Lögberg - 10.08.1916, Blaðsíða 1
Peerless Bakeries I
Heildsöluverzlun
Búa til beztu tegundir af sœtabrauði. Ekkert sparað
til að hafa það sem ljúffengast. Giftingar kökur búnar
og prýddar sérstaklega vel af manni sem er meistari íþeirri
ðn. Kringlur og tvíbökur einnig til sölu. Pantanir frá
verzlunarmönnum út um landið fljótt afgreiddar.
C. HJALMARSON, Eigandi,
1156-8 Ingersoll 8t. - Tals. G. 4140
ÞETTA PLÁSS ER
TIL SÖLU
29. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FfMTUDAGINN 10. AGÚST 1916
NÚMER 3
FRAMHALD AF SIGRUM BANDA-
MANNA Á ÖLLUM VÍGSTÖÐVUM
Búlgarar sagðir í þann veginn að snúast á móti sínum
Bandamönnum. Tyrkinn á fallandi fæti. Rúss-
ar taka 9 þúsund Austurríkismenn til fanga. Italir
vinna og stórsigur á Austurríkismönnum.
Á því viröist ekki leika neinn efi,
að nú sé aldan snúin í stríðinu.
Hversu harSsnúnar tilraunir sem
ÞjóSverjar gera til þess að stöðva
bandamenn kemur það fyrir ekki
neitt.
Lemburg, sem er stórbær, er þeg-
ar í stórhættu fyrir Rússum og tal-
ið sjálfsagt að hann verði tekinn
innan skamms. Austurrikismenn
virðast vera að þrotum komnir og
kjarklausir eftir síðustu fréttum
og er talið víst aö Rússar muni vaða
inn í landið þegar minst vari, og
segja síðustu fréttir að þeir hafi
hertekið 8,500 af þeirra liði og yfir
100 yfirforingja.
Auðvitað lýsa Þjóðverjar því
yfir að þeir hafi nóg lið og geti
komið Austurrikismönnum til að-
stoðar ef á þurfi að halda, en aftur
á móti virðist sem þeir hafi fult i
fangi að vestan. Þeir hafa gert
Hindenburg 'að aðalhershöfðingja
að norðan, en samráða við Austur-
ríkismenn og eru þeir óánægðir yf-
ir. Á Hindenburg að ráðast á Pét-
ursborg, en Rússar kveða þar enga
hættu á ferðum.
Italir virðast einnig vera að sækja
sig upp á síðkastið; þeir hafa þeg-
ar tekið brúna við Goriza og gefur
það þeim svo að segja óhindraðan
veg inn i Austurriki nema því meira
ofurefli liðs sé að mæta, sem ekki
þykir líklegt.
Búlgariumenn virðast vera farn-
ir að iðrast fyrri gerða sinna, þvi
sú frétt barst í gær að þeir hefðu
boðist til að segja skilið við fyrri
bandamenn sina og ganga í lið með
hinum; reikna þeir að líkindum
þannig að sigurinn sé vís banda-
mönnum og hætta því á að þeir
verði hart leiknir þegar til samninga
kemur, en ætla að bjarga sér með
þessu móti.
■Tyrkir virtust taka fjörsprett um
það leyti sem siðasta blað kom út
af Lögbérgi, en siðan hafa þeir
farið halloka. Á sunnudaginn var
réðust Englendingar á þá og her-
tóku 3000, en ráku hina á flótta út
á eyðimörk Egyptalands. Er svo
frá sagt í síðustu fréttum að stjórn-
arskifti séu að verða þar i landi,
ungu Tyrkir að tapa en hinir gömlu
að verða ofan
þýðir það ekkert annað en sérstak-
an frið, því það hefir verið stefna
gömlu Tyrkjanna.
Frakkar og Englendingar feta
sig altaf áfram á vesturhliðinni.
Þar er nú bardaginn hvað harðast-
ur og ekkert útlit að þeir láti und-
an siga. Stórkostlegur loftfara
bardagi átti sér stað á vesturhlið
orustuvallarins, og sprengdu banda-
menn margar herstöðvar og járn-
brautarlestir óvinanna.
