Lögberg - 10.08.1916, Síða 5

Lögberg - 10.08.1916, Síða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGIN'N 10. ÁGÚST 1916 5 Óskar við leiðið. Sbr. “Hinn glataöi sonur’’, eftir Hall Caine. Vökva þitt leiði vina tár mín heit, verma þig máske, nóttin er svo köld. Dauft finst mér vera og dapurt nú í sveit. dagurinn langur eins og þungbær öld. Gras er til höfða, lilju hvítt þitt lín, lífiö er hverfult, dauSastríðið nóg. Græt eg ei missi’, en vina, verkin mín, var eg iei skugginn sem þig hingað dró? Prýddu þig meira augu æsku hrein, austrið en prýSir sól aS morgni björt. Varstu sem stjama er skín og skartar ein, skýja á milli um rökkur kveldin svört. Gæti þín englar, blóm á beöi smá, bliöróma fuglar syngi legstaö lijá. J. G. Hjaltalín. Merkileg þing. Konur hafa haldiö tvö merkileg þing alveg nýlega. Annaö í Mel- bourne í Ástraliu og hitt í Berlin á •Þýzkalandi. Margar merkilegar tillögur komu fram og samþyktir voru geröar á báöum þessum þing- um. Á Ástralíu þinginu var þetta sam- þykt meöal annars: x. AÖ stjórnin annaöist um aö vemda stúlkur og pilta innan tvítugs frá þeirri hættu sem ó- siöferðis félagsskapur hefir í för meö sér. Er þetta afar þýðingarmikið at- riði og þyrfti sannarlega íhugunar með hér hjá oss ekki síður. 2. AÖ sama kaup sé goldiö fyrir sömu vinnu hvort sem hún sé unnin af karli eöa konu. 3- Aö stúlkur sem séu afvega leidd- ar og tældar til ásta innan 21 árs og veröi mæður sem afleið- ing af því, skuli hljóta sama rétt sem væru þær giftar konur, og ef faðirinn sé kvæntur annari konu skuli hann undir öllum kringumstæðum kærður fyrir fjölkvæni. 1 sumum löndum hefir það þegar veriö lögleitt að móðir skuli hafa sömu réttindi gagnvart fööur barns sins, hvort sem hún er gift honum éöa ekki og barnið sama rétt og það væri skyldgetið. Á Berlinarfundinum voru mættir kvenfulltrúar frá Þýzkalandi, Austurríki og Ungverjalandi. Var þar einnig rætt um margt merkilegt og fjöldi samþykta gerður. Þar á meðal þessar: i. Um fækkun fæöinga og þann þjóðfélagsglæp er margt heldra fólk fremdi meö því að koma í veg fvrir fólksfjölgun. Of mikiö munaðarlíf, of mikið gjálífi og skemtana þrá og of mikil leti voru taldar aðal or- sakir þess. g. Um nauösyn ]>ess að konur fengju fullkomna viðurkenn- ingu fyrir störfum sínum í öll- um efnum, bæöi í orðum og launum. 3- 1’m afnám þess akvæöis dö em- bættis eöa stjórnarstarfa konur ‘kuli vera ógiftar. 4. Að betra og meira eftirlit sé haft með verksmiðjum og vínnu- •stofum, sérstaklega að því er heilbrigði snertir. 5- Aö bannaö sé með lögum aö menn eða konur geti gert sér þaö aö atvinnu aö skapa tízku í klæðaburði og öðru sem fólkið hlýöi eins og blindir þrælar, sjálfu sér og þjóðinni í heild sinni til heilsutjóns og bölvunar. Þetta siðasta atriði er eftirtekta- vert og umhugsunar, því fáir harö- ^tjórar eru miskunnarlausari en tízkan. Tapaður vinnukraftur Þúsundir manna hafa verið sett- ar í gæzluvarðhald fyrir þaö að þeir hafa sagt eða gert eitthvað, sem ekki þótti holt eöa sanngjarnt í s'ambandi við stríðið. Þessir menn eru svo aö segja iðjulausir og tap- ast því frá arðsamri