Lögberg - 02.08.1917, Qupperneq 7
LOGiiEKG, FIMTIJDAGllNrí 2. ÁGÚST 1917
7
Bœtir að mun hvert smjörpund
mdsor
Dairy
THE
Everett, Wash. 22. júlí 1917.
Herra Ritstjóri Lögbergs.
Vi8 höfum ekki meStekiö 26.
númeriö af lögbergi, þaö hefir ein-
hvernveginn fyrirfarist í póstinum
og biðjum viö yöur vinsamlega aö
senda okkur það, því heldur viljum
viö missa máltiö á dag en að missa
Lögberg, því oft sjáum við fréttir og
upplýsingar í Lögbergi, sem algjör-
lega v'æri manni tapaöar, væri þaö
ekki fyrir þennan litla vikulega blaöa-
I>akka, sem hingað berst á mánudög-
um, sem er andlegt fóöur fyrir alla,
sem íslenzku elska.
Hér í Everett eru fáir Landar, ein
íslenzk hjón og fáeinar íslenzkar
konur, giftar enskum mönnum; einnig
eru hér fáeinir piltar, sem koma og
fara án þess maður frétti um það fyr
en eftir á. Einn þeirra höfum við
þó aö staðaldri, þaö er Ágúst ísfeld,
hann vinnur við kjötverzlun og er
sonur Jóns sálugu kafteins frá
Selkirk. íslenzku hjónin eru t>or-
valdur Einarsson og seinni kona hans
Gunnfr. Jónína Kristjánsdóttir. Þor-
valdur kallar sig Walter Anderson;
hann kom frá Sjónarlandi í Þistil-
firöi fyrir mörgum árum. því hann
er búinn að vinna um 30 ár fyrir
Hill Járnbrandar konunga. Ýngri
sonur Þorvaldar er nú á Herskipinu
“Dakota”, hann var háskólastúdent
og gekk prýöis vel námið, sem sjá má
af því aö drengurinn, sem er enrr fyr-
ir innan tvítugt, hafði innunnið sér
f jórar gullmedalíur. En þá kom kall-
iö í þetta voöa stríö, sem yfir dynur.
Það eru fjórir mánuðir siðan hann
fór að heiman.
6. júní fór annar efnilegur drengur
aö heiman, áöur en herskyldan kall-
aöi, það var Óskar T. Purdy, dóttur
sonur Sigurdrifar sál. Maxin; hann
er nú viö heræfingar á Mare Island,
California.
En nú er herskyldan komin yfirleitt
og mörgum er þungt fyrir hjarta og
ástæöur ekki ósvipaðar og þegar
Kjartan og Bolli bárust á banaspjót-
um. Þaö verður margur hermaöur-
inn sem hefir Kjartans hugprýöi og
margur sem liður líkt og Bolla eftir
vlgið.
Ýfirleitt eru nú allar mylnur að
gerðarlausar, sökum þess að verka
menn vilja fá 8 stunda vinnutíma;
einnig hafa strætisvagna menn og
margar aðrar vinnudeildir verka-
manna hætt vinnu, og heimta ýfirleitt
átta stunda vinnu, og heimta yfirleitt
þeir áöur fengu fyrir 10 tíma vinnu.
Þetta verkfall er því nær alment frá
Mexicó til Montana.
Fyrirgefið þessar linur. Með beztu
óskum um vellíðan.
Kauþandi Lögbergs.
MINNING.
Hann hafði öra lund og virtist taka 1 það er þau síðan dvöldu á að Cold
lífið létt; vissu þó þeir sem þektu j Springs. Þar dó Jón sál. fyrir nokkr-
hann bezt að hann, eins og margirjum árum og bjó hún eftir það með
aðrir, bjó yfir sorgum þrátt fyrir ytri j börnum sínum þar til hún nokkrum
glaðværð, enda getur fátt verið sorg-,árum síðar giftist aftur nú eftirlif-
legra fyrir ungan'mann,, sem er að. andi manni sinum herra Gunnari Ein-
byrja lífið en það að vita að heilsan' arssyni er flutt hafði hér út í bygð-
sé á förum, og fyrirhugað æfistarf, j ina frá Winnipeg. Hún lætur eftir
eða minsta kosti unglings-þráin tii \ sig 3 börn af fyrra hjónabandi, tvo
starfs verði að leggja árar í bát. En P'lta og eina dóttur, öll mannvænleg
hann kvartaði ekki og talaði ekki, böm og heita þau Brynjólfnr, 25 ára;
æðru orð, heldur tók því sem að i Magnús, 23., og Sigríður, 17 ára; en
höndum bar, fyrst og síðast með karl- með síðari manni sinum eignaðist hún
ekkert barn.
