Lögberg - 19.08.1915, Side 5
LÖQBERG, FIMTUDAGINN 19. AGÚST 1915.
I
5
Bændur takið eftir!
Allir kornkaupmenn, s<‘iii auglýsa á þessari blaðsíðu. Iiafu liiKiim
samkvæmt leyfl til uð selja liveitl fyrir bændur. peir liafa einnig, sam-
kvæmt kornsiilulögum Canada. lagt fram svo mlkið tryggingarfé, að
Canaila (irain Commlssion álítur að þeir geti borgað bændum fyrir alt
það korn, er þelr scnda þelm. láigberg flytur ekki auglýstngar frá iiðr-
um komsölum en þeim sem fullnægja ofangrelndum skilyrðum.
THK (Ol.l'MliIA PRESS. IiTD.
The Ogilvie Flour Mills Co.
WINNIPEG, Man. Limitod
Æskja hveitis er sendist til
THE OGILVIE ELEVATOR
Fort William, Ontario
Nýjustu tæki. Rúmar 2.000,000 bushels
SK.RIFIÐ EFTIR "SHIPPING BILLS” OG ÖÐRUM UPPLYSINGUM.
svo langt frá íbúð(arhúsi sem
hentugleikar leyfa, svo og aS halda
þeim utan dyra, eftir því semj unt
er og láta jxer íokki, komast i
mat. Ef tæringarveikur maSur er
á heimili, verður aö gæta þess aö
hann fari svo nieð hráka sína, að
flugur komist ekki að þeim.
Loks má nefna eina uppsprettn
sóttnæmis, en þaS er slóði kven-
pilsanna. Þau hafa ekki slóða nú
sem stendur, sem betur fer, og frá
hollustunnar sjónarmiði skoðað,
ber að standa á móti því, að stáss-
meyjunum sé leyft að draga slóð-
ann á eftir sér.
Þessari upptalning má lengi
halda áfram, en allar varúðarregl-
ur má fela í einu einasta orSi, sem
hver og einn ber að hafa hugfast,
en það er: hreinlœti. Hreinlætið
er aðalvörn allra sótta, og ein
mikilsverðasta dygð, hreinlæti meS
sjálfan sig, hreinlæti innanhúss og
utan, sívakand’i viðleitni til þrifn-
aðar og hreinlætis er ein af mikils-
verðustu dygðum þjóðfélags borg-
ara.
Hengdur án dóms og laga.
Stór hópur uianna réðist á
fangelsið i Milledgville, sem Iæo
M. Frank sat í, sá er dæmdur
liafði verið i æfilangt fangelsi fvr-
ir að hafa myrt verksmiðjustúlku,
Mary Phagon fyrir nokkru. Þéir
sem réðu til atlögu að fangelsinu
voru flestir vopnum búnir, svo
fangavörður gat litlum vömuml
við komið. Hópurinn fór með
fangann út i skóg og hengdi hanni
þar upp i tré.
Frank var ekki orðinn jafngóð-
ur af sári er hann hafði fengið í
viðureign við annan bandingja
fyrir nokkrum vikum.
Fregnin um hvar komið var
flaug eins og eldur i sinu og hóp-
ur forvitinna áhorfenda safnaðist
þangað er maðurinn hékk. Lítur
svo út sem fólk hafi skemt sér við
sýnina, því engum hugsaðist að
skera manninn ofan. en sýslumað-
ur var ekki viðlátinn.
Áhorfendur voru æstir og höfðu
i 'hótunum að tæta flkið í sundur
er þeir næðu til Jiess, en með lagi
tókst þó að koma í veg fyrir það.
Ríkisstjóranum fómst orð á
Jiessa leið, er honum var sagt fra
aðförunum:
“Það er skönun fyrir rikið að
Jietta skyldi koma fyrir og allir
sem þátt tóku í Jiessu ódáðaverki
ættu skilið að fara sömu leiðina
og fanginn. Slíkar aðfarir sæma
ekki fólki, sem vill teljast með sið-
uðum mönnum og hver góður
horgari hlýtur að fyrirlíta slíkt.
Mig hryllir við a& hugsa um
þennan atburð. Enginn maður
sem lætur velþóknun sina ;,i ljósi
yfir verkinu á skilið að telja sig
til Georgiu. Þeir sem ekki mót-
mæla athæfinu ættu að vera gerð-
ir útlægir úr rikinu. Þeir sem
ráðast á manri í fangelsi em engu
betri en þeir sem læðast að lyaki
annars og veita honum banasár.’’
