Lögberg - 02.08.1917, Page 8
8
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 2. ÁGÚST 1917
Or bœnum og grend.
Sigfús Bergmann og kona hans
frá Gimli komu til bæjarins á mánu-
daginn og fóru heim aftur næsta dag.
Traustj Davíðsson kom norðan frá
Árborg á þrðjudaginn, hafði farið
þangað norður um helgina. Helli-
rigning hafði verið þar um morgun-
inn þegar hann lagði af stað.
J. B'. Holm átti að vera undirritun
greinarinnar um fvrirlestur séra
Magnúsar Jónssonar, en ekki J. B.
Halson.
Munið eftir skemtiferð Goodtempl-
ara stúknanna á mánudaginn 6. þ. m.
og látið það ekki bregðast .að vera
við húsið fyrir kl. 1 e. h.
Séra Friðrik Hallgrímsson, kona
hans og Hallgrímur sonur þeirra fóru
suður til Moose River i Norður Da-
kota í bifreið fyrir helgina og dvelja
þar viku tíma. Séra Friðrik prédikar
þar hjá íslendingum.
Mrs. Bergur Johnson frá Baldur
kom til bæjarins fyrra mánudag ásamt
þrem bornum sínum og dvelur hér í
nokkrar v'ikur. ■
Mrs. H. Olson hefir v'erið vestur
í Wynyard um nokkra daga a% heim-
sækja dóttur sína og tengdason Mr.
og Mrs. J. S. Thorsteinsson.
Eitt nýmælið á íslendingadaginn í
ár er alíslenzk bændaglíma. hún er
sjaldséð hér og mun verða gott að-
dráttarafl.
S. J. Jóhannsson hefir verið að
ferðast vestur um Vatna-bygðir að
undanförnu; hann á þar marga kunn-
ingja og hefir verið vel tekið.
Guðmundur Sturlaugsso'n frá West-
lorne kom til bæjarins á mánudaginn.
Jóhann Sigbjörnsson frá Leslie fór
heim aftur á mánudaginn; en kona
hans dvelur liér lengur.
Jón Friðfinnsson tónskáld "tTom ti!
bæjarins á mánudaginn eftir fjögra
mánaða dvöl úti í Siglunes-bygð.
Hann segir liðan fólks þar alment
hina ágætustu. Biður hann Lögberg
að flytja bygðarbúum innilegt þakk-
læti fyrir góða samvinnu. Hann hcf-
ir verið þar að kenna söng.
Stúkurnar “Hekla” og “Skuld”
hafa ákveðið að halda skemtisam-
komu mánudaginn 6. ágúst í Kildonan
skemtigarðinum. AUir eru ámintir
um að Vera komnir í Goodtemplara-
húsið ekki síðar en k). 1 e. h. því
samningar hafa verið gerðir við
vagnafélagið að flytja fólkið fyrir
sérlega lágt verð og fara vagnarnir
frá húsinti stundvíslega kl. 1. Alls
konar skemtanir fara fram og þess
er óskað að sem flest börn úr barna-
stúkunni “Ælskan” verði með.
Bjarni Finnson starfsmaður Lög
bergs kom sunnan frá St. Paul og
Minniapolis ttm fvrri helgi; hafði
hann farið þangað ásamt Stefáni
Johnsvni starfsmanni Union bankans.
l>eir félagar létu mikið af skemtun
í þessari ferð: fóru þeir til Bear Lake
og Lake Minnetonka; skoðuðu helztu
og skrautlegustu bvggingar höfuð-
staðarins, svo sem marmarahöllina
frægu, þar sem marmarastykki eru úr
svo að segja öllum löndttm heims, þar
sem marmari er til.
Ólafur Thorlacitis póstmeistari frá
Dollv Bav kom til bæjarins á mánu-
daginn og dvelur hér um tíma; hann
var t v'egabóta erindum; hefir hann
verið vegabótastjóri þar ytra að und-
anförnu. Ólafur ætlar ncrður til
Gimli að ftnna dóttur sína. sem er bú-
stýra hjá Hreiðari Skaftfeld, en hér
ætlar hann að sitja íslendingadaginn
Ólafur var f jörugur og skrafhreyfinn
að vanda þótt hálf sjötugur sé að
árum.