Anna sál. var prýðis vel skynsöm
kona, mjög vel trúrækin og guðelsk-
andi, og innrætti börnum sínum alt
)að góða og göfuga sem hún hafði
yfir að ráða frá hendi forstjónarinn-
ar. Hún var gædd framúrskarandi
tarfsþreki bæði fyrir sjálfa sig og
Fyrir nærri ári síðan v'ar þess
minst i blaðafregn héðan frá Lundar
að bróðir minn, Jón Böðvarsson væri
dáinn. Þó missir sá væri alls ekki
óvæntur, varð okkur systkinum i svip
ósýnt um að rita minningar, eða
fregnir er dauðsfall þetta snerti. En
yfirvegun og tímalengdin græða að
einhverju leyti flest sár. Vil eg þvi
nú minnast þessa látna bróður míns
nokkru nánar en þar er gjört.
Hann var fæddur 9. nóv. 1889
Firði í Múlasveit í Barðastrandasýslu
á íslandi. Foreldrar okkar, Böðvar
Guðmundsson og Guðrún Jónsdóttir
fluttu að Múla í sömu sveit er Jón sál
var 4 ára. Dó faðir okkar þar fimm
árum síðar. En móðir, okkar fluttist
til Vesturheims, með börn sín, og
settist að í þessari bygö. Ólumst við
hér upp eftir það.
Hann stunaði hér um hríð rakara
iðn, er hann lærði rúmlega tvitugur.
En nokkru síðar kendi hann veik
þeirrar, er síðar leiddi hann til bana,
Hvíti dauðinn varð honum að fjör
lesti. Var sjúklingnum þá v'eitt sú
hjálp sem mögulegt var á hinu ágæta
hæli fyrir tæringarveikt fólk—Ninette
Dvaldi Jón sálugi þar i 18 mánuði
og virtist batna allmikið, svo hann
varð enda vel verkfær um hrið. En
lungum voru skemd svo mjög að heili
heilsu bjóst hann ekki við að verða
en vonaði að lif og starfsþol héldist
enn um hríð. En dauðinn spyr ekk
ert eftir þrá sjúklinga eða vina
þeirra. Bróðir minn dó 13. ágúst síð
astliðinn eftir fimm vikna legu.
Það lætur að líkum að um æfistarf
ntanns sem dyr þegar fullorðinsárin
eru að byrja, getur ekki verið mikið
að segja. Hitt vil eg reyna, að lýsa
lyndiseinkunnum hans með örfáum
pennadráttum.
mensku.
Þeim öilum, sem eitthvað höfðu
gert til þess að létta honum byrði
lífsins var hann hjartanlega þakklát-
ur. En gagnvart þeim hafði hann
aldrei tilfinningar sinar til sýnis. Ne
neinum öðrum. Hann hélt ekki hól-
ræður, en bæði mundi og vissi það
sem vel var gert, og þráði af heilum
hug að endurgjalda það, ef kraftat
hefðu leyft. En til þess gafst ekki
bið né tæki. Læt eg þvi línur þessar
flytja þeim öllum kveðju og árnaðat
óskir, sem eg veit hann hefði viljað
flytja þeim sjálfur.
Það er erfitt að þreyja, mörg ár,
lifa, en vita af öflum dauðans, starf-
andi i brjósti sínu, og æðrast þó ekki,
en flytjast með jafnaðargeði nær tak-
mörkunum, þá þrekraun leysti hann
af hendi. Og eg sem kvaddi hann
deyjandi veit líka. að yfir engu er
að æðrast. Eg veit að við hittumst
aftur. Og það kennir manni einnig
að bera skilnaðinn með jafnaðargeði.
Systir hins látna.
Mrs. Sigurbjörg Pétursson.
fÆfiminningJ.
Þess hefir áður v'erið getið í blöð-
um að 17. maí 1917 hafi andast í
Minneota sæmdarkonar Sigurbjörg
Pétursson, ekkja Sigfinns Pétursson
ar frá Hákonarstöðum i Vopnafirði.
Sigurbjörg var dóttir þeirra hjóna
Sigurðar Jónssonar og Elínar Jóns-
dóttur á Refstað. Hún var fædd 7.
maí 1843, og því 74 ára gömul er húr.
dó. Hún var tvígift, var fyrri maður
hennar Björn Hallsson, ættaður frá
Bessastaðagerði í Fljótsdal. Honum
giftist hún árið 1866, og bjuggu þau
síðan á Fossgerði unz hann dó eftir
að þau höfðu í hjóanbandi lifað í 7
Börn eignuöust þau þrjú, eru
synir þeirra tveir, Hallur og Jörinn,
efnismenn í Minneota, en dóttir
æirra, Karólina, andaðist í Minneota
1894.
