Lögberg - 19.04.1917, Page 4

Lögberg - 19.04.1917, Page 4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 19. APRÍL 1917 4 31‘oqbcrq Gefið út hvern Fimtudag af The C*l- umbia Pre**, Ltd.,Cor. William Ave. & Sherbrook Str., Winnipeg, Mam. TAISIMI: CARRY 2156 SIG. JUL. JÓHANNESSON, Editor I. J. VOPNl, Business Manager (jtanáskrift til blaðsins: THE OOLUMSI^ PRESS, Ltd., Box 3172, Wlnnipeg. tyarj- Utanáskrift ritstjórans: EDIT0R L0CBERC, Box 3172 Winnipeg, N|an. VERÐ BLAÐSINS: $2.00 um árið. Oheillastefna. Takmarkalausar lántökur Canada í sambandi við stríðið verða þyngslabyrði á þjóðinni í framtíðinni. William Ewart Gladstone skýrði þá stefnu, að eins og möguleikar leyfðu ætti að borga stríðs- kostnað jafnótt og hann félli á. Ef venjulegar tekjur hrykkju ekki, þá ætti að leggja á aukaskatt, en ekki taka lán. Ef til vill hefir Gladstone aldrei gert sér hugmynd um annað eins voðastríð og þetta; samt sem áður hafa Bretar fylgt þeirri reglu að borga stríðskostnaðinn jafnótt með tekj- um þjóðarinnar. Bretar hafa þannig borgað meira en nokkur önnur þjóð þegar skattarnir falla á. í ræðu þeirri sem Wilson forseti Bandaríkj- anna flutti á þingi 2. febrúar 1917, skýrði hann þessa sömu reglu á þann hátt er hér segir: “J?að er skylda vor að vernda þjóð vora eftir því sem unt er fyrir hinum afaralvarlegu afleiðingum og böli, sem að líkindum leiddi af því ef tekin væru stórlán.” ____ Að borga stríðið jafnótt. Á heilli auglýsinga blaðsíðu, sem er ávarp til allra “pióðhollra Ameríkana” og birt í mörgum blöðum Bandaríkjanna skorar f jármálanefnd hers- ins á þjóðina með þessum orðum: “Ef í stríð fer verður bardagabyrðin að falla þeim á herðar, sem líkamlega eru færir til orustu. En byrði fjármálanna hlýtur að hvíla eða á að hvíla á þeim, sem efnalega eru færir um að bera þá byrði. Um fram alt verður að borga stríðskostnaðinn jafnótt og hann fellur á í dollurum alveg eins og í mannslífum. pað má ekki eiga sér stað að festir verði fyrirfram neinir drepandi skatta- eða ábyrgðarhlekkir um hendur og fætur þeirra manna, sem eru að berjast, þannig að þeir verði að borga kostnaðinn með sköttum þegar þeir koma heim, og svo verði byrðin lögð á börn þeirra þegar þau vaxa upp. Slíkt má ekki ske. Gerum það að ófrávíkanlegri reglu að borga stríðsskuldimar jafnótt og þær falla á.” f þessari nefnd eru: Owen R. Lovejoy, Amos Pincbot og John L. Elliott. Til þess að mæta stríðskostnaðinum leggur nefndin til aö lagðir séu tekjuskattar á þá, sem hafa $5,000 í tekjur og þar yfir. Til þess að kostnaðurinn verði eins lágur og hægt er leggur nefndin til að engar hervörur og engin vinna, sem stjóminni sé látin í té veiti meiri ágóða en SV2%, og að engin heildsölufélög né smásölu megi selja vistir né aðrar lífsnauðsynjar meðan stríðið stend- ur með meiri ágóða en 6%. pað hefir þegar verið gefið í skyn að tekjur og ágóði í Bandaríkjunum verði að miklu leyti látið borga stríðskostnaðinn þar. Mikill munur. J?að er þess vert að bera saman stefnu þá, sem fylgt