Yfir höfuð virðist betur ganga nú
.en nokkru sinni fyr.
Þjóðeign járnbrauta.
Norris, öldungaráðsmaður frá
Nebraska hefir komið fram með
frumvarp um það að þjóðin slái
eign sinni á fkaupi með virðingar-
verðiý allar járnbrautir.
Kveður hann það vera hina einu
lausn á þeim vandræðum, er stafi
og ósættum milli verk-
verkveitenda á jám-
verið frest-
Siðgœzlustjórinn.
Þess var áður minst að mál stæði
yfir útaf kærum er siðgæzlustjóri
fylkisins, sem Battley heitir höfðaði
gegn konu er forstöðu veitti siðleys-
ishúsi og Sis Fraser nefnist. Ber
Battley henni á brýn meinsæri, en
hún heldur því fram að Battley hafi
verið í ráðtun með sér og öðrum
vændiskonum og þegið mútur fyrir.
Hvernig málinu kann að lykta
vita menn ekki, en margra grunur
er það að einhver fótur muni vera
fyrir kærum konunnar, þótt það sé
engan veginn sannað. En það er
sjálfsögð skylda siðgæzlufélagsins
og stjómarinnar að láta rannsaka
málið til fullnustu og hrinda ámæl-
unum af Battley sé hann sýkn, en
hegna honum sé hann sekur, því
ekkert er meira siðspillandi en það,
ef • svokallaðir siðgæzlumenn eru ó-
trúir.
Frjál* verzlun.
Frjáls verzlun! Hvað þýðir það ?
Það þýðir það að rifa niður múr-
veggi sem aðskilja þjóðir; múrveggi
sem eru þess eðlis að í skjóli þeirra
fæðist og þroskast dramb, hefni-
girni, hatur og afbrýðissemi, sem
öðru hvoru brýst út, til þess að veita
blóðöldum yfir heil lönd; í skjóli
þessara múrveggja þróast þær til-
finningár sem leiða af sér djöful-
æði stríðs og styrjalda og landrána;
þær tilfinningar, • sem telja trú um
að 'ekki sé hægt að reka verzlun án
landrána; þær tilfinningar sem ala
landránsfýsnina og drotnunargirn-
ina; þær tilfinningar sem senda
hersveitir til þess að strá eyðilegg-
ingu og dauða um önnur lönd.
Þýtt úr “The Voice” 4. ágúst.
a; sé það satt
af deilum
gefenda ©g
brautum. Málinu hefir
þá að um stund.
Vel gert.
Tveir læknar hér i bænum, Dr.
Robert E. Porke og Dr. E. Rich-
ardson fóru nýlega til Boston og
dvöldu þar í mánuð til þess að
kynna séá barnasjúkdóma og beztu
ráð gegn þeim. Eftir það hafa
þessir læknar unnið að því fyrir
ekki neitt nokkurn tima á hverjum
degi að leiðbeina fólki um meðferð
á börnum. Heilbrigðisráðið i
Winnipeg samþykti þakklæti til
þessara lækna i vikunni sem leið og
veitti hvorum þeirra $100 í viður-
kenningarskyni.
Slys.
10 mán. gamalt barn sem Billy hét
sonur hjóna er T. Howes heita í
Springstein i Manitoba lézt fyrsta
ágúst á þann hátt að hann sat i stól
fyrir framan borð, en panna með
sjóðandí sósu var látin á borðið,
sem hann náði i og hvolfdi yfir sig.
Hann brann svo mjög á andliti og
brjósti og holi að engin læknishjálp
gat bjargað.
Barn skilið eftir.
Tveggja vikna gamalt barn fanst
við dyrnar á “no Wilmot Place” í
Fort Rouge á fimtudaginn og var
nælt á það pappírsblað þar sem sá
er fyndi var beðinn að sjá vel um
barnið sökum þess a”ð móðirin gæti
það ekki. G. M. Christie hét konan
sem fann það og var farið með
það á bama heimili.
