Lögberg - 09.09.1915, Qupperneq 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 9. SEPTEMBER 1915
5
Bændur takið eftir!
Allir kornkaupmenn, sem auglýsa á þessari blaðsíðu, hafa lögumj
samkvæmt leyfi til að selja hveiti fyrir bændur. pcir liafa einnig, sain-
kvæmt komsölulögura Canada, lagt fram svo mikið trygKlngarfé, að
Canada Grain Cominission álítur að þeir geti borgað ba'nduin fyrir alt
það kom, er þeir senda þeim. Lögberg flytur ekki auglýsingar frá öðr-
um komsölum en þeim sem fullnægja ofangreindmn skilyrðum.
THE COLUMBIA I»RESS, M’D.
The Ogilvie Flour Mills Co.
WINNIPEG, Man. Limitod
Æskja hveitis er sendist til
THE OGILVIE ELEVATOR
Fort William, Ontario
Nýjustu tæki. Rúmar 2.000,000 bushels
SKRIFIÐ EFTiR “SHIPPING BILLS” OG ÖÐRUM UPPLYSINGUM.
Licenced
Bonded
Simpson-Hepworth Co.,
Limited
446 Grain Exchange, Winnipeg
Góöir kornsölumenn fyrir bœndur aö
skifta við
Hveitiprísarnir verða breytilegir og kornsölumenn
geta orðið yður að liði.
VÉR HÖFUM STAÐIST REYNZLU TÍMANNA
Tuttugu og tveggja ára trú þjónusta í þarfir kornyrkju-
manna stendur á bak við nafnið:
Herbert H. Winearls
Aðal skrifstofa: i Utibú:
237 Grain Exchange Union Bank Building
WINNIPEG BRANDON
Eins og að undanförnu er mér ant um a<5 komast að sem beztum kjörum
fyrir mína gömlu viðskiftamenn og geta orðið mörgum nýjum að liði í ár.
SKRIFIÐ EFTIR WINEARLS: “HELPFUL HINTS T0 GRAIN
SHIPPERS”. NÝ ÚTKOMIÐ. KOSTAR 10c. VIÐSKIFTAMENN
FÁ KVERIÐ ÓKEYPIS. ÞAÐ SPARAR YÐUR PENINGA.
KORNYRKJUMENN
pegar ágæt uppskera er t nánd eins og nft er hún, hugsa bændur
að vonum mest um tekjurnar, hvernig þeir geti selt hveitið til þess að fá
sem mest I aðra hönd.
Bændur sannfærast um þaS meS hverju ári, aS ráSlegt sé aS senda
hveitiS I heilum vagnhlössum og aS bezt er fyrir þá aS skifta viS áreiSan-
lega umboSsmenn, sem bera hag þeirra fyrir brjðsti og útvega þeim hæsta
markaSsverS, þegar þeir vilja selja hveitiS, skýra þeim frá markaSsverSi
og gefa þeim gðSar bendingar.
Bartlett and Langille, 510 Grain Exchange, eru verki sinu vaxnir
og áreiSanlegir umboSsmenn, og bændur geta trúaS þeim til aS selja vel
fyrir sig. Mr. Langille hefir lengi veriS Chlef Deputy Grain Inspector.
Geta bændur þvi fyliilega treyst honum til aS lita eftir skoðun, geymslu
og vigt kornsins. Hann lítur sjálfur eftir hverju vagnhlassi, sem þeim er
sent. þeir eru “licensed” and “bonded”. svo bændur geta fyllilega
treyst Þeim.
Drjúga borgun fyrirfram fá þeir, sem vilja geyma hveiti sitt 1 von
um hærra verS siSar meir.
SkrifiS oss eftir öllum upplýsingum hveiti viSvíkjandi.
ötulir umboSsmenn geta veriS til ðmetanlegs gagns fyrir alla
hveitisala. Komist í kynni viS Þá og sendiS hveiti ySar tll
BARTLETT & LANGILLE
510 GRAIN EXCHANGE,
WINNIPEG
Skylda við sjálfa yður.