er á Bretlandi og ákveðin hefir verið í Bandaríkjunum við það sem tíðkast hefir í Canada síðan stríðið hófst. pegar stríðið byrjaði hélt Sir Thomas White þ\>í fram að þetta stríð væri háð í þarfir komandi kynslóða ekki síður en nú lifandi, þá ættu niðjar vorir að bera part af skuldabyrðinni. Kvað hann það því afsakanlegt með öllu að taka lán í því skyni. En hvemig hefir svo þessi stefna reynst? ' Tvö fyrstu fjárhagsár stríðsins 1914—1915 og 1915—1916 hefir alíur kostnaður þjóðarinnar (auk stríðsins) verið $46,856,806 meiri, en allar tekjurnar. pað liggur því í augum uppi að allur stríðskostnaður á þessum tíma, sem var $226,- 948.231, varð að takast að láni í viðbót við fjörutíu og sjö miljónimar, sem önnur gjöld fóru fram yfir tekjur. pað að tekjur landsins á þessum tveimur árum gátu ekki mætt einu einasta centi af stríðskostn- aðinum, er að kenna hinni óheyrðu fjárbmðlun stjómarinnar. prátt fyrir það þótt þjóðin ætti í stríði voru venjuleg útgjöld stjórnarinnar $104,- 850,987 hærri en tvö síðustu árin, sem liberalar voru við stjórn. Fjórar miljónir á þremur árum. Sir Thomas White lýsir því yfir að þegar borg- uð séu öll venjuleg útgjöld í ár, verði afgangs $50,000,000 upp í herkostnaðinn. petta er af sum- um talið ganga næst fjárhagslegu kraftaverki. pegar það er athugað að tekjur landsins eru tvöfaldar við það sem þær eru venjulega, og að fyrirtækjakostnaður stjómarinnar var minkaður um helming, þá verður dæmið öðruvísi. pví horf- ir við eins og hér segir: pegar skoðað er hversu mikið vantar á að tekjur hrykkju fyrir gjöldum —yfir $46,000,000 á tveimur árum—þá eru það að eins tæpar $4,000,000, sem borgað hefir verið í stríðskostnað fyrstu þrjú árin. Með öðrum orðum svo að segja hvert einasta cent af herkostnaðinum í þessi þrjú ár hefir verið tekið til láns og það eru ekki minna en $500,000,- 000 (fimm hundruð miljónir). peir sem berjast verða að borga. Hver er svo afleiðingin? Fjárhagsnefnd hermálanna í Bandaríkjunum hefir lýst því með þessum orðum: “Drepandi byrði skulda og ábyrgða, er kastað á herðar þeim sem lögðu lífið í sölurnar og barna þeirra.” Bein skuld Canada þjóðarinnar, sem var alls $337,000,000 þegar stríðið hófst, er nú komin upp í $800,000,000. Áætluð fjárframlög til stríðsins í ár eru $500,000,000 (fimm hundruð miljónir á einu ári). Bein skuld þjóðarinnar í lok þessa fjárhagsárs með sömu fjármálastefnu verður því meira en $130,000,000 (hundrað og þrjátíu mil- jónir). Hvað þýðir þetta? pað þýðir það að föst árs- útgjöld í eftirlaun og rentur, sem ekki voru yfir $12,000,000 fyrir stríðið, verða $75,000,000 til $100,000,000, sem verður að borgast af tekjum þjóðarinnar áður en nokkuð annað er greitt. pess ber að geta í sambandi við þetta að allar tekjur landsins eru að meðaltali lítið meira en svo að þær mæti þessum eina útgjaldalið. pað mætti segja að auðvelt sé að finna að fjármálastefnu stjórnarinnar án þess að benda á aðrar og hagkvæmari leiðir. f hvert skifti sem stjórtiin hefir tekið lán hefir