Lögberg - 30.09.1915, Blaðsíða 4

Lögberg - 30.09.1915, Blaðsíða 4
4 LOGBEKG, FIMTUDAGINN 30. SEPTEMBER 1915. LOGBERG OeflB út tavern fimtudag al The Columbia Press, Ltd. Cer. WUliam Ave k Sherbrooke Street. Winnipeg. - - Manltoba. KRISTJAN SIGURÐSSON JSdttor J. J. VOPNI. Business Manager Utanáskrift til blaSsins: The COLUMBIA PBKSS, Ltd. P.O. Boi 3172 Wlnnipeg, Man. Utanáskrift ritstjórans: KDÍTOR LÖGBKRG, P.O. Box 3172, Winnipeg, Manitoba. TALSIMI: GARRY 215« Verð blaðsins : $2.00 um ártð Flutningur á hveiti. Eitt af því sem þrongvaSi kosti bænda svo árum skifti, var skeyt- ingar leysi járnbrauta félaga, aö hafa nægan vagnafjölda til að flytja korn þeirra til skipa. Þa5 eru ekki mörg ár siöan vesturland- iö beið mikið tjón og stóran halla af þessum sökum, er komhlöSur voru fullar meðfram öllum brautum og bændur urðu að geyma kom sitt í hverju skýli, sem þeir gátui til þess fengiö, eða úti á víðavangj. Ekkert herti bændur til samtaka eins og ókjörin árið það, en svo snarplega heimtuðu þeir umbætur á þessu, að engin ástæða eða lítil, hefir verið til að kvarta siðan. En í ár ber að annað vandkvæði. Vegna stríðsins em fjölda mörg skip, er áður vom í siglingum, tekin til þarfa rikisins, til liðs og vopna flutnings, og því er flutn- ingsgjald á vörum milli landa gif- urlega hátt. Ef borga skyldi gang- verð fyrir hveitiflutning með skip- um til Englands, þá mundi það nema 33 centum á hvert bushel, eða meir en þriðjungi verðs. Þetta vissu menn fyrir og það var af öllum álitin sjálfsögð skylda land-j stjónnarinnar, að sjá svo um, að þetta vandkvæði yrði landinu ekki að rneini. Eitt af aðal verkefnum' stjórnarformannsins Bordens i för' hans til Bretlands i sumar nugðu menn að væri það, að komast í samtök og samvinnu við stjóm rik-; isins í þessu efni. En er verzlun- arráð borgar vorrar sendi honum fyrirspurn og áminningu um ráð-! stafanir hér að lútandi, þá kom það svar frá stjórninni, að nefnd væri sett til að ihuga máiið. Þefta kom mönnum óvart, Tiugðu 'það á lengri rekspöl komið en það, að nefnd væri skipuð til að annast framkvæmdir, eftir að hveitið var komið áleiðis til hafna. Það hefir lengi brunnið við í seinni tið, að skipa nefndir til að vinna þau verk,1 sem stjórnir gera í öðrum löndum.1 Það virðist meira að segja vera aðalverk og eina ráð landstjómar^ vorrár að útnefna menn i nefndir — dýrar og hátt launaðar — et ei.tthvað þarf að vinna. Það er orðið alræmt og er bæði broslegtog^ illa þokkað af almenningi. Að þetta vandamál, er bráðra aðgerða þurfti við, skyldi sæta sömu for- lögum, vera sett í nefnd, þegar^ það átti að vera útkljáð og til góðra lykta ráðið, er öllum Iands-1 mönnum og ekki sízt bændum og* kaupmönnum vestanlands, furðu-1 og áhyggju efni. Rannsóknin eystrr. Veturinn sem leið mun þykja merkilegur, i stjórnmálasögu Can- ada fyrir störf tveggja þingnefnda, er önnur var sett á alþingi, hin á fylkisþingi til rannsókna um viss- ar stjómargerðir. Afrek reikn- ingslaga nefndar á Manitoba þingi með hinum miklu afleiðingum þéss. er þegar frægt orðið. Reikn- ingslaga nefnd Ottawa þings hafði einnig mikið mál meðferðar, fjár- drátt samfara hergagnakaupum stjómarinnar, en afleiðingar