Þegar vagninn stendur Klaðinn hveiti
á brautinni, þá seljið það aldrei án þess
að síma eða fóna til
^GGGfe
eftir tilboði. Skiftið við félag sem bændur hafa stofn-
að; eiga og starfrækja. Pér getið fengið borgun fyrir-
fram fyrir bveiti yðar ef þér farið með Hleðslu skýrteinið til bankens sem þér
skiftið við eða sendið oss það í áðyrgðarbréfi.
Vér seljúm:
Epli, Kol, Hveiti, Timbur, Búsáhöld, o.s.frv.
The /raVri /rowers /ra iln (o~
Kzirud.
Winnipe^-Manitoba
Branehcs at
REGINA.SASK.
CALGARY.ALTA
FORT WILLIAM.ONT.
A^cncv at
NEWWESTMINSTER
Dritish Columl'ia
--------1-------
uð, eftir það afrek þeirra, að koma
á vínsölubanni á Islandi. Höfúnd-
urinn, Pétur Zophoniasson er
manna bezt kunnugur efni þessu._
Andvari, 39. ár.
Skemtilegast af innihaldi þessa
árs Andvara eru bréff sem þeim
Raldvin Einarssyni og Bjama amt-
manni Þorsteinssyni hafa á milli
farið. Þar kemur svo skýrlega
fram einfeldni og áhugi ungdóms-
ins á þeim hugsunum sem hann
finnur fyrir sér og ríkastar eru
með þeirri kynslóö, er hann vex
upp með, svo og ró og kalt
hyggjuvit aldurdómsins. Á Bald-
vins tíh var því trúað, sem enn er
í góðu gildi, að öll mannfélags-
mein mætti lækna meö ,því atS veita
almenningi sem rífasta hlutdeild í
stjóm landsmála, og er nærri átak-
anlegt að sjá, hversu fastlega þessi
fjör- og kappsmaður hefir trúað
þessu. — Auk bréfanna eru ýms-
ar fróðlegar og læsilegar ritgerðir:
í þessu hefti, æfisaga Steingríms
Thorsteinssonar með mynd, um
dularfulla fyrirburði, um skilnað
Svía og Norðmanna, söguleg rit-
gerð, um Björn Jórsalafara og
ýmislegt annað.
“Nú eða aldrei”
Greinarstúfur sá sem hér fer á
eftir, er kafli úr lengri ritgerð
eftir Lovat Fraser og birtist fyrir
nokkru i “Daily Mail,” London.
Fraser hefir áður ritað gætilega
og hyggilega uni ófriðinn. Þótt
lítt troði hann þjóðvegu, hafa
margar getgátur hans ræst.
Eg hefi þá skoðun, að Þjóð-
verjar muni gera hart áhlaup á
vestari vígvölli eins fljótt og þeir
fá þvi við komið.
Margir sem sérfræðingar eru
taldir í þeim fræðum, hafa gagn-
stæða skoðun og það kann að
þykja fjarstæða að mótmæla þeim.
En þegar litið er á spádóma þeirra
síðustu tólf mánuðina, þarf ekki
lengi að leita til að sjá að þeir
hafa oft og mörgum sinnum ekki
ræst. Þegar Þjóðverjar létu
undan siga við Marne, var oss
sagt, að loksins hefðum vér þá
unnið bug á þýzkum; en áður en
vika var liðin höfðu þeir búið svo
vandlega um sig hjá Aisne, að
lengra urðu þeir ekki hraktir. 1
allan vetur var oss sagt, að vér
hefðum ráð þeirra í hendi vorri.
Þegar oss nú er sagt að:
Óliklegt sé að Þjóðverjar geri* 1
áhlaup á vestara vígvelli og,
Að þeir geti ekkert gert þó þeir
reyni, þá verður mörgum á að líta
aftur í tímann og íhuga hvað gerst
hefir og enginn hefir ilt af því.
“óvinimir verðd að halda áfram.”