í annað sinn giftist Sigurbjörg árið
1874, Sigfinni Péturssyni, og fluttust
jau hjón til Ameríku 1878. Námu
au land í Lincoln County í Minne-
sota og nefndu bæ sinn Háuhlið
Bjuggu þau þar ávalt þar til árið
1899 að þau fluttust til Minneota og
'njuggu þar til dauðadags. Sigfinnur
andaðist nokkru fyr, eftir langa legu
Þá tið, sem þau Sigfinnur og Sigur-
björg bjuggu á Háuhlíð, var heimili
þeirra annálað gestrisnis og góðvild-
ar heimili. Þau Sigfinnur eignuðust
þrjá syni og eru þeir allir á lífi, merk-
ismenn: Sigfús, bóndi í McLean
County í Norður Dakota; Jósef verk
fræðingur i Colarado og Sigurður
kennari við háskólann í Oregon. Auk
barna sinna tóku þau til uppeldis
nokkur börn önnur. Kjördóttir þeirra,
Bertha Peterson ('fædd Armstrong)
var hjá þeim meðan bæði lifðu, en er
nú til heimilis i Minneapolis.
Það má unt sigurbjörgu sál. segja
að hún hafi verið góðkvendi mesta.
Henni vár margt vel gefið, en bezt
þó hið hreina og ástríka hjarta. Það
v-ar eins og hún væri sköpuð til þess,
að gera gott og gleðja. Yndi hennar
var góðverkasemi. Börnunum var
hún hin ástríkasta móðir, og við
brugðið er þreki hennar og þolgæði
cr hún stundaði bónda sinn sjúkan
ár eftir ár með stakri trygð og fórn
fýsi. Öllum vildi hún gott gera, en
einkum lét hún sér ant um fátæk eða
munaðarlaus börn. Glaðlynd var hún
og átti aldrei svo erfitt, að ekki gæti
hún fært öðrum gleði. Hún var guð
hrædd kona og innrætti börnum sin
um lotningu fyrir Guði. Minning
hennar geymist i þakklátum hjörtun
longan aldur.
Vinur.
aðra, hún var stjórnsöm húsmóðir og
ástúðlegasta móðir barna sinna; hún
var sístarfandi meðlintur kvenfélags-
ins “Björk” meðan kraftar endust og
studdi af alhug kirkjumál og kristin-
dóm, og var í söfnuði alla tíð frá þvi
fyrst er söfnuður myndaðist hér og
ildi styðja allar manrtúðar óg líknar-
stofnanir eftir megni. Glöð og gest-
risin var hún við hvern og einn án
manngreinarálits, enda bar þar marg-
an að garði, því heimili hennar var
við alfara braut, og þar af leiðandi
naut hún hylli fólks og vináttu.
Hennar er því sárt saknað af vinum
og vandamönnum og öllum almenn-
ingi.
Blessuð sé minning hennar.
Vinur hinnar látnu.
Andlátsfregn og œfiminning
ðiinu sál. Hryiijólfs^lóttur.
aí)
Ekki
einn
í dómi.
Tannlækning.
VIÐ Köfum rétt nýlega fengið tannlæknir sem
er ættaður frá Norðurlöndum en nýkominn
frá Chicago. Hann hefir útskrifast frá einum af
stærstu skólum Bandaríkjanna. Hann hefir aðal
umsjón yfir skandinavisku tannlækninga-deild
vorri. Hann brúkar allar nýjustu uppfundingar
við það starf. Sérstaklega er litið eftir þeim sem
heimsœkja oss utan af landsbygðinni.
Skrifið oss á yðar eigin tungumáli Alt verk
leyst af hendi með sanngjörnu verði.
REYNIÐ OSS!
VERKSTOFA: TALSÍMI:
Steiman Block, 541 Selkirk Ave. St. John 2447
Dr. Basil O’Grady,
áður bjá Intemational Dental Parlors
WINNIPEG
Anna sál. Einarson andaðist
kveldi liins 30. júní þ. á. að heimili
sínu við Cold Springs P.O., Manitoba
Jarðarförin fór fram frá heimili
hinnar látnu 4 júlí með því að séra
Jón Jónsson frá Lundar P. O. hélt
húskveðju og jós hana síðan moldn
Lundar grafreit að viðstöddu fjöl-
menni.
