Lögberg - 06.04.1916, Blaðsíða 1
f
Peerless Bakeries
Heildsöluverzlun
Búa til beztu tegundir af sætabrauði. Ekkert «paraS
til að hafa það sem ljúffengast. G ftingar kökur búnar
Og prýddar aérataklega vel af mar.ni a. m «i meistaii Iþ-irri
iS ,. Kringlur og tvíbökur einnig til sölu. Par.tanir fiá
verzlunarmönnum út um landiS íljótt afgreiddar.
C. HJALMARSON, Ejgandi,
1 1 56-8 Ingersoli St. - Tals. G. 4140
ÞETTA PLÁSS ER
TIL SÖLU
29. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 6. APRÍL 1916
NÚMER 14
UPPÞOTIWINNIPEG-BORG. HERMÖNNUM OG
LÖGREGLULIÐI BŒJARINS LENDIR SAMAN
Tugir manna verða fyrir meiðslum
Um 90 manns teknir fastir. Brenni-
vín var orsök óskundans.
Upplilatip allmikið varð í Winni-
peg á laugardaginn var. Hófst
það þannig aS hermaður var ölv-
aður úti á götu og varð cleila milli
lögreg'uliðsins og hervaldsins um
það hverjir hefðu vald til að taka
hann. Urðu af áflog og safnaðist
svo í hóp'nn smátt og smátt að
loksins skifti hundruðum eða jafn-
vel þúsundum, ]>ar sem barist var1
á báðar hliðar. Me'ðsli urðu mörg
og a’.varleg, og varð ekki orustan
sefuð fyr en riddaralið reið á fylk-
ingarnar.
Á sunnudaginn var þessi slagur
endurtekinn og meiddust þi enn
margir. voru brotnir allir gluggar
úr einni hl.ð lögreglustöðvar'nnar
og fleiri skemdir og alvarleg meiðs'.i
Sannleikurinn er sá að um upp-
lökiti er ekki hægt að segja nákvæm
lega, og því síður um slaginn sjálf-
an né það hversu víðtæk meiðsli
hafa orðið, því sina söguna segir
hver, og er það glögg sönnun þess
sem Lögberg hefir sagt áður, að
erfitt er að fá sannar fréttir af or-
ustum. Þegar sögurnar eru eins
andstæðar liver annari og óábvggi-
legar og þær voru hér i bænum af
þessurn slag í bænurn sjálfum, þá
má nærri geta hversu áreiðan’.egar
eru fréttirnar austan frá Evrópu.
Stríðsfréttir
Borgarar Banr’aríkjanna hafa
svarið það í Evrópu, að skotið hafi
verið á skip ð “Manchester Engi-
neer’* fyrvaralaust. Þessir menn
heita Arthur McKenzie frá Gal-
veston, Tom Fiber frá De'.aware.
Þeir sóru þetta fyrir ræðismanni
Bandarikjanna.
Frakkneska skipinu “Hebe”,
brezka skipinu “Come” og brezka
skipinu “Khartoun” frá Hull hefir
verið sökt. F’.estum farþegum og
skipverjum var bjargað.
90 norsk ksip hafa far'st siðan
stríðið byrjaði, flest rekist á tund-
urdufl og verið sökt.
Frétt hefir borist’vestur um það
að ósætti hafi konúð upp með
ÞýzkalandSkeisara og Beíhmann
Hollweg, og fylgir það fréttinni að
Hollweg muni segja af sér. Hvað
satt er í því vita menn ekki.
Ný regla hefir verið sett af her-
mála stjórninni og er hún sú að
engir þeir sem eitthvert embætti
hafa í hemum megi koma hingað
aftur í liðsafnaðar erindum, eins
og verið hefir.
Allir pólitískir flokkar i Þýzka-
landi hafa greitt atkvæði með þvi
að haldið sé áfram neðansjávar
stríði, nema jafnaðarmenn. Þeir
setja sig eindregið á móti því.
Þjóðverjar kornu aftur á loft-
skipum til Englands' á laugardags-
kve’.dið og köstuðu sprengikúlum.
Dóu 16 manns og 100 meiddust.
Átta íbúðarhús eyðilögðust og eld-
ur kviknaði í litlu verkstæði. Loft-
skipin voru tvö og náðu Englend-
ingar öðru þeirra en hitt komst
undan.