Dr. Ágúst Blöndal frá Lundar var
á ferð í bænttm á mántidaginn t verzl-
unarerindttm.
Gunnar Björnsson ritstjóri Minne-
ota Mascot kom hingað á þriðjudag-
inn; var hann á leið til Wynyard, þar
sem hann ætlar að flytja ræðu á Is-
Iendingadaginn.
Jóhanna Jónasson kom vestan frá
Vatna-bygðum nýlega, eftir stutta
dvöl þar hjá frændfólki sínu og vin-
Séra Rögnvaldur Pétursson fór
vestur til Wynyard um helgina með
líki tengdasystur sinnar Mrs. H.
Bardal.
Mrs. S. Sölvason frá Westborne
kom til bæjarins á mánudaginn og
dvelur hér fram yfir íslendingadaginn
Munið eftir því að barnasýnmgin
á íslendingadaginn verður kl. 2.30
e. h„ en ekki kl. 5 eins og vant er.
Fjölda margar mæður eru að punta
börnin sín og undirbúa þau undir
sýninguna.
Miss Bardarson frá Argyle-bygð fór
heim á þriðjudaginn eftir mánaðar
dvöl hér i bænum.
J. G. Giilis hljóðfærasali kom > est-
an frá Vatna-bygðum á sunnudaginn
var, eftir mánaðar ferðalag þar vestra
Útlit kvað hann bærilegt yfir hófuð
og telur uppsekrru munu verða í með-
allagi ef ekkert óhapp vilji til
Stúkan J'Hekla” heldur sérstakan
skemtifund á föstudaginn, þar sem
margt verður til fagnaðar og allir
templarar velkomnir.
í Rauðakrosssjóóðinn hefir Mrs.
Kristín E. Johnson frá Churchbribge
gefið $10.00 og afhent Th. F„ Thor-
steinssyni bankastjóra.
Jón Björnsson frá Riverton, sem
dvalið hefir í Minnesota síðan um
kirkjuþings tímann, kom þaðan aftur
á þriðjudaginn með Gunnari B.
Björnssyni.
Jóhann Sigbjörnsson frá Leslie
og kona hans komu til bæjarins á mið-
vikudaginn. Kona hans kom til þess
að leita sér lækninga og dvelur hér
um tima.
Marteinn kaupmaður Jónasson frá
Vidi var á ferð í bænum fyrra mið-
vikudag; hann keypti sér nýja bifreið
og fór á henni norður.
Ásmundur Jóhannsson frá Sel
kirk kom til bæjarins á mánudaginn
og fór heim samdægurs.
KENNARA vantar fyrir Laufás
S.D. No. 1211 fyrir 7 mánuði, byrjar
17. sept., uppihald tvo mánuði, frá 15.
des. Kennarinn verður að hafa 2.
eða 3. kennaralevfi. Tilboðum sem
tiitaki kaup óskað eftir ásamt menta-
stigi og æfingu veiti eg móttöku til
10. ágúst næstkomandi.
B. Johannson.
Geysir, Man.
TilAlmennings.
Hér með leyfi eg mér að til-
kynna heiðruðum samlöndum
mínum í Nýja íslandi, að eg hefi
sett upp útibú í Riverton frá
úr og gullstáss verzlun minni
í t Selkirk. Benson og Magnús-
son í Riverton taka á móti öllum
aðgerðum þar á staðnum, og ann-
ast, fyrir mína hönd, öll viðskifti
er snerta útibúið.
Eg vænti þess að landar mínir
láti mig njóta hins sama trausts
þar sem annarsstaðar.
Virðingarfylst.
R. Halldorsson
Magnús Halldórsson læknir, sem
lengi hefir dvalið í Norður Dakota,
er alfluttur hingað til bæjarins með
fjölskyldu sína. Hann mun hafa í
hyggj að stunda aðallega eða ein-
göngu lungnasjúkdóma, sem hann
hefir gert að sérfræði sinni. Lögberg
gat þess fyrir skömmu að hann hefðt
flutt fyrirlestur á læknaþingi í fyrra
um nýtt meðal við tæringu er hann
hefði reynt og hepnast ágætlega.
Einar Martin frá Hnausum kom
til bæjarins á fimtudaginn með konu
sína og börn. Var hann á ferð vestur
til Saskatchewan að heimsækja Mar-
tein bróður sinn.
