Lögberg - 26.08.1915, Síða 1

Lögberg - 26.08.1915, Síða 1
PENINGAR l’YKUi K.Y.KUR.—Hæstu prlsar og skærustu skildingar borgaSir fyrir 11. útg. Encyclo- pedia Britannica, Book of Knowledge, Stoddard's Lectures, nýjar skáldsögur og skólabækur í bandi.— Bækur, frfmerki, fáséðir gripir og myndir keyptar, seldar eSa teknar I skiftum. púsundir útvaldra bóka, nýrra og gamalla, fyrir hálfvirSi eSa minna. Stærsta úrval fornra og fágætra bóka vestanlands. Sérstök kjörkaup og kaupbætir um stundarsakir. — Aliir velkomnir aB skoSa. “Ye Olde Book Shop”, 253 Notre Dame Ave. gegnt Grace Church. Pli. G. 3118. Két stjórnareftirliti. Búnaðar stjórnardeild Canada lætur stimpla két af öllum skepnum, sem slátrað er í þeim stofnunum, sem hún hefir eftirlit meö: „Canada approved.“ Vor aðferð er að selja aðeins két af heilbrigðum skepnum. Gætiö að stimplinum. FORT GARRY MARKET CO., Limited 330-336 Garry St. Phone M 9200 28. ARGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, FÍMTUDAGINN 26. ÁGÚST 1915 NÚMER 35 RÚSSAR SÖKKVA ELLEFU SKIP- UM ÞJÓÐVERJA I SJÓORUSTU F.innm stœrsta bryndreka Þjóðverja er kostaði 12 miljónir dala sökktu Eng- lendingar ásamt öðru herskipi. þegar því er beitt. Þó að herir Þjóð- j verja séu v'el að vopnum búnir og vel við vopn vandir, og þjóöinni I fastlega skipaö til aö styöja hernað- inn, þá niun þess þó kenna nú orö- iö, aö af minnu er að taka nú en áður, að flestu leyti. Þjóðverjar hafa undanfarnar vikur leitað inn á Riga flóann, að taka þá borg og nota sem víg- stöðvar og bakhjarl til að taka járnbrautir til Pétursborgar og kvía þá borg af. í móti þessum skipaflota þýzkra réðust Rússar og eftir æði langa viðureign eyddu þeir tveim brynsnekkjum og átta tundurbáturm fyrir Þjóðverjum, svo og orustuskipi af nýjustu gerð, Moltke nefndu, er enskur kafbát- ur varð að grandi. Ennfremur reyndu þýzkir um sama leyti að setja lið á land í flóanum, en tókst ekki, söktu Rússar fyrir þeim fjórum byrðingum, fullum af hermönnum og komst ekki einn lífs af, af því liði. Þykir þetta mikill sigur og ráð Rússanna væn- legra eftir en áður. Floti þýzkra varð frá að hverfa við, þennan skaða. Þessa sömu daga sendu Bretar flota til Belgiu stranda, er skutu á vígstöðvar þýzkra, einkum Zee- briigge, og gerðu mikinn skaða. Franskir tundurbátar réðust þar að þýzkri brynsnekkju og söktu henni. Bryndrekinn Moltke var af sömu gerð og Goeben, skip það er leitaði til Tyrkja og kom í þeirra eign, 23,000 ton að stærð, kostaði 12 miljón dali og hafðí 1107 menn innanborðs. Skipið var að eins fjögra ára gamalt. Stórskipið “Arabic” tilheyrandi White Star línunni var lostið tund- urskoti af þýzkurp kafnökkva á fimtudagsmorguninn og þvi sökt í sjó á fáum mínútum. Þetta skeði fyrir sunnan írland. 