Skemdir á uppskeru.
iTil skamms tíma leit vel út með
uppskeru, en fyrir skömmu fór að
bera svo mikið á ryði að á stórum
svæðum er uppskeran eyðilögð svo
að 30% til 40% nemur.
Auk þess hefir kveðið svo mikið
að hagli upp á síðkastið bæði í
Canada og norðurhluta Bandaríkj-
anna að um $10,000,000 skaði er
talinn að minsta kosti. Hafa heil
héruð eyðilagst svo að nú er svart
flag á mílna svæði þar sem blómleg-
ir akrar voru fyrir nokkrum dög-
um.
Samkoma Kambans.
Eins og auglýst er annarsstaðar
heldur Goðmundur Kamban “fram-
sögn” i Skjaldborg á mánudaginn.
Oþarft er að mæla með því að sam-
koman verði sótt, mönnum gazt
svo vel að framsögn hans síðast að
líklegt er að húsið verði fult. Það
er óvist að tækifæri verði að hlusta
á Kamban aftur í bráðina og ættu
menn því ekki að láta hjá líða að
koma í þetta skifti. Það eina sem
þótti að hinni samkomunni var há-
vaðinn af strætisvögnum; nú verð-
ur það ekki því Skjaldborg er langt
frá vagnalínu.
Mannfall 8,500,000.
Svo segja síðustu fréttir að þjóð-
verjar og bandamenn þeirra hafi
þegar mist hálfa niundu miljón
matina síðan stríðið byrjaði, og þó
hafa Þjóðverjar um 2,000,000 á
vesturhliðinni, auk allra sem ann-
arsstaðar eru.
Skáldkona látin.
Kate Seymour Maclean skáld-
kona í Toronto andaðist 2. ágúst
87 ára gömul. Hún hafði gefið út
nokkrar bækur af ljóðum; var sú
seinasta þeirra prentuð árið 1904 og
kallaði hún hana “Frá svölunum”
fFrom tíhe Balcony).
ÓVIÐEIGANDI.
Gullsóttin er að aukast. Svo
segja þeir sem verið hafa í Rice
Lake héraðinu að þar séu ágætar
námur.
Var haldinn fundur ýmsra auð-
pianna og verzlunarmanna hér í
Winnipeg nýlega og þar samþykt
að biðja fylkisstjórnina að leggja
fram fé til vegagerðar út í gullhér-
aðið. Sagðist mönnum svo frá að
um $100,000 hefði þegar verið eytt
í námumar. Það er með öllu óvið-
eigandi að fylkisstjórnin sinni því.
Námbur eru að öllu leyti undir um-
ráðum sambandsstjórnarinnar og
þær eru svo að segja reknar ein-
göngu til ágóða fyrir gróðafélög;
það er því rangt að verja fé fylkis-
ins þannig til ágóða fyrir einstaka
menn. Ef stjórnin gæti sjálf haft
yfirráð yfir námunum og látið
vinna þær, þá væri öðru máli að
gegna; þá væri sjálfsagt að hún
sendi fyrst málmfróða menn til
rannsókna og bygði síðan brautir
ef vel liti út.
Sanngirni.
A. C. Grey hershöfðingi hefir
gefið út reglur sem hersafnaðar-
menn verða að fylgja hér eftir.
Meðal þeirra er þetta:
Kallið engan daufingja, bleyðu,
letingja, né neitt annað niðrandi.
Biðjið ekki mann að ganga í
herinn þar sem hann er við vinnu
sína, hvort sem það er fyrir sjálfan
hann eða aðra.
Eigið ekki í neinu orðakasti við
menn eftir að þér sjáið að þeir vilja
komast hjá því að ganga i herinn.
Hreytið engum niðrunarorðum
að neinum sem sýnist vera á her-
bjónustu aldri þegar hann gengur
um götur eða annarsstaðar.