Frank var í þunnum fangaföt-
um og berfættur er hann fanst.
Hafði verið dreginn fram úr fleti
sínu skömmu fyrir dögun og rek-
inn til aftökustaðarins.
Hvaðanœfa.
— Sjö manneskjur mistu lífið
og margar særðust er skriða féll
yfir Ragogna Jx>rpið við Simplon
brautina í Svisslandi. I þorpinu
stóð varla steinn yfir steini og
skriðan fór því nær hálfa miílu
vegar. Nærri lá og aðl nokkur
hluti jarðganganna hryndi.
reglustjóra embættið í Warsjá.
Hann hefir áður verið lögreglu-
stjóri, i Prússlandi.
— í ofviðrinu sem geysaði á
austurströndinni 1 og vötnunum
miklu og einna harðast kom niður
á Frie vatninu, mistu margir
menn lífið og skaðinn er metinn
til margra miljóna.
— Fyrsta júní unnu 5000
stúlkur í verksmiðjum Krupps í
Essen, en um nýár voru þær ekki
nema 1300. í skýrslunni frá 1.
júní er ekki getið hve ntargir
verkamenn unnu í verksmiðjuntun,
en 1. janúar voru Jjeir 46,000 að
undanskildum þeint, sem vinna í
ýmsum verksmiðjum annarsstaðar
i landinu er Kruppsfélagar eiga.
— Hei'foringjum Þjóðverja og
Tyrkja, þeim er eiga að berjast
hlið við hlið, kemur illa samatt;
mun hinum tyrknesku þykja þýzik-
arar næsta ráðríkir. Hefir svo
ramt kveðið að sundurlyndinu aöí
við uppreisn, hefir legið meðal
liðsmanna oftar en einu sinni og
ýmsir sætt þungri 'hegningu fyrir
óróann af beggja hálfu.
— Bifreið rakst á póstvagn í
London. Ont. Maðurinn sem
vagninum ók og dóttir hans 15
vetra gömul féllu bæði svo hart til
jarðar að þau biðu bana af.
— Flugnategund, sem kend er
við Hessen, hefir gert stórmikinn
skað'a á hveitiökrum víða í Qkla-
hama, Arkansas, Kansas, Missouri,
Nebraska, Iowo. Illinois, Indiana,
Ohio og Pensylvania.
— Hátt á annað lmndrað!
manns voru í sporvagninum sem
rann út af brautinni í Toronto,
þótt ekki væri ætlast til að hann
tæki nema 84 forþegja í, senn.
þetta sannaðist er farmiðasali var
yfirheyrður.
— Meira en 2000 Bandarikja-
menn hafa gengið í Canada'herinn.
— 300 bömum var bjargaft1 úr
St. Elizabeths bamaheimilinu í
Baltimore er eldur kom þar upp í
húsbúnaðarverksmiðju Goldstrom
bræðra er stendur skamt frá heim-
ilinu. Bömunum var skotið und-
ani inn í katólska kirkju þar til
eldurinn var slöktur. Goldstrom
bræðúr urðu fyrir $75,000 skaða
og barnaheimilið brann að nokkm.
— Hvirfilvindur geysaði á
Jamaica, sá sterkasti er J>ar hefir
komið síðan 1903. Talið er víst
að baunauppskeran hafi með öllu
eyðilagst þótt fréttir séu enn ó-
greinilegar, því fónar og ritsímar
slitnuðu í ofviðrinu.
— Enn J>á flytja bændur bú-
ferlumi sunnan yfir lajndamæ/rin
til vestur hluta landsins. í vik-
unni sem leið fóru tuttugu og
fimm fjölskyldur um hér í borg-
inni á leið til Saskatchewan og
hafa i hyggju að setjast þar að.
Vegna striðsins eru þeir miklu
færri sem koma, en svo er að
heyra, sejn fleiri muni vera von
er fram á haustið kemur.
-— Tom Sharkey, alkunnur
hnefabokki er nýgiftur tvítugri
stúlku. Fyrir sextán árum, þegar
Tom var á ferðalagi og stúlkan
var fjögra ára gömul, fékk 'hún
fyrst að sitja á hné hans og þan
urðu góðkunningjar, þótt endirinn
yrði annar en við var búist í
fyrstu. Sharkey mun vera rúm-
lega þritugur.