þess sem sannaðist fyrir þeirri nefnd, em enn sem komið er, stórum minni en tilgerðir virtust til. Þegar rannsókn þingnefndar var Iokið, lofaði stjómin að skipa stranga rannsókn um fjárdrátt þennan og misferli alt, sem her- gagnakaupunum var samfara, og var svo gert, dómari tilnefndur, sem konungleg rannsóknamefnd, að kanna hauginn. Dómari sá hef- ir nú haft réttarhöld víða eystra og tekið til rannsóknar- þau mál sem þingnefndin hafði fjallað um og fengið sannanir um pað, sem nefndin var áður búin að sanna. Af því sem blöð hafa flutt um réttarhöldin virðist mega ráða, að dómaranefnd þessi hafi rétt geng- ið i fótspor þingnefndarinnar, en ekki lengra, látið þar staðar nUm- ið sem hin hafði hætt, yfirheyrt sömu vitni og fengið hið sama að heyra í sínum réttarhöldum sem hin — aðeins með nokkrum breyt- ingum, er fegmðu málstað vissra tnanna er mikið voru við málið riðnir. Árangurinn af starfi dómarans er þegar orðinn sá, að tveir af þeim þingmönnum sem óþægilega vom við fjárdráttinn bendlaðir, hafa sagt af sér þingmensku, og annar þeirra, þingmaðurinn Garland, skilað aftur “gróðanum”. Fleiri eru það, sem þannig hafa komið hægt niður, fengið að skila aftur “gróða” sinum, og komizt þannig hjá sakamáls höfðun, þar á meðal sá, sem seldi stjórninni átján dala sjónauka fyrir fimtíu og átta dali stykkið, og fleiri föðurlandsvinir, af' því rétta sauðahúsi hafa sætt sömu kjörum, að sögn dómarans sjálfs. Saga ' hrossakaupanna i Nova Scotia, sem þmgnetndin leiddi i ljós, var nú rifjuð upp aftur, með öllum þeim hlægilegu og grátlegu atburðum sem þeim voru samfara, þó var sá mismunur- inn, að nú voru ýms vitni komin suður yfir landamærin, og áttu svo annríkt þár. að þau höfðu ekki tíma til að koma norður til yfir- heyrslu, þó að fegin vildu sjálf- sagt gera sitt til að upplýsa þung- skilin atriði í málinu, er þeim hlaut að vera kunnugt um. Þess er vert að geta, að þvi er lýst, að stjómin hafi Iiætt að skifta við þá me»n, sem uppvísir hafa orðið að því að græða ofmikið á viðskiftunum og leitað til annara, sem ekki hafa prðið uppvísir að þvi ennþá. Það má kallast hrós- vert, eftir atvikum, J>ó lítið sé. — Dómarinn virðist hafa lokið störf- um sínum austanlands og er kom- inn vestur að hafi, til að spyrjast fyrir um kafbáta kaupin, sem vel má gera, því að margan hefir furðar á því, að alvanur sýslunar- maður, einsog stjórnarformaður- inn McBride, skyldi gefa $1,115,- 000 fyrir þau farlama tól, er eig- endumir höfðu áður boðið öðrum fyrir 750 þúsundir. Sakamálin. Talsmaður hinna ákærðu ráð- gjafa, sá er hingað var fenginn austan úr landi og svo skyndilega fór héðan aftur, hefir tjáð J>að af- bakað sem eftir honum var haft um tildrögin til málshöfðunar, sem vonlegt var. Enginn maður, sem Jækkir málavöxtu og vill halda virðingu sinni, mun halda því fram, að hún sé sprunrn af illum rótutn. Málið hefir hafið verið, fyrst eftir þingrannsókn, þá dóm- nefndar rannsókn Ioks voru vitn- isburðir er hún leiddi í Ijós, lagðir fyrir hina slyngustu lögmenn í sakamálum, er hér var á völ, til að fá álit þeirra um, hvort tilefni væri til málshöfðunar. Hvorugur ]>eirra tilheyrði liberala flokknum, og var ]>að á allra vitorði. Að ]>essu öllu yfirstöðnu, lét stjómin höfða glæpamálin. Það er orðlagt, hér um slóðir, að rannsóknar- nefndin sýndi ekki hlutdrægni í sínu verki, enda var niðurstaða hennar í einu og öllu samþykt af þeim meðlim hennar, sem enginn rnundi bregða um pólitíska ofsókn á hendur hinum ákærðu. Hvar hlutdrægnin hefði átt að sýna sig í meðferð stjórnarinnar á málinu, getur enginn bent á, enda er það ómögulegt. Þetta ber heldur eng- inn upp í sig, nema hið enska mál- gagn kosningaráðgjafans, en frá því er sagt hér, vegna þess, hve bíræfið það er og ófyrirleitið, en ekki af því, að orðum þess fylgi mikil merking- Hinni nýju stjórn var af alaienningi falið að hreinsa til, láta sök bitna þar sem sekur var fyrir, en ekki að fela réttvís- ina í vafningum og vífilengjhm, einsog því miður oft hefir átt séi stað að undanförnu. Liðsauki í Princess Patricias C.L.I. Háskólamenn hafa að undan- förnu unnið dyggilega að því, að safna nýjum liðsauka til hinnar vösku hersveitar, sem gengur und- ir nafninu “Princess Patricias .Canadian Light Infantry”. Þrír liðsflokkar eru þegar komnir aust- un um haf; í þeim eru fast að 900 manns. Nú er verið að safna í fjórða flokkinn i Montreal. Háskólaherflokkamir eru vel þektir um landið þvert og endi- langt svo daglega bætast hinir ákjósanlegustu menn við í Montreal. Það er hvorttveggja að þessir menn komast í hersveit, er þegar hefir unnið sér til frægðár og þeir eru að vörmu spori sendir til Englands; þar dvelja þeir við þægilegan aðbúnað, skamt frá suð- urströnd Englands- Enn fremur njóta þeir góðs félagsskapar í samvistum við menn með göfugum hugsunarhætti. Það er viðurkent af mönnum sem vit hafa á og hafa reynsluna fvrir sér, að fyrsti liðsflokkurinn sem sendur var undir stjórn Gre« gors Barcleys standi engum liðs- flokki að baki, þótt leitað væri i víðri veröld. Á sjö vikum söfnuou þeir G. McDonald og Percy Molson meira liði en með þurfti til að fylla tölu annars liðsflokksins. Báðir .flokk- arnir eru nú á Frakklandi. Þegar þriðji flokkurinn fór voru í honum 80 fleiri en til var ætlast, vegna þess, að blöðin skýrðu lesendum sínum frá, að enn væri verið að safna liði til áður nefndr- ar hersveitar. Buðu sig þá fram svo margir, að sérseakt leyfi varð að fá til þess að flokkurinn mættij telja 330 manns í stað 250. Áðurj en flokkarnir fara, skrifar hver maður að minsta kosti einumj kunningja sínum, sem liklegt er að' vilji fara líka. Eru hópar þvi! einatt teknir að satnast saman á McGill æfingarsvæði í Monrteal, áður en hinir fyrri hafa stigið af skipsfjöl. Herlæknir rannsakar heilsufar nýliðanna og eftir það liður sjald- an á löngu að þeir fái að fara til Englands. : í öllum borgum og bæjum og jafnvel í sumum smáþorpum eru umboðsmenn háskólanna, sem jafnan eru reiðubúnir og lúsir tii að liðsinna ‘hinu mikla og góða verki og leiðbeina þeim .sem í' herinn vilja ganga. Sömu reglur gilda um kaupgjald j og stýrk til fjölskyldna í Jæssari hersveit sem öðrum hersveitum ^ landsins. 