminn frá 20. ágúst 1915
til 20. desember. Umsækjandi til-
taki mentastig og kaup. Tilboð-
um veitt móttaka af undirskrifuiz-
um.
G. Oliver, Sec. Treas,
Framnes, Man.
— Þess er getið í þýzkum blöð-
um, að einu sinni hafi Vilhjálm-
ur keisari kropið grátandi er hann
kom þar að sem stór hópur þýzkra
hermanna lá fallinn V valnum og
hrópað: “Eg vildi það ekki.”
C. H. DIXON,
Iögfræðingur.
Lögfræðislegar ráðleggingar gefnar
fyrir 50c. Utvegar lán, innheimtir
„Police Court work a specialty‘‘
508 Avenue Bldg. 265 Portage Ave.
Phone M. 5372. Heimilisf S. 4111
KENNARA vantar til Laufás
skóla, nr. 1211; kenslan byrjar 15.
Sept. og varir 3 mánuði; byrjar aft-
ur 1. Marz 1916, þá aðra 3 mánuði.
3. prófs kennari óskast; tilboð, sem
tiltaki mentastg og æfngu, ásamt
kaupi, meðtekur til 1.4. Ágúst
Bjarni Jðhannsson,
Sec.-Treas.,
Geysir, Mari., 2. Júlí 1955.