Lögberg - 23.12.1915, Qupperneq 1
Þettta pláss fæst fyrir
þann sem vill auglýsa
Vér viljum kaupa
allskonar brúkafar skólabækur, bæði fyrir barna-
skóla og alla hærri skóla. Hæsta verð borgaS fyrir
þær. Einnig seljum vér eSa skiftum viS ySur á
öllum öSrum bókum, gömlum sem nýjum.
“Ye Olde Book Shop”, 253 Notre Dame Ave.
Gegnt Grace Church, Tals. G. 3118
28. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 23. DESEMBER 1915
NÚMER 52 /}.
Lögberg óskar viðskifta-
vinum sínum gleðilegra
jóla og farsæls nýárs.
Jóla-samkomur í Fyrstu
lút. kirkju,
1. J ólatrés-samkoma■
ASfangadags-kvökl, kl. 7.30.
2. Jóla-gufisþjónusta
Jóladagsmorgun, kl. n. Mik-
ill söngur og hátíSlegur hefir
verið æfSur fyrir hátíöar-guSs-
þjónustu þessa og er vandað til aö
öllu leyti.
3. Guðsþjónusta annan jóladag
/sunnudag) kl. 11 f. h.
4. Arsloka-guðsþjónusta sunnu-
dagaskólans, annarsdags kvöld
ósd.) kl. 7, vönduð og fjölbreyti-
leg að vanda.
Siggeir Olson,
mabur Halldóru Olson yfirsetu-
konu í Duluth lézt í fyrradag á
Almenna spítalanum í Duluth;
haföi verið skorinn upp viS sailla-
veiki. Siggeir var rúmiega fim-
tugur aS aldri; ættaður af Vestur-
landi á Islandi. Hann var fæddur
að Krossum í Staðarsveít, sonur
Ólafs bónda er þar bjó fyrst og
si,ðar að Brimilsvöllum í Snæfells-
nessýslu. Siggeir verSur jarðaður
á morgun.
Manitoba-þingið.
er sagt að muni koma saman 6.
janúar. Þar verða engir þing-
menn fyrir Fort Nelson, Churchill
eða Grand Rapids, heldur ætlar
stjórnin að útnefna umboðsmann
fyrir þau kjördæmi, er talið líklegt
að John A. Campbell lögmaður,
sem áður var þingmaður fyrir
Dauphin, muni hljóta þá umboðs-
stöðu.
Sir Richard McBride
stjórnarformaður í British Colum-
bia sagði af sér forustu og þing-
mensku 15. þ. m. Hann hefir
verið gerður að aðalumboðsmanni
fyrir British Columbia í Lundúna-
borg í stað J. H. Turners, sem
sagt hefir af sér þeim starfa.
Stjórnarformensku hefir tekist á
hendur W. J. Bowser dómsmála-
stjóri. Turner sá er umboðs-
störfum gegndi á undan McBride
var áður stjórnarformaður í
British Columbia. Það er alment
álitið að stjómin þar vestra sé
einhver spiltasta stjórn sem Can-
ada hefir nokkru sinni átt, er það
illa farið þegar menn eru valdir í
trúnaðarstöður um það leyti sem
langvarandi klækir eru að því
komnir að verða uppvísir, rétt til
þess að sleppa skálkunum við
hegningu.
Sakir þær sem McBride er
grunaður um, hefðu átt að vera
rannsakaðar áður en hann var
skipaður i þessa stöðu, og ef þær
reyndust ástæðulausar, þá gat hann
tekið við stöðunni meo sæmo. Kn
undir þeim kringumstæðum sem
nú eru verður þetta talið óheilla-
spor og ógæfa fyrir landið.
Bindindisþing í Sask-
atchewan.
Vegna hins mikla sigurs er bind-
indismenn unnu í Saskatchewan
fyrra þriðjudag, þar sem ófengi
var alstaðar dæmt útlægt þar sem
þess var freistað, hefir verið
ákveðið að kalla saman bindindis-
þing í Regina í janúarmánuði til
þess að búast til algers vínsölu-
banns að hausti komanda.
Bónaðarháskóla er Manitoba-
stjómin að hugsa um að stofna,
þar sem allar deildir fylkisskól-
anna 40 heyri undir.
Stríðsfréttir
Tyrkir réðust á brezka herdeild
á fimtudaginn austur í Mesopota-
miu, en biðu ósigur. Bretar tóku
allmarga fanga og nokkrar byssur.
