Lögberg - 05.07.1917, Qupperneq 2
2
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 5. JÚLÍ 1917
Slysið á Winnipegosis-vatni 29. Maí 17
Vilhjálmur Johnson og Carl Sveinsson
Slysið.
('Fregnin um slysið er tekin að mestu
eftir Frée Press vikubl. frá 30 maí s.l.)
Þeir Wilhjálmur Johnson, sonur
Ólafs Jóhannessonar og Carl Sveins-
son, bábir til heimilis í Winnipegósis,
voru á seglbát að flytja búslóö Jóns
Bensons, sem var á Gimli, nú sestur
að á Red Deer Point. Þeir voru bún-
ir aS fara tvær ferSir og v'oru á sigl-
ing á heimleiö. Um kl. 2 e. h. ,þegar
þeir áttu eftir um 0 mílur til Winni-
pegósis, skall á þá storm bylur, sem
slengdi bátnum á hliðina. TalsverS
kjölfesta var í honum, sökk hann því
óðara til botns að aftan, en marraði í
miðju vatni að framan, dýpið var
þarna um 14 fet. Þeir félagar náðu
dálitilli fótfestu á bátnum niður í
vatninu, samt náði það þeim undir
hendur, bæði bómu og gaffal bátsins
reyndu þeir að nota sér til stuðnings
til að standast ókyrrleika vatnsins,
sem jók stórum á þrautir þeirra.
Þannig farast Vilhjálmi orð á parti
um samtal og þrautir þeirra félaga,
staddra í greipum dauðans. “Villi, við
drukknum hér,” segir Carl. “Nei,”
sagði eg, “eg ætla að synda til lands,”
og tók um leið gaffalinn og lagði af
stað, en ítti um leið stór-bómunni ti!
félaga míns. Þegar eg var kominn
örstuttan spöl, þá kallaði Car! til min
og sagði: “Vatnið er svo kalt, þú
hlýtur að drukkna, við getum enn
haldið okkur uppi nokkuð lengi. Það
getur bátur, ef til vill, farið hér um
og bjargað okkur.” Eg sneri aftur.
Eg gerði alt hvað eg gat til að halda
félaga mínum og mér á lofti. í það
minsta voru 2 kl.timar liðnir síðan
slysið bar að höndum. Eg sá glögt að
féla gi minn gat ekki staðist mikið
lengur hið iskalda vatn, sá að lífsafi
hans þverraði óðum, hann var orðinn
njeðvitundar litill. Eg gerði alt hvað
eg gat að halda honum á floti, en alt
v'arð árangurslaust. Með sárum
harmi varð eg að horfa á félaga minn
hverfa sjónum mínum, þeirri stundu
mun eg aldrei gleyma. Eg sá að einu
úrræðin fyrir mig voru að synda í
land, ef eg átti lifi að halda. Tók eg
aðra bómuna ag gaffalinn, batt það
saman og lagði svo af stað með það
til að halda mér betur uppi á sundinu.
Fæturnir urðu von bráðar máttlausir
og stirðir af kulda og gat eg því ekki
beitt þeim á sundinu, varð því að
synda með höndunum eingöngu, svo
biluðu þær líka. Eftir það var sundið
likast busli. Loksins komst eg þó að
landi, en svo var eg afllaus og af mér
genginn að eg með naumindum gat
skriðið upp í fjöruna. Tveir Indíánar
fundu mig þar og færðu mig til næsta
húss. Nudduð þeir mig allan og
hjúkruðu mér, sem bezt þeir gátu."
Vilhjálmur hafði verið búinn að
vera um 5 kl.tíma í vatninu, frá því
fyrsta. Báðar hendur voru stokk-
bólgnar, og sár á öðrum hanlegg.
Maðurinn er vel syndur og talinn
hraustur, en samt mun hafa verið orð-
ið frentur skamt á milli lifs og dauða
þegar hann náði landi.
Daginn eftir að slysið vildi til, var
farið á gufubát að leita að líki Carls
og fanst það eftir stutta leit. Það
var flutt til bæjarins og ráðstöfun
gerð að jarðarförin gæti farið fram
sem fyrst. Móður þess látna var stmað
að vestan á næstu símastöð við Nes
P. O., að sonur hennar væri druknað-
ur. ' Jarðarförinni yrði frestað þang-
að til að hún kæmi eða einhver í henn-
ar stað. Sjálf tók hún að sér að fara
vestur; vegna ókttnnleika og ýmsra
snúninga við að hafa vagnaskifti á
leiðinni þá þurfti hún < fylgdarmann.