Biðjið engan mann að ganga i
herinn þó hann komi hingað ann-
arsstaðar frá til uppskeruvinnu.”
Enn fremur er sú skipun látin
fylgja að liðsafnaðarmenn verði að
yera kurteisir í öllu þegar þeir séu
að safna í herinn.
Plágan heldur áfram.
Ekki minkar ungbamasýkin 'í
New York; í gær höfðu 5,208 börn
sýkst alls og 1,183 dáið.
Sýkin hefir varað í sex vikur, og
er þetta afarmikið á svo stuttum
tíma, þó fólkið sé margt.
Tjón af eldi í Winnipeg
Hlutafél.-byggingarnar í “Winni-
peg “Paint and Glass Co.” hét í
bænum brunnu svo að segja til
kaldra kola fyrra miðvikudag. Eng-
inn veit um uppruna eldsins. Skað-
inn er metinn á $100,000 og voru
Lvggingarnar trygðar fyrir eins
miklu eða meiru. íslendingar áttu
hluti í þesu félagi; hversu margir
vitum vér ekki.
Deutschland slapp.
Mikill hiti og ákafi var i mönnum
,á báðar hliðar um það leyti sem
þýzka neðansjávarskipið Deutsch-
land ætlaði af stað heimleiðis frá
Ameriku. Mörg skip af enska
flotanum voru á verði til þess að
reyna að ná því eða skjóta á það
þegar það kæmi út fyrir landh^lgi.
Var stórfé veðjað á báðar hliðar
um það hvort skipið mundi komast
út i rúmsjó eða ekki.
Það lagði af stað frá Virginia
höfðanum kl. 8.30 e.h. fyrra mið-
vikydag. Margir telja þó lklegt að
það náist áður en það lendir í
Evrópu, en Paul König skipstjóri
var glaður i bragði og kvaðst vera
alls óhræddur. enda þótt hann væri
sér þess meðvitandi að ferðin væri
ekki hættulaust.
íslenzk kol.
I blaðinu “Norröna” 3. ágúst er
eftirfylgjandi grein:
“Kaupmannahöfn, 1. júlí 1916.
Fyrir nokkrum tíma var skipuð
nefnd i því skyni að rannsaka ýms
kolalög í vesturhéruðum Islands.
þíefndin hefir borið þann árangur
með þeitn rannsóknum sem hún
hefir þegar gert að mikil ástæða er
til þess að bíða með eftirvæntingu
frekari rannsókna. Það þykir nú
þklegt að ekki megi einungis vænta
(að brúnkol (surtarbrandur finnist,
eins og fommenjafræðingar höfðu
haldið, heldur einnig kol sem eru
miklu meira virði. Það sem fanst
i efstu lögunum var aðeins surtar-
brandur, en eftir því sem neðar kom
urðu kolin betri og nú hefir fundist
lag af svo góðum kolum sem frek-
ast má verða og eru mjög lík beztu
kolum hér (anthracite). Nú er
verið að rannsaka hvort ekki muni
borga sig að fara að vinna þessi
kol.”
Ráðherramálin.
Þar er fjörugt öðru hvoru.
Andrews aðallögmaður ráðherr-
anna og Bonnar lögmaður stjórn-
arinnar hafa leitt -;.man hesta sína
óspart og hlífðarlaust. Auk þess
hefir Horwood gert Andrews
gramt í geði og komið honum í
klípu. Hann lýsti því yfir fyrra
miðvikudag að Andrews hefði ver-
ið á samsærisfundum gömlu
stjórnarinnar þegar verið var að
finna ráð til þess að halda vitnum
frá reikningslaga nefndinni með
svikum. Sagði Horwood þar stað
og stund og varð Andrews hvumsa
við; þorði ekki að bera á móti þvi
að hann hefði verið á fundunum,
en vildi þó reyna að láta lita svo út
sem hann hefði ekki verið þar sem
þátttakandi í samsærinu.