Um þessar. mundir er því oft-
ast haldið fram, að Þjóðverjar og
Austurríkismenn hafi svo mikið að
gert á Rússlandi, að þeir verði að
halda áfram. Mörgum virðist lít-
iö á þessu byggjandi. Þjóðverjar
mundu að vísu fegnir ganga á
milli bols og höfuðs á rússneska
hemum ef þeir gætu og það hafa
þeir eflaust í hyggja eða að minsta
kosti höggva í hann svo stórt
skarð, að Rússar þurfi marga
mánuði til að fylla það. Þeim
hefir þegar orðið talsvert iágengt
i þessa átt og þe/ir hafa lamað svo
Rússa að lengi hlýtur fremur að
verða vörn en sókn af þeirra
hendi. Þjóðverjar eru komnir svo
langt austur fyrir landamærin, að
þeir þurfa ekki að óttast árás úr
þeirri átt. Það virðist fjarri öll-
um sanni, að Þjóðverjar séu
neyddir til að halda mjög langt
austur á bóginn þaðan sem þeir nú
eru og þurfa tiltölulega lítið lið til
að' halda því sem, þeir hafa tekið.
Sennilegt er að vísu, að þeir haldi
enn um stund áfram og reyni' að
króa af allan þorra rússneska
hersins, en það er ekki síður senni-
legt að þeir fari nær um hve nær
stanza ber.
Það virðist mjög ólíklegt, að
Þýzkárar hugsi sér að halda til
Odessa. Tvær aðrar leiðir er oss
sagt að standi þeirni opnar. Sumir
halda að þeir muni senda megin
þorra liðs síns móti Itölum og
nota veturinn til að berja á þeim,
því þar er vetrarríki lít'ið. Aðrir
halda að þeir muni leggja leið
sína til Constantinopel og freista
að reka lið vort í burtu af Gallipoli
skaganum. Beinasta svarið við
báðum þessum ágizkunum er; það,
að Þjóðverjar og Austurríkismenn
gætu sent lið bæði til Italíu og
Constantinopel og samt sent
drjúgan liðsauka á vestara víg-
völl. En Þáð er ólíkt Þjóðverj-
um að eyða kröftum sínum við
smámuni og láta voldugustu óvin-
ina í friði og hefja ekki árás á
hendur þeirra fyr en næsta ár.
Þeir sem tala og skrifa um
ófriðinn, virðast oft lítið skyn-
bragð bera á það sem þeir eru að
tala um. Margir virðast líta svo
á, að Þjóðverjar verði að flytja
þann her sem þeir hafa nú á
Rússlandi, vestur á bóginn, ef
þeir hyggja á áhlaup. Það er
deginuni Ijósara, að þetta er mis-
skilningur. Þjóðverjar hafa nú
sem stendur fullar tvær miljónir
manna á vestra vígvelli og hið vel
æfða lið sem enn hefir ekki á víg-
völl komð, skiftir hundruðum
þúsunda og líklega miljómun,
Þ.eir hafa því nægan liðsauka
heima fyrir til að fylla í skörðin
og þurfa litlu liði við að bæta til
að hefja árás ef þeim svo sýnist.
En Þjóðverjum er tíminn dýr-
mætur. Þeir mega ekki bíða þang-
að til handamenn hafa viðað að
sér óþrjótandi hergögnum, ef svo
má að orði komast. Þeir verða
að hefja árás á bandamenn nú eöa
aldrei. Þeir hafa haft þá aðferð
i Galiziu að steypa sprengikúlum
yfir landið, sem regn væri, svo
ekkert hefir fengið fyrir staðist.
Þegar brautin þannig hefir verið
rudd, hefir fótgöngu og riddara-
liði veist auðvelt að vinna það sem
eftir var. Eg efast ekki um„ að
þeir muni reyna sömu aðferðina á
vestari vígvelli, áður en langt um
líður. Engin ástæða virðist til að
ætla, að þeir hugsi sér að semja
frið í haust. Þeir vita hug banda-
manna og ekki mundi Þjóðverj-
um koma til hugar, nú sem stend-
ur, að fara fram á frið án þess
jafnframt að krefjast hárra skaða-
bóta. En til þess að geta krafist
skaða-bóta. verða þeir að buga
bandamenn ef þeir geta.