vinnu í landinu og eru ómagar. Má vel vera að allir þessir menn hafi verið teknir af góðum og gildum ástæðum; seinni timinn leiðir það í ljós, en hitt virðist sjálfsagt að nota vinnu- kraft þeirra eftir þvi sem mögulegt er. Nýlega kom það til orða að láta þessa menn vinna að vegabótum, og ætlaði þá sambandsstjórnin að borga þeim 25 cent — tuttugu og fimm cent — á dag fyrir fullkomna vinnu. En mennirnir afsögðu með öllu, og kváðu blöðin v’afasamt hvort það borgaði sig að þvinga þá til vinnu. Auðvitað sögðu blöðin að það væri hægt með herliði, en ])að mundi verða eins kostnaðar- samt að halda uppi sérstöku herliði til ]>ess eins og að borga mönnunum fult kaup. En hvers vegna er það stjórninni á móti skapi að láta þessa menn vinna fyrir sanngjarna borgun, t. d. 25 cent um klukkutímann ? Land- ið og þjóðin þarf á vinnu þeirra að halda og það er gróði að hafa þá við nauðsynlega atvinnu en stór- tjón allavega að halda þeim iðju- lausum. Fjöldi heimila er forstöðu- laus vegna þess að fyrirvinnan er í gæzluvarðhaldi; hví ekki að láta mennina hafa atvinnu til þess að þeir geti sj'álfir séð heimilum sín- um og fjölskyldum borgið, enda þótt þeir séu fangar, í stað þess að auka byrði þjóðarinnar með því að kasta öllu þessu fólki iðjulausu henni á herðar? Oss virðist þetta vera mesta óráð. Stórkostlegt verkfall. Þeir sem vinna á strætisvögnum í Nevv York hafa gert verkfall svo að segja allir og horfir þar til vand- ræða. Er það mesta verkfall sem komið hefir í borginni og líklegt að fleiri bœir verði fvrir því sama. í Philadelphia var því lýst yfir í gær að þar mundi verða gert verk- fall, ef ekki gengi saman í New York. Verkamenn krefjast hærri launa og styttri vinnutíma. Það var fyrsti Apríl. “Mamma, mamma! komdu fljótt! Það er ókunnugur maður í borð- stofunni að kyssa vinnukonuna.” Konan flýtti sér af stað. Þá hló litli sonur hennar og sagði: “Eg get látið þig hlaupa Apríl, mamma; það var bara hann pabbi.” Islenzka glíman. Islendingadagurinn annan ágúst síðastliðinn hefir sjaldan verið bet- ur sóttur en einmitt i ár. Þrátt fyrir það þótt fækkað hafi að mun íslendingum í bænum og einnig haldinn Islendingadagur í flestöll- um, eða í öllum aðalbygðum Islend- inga, svo fátt kemur því hingað. Um tvö þúsund manns munu hafa sótt hátíðahaldið, en önnur tvö þúsund setið heima. Margt mætti segja um þennan dag, þennan minningardag Vestur- Islendinga. Til hvers höldum vér þennan dag hátíðlegan? Vér ger- um það ekki í minningu um neina gamla stjórnarskrá, eða aukin stjórnarfars réttindi Islands. Nei, vér höldum þennan dag hátíðlegan til að minnast móður vorrar. Vér eigum að helga þennan dag íslenzk- um emhirminningum; vér eigum að opna hjarta vort fvrir íslenzkum áhrifum, sem ættu að streyma inn í sálu hvers einasta manns og konu og geymast þar, eins og hugljúfar endunninningar ungmeyjarinnar eftir fyrsta fund sinn við unnust- ann Eg ætla mér ekki að rekja við- burði dagsins, frá morgni til kvelds, heldur aðeins taka til íhugunar þrítugasta og annan lið skemtiskrár- innar, sem er íslenzka glíman. Flest allar þjóðir heimsins liafa átt