það verið kallað fjárhagslegt kraftaverk; þrátt fyrir það þótt ávalt hafi verið boðin bezta trygg- ing og aðgengilegustu kjör. Ef ekki væri um aðra leið að velja en lántöku- leiðina, þá gæti fjármálaráðherrann verið ámælis- frí. En mikill hluti þeirra fjárupphæða sem stjórnin hefir tekið að láni með ábyrgð þjóðarinn- ar og 5% vöxtum, hefði átt að fást með beinum sköttum. Samanburður á tekjugrein ensku stjómarinn- ar og canadisku stjórnarinnar fyrir f járhagsárið, sem er að enda, er sérlega fróðlegur. Tekjuuppspretta Bretlands. Allar tekjur Bretlands fyrir fjárhagsárið sem endaði 31. marz 1917 voru $2,867,137,900, og er það $1,183,303,790 hærra en þær voru árið sem leið. Hvemig fengust svo allar þessar miklu tekjur ? Hér er svarið. Skattar af auka ágóða $99,600,000 eða 24,43% af öllum tekjunum. Tekju- og eignaskattar $1,025,165,000 eða 35,27% af öllum tekjum. Tolltekjur almennar voru aðeins $352,800,000 eða 12,21% af öllum tekium. Sérstakir skattar $281,900,000 eða 9,77% af öllum tekjum (þeir komu aðallega á auðfólk). Afgangurinn fékst fyrir hitt og annað smá- vægilegt. Á þessu sést það að af auka ágóða og auðsafni og tekjum komu 60,23% allra tekna á árinu. Mikill partur tollanna var á munaðarvörum og ónauðsynjum. Tekjuuppspretta Canada. pegar tekjugreinar Bretlands og Canada eru' bornar saman, er munurinn skelfilegur. Allar tekjur Canada nýafstaðið fjárhagsár námu $228,217,270, og hafa tekjur þessa lands aukist svo að segja hlutfallslega jafnt og í Bret- landi. En hvílíkur munur á tekjuuppsprettunum! f Canada voru almennu tollarnir $133,531,155 eða 58,33 af öllum tekjum. Sérstakir tollar voru um $24,253,632 eða 10,52% af öllum tekjum. Tekjur frá skurðum og jámbrautum $25,018,- 997 eða 10,96% af öllum tekjum. Póstmálin gáfu af sér $20,031,627 eða 8,77% af öllum tekjum, og örlítið fékst fyrir ýmislegt annað. Lítið og hverfandi. pað var fátæka fólkið sem lagði fram svo að segja allar tekjurnar í Canada, en af $728,217,270 tekjum fékst aðeins $14,552,383, eða 6,58% af aukaágóða. Á Bretlandi fengust aftur á móti 60,23% frá aukaágóða og auðsafni. í Canada fékst aðeins 6,58% af aukaágóða af hervörum, en af auðsafni alls ekki neitt. Sir Thomas White hefir hvað eftir annað sett sig uþp á móti tekjuskatti í Canada. Aðal ástæða hans, ef ástæðu skyldi kalla, er íú að seinlegt væri að innheimta slíka skatta. Samt sem áður hefir bæði Ástralía og Nýja Sjáland látið auðmenn og auðfélög sín borga slíka skatta frá því fyrsta að stríðið hófst. Látalæti. Eftir að stríðið hafði staðið yfir í meira en ár neyddi almenningsálitið fjármálaráðherrann til þess að þykjast ætla að skatta auka ágóða, sem fer yfir 10% af höfuðstóli í stofnuninni, en 7% er undanskilið þegar um hervörur er að ræða. pau þrjú ár sem þessi regla á að gilda áætlar fjármála- ráðherrann að $25,000,000 fáist á þann hátt. Ef til vill verður það örlítið hærra; en þrátt fyrir það er þetta svo lítið að það er bókstaflega hverf- andi þegar tillit er tekið til kringumstæðanna. Hermenn