Mrs. fDr.)Jakobson frá Wynyard
var hér á ferð i vikunni sem leið; var
hún á heimleið aftur sunnan úr
Bandaríkjum þar sem hún hafði verið
að heimsækja vini og frændfólk.
Með henni var Victor sonur þeirra
hjóna.
Mrs. H. Jóhannesson fór norður
til Gimli í vikunni sem leið og dvelur
þar um tveggja vikna tíma hjá Guð-
mundi Fjeldsted bróður sínum.
Thos.- H. Johnson ráðherra fór suð-
ur til Bandaríkja nýlega ásamt konu
sinni og börnum og dvelur þar um
tíma í sumarfríinu.
Eiríkur Sumarliðason fór vestur til
Vatna-bygða á þriðjudaginn og dvel-
ur þar hjá dóttur sinni (konu Ey-
mundar Jackson í Elfros) og fleira
frændfólki í sumarfríinu.
Sunnan frá Arnaud komu á mánu
daginn var Miss R. Nordal og Miss
F. Arason. Hafa þær verið þar um
nokkurn tíma hjá Mr. og Mrs. Sveins-
syni. Er hin fyrnefnda systir Mrs.
Sveinson, en hin síðarnefnda er syst-
ir Mr. S. G. Arasonar, er þar dvelur.
Hafa börnin þtn munað eftir “Sól
skins-sjóðnum”?
Agæt vist
fyrir stúlku sem getur matreitt.
Enginn þvottur; aðeins þrtr í
heimili. Kaup $20.00 til að byrja
með.
Mrs. Scott.
299 Oakwood Ave.
Talsími Ft. Rouge 953.
Hr. Sigtryggur Arason skrapp um
síðustu helgi suður til Arnaud, Man.
í kynnisför til þeirra hjóna Jóhann-
esar Sveinssonar og konu hans; svo
og til að hitta bróður sinn, setti þar
er sumarlangt. Ágætlega sagðist
Arason hafa skemt sér á meðan hann
dvaldi þar svðra. Veður var hið á-
kjósanlegasta og viðtökur voru hinar
raitsnarlegustu; var hr. Sveinsson
jafnvel frá vinnu heilan dag fyrir
þær sakir, og var þá ekið um um-
hverfið, farið í berjamó á íslenzka
vísu og skoðaðir akrar. — Útlit upp-
skeru þar syðra sagði hann alment
talið fremur gott, enda tíð hagstæða
er á sumarið leið.
Geir Bogason frá Headingly hefir
legið á sjúkrahúsinu hér í bænum að
undanförnu; fyrst lá hann í misling
um, en síðar var hann skorinn upp.
Hann er nú orðinn allfrískur.
Miss María Thorlakson og Miss B.
Eyjólfson frá Churchbridge, Sask
komu til bæjari'ns á fimtudaginn var.
í>ær voru að finna Dr. J. Stefánsson.
Franz Andersen bankaþjónn frá
Wynyard kom til bæjarins á sunnu
daginn. Hann er að flytja frá Wyn
yard til Bromhead í Saskatchewan,
býst hann við að dvelja þar í fjóra
mánuði og flytja síðan hingað tn
Winnipeg. Andersen tók próf í fjár-
mála fræði í sumar og heldur áfran.
hærra námi í þeirri grein.
Bréf kom nýlega frá Ólafi Bardal,
sem skrifað er 1. júlí. Hann á afmæli
þann dag og móðir hans lika; var
hann rétt 20 ára þegar þetta bréf til
foreldra hans var skrifað. Ólafur
meiddist alvarlega í orustu á Frakk
landi nýlega eins og fyr er frá sagt;
er hann á sjúkrahúsi í Englandi og
heilsa hans stöðugt að styrkjast.
Hann væntir þess að stríðið verði á
enda áður en langt líður; kveðst hann
ávalt gleðjast þegar hann heyri að
einhver landi hafi særst; þvi þá séu
fengnar líkur fyrir því að sá hinn
sami muni ekki falla heldur komast
aftur heim til ástvina sinna.
Hnausum, Man. 26. júlí 1917.