og eiga séríþrótt, sem þeim hef- ir verið kær framar flestum öðrum og þær hafa varðveitt, jafn vel og móðurmál sitt. Eins og vér vitum, eða œttum að vita, er íslenzka gliman sú eina ]>jóðlega íþrótt, sem vér getum helg- að oss með réttu, og vér getum verið stoltir af, að þegar hefir unnið allmikið álit meðal þeirra þjóða sem þekkja hana. Og þeir eiga skilið þökk, sem unnið hafa öyggilega að því að útbreiða hana. Þvi halda margir fram, að íslenzka þjóðin leggi mikið á borð heims- menningarinnar í listum, bókment- um og íþróttum. Það má vel vera að það sd ekki mikið. í samanburði við stórmokstur annara þjóða—en það skín á gullkornið þó kastað sé í moðhauginn. Það litla sem hún leggur til er gott. En kunnum vér sjálfir að meta hvað gott það er ? Hvað gerum vér, Vestur-lslendingar, til að varðveita séreign móður vorrar, til dæmis íþróttina? ÞVí ætti nokkur önnur iþrótt að skipa æðsta sess á íþrótta- skrá þessa eina sameigjjilega hátiða- halds íslendinga en einmitt íslenzka glíman? Það kom mér því undar- lega fyrir er eg las það í skemtiskrá dagsins, að islenzku glimunni var gert lcerga undir höfði en öðrum íþróttum, auðsjáanlega ekki lögð nein áherzla á, að hún gæti farið sem bezt fram og notið þeirrar við- urkenningar er luin verðskuldar. Eg vil benda hór á nokkur atriði sem sýna þetta. 1. Iþróttaskránni var skift niður í fjórtán þætti, og voru veittir heiðurspeningar fyrir hvem ein- stakan þátt. í sjö af þessurn þátt- um voru keppendumir aðeins frá tveimur og upp í fjóra. 2. íslenzka glíman var tekin af þessari íþróttaskrá eftir að hafa verið þar að minsta kosti tvö sið- astþðin ár, og þá hlotiftsömu verð- laun og hinar iþróttirnar, heiðurs- peninga þrennskonar. 3. Nú voru veitt fyrir íslenzku glimuna aðeins tvenn verðlaun, tíu og átta dala virði í vöruúttckt úr einhverri búðinni hérna i bænum! Það minnir mig á “uppskipunar”- vinnulaun heima á Fróni fyrir mörgum árum. 4. Glímupallurinn mjög slæmur, alls ekki í því lagi, sem þurfti fyrir fáklædda menn að þreyta glímu á enda urðu glímumenn fyrir meiðsl- um af þeim ástæðum. 5. Nefnd sú sem skipuð var á síðustu stundu—eftir að glímu- mennimir voru tilbúnir uppi á glímupallinum—til að stjórna glím- unum, virtist ekki vera því starfi vaxin, sem varla var við að búast, þar sem hún var skipuð af handa hófi, af einhverjum sem þá voru við hendina. Fleira mætti benda á, sem sýnir hvað lítil fyrirhyggja, lítil rækt er lögð við þjóðar iþrótt vora, enda mun einnig þeim fimm mönnum, sem þátt tóku í glímunni, hafa fundist henni gerð litil virðing, því áður en glíman hófst, barst nefnd- inni bréf frá þátttakendum glím- unnar, undirritað af ]>eim öllum. þar sem þeir afþakka verðlaun ís- lendingadags nefndarinnar, og keppi því einungis um “beltið”, s'em gefið var af einstökum manni, M. Hannessyni, og er því íslendinga- dags nefndinni óviðkomandi, en sá fær að auk er vinnur fyrstu verð- laun 1 slendingadagsne f ndarinnar. Að lítil áherzla er lögð á þessa þjóðlegu íþrótt vora er þó langt frá því að vera einungis að kenna for- stöðunefnd, íslendingadagsins. Sök- in liggur einnig meðal hinna