Það var Hallgrímur Magnússon ná-
granni og bróðursonur Guðlaugs
manns hennar, sama sem bauðst til að
fylgja henni og var það þakksamlega
þegið. Hún gat ekki heldur kosið
betri mann til fylgdar. Alrnent er
það álitið að úrræða betri mann en
Hallgrímur er og ötulli til allra fram-
kvæmda, sé ekki að hitta á hverju
heimili.
31 maí komu þau vestur. Jarðar-
förin fór fram og var hin sómasam-
legasta. Það var fjöldi af bæjarbú-
um og úr grendinni, sem fylgdu þeim
látna til grafar. Það sást á því og
mörgu öðrn að hinn látni var mjög
vinsæll. Sá sem rhar um slvsið í Free
Press, kemst svo að orði: “að hinn
látni hafi verið hinn prúðmannlegasti
í allri framkomu og hvervetna vellát-
inn.” Af því enginn íslenzkur prest-
ur var í bænum, þá var fenginn D.
Guðbrandsson, adventisti að ausa hinn
látna moldu og tala nokkur orð yfir
gröfinni. Hinn látni var jarðaður í
grafreit bæjarins. Vilhjálmur félagi
hans keypti lóð til að jarða hann í og
ákvað að i þeim sanja reit ætti hann
sjálfur að liggja; meiri^vináttumerki
var ekki hægt að sýna.
Ættmenn og vinir hins látna þakka
hjartanlega ölltt þvi fólki, sem á einn
eða annan hátt liðsintu honum. Með-
al þeirra var Mr. og Mrs. Búi John-
son, Mr. og Mrs. John Collin og Mr.
og Mrs. Ólafur Jóhánnesson, hjá þeim
átti hann síðast heimili, Mr. og Mrs.
Elis Magnússon, þau hjón voru þeim
látna eins og góð systkini, þann tíma
sem hann kyntist þeim. Winnipegósis
er heimili ofannefndra hjóna.
Ennfremur eru ættmenn og vinir
hins látna þakklátir Vilhjálmi fyrir
alla hina góðu framkomu hans og ó-
sérhlífni, sem hann sýndi við þetta
sorglega slys. Það hryggir þá hversu
miklar þrautir hann varð að líða í
sambandi við það.
Carl Victor Sveinson var fæddur
26. janúar 1892 á Mountain, N. Dak.
Faðir hans var Sveinn Guðbjartur
Friðriksson, fæddur á Sæbóli í Mýra-
lirepp í ísafjarðarsýslu á íslandi.
Foreldrar Sveins voru Friðrik Guð-
mundsson og Sigríður Jónsdóttir, bú-
sett hjón á Sæbóli í sömu sveit og
sýslu.
Móðir Carls, sem var kona Sveins
er Henrietta V. Clausen, dóttir Mar-
teins Clausens og konu hans Þor-
gerðar Gunnlaugsd.; heimili þeirra
var í Keflavík í Gullbringusýslu. Hen-
rietta er nú gift Guðlaugi MagnúsSyni
heimili þeirra er Nes P. O. Man.
Bróðir Carls er Marteinn Fr. Sveirj-
son agtygjasmiður í Elfros, Sask.
Því miður gat hann ekki verið stadd-
urf við jarðarför bróður síns, því
fregnin um dauðafallið hefir komið
of seint til Eans.
Fyrir fjórum árum fór Carl til Búa
Johnsonar frænda síns, til að stunda
fiskiveilar á Wininpeg vatni.
Næsta ár fór hann aftur til móður
sinnar og stjúpa, sagði hann þá aö
sér Iíkaði vel þar vestra, og ákv'að
að hafa Winnipegósis fyrir framtíð-
arheimili sitt.
Það vorú sum verk, sem hann átti
bágt með að vinna, því vinstri hendin
var miklu máttminni en hin. Það
vantali hina eðlilegu stæling 1 suma
fifigurnar. Einu sinni komst hann
svo að orði við þann sem þetta ritar,
“að vinstri handar fingurnir væru æf-
inlega á eftir timanum, þegar þá
þyrfti að nota fljótlega.” Fyrir ó-
styrk handarinnar treysti hann sér
ekki að læra sund. Mörg verk, sem
þurfti nettleíka við, gat hann ekki
unnið, varð því að sætta sig við nin
grófari verkin. Hann lét ekki mikið
á þessum veikleika sinum bera, bar
hann með þolinmæði. Hvað oft þetta
máttleysi handarinnar hefir ollað hon-
um óþæginda og jafnvel hrygðar.
er ekki með tölum talið. Má vera að
á síðustu stundum hans, hafi það vald-
ið miklu um það hvernig endirinn
varð.