1 Á meðan staðið er við í Montreal hýsir háskólinn nýlið- ana og sér ]>eim fyrir æfingasviði. Herskipunarlist er kend í hlíðum á Mount Royal. Vel æfðir menn segja til í her- skipunarilst, skotæfingum, hvernig beita skuli lagvopnum og grafa skotgrafir. C. P. R. lánar blett til skotæfinga. Einnig er kent að fara með vélabyssur, gefa merki o- s. frv. Allar frekari upplýsingar fást hjá Capt. A. S. Eve, 382; Sher- brooke St., West. Þœttir úr tölu. “Ef nokkur frægð fylgir því, sem eg hef verið við riðinn um dagana, þá er ]>að því sem gerðist 1911, þann dag er liberali flokkur- inn beið ósigur. Þau fimtán ár, sem eg sat að stjórn, voru guii- aldar tímabil hinnar canadisku þjóðar; þeim fylgdi velgengni og framfarir, sem hvorki hafa spurzt áður né siðar. Aldrei hefir neinn THE DOMINION BANK tUr BDH€ND B. ONI.KK, M. P., Pim W. D. MATTHKWI C. A. BOGKRT. General Manager. llM-rni. Stofnsjóður................. Varasjóður og ósklftur gróðl. . SPARISJÓÐSDKILD $0,000,000 $7,300,000 er ein deildin í öllum útibúum bankans. par má ávaxta $1.00 eða meira. Vanalegir vextir greiddir. I>aS er óhultur og þægilegur geymslustaSur fyrir spari- skildinga ySar. Notre Dame Branch—VV. M. HAMIL/TON, Manager. Selkirk Branch—M. S. BURGKR, Manager. i flokkur háð ærlegri barattu, heldur en vér háðum það ár. Vér biðum! ósigur af því að vér vildum vel. Landi voru var svo nauðsynlegt að færa út kvíarnar vegna þess hve auður þess og framleiðsla hafði j vaxið, að nýrra markaða varð ekki án verið, og vegna þess að vér, gimtumst þessi nýju ráð til vel- gengni þjóðarinnar, vorum við sigraðir.” S\to mælti Sir Wilfrid Laurier i ræðu sem hann hélt seinni part- inn í sumar, til sinna þjóðar mánna í Quebec. Hann kom að- eins við fáein opinber efni, því að mestöll ræða hans snérist um stríð- ið. Þar á meðal var þetta: “Fyrstu orð Canada, þegar til stála var stefnt, var það, að Can- ada mundi veita Bretlandi vigs- gengi- Eg er formaður þess flokks sem gegn stjóminni berst, en eg hika ekki við að lýsa þtí, að í hvert sinn, sem stjórnin fylgir eins réttu máli og þessu, þá vil eg leggja henni lið. Vissir menn spyrja sem svo, hvað oss komi það við, sem í Evrópu gerist. En á þetta mál ber ekki þann veg að lita. Þér vitið, mínir herrar, að eg hef ekki hikað við, að fylgja stjórninni, er hún gekk í lið með Englandi gegn Þjóðverjum. “Eng- land berst fyrir svo göfugu máli, að vér ættum að vera reiðubúnir að leggja sjálfa oss í sölurnar fyr- ir það. Eg hef'veitt hernaðar- stefnu Sir Robert Bordens fylgi án mótmæla, af því að málefnið er göfugt og réttlátt, er hverjum trúum borgara hins brezka ríkis ber að leggja sinn skerf til.” “Eg liðsinni stjórninni í þessu máli, eg tala til yðar með öllum þeim áhrifum sem fylgir minni löngu stjórnmála starfsemi, og segi að meðan rrtér endist líf, skal eg ekki fyrirláta þá stefnu. Það er oss áríðaodi, að láta þetta stríð ekki afskiftalaust. Við erum að berjast fyrir frelsi og stríða á móti harðstjórn. Ef þér tærið löngun i brjósti til að sjá réttlæti og frelsi hrósa sigri, þá getið ]>ér ekki verið afhuga þessu striði. Ef .