Kæri herra ritstjóri:—•
Hr. Finnbogi Finnbogason hefir
afhent mér til útbýtingar meða)
þeirra, sem urðu fyrir brunaslysinu
að Borg í Geysibvgð á næstliðnum
vetri, $5.00, sem þú hefir nýlega sent
honuin frá gefanda í Saskatchewan
Fyrir þessa gjöf bið eg þig flytja
gefandanum vort innilegasta þakk-
læti.
' Með beztu kveðju. þinn einl.
B. Marteinsson.
Guðsþjónustur.
Kand. H. Johnson prédikar (1) í
Wynyard kl. 11 f.h. (2) í Kandahar
kl. 2 e.h.
Séra H. Sigmar prédikar í Leslie
kl. 11 f.h., í Kristnesi kl. 2.30 e.h. ög
í Elfros kl. 7 e.h.
Sunnudagsskóli alstaðar eftir messu
nema i Elfros. Allir velkomnir
Sigurður Antoníusson frá Baldur
kom til bæjarins á fimtudaginn. Hann
sagði ágæta rigningu þar ytra á mið-
vikudaginn og hefði alt sýnst lifna
við eftir hana.
Þú hefir þó víst ekki gleymt bara-
sýningunni á íslendingadaginn.
Tómas Eyjólfsson frá Lundar, sem
verið hefir i Argyle um tíma, fór
heim til sín nvlega og var heima í
viku tíma. Hafði móðir hans verið
hættulega veik i lungnabólgu, en er
nú orðin allhress. Eyjólfsson fór út
til Argyle aftur á föstudaginn.
Oft hefir verið vandað til Islend-
ingadagsins, en aldrei eins og nú.
Ingvar Árnason frá Geysi var á
ferð í bænum á föstudaginn og fór
heim samdægurs. Hann sagði alt
fremur seint þar nyrðra^ Sláttur er
að byrja #g slægjur tæplega í meðal-
lagi.
Leiðrétting.
1 gjafaskrá þeirri frá Gimli, sem
nýlega birtist í Lögbergi var þannig
að orði kveðið að nokkuð af gjöfun-
«m væri “frá Loni Beach til minning
ar um Miss M. Sveinson”, en átti að
vera “til minningar um Mrs. M.
Sveinson frá Loni Beach”.
Sömuleiðis láðist að geta þess að
barnastúkan Gimli nr. 7 gaf $10.00
(en þessi upphæð var auglýst með
nöfnum gefendanna sundurliðuð, en
stúkunnar ekki getiðj.
Enn fremur skal það tekið fram að
$6.00 af minningargjöf Miss Svein-
son voru frá Mrs. Jarvis og $2.00 frá
Mrs. Chiswell.
Helgi Hallson er nú i Canada
hernum á Englandi. Helgi á marga
kunningja og mörgum þykir vænt um
hann. Þeim til leiðbeiningar, sem
vildtt gleðja hann með því að senda
honum línur er þetta hans heimilis-
fang.
Crp. C. H. Hallson No 913031
No. 1 Ind. Forestry Co.
Smith Lawn Camp,
Berkshire, England.
Hinn 13. þ. m. dó Lára G. Hólm,
stúlkubarn 6 ára, dóttir Gunnars
Hólm, á Hayland, Man. — Allir, sem
þektu hið vel gefna og blíða barn,
samhryggjast hinum syrgjandi for-
eldrum.
Barnavinur.
RJ0MI
SŒTUR OG SÚR
KETPTUR
Vér borgum undantekning-
arlaust hæsta verð. Flutninga-
brúsar lagðir til fyrir heildsölu-
verð.
Fljót afgreiðsla, góð skil og
kurteis framkoma er trygð með
því að verzla við
D0MINI0N CREAMERY C0MPANY,
ASHERN, MAN. 0g BRAND0N, MAN.
Gjörðabók
kirkjufélagsins 1917 er nú kom-
in út og send til allra sem hafa
pantað hana----Einnig fæst hún
á skrifstofu Lögbergs og kostar
15 cent.
Aflraunin á kaðlinum mun draga
marga á íslendingadaginn. T>ar
verða hraustar hendur um báða enda.
Ásmundur Eymundsson húsameist-
ari frá Mikley kom hingað til bæjar-
arins fyrra föstudag. Hann fýsti að
sjá myndastyttu Jóns Sigurssonar, en
því miður gat það ekki orðið, því svo
er rammlega gengið frá henni að ekki
sést gegn u*i rifu hvað þá meira.