Anna heit. Brynjólfsdóttir Einar-
son varð 55 ára að aldri. Hún var
búin að liggja rúmföst meira en ár
þegar góðum Guði þóknaðist að gefa
lienni hvíld. Sjúkdóm sinn bar hún
með stakri stillingu og þolinmæði til
síðustu stundar.
Því miður getur sá er þetta ritai
ekki gefið ítarlegar upplýsingar um
ætt hennar. En foreldrar hennar voru
þau hjón Brynjólfur Jónsson og
Steinunn Guðmundsdóttir er síðast
vöru á Bjarneyjum í Barðastranda-
sýslu á íslandi. Níu ára gömul var
Anna sál. þegar hún var tekin til
fósturs af Jóni Jónssyni og Helgu
Gísladóttur, er bjuggu í Rauðseyjum
a Breiðafirði og ólst hún þar upp til
fullorðins ára. Hún var 25 ára, þeg-
ar fóstra hennar Helga andaðist, og
tók hún þá við innanhússtjórn og
búsforráðum með fóstra sínum.
Þremur árum síðar gekk fóstri henn-
ar Jón Jónsson að eiga hana og
bjuggu þau eftir það rausnarbúi í
Rauðseyjum samfleytt 8 ár, þar til
vorið 1898 að þau fluttust vestur
yfir haf til Canada. Settust þau að
i Álftavatnsnýlendu hér og voru 1—2
ár að Lundar P. O. og Mary Hill.
Að þeim liðnum keypti Jón heit. latví
Fyrra miðvikudag, 25. júlí, skrifaði
ritstjóri Lögbergs stutta grein um Sir
Clifford Siíton.
Lesendur Lögbergs muna efni henn-
ar; þar var alt sagt satt, aðeins ekki
nógu mikið.
Næstu tvo daga á eftir létu fleiri
blöð i ljósi álit sitt á þessum manni.
Á fimtudaginn þann 26. flutti
“Calgary News-Telegram" það sem
hér segir: “Fréttir berast í dag þess
efnis að Sir Clifford Sifton ætli sér
að vinna á móti því að Laurier verði
leiðtogi frjálslyndra manna framveg-
is. Tjaldið hefir auðsjáanlega verið
dregið upp með bréfi Siftons til
Bostocks efrideildarmanns, sem nú er
prentað. Þvi er einnig flcvgt að
Sifton sé að nudda sig upp við þá cr
ráð hafa yfir leiðtogastöðu frjáls-
lynda flokksins í Vesturfylkjunurn,
sem mætir á flokksþingi í Wmnipeg
eftir rúma viku. Nú er sá leyndar-
dómur ráðinn hvers vegna Winnipeg
Free Press, málgagn Siftons, hefir
verið að heimta nýjan leiðtoga fvrir
frjálslynda flokkinn, og með þessu
er einnig skýring fer.gin fvrir hinni
eyndardómsfullu hreyfingu íyrir
samtseypustjórn, sem byrjuð var
fyrir rúmu ári, þótt sú hreyfing kæm-
ist aldrei mikið lengra en feður henn-
ar á bak við tjöldin. Lesendur
Telegrams munu minnast athuga-
semda vorra þá. Það hefir verið
mjög einkennilegt að veita eftirtekt
hinum mörgu stjórnmálabrellum og
krókum síðastliðið ár; og ef lesendur
vorir bera saman athugasemdir vorar
við það sem einmitt nú er að koma
fram, þá þorum vér að segja að þeir
verða hissa á þeirri nákvæmni sem
kemur fram í spádómum v’orum fyrir
sex mánuðum.”
Á föstudaginn flytur svo “Winni
peg Tribune” það sem hér segir:
“Guðsorð ráðleggur mönnum að
vara sig jafnvel á nálægð hins illa,
hvað þá á hinum illa sjálfum.
Nálægð Cliffords í Vestur Canada
einmitt nú, álita menn einskis góðs
vita fyrir neinn pólitískan flokk, er
hann hefði nokkuð saman við að
sælda. Þannig er eðlilega álit þeirra
sem eiga heinia fjarri fyrsta dvalar-
stað hans hér vestra. Afturhalds-
menn forðast hann; allir rnenn er
sjálfstæða liugsuu hafa og ant láta
sér um pólitíska velferð Canada liafa
bölvun á honum; og jafnvel meðal
hinna nýju “frjálslyndu” manna er
hann litinn hornauga. Hann er fyrir
löngu útlægur sem ómögulegnr hjá
öllum gömlum frjálslyndum mönnum.
Nú rekur hann upp nefið aftur hér og
þar og verður auðsjáanelga ekki
írekar ágengt.