Snörp orusta var með Þjóðverj-
um og Frökkum á laugardag’nn
skamt frá Verdun. Þjóðverjar
komust áfram lítið eitt á einum
stað, en töpuðu aftur parti af því
sem þeir höfðu unnið skömmu áð-
ur. Frakkar skutu niður þrjú loft-
skip-.þýzk.
Næst elzti sonur Shaughnessy
lávarðar formanns C.P.R. félags-
ins féll í stríðinu á föstudaginn.
Hann var kafteinn i 60. deildinni
og hét Alfred Thomas Shaughnessy
Bretakonungur hef> gefið $500,-
ooo> til striðsins með þeim ummæl-
um að stjórnin verji þeim á þann
hátt, sem hún te’.ji hagkvæmast.
Bretar gerðu áhlaup á her Þjóð-
verja hjá St. Eloi og hertóku 1800
fet af skotgröfum og 170 fanga.
Dr. S. G. Bland hélt ræðu fyrra
sunnudag í kirkju í Port Arthur
og lýsti ]>ví yfir að Manitoba,
Saskatchewan og Alberta væru full
af svikurum og fjárdráttarmönn-
um, sem hefðu hermálin að féþúfu
og gróðabrellum; vistir og vörur
handa hermönnum væru seldar tvö-
földu verði og kvaðst hann geta
nefnt einstök dæmi og mörg, ef
krafist yrði.
Fulltrúar frá ríkjum banda-
manna eru mættir á fundi í París-
arborg. Hvað þar gerist vita
menn ekki.
Þýzk loftför skutu sprengikúl-
um á austurströnd Englands á Iaug-
ardaginn. Urðu þær 38 manns að
bana en 44 meiddust. Alls voru
loftskipin 5 og skutu 90 kúlum.
Þessi skip voru stærri en þau sem
sést liafa þar áður. Eitt þeirra var
skotið niður og tekið.
Gallunt hermálaráðherra Frakka
hefir sagt af sér sökum vanhei’.su.
Sir Reques hershöfðingi tekur við.
Fulltrúar bandamanna héldu ný-
lega þing í Parísarborg á Frakk-
landi. Var þar ákveðið að leggja
fram alt afl til þess að hefja alvar-
lega sókn á hendur Þjóðverjum
frá öllum hliðum með vorinu. Sig-
ur kveða, þeir vísan.
Þjóðverjar háfa gert hverja á-
rásina á fætur annari á Verdun upp
á síðkastið. Hafa þeir unnið dá-
litið á stöku stað, en víðast ekkert.
Þeir tóku þó bæinn Malancourt á
föstudaginn. Frakkar vörðust þar
lengi á móti tuttugu sinnum eins
mörgum og þeir voru sjálfir, en yf-
irgáfu bæinn um síðir til þess að
verða ekki herteknir.
Hospítalskipið “Portugal” sökk
nýlega í Svartahafinu; hafði þýzk-
ur neðansjávarbátur skotið á það
og fórst fjöldi manns', þar á meðal
15 hjúkrunarkonur.
Einkennileg gjöf.
Loftfari nokkur sem George C.
Milis heitir og er frá Manitoba,
sendi Thos. H. Johnson ný’.ega staf,
sérlega einkennilegan. Hann er
búinn til úr árarblaði af loftskipi.
Milis komst í lífsháska á loftskipi
sínu, þannig að hann misti árina
og var hann þá 800 fet uppi í lofti,
en með f.mleika bjargaðist hann.
Á silfurskjöld sem festur er við
stafinn er skráð eða grafin stutt
frásögn um þetta slys eða tilfelli,
og er stafurinn rnesta gersemi eða
menja gripur.
George Mi’.is þessi er sá sem
stjórnaði loftbátnum sem Mani-
toba stjórnin gaf.
Sfórkostlegt járnbrautar
slys.
Þrjátíu farast og fjörutíu meiðast.
Þrjár járnbrautarlestir rákust á
fyrra miðvikudag nálægt bænum
Amherst, 37 mílur fyrir yestan
Cleveland, Ohio.