423 manns voru á skipinu, 181 farþegar og 242 hásetar. Engin aðvórun var skipsmönnum gefin, heldur er sagt að kafnökkvinn hafi legið í leyni undir skipi nokkru, er hann hafði stöðvað, þangað til Arabic var komin hæfilega nærri, og lét tund- urskotið ríða, án nokkurrar aðtvðr- unar. Að tíu minútum liðnum var skipið komið í sjó. Fólkið bjarg- aðist í bátana ,alt nema milli tíu og tuttugu manrus, sem ekki hafa komið fraáB’: Þar með var tvent frá Bandaríkjum. Skipið hafði lítinn eða engan flutning, aðeins farþega, og þvi engin átylla, jafn- vel eftir vífilengjum þýzkra, hvað þá eftir alisherjar lögum, til að granda því. — Það vildi til, að sjór var sléttur og veður blítt og því bjargaðist svo margt af fólk- inu. Bandaríkjamenn taka illa á þessum aðförum, því að þarmeð er að vettugi virt krafa þeirra um, að skipum sé ekki grandað, sem siglt er á hlutlausar hafnir, án skoðunar og aðvörunar. Þykir sem stjórn þeirra sé í vanda stefnt, verði hún annaðhvort að gera, fylgja kröfum sinum fram með afli, ella þola það' að þær séu að engu hafðar og fyrirlitnar. Kafbátar þýzkra hafa unnið mörg hervirki undanfarna vikul og sökt skipum á hverjum degi, smá- 11 m og stórum. Á landi. Þjóðverjar hafa tekið öll hin vestari vigi Rússa á Póllandi, Ivangorod, Warsaw, Kovno, Novo Georgievok og nú síðast Ossowets, er þeim hafði varizt frá því í vetur. Að öðru leyti hafa ekki gerst neinar stórar nýjungar í við- ureign þeirra. Svo mikið virðist talið víst, að Rússum sé ennþá bú- ig undanhald lengra inn á landið, en þeir ætluðu sér, þó að hraustlega standi þeir í móti óvinum sínum, og engar ófarir hafa þeir farið, svo kunnugt sé, þessa vikuna. En ekki þykir líklegt, að þeim hafi komið skyndilega svo miklar skot- birgðir, sem þeim dygðu til að hafa i fullu tré við það ofurefli, sem móti þeim sækir. Sagt er, að Japanar gangi fast að því að smíða vopnabirgðir handa Rússum, en liða mun enn nokkur timi, áður en þær koma að haldi, ítalir sœkja sig. ítalir hafa sagt Tyrkjum stríð á hendur og gert út flota sinn með miklu liði austur á bóginn til Litlu- Ásiu eða Hellusunds. Það sýnir sig, að Grikkir og aðrar Balkan- þjóðir urðu ekki til þess unnar, að senda her gegn Tyrkjum, nema með afarkostum, og með því að bandamenn gátu ekki séð af meira liði til þeirrar herferðar, og stór- mikið er undir þvi komið, að sund- vígin vinnist, til þess að unt sé að koma skotfærum til Rússlands, þá skarst ítalía í leikinn, aðl senda lið móti Tyrkjanum. Er því vonandi að tíðindi gerist þar innan skamms. Sókn bandamanna í sundinu verð- ur lítið ágengt, að þvi er séð verð- ur, þessa vikuna. ítalir hafa sent hálfaðra miljón manna á vigvöll gegn Austurríkismönnum og berja á þeim með mikilli hörku, en heima fyrir búa þeir út mikinn her, svo að um fjórar miljónir vígra manna ætla þeir að hafa tilbúnar til her- ferðar í haust. Er því mikfð hrós- að, hve sköruglega þeir ganga að undirbúningi hersins. Á Frakklandi. Enn eru þar skotgrafa bardagar með fallbyssuhríðum við og við. Svo er talið að Bretar safni þang- að her í kyrþey; það vita menn, að einn daginn var þangað send frá Sþorncliffe á Englandi önnur lið- sendingin frá Canada, 45,000 manns, og er.haldið að það sé far- arbroddur hins mikla herafla, er Bretar séu að undirbúa til bardaga þar. Frakkar halda og á liðsafn- aði. Svo segja menn aði fylkingar Breta og Frakka séu traustar, að ekki muni á þær bíta þó að Þjóð- verjar auki her sinn um helming. Þýzkir hafa fundið það ráð, að láta logandi bál leggja úr pípum í skotgrafir, en blossinn er margir faðmar á lengd, og verður ekki slöktur, meðan vélar eru i gangi, sem framleiða hann. , Hæli höfðu þýzkir tundurbátar