Blessuð sé minning hans.
Vinur hins látna/
F réttabréf.
Innisfail, Alta., 25. júní 1917.
Herra ritstjóri Lögbergs!
Þá sest eg við áð hripa þér fáar
línur, eftir tveggja mánaða hvíld.
Sumarið hefir, það sem af er, verið
fremur kalt og vætuamt. Seinnipart
apríl og í mat flóði land hér í for og
vatni, vegir illfærir og akrvinna tafð-
ist. Þó mun ekrufjöldi sem sáð var
í lítið minni en næstliðið ár. Júní til
þessa dags hlýrri með skúraskil. Gras-
spretta verður ljómandi gófff og útlit
hið bezta með vilt hey, en akrar tæp-
lega í meðallagi og fullir með ill-
gresi á láglendi, þó telja fréttaritar-
ar og blaðamenn uppskeruhorfurnar
hér í fylkinu framúrskarandi góðar.
þar sem jörðin sé full af vatni vanti
að eins hitana. Betur sá spádómur
rættist. Fjárhöld í bezta lagi. Verð
hátt á öllttm landbúnaðarafurðum,
rjómabús smjör komst upp í 44 cent
pundið, en þegar tekið er með-
alverð á þvt sem selt er og keypt Verð-
ur Iítill ágóðinn, ef öll líknarsjóðs-
tillög striðsþjóðanna eru tekinn með
í reikninginn.
Glaðar slundir.—
Það sannaist ekki á Alberta íslend-
ingunt að hvert mikilmenni sögunnar
sé minst virt í sínu heima héraði. Þeg-
ar það vitnaðist að Stephan G.
Stephanson færi langferð heim á ætt-
lands fornu slóðir, tóku nokkrir land-
ar sig saman um að gera honum heim-
reið, til að kveðja hann og árna hon-
um fararheilla. 4 maí var ákveðinn
en þrátt fyrir stöðugar rigningar,
bleytuhríðar itg ófæra vegi, komu þar
saman um 70 manns. Margir sátu
heima, sem ætluðu að koma og það
næstu nágrannar. Vöktu menn þar
við gleði og glaum alla nóttina.í in-
dælli samhygð, með sínum gamla,
góða nágranna og skemtu sér við
ræður, söng, dans og samtal, upp á
gamlan og góðan alíslenzkan hátt-
Hr. Kristinn Kristinsson, mágur
skáldsin^ afhenti honum vinargjöf
gestanna og margra þeirra er heima
sátu, $150. Nöfn gefanda get eg ekki
verið að senda,‘eg held þeir kæri sig
ekki um það. Skáldið skemti gestun-
um ágætlega. Konur gestanna feftir
landssið) sáu um veitingar allan tim-
ann og að hioum nýja sið var drukkin
hestaskál i hreinu og tæru kaffi. En
þó var livorki sorg né sút á neinum.
allir gla^ir og ánægðir. Ný komið
símskeyti segir hann kominn til
Reykjavíkur 16. júní, og að öllum líði
vel.
14. júní var samæti haldið að heim-
ili hr. Gunnars Jóhannssonar og Þor,-
bjargar konu hans, á 25. giftingar-af-
mæli þeirra hjóna. Er Gunnar frænd
margur hér í héraði, á þrjá bnéður
og afkomendur þeirra. Var allur
frændflokkurinn þar samankominn,
sá er ritar þessar línur og nokkrir
fleiri. Við þetta tækifæri gáfu konur
kvennfélagsins “Vonin” $25 í 25 centa
silfur peningum og fluttu þeim hjón-
um ritað ávarp, að þeirra dæmi fóru
gestirnir. Var þar veitt af kappi all-
an eftirmiðdaginn, á björtum og heit-
,um sólskinsdegi. Skemtu menn og
konur sér ágætlega og fluttu tölur og
árnaðarræður til brúðhjónanna jöfn-
um höndum, en þau þökkuðu gestun-
um af. alúð, hlýtt vinarþel og heim-
sóknina. En búannir kölluðu menn
og konur heim eftir góða skemti stund
Pólitík og kosningar.—
Eins og tilstóð, fóru Albertafylkis-
kosningar fram 7. júní, og eru líber-
als sterkari en áður hér í okkar kjör-
dæmi. Voru þrír í kjöri, fyrverandi
conservatív þingmaður, sá eini er
fæddur var undir brezku flaggi og
eins og eg var áður búinmað geta um
útnefndum við líberals, danskan
smjörgjörðarmann, vel þektan að
dugnaði. ráðdeild og vitsmunum. En
hann var fæddur útlendingur, og þess
vegna af sumum álitin óhæfur þing-
maður, á þessunt hættulegu tímum,
Danir gætu slegist í lið með þýzkum.