Þýzka- land hrósar sigri, þá er menning- ar hugsójn vorri með öllu lokið.” Um herskyldu lög mælti hann á þessa leið: “Eg fyrir mitt leyti álít ekki að herskylda komist á, hvorki hér né í Bretlandi. Eng- land hefir aldrei þvingað herskyldu á neinn part ríkisins. Brezka þjóðin hefir ævinlega staðið í móti lögskipaðri herskyldu og hræðslan við herskyldu er eins ástæðulaus nú einsog árið 1911, Þegar fólkinu i Quebec var sumu talin trú um, að flotastefna Lauri- ers innifæli i sér þvingaða her- skyldu og að friðsamir borgarar yrðu dregnir úr landi með nauð- ung til að vera skomir á kviðinn á vígvöllum Evrópu. Síðustu kosn- ingar stóðu ekki um ‘‘reciprocity''> eingöngu í Quebec, heldur Iika um flotastefnu hinnar liberölu stjóm- ar. Nýafstaðnir viðburðir hefðu réttlætt þá stefnu sem liberalar héldu þá fram, því að stórar og auðugar borgir stæðu við strendur landsins, og eru vamarlausar fyr- ir óvinum, þegar stríð stendur. Þ'ess vegna þurfum vér á flota að halda. “Eg kæri mig ekki um að drepa á þessi efni til að efla minn flokk, heldur aðeins til að útskýra hvem- ig ástatt er fyrir oss. Meðferð stjórnarinnar á þjóðarbúinu er mjög svo ráðlaus og er og verður ]>ungbær landsfólkinu og þó að vér veitum Sir Robert Borden að hlfttdeild landsins í ^tríjöinu, þjá getum vér ekki verið honum fylgj- andi í stjórn hans innanlands, nð í fjármála meðferð hans. Vér'veitt- um stjóminni fé til að senda her- lið til Evrópu en vér gátum ekki samþykt aðgerðir hennar til þess að tryggja fjárhag landsins- I þeim vanda, sem vér erum nú í staddir, hefði stjómin átt að fara sparlega með landsfé, í stað þess að vera á það bæði ör og eyðslu- söm. “Síðasta árið sem vér vomm við völd, voru útgjöldin á fjárlög- unumi 98 miljónir dala. Árið sem leið byrjaði stjórnin með tekju- halla. En það þektist ekki meðan Laurier stjórnin sat við völdin. En árið sem leið var tekjuhallinn tíu miljónir og með stríðs gjöldunum óx skuld landsins um 110 miljónir dala. Skylda stjómarinnar var, er hún vissi að erfitt ár var fyrir dyrum, að halda sparlega á lands- fé. Vér eigum í stríði og ef vér förum ekki sparlega með fé vort, rekur þar að, að vér getum ekki staðist útgjöldin.” N0RTHERN CR0WN BANK AÐALSKRIFSTOFA 1 WINNIPKG Höfuðstóll (löggiltur) - - - $6,000,000 Höfuðstóll (greiddur) - - - $2,850.000 STJÓRNKNDCR : Formaður - -- -- -- - Slr D. H. McMHjIjAN, K.C.M.G. Vara-íormaður - -- -- -- -- Capt. WM. ROBINSON Slr D. C. CAMKRON, IC.C.M.G., J. H. ASHDOWN, H. T. CHAMPION W. J. CHRISTIK, A. McTAVISH CAMPBKIjIj, JOHN STOVKIj AUskonar bankastörf aígreirtd. — VTér byrjum reikninga við eln- stakUnga eða félög og sanngjamir skilmálar veittlr. — Ávísanir seldar til hvaða staðar sem er á íslandi. — Sérotakur gaumur gefinn sparl- sjóðs innlögum, sem byrja má með einum dollar. Rentur lagðar vlð á hverjum sex mánuðum. T E. THORSTEINSSON, Rá«.maS»r Cor. William Ave. og Sherbrooke St., Winnipeg, Man. óéV': TéÁ‘ í/sv VéS' ‘ /é\'ý ?éá ÝéV< TéV y»v ÝéV íTsviýáNi ýéV r?<v KSOSífiSrSI /á\'o óéV ‘ CéV f /*v r/#vif/8vir/j Islandica. Þetta er áttunda hefti ]>essa tíma- rits, er Halldór Hermúnnsson gef- ur út fyrir hið íslenzka safn Comell háskóla. Hinna heftanna hefir margra verið getið áður hér í blaðinu, og eru þau mörg afar fróðleg og nauðsynleg fyrir is- lenzka bókfræði. Þetta hefti inni- heldur ritgerð, sem heitir “Lof lýginnar”, eftir lærðan mann er dó á unga aldri, árið 1713. Þbrleifur Halldórsson hét hann, frá Dysjum á Álftanesi og var skólastjóri á Hólum er