Þétta þótti býsna merkilegt og
gerir það Andrews vörnina erfiöa,
ef það er komið í ljós að hann
er sjálfur beinlínis flæktur inn i
málið.
Horwood kvaðst hafa ætlað að
hlífa honum við þessu; en með því
að honum fanst hann beita meiri
ósanngirni en góðu hófi gegndi
taldi hann rétt að láta það koma
fram.
Atta tíma vinna.
I Mexico hafa verið samin lög,
sem ákveða aðeins átta stunda
vinnutima fyrir þá sem vinna á
járnbrautum. Þykja þetta miklar
framfarir og þeir þar syðra gera
oss skömm til hér norður frá.
Islending adagurinn.
Hann hefit aldrei verið eins fjöl-
sóttur og í ár; voru þar á þriðja
þúsund manns. Fólk kom að úr
öllum áttum og varð margt til þess.
Hermennirnir drógu að fjölda
fólks, Guðmundur Kamban er mað-
ur sem mörgum var forvitni á að
heyra; íslenzk kona kom þar fram
í fyrsta skifti, og fleira var þar ný-
stárlegt.
Þrjár ræðurnar birtast í blaðinu
nú, og þarf því ekkert um þær að
segja, þær lofa höfundana bezt
sjálfar. Sama er að segja með
kvæðin ; þau birtast öll í þessu blaði.
Ræða Steinu Stefánsson birtist
næst, og geta menn þá dæmt um
haná. Álit vort er að ræðurnar séu
hver annari betri, og þó eru þær all-
ar ólíkar hver annari, og er það
kostur.
Um íþróttir er skrifað af öðrurn,
og teljum vér það greiða, því vér
erurn sneiddir þeirri gáfu að geta
tekið þátt í iþróttum eða dæmt um
þær.
Þó má geta þess að Lund'arbúar
virðast vera mestu íþróttamenn
þessa fylkis meðal íslendáiga—
bæði karlar og konur—og mun það
öörum fremur vera þeim að þakka
Páli Reykdal og Dr. Blöndal.
Ritstjóri þessa blaðs var dómari
við barnasýninguna ásamt tveimur
enskum hjúkrunarkonum, og er það
bæði vandasamt verk og óvinsælt.
Eðlilega þykir hverjum sinn fugl
fagur og vænti’r verðlauna. Alls
voru sýnd 14 börn og hlutu þessi
verðlaun. Jónas Rafnkelsson frá
Lundar, Lister Saul og Francis
Alary Hatcher, bæði frá Winnipeg.
Eru mæður tveggja hinna síðar-
töldu íslenzkar en feður enskir.
Hvort sem foreldrar eru ánægðir
yfir dóminum eða ekki, þá er það
víst að engin vísvitandi hlutdrægni
komst að á neinn hátt, og dómararn-
ir voru allir sammála.
Nefndin hefir haft mikið fyrir
ivi í ár að reyna að láta hátíðina
hepnast. Hafði hún haldið milli 10
og 20 fundi, auk margra undir-
nefndarfunda og var mikill timi
lagður í sölumar af sumum nefnd-
armanna.
Það er vist að allir gerðu sér far
um að vinna samvizkusamlega og
vel eftir möguleikum. Og ef nefnd-
inni hefir að einhverju leyti mistek-
ist—sem tæpast er að efa—þá hefir
>að ekki verið af þvi að hún hafi
dregið sig i hlé eða sparað þá fyrir-
höfn er henni fanst til þess þurfa
að vel færi, heldur af því að henni
hefir sýnst á annan veg en sumum
öðrum kann að litast.
Þáð er rétt sem haldið er fram
í íþróttagrein þeirra Árna og Guðm.
að islenzka gliman á undir öllum
kringumstæðum að vera hæzt allra
iþrótta á hátiðinni og er líklegt að
þess verði gætt framvegis.
Öll kvæði sem ort eru fyrir minni
ættu að sjálfsögðu að vera sungin,
og skáldunum það gert að skilyröi
að þau yrki undir þægilegu lagi.
Bæjarfréttir.