hjá Zeebrúgge, svo kænlega gert, að loftskip komust ekki að bátun- um. Það hæli vildu hin brezku herskip eyðileggja með) skotum, svo og varnarvirki, er þýzkir hafa gert af steinsteypu, og ætla menn, að vel hafi tekizt. Vœnlegri horfur við Hellusund. Síðustu fregnir segja afar harða viðureign þar hina síðustu daga, og grimnia sókn af hendi bandamanna með nýju liði. Enskar fréttir segja von um, að sundið verði unnið á fám vikum. Það fylgir, að Balkan- ríkin hafi gert samband með sér að leggja sarrian liði sínu , ganga í lið með bandamönnum og leggja á móti Tyrkjum. Þau hafa yfir að ráða meir en einni núljón manna, öll til samans, og ef sá her gengur til vígs við Tyrki, eru forlög þeirra auðsén. Stuggur nuin Balkanríkjum standa af þeirri ráðagerð hinna þýzku, að senda það lið er þeir mega án vera suður skagann, til liðs við Tyrki, og mun það ráða miklu um samtök þeirra. Rúmenar standa með vopnin í höndunum og járnbrautir allar þar í landi viðbúnar liðflutningi, að boöi stjórnarinnar. Svo er að sjá, sem skipt hafi um aðstöðu Búlgaríu á síðustu dögum, og er vænlega látið yfir því, hvernig komið er hennar ráði. Mannfall í liði t>jóðverja. Þó að giæsilegir þvki sigrar Þjóð- verja á Póllandi. og þeir orka miklu, þá eru sigurvinningar þeirra ekki án alvarlegra eftirkasta. Svo er sagt, að mannfall í liði þeirra nemi um 80,000 á hverri viku, og þverra því kraftar þeirra. því fleiri orustur sem þeir vinna. Víst mun vera, að land þeirra er vandlega sópað af herfær- um mönnum og ganga því herir ]>eirra saman en aukast ekki héreftir. Stjórnin fer fram á nýtt íán, að upjy- hæð 2500 miljónir er safnast á saman með því að ná i sparifé allra lands- manna, og mun fokið í flest skjól, 1 Ci&tíÆðtm Skip í báli. Við bryggjur í Montreal lá stór- skipið Anglo-Californian, hlaðið hetum, er til Bretlands skyldu sendast, 1100 að tölu. Fám mín- útum áður en skipið átti að leggja af stað, kom eldur upp í fóðrinu, sem hestunum var ætlað og magn- aðist svo, áður en eftir honum varj tekið, að nokkrir af skipshöfninni, j sumir segja seytján að tölu, urðu: vfirkomnir. Brunalið borgarintiar var kaliað til að berjart við eldinn og var hestum bjargað, öllum nema tveim hundruðum. Þetta sama skip komst í krappan dans á síð- ustu ferð sinni til Eúglands, barð- ist við þýzkan tundurbát og féll þar skipstjórinn og um tveir tugir háseta. Skýrslan. Skýrsla hinnar kgl. rannsóknar- nefndar, samþykt í einu hljóði af þeim þrem dómurum er í henni sátu, Mathers, Macdonald og Sir Hug John Macdonald, er komin í hendur fylkisstjórnar, en ekki gerð almenningi kunn ennþá. Hún er 95 blaðsíður þétt skrifaðar, og undirskrifuð af öllum dómurunum. Hótelum lokað í vor. Svo er sagt, að fylkisstjómin hafi í hyggju, að bera undir at- kvæði fylkisbúa lög um algert vín- sölubann innan fylkisins, fyrir jól i vetur. Álitið er, að mikill meiri hluti atkvæða muni verða með vín- banninu, og muni afleiðing at- kvæðagreiðsiunnar verða sú, að öllum hótelum verði lokað fyrir 1. dag júnímánaðar næstkomandi. — Ekki er þessu lýst opinberlega fyrir stjórnarinnar hönd, heldur er það altalað, og jafnvel haft eft- ir einhverjum úr ráðaneytinu, en, sem sagt, ekki opinberlega tilkynt