Þriðji kandidatinn var fæddur í
Bandarikjunum, en mentaður íCan-
ada.skólakennari og náði prófi í lög-
um fútlærður í vor) kom hann fram
ávígvöllinn rétt fyrir kosningarnar,
“Indipendent”, og fékk að eins 89 at-
kvæði af 1775 atkvæðum, sem talin
voru góð og gild. Af ofangreindum
ástæðum v’oru kosningarnar hérna
ekki flókks pólitík, heldur léku gamlir
flokksmenn af báðurn flokkum ein-
tóman ætternis leik, en svo fóru leik-
ar að útlendingurinn var kosinn með
137 atkvæðum fram yfir fyrverandi
þingmann, og aðal gagnsækjanda sinn
Mér þóttu kosningarnar fjörugar og
skemtilegar, enda prýddi öll kvenn-
þjóðin hópinn, sem komin var á kjör-
staðinn til að nota réttindi sín og
greiða atkvæði með því þingmanns-
efni, er þær óskuðu að kæmist á þing.
Heim, heim er orðtak unglinganna,
hinn aldraði segir komdu heim.
Eftir 5/i árs burtuveru kom stjúp-
dóttir mín heim, um miðjan maí sið-
astl., frá Vancouver General Hospital
er hún útlærð hjúkrunarkona. Sú
fyrsta íslenzka stúlka úr þessu bygð-
arlagi sem lagt hefir ]>á iðn fyrir sig.
Gengur hún undir nafninu Sarah
Johnson. Gerir hún ráð fyrir að fara
þangað aftur innan lítils tíma. í hálft
annað ár síðan hún varð útlærð, hefir
hún getað haft fleiri sjúklinga, en hún
hefir komist yfir að stunda. Líkar
henni Vancouver bær og Kyrrahafs-
ströndin betur en mér, þann stutta
tíma, sem eg dvaldi þar síðastliðinn
vetur.
Með þeirri ósfc kveð eg þig hr. rit-
stjóri góður, að Lögberg fái meiri al-
heimsfréttir, en minni kosninga kapp-
ræður og fylkis reikninga.
Þinn einl.
./. Björnsson.
50 ára afmœli Canada
Ýmis konar fróðleikur.
Canada, sem kalla má fóstur-
land allra þjóða er hálfrar ald-
ar gamalt, síðan það fékk
stjómarskrá þá sem það hefir nú.
pað er ekki hár aldur og fram-
farir Canada eru stórkostlegar
í ýmsum efnum, þegar þess er
gætt. þegar Nýja England, sem
svo var nefnt sagði sig úr sam-
bandi við Breta, var þar ráð fyr-
ir gert að Canada yrði með síðar
ef hún æskti þess. Af því varð
þó ekki. Árið 1810 var það að
framtaksamur nýlendumaður
kom með þá uppástungu að
stofna ríki hér í landi, er.
því var lítið sint. Fjórum árum
síðar, hóf Sewell háyfirdómari
í Quebec máls á því aftur við
hertogann af Kemt. Enn varð
þó ekki af framkvæmdum. 1827
samdi þingið í hinni svokölluðu
Efri-Canada tillögu um samein-
ing hinna ýmsu parta landsins
með brezkri stjórnarskrá. Málið
var rætt með mikilli mælsku, en
I
t.
/ Packet of
WILSONS
FLY PADS
WILL KILL H0RE FLIES THAN
\$8°-oW0RTH 0F ANY /
k\STICKY FLY CATCHER/J
Ilreln i meðferð. Seld í hverri
lyfjabúð og í matvörubúðum.
lognaðist síðan út af í fæðingunni
Árið 1849 var haldinn fulltrúa
fundur í Toronto í sama skyni,
með litlum árangri; en 1854 var
samþykt ályktun á þingi í Nova
Scotia, þar sem óskað var eftir
nánara sambandi milli brezku
nýlendanna í Norður Ameriku
og upp frá því var farið að vinna
að sambandinu af hálfu brezka
þingsins. Eiginlega hafði Nova
Scotia ályktunin það eitt í sér
fólgið, að austur strandarfylkin
Nova Scotia, New Brunswick og
Prince Edward Island gengju í
félag, og til þess að koma því í
framkvæmd mætti sameiginleg
nefnd frá þessum fylkjum árið
1864. pá kom Macdonald það í
hug að úr þessu mætti gera þing
til þes§ að undirbúa sameining
allra nýlendu partanna. .