Mjss Theodora Herman hjúkrun-
arkona hefir í sumarleyfinu verið
að ferðast' vestur á Strönd og kom
heim aftur fyrir helgina. Fór hún
alla leið norður til Skagway í Al-
aska og syðst til Seattle Wash., og
kom við í Prince Rupert og fleiri
bæjum. Mjög skemtilegt telur hún
að ferðast meðfram Kyrrahafs-
ströndinni á þessu svæði.
Agnes, Thorgeirsson og Guðrún
Johnson leggja af stað vestur á
Kjyrrahafsströnd í kveld.
Lögberg óskar séra Stefáni
Björnssyni, fyrverandi ritstjóra,
til hamingju með embœttið.
leifsdóttur Johnson að St. Adelard
P.O., hjá föður brúðarinnar. Fór
þar fram myndarlegt samsæti að
hjónavígslunni afstaðinni.
Séra H. Sigpnar prédikar í Leslie
kl. 12 á hádegi næsta sunnudag, að
Kristnesi kl. 3 e.h. og í Elfros kl. 7
að kveldinu (énsk messa).
BITAR
Nú þykir enginn frægur, sem ekki
er fær til víga, og þess vegna verða
glímur og aðrir leikir að sitja á
hakanum.
Þ. Þ. Þorsteinsson skáld og konaj Einn aðalkosturinn við baðstöðx-
hans fóru norður i Nýja Island á amar norður með vatninu, eftir því
sem “Tribune” segir, er það að þar
geta piltarnir séð hvemig stúlkum-
ar eru í vexti, alveg eins vel og
þeir sjá hvort þær eru andlitsfríðar.
fimtudaginn og dvelja þar um tíma;
ætlar Þorsteinn að mála þar ýmsar
myndir af “vestur-íslenzku” lands-
Iagi.
Sigurður Gíslason frá Gimli var á
ferð í bænum á þriðjudaginn.
Frá Islandi.
Séra Stefán Bjömsson fyrver-
andi ritstjóri Lögbergs var kosinn
prestur að Hólmum í Reiðarfirði
nýlega. Hlaut hann 128 atkvæði,
en séra Ólafur Stephens'en, sá er
flest atkvæði fékk næst honum,
hlaut aðeins 68.
Lögrétta frá 12. júlí segir að Jón
Ólafsson hafi fengið slag kl. 5 að
morgni þess 11. og dáið kl. 11 um
kveldið.
Mrs. Sigriður Haagen og Mrs. H.
Sigurðsson frá Leslie komu til bæj-
arins frá Vestfold um helgina semj
leið.
Maður á Gimli spurði kunningja
sinn frá Selkirk hvort þeir Selkirk-
búar hefðu Winnipegtima—þennan
fljóta tíma. “Nei”, svaraði maður-
inn, “við höfum vitlausra spitala,
og það nægir okkur.”
Ákærur þær sem Kýte og Carvel
báru á sambandsstjórnina segir
Heimsk að allar hafi verið tilbún-
ingur og vitnar í “Telegram” því til
sönnunar. Sama sönnunin sem
sama blað visaði til með það að
kærur Tofinsons og Norris á Roblin-
stjórnina væru lognar.
Guðmundur bóndi Jónsson frá
Dog Creek var á ferð í bænum i gær
og fór heimleiðis samdægurs.
Halldór Jóhannesson trésmiður og
fjölskylda hans komu norðan frá
Mikley á föstudaginn, þar sem hann
hefir verið í þrjá mánuði að undan-
förnu við húsasmíðar.
Þórarinn Þorvarðsson kom til
borgarinnar á mánulaginn; hefir
verið við fiskiveiðar norður á vatni
i tvo mánuði hjá Sigtryggi Jónassvn
á Gimli. Hann lét vel yfir afla.