ennþá. Flugvél boðin. Fylkisstjómin hefir boðið að gefa flugrél hinum brezka her, og fá mann til að stjórna henni, en svo virðist, sem það þyki nú nauð- synlegast af öllu, að fá sem flesta flugvélastjóra. Herforingi er hér staddur, í því skyni, að fá al- menning til að gefa þessu gaum og mun í ráði að koma á kenslu í þessu, setja upp skóla, þarsem kent er að stýra flugvélunum. Sú kenslustöð verður að líkindum sett við annaðhvort vatnið, með því að viðvaningum er það minni hætta, að byrja flug yfir vatni en landi, geta flogið svo lágt yfir rennisléttu yfirborði, að þeir meið- ist ekki, þó þeir detti. Aðeins ungir menn, sem góða mentun og hæfileika hafa, verða teknir til flugnámsins. Árekstur. Guubátur er landið á, sem Hon. R. Rogers bríikaði til að fara hafna á milli til eftirlits, rakst á annan, fullan af verkafólki, og sökti honutn á fimtán mínútum. Fólkinu var bjargað, með því að grunt var, og stóð hinn brotni bátur botn. Ekki urðu meiðsli né manntjón, en mjög nærri lá öllum hópnum við druknun. Þetta skeði nálægt Three Rivers, Quebec. Rogers var á stjómarbátn- um með marga gesti sina. — Eldur kom upp i Antlantic City í vikunni sem leið og olli $250,000 skaða. Meðal þeirra húsa sem mestur skaði var að, má nefna stórhýsi eitt, þar sem ýms félög höfðu skrifstofur sínar og sykur- gerðarhús. Eldurinn kom upp í vefnaðarvörubúð, en engum varð hann að bana. Ráðherra og jalþing. Yísir segir 23. Júlí: Þá er lokið hinni miklu deilu um staðfestingu stjórnarskrárinnar. í hana hafa farið þrír þingdagar, auk alls undirbúnings áður en umræður hófust á þingfundum. í neðri deild voru haldnar 29 ræður um máliö, en í efri deild 17. Afstaða þingmanna til málsins er þannig, að 22 þeirra hafa greitt át- kvæði með ánægju-yfirlýsingu yfir staðfestingunni, 15 á móti. Forsetar beggja deilda munu fylgja meirihlut- anum að málum og ráðherra hefir ekki greitt atkvæði. Aftur skiftast bessir 15, sem greitt hafa atkvæði á móti tillögunni þann- ig, að einn þeirra, Karl Einarsson sýslumaður, hefir lýst því yfir, að hann teldi fyrirvara þingsins 1914 fullnægt og er ánægður yfir stað- festingunni, en greiddi atkvæði gegn tillögunni af sérstökum ástæðum. Þrír þeirra hafa lýst því yfir, að þeir væru þess ekki fullvissir, að fyrirvara þingsii.s væri fullnægt, og vildu þeir að þingið samþykti ein- hvern eftirvara, án þess þó að vilja bregða fæti fyrir ráðherra. Fjórir aðrir munu hafa líka afstöðu, en sjö, þeir B. J.. B, Kr., B. Sv., G. Egg., Kr. D., Sig. Egg. og Sk. Th. telja vst, að fyrirvara þingsins sé ekki fullnægt, og eru ákveðnir andstæð- inga ráðherra. Eyrarbakka, 17. Júlí 1915. Bergljót Sigurðardóttir, kona Har. próf. Níelssonar, andaðist í Rvík 18. Ágúst, eítir langa vanheilsu. Sigríður Guðmundsdóttir á Minna- hofi á Rangárvöllum, kona Guðm. Sveinssonar, fyr bónda í Traðar- holti, er nýlátin eftir örstutta legu; var komin yfir sextugt. Tómas Guðbr.iPjtsson, Auðsholti i Biskupstunguin, hreppstjóri um lang- an aldur, kominn um áttrætt, lézt snögglega nýverið. Sláttur er nú að byrja hér austan- fjalls. Túnin víða dável sprottin, en víða kalin til skemda. Mýrar flest- ar illa sprottnar og óvænlegar horf- ur með þær. Mannabein höfðu