vngri uppvaxandi íþróttamanna, bæði hér í bænum og annarsstaðar. Getur verið af þeirri ástæðu að áhuginn er daufur fyrir þessari íslenzku list, og þeir ekki brýndir fram til dáða af hinum eldri, sem þó hafa svo mikla ánægju af að sjá þá yngri takast á. Svo mikil fjörgandi áhrif hefir það á þá, að þeir lyftast úr sætum sinum, horfa arnhvössum augum og hrópa: “Þetta var andsk ... vel brugðið, það minnir mig á gamla daga! Á. Sigurðsson. Heilbrigði. Sjúkrasamlög (Framh.) Stjórnarfyrirkomulag sjúkrasam- laganna. Hvert s'júkrasamlag velur stjórn á aðalfundi.^sem halda skal í febrú- ar ár hvert. í stjórninni sitja fimm menn, formaður og fjórir ineðstjórnendur. Þar að auki eru tveir varafulltrúar kosnir á aðal- fundi. Enginn getur að forfallalausu skorast undan kosningu í stjómina. Kosningar gilda fyrir tvö ár i senn, þannig að annaðhvort ár fara ])rír menn og annaðhvort ár tveir úr stjórninni. Endurkosning má ávalt eiga s'ér stað. Allar kosningar, bæði i stjórnina og endurkosningar, fara ávalt fram skriflega. Stjórnarfundir eru haldnir svo oft sem nauðsyn ber til, og að minsta kosti einu sinni á þrem mán- uðum. Ef einhver stjórnarfulltrúa mæt- ir ekki á þremur stjórnarfundum i röð, er hann rækur úr stjórninni, og kemur þá varafulltrúinn i hans stað.. Auk s'tjórnarinnar kýs hvert sjúkrasamlag sér starfsmenn á að- alfundum. Helztu starfsmanna eni féhirðir og einn eða . fleiri inti- .heimtumenn tillaganna. Féhirðir- inn verður að vera reikningsfróður, og hann verður að leggja fram fjár- upphæð, stærri eða minni. i hendur stjórnarinnar, sem tryggingu fvrir fé því, er hann hefir undir höndum. Hann hefir ábyrgð á öllum eignum sjúkrasamlagsins og er skyldur að sjá um, að sjóður þess sé ávaxtað- pr í ömggum verðbréfum eða spari- jsjóðum. Hann á að skrá állar tekj- ur og gjöld sjúkrasamlagsins' í bók, sem bæði stjórnin og endurskoðun- armennimir ætið hafa rétt til að sjá og gagnrýna. Féhirðir er launaður með 20 aur- um fyrir hvern félagsmann árlega. Endurskoðunarmennirnir, sem kosnir eru til tveggja ára í senn, eins og stjórnin, hafa rétt til, hve- nær sem þeim sýnist, að rannsaka allar bækur og skjöl féhirðis og stjómarinnar. Þeir fá svolitla þóknun fyrir starfa sinn. Formaður og aðrir stjórnarfull- trúar fá vanalega ekki, eða hafa hingað til ekki fengið neina þóknun fyrir starfa sinn, sem þó oft er mjög mikill og erfiður. En sam- kvæmt hinum nýju sjúkrasamlög- um, sem fyrir skömmu eru gengin í gildi, eiga formenn samlaganna nú að fá dálítil laun, enda er það réttmætt. Öll ríkisviðurkend sjúkrasamlög í hverju amti mynda eitt höfuö- sjúkrasamlag, með sérstakri stjórn. f höfuðsjúkrasamlaginu eru vana- lega haldnir 2—3 fundir á hverju ári. Fundina sækja íulltrúar frá öllum sjúkrasamlögunum. Yana- Iega mætir einn fulltrúi fyrir hvert llumdrað félagsmanna, nema í mjög stórum sjúkrasamlögum, þar mætir máske aðeins einn fulltrúi fyrir hverja 500 félagsmenn. Amts- eða höfuðsjúkrasamlögin i öllu ríkinu mynda aftur allsherjarsjúkrasam- lag rikisins, sem hefir sína sérstöku stjórn og fulltrúa, sem kosnir eru á fundum í amtssj úkrasamlögunum