Fulltrúamir mættu í septem-
ber í Charlottetown og komu
þangað einnig 8 fulltrúar frá
Quebec þinginu. peir höfðu ekki
verulegt umboð, en tóku þó þátt
í fundinum. Urðu þar allir sam-
mála um víðtækari samninga en
áður hefði verið umtalað. pess-
um fundi var loksins frestað (en
ekki slitið) og átti hann að koma
saman aftur í Quebec þegar rík-
isstjórinn teldi rétt að kalla hann
Svo var það bjartan haustdag
í septembermánuði, að saman
var safnast í Halifax til þess að
ræða um undirstöðubygging hins
mikla ríkis. Var farið þangað
á skipi sem Victoria hét og þess
vænst að gifta fylgdi nafni. í
borginni Halifax var nefndar-
mönnum tekið með kostum og
kynjum. Stórkostleg veizla var
tilreidd gestunum og flutti Dr.
Tupper stjórnarskrifari í Nova
Scotia snjalla ræðu. Hann var
valinn til þess að stjóma fund-
inum. Margar íteður voru flutt-
ar við þetta tækifæri, þar sem
þeyst var á spretthörðum jóum
hugsana og ímyndunarafls eftir
götum framtíðarinnar. En
merkilegt er það að meginhluti
þess sem þar yar spáð hefir þeg-
ar ræzt og er að rætast. John
A. Macdonald lýsti því með mörg
um orðum og fögrum, að sam-
,band allra hinna aðskildu ný-
lenda hefði lengi verið sinn un
aðslegasti draumur og sæi hann
nú rætast. Frá Halifax fór
nefndin til Fredericktoh, sem var
höfuðborgin í New Brunswick.
Tíunda október um haustið var
ákveðinn fundardagur í Quebec.
Sir E. P. Tecke var kosinn for-
maður. Skrifarar allra fylkj-
anna voru útnefndir heiðursrit-
arar á fundinum, en Hewitt Ber-
nard var kosinn aðalskrifari.
Að því búnu lokaði nefndin að
sér dyrum og málið var rætt í
dæmafárri einingu.
Stór veizla var haldinn fund-
armönnum af verzlunarfélagi
Quebec bæjar. Hafði það verið
ákveðið á fundinum að halda því
leyndu hvað gerst hefðði, þótt
allir þættust þess vissir að sam-
band hefði verið samþykt og yrði
síðar borið upp fyrir Breta stjóm
en í veizlunni urðu menn ölVaðir
og gættu sín ekki og komst því
leyodarmálið út.
Newfoundland var elzt allra
nýlendanna. paðan var mættur
þingmaður er Carter hét og flutti
langa ræðu og snjalla. Var hann
eindregið með því að nýlenda
hans gengi í sambandið, en þeg-
ar til kom voru samlandar hans
á öðru máli. Fulltrúamir komu
hver heim til sín og sögðu tíð-
indin; Newfoundland ákvað að
vera utan sambandsins og Prince
Edward Island einnig; var þar
harðlega sett ofan í við fulltrú-
ana og gerðir þeirra taldar ó-
gildar.
19. febrúar var þing sett og
málið rætt; stóð það yfir þangað
til 10. marz. Kom þá Macdonald
dómsmálastjóri fram með svo-
hljóðandi tillögu: “Að hennar
hátign drotningin sé allra náð-
arsamlegast beðin að gera ráð-
stafanir fyrir því að sambandi
verði komið á meðal brezku ný-
lendanna: Quebsc, Nova Scotia,
New Brunswick, Prince Edward
Tsland og Newfoundland undir
einni og sömu stjóm og ákveðn-
um réttindum tilteknum og sam-
þyktum á þingi í Quebec 10.
marz 1865.” pessi tillaga var
samþykt eftir all langar umræð-
ur með 91 atkvæðum gegn 33.
pinginu var slitið 18. marz og
næsta mánuð fóm þeir J. A.