fundist. er graf- ið var fyrir hlöðu á bæ einum í Hörg- árdal. Ekki er þess getið, hve margra mana bein það hafi v'erið, né hversu djúpt að þeim, enda er fréttin ó- g'ögg. Mokafli hefir mátt heita lengstum í vor i Vestmanneyjum. Góður afli hefir einnig verið við Faxaflóa, eink- um framati af. Fiskmeti er þó dýr- ara en nokkru sinni fyr; eftirspurn aldrei þvílík. Laxveiði hefir verið allgóð nú um tíma. Sérstaklega á Selfossi. Þar hafa fengist suma daga 30—40 15 pd. laxar. Ofsarok er hér á Eyrarbakka síðan í gær (12.) og kuldi mikill í nótt. Snjóaði á Reykjanesfjallgarðinn nið- ur undir bygð i nótt í ofanverðu Ölfusi. Lá snjór niður eftir öllu frarn aö hádegi. Ekkert hefir sézt til Austurfjalla, það sem af er dags. Stormurinn lemur niður kartöflu- grös og annan gróður í görðum. \ andræöagestur ætlar hafisinn að verða að þessu sinni; hann er að flækjast fyrir Norðurlandi, einkum er hann tíður gestur á Eyjafirði, sópaði þar bryggjum burt nú í vik- unni. Botnía ætlaði þangað með vörur en varð frá að hverfa, setti vörurnar á land á Siglufirði og sneri svo aftur. Eina millilandaskip- ið, sem komist hefir á allar hafnir norðanlands , er Goðafoss. Hann hafði meðferðis mikið af vörum á húnaflóa. svo' Húnvetningum og Strandamönnum má vera minnisstæð koma hans hin fyrsta, eigi síður en öðrum Norðlendingum og lands- mönnum yfir höfuð. Útlitið með síldarveiðarnar er orð- ið mjög alvarlegt vegna íssins. Við- búnaður hefir aldrei verið þvílíkur aí Suður- og Norðurlandi og Norð- mönnum, því síldarverðið er hátt og von úm að það haldist. Fólk hefir streymt norðnr af Suðurlandi í stór- hópum og legst vitanlega lítið fyrir það sem óráðið fer, ef engin verður v’eiðin. Enn þá ver eru þó þeir farn- ir, sem kosta stórfé til útgerðar og verkunar, ef svo skyldi ekki verða hægt að stunda veiðarnar. Það hef- ir illar afleiðingar bæði nú og síð- armeir. Gamlir menn telja líklegt, að ís- inn geti haldist við landið fram eft- ir öllu sumri, fyrst hann fór ekki í strauminn seint í Júnímánuði. Grasvöxtur er sagður furðugóður um Norðurland, þrátt íyrir ísinn og | þurkinn.—Suðurland. Selvogsbanki er ör á fé flesta tíma J árs. Sjómenn af Eyrurn sækja nú I þangað daglega og v’erður vel til veiöa. i Hvaðanæva, — Þegar áhlaupa úr lofti verð- ur vart á Englandi, eru rafmagns- straumar samstundis heftir á öll- um rafmagnsstöðum. Einu sinni vildi svo til, að læknir var að gera vandasaman uppskurð er rafljós- in voru slökt. Það var ekki i fyrsta skiftið sem slikt ‘hafði kom- ið fyrir, svo læknirinn hafði Iagt svo fyrir, að olíulampar skyldu jafnan vera á reiðum höndum er uppskurðir fóru fram að næturlagi. svo var og í þetta sinn. ’HannJ gat því haldið áfram við uppskurð- inn og sjúklingurinn er nú á góð- j um batavegi. — Búandkarl danskur er hann átti skamt frá landamærum Þýzka- lands, gekk að landamærunum til að grenslast eftir hvemig þar væri í umhorfs. Var hann í svo þungum þönkum eða háfleygum hugleiðing- im. að Iiann óafvitandi komst svo langt suður fyrir landamærin, að | hinir þýzku verðir gátu fært hramminn á hann og tekið l)j.nn fastan. Stoðuðu hvorki tár lcirls né bænir og var hann ekki laus látinn fyr en eftir nokkra daga að afstöðnum