reiðubúnir að fórna öllu. pað ætti að vera algild regla að enginn maður skyldi sýna eigingirni eða afla f jár með okri þegar land hans væri í nauðum statt. Mennimir sem í stríðið fara eru reiðubúnir að fómfæra lífi sínu. peir ganga enn þá lengra en ofangreind regla býður. “Byrðin'sú að berjast verður að hvíla á herð- um þeim, sem til þess eru líkamlega færir” segir fjármálanefnd hermálanna í Bandaríkjunum. “En byrðin sú að leggja fram féð, verður að koma þeim á herðar, sem fjárhagslega eru um færir.” f Canada er sá ósómi opinbert hneyksli, að á meðan þeir sem viljugir leggja lífið í söluraar, hniga örendir fjarri ættjörðinni, sem þeir berjast fyrir, þá hrúga eigingjarnir auðkýfingar saman öffjár heima fyrir, sem þeir græða vegna stríðs- ins, og mikið af því fyrir sérstaka verad, sem þeir hafa hlotið með svokölluðum hersköttum, en sem alls ekki ganga til herkostnaðar. Sir Thomas White hefir áætlað og verið hreyk- inn af, að pantanir Breta og bandamanna þeirra frá Canada í sambandi við stríðið hafi numið $1,500,000,000 (eitt þúsund og fimm hundruð miljónum dollara). Hann hefir einnig lýst því yfir að 75% af því, sem þessi þjóð hefir eytt í stríðið, hafi verið eytt hér heima fyrir. petta er alt aukaverzlun, sem stríðið skapar. pað mun alls ekki of mikið í lagt að yí að minsta kosti af þessari háu upphæð hafi verið ágóði, og nemur það $500,000,000 (fimm hundruð miljónum dollara). pað er meira að segja sannað að fyrsta ár stríðsins var ágóðinn af sumum stríðs- vörum ekki lægri en 900% (tíu doliars fyrir hvern einn) hjá sumum félögum; og eitt félag var svo ósvífið nýlega að lýsa því yfir að það stæðist vel við að borga gróðahlut í tvö ár, þótt verkstæðum þess væri lokað. Ætti að vera $250,000,000. Hér er því sýnt fram á hálfrar biljón ($500,- 000,000) dollara ágóða af stríðsvörum í Canada. Hversu mikið af því fer til þess að borga herkostn- aðinn? Stríðið sem gerði þennan gróða mögu- legan? Sir Thomas White áætlar að hann fái $25,- 000,000 á þremur árum (rúmar átta miljónir á ári) af ágóða af hermannaverzlun og annari verzl- un til samans. Hann ætti að minsta kosti að fá tíu sinnum það eða $250,000,000 af hervöruágóða einum saman og gæti hann þá látið aðra venjulega verzlun eiga sig óhindraða og óskattaða. Skattar Breta af ágóða af hervörum eru yfir 50%, og þó líður Bretland það ekki að eins mikill sé ágóði þar og viðgengst hér. peir sem græða á stríðinu, ættu að leggja hlutfallslega til þess að borga fyrir það. peirri reglu er fylgt á Bretlandi; Canada fylgir alveg andstæðri reglu. Mönnum er gefið undir fótinn með það að okra sem mest og að því stuðlað að stríðið geti orðið til þess aðj hrúga ógrynni fjár í hendur vissra manna og fé- laga. Ef John D. Rockefeller ætti heima í Canada, er sagt að hann þyrfti ekki að borga einu centi meira, en búðarmenn í Canada sem hafa $800 í árslaun, nema því aðeins að hann gerði það af sjálfsdáðum. Og ef vel er aðgætt, borgaði hann ef til vill minna, því flestir búðarmenn í Canada