I ró auðnarinnar.
1 flestum afkymum veraldar
hefir lúðrahljómur ófriðarins
mikla ómað og víðast hefir hann
sett merki sitt á daglegt líf matina.
Bkki alllangt frá einum útjáðri
Sahara stendur gamalt viggirt
klaustur eins og eyja í úthafi eða
sæluhús i öræfum. Þangað hafa
öldur ófriðarins ekki náð.
Einn af starfsmönnum stór-
blaðsins “Times” hefir nýlega ver-
ið þar á ferð og lýst því. Þáð
heitir Nitriaklaustur og íbúar þess
vita svo að segja ekkert um stríð-
ið. Umhverfis klaustrið eru þykk-
ir múrveggir, segir tíðindamaður-
inn. Dyrnar eru þröngar og
vandlega lokaðar. En klukku-
strengur hangir niður af múrnum.
Eg kippi í taugina. Löng þögn.
Eoks kemur berfættur munkur til
dyra og opnar hurðina með erfið-
ismunum. Eg sýni honum vega
og meðmælabréf og mér er lofað
inn. Munkarnir eru glaðir í |
bragði og bjóða mig velkominn.
Ungur munkur sem er í klaustrinu
til reynslu þvær mér um hendurn-
ar, annar gefur mér rósrautt syk-
urvatn og því næst er mér boðið
sætt kaffi. Ábótinn talar vin-
gjarnlega og innilega við mig;l
hann er dökkhærður og hrein-
skilnin skín út úr andlitirtu á
honum.
I klaustrinu dvelja 16 munkar;
en í grendinni dvelja nokkrir mein-
lætamenn svo ábótinn ræður yfir
hundrað og fimtíu helgum mönn-
um. Á fjórðu öld voru aö minsta
kosti hundrað klaustur á víð og
dreif í grendinni og í þeim bjuggu
meira en 7000 munkar og nunnur.
Flest var það meinlætafólk, menn
sem lifðu árum saman á háum
súlum og konur sem bundu sig við
krossa. Þegar tímar liðu fram
var það talið mesta helgimerki, að
draga sig með öllu út úr skarkala
lífsins og solli og setjast að í
Nitra. Þar sem hælar og súlur
meinlætafólksins voru þéíttastar
risu upp klaustur og þangað söfn-
uðust nú gersemar og gull og
silfur. En þá bar óvini að garði;
þeir myrtu munkana, höfðu flest
sem fémætt var á braut með sér,
brutu ölturu og lögðu klaustrin í
eyði. En löngu seinna settust
Arahar, er flestir höfðu tekið
kristna trú, að í landinu. Þeir
reistu eitt af klaustrunum úr rúst-
um og gerðu um það þykka múr-
veggi er standast skyldu árásir
óvina. Þetta er eina klaustrið sem
nú er við líði.
“Hvað hafið þið hér fyrir
ábótann.
“Við biðjum, lesum og syngj
um,” svaraði hann.
“Hvernig lízt ykkur á stríðið?”
“Stríðið kemur okkur ekkert
við. Þeir mega koma og myrða
okkur. Við látúm okkur það einu
gilda. En við biðjum guð daglega
um að draga úr vonzku mann-
anna, svo stríðið hætti, ef það er
hans vísdómsfullur vilji.”
“Hvað nuinduð þið taka til
bragðs ef óvinirnir kæmu?”
“Ef þeir ætluðu að skjóta á
okkur, mundum við reyna að kasta
til þeirra brauði. Það mundi
verða okkar svar.”
“Heimsækja ykkur margir?”
“Mjög fáir.”
Koma russneskir pílagrimar
liingað ”
“Já, Rússar biðjast hér líka
fyrir.”
“Leiðist ykkúr ekki að lifa hér,
svona fjarri skarkala og umbrotum
heimsins ?”