Svohljóðandi tillaga var sam-
þykt í einu hljóði á allsberjarþingi
ungmennafdlaganna á Islandi ný-
lega:
“Þingið telur islenzkunni
mjög misþyrmt með hinni nýju
ættarnafna breytingu að óþolandi
sé og skorar á ungmennafélögin að
vinna af alefli gegn henni. Einnig
telur þingið það nauðsynlegt að
vanda eiginheiti og útrýma úr mál-
jnu óþjóðlegum nöfnum.”
Ólafur læknir Þorsteinsson i
Revkjavík og ungfrú Kristin Guð-
mundsdóttir ("Einarssonar frá
Hraunum) eru nýgift og fóru brúð-
kaupsferð til Norðurlanda.
Sigfús Einarsson tónskáld dvelur
erlendis í sumar; ferðast hann víða
um Norðurlönd að kynna sér nýj-
ustu framfarir í sönglist og söng-
stjórn. Pétur Lárusson gegnir
organleikarastöðu hans á meðan.
Islendingar hafa gert sérstaka
verzlunarsamninga við Englend-
inga á meðan stríðið stendur yfir.
Er stofnuð kaupmannaskrifstofa i
Reykjavik í sambandi við það og er
forstöðumaður hennar Carl Proppé.
Látilin er að Skeljabrekku í
Borgarfirði bændaöldungurinn Jó-
hann Bergþórsson 84 ára gamall,
sonur Bergþórs bónda í Ardal og
Staðarhóli, Gunnlaugssonar bónda
í Vogatungu í Leirárhreppi.
Látin
Nú er enginn sýslumaður á ís-
landi sem heitir Ari Jónsson. Nei
•—heldur Ari Amalds. — Nú er
ekkert skáld lengur til sem heitir
Einar Hjörleifsson—heldur Einar
Kvaran. — Nú er enginn kennari
sem heitir Helgi Salomonsson, held-
ur Helgfi Hjarvar, og enginn íþrótta-
maður sem heitir Magnús Tómas-
son, heldur Magnús Kjaran.
A því herrans ári 1916 urðu
mislingar og ættarnafnapest land-
læg á Islanui! (IsafoJd).
Svo er tízkan hörð húsmóðir að
barnungar stúlkur þora ekki annað
en hlýða henni jafnvel þegar hún
skipar þe:m að klæðast eins og van-
færar konur.
Pétur kaupmaður Johnson frá
Mozart var á ferð í bænum í vik-
unni sem leið í verzlunarerindum.
er
Kristján Pálsson andaðist á heim-
ili séra Sigurðar Ólafssona í Blaine,
Wash., að kfv'eld.1 föstudagsins 28.
J/úlí. Banamein hans var krabba-
mein. Hann var fæddur 6. Febr.
1876 á Rafnkelsstöðum í Hraun-
hreppi í Mýrasýslu. Nánara næst.
Mrs. H. F. Johnson héðan úr bæn-
um fór vestur til Bredenbury nýlega
í kynnisför til Christians Thorvalds-
sonar kaupmanns og konu hans.
Með henni fóru þrjú börn hennar;
hún bjóst við að dvelja þar um
þriggja vikna tíma.
Séra 'Friðrik Hallgrímssoni fór
heim á mánudaginn; hafði dvalið
hér nokkra daga og prédikaði á
sunnudagsmorguninnj í Fyrstu lút.
kirkju en að kvöldinu í Skjaldborg.
Thos. ’H. Jahnson ráðherra og
kona hans eru nýlega komin heim
sunnan frá Bandaríkjum, þar sem
þau hafa dvalið rúman mánaðar-
tíma.
“Svo er sagt að prestur í Chicago
hafi látið sér þau orð um munn fara
að dauði í orustu afplánaði allar
syndir og sálir hermanna færu
beina leið til himnarikis; en hvert
ætli sálir kriátinna presta fari sem
prédika slíka kenningu?” — W. J.
Bryan.
Þegar Jón sál. Ólafsson var hér
„vestra stakk hann upp á þvi að
undimefnd væri skipuð af íslend-
ingadagsnefndinni til þess að
tryggja hagstætt veður. Síðan hef-
ir altaf verið talað um veðurnefnd.