Lestirnar voru þessar: Twentieth
Century Limited, á vesturleið, New
York Central og Chicago Pittsburg
Limited á austurleið. Þoka var mik-
il af Erie vatninu og sáust því ekki
merki. Auk þess er svo sagt að
sumir mennirnir á lestinni hafi
verið búnir að vinna í 22 klukku-
stundir og því s'.jóir andlega og
líkamlega af ofþreytu. Sé það satt,
ætti þeirn að vera harðlega hegnt
sem að því voru valdir.
Þeir sem dáið höfðu voru alla
vega lemstraðir, sumir höfuðlausir,
aðrir fótalausir og aðrir handleggja-
lausir. Sumir voru blátt áfram
ntolaðir í sundur eða kramdir. Alls
hafa 30 manns' dáið, en fjörutiu
stór slasast. Rannsókn hefir verið
hafin í málinu.
Er þetta talið meö allra stórkost-
legustu slysum, sem orðið hafa í
Bandarikjunum.
Hermiþingið.
Liberal k’.úbburinn hélt siðasta
fund sinn á föstudaginn, eins' og
auglýst hafði verið. Var þar
fjöldi fólks, svo að segja húsfyllir,
og þar á meðal margt kvenna.
Fundur nn byrjaði með því að
varaforseíi klúbbsins J. J. Swanson
ávarpaði þá sem viðstaddir voru, i
fjarveru forsetans S. W. Melsted,
sem ekki var orðinn nægilega
hraustur til þess að stjórna fund-
inum, þótt hann kæmi þangað
snöggvast.
Þar næst talaði Sig. Júl. Jóhann-
esson. Lýsti hann starfi klúbbsins
í vetur og sérstaklega “Hermiþing-
inu”. Hvaða þýðingu það hefð',
hvaða markmið og hvernig það
hefði reynst. Kvað hann menn og
konur hafa lifað þar marga glaða
stund í vetur og mundu þó betur
verða næsta ár, þar sem lögunum
væri nú svo breytt að konur yrðu
þar að sjllfsögðu jafnt við menn.
Mintist hann þess að þetta væri hið
fyrsta ár í sögu Canada, þar sem
konur hefðu alment tekið þátt í
pólitískum fundum, og væri það vel
farið. Það sýndi vilja og vakandi
hugsun á því að búa sig und r hina
nýju stöðu sem konum hefði hlotn-
ast.
Kvað hann liberal klúbbinn vera
pólitiskan skóla, ]>ar sem mönnum
gæfist kostur á að læra og fræðast
um landsmál. Venjulega væri svo
álitið, að í pólitískum féjögum væri
alt einhliða, alt gert bjart á aðrá
hlið, en alt svart á hina.
Hermiþingin væru meðal við
þeirri veiki. Þar skiftu menn sér
þannig í flokka að báðar hliðar á
hverju máli kæmu fram og væru
ræddar óhikað og óhindrað. Af
þeim ræðum mætti mikið fræðast
og í þeim fróðleik mundu konur
taka fullan skerf á næsta vetri.
Þá talaði Dr. Jón Stefánsson um
borgaralegt g ldi klúbbsins og sagð-
ist sérlega vel.
Hann kvað mentalegt gildi þess
konar félaga geta verið ómetanlegt,
og hefði víst aldrei verið meira gert
af neinu þess konar félagi í þá átt
en liberal klúbbnum í vetur.
Hann sagði að þvi væri oft hald-
ið fram að lítill væri munur póli-
tisku flokkanna og báðir sakaðir
um svik n loforð. Því miður kvað
hann þetta hafa verið of satt stund-
um að undanförnu; en því væri nú
á annan veg varið, eins og öllum
væri ljóst. Nú ættu fylkisbúar því
láni að fagna að eiga stjórn, sem
ekki einungis lofaði, heldur einnig
efni.
Dr. Stefánsson laeði á það mikla
áherzlu, að áríðandi væri að afla
sér óháðs fróðleiks í pólitískum
málum; og eins og liberal klúbbur-
inn væri nú, væri hann þar ágætur
skóli.
Hatin kvað það ekki síður árið-
andi konur en körlum, að taka þátt
i landsmálum, og með þvi að þetta
væri fræðslustofnun og konur sem
hingað til hefðu verið útilokaðar
frá venjulegri þitttöku pólitiskra
mála væru nú á tímamótum nætur
og dags í þeim skilningi, þá væri
það ánægjulegt að hafa slíka stofn-
un, þar sem þær gætu lært undir-
stöðu atriðin í landsmálum til að
byrja með. Kvaðst hann vænta
þess að þær færðu sér í nyt þau
hlunnindi næstkomandi vetur.