rannsóknum og mörg- um fyrirspumum. — Kona í Stockhólmi reri á báti; sér til skemtunar ásamt föður sin- um og dóttur sinni fjögra ára gam- alli. Barnið féll útbyrðis, en kon- an kunni vel til sunds, kastaði sér út á eftir og tókst áð koma barn- inu upp í bátiran. En er hún ætlaði að grípa i borðstokkinn, var sem hana brysti þrótt, sökk hún sam- stundis og druknaði. — Svensk stúlka í Mallmö var trúloíuð þýzkum liðsforingja er barðist á vígvelli. Sendi hann henni því nær daglega löng ásta- bréf. Fyrir nokkni fékk hún, ásanit löngu bréfi frá elskhugan- inn, fáein vingjarnleg orð frá hinum þýzka ritverði og baðf hann hana að biðja unnusta sinn, að reyna að skrifa dálítið skýrari rit- hönd og vera stuttorðari, ef hann mögulega gæti — verkið við að lesa ástabréf hans væri að vaxa sér yfir höfuð. — Serafino Vanutelli er látinn, kardináli nokkur, rúmlega áttræð- ur, með helztu mönnum i páfaráði. — Á suðaustur strönd Banada- rikja gekk stórviðri yfir einn daginn og gerði mikið manntjón og eigna- skaða. í borginni Galveston fór- ust 14 manneskjur en eignatjón metið 3 miljónir. Það bjargaði borg þeirri, að afarsterkur sjávar- garðtír hafði verið hlaðinn þar eftir hið mikla sjávarflóð er þar kom um aldamótin, og 8000 manns fórust í. í mörgum öðrum strand-j borgum á þessu svæði varð mann- skaði og skemdir til margra milj- óna. — Maður sat í boði hjá kunn-J ingjum sínum í Victoria, B. C. og| var að handleika marghleypu.: Vildi svo óhappalega til að skot hljóp úr byssunni og varð hús- móðurinni að bana. Þegar mað- urinn sá hvar komið var miðaði hann vopninu á sjálfan sig, hleypti af og var örendur innan fárra minútna. — ítalskir bakarar hafa gert samtök þess efnis, að enginn megi framar nefna Vínarbrauð þar í landi. Sú brauðtegund sem borið hefir þetta nafn er nú kölluð “Triestbrauð” og bakarar áminna fólk alvarlega um að hjálpa þeim eftir mætti til að útrýma gamla nafninu. En iþað verður með því einu móti, að láta sér það aldrei um munn fara. — Fyrsta hlass af nýju hveiti kom til The Lake of the Woods myllu i Portage la Prairie á þriðju- daginn. Það reyndist No. 1 Northem, 25 bushel af ekru. — Engir Canada menn voru á skipinu Royal Edward, einsog fyrst var haldið, skipi því er sökt var i Grikklandshafi af þýzkum tundurbát. Nokkrir Canada her- menn eru þó komnir til bardaga í Hellusundi. Um Kovno. Það vigi Rússanna, er þýzkir liafa nú tekið, stendur þarsem ám- ar Niemen og Vilya koma saman, austur af Prússlandi. Þaðan er Pétursborg i landnorður, 550 mil- ur austar, og land marflatt á milli með óteljandi vötnum og víðum mýraflákum. Kovno er nyrzta víg- ið á þeim herstöðvum, er Rússar ætluðu sér til þrautavígis, og er þeim því skaði mikill að missi þess. Vígið var álitið afarsterkt, af nýjustu gerð, en þar fór sem annars staðar, er þýzkir hafa beitt skotbáknum sínum, að stál og stein- steypa molnaði og hrundi fyrir þeim. Virkin eru ellefu, hvert með mörgum byssum, vel sterkum, þó hvergi nærri mættu jafnast við morðtólin þýzku. Virkin liggja í kringum borgina, sem er all mann- mörg iðnaðarborg. Rússar komu Iiði og skotfærum undan meC góðri skipun. Fangar á Frakklandi. Sendiherra Bandaríkja á Frakk- landi, sem þar gegnir