. Það að hann eyðilegði nreð öllu alt
álit og alt tækifæri hvaða flokks sem
hann hefði nokkur yfirráð hjá, eða
sem væri svo missýnn að fara að
nokkru eftir ráðum hans eða villast
út á leiðir hans, um það eru alls ekki
skiftar skoðanir. Það er nógu þung
bært að verða að halda við blaði
hans „Free Press” og líða það. Hitt
að þo*.’ hann sjálfan væri ómögulegt
jafnvel allra sterkustu og öflugustu
stofnunum í pólitískum efnurti.
Það er að eins réttláv gagnvart
þeinr er fyrir flokksþinginu Jzangast
að geta þess, að eftir því sem ’vér
bezt vitum óska þeir eiirskis fremur
en að Sifton verði sem allra lengst i
burtu frá flokksþinginu. Það er öll-
um kunnugt að jafnvel nærvera hans
einhversstaðar i grend við þingið
væri nóg til þess að svifta það allri
virðingu, áliti og áhrifunr, hversu
nrikil einlægni og hversu mikið frjáls-
lyndi sem þar ríkti að öðru leyti.
Blaðið “Nevvs-Telegram” og önnur
blöð höfðu fullan rétt á þvi að segja
það, sem þau sögðu unt bréfið frá
Sifton til Bostocks og þær grunsenrd-
ir, sem þau létu í ljósi um það þegar
Clifford Siíion birtist í Winnipeg.
Sprengingin var auðsjáanlega vel
reiknuð út, og nrenn lrafa rétt til þess
að leggja saman tvo og tvo. En vér
viljum itreka það að eftir nákvæma
pólitiska ílrugun og athugun í Winni-
peg, er það auðsjáanlegt að enginn
gestur er óvelkomnari þeim serrr
frenrstir teljast en einmitt Clifford
Sifton. Því er stranglega haldið
frant af þeim, sem fyrir nrálum
standa, að hann sé hér hvorki að gefa
ráð, né heldur sé ráða hans óskað, og
V T VAÐ sem þér kynnuð að kaupa 1—I af húsbúnaði, þá er haegt að * semja við okkur, Kvort heldur fyrir PENINGA ÚT I HÖND eða að LÁNI. Vér höfum ALT tem til hú.búnaðar þarf. Komið og skoðið 0VER-LAND H0USE FURNISHING C«. Ltd. 580 Main St., korni Alexander Ave.
NORWOOD’S T á-nagla Me ð al læknar fljótt eg vel NAGLIR SEM VAXA I H0LDIÐ Þegar meðalið er brúkað þá ver það bólgu og sárs- aukinn hverfur algerloga ÞAÐ MEÐAL BREGST ALDREI Tll sölu hjá lyf.ölum eða sent með pósti fyrir $1.00 A. CfiHOTfHHS, 164 Roseberr) St.,St James Búið til i Winnipeg
íoc TOUCH-O 25c ÁburSur tll þess aS fægja m&lm, er 1 könnum; figætt fi málmblending, kopar, nikkel; bæSI drýgra og firelS- anlegra en annaS. WUmipeg Silver Plate Co„ I.td. 136 Rupert St., Winnipeg.
Tals. M. 1738 Skrifstofutimi: Heimasími Sh. 3037 9 f.h. til 6 e.h CHARLCS KREGER FÖTA-SÉRFRÆÐINGUR (Eftirm.Lennox] Tafarlaus lækning á hornum, keppum og innvaxandi nöglum. Hraðnudd og fleira. Sulte 2 Stobart Bl. (90 Portags Rve., Winqipeg
Sendið Lögberg til íslenzkra hermanna
Business and Professional Cards
Dr. R. L HURST.
Member of Royal Coll. of Surgeons,
Eng„ útskrifaBur af Royai College of
Physicians, London. SérfræCingur I
brjöst- tauga- og kven-sjúkdómum.
—Skrifst. 306 Kennedy Bldg, Portage
Ave. (fi, mðti Baton’s). Tals. M. 814.
Helmili M. 2696. Tlml til viStals:
kl. 2—6 og 7—8 e.h.
Dr. B. J.BRANDSON
Office: Cor. Sherbroeke & WiUiam
TlUPSONl GARRY 380
Or»ic»-TtMAR: i—j
Helmili: 77C Victor 3t.
TRUriOMI GARRY 381
Winnipeg, M»n.
Dagtals. St.J. 474. Næturt. St.J.: 866.
Kalli sint á nðtt og degi.
D R. B. GERZABEK.
M.R.C.S. frá Englandi, L.R.C.P. frfi
London, M.R.C.P. og M.R.C.S. frfi
Manitoba. Fyrverandi aSstoðarlæknlr
við hospital í Vínarborg, Prag, og
Berlln og fleiri hospltöl.