hafa betri melt- ingu en Rockefeller og þess -vegna þyrftu búðar- mennirnir meira að borða, en með því yrðu þeir að borga hærri skatta, því það eru nauðsynjar alþýð- unnar — matvörurnar, sem tollamir ráðast á. Tollar og lántökur. Lántökur og tollar eru aðaltekjugrein núver- andi stjórnar. Fjármálaráðherrann hefir hingað til varast að tolla svo nokkru nemi auðsöfn lands- ins eða auka ágóða af hervörum. Ekki hefir heldur sú stjórn, er hann tilheyrir gert neina alvarlega tilraun til þess að, bæta úr dýrtíðinni eða að koma í veg fyrir íeynibrögð milliliðanna og þeirra sem okra á lífsnauðsynjum. En stríðið hafði ekki staðið yfir lengur en eitt ár, þegar það var haft að afsökun fyrir tollum á nauðsynjavörum. pað var auðunnið. 7(4% auka- tollur var lagður á svo að segja allar nauðsynjar og auk þess 5% á verzlun við Bretland. Fjármálaráðherrann þurfti ekki langan tíma til þess þegar stríðið kom að grípa það tækifæri, sem hátollastjóm hans hafði óskað eftir frá því hún fyrst kom til valda. Stríðið var haft að ástæðu eða afsökun fyrir þessari afar einkennilegu f jármálastefnu. Framleiðsla. Framleiðsla og meiri framleiðsla hefir hljóm- að á vörum stjórnar-ræðumannanna. Og einu af- skiftin, sem stjómin hefir þó haft af framleiðsl- unni síðan stríðið hófst, eru þau að ofþyngja þeim sem framleiða og hindra þannig framleiðslu — draga kjark úr þeim sem vinna að framleiðslunni. “Áfram með plóginn!” hrópa þeir, og svo þræl- þyngja þeir plóginn með tollum. Tekur öllu fram. Á fjárhagsárinu sem endaði 31. marz 1916 voru teknir í tollum $20.47 að meðaltali af hverj um $100 af vörum, bæði þeim sem tollaðar voru og fríar áttu að vera, sem fluttar voru inn í Canada. petta innheimti stjórnin sjálf. Álíka mikið tóku verksmiðjumar af hverju $100 virði, sem fram- leitt var af tollskyldri vöru í Canada. 1911 var meðaltollur á öllum vörum, tollvörum og fríum, sem fluttar voru inn ,15,87%; en 1912 var hann kominn upp í 16%, 1913 upp í 17,03% og 1914 upp í 18,91%. Árið 1915 fór hann aftur niður í 17,39%, en árið 1916 upp í 20,47%. Árið 1896 var meðal tollur 18,28%, frá þeim tíma þangað til 1911 fór hann aldrei yfir 16%. Tollarnir 1916 eru þeir hæstu, sem þeir hafa verið síðan 1889, þá voru þeir 21,65%. Fólkið verður að borga brúsann. pað sést því þegar á alt er litið að þeir sem græða—þeir ríku—sleppa svo að segja útgjalda- lausir að svo miklu leyti sem ráðstafanir stjórn- arinnar snertir. Fólkið verður að bera ofurbyrði óbeinna skatta svo þunga að slíks eru ekki dæmi fyr síðan 1889. Og enn sem komið er hefir þó ekki eitt einasta cent af þessari drápsbyrði farið til þess að borga herkostnað. Tvöföld byrði á þeim sem berjast. Sökum þess að engin ráðstöfun er gerð í neinni mynd á móti okurverði. er stjórnin orsök ekki einungis í dýrtíðinni heima fyrir, heldur einnig í því hversu dýrt stríðið er. Með því að verja þá fyrir sköttum og tollum, sem okra á hervörum, lætur stjórain hina þungu byrði falla framleiðandanum á herðar og þeim, sem hermennirnir í