erindum hins þýzka sendimanns, meðan stríðið stendur, hefir ferðast um Iandið til að hta eftir fanga búðum og meðferð þeirra. Hann segir þá vel meðhöndlaða. Á einum stað voni 1000 manns í haldi og hafði hver dálitla spildu útaf fyrir sig, til ræktunar. Liðsforingjar hafa ráð og forsögn fanga, sinna þjóða, og Hta eftir að öllum reglum sé vandlega fylgt. Ve 1 lætur sendi- herrann yfir kurteisi Frakka við s*í» °S nndirtektum stjórnarinnar undir hverja málaleitun sem hann bar upp um breytingar á meðferð fanganna. Jarðskjálfti. \ fii eyna Jamaica gekk nýlega jarðskjálfti er menn halda að mikinn skaða hafi gert, en vegna simaslita hefir ekki frézt fyllilega um tjónið. Jafnframt gekk stór- viðri yfir eyna sem skemdi jarðar- gróða, banana, cocoa og kaffi ávöxt. A sumum pörtum eyjar- innar er sagt, að allir slíkir ávext- ir séu gereyddir, og ef satt er, mun það koma fram á verði þessa neyzluvarnings, því að mikið af honum kemur frá Jainaica ey. Vísað á bug. Stjórn Austurríkis og Ungverja ktnds sendi Bandarikja stjórn er- mdi nýlega þess efnis, að svo mik- ið af skotfærum væri þaðara úr íandi sent, að ekki hæfði hlutlausu landi það að gera. Þessu hefir Bandaríkja stjórn visað á bug og svarað þannig, að ekk, verði látið að orðum hinnar Austurrisku stjómar, bendir á að bæði þýzkir og austurrískir hafi selt Bretum hergögn meðan Búa striðil stóð, þó að Búarnir hefðu ekkert færi haft til að flytja þau td sín og fullyrðir að Bandaríkin haldi sér við hlutlausra þjóða reglur, sem í allsherjar lögum eru tilteknar. Borgarastríð. Aylmer heitir lítill hær í Quebec fylki, og er þar uppkomin megn styrjöld. Svo bar við að verk- fræðingi, sem Leblanc hét, og yfir ; vatnsverki bæjarins réði um ná- | lega mannsaldur, var sagt upp af | liæjarstjórn, er þótti sá herra hafa nógu lengi dregið kaup úr bæjar-; sjóði. Um 200 af samborgurum hans rituðu undir áskomn að aft- urkalla uppsögnina og fylgdu hon- J um á bæjarstjómar fund, er mál- | ið kom þar tií, umræðu. En er bæjarstjóm sat við sinn keip, gerð1- ust þar sviplegir atburðir og þar kom að bæjarstjómin sagði öll af sér, nema borgarstjóri, er höfðaði mál gegn 24 helztu borgumm fyr- ir barsmið og óskunda. Um 150 vitni vom leidd, er hvert um sig heimtaði $1.50 á dag og með því móti gerðist málskostnaður gífur- legur, og stendur það fyrir sætt- um, að hvomgur málsparta vill borga hann. 1 þessu hefir staðið í nálega þrjá mánuði. að engin er bæjarstjóm og ekkert aðhafst nema málaferli með miklum fjand- . skap. “Princess Pats.” Um þá þúsund manna sveit fornra bardagamanna, er safnað var fyrst allra til í Canada, og fyrst fór á vígvöll, af því liði sem héðan hefir farið, ritar nafnkend- ur blaðamaður, sem oft fær að koma í skotgrafir Breta, langt mál. 1 þá sveit var enginn tekinn, nema fornir bardagamenn og var hver maður valinn að áræði og hug. Foringi sveitarinnar, er henni safnaði hér og nefndi eftir dóttur landstjórans, hertogans af Connough, féll íyrstur allra, eftir hann tók sá við, er Farquahr hét, dugandi maður og mjög vinsæll af mönnum sínum>. “Ekki beygði hann sig, þegar Tiann gekk um skotgrafir, svo að hann hefði hlif af grafarbakkanum, og kúlumar þytu um höfuð hans, hann var of