hann dó. Um ritgerð- ina og höfund hennar ritar Hall- dór mjög fróðlega. Þorleifur þessi virðist hafa verið frábær gáfumaður, hlotið fágætan háskóla frama og hátt settra manna vin- áttu og álit. Hann dó úr brjóst- veiki eftir tveggja, ára starf í em- bætti sínu. — Ritið samði hann1 upphaflega á latinu, en snéri því á islenzku síðar; í því er margt skritilega og skemtilega orða,ð, en einna merkilegast er það af því, | að það er eitt i sinni röð á Norð-! urlöndum í þann tið, það eina1 sem hið nafnkenda lofrit Eras-j musar til heimskunnar, gat þar af sér. þær þá menn einungis, sem geta eða vilja gefa sig við þeim að öllu leyti og óskiftir, en hafi ekki þessa há- ltaunuðu stöðu bæjarins í hjáverk- um, eins og ekki er laust við að verið hafi af sumum í liðinni tíð. Það er alkunnugt, að nóg er til af hæfum mönnum, sem stöðurnar vildu taka að sér og sinna þeim dyggilega og bænum til heilla. Því þurfa bæjar- menn nú að hafa þetta hugfast, þeg- ar þeir í haust greiða atkvæði þeim mönnum, sem urn stöðurnar sækja. —Eins og öllum mun ljóst, sækir nú einn íslendingur um eina af stöðurrf þessum, herra Ámi Eggertsson. Óþarfi er að mæla með honum við íslendinga hér, því öllum er kunnugt um dugnað hans kapp við það, sem hann tekur að sér að vinna, og vita menn því með vissu, að hann gæfi sig óskiftan við störfum bæjarins á næsta ári, ef vér yrðum svo hepnir að hann nái kosningu. En að því munu allir atkvæðisbærir íslending- ar í þessum bæ stuðla við í hönd- farandi bæjarkosningar. Sakamálin. Vitni þau gem nú eru yfirheyrð, eru hin sömu, sem komu fyrir hina konunglegu rannsóknarnefnd og er framburður þeirra líkur eða hinn sami. Þó virðist emstaka vitni tregara i tauminn nú en þá. Johnston, lagagarpur sá, er feng- inn var frá Toronto, til að stýra vörn hinna ákærðu, er farinn heim aftur og talar þar við blaðamenn um sökina, leiðréttir ]>að annan daginn, sem haft var eftir honumi hinn og þykir ótrúlegt að rétt séu hafðar eftir sumar staðhæfingar, | svo sem sú. að sakamálin stafi af. pólitískri ofsókn. Sá sem það ber upp í sig virðist hafa gleymt nið- urstöðu konunglegrar dómara- nefndar, sem gaf það álit, að ekki varð hjá málshöfðun komizt. Og hver á að bera ábyrgðina á, að um miljón dalir eru horfnir úr fylkis- sjóði ? Sá sem heldur slíku á loft, að pólitisk ofsókn liggi til grund- vallar fyrir málshöfðuninni, verð- ur engum að liði með þeim um- mælum, því að aJlir fylkisbúar vita, að stjómin gerði ekki niema skyldu sína, er hún lét höfða sakamálin. Bankamenn í lánferð. Hingaötil hafa Bretar og Frakk- ar borgað fyrir hergögn og aðrar vörur, sem þeir hafa keypt i Bandarikjunum, ýmist með gulli eða skuldabréfum amerískra fé- laga. En þar kom, af einhverjum ástæðum, að franskir og enskir peningar lækkuðu í verði í Banda- ríkjunum, og það svo mikið og skyndilega, að bandamenn þóttust ekki geta unað því. Þess vegna sendu þeir nokkra af sinum helztu og hygnustu peningamönnum til New York, til að fá leiðréttingu á þeim mismun. Höfuðsmaður þeirrar ferðar var Reading lávarð- ur frá Englandi, auðmaðbr af gyðinga kyni, alþektur áður und'ir nafninu Rufus Isaacs. Þéssir menn hafa, með aðstoð J. P. Morgans verið að semja um