“Einn sækist eftir fé; hann vel-
ur sér þá leið. Annar sækist eftir
völdum, þriðji eftir heiðri; það er
þeirra unaður og yndi Aðrir gera
skyldu sina, sá og plægja — og eg
alít að allir komist fyrir í veröld-
inni.”
Frá Islandi.
Akureyri, 25 Júní 1915.
Flutningsbifreið ætla Þingeyingar
að hafa í sumar á akbrautinni milli
Húsavíkur og Breiðumýrar. Bifreið-
arstjóri verður Kári Arngrímsson
frá Ljósavatni.
í Rvík liggur mótorkútter nýkom-
inn frá Noregi; er hann 120 sniálest -
ir að stærð. A hann að fara á laug-
ardaginn til Jan Mayn og sækja æð-
ardún, tirnbur, 'tófur og fleira fyrir
félag í Reykjavík, sem stofnað er i
þessum tilgangi. Formaður félags
þess er Emil Strand.
Fjalla-Eyvindur var fyrir nokkrum
tíma sýndur í Berlín og var gerður
að, honum góður rómur. Fvrsta
kvekiið, er hann var leikinn, voru á-
horfendur 2,400 að töln. Höfundur
leiksins, Jóhann Sigurjónsson, er þar
var staddur, varð að koma oft fram
á leiksviðið, til þess að þakka fyrir
lófaklappið. Þýzku blöðin luku ein-
róma lofi á leikinn.
Eftir að v'íst var orðið að gufubát-
urinn Jörundur yrði ekki á ferðinni í
sumar, voru nefndir kosnar bæði af
bæjarstjórn og sýslunefnd, til þess að
sjá um. ef hægt væri, að flutninga-
bátsferðir hér um fjörðinn féllu
ekki niður. Hefir nú styrkur nokkur
úr landssjóði fengist til ferða þess-
ara, og hefir svo um samist að Bjarni
Einarsson skipasmiður tekur að sér
að halda ferðunum uppi i sumar, und-
ir umsjón Ragnars kaupm. Ólafsson-
CflNADft?
FIPtEST
THEATK4
Nú verið að leika
Matinec Miðvikudaginn og Verkamanna-
daginn
A Pair of
Sixes
Alla næstu viku
Tvisvar á dag 2,30 og 8.30
Heimsins mesti kvikmyndaleikur
“The Spoilers,,
úr bók Rex Beach. I níu þáttum
Áhrifamikil, stórkostleg og falleg mynda-
sýning
Verð á kveldin: og laugard. Mat. 50cog25^
Gallery lOc
Aðrar Mat. Fullorðnir I5c. börn lOc.
ar. Byrja ferðir þessar nú í næstu
viku, og er ákveðið að bátur Bjarna
fari vestur á Siglufjörð og út í
fjörðu, tvær ferðir alls ð viku hverri.
Áætlanir um ferðirnar verða birtar
innan skamms. — Islendingur.
Skólakveðja.
Lyft þér, sól, því að ljóma slær á
tinda,
lyft þér v'or ástkæra fold.
Vorgolan leikur um lautir og rinda
liljurnar gægjast úr mold.
Hvar er nú veturinn? Vald hans er
dáið.
Velkomið, heilaga ljós!
—Komið að segja við sölnaða stráið:
sestu’ upp og brostu sem rós!—
Lyft þér sól yfir sali þessa skóla,
sumarið kallar oss braut,
hugurinn ber oss til helgustu skjóla,
heim, heim í ástvina skaut.
Alt var að verpast í vetrarins dróma
vini þá kvöddum í haust;
heim þegar komum með hagsæld og
blóma
heilsar oss blíðsumars raust.
Lyft þér sól yfir sálir vorar ungu,
signdu oss smáviðarstrá,
leystu nú höftin af hjörtum og tungu,
helga þér frækornin smá
Sólnanna sól, eins og ósprottið engi
erum v'ér, fáráðu börn;
lýs þú oss, ger þú oss drósir og
drengi,
dáðríka fósturlands vörn. —
Kærustu feður, með klökkvandi
hjarta
kveðjum vér yður í dag.