áhugamikill um starf sitt, til að veita þeim eftirtekt. Ekki varð hlé á máli hans, þó að þýzkir brygðu upp ljósi og leyniskyttur þeirra hefðu hann að skotspæni. Því var það mikil furða, að hann skyldi lifa fram í marzmánuð.” Áður en hann fór setti hann snið á sveitina og kendi henni hernað- inn í skotgröfum, af þeirri tegund, þarsem erfitt var að ná byssunni upp úr leðjunni, ef einhver lagð'i hana frá sér, og oft varð að standa í köldu vatni, upp i kálfasporð. Þann 7. maí vom aðein 635 menn eftir af þessari þúsund manna sveit. Þann dag gengu þeir í grafir i odda nokkmmi, þar- sem þýzkir náðu að skjóta eftir endilöngum skotgröfunum, og létu skothríðina dynja á Jieim úr véla- byssum sínum. Áður en langt um leið voru allir simar slitnir, svo að herstjórnin fékk ekkert að vita hvað' þeim leið og gat engar skip- anir sent þeim. Þeir gerðu því ekki annað en standa kyrrir og hopa hvergi, hvað sem á gekk. Þýzkir komust brátt að því, hvar vélabyssur sveitarinnar vom, og léttu ekki skothríð/ á þær fyr en þær voni í kafi í leðju og mold. “Princess Pats” grófu þær upp og settu í stéllingar á ný og það i þri gang. Altaf gengu aðrir í að halda þeim í gangi, þegar þeir féllu sem að þeim höfðu starfað. Loks linti skothríð þýzkra, þeir héldu, að nú væri þeim öllum lok- ið, sem i skotgröfum þessum voru, og sendu fram fótgönguliðið, til að ganga milli bols og höfuðs á þeim sem eftir voru, eða taka þá höndum. Þá var þeim skemt, “Princess Pats” drengjunum, er þeir sáu fylkingu þýzkra stökkva upp úr skotgröfum sínum og koma áleiðis til sín. Þeir voru góðar skyttur, vanir að veiða dýr, skjóta ekki af handahófi, heldur miða fljótt og vel, og skjóta til þess að drepa þanti sem fvrir verður. Þeim hafði ekki komið dúr á auga í hálfan annan sólarhring, staðið í moldarmekki og kúlnaéli allan tímann. en er að áhlaupinu kom, hugsaði enginn nm annað en að duga sem bezt, vega sem flesta áð- ur en- þeir mistu lífið sjálfir. Enn stóð uppi yfirliðinn Christy, gam- all bjamdýrabani; hann stökk upp á grafarbakkann, lagðist þar flat- ur, lét skotin ríða og varð margra bani; Niven gekk fram og aftur og sagði fyrir, hann var óbreyttur liðsmaður en tók stjóm, þegar fyrirliðar voru til heljar gengnir eða ófærir af sárum. hann gerði ekki nema segja fyrir, því að eng- an þurfti að eggja. Fylkingin þýzka tók part af skotgröfum Canadamanna, þarsem allir voru fallnir, en komst ekki lengra. áhlaup þeirra dó þar út. Þeir urðu þar frá að hverfa. Áð- ur en mvrkrið datt á skomðu “Princess Pats” manntal, voru þá 150 uppi standandi af þeim 635 sem byrjað höfðu bardagann. Flestir 'hinna föllnu vom moldu huldir, af sprengiskotum óvinanna; hina grófu félagar þeirrá, lásu bæn yfir gröfinni og höfðu yfir þaðsem þeir mundu af greptrun- ar formála ensku kirkjunnar. Ixiks kom önnur sveit, úr hinu enska liði að leysa þá af hólmi, og við það gengu “Princess Pats” af vígvelli, ósigraðir, þó að mestur hluti þeirra yrði eftir, svæfðir svefninum langa. — Dönsku gufuskipi, hlöðnu járnbrautarteinum, á leið frá Gautaborg til Englands, söktu Þjóðverjar i Norðursjónum. Skipsverjar komust af og var skotið á land nálægt Bremen.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.