stórt peningalán, að upphæð 700 miljón* dala, aðallega til þess að losa Breta og Frakka við þau óþægindi að senda stórar sendittgar gulls öð'ru hvoru yfir hafið, svo og til að hindra það, að gull sópaðist á einn stað, er valdið gat rrTiklum og óþægilegum breytingum á verð- mæti þess. Lánið vilja þeir fá með.fimm p>er cent vöxtum, af- fallalaust, til fimm ára, en að þeim liðnum geta þeir sem féð leggja fram, fengiö ríkisskulda brðf, er stjórnir Frakklands og Englands ábyrgjast, með per cent vöxt- um, en þau mega stjómimar af- nema, þegar þeim sýnist. Svo er að sjá, sem þessi lántaka mumi ganga greiðlega, þrátt fyrir mót- spyrnu af hálfu auðmanna, er þýzkum em vel sínnaðir og þeím hafa stór lán veitt að undanfömu. Láni þessu verður öllu varið til að kaupa vörur fyrir í Bandarikjum, og er því iðnaði og verzlun þess lands stór hagur að þvi, ef það verður veitt. eins til að flýta atkvæðagreiðsl- unni í tvo-þrjá mánuði, enda væri tilgangi þeirra, er aukaiþings ósk- uðu í þessu skyni, fyllilega náð er stjórnin hefði lýst því, að engini vínsöluleyfi skyldu veitt eftir 31. maí, svo framarlega sem almenn- ingur sýndi með atkvæðum sínum, að hann óskaði vínbanns. Kosningar í bœjarstjórn Bæjarkosningar fara nú í hönd og ]>eir menn, sem sækja ætla um stöð- ur í stjórn borgarinnar fyrir næsta ár, koma nú óðum fram í dagsljósið. Einkum eru það sæti ráðsmannanna, sem virðast ætla að verða keppi- kefli nú sem fyrri, enda er það ekki að undra, þó ýmsa langi í þessu harðæri að ná í fjögur þúsund dala ársfúlguna, sem þau lembætti hafa að bjóða. Þetta finst sumum of hátt kaup fyrir þau verk, sem ráðs- mennirnir leggja á sig, og hafa ýms- ir jafnvel brytt á því, aö komast mætti af án ]>essara embætta í bæj- arstjórninni, og þannig spara bænum sextán þúsund dala útlag á ári. Finst sem er, að ^kki veiti af spafnaði af hálfu bæjarins, eins og félaga og einstaklinga, Aftur eru aðrir á því, að það sé bænum hagur að hafa slíka ráðsmenn, sem geti gefið sig við nákvæmara eftirliti á búnaði bæjarins, og geti þeir þannig sparað bænum meira fé en kaupi þeirra nemur, ]>ó hátt sé. Enda þyrfti að fá leyfi hjá þingi til þess að 'gera slíka breytingu í bæjarstjórn, og því er ekki um slíkt að tala á þessu hausti. En á eitt eru allir eða flest- ir sáttir hvað stöðum þessum við- víkur, það, sem sé, að kjósa skuli í Undirtektir spakra manna. Þeir sem mest hafa látið til sín taka að undanförnu imi bindindis- rnálið, eru stjómendur social service félagsskaparins hér í borg- inni. Forseti þar er Dr. Crummy, vel kendur klerkur. Hann gaf það andsvar, er Mr. Norris til- kynti honum livað ráðið væri um aðgerðir i vínbannsmálinu, að stjórn félagsins félli ágætlega vel, hvernig stjómin hefði vikist undir bindindismálið og væri hann ekki í minsta vafa um, að allir létu sér þær aðgerðir vel lika, er bæru bindindismálið fyrir brjósti. Sjálfur kvaðst hann heldur kjósa, að atkvæðagreiðslan færi fram í mara mánuði, 'heldur en í desember, þó að nokkrir í stjóm:- inni hefðu látið aðra skoðun í Ijósi áður, með því að sá frestur væri hentugur til undirbúnings undir atkvæðagreiðsluna, til að ræða málið fyrir almenningi og afla þvi fylgis. Hann kvað varla