Macdonald, Galt Brown og Car-
ter til Englands þessu máli til
stuðnings; var Macdonald þeirra
allra einbeittastur. pess má
geta að hann vildi hafa eitt alls-
herjar þing fyrir alt sambandið
og engin fylkisþing, heldur hefði
hvert fylki út af fyrir sig nokk-
urskonar sve’tarstjómarréttindi
Félagar hans voru því andstæðir
og vildu einnig hafa fylkisþing.
Macdonald kvaðst í raun réttri
vera því hlyntur líka, en vera
hræddur um að af því gæti leitt
deilur um viss atriði milli sam-
bands- og fylkisstjórna.
f nóvembermánuði 1866 fóru
fulltrúar frá Quebec til Englands
og áttu þar að mæta fulltrúum
frá New Brunswick og Nova
Scotia og ræða sameiningarmál-
ið. Komu þeir saman í West-
minster-byggingunni 4. desem-
ber og var John A. Masdonald
kjörinn formaður. Nefndin starf-
aði þangað til 24. desemlier. peg-
ar sambandið var ákveðið var
farið að gera uppkast að lögum;
gerðu það fulltrúarnir í félagi
við stjómmálamenn á Englandi;
loksins voru lögin borin upp fyrir
brezka þingið 5. febrúar. 29.
marz hlutu lögin konunglega
staðfestingu og 12. apr. voru önn
ur lög samþykt, sem veittu heim-
ild til þess að ábyrgjast vexti af
láni, sem ekki væri hærra en
$15,000,000; átti það fé að fara
til járnbrautarlagningar milli
Halifax og St. Laurence. 22. maí
hlutu “Brezku Norður Americu”
stöðulögin konunglegt samþykki
og áttu þau að ganga í gildi 1.
júlí; var það þar ákveðið að Que-
bec (sem kölluð var Canada),
Nova Scotia og New Brunswick
skyldu vera eitt ríki og kallast
Canada. Var þessu ríki skift í
fjögur fylki: Quebec, Ontario,
New Brunswick og Nova Scotia.
framkvæmdarvaldið og hervaldið
átti að vera í höndum Breta kon-
'ungs, sem hefði hér fulltrúa, er
ríkisstjóri nefndist. Ottawa var
gerð að höfuðstað ríkisins. Sam-
bandsþingmenn voru kosnir eft-
ir manntalinu 1861, en breyting
á fulltrúatölu átti fram að fara
tíunda hvert ár, eftir manntali.
Tala fulltrúanna frá Quebec var
ákveðin um aldur og æfi 65, en
fulltrúar hinna fylkjanna áttu
að vera eftir því margir, sem
ifólksfjöldinn væri, samanborið
við Quebec.
Fyrstu stjóm í anada skipuðu
þessir menn:
1. John A. Macdonald, forsæt-
isráðherra. •
2. A. T. Galt, dómsmálastjóri.
3. Alexander Cambell. póst-
málastjóri.
4. A. J. Ferguson Blair, stjórn-
arfoímaður. ,
5. W. P. Howland, tekjumála-
ráðherra.
6. George E. Carter, hemiála-
ráðherra.
7. William McDongalI, ráð-
herra opinberra verka.
8. S. L. Tdley, tollmálaráð-
herra.
9. Peter Mitchell, flotamála-
og fiskimála ráðherra.
)0. H. G. Langevin, ríkisritarí.
11. J. C. Chapais, búnaðav ráð-
herra.
3 2. A. G. Archibald, fylkja-
ritari.
13. Edward Kenny, fjármála
ráðherra.
Synir þriggja þessara manna
eiga heima hér í Winnipeg. pað
eru:
1. Sir Hugh John Macdonald,
dómstjóri og fyrverandi stjóm-
arformaður; einhver vandaðasti
og merkasti pólitískur maður,
sem fylkið á.
2. Tupper lögmaður, merkur
maður, sonur Sir Charles Tup-
pers.
3. Galt kaupmaður, sonur
Sir G. T. Galts.