Einhver gat þess til aö sú nefnd
hefðí staðið sérstaklega vel í stöðu
sinni nú fyrir 'þá sök að Jón mundi
hafa lagt til gott orð hinumegin.
Skyldu brauðin lœkka eins fljótt
tvt-xum- ' 1 ver8i Þ€&ar kveitið fer niður eins
Sléttuhlíð ekkjan Anna BjÍmadótt- þaU hakkuSu flíótt >egar ÞaS
ir 80 ára að aldéi
fór upp. Við bíðum og sjáum hvað
setur.
Elías Stefánsson útgerðarmaður
i Reykjavík keypti nýlega gufu-
skipið “Varangur” fyrir 18 þúsund
krónur; voru honum skömmu síðar
boðnar i það 60,000 kr.; en hann
neitaði boðinu.
Svo segir “Isafold” frá 8. júlí að
þegar “Flóra” hafi verið á sigling-
um fyrir utan önundarfjörð nýlega
hafi brezkt, vopnað kaupfar stöðv-
að hana með þremur skotum, en
slept henni aftur þegar öll skjöl
hennar höfðu verið skoðuð.
Ráðherra hefir samið við
Marconi félagið að byggja bráð-
lega loftskeytastöð á Islandi.
Látinn er Þorsteinn bóndi Magn-
ússon i Höfn í Borgarfirði eystra,
86 ára að aldri.
Dáinn á Vífilstaðahælinu stúd-
art, Arinbjörn Hjálmarsson frá
Grenjaðarstað, fóstursonur séra P.
H. Hjálmarssonar.
Landslögin banna hinum fátæku
að ræna þá riku, en þau liða þeim
ríku að ræna þá fátæku. (“Voice”)
Annaðhvort hafa blöðin sem
.skömmuðu Sir James Aikins i fyrra
farið með ósannindi þá eða þau eru
að smjaðra fyrir honum núna.
“Hefndin gengur á ullarskóm’
-Hadda Padda.
“Sá sem einu sinni lifir ^æll, deyr
tvisvar”. — Hadda Padda.
“Eg sá myrkrið þéttast þangað til
það varð að blóðhnoðrum,
sveimuðu fyrir augum mér’
Hadda Padda.
sem
Séra Björn B. Jónsson fór vestur
til herbúða ('Camp HughesJ um
helgina og þótti mikið til koma að
sjá hversu þar var öllu vel hagað.
Er þar verið að grafa reglulegar
skotgrafir og fer alt fram nákvæm-
lega eins og á vígstöðvum eftir því
sem hægt er til þess að æfingar
verði sem beztar.
Séra Jón Jónsson á Mary Hill gaf
saman í hjónaband 26. Júlí þau
Steina Skagfeld og Rristrúnu ís-
“Vísir” getur þess að í vor hafi
tvær ær verið seldar fyrir 144 kr.,
eða hvor á 72 kr.; báðar tvílembdar.
Sigurður Lýðsson lögfræðingur
er orðinn starfsmaður í stjórnar-
ráðinu í stað Bjöms Pálssonar, som
tekinn er við póstmeistarastarfinu
á Seyðisfirði.
Lanclsímastöðvar nýopnaðar í
Bygðarholti í Lóni; en Borgarnes
og Sauðárkrókur gerð að fyrstu
deildar stöðvum.
“Eg dró allan minn vilja saman
í hönd mína og lagði hana í lófa
þinn”. — Hadda Padda.
“Mannshjörtun eru eins og f jöll-
in; þau bergmála ekki ef vér göng-
um of nálægt þeim". — Hadda
Padda.
Eftir að þú varst farinn fann
eg mínúturnar seytla niður á mig
eins og kalda vatnsdropa". —
Hadda Padda.
“Sumar konur ættu ekki að hafa
leyfi til að vera fríðar”. —Hadda
Padda.
“Þegar þú hlærð er eins og loftið
fyllist af smáum sálum”. — Hadda
Padda.