Fyrsta skijyrði til þess að kveða
upp dóm væri það að kynna sér
málið sem dæma ætti; atkvæða-
greiðsla væri dómsúrslt, sem
þyrfti að byggjast á þekkingu og
þá þekkingu vildi þetta fé’.ag veita
þeim er-hennar æsktu.
Ræðan var sérlega vel hugsuð og
prýðilega fram sett.
Thos. H. Johnson flutti þvi næst
langa ræðu og snjalla. Dundi við
lófaklapp hástöfum, þegar hann
steig upp á ræðupallinn.
Ilann kvaðst hafa verið í efa um
hvort hann væri á réttum stað, þeg-
ar hann hefði komið að dyrunum.
Áður hefðu venjulega verið karl-
menn e'nir á þess konar fundum,
en nú væri þar helmingur kvenna,
og taldi hann það gleðiefni.
Hann mintist þess að þennan dag
væri afmæli þeirrar hreyfingar,
sem hrundið hefði af stað stjórnar-
byltingunni í Manitoba. Þenna
dag gengu tuttugu og einn liberal
þingmenn á fund fylkisstjóra og
kröfðust þess að rannsókn fengist;
fFramh. á 4. bls.).
Almeniiar fréttir.
Pcllenzkur prestur, Filippo Ba-
sylian að nafni, var tekinn fastur i
Winnipcg á fimtudag’nn fyrir land-
ráð. Var kæran í því fólgin að
hann er sakaður um að hafa hjálp-
að Austurríkismönnum til þess að
komast leiðar sinnar til Banda-
ríkjanna, i þvi skyni að fara þaðan
til Evrópu i striðið með löndum sin-
um á móti bandamönnum. Hann
þjónaði i St. Nikolas kirkjunni i
Winnipeg. Sama dag var austur-
risk stúlka tek'n föst. Hún var
kennari í Tanby í Manitoba og sök-
uð um það að hafa i fórum sinum
þýzkt blað, préntað á Þýzka'.andi
með greinum utn strið'ð á móti
handamönnum. Þau bíða bæði
dcms og eru laus gegn veðfé.
Ráuðáin hefir vaxið svo i þiðun-
um að un 'anförnu, að hún var orð-
in i6)4 feti hærri en venjulega fyr-
ir he’gina. í Fargo og fleiri bæj-
um í Norður Dakota hafa vatna-
vextir verið meiri en þekst hefir í
siðastliðin 19 ár.
í annað skifti í sögu Canada er
það að dómari er nú rekinn frá em-
bætti. Hann heitir Fitch og er í
Rainy River héraðinu. Hann var
kærður um það að misbcita stöðu
sinni og valdi; konunglcg rann-
sóknarnefnd var skipuð og sönn-
uðust kærurnar.
Elzta kona í Canada andaðist á
laugardaginn. Hún hét Jane Mc-
Leod Chapman; átti heima í Smiths
Falls og var 116 ára gömul. Hún
var fædd á írlandi, kom til Can-
ada 1810 og giftist ekki fyr en hún
var 75 ára, átti hún þá mann er um
fjölda mörg ár hafði reynt að ná
ástum hennar.
Þrír verkamamt' foringjar í
Glasgow, sem fyrir verkfalli stóðu,
hafa verið gerðir útlagir þaðan.
Þeim var gefinn farseðill og 10
shiilings, og skipað svo fyrir að
þeir mættu ekki stiga fæti sínum í
Glasgow aftur.
Afarstór bænarskrá var borin
upp fyrir stjórnina i Columbia á
laugardaginn, þar sem þess var
krafist, að breytt væri lögum þann-
ig, að eki sé hægt að ganga eftir
skuldum fnema með vissum skil-
yrðumj á meðan stríðið stendur
yfir.
Menn voru látnir reyna sig á því
að stinga upp á nýju nafni á bæn-
um Berlin í Ontario. 40,000 nöfn-
um var stungið upp á alls.