Canada hefir tekið miklum
framförum í ýmsum greinum
síðan 1867 og má nefna meðal
annars það, sem hér segir:
pá voru hér 10,000 skólar, nú
eru þeir 26,000; þá voru hér
11,000 kennarar, nú era þei
39,000; þá voru hér 664,000 nem-
endur á skólum, nú eru þeir
1,400,000; þá var hé varið $2,-
500,000 árlega til mentamála, nú
er varið til þeirra $56,000,000;
þá voru hér 3,371,594 íbúar, nú
eru þeir 8,700,000; þá nam verzl-
unin hér $131,027,532, nú nemur
hún $2,249,170,171; þá voru hér
Kaupmannahafnar
Búið tilúr hin-
um beztu, elstu,
safa- mestu tó-
baks blöðum, er
Þetta er tóbaks-askjan semíibyTgSt að VeLa
hefir að innihalda heimsinsalgjörlega hfemt
bezta munntóbak.
Hja öllum tobakssölum
Munntóbak
2,278 mílur af jámbrautum, nú
eru þær 37,434; þá voru hér eng-
ar komhlöður, nú eru þær 3,059;
þá voru hér engir talsímar, nú
eru þeir 54j,421; þá vora hér
engar rafmagnsbrautir, nú eru
þær 2007 mílur; þá vora fluttir
héðan 2,284,702 mælar af hveiti;
nú eru þeir 157,745,469; þá var
hér námuframleiðsla fyrir $10,-
000,000, nú er hún $170,000,000;
þá voru fluttar út búsafurðir
fyrir $12,871,055, nú er það fyr-
ir $249,661,194; þá voru innflutt-
ar vörur alls fyrir $73,459,644,
nú eru þæT' fyrir $845,330,903;
þá voru útfluttar vörur alls fyr-
ir $57,567,888, nú eru þær fyrir
$1,151,375,768. —
Manitoba fylki gekk í ríkis-
sambandið 1869, þá voru þar að-
eins 12,000 íbúar, en við síðasta
manntal voru 553,860 manns;
þá var þetta fylki aðeins 13,000
fermílur á stærð, nú er það 251,-
832 fermílur.
Fyrsti stjómarformaður í
Manitoba var Alfred Boyd.
Forsætisráðherrar þar hafa
verið þessir:
1. Alfred Boyd, frá 16. sept.
1870 til 14. des. 1871.
2. M. A. Girard, frá 14 des.
1871 til 14. marz 1872.
3. H. J. H. Clarke, frá 14.
marz 1872 til 8. júlí 1874.
4. M. A. Girard, frá 8. júlí
1874 til 2. des. 1874.
5. R. A. Davis, frá 2. des.
1874 til 16. okt. 1878.
6. John Norqvuay, frá 16.
okt. 1878 til 24. des. 1887.
7. D. H. Harrison, frá 26. des.
1887 til 19. jan. 1888.
8. Thomas Greenway, frá 19
jan. 1888 til 6. jan. 1900.
9. Hugh John Macdonald, frá
10. jan. 1900 til 29. okt. 1900.
10. Redmond P. Roblin, frá
29. okt. 1900 til 2. maí 1915.
11. T. C. Norris, frá 2. maí
1915 til þessa dags.
Stjórnarfyrirkomulagið í Can-
ada er nú þannig að konungur
skipar landstjóra sem fulltrúa
sinn; han skipar aftur fylkis
stjórana. pingið í Ottawa
skiftist í tvær deildir; í efri eða
öldungadeildinni eru 87 útnefnd-
ir af stjórninni: 24 frá Quebec,
24 frá Ontario, 10 frá Nova
Scotia, 10 frá New Branswick,
4 frá Manitoba, 4 frá Prince
lEdward Island; 3 frá British
Columbia, 4 frá Saskatchewan;
4 frá Alberta.
í neðri málstofunni eru 221
þjóðkjörinna þingmanna: 86 frá
Ontario, 65 frá Quebec; 18 frá
Nova Scotia; 13 frá New Bruns-
wick; 10 frá Manitoba; 7 frá
British Columbia; 4 frá Prince
Edward Island, 10 frá Saskat-
chewan; 7 frá Alberta og 1 frá
Yukon.
Canada er talið að vera 3,-
744,695 fermílur að stærð með
7,700,000 íbúa. par era vötn
150,000 fermílur og fjallaklasi,
stór að vestan með 16,000 feta
háum tindum. Par era 65 bæir
með 5,000 íbúum hver og þar
yfir.
pess má geta að staða þing-
mannanna í öldungadeildinni er
æfilöng og verða þeir að vera að
mmsta kosti 30 ára gamlir; vera
brezkir borgarar og eiga að
minsta kosti $4,000 virði af fast-
eignum í því fylki, sem þeir
koma frá.
miluna fyrir ferðir sínar; en $]
eru dregnir frá launum þeiri
íynr hvem þingdag, sem þe
eru fjarstaddir, án þess að þe
^oUnooe'lk'Ír’, RíkisstJÓrinn fa
5U,oyo í arslaun og er útnefndi
ára; með honum eru all
i aoherramir í f ramkvæmda
nefnd og hafa þeir $7,000 lau
$12 0QQrsætisráð,lerrann hef
Skólastjóri kvaddur.