og meðal stjórnarfulltrúa þeirra. Yfir öllum sjúksasamlögum rik- isins stendur yfirumsjónarmaður, sem er háttstandandi embættismað- ur, er ásamt aðstoðarmönnum sín- um myndar einskonar stjórnardeild í innanríkisráðaneytinu. Ýfirumsjónarmaðurinn á sæti í ýmsum nefndum og dómstólum, sem eiga að skera úr þrætumálum milli sjúkrasamlaganna innbyrðis eða milli þeirra og læknafélaganna. Hann er oft og einatt einskonar milligöngumaður og sáttasamjari milli lækna og sjúkrasamlaga ásamt áðurnefndum kviðdómum, sem bæði sjúkrasamlagafulltrúar og fulltrú- ar allsherjarlæknafélagsins eiga sæti í. Formaður hvers sjúkrasamlags er skyldur, ár hvert fyrir 15. febrú- ar, að senda yfirumsjónarmanni sj úkrasamlaganna skrá yfir tölu fé- lgasmanna. Allir stjórnarmenn ásamt yfirskoðunarmönnum verða að votta skriflega, að skráin sé rétt í alla staöi. Með henni eiga að fylgja reikningar yfir öll útgjöld og tekjur félagsins á hinu umliðna ári. Yfirumsjónarmaður og að- stoðarmenn hans reikna svo út, eft- ir þessum skjölum og skýrslum, til- lag það, er hvert sjúkrasamlag, samkvæmt lögum, á að fá úr ríkis- sjóði, en það er 2 krónur fyrir hvern félagsmann árlega, og þar aö auki hluti af öllum útgjöldum sjúkra- ^samlaganna á umliðnu reikningsári. Þó eru hér dálitlar skorður settar, ,sem sé, að í Kaupmannahöfn greið- ist aldrei rneira en kr. 4.00, í kaup- stöðum kr. 4.00 og til sveita kr. 3.60 árlega úr ríkissjóði. Þetta er þannig hámark ríkissjóðsstyrksins, og er heldur ekki alllítið, þegar tekið er tillit til allra annara hlunn- inda, sem sjúkrasamlögin hljóta frá ríkisins hálfu eða frá sveitar- og amtssjóðum, svo sem áður hefir verið á drepið, t. d. hvað vist á spítölum og heilsuhælum snertir. Það er lögboðið að öll sjúkra- samlög eigi af fremsta megni að mynda viðlagasjóð. Ýrnsar auka- tekjur, sektir og ennfremur upp- tökugjald eiga að renna i hann. Þótt allmörg sjúkrasamlög í Dan- mörku eigi næsta erfitt uppdráttar, þrátt fyrir hina miklu hjálp af rík- isins hálfu, þá nema þó eignir allra ríkisviðurkendra sjúkrasamlaga hér um bil sjö miljónum króna, eða með öðrum orðum um 11 krónur fyrir nef hvert. Eins og gefur að skilja, er kostn- aðurinn við læknishjálp aðalútgjöld sjúkrasamlaganna. Það er því um að gera fyrir þau, að fá sem bezt kjör hjá læknum, eða með öðrum orðum að fá læknishjálpina eins ó- dýra og unt er. í Kaupmannahöfn, öllum kaupstöðum og smærri þorp- um og allvíða til sveita hafa sjúkra- samlögin fasta samninga við lækna um ákveðna þóknun árlega. Lækna- launin eru enn þá dálítið mismun- andi í hinum ýmsu landshlutum. Á öllu Jótlandi eru þau nálega jafnhá, og fá læknar hér sem ársþóknun frá sjúkrasamlögum 11 kr. fyrir hverja fjölskyldu og 5)4 kr. fyrir hvern einhleyping, en fyrir einstæð- an mann eða konu með börnum fá þeir 8)4 kr. á ári. Launin eru nokkru lægri í Kaupmannahöfn og á evjunum. Alt til þessa tíma hafa launin að- eins numið 8 kr. fyrir fjölskyldu og 4 kr. fyrir einhleyping. Og ekki alls fyrir löngu voru launin enn þá miklu lægri, og voru þannig í fyrstu, er verið var að koma sjúkrasam lögunum á stofn, allvíða aðeins 