Ottawa stjómin nefndi tvo
dómara á laugardaginn til þess að
rannsaka nokkuð af þe'm kærum,
sem fram hafa komið viðvíkjandi
hergagnakaupum. Þeir heita Wm.
Meredith háyfirdómari í Ontario
og Duff dómari í yfirréttinum.
Yfirheyrsla byrjar ekki fyrir al-
vöru fyr en Sam Hughes hermála-
ráðherra kemur heim.
Afarmikið verkfall hefir staðið
yf'.r í Clyde á Englandi. Heimta
verkfallsmenn hærra kaup. Segja
þeir að kaup hafi hækkað einungis
um 1 ö% síðan stríðið byrjaði, en
lífsnauðsynjar hafi hækkað um
48%. Svo mikil brögð hafa verið
•að óróa í sambandi við verkfallið
að nokkrir verkamannaforingjar
hafa verið teknir fastir.
Fjöldi manna liefir tekið heimil-
isréttar land, áður en þeir fara í
striðið og verður sá tími sem þeir
verða í burtu í sambandi við það
talinn sem ábúðartimi á löndunum.
Frézt hefir að rí]<isstjórinn í
ríkinu Canton i Kína hafi verið
myrtur; þjóðstjórn sett á í þvi ríki
og að Youan Shai Kai kelsari liafi
sent þá yfirlýsingu til allra rikj-
anna að hann ætli sér að leggja nið-
ur völd 10. apríl. Þykja þetta
miklar fréttir og góðar og er búist
við að Kina verði þjóðstjómarríki.
Var gefið út aukablað á laugardag-
inn af blaði Kínverja hér i bæ með
þessum fréttum.
Sambandsstjómin samþykti fyrra
þriðjudag tillögu frá Bennett
þingmanni frá Alberta, þar sem
hverju fylki er hefir vínsölubann
er veitt vald til að banna líka inn-
fh’Cninor. ef það komi í bága við
fylkislögin.
Dr. J. S. Woodworth hefir farið
fram á það að hindraðar verði g ft-
ingar og fjölgun þess fólks, sem
ekki sé andlega heiibrigt. Átti hann
tal um það nýlega við Thos. H.
Johnson og vonast þeir til að geta
komið með ráð er fylgja megi þeg-
ar um þess konar fólk er að ræða,
þar sem það liggur í augum uppi að
afkomendur þess hljóta að verða
líkir foreldrunum í f'.estum tilfell-
um samkvæmt eðlilegu erfðalög-
máli.
J. B. McLaren, nafnkunnur lög-
maður frá Winn'peg lézt nýlega
vestur við Kyrrahafsströnd.
Svo miki'.l slyddubylur var í
Austurfylkjunum fyrra mánud. að
fjöldi talþráða slitnaði.
Verkamenn í W'nnipeg ætla að
mótmæla því við bæjarstjórnina að
klukkan sé færð, eins og talað var
um. Kveða þeir það enga þýðingu
hafa.
Yfir 700 börn hafa fæðst í
Winnipeg í marz mánuði; er það
langtum fle'ra en dæmi séu til fyr.
Rikisstjórinn í Canada kallaði Sir
Wilfrid Laurier á fund sinn i
Ottawa á laugardaginn. Er álitið
að það sé eitthvað í sambandi við
rannsóknir þær sem vfir standa og
pólitiska ásigkomulagið yfir höfuð.
Þ’ngmennirnir frá Macedoniu í
þinginu á Grikklandi lögðu fram
skriflega áskorun um það á laugar-
daginn að hætt væri. loftskipaárás-
um á Saloniki. Skoulundis for-
sætisráðherra tók við skjalinu, og
sagðist skyldi gera alt sem í sinu
valdi stæði til þess að koma kröf-
unni fram.
Asqu'th forsætis ráðherra Breta
var á ítalíu á laugardaginn. Hafðt
hann fund með konungi og stjóm-
endum og fullvissaði þá um ljúfa
og einlæga samvinnu, og lýsti því
yfir að al Irei yrði hætt fyr en al-
gerður sigur hlytist. Honum voru
haldnar veizlur miklar á ítalíu.
Stjórnin i British Columbia hef-
ir ákveðið að l’.ta greiða atkvæði
um jafnrétti kvenna við kosning-
arnar í sumar.