— Hálfa fimtu miljón dala hafa
Bretar Iagt til hjálpar nauðstödd-
um Belgiumönnum, með frjálstun
samskotum.
— Þýzkarar náðu snemima í
mánuðinum tveim skipum,
“Llama” og “Wico”, hlöðnum olíu
á leið frá Ameríku til Stockholmis.
Bæði skipin voru flutt til Swine-
munde og Jxittust Þjóðverjar vel
hafa að verið.
— Canadamenn hafa neytt
miklu minna tóbaks og áfengis'
árið sem leið en að undanförnu.
— Glasenapp heitir sá, sem
Þ jóðverjar hafa skiþað í lög-
— Fyrsti fjórðungur ársins 1915
var með óvenjulegu móti á Eng-
landi, sá votviðrasamasti, sein þar
hefir komið í heila öld. Niðlurfall-
ið náði nálega 13 þumlunguml.
— Annan ágúst var svo heitt í
Philadelphia að fimtán mann-
eskjur dóu og var helmingurinin af
því ungbörn. Á fjórum dögum
dóu yfir 4a manns þar í borginni
sökum hitans. Að kveldi hins
annars dags ágústs mánaðar gerði
regn nokkurt og siðan mun fólk
ekki hafa dáið í borginni.
— Ræningi réðist á National
bankann í Cedar Ropids og hafft'i
á braut $23,000. Gjaldkeri bank-
ans fanst klukkutima seinna
bundinn og með kefli i munni
og var hann svo skelkaður, að
hann lá marga daga rúmifastur,
þótt engan hefði hann hlotið
áverka. Þjófurinn er ennl ófttnd-
inn.
— Blaði einu í Bandarikjunum
hefir borist nafnlaust bréf; hótar
bréfritarinn að ganga af Wilson
forseta dauðttm og sprengja tvær
eria fleiri skotfæraverksmiðjur í
loft upp. Á það að vera hefnd á
Bandarikjamenn fyrir að hafa
selt óvinttm Þýzkalands skotfæri.
Póststjórninni var afhent bréfið
og hafa nú ýms helztu leynilög-
reglufélög landsins ærið’ að starfa.
að leita uppi bréfritarann.
— Eftir fregnum frá Kashing-
ton að dæma ætti illverkum kaf-
báta Þjóðverja aði fækka. Bretar
kjáðu vera að byggja svo 'hrað-
skreiða mótorbáta, vígbúna. að
þeim hlýtur að vera lítil hætta bú-
in af árásum kaffaranna. Mörg
l>úsund bátar þessarar tegundar
kváðu vera í smiftum á Englandi
og 500 eru pantaðir frá Banda-
rikjunum. Eiga bátar þessir aðl
halda vörð um kaupför þau er til
Englands fara.
— Enn þá eru kristnir rnenn of-
sóktir i Armeniu og héruðuntim i
grendinni og bakkar Euphrat og
Tyris fljóta eru J>aktir dauðra
rnanna líkum. Brezkar hersveitir
eru á leið upp með ánni, en eiga
þó enn langa leið ófarna til vétt-
vangs. Hafa þeir J>ó hraðani á
borði ef verða mætti að ]>eim tæk-
ist að bjarga nokkrum hinna
kristnu undan ofsóknum hinna
blóðþyrstu óvina.
Hörð viðureign í Hellu-
sundi.
\ iða er sóknin hörð og vörnin
skæð á vígvöllum J>essa ófriðar, en
J>ó virðist sem viðureignin sé með(
köflum einna mannskæðust með
bandamönnum og Tyrkjum
við Hellusund. Þess er
getið á öðrum stað, að yfirfor-
ingi þýzkra hafi orðið sár og sé
annar tekinn við. Það er sann-
frétt, að æðsti foringi Frakkahers
við sundið varð óvígur af sárum
og er annar kominn i hans stað,
Sarrault að nafni. Bandamenn
urWu landfastir með þvi að senda
herlið í bátum undir byssukjafta
Tyrkja og náði liðið landtöku við
ógurlegt mannfall. Það er hvort-
tveggja- Tyrkir standa vel að
vígi til varnar, enda eru þeir
ódeigir, og hræðast ekki dauða
sinn, því að J>eir trúa að það sé
vís vegur til vistar í paradís, að
láta lífið í bardaga við þá “van-
trúuðu”, Þ.ví er ekki að furifa,
Jx> að mannfall hafi verið mikið,
er bandamenn hafa hert sóknina
með inagni.