2 kr. fyrir fjölskyldu hverja á ári! Þetta voru auðvitað mestu sultar- laun fyrir læknana, en þeir voru svo vægir í kröfum i fyrstu við sjúkra- samlögin, til þess að þau gætu kom- ið fótum undir sig og ekki farið á hausinn jafnharðan og þau mynd- uðust. Þetta hefir komið lækna- stéttinni í Danmörku að góðu haldi, því að það eru nú einmitt sjúkra- samlögin, sem gefa þeim drýgstu og vissustu tekjurnar; því á síðustu árum hafa sjúkrasamlögin árlega greitt hérumbil '3 ]/2 miljón kr. til allra lækna landsins; og þegar þess er gætt, að varla eru fleiri en 1500 sjálfstæðir starfandi læknar í Dan- mörku, þá er það góður skamtur, sem hver fær að meðaltali, ef að jöfnu væri skift á milli þeirra; en þvi fer auðvitað fjarri. Auk föstu launanna fá læknar aukaþóknun fyrir stærri upp- skurði, þar sem að minsta kosti tveir læknar þurfa að vera viðstadd- ir, fyrir hjálp við barnsburð og fyr- ir læknisstörf á sunnu- og helgi- dögum, og á nóttum frá kl. 8 á kveldin til kl. 8 á morgnana. Milli sjúkrasamlaganna í sveit- um og lækna eru venjulega engir fastir samningar um árslaun. Sjúkrasamlögin verða að greiða fé fyrir læknastörfin eftir almennum reglum og ákvæðum læknafélag- anna. Ein læknisvitjun upp í sveit t.d. kostar þannig 7 kr., ef hann þarf að ferðast eina mílu vegar til sjúklingsins, og viðræða eða lækn- ’ isráð fkonsultation) 2 eða 3 krónur. j En læknar gefa þá sjúkrasamlögum ! þessum afslátt, er nemur 25% af i allri upphæðinni. Sama afslátt gefa I þeir á aukareikningum til kaup- staðasamlaganna. Þótt sveitasjúkrasamlögin fái þennan tiltölulega háa afslátt, þá eiga þau oft erfiðara uppdráttar en þau sjúkrasamlög í kaupstöðunum, er fasta samninga hafa við lækna sína. Útgjöldin verða tiltölulega hærri, einkum þegar kvillasamt er. Þegar félagsmenn sjúkrasamlag- anna þurfa á læknishjálp að halda, verða þeir að snúa sér til einhvers stjórnarfulltrúa og fá skírteini, er vottar, að samlagið ábyrgist lækn- inum borgunina. 1 sveitasjúkra- samlögum þeim, sem engan samn- ing hafa við lækna, mega félags- menn snúa sér til hvers nágranna- læknis, er þeir óska, og mega skiíta eins oft um lækna og þeim sýnist. Þegar þröngt er í búi hjá sjúkra- samlögunum, verða félagsmenn, auk hinna föstu mánaðartillaga, að greiða hærra eða lægra aukagjald fvrir hvert skírteini. Gjaldið nem- ur vanalega 25—50 aurum. Lækn- arnir safna öllum þessum seðlum eða skirteinum saman og senda þau aftur til formanna sjúkrasamlag- anna ásamt reikningi fyrir hverja 3 mánuði í senn. Það hjálpar oft mikið sjúkrasam- lögunum, að efnaðri húsmenn og bændur krefjast oft og einatt ekki dagstyrks, þegar um stuttan sjúk- dóm er að ræða og samlögin eiga þröngt í búi. Dagstyrkurinn er líka vanalegast miklu lægri í sveitunum en í bæjum og þorpum. „ •• 1* ÍC* timbur, fjalviður af öllum Nyjar vorubirgðir teguiKium, geirettur og au- konar aðrir strikaðir tiglar, Kurðir og gluggar til vetrarin*. Komið og sjáið vörur vorar. Vér erumætíð glaðir að sýna þó ekkert sé keypt. The Empire Sash & Door Co. ---------------- Limlted ------------ HENRY ÁVE. EAST - WINNIPEG SEGID EKKI “BXS GBTT SKKI BOKGAB TAXKIÆKNI N*.’ Vðr yltum, .3 nú cengrur ekkl alt aB Oekum og erfltt er aB elcnaM eklldlnsa.. Bf tll rlll, er oga þaB fyrtr beitu. J>aB kennlr oee, eem verBum aB vinna fyrlr hverju centl, a8 meta rlldl penlnaa. MIXNIST þesa, aB dalur sparaBur er dalur unnlnn. MIXNIS'l’ þese elnnlg, aS TKNNTTB eru oft melra vlröl en penlngax. HKIIjBRIGDI er fyrsta spor tll hamlngrju. þvl vsrBIB þér aB vernda TKNNXTRNAR — Nú er timinn—hér er etaönrinn tll aö láta gen vM tenuir yCer. Mikill sparnaður á vönduðu tannverki KINSTAKAU TENNUR $5.00 HVER BK8TA 29 KAR. GCLL $5.00, 22 KARAT GUIjIjTKNN CR VerC vort Ávnlt óbreytt. Mörg hondrnð manne nots sér hfB lágn ver$. HVTCRS VEGNA KKKI pC ? Fara yðar tilbúnu tennur vel? eCa g&nga þmr lBulega Ar skorBum ? Bf þœr gera þaB, flnnlV þð tann- laekna, eem geta gert vel vlC tennur yBar fyrlr vsegt verfi. fG etnnJ yfinr sjAlfur—Notið fimtán Ára reynsiu vora vlð tannlmknlncm $8.00 HVALBKIN OPIB A KVÖLDCM U) -R. PAESONS MeGRFEVY BIjOOK, PORTAGB AVH. Telefóon M. $00. Cppt yfls Grand Trnnk fnrbréfa dcrifstofo. S ö L S K I N Stony Hill, Man., 6. júlí 1916. Heiðraði ritstjóri Sólskins. Eg þakka þér fyrir litla Sólskin- ið. Eg er eins og hin bömin, mér þykir undur vænt um það. Eg tel aldrei eftir mér að hlaupa á móti þeim sem kemur með póstinn, þrífa af honum pokann, hlaupa með hann inn og steypa úr honum á borðið og hafa sem fljótastar höndur að gripa blaðið “Lögberg”, og ná í jnnra blaðið til að líta í Sólskinið. En þó ber það ekki allsjaldan við að einhver hendi verður fyrri til að ,ná í það en eg, og verða þá stundum snörp viðskifti, en samt í gamni, og ætíð er séð um að blaðið ekki skemmist; eg á nefnilega tvær syst- ur, sem vilja ná í það líka. Hér fylgir vísa sem mömmu var gefin í forskrift, þegar hún var á mínum aldri. Hún er svona: Lærðu að setja linu rétt, lærðu rétt að stafa; aldrei máttu blakkan blett á bréfunum þínum hafa. P. 0. Eg á tvo bræður i hernum, sem eg bið guð að leiða og varðveita, og alla sem í þetta strið eru að fara og eru farnir. Eg hugsa oft um fólkið .sem má líða píslir og þjáningar í striðs'lönd- unum. í sambandi við það set eg hér erindi sem eg hefi heyrt ekki alls fyrir löngu: Gefðu særðum sálar ró sendu af himnum líkn og fró, blæðandi hjörtun blessa i neyð, bind um sár i lífi’ og deyð. Með kærri kveðju og virðingu til ritstjórans og allra Sólskinsbarna. Villa S. E. horleifsson, (n ára.). Hreiðrið. Það stóð heima, að þegar eg kom fram í dvmar á Lækjamóti, þá gægðist blessuð sólin brosandi fram undan skýi, spottakorn fyrir ofan Víðidalsfjallið að mér virtist. Eg flýtti mér inn aftur, þegar eg var búinn að signa mig, því að það var kominn tími til aö borða skatt- inn. “Það er undarlegt, að Trvggvi og Guðríður skuli ekki fá smjör”, hugsaði eg, þegar eg sá börnin vera að naga þurt brauð. “Hvers vegna fáið þið ekkert smjör við brauð- inu?” spurði eg forviða. “Þei, þei! Komdu með okkur!” svöruðu þau í hálfum hljóðum. Eg vissi ekki hvað til stóð, en elti þau samt þegjandi, fyrst út á hlaðið, og svo upp í móana fyrir ofan túngarðinn. “Héma eru blessaðir ungarnir í