Vllla, Mexico uppreistarforing-
inn, sem Bandarikjaherinn hefir
verið að elta að undanfömu, er
særður; hefir hann nú mist annan
fótinn. Særðist hann í óhlaupi sem
gert var á hann af Mexicomönnum
að óvörum. 6o manns .er sagt að
hafi þegar fallið af Mexicomönn-
um, en Villa hafi enn ekki náðst.
Union bankinn í bænum Russell
í Manitobá brann t l kaldra kola á
laugardaginn. Skaðinn er metinn
á $15,000.
Bœjarfréttir.
Únítarasöfnuðurinn heldur 25
ára afmæli á sumardaginn fyrsta,
20. þ.m., kl. 2 e.h. Fyrirlestrar og
ræður og veizla i fundarsalnum kl.
6. Nánar síðar.
Helgi Pálsson, sem getið var um
i síðasta blaði að farið hefði frá
Brown vestur til Vatnabygða, kom
þaðan aftur á miðvikuclaginn.
Honum leizt einkar vel á bygð na
og kvað liðan fólks þar ágæta.
Hann keypti sér land skamt frá
Elfros og flytur þangað alfarinn í
vor.
Gustaf Adolph Rosencranz og
Guðrún Thorsteinsdóttir Stonson
voru gef n saman í hjónaban l 3.
þ.m. af séra B. B. Jónssyni að heim-
ili hans.
Valdimar Jóhannesson og Gisli
M. Jónsson frá Árborg og Guð-
mundur Oliver frá Framnesi kornu
til bæjarins á mánudaginn; hafa
þeir ailir gengið í 223 herdeildina.
Séra Björn B. Jónsson prédikar
í Skjaldborg á sunnudagskveldið
klukkan 7.
Paul Bjarnason frá Wynyard
kom til bæjarins' á laugardaginn
með konu sina og börn. Sjálfur
brá hann sér suður til Dakota og
verður þar i nokkra daga, en fjöl-
skylda hans bíður eftir honum hér.
Helga Arnason, kennari frá
Brandon dvaldi hér í bænum um
síðastliðna helgi. Hún var á ferð
út t.l Mary Hill, þar sem hún kenn-
ir í sumar.
BITAR
B. M. Long er hvað eftir annað
að hamra á Sig. Júl. Jóhannessyni
fyrir áfengisauglýsingar i Lögbergi
og það sem prentað er af því tagi
hjá Columbia Press félaginu, vit-
andi þó að Sig. Júl. hefir ekkert
yfir því að segja. En B. M. Long
þagði þegar Balvin skrifaði á “síð-
ustu stundu” móti hinni fyrri til-
raun Gimli búa að afnema vínsölu,
og einnig þegar þáverandi meðlim-
ur St. Heklu, P. S. Pálson fékk
auglýsingaplássið í Heimskringlu
leigt til að birta þar áfengisauglýs-
Ingar. Og ekki hefir borið á að
Long hafi þótt neitt að samslags
auglýsingum í því blaöi, eftir að
stjórnarnefnd Heimskringlu var
skipuð þremurf?) Goodtemp’.urum
þaraf einum stúkubróður okkar úr
St. Heklu. Auðvelt er að sjá sam-
kvæmnina í þessu, ásamt hrukkun-
um á flokkskápunni.
Bjarni Magnússon.
Stundum hamast Heimskringla
með vínbanninu en stundum á móti
því og segir þá að fólkið sé því ekki
vaxið að lifa undir siíkum lögum.
Hvoru megin er blaðið ? — | þessu I
sambandi dettur oss í hug saga sem
W. H. Paulson sagði nýlega. Kona
átti dreng sem henni þótti slíta of
mikið buxunum sínum. Hún tók
því upp á að sníða þær eins að aft-
an og framan og sagði hún að það
væri ágætt að öllu nema því að hún
sæi ekki greinilega stundum hvort
hann Mangi litli væri að koma eða
fara.
í Wynyard í Saskatchewan, sem
öfn 011 par vestra í sióðinn nær
$70.00. Þau hjón telja það áreið-
anlcgt aö gefendum þar í bvgð
mundi kært að Gamalmenna heim-
ilið fengi að njóta sjóðsins.