Nýlega kom til Englands einnj
Ástralíumaður úr orustul við j
Hellusund, með slíku sárafari, að j
merkilegt J>ykir að hann skyldi;
halda lífi. Hann var í því liði erj
fyrst náði landgöngti, fékk samt
ékki sár, jx> að kúluhríðin væri
sem sterkasta haglél. En i þriggja
stuncla bardaga nokkru síðar. fékk
hann þessi sár: holund af byssu-
kesju í kviðinn. átján þumlunga
langa, kúluskot í nárann, kúluskot
gegnuin olnbogann og annað i
úlnliðinn, fingur brotinn af kúlti-
skoti. fótbrot um hnéliðinn, kúlu-
skot gegnum lifrina og loks gekk
kúla í bringu hans og situr þar
enn. Með öllum J>essum áverkum
lá hann 28 stundir á vígvelli og
var Ioks dreginn i hlé af manni,
sem var fótbrotinn. Crosby heit-
ir þessi maður og er 22 ára að
aldri. Þegar hann fékk sárið í
kviðinn. réðist sá sem næstur hon-
unt stóð í fylkingunni móti þeim
sem við hann barðist og lét líf sitt
fyrir þeim santa; byssufleini er
Crosby 'hafði særst af.
Hernaðar útgjöld
Canada.
Hernaður hins umliðna árs hef-
ir kostað landí vort $90,000,000.
eða nálægt $300,000 á dag, $13,-
000 á hverri klukkustund eða $225
á hverri minútu. Þessi útgjöld
aukast vitanlega smámsaman, eftir
J>ví sent hert er á vigbúnaði og
liðlsafnaði. Kaupgjald herliðsins
eitfc út af fyrir sig, nemur nálægt
$100,000 á dag.
Af þessu fé, 90 miljónum, sem
]>egar hefir verið eytt, voru 50
miljónir veittar með samþykki
aukaþings i fyrra, en 40 miljónir
hafa verið. teknar af J>eim 100
miljónum sem þingið veitti til
herkostnaðar í vetur leið; það fé
var alt tekið til láns á Englandi.
Fyrir fé til annara útgjalda var
séð með þvi að leggja aukatolla og
skatta á landsmenn og hafa J>eir
gefið svo miklar tekjur, að sögn,
að vel nægir til að standast út-
gjöldin í bráðina.
Langlífí.
Á Ross Ave. býr öldungur,
Leech að nafni, 105 ára gamall,
fæddur í Ontario árið 1810, með
fullri sjón og minni. Þegar hann
var spurður hvaðj helzt hafi vald-
ið langlífi hans, svaraði karlfugl-
inn:
“Það að vinna og vinna mikið
í sveit. Eg hef ekki fylgt neinumj
nýmóðins heilbrigðisreglum og hef j
reykt pípu rnína í 90 ár.” Fleiri
hafa unnið hart en gamli Leech
og dáið samt á miðjum aldri.
Langlífi er ættgengt í hans kyni.
Systkini lians þrjú eru á lífi, frá
87 til 99 ára aðl aldri.
Herverkþýzkra í Belgíu
Skýrsla er samini, er safnað hef-
ir verið til i kyrþey, af merkum
mönnum, belgiskum, um það,
hversu þýzkir létu greipar sópa uni
matar- og vöruforða, landsins,
fvrstu mánuðina sem þeir höfðfu
landið á sínu valdi. Á þeim tíma
sendu þeir þaðan til Þýzkalands:
40.00Q ton af hveiti, 15,000 ton af
mais, 48,000 ton af byggi, 50 þús.
dala virði af lími, olíukökur| fyrir
hálfa rriiljón, 600 þús. dala virði
af olíu, meir en miljón1 dala virði
af ull, 1200 þús dála virði af tog-
leðri 2400 ]>ús. dala virði af kop-
ar. 400 þús. dala virði af hrís-
grjónum, ]>artil geysilega mikið af
bómull, trjávörum o. s. frv.
Skinn og leður tóku þýzkir til
7 miljón dala og sendu til síns
lands; flutningabátum er á fljót-
um voru og skurðum, hlaðnir
skinnurn, söktu Belgir, en þeir
|>ýzku náðu J>eim öllum upp og
slógu eign sinmi á varninginn.