hreiðrinu, en mamma þeirra er ekki heima”, sagði Guðríður litla. Eg sá nú ofurlítið hreiður, með fjórum ungum í. Þeir teygðu upp hálsana og opnuðu nefin sin litlu, eins bg þeir ættu von á einhverju sælgæti, enda urðu þeir ekki fyrir neinpm vonbrigðum, því að leik- systkyni min fóru nú að gæða þeim á smjöri, sem þau höfðu haft með sér innan í bréfi Ungarnir urðu eins glaðir þegar þeir fengu smjörið eins og börnin þegar þau fá jólamatinn sinn. Það var hrein og saklaus gleði, sem skein út úr andlitum barnanna. ]>egar þau voru að gefa ungunum smjörið sitt, enda eru þeir allir sæl- ir, sem taka bitann frá munninum á sér til þess að gleöja aðra og gera þeim gott. sólsk: xisr. BARNABLAÐ LÖGBERGS L AR. WINNTPEG, 3. AGtST 191« NR. 45 Gulllokkur og kórónan. (Þýtt úr ensku). Fyrir löngu, löngu var fátækur hjarðmaður, sem átti konu og einn son. Þáu bjuggu í bjálkakofa í stórum skógi. Pilturinn hafði langa og gula hárlokka, sem glóðu eins og sólskin og þess vegna var hann kallaður Gulllokkur. Eitt kveld fór hann að mæta pabba sínum úti í skóginum; hann viltist og rataði ekki heim. Til allrar hamingju var haust og alveg fult af berjum og hnetum á trjánum; Gulllokkur var þvi ekki svangur. Eftir að hann hafði ráfað um skóginn i þrjá daga, kom hann á eyðilegan stað og leiðinlegan; og eftir það lenti hann í svo þéttum skógi að hann komst tæplega áfram. Hann tróðst þó áfram smátt og smátt þangað til hann komst þang- að sem skógurinn var dálítið gisn- ari og greiðfærari. Loksins kom Gulllokkur að bláu og fallegu liafi. Fis'kimenn voru ]>ar að draga upp net sín og einn þeirra sá Gulllokk; hann kallaði og sagði: “Hvaða dæmalaust er þetta fallegur dtengur! Við skulum taka þann og hafa hann heim með okk- ur. Við þurfum dreng á skipið.” Gulllokkur var orðinn viss um að hann gæti aldrei fundið aftur hjálkakofann sinn og leið þess vegna mjög illa. Hann varð því feginn að fara með fiskimönnunum. Nú leið og beið. Þeir lögðu net- in og vitjuðu um þau hvað eftir annað, en fiskuðu ekkert. Loksins kom gamall maður með silfurhári til Gulllokks, fékk hon- um net og sagði: “Reynd þú nú, drengur minn, hver veit nema þér gangi betur en okkur.” Auðvitað vissi Gulllokkur ekki hvernig hann átti að leggja netið; hann fleygði því út í sjóinn i flækju ; og það var eitts og það fest- ist á kletti í djúpinu. Gulllokkur blóðroðnaði og skammaðist sín fyrir klaufaskap- inn; hann tók i netið og togaði og spyrnti í eins og hann gat. Og noksins' náði hann netinu upp. Það var engin furða þótt netið fyndis't þungt, þvi þegar það kom upp var i þvi kóróna úr skíru gulli. "Dýrð sé þér konungur”, hrópaöi gamli maðurinn, og féll fram fvrir Gulllokki. “Nú eru liðin hundrað ár siðan seinasti konungurinn okk- ar dó. Hann átti engan erfingja og kastaði því kórónu sinni í sjéinn og lýsti þvi vfir að ríki hans skyldi vera konungslaust þangað til ein- hver vrði svo hamingjusamur að finna kórónuna.” Fiskimennirnir reru undir eins til lands og Gulllokkur stóð i skip- inu með skínandi kórónuna á höfð- inu. Fréttirnar um kórónufundinn

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.