Nákvæmlega sama skoðun kom
frant í bréfi frá konu i Norður
Dakota, sem þar gekst fyrir sam-
skotum i þennan sjóð, hún ritar
dags. 22. febr. s. 1. meðal annars
þeíta: “Eg hefi því miður ekki
getað fundið nema nokkra þeirra,
er gáfu i nefndan sjóð, en það er
útsagt að enginn þeirra sem eg hefi
fun ið vill afturkalla gjöf sina.
Þeim finst það vel til fallið að láta
Gaimlmenna he'milið njóta þess.”
Mér þætti vel við elga að gefa
Gamalntenna heimilinu sjóð þenna
í sumargjöf á þessu vori, og þess
vegna bið eg hér með alla þá er upp-
' haflega g’.fu i Ekkjusjóðinn og
ekki vi’ja láta þá gjöf ganga til
Gama’menna heimilisins, að gcra
svo vel og láta mig vita það fyrir
lok þcssa mánaðar, svo eg geíi end-
urgoldið þe'm gjafir þeirra.
Fái eg engar tiikynningar i þessa
átt, ])á lít eg svo á sem gefendum-
ir séu samþykkir þessari ráðstöfun
sjóðsins.
Winnipeg 3. april 1916.
B. L. Baldwinsson,
727 Sherbrooke St.
Skýríng um tilgang “Jcns Sigurðs-
scnar” deildarinnar I.O.D.E.
Fyrst og fremst var þessi dei’.d
stofnuð til þess að vinna að vel-
ferð allra íslenzkra hermanna, án
tillits til hvaða deild þeir heyri til,
þar sem það er vitanlegt að íslend-
ingar eru svo að segja í hverri
deild sem stofnuð hefir verið í
Canada.
í öðru lagi var deild'n ekki
stofnuð einungis til þess aö annast
heimkomna hermenn, heldur verð-
ur öllum íslenzkum hermönnum
hjálpað, sem þess þurfa, hvort sem
þeir eru við heræfingar, á vígvell-
inum eða herfangar.
I þriðja lagi er skylda undir-
deildar við héraðsdeild og í gegn
um hana við hádeild að gefa árleg-
ar skýrslur um starf og fjárhag
sinn og að borga $7.00 þegar deildin
er stofnuð. Samt má komast hjá
að borga það samkvæmt nýju lög-
unum.
Enn fremur er það skylda að láta
í ljósi ættjarðarást, sem tengir kon-
ur og böm rikisins við stjórnina og
konung vom. Að lifga og auka
sameiningu nteðal kvenna og barna
ríkisins' sem hjálpi þeim til s’.íkra
framkvæmda ])egar þess gerist
þörf; að annast ekkjur og munað-
arlaus böm brezkra hermanna og
sjómanna (allra þeirra sem undir
brezkri stjórn búaj meðan striðlð
stendur yfir, á friðartímum og í
veikindum, slysum og erfiöleikum.
Hér með er öllum þe:'m íslenzkum
konum hjartanlega boðið að verða
félagar deildarinnar, sem finna þrá
til að starfa og þörf á sameiningu.
“United 10e stand’’.
Uppástunga B. L. Baldwinsonar
um sumárgjöfina til “Betel” er
mjög vel við e’gandi og vonandi að
allir fallist á hana.
Kvenfélagsmyndun er í undir-
búningi til hjálpar 223. herdeildinni
skandinavisku. Er t lgangurinn sá
að vinna að vellíðan piltanna í
þeirri deild á allan þann hátt er
konurnar geta. Nánar auglýst síð-
ar.
Svar við hinni vélrituðu grein
Árna Sveinssonar i Heimskringlu
siðast varð að MSa vegna rúmleys-
is. Sömuleiðis “vísubotnar”.
Sagt er að séra Hjörtur Leó muni
verða herprestur >23. deildarinnar
og Dr. Baldur Olson herlæknir
hennar.
B. B. Olson frá Gmdi kom til
bæjarins á mánudaginn og fór
heim aftur í gær.
Helga Erlendson og Mrs. Kjart-
anson frá Reykjavíkur bygð voru á
ferð i bænum á föstudaginn. Hin
síðamefnda að leita sér lækninga
hjá Dr. B. J. Brandson.