Skrifstofa 1 eigin hospftali, 416—417
Pritchard Ave., Winnipeg, Man.
Skrifstofutími frá 9—12 f h • 3_$
og 7—9 e. h.
Dr. B. Gerzabeks eigið hospítai
416—417 Pritchard Ave.
Stundun og lækning valdra sjúk-
linga, sem þjást af brjðstvelki, hjart-
veiki, magasjúkdðmum, innýflavelki
kvensjúkdðmum, karlmannasjúkdóm-
um, taugavelkiun.
Vér leggjum sérstaka fiherziu & aC
selja meSöl eftlr forskriftum lækna.
Hin beztu lyf, sem hægt er aS ffi,
eru notuB eingöngu. Pegar þér komiS
meS forskrlftlna tii vor, meglS þér
vera viss um aB fá rétt þaS sem
læknirinn tekur til.
COLCLKCGH & CO.
Notre Dame Ave. og Sherbrooke St.
Phones Garry 2690 og 2691
Giftingaleyflsbréf seld.
Dr. O. BJORN&ON
Office: Cor, Sherbreoke * WUliaa
rMLRV.OffRlGARRY 390
Offioe-timar: 2—3
HKIMILIl
7«4 Victor t,»mt
IZiaraoHzi garry Toa
Winnipeg, Man.
Dr- J. Stefánsson
401 Boyd Buildins
COR. POHTRfil m. flc EO MOfiTOfl ST.
Stuadar eingðngu augna, eytna. nel
og kverlca ajúkdóma. — Er að hitta
frákl. 10-12 f.h. eg 2-5 e.h —
Talaimi: Main 8088. Heimili 105
Olivia St. Taleimi: Garry 2315.
það er sannarlega erfitt að trúa því,
að það sé mögulegt að hann verði
hluttakandi eða ráðandi á þinginu.
Margir láta þá von í ljós að hann
hypji sig á brott áður en þingið hefst,
og að hann verði sem léngst í burtu
framvegis, munandi eftir hinum af-
ar óvingjarnlegu viðtökum er hann
h]aut hér síðast er hann kom fram
opinberlega; vænta inenn þess að
samskonar viðtökur verði endurtekn-
ar svo ótvíræðlega að þeim manni
yrði eftirminnilegt, sem var einn af
aðal þátttakenduin í samsæri því er
klauf frjálslynda flokkinn.”
Af þessu sést það að ritstjóri Lög-
bergs er ekki einn í dómi um álit á
Sifton.
G I GTVEI K I
Profe*8or8 D. Motturas
Liniment er hið eina á-
byígiiega lyf við alUkonar
gigtveiki í baki, liðum og
taugum, það er kið eina
meðal sem aldrei bregst.
Reynið það undireins og
þér m nuð sannfæratt.
Flaskan kostar Jil.OO og
15 cent í burðargjald.
Einkasalar fyrir alla Canada
M0TTURAS LINIMENT Co.
P.O. Box14S4 Winnipeg;
Dept. 9
Or ..Tímariti Þjóðfélagsins”
Þetta mferkilega rit er gefið út í
Reykjavík og er ritstjóri þess Runki
Rarnban.
Fyrir 100 árum.
Jón gamli les í Þjóðvinafélags-
almanakinu fvrir árið 2016 fyrir
heimilisfólkinu ofannefnda grein er
svo hljóðar fútdrátturj.
Þá gerðust mörg undur og við-
undur. Þá geysuðu ættarnefni og ó-
nefni.
Stjórnarráðið lét gefa út stórfelt
rit, stærsta ritið, sem út kom á árinit,
samið af nefnd, sem skipuð hafði ver-
ið til þess að koma þessu nauðsynja-
máli á rekspöl. Nefndin valdi unaðs-
leg nöfn og með svo framúrskarandi
fegurðartilfinningu og glöggsýni á ís-
lenzkri málmyndun, að slíkt hefir al-
drei þekst fyr né síðar. Þegar bókin
kom út gekst háskólinn, Bókmentafé'
lagið og Stúdentafélagið fyrir sam
komu á Austurvelli til heiðurs nafna-
nefndinni. Voru þar um 10 þúsund
manna saman komnir, og Austurvöll-
ur alskreyttur fánum. Ræðupallur var
reistur á rústum hótel Reykjavíkur,
stafna milli. Þar héldu vegsamleg-
ustu lofræðurnar: Árni Pálsson,
Bjarni Jónsson frá Vogi. séra Magnús
Helgason, Andrés Björnsson, Alex-
ander Jóhannesson og Bogi Ólafsson.