skotgröfunum hafa skil- ið eftir heima. Og með því að hella hverri skulda- súpunni ofan á aðra hefir stjórnin dæmt mennina sem lögðu líf sitt í söluranr og börn þeirra til þess að borga fyrir stríðið framvegis. pegar stríðið er umliðið og hermennirnir koma heim aftur, þá mæta þeir mönnum, sem hafa hrúg- að saman off jár með því að vera heima og hagnýta sér stríðið. í viðbót Við þá fórn, sem hermennirnir hafa þegar lagt fram verður svo bætt frekari fórnfær- ingum þeirra í félagi við alla alþýðu — þeirri fórn að borga þá háu skuid, sem Canada hefir komist í með því að taka þátt í stríðinu. H. E. M. C. (pýtt úr “Free Press”). THE DOMINION BANK STOkNSETTXJK 1871 t X t t t ♦ ■f t ♦ ■f Uppborgaður liöfuðstóU og varasjóður $13,000 OOO Allar eígn1*- - - - 87,000,000 Bankastörf öll fltótt og samvizkusamlega af hendi leyst. Dg áherzla lögð á að gera skiftavinum sem þægilegust viSskiftin. | I Sparisjóðsdeild, Vextir borgaSir eSa þeim bætt viS innstæSur frá $1.00 eSa meira. tvisvar á ári—30. Júní og 31. Desember. 334 Notre Dame Branch—W. M. HAMH/TON, Manager. SeUtbrk Braacb—M. 8. BURGKR, Manafer. NORTHERN CROWN BANK Höfuðstóll löggiltur $6,000,000 Höfuðstóll greiddur $1431 200 Varasjóðu......$ 715.600 Formaður...........- - - 81r D. H. McMIIJ.AN, K.O.M.a. Vara-formaðnr................ - Capt. WM. ROBINSON Slr D. C. CAMERON, K.C.M.G. J. II. ASIIDOWN, W. R. BAWIjF E. F. HUTCHINGS, A. McTAVISH CAMFBEIiD, JOHN STOVEL Allskonar bankastörf afgreidd. Vér byrjum reikninga viS einstakllnga eSa félög og sanngjarnir skilmálar veittir. Avlsanir seldar U1 hvaSa staSar sem er á íslandi. Sérstakur gaumur gefinn sparisjóSslnnlögTim, sem -byrja má meS 1 dollar. Rentur lagSar viS á hverjum 6 mánuSum. T* E. THORSTEIN3SON, Ráðamaður Cor. William Ave. og Sherbrooke St., . Winnipeg, Man. /tv r?av ýavrJav rý«v v,v.v, Það er ekkert eins gott og ' heimatilbúið Pie, kök.ur og í brauð búið til úr 142 ^ PURITV FLOUR MORE BREADano BETTER BREAD’’ FURITV FLOUR Verður a Strand leikhústnu í dag og á laugardaginn í leiknum “THE MAN FROM BITTER ROOTS” STARLÁND theatre Föstudag og Laugardag þessa viku Sýnt í fyrsta sinn i Winnipeg v William Farnum í leiknum ‘ THE MAN FROM BITTER R00TS“ A WILLIAM FOX FEATURE DE-LUXE Mánudag og Þriðjudag nœstu viku drotning MYNDASÝNINGANNA ClaraKimbalI Y oung í leiknum “THE FEAST OF LIFE” Undir stjóm ALBERT CAPPELLANI Bráðum kemur BILLIE BURKE í [eiknum GLORIAS R0MÁNCE. og Mr*, VERNON CASTLE í leiknum “PATRIA” 10—7 10c; 7—11 15c. Spariö yður fé nieð þvi að koma fyrir kl. 7. Únítara söfnuðurinn heldur fjöl- upp úr hádegi. VerSa þar rædd ýms menna samkomu á sumardaginn fyrirtæki, félagsmálum víðkomandi. íyrsta, þann 19. þ.m. Hefir ýmsum Kl. 7 verður sezt til borðs í fundar- verið boðið utan úr bygðum, er búist sal kirkjunnar, og aS því loknu fara er við aS hér muni verSa staddir. fram ræSuhöld og söngvar uppi i Samkoman byrjar meS fundarhaldi kirkjunni. Þar verSa sýndar einnig /

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.