Séra Crummy forstöðumaður Wes-
ley skólans og forhiaður siðbótafé-
lagsins í Manítoba, hefir tekið köllun
til safnaðar í bænum Moose Jaw í
Saskatchewan. Allmargir menn úr
siðbótafélaginu héldu honum samsæti
á föstudaginn í kveðju skyni og vott-
uðu honum þakklæti fyrir það mikla
verk, sem hann hafði hér haft með
höndum og þau góðu áhrif, er hann
skilur eftir. Stephens kaupmaður
stýrði samsætinu, en séra Harkness
skrifari siðbótafélagsins, Dr. Sin-
elair o& Battram lögmaður fluttu séra
Crummy ræður fyrir hönd gestanna.
Dr. Hugheson talaði auk þess nokkur
orð; en séra Crummy hélt sjálfur all-
langa ræðu, og mjög hugnæma.
Engir íslendingar voru þar nema A.
S. Bardal og ritstjóri Lögbergs. Sið-
bótafélagið hefir enn ekki kosið sér
formann í stað séra Crummy.
Réttlátur dómur.
---- /
Þess minnast menn eflaust að Lög-
berg skýrði frá því að maður að nafni
Myke Fox myrti konu sína 8. apríl
1916, og skar sig síðan á háls á eftir.
Þannig stóð á að hann var nýkvænt-
ur, unni konu sinni hugástum og
hugsaði vakinn og sofinn um heimili
sitt. Þá var það að hann kostaði
frænda sinn hingað frá Galiciu; veitt:
honum ókeypis hús og heimili og
fæði á meðan hann var vinnulaus, en
sjálfur utan heimilis við störf sín.
Það kom upp úr dúrnum að þessi ný-
komni maður hafði tælt konuna til
ásta við sig, og var hann faðir að
barni, er Myke hélt að hann ætti sjálf-
ur. Þegar hann komst að þessu
misti hann alla stjórn á sjálfum sér
og tók það til bragð sem fyr er sagt.
En þótt skurðurinn væri afar stór,
varð maðurinn loks græddur, og þá
var mál hans rannsakað. Galt dóm-
ari dæmdi hann frían eftir snildar
ræðu, sem Bonnar lögmaður flutti
'fyrir hann.
Dr. Robinson
Sérfræðingur í tannsjúkdómum
BETRI TANNLÆKNING FYRIR MINM BORGUN
Ef þú ert í vafa um hvcrt tennHr þínar séu heilbrigðar eða ekki þá þarft
þú að fá ráðleggingu tannlæknis. Sá tannlæknir ætti að vera maður sem
hefir gott álit á »ér sem lœknir og sömuleiðis er það áríðandi að hann sé
eins vel að sér í list sinni og nokkur getur verið. Nú á dögum eru þeir
fáir sem ekki viðurkenna þýðingu sérfræðinganna, hvort heldur er í al-
mennum lækningum eða tannlækningum. Minnist þess að ef þér kom-
ið til vor þá verður traust yðar ekki ódrengilega notað, því allar vorar að-
ferðir eru reyndar og sannaðar og fólk veit um áreiðanleik vorn. Fyrir
tíu árum voru það margir af 'borgurum Manitoba sem trúðu mér fyrir
því að lagfæra tennur þeirra. Þessa fyrstu sjúklinga tel eg byrjun hinnar
miklu aðsóknar sem eg hefi haft síðan eg fór að stunda tannlækningar.
Svo vel hefir mér gengið að tugir tannlækna hafa sest að í nágrenni mínu
’átið því ekki blekkjast þegar um það er að ræða að velja stað.
Permanent Crown og
Bridge Work, hver tönn
Og það var áður $10.00
BIRKS BUILDING,
WINNIPEG,
MAN.
I 2 Stólar
..$7
Whalebone Vulcan-
ite
Opið til kl. 8 á kveldin
halebone Vulcan- (b 1 A
Plates. Settið... 'P ' L/
Dr. Robinson
TANNLÆKNIR
Meðlimur Tannlœkna Skólans t Manitoba.
10 Sérfræðingar 5 Kvenmenn