Megi yðar alúð og uppfræðsla skarta,
efla vorn framtiðarhag I
Ekkert vér höfum sem iðgjöld að
bjóða,
utan þá löngunarþrá:
ást til hins sanna, hins göfuga og
góða—
guðsríki jörðinni á.
Lýstu sól yfir sálu þessa skóla!
signdu hans ágæta vörð;
ljósið er dýrkeypt og langt milli
skjóla,
lýs þú hans ungmenna hjörð !—
Norðurland, hér er þin gifta, -þinn
gróður,
arfur og framtíðarnægð;
héðan skal spretta þinn ófæddi óður,
afrek og skínandi frægð!
Matth. Jochumsson.
Daginn áður en gagnfræðaskólan-
um á Aktireyri var sagt upp 29. f.m.
JMaíJ, færði skládið skólanum kvæði
það, er hér er birt.—Islendingiir.
Stjórnmálaumræða.
Hið nýja blað “Islendingur” fer
þessum orðum um stjórnmálaumræð-
urnar, og má ef til vill af því marka
hver stefna þess er i landsmálum:
“Það sem framar öðru hefir ein-
kent trúna á óskeikulleikann í lands-
máladeilunum er umburðarlyndis-
skorturitin gagnvart niótstöðumönn-
um, en umburðrlyndisskorti fylgja ill-
indin, úlfúðin og hatrið.— Þegar alt
þetta er fyrir hendi, þá er lagður
grundvöllurinn að allskonar stjórn-
málasiðspillingu.
íslenzkir stjórnmálamenn ættu að
geta haft nóg annað þarfara fyrir
stafni en að hanga í hárinu hv'er á
öðrum.
Ekki svo að skilja, að deilumál
verði ekki og þurfi ekki að eiga sér
stað; væru deilumálin engin til, væri
það afleiðing þess, að þjóðin væri
hætt að hugsa , og þá væri hún að
hana komin.
Þess vegna er það, að þó stjórn-
málaillindin séu eitt af okkar verri
meinum, þá eru þau þó skárri en
dauðakvrð: þau bera, þrátt fyrir alt,
vott um lifsmerki og krafta meðal
þjóðarinnar, en þeim kröftum er
ekki beint í rétta átt.
ÍJr því nú að deilumálin eiga sér
stað, þá verður lika eðlileg afleið-
ing þess sú, að menn skipa sér í
st j órnmálaf lokka.
í hverjum stjórnmálaflokki v'erða
svo einhverjir — vanalega tiltölu-
lega fáir menn — til þess að gerast
leiðtogar og ráða stefnu og aðför-
um. Þessir menn veljast leiðtogar
fvrir ýmsra hluta sakir. annað hvort
vegna þekkingar eða hæfileika, eða
þá fyrir viðburðanna rás. Mikil á-
bvrgð hvílir á þeim mönnum, sem
gerast leiðtogar lýðsins.
Tæpast verður hjá því koniist að
draga það í efa, að þessir leiðtogar
hafi rætt deilumálin svo, að ekki
hefði mátt betur v'era, þvi umræð-
urnar um málin hafa æði oft haft
nokkuð mikinn keim af illvígu flokks
fvlgi.
Albert Gough Supply Co.
Wail Street and Kildonan West
ALSKONAR BYGGINGAEFNI
Talsimar: Sher. 3089 og St. Jonn 2904
SEGID EKKI
“EG GET EKKI BORGAÐ TANNLÆKNI NÚ.”
Vér vitum, a<5 nú gengur ekki alt aC öskum og erfltt er a8 elgn&st
skildlnga. Ef tll viíl, er oss þati fyrlr beztu. paS kennlr oss, sem
verðum a8 vlnna fyrir hverju centi, aC meta gildi peninga.
MINNIST þess, aC dalur sparaCur er dalur unninn.
MINNIST þess einnig, aC TENNUR eru oft melra virCi en peningar.