Dr. A. J. Douglas lieilbrigðis-
stjcóri í Winnipeg hefir nýlega gef-
ið út skýrslur sínar og bera þær það
með sér að í febrúarmán. hafa 307
veikst af mislingum, 447 í sama
mánuði i fyrra vetur. Þrír dóu af
mislingum. 101 hafa fengið barna-
veiki og tveir þeirra dáið, um 29
fengu þá veiki og þrír dóu í sama
mánuði í fyrra. — Alls veiktust 550
af næmum sjúkdómum í febrúar
og 25 dóu, en i sama mánuði í fyrra
veiktust 606 og 31 dó.
Ekkjusjóðurinn óþegni
Hann œtti að gefast Gamalmenna-
heimilinu íslenzka í sumargjöf.
Full sex ár eru nú llðin síðan
Heimskringla safnaði sjóði nokkr-
um til þess að styrkja ekkju eina á
Islandi og börn hennar til þess að
komast til Manitoba og setja sig
hér niður. Þetta var gert sam-
kvæmt beiðni sjálfrar konunnar.
En þegar 800 krónur af sjóðnum
voru sendar henni til vesturfarar,
neitaði hún að þiggja gjöfina. Var
þá horf’n frá þeirri hugsun að
flytja vestur. Siðan hefir sjóður-
inn legið hér á banka á vöxtum og
muti nú vera um $650.00.
Eg vil nú losna við umsjón þessa
fjár, en óska jafnframt að það
verði notað í þarfir sannrar mann-
úðar, þar sem þess er full þörf og
eg veit það verður þegið með þökk-
um.
Þess vegna geri eg það að tillögu
minni að sjóður þessi sé afhentur
til styrktar Gamalmennaheimilinu
“Betel” á G.mli, sem stofnsett heJ-
ir verið eingöngu til þess að ala
önn fyrir og annast um íslenzk
gamalmenni, sem fyrir elli sakir og
fátæktar ekki fá sér björg veitta
með öðru móti en því að þ’ggja
náðargjafir veglyndra íslendinga.
Óskir í þessa átt hafa mér borist
frá nokkrum gefendum i ekkju-
sjóðinn, bæði hér í Canada og
Bandaríkjunum. Vil eg þar til
nefna meðal annars herra Þorlák
Jónasson og Svanborgu konu hans
Síðan siöasta skýrsla var gefin,
hafa þær konur sem hér segir
bæzt við: Miss Guðný Johnson,
Miss Thorey Olafson, Miss Guð-
rún Halldórson. Mrs- H. S. John-
ston, Mrs. J. K. Johnson, Mrs.
G. A. Axford. Miss Ninna
Snjdal, Mrs. J. G. Snidal
Miss Emily Melsted, Mrs. S.
Swainson, Mrs. Fridrik Swanson,
Mrs. Guðrún Búason, Mrs. Ander-
son, Mrs. O. Peterson, Mrs. Kr.
Ingjaldson, Miss K. Sigurgeirson,
Miss Olavia Thorgeirson, Miss S.
Axford, Mrs. Alex Johnson, Mrs.
G. J. Goodmundson. Félagskonur
eru nú 45.
Til þæginda fyrir sumar félags-
konur var það ákveðið að halda
reglulega félagsfundi fyrsta þriðju-
dag i hverjum mánuði og aðra
fundi eftir þvi sem saman kemur
um og þörf gerist.
Verið er að undirbúa sölu heima-
tilbúins matar og máltíða næsta
laugardag 8. apríl í Kenstington
byggingunni á hominu á Smith St.
pg Gortage Ave.
Allar fé'Iagskonur sem ekki voru
á siðasta ftindi eru beðnar að finna
Mrs. A. C. Johnson að 414 Mary-
land St., sem er oddakona starfs-
nefndarinnar. Konurnar vænta
þess að fjöldi íslend'nga komi og
lieimsæki þær á laugardaginn.
Sérstakur fundur verður haldinn
i deildinn ‘Jón Sigurdson' 1.0.D.E.
í kjallara Tjaldbúðar kirkjunnar á
Victor St. 11. apríl næstkomandi
kl. 8 e.h., til þess að taka á móti
skýrslu matsölunefndarinnar og
ákveða hyernig verja skuli fénu.
Allar félagskonur eru ámintar um
að koma.