til þess ætlandi, að stjórnin héldi aukaþing, með þeim kostnaði, er því væri samfara, i þessu ári, að>- Útgerð herskipa. Franskir bryndrekar af “Dan- ton” gerð eyða 400O pundum af eldivið á klukkustund hverri með ellefu mílna hraða. Þegar þeir fara tuttugu mílur á stundinni þurfa þeir 36,000 pund- Á ensk- um og þýzkum “órögum” (Dread- naughts) erui tíu eða tólf fallbyss- ur. tJr hverri þeirra má skjóta 150 skotum og kosta skotfærin ein nálægt hundrað þúsundum dala. Fullbúinn ‘,óragur” með 900 manns leggur á stað með 30 tonn af nýju sauðaketi, 60 tonn at kartöflum, 6 kassa af borðsalti, 300 pund af baunum, 72 kassa af skipskeksi, 225 pund af hveitis- pípum, 4 kassa af gnlrófum, 750 pund af sóda, 96 dósir af niður- soðnum ertum, 300 pund ag bjúga, 65 dósir af smjörlíki, 180 svína- síður, 150 kassar af súkkulaði, 6 kassa af eplum, 2 kassa af þurk- uðum eplum, 284 glös af sósu, 96 ananasdósis, 144 dósir af perum, 300 pund af þurkuðum vinberjum, 300 pund af bananas, 300 pund af plómum, 8 kassa af nýrum og jafn marga af tungum, 12 kassa af nautaketi og svína í dósum, 225 pund af perlugnjónum, 6 kassa af sardínudósum, 33 svínslæri, 30 stóra osta, 2250 pund af söltuðum fiski, 24 kassa af síld, 720 kassa af eggjum, 70 kassa af tómötum, hálfa tunnu af lauk og þúsund vindlingakassa. Styrkið þjóðræknis- sjóðinn. Styrjöldin mikla hefir staðið yf- ir meira en heilt ár og endtrinn sýnist jafn fjarri og í byrjun. Enginn ímyndaði sér fyrir ári síð- an, að í september 1915 mundi Canada hafa sent austutr um At- lantshaf alt að hundrað þúsund manns til vopnaburðar og fastráð- ið að senda jafn marga í viðbót ef með þyrfti. Auðvitað hefir þjóð- in verið svona fús til að taka þátt i stríðinu vegna þess, hve drottin- hollusta og ættjarðarást eru á háu stigi. En hún hefði ekki getáð sent svo, fjölment lið sem raun hef- ir á orðið, ef hún hefði ekki not- ið aðstoðar þjóðræknissjóðsins. Þessi mikla líknarstofnun sem öll þjóðin hefir styrkt, lieldur nú lifinu í fjölskyldum tuttugui þús- und manna, sem göngið hafa í her- inn og berjast á vigvelli. Hetjum- ar hafa farið með þeirri sannfær- ingu í brjósti, að Canadaþjóðin annist konur þeirra, mæður og böm á meðan þeir væm í burtu. Vér vitum að til þess að geta leyst þetta verk sómasamlega af hendi, þarf mikið fé; vér vitum! að í júlí og ágúst mánuöum voru $700,000 greiddir úr sjóðnum; vér vitum að sjóðurinn er nú allmjög til þurðar genginn. Þess vegna verður ekki hjá þvi komist, að knýja enn þá einu sinni að dyrum kærleiksríkra og þjóðrækinna manna og kvenna þessa lands. Vér vitum að flestir líknarsjóð- ir sem stofnaðir hafa verið, og þeir eru margir, eiga skilið að að þeim sé hlynt; en þjóðræknissjóðurinm má með engu móti tæmast. Það er skylda stjórnarinnar, að útbúa hermennina að vistum og vopnum. En hún leggur ekki einn einasta skilding í þjóðræknissjóðinn. Hann stendur eða fellur með þjóð- rækni og gjafmildi landsbúa. Margar þúsundir hraustra drengja eru að berjast fyrir okkur, tull- vissir þess, að við meintum það sem við sögðum þegar ]>eir gengu í herinn: “Farið, við munum sjá konum ykkar og börnurm borgið.” 1

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.