Eins og getið var um fyrir
nokkru meiddist Bretakonungur,
þá er hann var við liðkönnun a
Frakklandi. Hanti er nú orðinn
heill heilsu affur, en verður þó að
fara varlega með sig, því hann er
mjög.eftir sig eftir veikina.
5. desember skutu Rússar á
þýzkt loftskip nálægt Kalkunstöð-
inni á Libau-Roumin jámbraut-
inni og eyðilögðu það.
Þjóðverjar sendu út þá frétt að
þegar bandamenn hefðu verið að
yfirgefa Serbiu hefðu tvær brezk-
ar herdeildir verið strádrepnar.
Þessu hefir verið opinberlega mót-
mælt á Englandi sem ósönnum
flugufréttum.
Sir Douglas Haig hershöfðingi
hefir verið gerður að yfirforingja
brezka liðsins á Frakklandi og í
Flandern, i stað French herfor- j
1 ingja sem hefir tekist á hendur
yfirstjórn þeirra herdeilda, sem
eru í brezka ríkinu.
Grikkir hafa leyft bandamönn-
um full not járnbrauta og her-
stöðva við Saloniki. Þessu mót-
mæltu Þjóðverjar og Austurrikis-
menn harðlega; kváðu Grikki ná-
lega hafa sagt þeim stríð á hend-
ur með því, sérstaklega þar sem
]ieir óGrikkir) hefðu leyft banda-
mönnum að byggja víggirðingar
umhverfis Saloniki og hafast þar
við. Svöruðu Grikkir því þannig
að þeir gætu ekki neitað banda-
mönnum um að vígtryggja Salo-
niki, þar sem það væri ens'ka og
frakkneska hernum svo að segja
lífsskilyrði; en þessum hermönn-
um hafa Grikkir lofað vernd þar
eð þeir eru enn þá bandamenn
Serba. Fjöldi Grikkja er að flýja
frá Saloniki sökum þess að þeir
óttast árásir Þjóðverja.
Á þriðjudaginn fluttu Englend-
ingar alt lið sitt í burt frá Suvla
og Anzac og öðrum héruðum hjá
Gallipoli. Var það til þess gert
að geta þeim mun betur sótt á
annarsstaðar, en ekki af því að
þeir hefðu í hyggju að yfirgefa
Gallipoli.
Lloyd George hefir lýst því yfir
að sigurinn í þessu stríði sé kominn
undir því hvernig verkalýðurinn
hagi sér. Hann kveðst þurfa 400,-
000 manns' til þess að vinna í
vopnaverksmiðjum og verði verka-
mannafélöginf að leyfa það að ó-
æfðir menn og þeir er utan verka-
mannafélaga standa, taki þátt i
vinnunni. Hann kveður það lífs-
nauðsyn að leggja fram alt það fé|
sem þörf sé á. “Fyrir hvert cent
sem sparað er í fé” sagði hann,
“er borgað þúsundfalt með blóði”.
Svo er njósnarstarf Þjóðverja
víðtækt að talið er sannað að þeir
hafi jafnvel njósnara meðal her-
foringja Rússa. Hefir það sann-
ast, eftir því sem prestur eínn
rússneskur segir frá, að rússnesk-
ir herforingjar haaf látið fara með
kúlur upp í loftbátum og kasta
þeim niður á þýzka bæi; en í
kúlunum hafa verið ýmsar upplýs-
ingar Þjóðverjum til leiðbeiningar,
uppdrættir og fleira.
Svo er að sjá sem öllum kurt-
eisisskeytum og skiftum verði
bráðlega slitið milli Bandarikjanna
og Austurríkis. Wilson forseti
krefst þess að Austurrikisstjórn
láti að kröfum hans1 í sambandi
við það að skipinu “Ankona” var
sökt. En Austurrikisstjómin neit-
ar því að skipstjórinn á neðansjáv-
arbátnum er skipinu sökti beri
nokkra ábyrgð á því, og því siður
kveður hún hina minstu ábyrgð
hvíla á stjóm Austurríkis og Ung-
verjalands. Þykja þessi svör svo
ósvífin að efst á baugi er talin
óvinátta milli stjómannji.