Allar fagrar og frægar myndir
og aðra kjörgripi, sem eru almenn-
ings eign, hafa þeir tekið í
Belgiu og sent til Þýzkalands.
Sömuleiðis hafa allar ínálmvélar
sem i Belgiu fundust venð teknar
sundtir og sendar sömú Ieiðina og
bitt. Þær verksmiðjur skifta
mörgum þúsundum í Belgiu, serm
J>ammig stamda eftir, auðar og ber-
ar. Þær eimar eru enn í gangi,
J>arsem þýzkir starfa að skotfæra-
smiðum. Svo er sagt, að jafnan
verði Jxir nærgöngulli með hverj-
um degi, aði kúga síðustu skild-
ingana út úr landsfólkinu. Þvi er
ekki kyn. að landsfólkið er illa
statt, enda er það sagt með sann-
indum, að þar sé, mikil hungurs-
neyð af atvinnuleysi.
Einkennileg aftaka.
í suðurparti Bandaríkja stend-
ur mikill vandi af því, hve svert-
ingjar eru þar margir og illa
Jx>kkaðjr af hvitum mönnum.
Blökkumenn eru illa siðaðir og til
glæpa hneigðir, einkanlega um
kvennafar, og er þá oft ekki beðið
eftir þvi, að sök þeirra sé dæmld
af dómstólum, 'heldur dæma borg-
ararnir sjálfir sökina og fram-
kvæma dóminn án tafar, en það
er alveg undantekningarlaust lif-
látsdómur. -Þeir negrar skifta
hundruðum, sem þannig eru lif-
látnir syðra á ári hverju, flestir
fyrir morð og nauðgun. Á föstu-
daginn annan en var, voru niu
slíkir hengdir )>ar syðra, sjö að
lögnm, tveir að óprófaðri sök.
Aftaka tveggja þtssára var af yf-
irvöldum tiltekin Jæníian dag, hár
pallur reistur, ]>arsem aftakanj átti
fram að fara. en staðuriin svo
valinn, að ]>etta var í dalverpi eða
stórri laut, var hengingarpallurinn
í botni Iautarinnar, en umhverfis
í brekkunni sátu um 500Q manns,
karlar og konur og börn, er gerðu
sér dagamun og fóru þangað
skemtiför, átu melónur, 'drukku
Iemonade, og hlýddu á pólitískar
ræður. Þetta var regluleg skemt-
un fyrir fólkið og fóni allir glað-
ir og ánægðir heim til sin að lokn-
umi degi.
Margir af Jxssum stóra hóp
komu snetnma. til J>ess að ná að
vera í fremstu röðum. Athöfnin
byrjaði með þvi, að smurðu brauði
og lemonade var útbýtt óke\'pis,
en eftir J>að tókust ræðuhöld af
hendi ýmsra. sem sóktu um stöðu
i sýslukosningum; þeim var sum-
um tekið með dynjandi lófaklappi;
J>eir stóðu á aftökupallinum. er
þeir héldu ræðurnar. að baki Jxim
sátu hinir dauðadæmdu negrar og
tóku þátt í lófaklappinu, rétt eins-
og aðrir.
ar sungii af rniklu magni. Meðan
á Jxssu stóð fékk fólkið sér hress-
Þegar J>essu var lokið, var tek-
ið til aftöku athafnarinnar. prest-
ar stigit upp á pallinn, sethist hjá
J>eim dauðadæmdu, og nú sungu
allir sálm. TTinir svörtu morðingj-
ingu, gosdrykki og ávexti, morð-
ingjarnir fengu stóra sneið af
vatns-melonu, átu með beztu lyst,
og þökkuðtt gefandanum með
mörgum orðum. Gosd'rykkja tjald
stóð við pallskörina og var þangaðt
mikil aðsókn. Að lokinni aftöku
fór hver heim til sín og þótti sam-
koman hin bezta. Það er margra
siður að býsnast yfir aftökum
svertingja án dóms og laga, og
skal því ekki bót rnælt, en svo
djúpt standa vandræðin er fylgja
sarnbúð hvítra manna og svert-
ingja þar syðra, að langt mun liða,
áður en þeim lýkur.
Til Heimskringlu myrkrahöfð-
ingjans.
Frá Arna Sveinssyni.