Ræður þessar eru prentaðar i blöð-
unum frá þeim tíma og geta menn
sjálfir dæmt um þær, en reyndar er
ekki víst að öllurn falli þær. Þó væri
ef til vill hægt að verja tíma sínum
ver e.' með því áð líta yfir þær.
Kvæði nö(fðu verið ort fyrir tæki-
færið. Þar ^ar t. d. sungið óg spilað
undir á draggargan:
Ættarnafn þurfa nú allir að fá,
sú ugla er vælandi á hverjum skjá.
Þjóðerni vort er í voð'a statt
ef vér ei sinnum því málnhratt.
Arnórson valdi því “om en Hals”
Einar og Guðmund og Páhna Páls,
að velja’ okkur heiti, og vert ér að sjá
þá verðlagsskrá.
Kynskifti öll er þeim illa við,
því alt á að vera' að nútízku sið.
Feðranöfn duga’ ekki dætnunum
er drottinn þær sæmir marininum.
Þá væri þó skárra frú Skeggstar hjá
fyrir Skutfer bónda’, að ejí minnist
ei á
þann unað sem fengi hinn ungi
Reyðfer
hjá ungfrú Loðfer.
Að samkomunni lokinní fóru allir
hver heim til sín, og tóku nú að
hugsa fyrir alvöru um nöfn handa
sér og sínum. Ekki máttu þau vera
klúr eða “sénerandi”, og því tóku
sumir það ráð að nota gamla móðinn,
að láta dönskuna hjálpa ofurlítið til,
þó að ekki væri nema í endanum.
Einn þótti hafa komist lengst næsta
dag, hann kallaði sig Dritfersen. Og
hann var öfundaður.
Næstur tók Runki gamli ritstjóri
sér ættarnafn, og kallaði sig Ramban.
Svo rambaði hann, og það þótti
smekklegt. Ungfrúr og piparmeyjar
eltu hann á röndum stöðugt eftir það.
Það stóðst hann ekki, og svo kvong-
aðist hann.
Það urðu fáir eins orðhagir og
snjallir eins og Runki gamli. Menn
voru yfirleitt í miklum vafa með að
velja nöfnin, svo að þau yrðu hvorki
ósmekkleg né viðrinisleg. Það var
ógift fólk sérlega varkárt með. En
helzt þurftu þau að vera eitthvað
öðruvísi en þekst hafði áður.
Einn skýrði sig Kaldalóns og j>ótti
skrautnafn. En jiað halda gamlir
menn að eitthvað muni minna á Jiað
þessi vísa:
Allir vilja ættinni
æfi- létta -tjónið.
Mjög er unnað ungfrúnni,—
------allir virða “lónið”.
Margir flugust á um viðurnefni,
sem menn höfðu fengið á írlandi í
fornöld, og héldu að Jtað væru ættar-
nöfn. Kvaran þótti tildæmis sérlega
gott. Ólafur konungur Ira var kall-
aður kvaran af }>ví hann kom þar í
loðskinnsleistum, en sá hlutur hét á
írsku kvaran. Vér mundum hafa sagt
Ólafur skinnleistur eða á skinnleist-
unum.
Ein visa, sem kunn er, minnir á
að það nafn hafi einhver tekið sér
um þetta leyti:
Skolli varð honum Einari á.
Um er spurt, hvort honum
raddir andans ómi frá
eða skinnleistonum.
Yfirleitt völdu allir nöfnin svo
prýðilega, að niðjarnir ,lið af lið,
eftir J)vi sem Jteir komast til vits og
ára, hljóta að dáðst að hugðnæmi og
fegurðartilfinningu feðra sinna.
En þeirn til hægðarauka, sem ekki
hafa enn þá látið lögskrá sér ættar-
nöfn, vildum vér að endingu stinga
upp á nöfnum, sem einhverjum kynnu
að falla í geð, eins og t. d. Lóstar,
Titlvas, Nautfer, Raufon og Rang•
halan. Þau hafa eflaust af vangá
ekki verið tekin með í hið fagurfræði
lega ritv'erk nefndarinnar.
Tvíbeinn.
]y[ARKBT JJQTEL
Vje sölutorgið og Céty Hall
$1.0« tll «1.50 á dag
Eigandi: P. O’CONNELL.
J. G. SNÆDAL,
TANNLŒKNIR
614 Somerset Block
Cor. Portage Ave. eg Donald Street
Tak. mam 530£.
TaLimiS Garry 3324
J. W. MORLEY
Hann málar, pappírar
°f prýÖir hús yðar
ÁÆTLANIR GEFNAR
VERKIÐ ABYRGST
Finnið mig áður en þér
látið gera þannig verk
624 Sherbrook St.,Winnipeg
592 Ellice Ave. Tals. Sh. 2096
Ellice Jitney og
Bifreiða keyrsla
Andrew E. Guillemin, Ráðsm.