HEILBRIGÐI er fyrsta spor til hamingju. pvl verClC þér aC vernda
TENNUHNAR — Nú er tíminn—hér er staðurinn til aS láta gera vtU
tennnr yðar.
Mikill sparnaður á vönduðu tannverki
EINSTAKAR TENNUR $5.00 HVER BESTA 22 KAIi, GTTT.T,
$5.00, 22 KARAT GULI/TENNUR
Verð vort ávalt óbreytt. Mörg hundruð manns nota sér hið lága verð.
HVERS VEGNA EKKI pt> ?
Fara yðar tilbúnu tennur vel?
eBa ganga þær lCulega úr skorCum ? Ef þær gera þaC, finniC þá tann-
lækna, sem geta gert vel viC tennur yCar fyrir vægt verð.
EG slnni yður sjálfur—Notið fimtán ára reynslu vora við tannlæknlngai
$8.00 HVALBEIN OPID A KVflLDUM
DE. PAESOlsrS
McGREEVT BLOCK, PORTAGE AVE. Telefónn M. 699. Uppl yfir
Grand Trunk farbréfa skrifstofu.
UT >» • •. I • timbur, fialviður af öllum
Nyjar vorubirgöir tegundum, geirettur og al«-
konar aðrir strikaðir tiglar, hurðir og gluggar með margvís-
lcgri tilbreytni. Komið og sjáið vörur vorar. /Etíð glaðir
að sýna þó ekkert sé keypt.
The Empire Sash & Door Co.
-------------- Limited —
HENRY AVE. EAST - WINNIPEG
Þetta erum vér
Tbe Coast Lumber
Yards, Ltd.
185 Lombard St.
Phone M. 765. Þrjú yards
Orðhengilshátturinn hefir t. d. oft
gengið úr öllu hófi, og rifrildi um
aukaatriði hefir stundum hulið fyrir
mönnum merg málsins.
1 umræðum sumra leiðtoga vorra
hefir undirtónninn verið þessi: Vér
einir vitum og skiljum. Andstœðing-
ar vorir eru gersneiddir vitinu og
skilningnum.. Svo hefir getsökum
uni illar hvatir verið stráð yfir alt
saman.
Þetta er gott dæmi þess, hvernig
ekki á að ræða mál.
■ Hugsum okkur hvílíkri feikna
breytingu til batnaðar það mundi
valda, ef andstæðingar gætu hætt að
lita hverjir á aðra senj skoðana-
féndur sína; ef skoðanaandstæðing-
ar gætu litið hverjir á aðra sem
samverkamenn sína í leit eftir sann-
leikanum og engu öðru, þá mundu
deilumar ekki lengur snúast um það,
að finna höggstað á mótstöðumann-
inum, heldur mundi þá leitað eftir
þeim sannleikskornum, sem finnast
kynnu í því, er hann hefir frm að
bera, og þau tekin til greina. Þá
mundu hártoganir hverfa og per-
sónulega áreitnin, og illkvittnis get-
sakir ekki lengur eiga griöastað í
blöðum okkar, en málin rædd í bróð-
erni með það eitt fyrir augum, að
þau skýrist og skiljist sem bezt.
Vísst er, að þess verði langt að
bíða að umræður um stjórnmál fær-
ist í það horf, sem hér hefir verið
bent á. — En það er undir okkur
sjálfunt komið hvenær það verður.”
Einkennileg málaleitun.
Af öllum þeim bónum og málaleit-
unum, munnlegum og bréflegum, —
en þær munu vera æfamargar—, sem
viðtakandi þessa bréfs hafa borizt,
mun sú vera einna kynlegust, sem
eftirfarandi bréf inniheldur.
“......P.O. 18. Júní 1915.
Hon. Tomas Jónsson!
Hei'ðraði herra!
Eg býst við, að þér þyki skrítið að
fá hréf frá mér, en enn skrítnara
mun þér þykja innihald þess.