Það mun oftast bezt, að hafa sem
minst afskifti af þeim manni eða
mann-níðingi, sem er sá dæmalaus
óþokki og hugleysingi, að hann þor-
ir ekki að skrifa nafn sitt undir sin-
ar eigin ritgerðir, sem þá vanalega
eru tilhæfulaust níð eða hrakmæli
unt saklausa menn.
Einn slíkur óþokki sendir mér
nafnlaust ávárp sitt í Heimskringlu,
sem á víst að vera svar gegn ritgerð
minni með fyrirsögninni: “Slettir
hún haula hálanum”; en í raun og
veru er J>að ekkert svar, heldur níð
°& lygi- Hann hrekur ekki eitt ein-
asta atriði, sem eg tók til íhugunar í
ritgerðinni. Það er ekki ólíklegt að
þessi myrkrahöfðingi sé einn af
þeim, sem fékk drjúgan skerf af
fjárdrætti eða þýfi Roblins-stjórnar-
innar úr fylkissjóði, en sem hann
hefir auðvitað mist með falli Robl-
ins, og er því bæði sár og reiður og
langar til að skeyta skapi sínu á
J>eim, sem unnu að því að hin svik-
ula og svívirðilega Roblin-stjórn féll
og að liberalar komust til valda.
Fyrir þann litla þátt, sem eg tók í
kosningunum, beinir nú J>essi myrkra
höfðingi skeytum sínum til min og
bregður mér um blindni og ofstæki í
flokksmálum, vanþekking og hroka.
Mér kemur ekki til hugár að afsaka
mig fyrir myrkraherranum, en eg
legg það undir dóm óvilhallra
manna, sem þekkja mig, hvert nokk-
ur sannleikur er í Jxssum ákærurn.
Þeir menn, sem þekkja mig og
haf fylgst með í stjórnmálum Can-
ada, mun það fullkunnugt, að eg
hefi ekki bundið mig við neinn
flokk, heldur ætíð kornið frarn sem
óháður rindependentj. Eg hefi unn-
ið og ritað engu íður móti liberölum
en conservatívum, þegar eg hefi haft
ástæður til þess. Eg vil reyna að
beina minum litlu kröftum og áhrif-
um í þá átt, sem eg hefi sannfær-
ing fyrir að leiði til ]>jóðj»rifa og
almennings heilla.
Þú biður lesanda góðan að taka í
hönd þér og spyrð: “Er þér ekki
eins og mér farið að dauðleiðast dell-
an úr honum Arna Sveinssyni í Ar-
gyle?” En þarna kemur greinilega í
ljós heimska þín og ósanngirni.
Hvernig getur þú hugsað eða ætlast
til að nokkur “lesandi-góður” taki í
þína saurugu hönd, þegar þú hefir
þvorki hug eða hreinlyndi til að
rétta hana frarn í hreinu dagsljósi?
Aðttr en nokkur tekur til greina
]>essa bæn J>ina, verður ]>ú fyrst að
auglýsa nafn þitt. Gerir þú það,
þá getum v'ið líka enn betur jafnað
itm sakir okkar. En hafir þú ekki
hug til ]>ess, vona eg að Heims-
kringla geri mér J>ann greiða að birta
nafn þitt. Sé hún ófáanleg til þess,
liggur beinast við að álíta að hún
sjálf—Heimskringla—, hafi ungað út
þessum “aðsenda” vanskapnaöi.
F rá íslandi.
Reykjavík 30. júní.
Grasmaðkur er nú mikill á
blettnm í Yestur- S ka f ta f el 1 ssýsl-
um, segir Þorleifur Jónsson alþm.,
svo að þar eru heil svæði grá yfir
að sjá. Yalda J>essu meðfram hin-1
ir rriiklu J>urkar í vor.
Synodus stóð yfir 24. og 25. þ.
m. Séra Kjartan í Hruna prédik-
aði, en prestvigðir V0411 guðfræða-
kandidatamir Ásm. Guðmundsson
og Jósef Jónsson. 25 andlegrar
stéttar menn sóttu fundinn.
Erindi fluttu séra Sigurður
Sívertsen dósent, um kröfur til
framtíðarkirkjunnar á tslandi, og
séra Bjarni Jónsson, um starfsemi
prestsins i söfnuðinum. Biskup
flutti fyrirlestir um iðbótamanninn
Jóhann Huss, sem leið pislarvætt-
isdauða 6. júlí 1914.