Rannsókn stendur yfir i Banda-
ríkjunum viðvíkjandi samsæri af-
aryfirgripsmiklu í því skyni að
veita Þjóðverjum lið á ýmsan
óleyfilegan hátt. Eru í því marg-
ir mikilsháttar menn og í háum
stöðum, og auk þess hinir og aðrir
í ýmsum trúnaðarembættum, svo
sem bankaþjónar og járnbrauta-
menn.
Starf þeirra er margvíslegt. Þeir
liafa unnið að því að hindra út-
flutning hervara til bandamanna;
fá verksmiðjuþjóna til þess að
gera verkfall; sprengja verksuiiðj-
ur og skip í loft upp, eyðileggja
vegi, brýr og járnbrautir og margt
fleira.
Læknir einn frá Canada að
nafni H. S. Reland, fyrverándi
þingmaður og póstmálastjóri var
staddur í Þýzkalandi ]>egar stríðið
byrjaöi; var hann þar í brúð-
kaupsför. Honum hefir verið
haldið sem herfanga. Hefir afar-
mikið verið til þess revnt að fá
liann laaisan, en öllum boðum hafn-
að. I Lundúnaborg er herfangi
þýzkur sem Rintelin heitir, hefir
hann verið fundinn sannur að sök
um ]>að að vera njósnari og dæmd-
ur til dauða. Nú er sagt að
Þýzkalandskeisari ætli sér að líf-
láta Dr. Beland ef Rentelin sé
tekinn af, og þeir einir kostir er
hann gefi til lausnar séu að
Rintelin sé slept.
Þýzkur hershöfðingi atkvæða-
mikill er Von Stackhausen hét,
féll í striðinu nýlega og er það
talinn hnekkir fyrir Þjóðverja.
Það er alment álitið, þótt ekki
séu fullar sannanir fyrir að
Þjóðverjar og Tyrkir hugsi sér að
ráðast á Suez skurðinn og reyna
að hertaka hann. Hefir það frézt
að Von Der Gollz hershöfðingi sé
í Alepjx> að undirbúa her í þvi
skyni; en ekki er talið líklegt að
fyrirætlan þeirra hepnist.
Almennar fréttir. Stefna Lögbergs,
Uppskera í Manitoba í ár er
samkvæmt stjórnarskýrslum 234,-
WB333 niælar, þar af hveiti 96,-
663,912 mælar, hafrar 101,077,991,
bygg 35,281,095 mælar, hör 739,-
808, rúgur 365, 572. baunir 64,955.
Öll uppskera í fyrra var 139,626,-
753 mælar eða nálega 100,000,000
minna en á ár. I einum stað
voru 80 mælar hveitis af ekrunni.
I haust hafa aðeins verið plægðar
2,796,660 ekrur, en í fyrra haust
4di7,6i5-
Lögreglustjómin á Englandi
hefir gert upptækt blað og prent-
smiðju kvenréttindakvenna í
London. Blaðið heitir “The
Suffragette” en félagið sem það
gefur út “The Womens Social and
Political Union”. Orsökin til
þessa var sú að blaðið hafði ávít-
að gerðir Englendinga á Balkan-
skaganum. Miss Annie Kenny,
sem er þar ein aðal konan, kvað
þetta ekki hafa komið þeim á óvart.
“Þeir geta bælt niður blaðið okk-
ar” sagði hún, “en þeir geta aldrei
bælt okkur niður sjálfar. Eins
lengi og vér nátim í virkilegar
fdéttir, skulum vér birta þær; eins
lengi og rangindi eru höfð í frammi
skulum vér opinbera þau.”
fÞýtt úr Free Press”J.
600 jámbrautarmenn á “Bell”
járnbrautinni gerðu verkfall í
Chicago fyrra miðvikudag. Þús-
undir vöruvagna teptust, sem
hlaðnir voru allsknnar vörum á 17
járnbrautum sem inn til Chicago
bggja.
Ford og félagar hans lentu i
Kirkwall á Englandi fyrra mið-
vikudag og var þeim bönnuð land-
ganga.
Það hefir heyrst á einstöku
j mönnum að þeir efuðust um það
hvaða stefnu Lögberg fylgdi í
bindindismálinu. Á hverju sá efi
er bygður er ekki hægt að skilja.
En til þess að enginn misskiln-
1 ingur geti átt sér stað, þá skal það
tekið fram að blaðið fylgir ein-
j dregið bindindis- og vínsölubanns-
mönnum.