Eg er fæddur heima á Islandi í
..........sýslu, og er eg búinn að
vera hér tíu ár; en ekki hefir lánið
leikið við mig hér. Eg hefi verið
veill á heilsu, þó mér mundi batna
fljótt til fulls, ef eg hefði efni á að
njóta læknishjálpar. En hér hefi eg
aldrei átt sent sem kallað er, og get
eg þó sagt með sanni, að eg er reglu-
maður sem kallað er.
Jæja, það var nú reyndar ekki
Það kostaryður EK.KERT
að reyna
Record
fibur en þér kaupltt rjómaskilvindu.
RECORD er elnmitt skllvindan,
gem bezt á viti fyrlr bændur, er hafa
ekki fleiri en
6 KÝR
Þegar þér reynið þessa vél, mnnuð
i þér brátt sannfærast um, að hún
i teknr öllum öðrum fram af sömu
| stærð og verðl.
Ef þér notið RECORD, fáið þér
meira smjör, hún er auðveldarl
meðfcrðar, traustari, auðhreinsaðri
os scl«l svo lágu verði, að aðrir 8<‘ta
ekki eftir lcikið.
Skrifið eftir söluskilmálum 08 ðil-
um upplýsinguni, til
The Swedish
Canadian Sales Ltd.
234 Logan Avenue, Winnipes.
þetta, sem eg ætlaði að tala um, þó
eg léti það fljóta með. Eg hefi tek-
ið dálítið eftir stjórnmálaþjarkinu
hér í Canada og Manitoba, og er eng-
inn efi á því, að þú ert sá mælskasti
íslendingur á þinginu í Manitoba, en
um leið sá ófyrirleitnasti í munnin-
um, og er leitt að hinn flokkurinn,
nefnilega -conservatívar, skuli engan
íslending eiga á þinginu jafnsnjallan
þér í munninum, og datt mér þess
vegna í hug að spyrja þig að, hvort
þig langi ekki til að eignast mótstöðu
mann jafnan þér, sv'o þú getir háð
ærlega hólmgöngu? Mig vantar
þekkingu i opinberum málum og eg
kann ekki enska tungu; en eg er
fljótur að læra og vil feginn læra
hvorutveggja. En til þess vantar
mig peninga. Og ef þig langar til að
eignast mótstöðumann, sem aldrei
gefur þér eftir um hársbreidd, þá
taktu mig að þér og kendu mér lög-
fræði og stjórnfræði eins vel og þú
kant það sjálfur, og skal eg vera þér
allra manna þakklátastur nema í
stjórnmálum; þar skulum við heyja
stríð unz annar hvor fellur. Að gera
þetta af þér mundi verða merkilegt
og einstakt í sinni röð. Eg skal
geta þess, að það var ekki í upphafi
eðlislöngun mín að vinna stritvinnu,
lieldur hafa kringumstæðurnar hagað
því þannig; því hefði eg getað geng-
ið þá braut, sem andi minn hefir alt
af þráð, þá væri eg nú einn sá
stærsti eðlisfræðingur og heimspek-
ingur, sem heimurinn ætti nú.
Og svo er eg fátækur nú, aö varla
er að eg hafi að borða, því eg get lít-
ið unnið með köflum, hefi verið og
er þjáður af húðveiki og má ekki
vinna líkamlega v'innu, en verð að
gera það til að lifa, og batnar þess
•vegna ekki til fulls.
Þú fyrirgefur, að eg brúka engin
fleðulæti eða kurteisi sem kallað er.
Eg hata alt svoleiðis, alla kirkjutrú
og presta, hræsni og yfirdrepsskap,
flærð og fagurgala. Þetta hata eg
og conservatívi er eg og ætla að
verða. Eg ætla að biðja þig að gera
svo vel og láta mig v’ita þína skoðun
á þessu; en skrifaðu á íslenzku.
Bezt kvaddur með virðingpi og vin-
semd. Þinn einl.
■r ♦ ♦ >-
Það er víst óhætt að láta það
fylgja, að ráðgjafinn mun ekki ætla
sér að brynja þennan kappa á hólm-
inn gegn sér.