Töluverðar umræður urðu um
hjúkrunarfélög hér á landi, meðal
annars um það, hvort fremur ætt^u
að vera safnaðarmál. Rætt var og
um námsskeið i söng til sveita. með I
það fyrir augum, að bæta kirkju-
sönginn. Biskup flutti erindi um
islenzk mannanöfn, og var það
samhuga álit, að prestar ættu eftir
megni að sporna við ónefnum.
Lengstar umræður og nokkuð
heitar tirðu útaf erindi séra Sig.
Sívertsen. í fundarlok skoraði
biskup á sveitapresta, að vera und-
ir J>að búnir næst að flvtja erindi
á synodus.
23. júní síðastl. andaðist sagna-
skáldið Jón Stefánsson bóndi á
Litluströnd við Mývatn. sem er
þjóðkunnur maður undir rithöf-
undamafninu Þorgils gjallandi.
Hann var 63 ára gamali. Hafði
hann veikst í vetur, sem leið, og
Þetta erum vér
Tbe Coast Lumber
Yards, Ltd.
185 Lombard St.
Phone M. 765. Þrjú yards
var skorinn upp, og batnaði honum
J>á, en svo tók veikin sig snögglega
upp aftur og dó hann þá eftir
stutta Iegu.
Strokinn úr gæzluvarðhaldi er
Jón Pálmi Jónsson ljósmyndari á
Sauðárkróki, sem tekinn var fast-
ur út af seðlafölsuriinni siðastl.
haust. Haldið er að hann hafi
komist út í skip og með því til út-
landa.
Fyrir fám dögum var maður hér
í bænum beðinn um lambskrokk.
Hann slátraði tveggja mánaða
gömlum tvílembing; skrokkurinn
var 17 pund og pd. selt á kr. 1.50.
Æ^rin hafði gengið í eyju í vor.
Það kostaryður EKKERT
að reyna
Record
áÖur en þér kaupitt rjómaskil vindu.
RECOED er einmitt skilvindan,
sem ber.t á vitt fyrlr bændur, er hafa
ekki fleiri en
6 KÝR
Þegrar þér reynliS þessa vél, munnS
þér brátt sannfæraot nm. að hún
teknr öllum öfiruni fram af sömu
stærð og verði.
Ef þér notið RECORU, fáið þér
meira smjör, hún er aufiveldari
meðferfiar, traustari, auðhreinsaðri
oíí h«*Hl svo lágru verði, að aðrir eeta
ekki eftir leikið.
Skrifið eftir söluskiimálnm og: ÖLl-
um upplýsingrum, til
The Swedish
Canadian Sales Ltd.
234 Logran Avenue, Winnipeff.
herranuni brezka um, að Bretar
mundu taka alla ullina úr Gullfossi,
en skipið síðan losna.
Látin er í Khöfn síðastl. þriðjud.
frú Helga Gad. dóttir Júlíusar heit.
Havsteen amtmanns, en gift Henry
Gad sjóliðsforingja. Banamein henn-
ar var heilablóðfall. Hún varð að
eins rúmlega þrítug að aldri.
Botnía varð að snúa við á ferð
sinni kring um land undan ís fyrir
utan Hrísey á Eyjafirði. Fór austur
og suður um land og kom hingað í
nótt.
Héraðssamkoma var haldin. á
Breiðumýri í Bárðarda 1 19. júní
og voru þar um 1600 manns. Þár
voru ræðuhöld, íþróttakappleikar,
iðnaðarsýning, söngur og horna-
blástur, og er látið vel af sam-
komunni.
Svo virðist, sem brezk herskip hafi
nánar gætur á siglingum öllum héð-
an. Síðasti vottur ]>ess er fréttin um
að Flora hafi verið tekin af brezk-
uin herskipum og látin sigla til Kirk-
wall, eins og Gullfoss. Nánari frétt-
ir um þetta ókomnar.
' —Lögrétta.
Reykjavík, 17. Júlí 1915.
Tómas Tómasson hreppstjóri í
Auðsþolti í Biskupstungum, drukn-
aði í Hvitá laugardaginn 10. Júlí síð-
astKðinn.
Gullfoss hafði meðferðis, er hann
fór héðan, ull, hesta og fisk. Brezk
herskip hittu skipið og lögðu hald á
það og létu það sigla til Kirkwall.