Þessu til sönnunar má benda á
það að Lögberg mun vera eina al-
| menna blaðið í fylkinu sem ákveð-
ið hefir komið fram í þessu máli.
Öll blöðin hafa flutt breninvíns-
auglýsingar, svo að segja undan-
tekningarlaust. Það virðist vera
stefna allra blaða í landinu að
birta allar auglýsingar, livers efnis
sem séu — meira að segja þær
sem gjörsamlega eru andstæðar
stefiiu blaðanna sjálfra — þannig
minnast menn þess að “Free
Press’ flutti heilar síður af gleið-
letruðu lofi um Roblinstjómina
við næstsíðustu kosningar.
En það sem heimta má af blöð-
unum aftur á móti er að þau
flytji ritstjórnargreinar sem glögg-
lega sýni afstöðu þeirra. Það
1 hefir Löglierg gert. Ekkert liinna
j blaðanna héfir verið þar eins á-
kveðið.
Auðlýsingar þær sem öll eða
flest blöðin hafa flutt að undan-
förnu eru þess eðlis að þær leggja
bindindismönnum öll þau vopn í
hendur, sem þeir þurfa. Þar er
oninberlega komið fram með alt
það er brennivínsmenn bera sinu
máli til styrktar, og þegar það
liggur þannig fyrir almennings-
augum, er það miklu auðveldara
viðfangs' en ef það væri i skugg-
anum, eins og áður hefir verið.
Þessar greinar um gæði brenni-
vínssölunnar sýna hversu málstað-
urinn er veikur.
DRENGILEGA GERT.
Bindindismenn vinna stórsigur. Gimli-
búar á undan öðrum.
fylst vígamóði og nýrri von og
þeim orðið meira ágengt.
Það að svona fór hefir aftur á
móti gagnstæð áhrif á þá; þeir
sjá það á þessu hvers þeir eiga
að vænta og þeir missa talsvert af
þeirri sigurvon, er þeir kunna að
hafa haft ; talsvert af trausti, tals-
vert af starfsþreki; þeir verða
miklu linari í sóknum, ef ekki vit-
andi, þá óafvitandi — þetta er
mannlegt eðli sem ekki verður
raskað.
Bindindismenn aftur á móti
hafa með þessu fengið nýjar og
sterkar vonir, meira traust, bjart-
ari hugsanir, öflugra starfsþrek
og margfalt meiri moguleika til
sigurs — þetta eru lika mannleg-
ir eiginleikar sem altaf birtast við
hvern unnin sigur.
Atkvæðagreiðslan á Gimli á
þriðjudaginn fór þannig að bind-
indismenn unnit stórfeldan sigur.
Með vínbanni voru greidd 149 at-
kvæði en á móti aðeins 41. Er
þetta ein sönnunin enn fyrir því
hversu sterk bindindis aldan er að
verða.
Þetta hefir meiri áhrif en í
fljótu bragði kann að virðast.
Það hefir ómetanldga mikil sálar-
fræðisleg áhrif.
Það er sannreynd, sem enginn
getur á móti mælt að von og trú
vinna hálfan sigur. Hefðu brenni-
vínsmenn unnið í þessum eina
stað sem nú var reynt, þá hefði
það veriö notað sem gleiðrituð
auðlýsing til þess að telja fólki trú
um að alþýðan væri ekki vínbanni
hlynt og að vinið mundi vinna sig-
ur í vor. Sumir hefðu trúað þvi,
og brennivínsmennimir hefðu trú-
að því sjálfir. Þeir hefðu þvi
Frá íslandi.
Sjötíu nemendur á Flensborgar-
skólanum í vetur.
Á Austurlandi var sumarið
mjög votviðrasamt og voru hey úti
t Mýrdal í byrjun nóvember.
Höfðu þar ekki verið nema örfá-
ir þurkdagar síðan um höfuðdag.
Breiðfirðingar hafa komto ser
upp bát til umferðar um flóann.
Hann er smíðaður í Kaupmanna-
höfn og er um 80 smálesttr; veltn
hefir 90 hestöfl. Skipstjóri er
Oddur Valentínusson.