THE ÍDEAL Ladies & Gentlemens
SH0E DRESSING PARL0R
á móti Winnipeg leikhúsinu
332 Notre Dame. Tals. Garry 35
JOSEPH TAYLOR,
LÖGTAKSMAÐUR
Heimilis-Tals.: St. John 1844
Skrifstofu-Tals.: Main 7978
Tekur lögtakl bæSi húsaleiguskuld’ir,
veSskuldir, vlxlaskuldir. AfgreiSlr alt
sem aS lögum lýtur.
Rooni 1 Corbett Blk. — 615 Main St.
Talsímið Main 5331
HOPPS & Co.
BAILIFF8
Tökum Iögtaki, innbeimtum skuldir og
tilkynnum stefnur.
Room 10 Thomson BL, 499 Main
TH0S. H. J0HNS0N o«
HJÁLMAR A. BERGMAH,
fzLazkir löBffBia^ar,
Sz’ur.Tor*:- Room g„ McArYtn,
BuildiBg, Portage Avaaue
4*itob p. o. Box 1088,
TeLfóaar: 4503 o* 45o4. Winnipag
Gísli Goodman
TIHSMIÐUR
V1AK8TCB8I:
Horai Toronto og Notra Dama
Fred Hilson
Uppboðslialdarl og virðingamaðnr j
HúsbúnaSur seldur, gTipir. jarSir, fast--
eignir og margt fleira. befir 100,000
feta gðlf pl&ss. UppboSssölur vorar &
miSvikudögum og laugardögum eru
orSnar vinsælar. — Granito Gallerics,
milll Hargrave, Donald og Ellice Str.
Talsímar: G. 455, 2434, 2889
Lightfoot Transfer Co.
Húsbúnaður og Piano
flutt af mönnum sem
vanir eru því verki.
Tals. Garry 5071 544 Elfia Ave.
J. J. Swamon Sc C#.
Vewl. mefi Siá vu.
Hr* Aaiuat kUi om
•iíékrr^m.0. °*
A. S. Bardal
84* Sharbreoke 8t.
Selur likki.tur og anna.t um útfarir.
Allur útbún.Sur *á bezti. Enafrem-
ur selur hann alakonar minniavarða
og legsteina.
aa'iT'l'V'*- * °*rr*
SkrlFataFu Tal.. . Qarpy 300^ ,7,
FLUTTIR til
151 Bannatyne Ave
Horni Rórie Str.
í staerri og betri verkstofur
Tals. Main 3480
KanalyElectricCo
Motor Repair Specialist
Electríc French Cleaners
Föt þur-hrein.uð fyrir $1.25
því þá borga $2.00 >
Föt pressuð fyrir 35c.
484 Portage Ave. Tals. S. 2975
Canadian Art Gallary
585 MAIN ST. WINNIPEG
Sérstiik kjörkaup á myndastækkun
Hver sem lætur taka af sér mynd
hjfi oss, fær sérstaka mynd gefins.
Sá er lætur stækka mynd fær
gefins myndir af sjálfum sér.
Margra ára fslenzk viðskifti.
Vér fibyrgjumst verkiS.
KomlS fyrst til okkar.
CANADA ART GALLERV.
N. Donner, per M. Malitoski.
Fallið ekki mótstöðu-
laust fyrir veikindnm
Veikindi vinna auðveldast sig-
ur á taugaveikluðu fólki, sem
hefir veiklaða meltingu.
Líkamans veiklun sem stafar
af þessum sjúkdómum eykur mót-
tækileika fyrir önnur veikindi.
Hjartað veiklast, blóðið eitrast
af of miklum úrgangsefnum og
sjúklingurinn berst vonlausri
baráttu gegn óvinnandi óvini.
Það er þvi ætíð áríðandi að
halda meltingarfærunum í góðu
lagi.
Triners American Elixir er
bezta meðal i þessu skyni; það
hreinsar innýflin og heldur þeim
hreinum, örvar matarlyst, bœtir
meltinguna og styrkir allan lík-
amann. Verð 1.50. Fæst í
lyfjabúðum.
Triners áburður eyðir hörm-
ungum gigtarinnar og tauga-
þrautanna; læknar mar, tognun,
bólgu og hressir veiklaða vöðva
og fætur. Verð 70 cents. Fæst
í lyfjabúðum.
Jos. Triner, Manufacturing
Chemist, 1333-1339 S. Achland
Ave., Chicaco, 111.