Skeyti um þetta barst frá skipstjór-
anum í fyrradag. En í gær barst
Cable konsúli skeyti frá utanríkisráð-
Séra Matthías verður áttræður í
vetur 01. Nóv.J. A Akureyri hafa
ýmsir menn bundist samtökum um
að koma upp myndastyttu hans þar í
bænum, er skuli til á áttræðisafmæli
hans, ef unt er. Ríkarði Jónssyni
hefir verið falið að gera líkneskið
og stendur til að hann geri mót af
séra Matthíasi meðan hann dvelur
hér í bænum nú.
Botnvörpungar hafa verið sem óð-
ast að fara norður um land til síld-
veiða. En enginn komist enn alla
leið vegna ísfc.—tsafold.
Albert Gougrh Supply Co.
Wall Street and Kildonan West
ALSKONAR BYGGINGAEFNI
Talsimar: Sher. 3089 og St. Jonn 2904
SEGID EKKI
“BG GET GKKI BORGAÐ TANNIiÆKNI NÚ.“
.lrIMléI.VltwLn8 ín ** ÓSkUm °* er«« «r ** ‘‘mart
■kildlnga Bf til vill, er oss þaC fyrir beztu. ]>a8 kennlr om. sem
veroum a8 vlnna fyrir hverju centi, aC meta grlldi penlnga.
MINNIST þess, aC dalur sparaCur er dalur unninn
MDÍNIST Þess einni*, aC TENNUR eru oft meira virCi en penlncar
TEmru^R01 evÍyI8taHSP,°r tiVxam‘nKjU« PvI verClC >’ér »c ▼•^da
TENNURNAR — Nu er tlminn—hér er staCurlnn til að láta rera Vl8
tennnr jrdar. , í -n (v,ilœrtl
Mikill sparnaður á vöuduðu tannverki
EINSTAKAR TENNUR $5.00 HVER BESTA 22 KAR. GULU
$8.00, 22 KARAT GULIiTENNUR
Verð vort ávalt óbreytt. Mörg hundruC manns nota sér hið |in rtwfí
HVERS VEGNA XKKT p(r ?
Fara yðar tilbúnu tennur vel?
•Ca íangra þœr iCulega úr skorCum? Ef þœr gera þaC. finniC þá tann-
lœkna, sem geta gert vel viC tennur yCar fyrlr vægt ver«.
EG sinni yður sj&Ifnr—Notið fimtán ára reynslu vora við i.nnif.im^py
$8.00 HVALBEIN OPIÐ A KVOLDUM
DE. P AKSONS
McGREEVY BLOCK, PORTAGE AVE. Telefónn M. 609.
Grand Trunk farbréfa skrlfstofu.
Uppi yflr
Stærð No. 20
THE
‘IDEAL’
“Eg flyt betri hlut inn í Canada en áður
hefir þekst í landinu“
GUFU SUÐUVÉL
og BÖKUNAR0FN
MeC “IDEAL” gufu suCuvúi getiS þúr soCIC allan
mlCdegrismatinn, frá súpu til eftlrmatar, ásamt
öllu, sem þar er á milli. yfir einum eldi á hvaCa
eldavél sem vera skal; fariC I burtu; ekkert getur
. brunniC, skorpnaC, þornaC, gufaC upp eða orðið
fU ofsoCiC.
IDEAL GUFU SuCuvél sparar meiri vinnu en
nokkurt annað áCur þekt á-
hald við
niðursuðu ávaxta og matjurta.
Skrifið eftir verClista og
frekari upplýsingum.
I.OUIS McLAIN 284 Princess St. Winnipeg
UmboCsmenn fyrir Canada.
rOLEDO COOKER CO., Toledo, Ohio, hinir einu. er
búa tll "IDEAL" gufu suC-vélar
KlippiC flr þenn-
an miCa; hann er
$1.90 virCi sem
afborgrun á Ide&l
suCuvél; gildir til
15. Jfllf. — Oss
▼antar umboðs-
menn f hverrl
borg.
Nýjar vörubirgðir „fZ
konar aðnr strikaðir tiglar, hurðir og gluggar með margvís-
legri tilbreytni. Komið og sjáið vörur vorar. Ætíð glaðir
að sýna þó ekkert sé keypt.
The Empire Sash & Door Co.
--------------——- Limited ----------------
HENRY AVE. EAST - WINNIPE6
!