Bæjarstjómin t Reykjavík ætlar
að láta byggja nýja bryggju út frá
“Batteríenu” og á hún að kosta
7000 kr. Nýja uppfyllingu á einn-
ig að gera í höfninni frá Geirs-
kryggjunni, er kostar 18,000 kr.
og út frá þeirri uppfyllingu tvær
brygííjur fyrir 5500 kr. Þessar
bryggjur verða til þess að botn-
vörpungar geti skipað þar upp
fiski sínum og geymt hann þar.
Nýlega réðust nokkrir háhym-
ingar á reiðarfisk ('HrefnuJ í
Hvalfirði ttndan Innrahólmi og
gengu þeir af henni dauðri.
Bæjarkosningarnar
Sem yfirráðsmenn voru þessir
kosnir; R. S. Shore, J. J. Wallage,
John W. Astley og J. W. Cock-
bttm. Munaði aðeins litlu að
Robert Snook næði kosningu á
móti Shore. McArthur og Mid-
winter töpuðu báðir.
Thos. H. Johnson
ráðherra kom hingað aftur vestan
frá liafi á sunnudaginn af þingi
því sem haldið var þar af fulltrú-
um fjögra fylkjanna. Var þar
ákveðið að öll vesturfylkin skyldu
hér eftir hafa sömu bækur í öllum
al]>ýðuskólum, sömu mentaskih rði
og sömtt próf. Á fulltrúanefnd
allra fylkjanna að unchrbúa þessa
breytingu og koma henni í fram-
kvæmd tafarlaust.
Þetta eru sannarlega mikilsverð-
ar og þarfar umbætur í mentamál-
um og hefðtt átt að vera fyrir
löngu gerðar.
Járnbrautarslys.
17. þ. m. rákust þrjár járn-
brautarlestir á nálægt Jarrow á
Englandi. 16 mauns dóu sam-
stundis en yfir 50 meiddust. *
Wilson forseti kvæntur
P'orseti Bandaríkjanna og Mrs.
A. W. Howe, auðmannsekkja frá
Philadelphia héldu brúðkaup sitt á
laugardagskveldið að heimili brúð-
arinnar.
Santi dagur var til þess valinn
að skíra dótturdóttur Wilsons sjö
mánaða gamla; er hún dóttir Mr.
cfg Mrs. McAdoo. Hún var skírð
eftir fyrri konu Wilsons.
♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦*♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+4-++
t *
*
♦
♦
♦
+
♦
+
♦
+
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦+^4.f.4.f-4.4.4.+4.>4.>.4.4.^,>4. >4. +♦+♦+♦+♦+♦♦♦♦♦+♦+♦+♦♦♦+♦♦♦+♦+♦♦♦+♦+♦♦♦+♦+♦+♦♦♦♦♦+♦♦♦+♦♦♦
Lögberg óskar hinum stóra syni hinnar litlu þjóðar, Vilhjálmi
Stefánssyni, gleðilegra jóla og góðs árs.
+
♦
+
+
+
♦
Frá því var skýrt nýlega að
læknir að nafni Haiselden í
Chicago hefði látið nýfætt bam
deyja sökum þess að það var van-
skapað. Nú hefir læknafélagið í
rikinu hafiö rannsókn gegn honum
og kveður athöfn hans hafa verið
ósamboðna læknastéttinni og verði
hann dærndur sekur tapar hann
læknisleyfi fyrir fult og alt.
X++-f+++++++++++++++++++-f^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦+++4+^+44. 4.4^4,
t ♦
Til Vilhjálms Stefánssonar.
4, Sungið i samsæti er honunt var haldið í Wyn-
* >'ard l>egar hann Iagði af stað í síðustu för sína.
Welcome!
Welcome to thy mother’s1 home,
Welóome!
Wynyard is thy mother’s home.
Not in pomp or splendor of magnificent Rome
We meet thee — but like brothers from thy mother’s
home,
We meet thee just like brothers from thy mother’s
home.
Farewell!
Providence abide with thee
Farewell!
Turning every tide with thee
May the god of science uphold the light for thee.
Farewell, our prayers shall fight for thee, abide with
thee.
Farewell, our prayers shall fight for thee, abide with
thee.
Sig. Júl. Jóhannesson.
♦
+
♦
+
♦
+
♦
+
i
t
t
i
l
t
♦
+
I
i
t
t
♦
+
♦
+
t
t
t
t
t
t
+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦+♦++ +4fM.4.44. +4.4.4 4 4.4.4.444.44. ♦♦♦♦♦♦