I
Til ritstj. Lögbergs.
Greinin þin “Gleymska”, sem birt-
ist í Lögbergi nýlega, ætti að vera
hverjum sönnum manni ógleymanleg.
Eg held mér hafi vöknað um augu
þegar eg las hana. Sjaldan eða al-
drei hefir sannleikurinn verið. sagð-
ur jafn hispurslaust í nokkurri rit-
stjórnargrein, eg vildi gjarna fá að
sjá fleiri í sama anda. Það þarf að
koma við kaunin.
/. B. Holm.
SJÓÐIÐ MATINN VIÐ GAS
Ef gaspípur er í strætinu þar sem þér búið
þá léggjum vér pípur inn að landeigninni,
án endurgjalds. Frá gangstéttinni og inn
í kjallarann setjum vér 25c fyrir fetið. Lát-
ið oss hafa pantanir yðar snemma,
GAS STOVE DEPARTMENT, Winnipeg Electric Railway Co„
322 Main Street, - Tals. Main 2522
SUMAR-FERÐALAG YÐAR
ÆTTI AÐ VERA MEÐ CANADIAN NORTHERN
VESTUR AD HAFI
Sérstakar sumarferðir til
VANCOCVER, VICTORIA, NEW WESTMINSTER, SEATTLE,
PORTLAND, SAN FRANCISCO, DOS ANGEÞES, SAN DIEGO
Til sölu frá 15. júnl til 30. september.
G6S til afturkomu til 31. okt. Leyft aö standa við á leiðinni.
Sérstakar terðir Sérste-kar ferBir
North Pacific Coast Polnts Jasper Park og Mt. Robson
25., 27., og 30. Júnl; 1. og 6. Júli. 15. mat til 30. september.
Til AUSTUR CANADA
Fram og til baka 60 daga. — Sumarferðir.
FerBir frá 1. júní U1 30. September.
Lestir lýstar meS rafmagni — ásamt með útsjónarvögnum
þegar fariB er 1 gegn um fjöllin og frá Winnipeg til Toronto.
Svefnvagnar og fertSamanna vagnar.
B6k sem gefur nákvæmar upplýsingar fæst hjá C.N.R. farbréfa-
sala, e8a hjá
R. Greelman, G.P.A. W. Stapleton, D.P.A. J. Madill, D.P.A.
Winnipeg, Man. Saskatooij, Sask. Edmonton, Alta
Royal Crown Soaps
5
Limited
Ástœðan
fyrir því
Að sœtindi frá The
Princess er gott
Aðeins hreinasta og bezta efni er
notað í þau, og þér kaupið þau ný
daglega. Jafnvel beztu sætindi
tapa nýjabragðinu eftir að þau
hafa verið geymd svo vikum skiftir. Ef yður er ant um að
ná í það bezta, þá kaupið kassa af “Affinitie” súkkulaði. Það
er bókstaflega ómögulegt annað en kaupa þau og þau fást hjá
rtncrss
284
PORTAGE AVENUE
STOFNSETT 1883 HÖFUÐSTÓLL $250.000.00
Húðir, Gærur, Ull, Seneca rætur
Sendið os8 í stórum eða smáum stíl um
hæL Hæsta verð borgað, og góð skil eru
á’byrgst.
R. S. ROBINSON, Winnipeg
1 57 Rupert Ave. og 150-2 Pacific Ave.
Gjaflr til Betel.
Opnar hina nýju MPremiumn
búð sína að 654 MAIN STREET
MIÐVIKUDAGINN
1. ÁGÚST 1917
Með nýjum og auknum varning af
Premíum fyrir Royal Crown Sápu um-
búðir eða peninga. Hvert barn sem
kemur með foreldri sínú fær smásögu
bók fyrirekkert.
Veitið athygli Rauðmáluðu búðinni
Kaupið vörur vorar og geymið
umbúðirnar fyrir Premiur
Járnbrautir, bankar, fjármála
stofnanir brúka vel æfða að-
stoðarmenn, sem ætíð má fá hjá
DOMINION BOSINESS CDLLEGE
352 y2 Portage Ave.—Eatons megln
Heimilis þvottur
8c. pundið
Allur sléttiír þvottur 'er járndreg-
inn. Annað er þurkaðog búið und-
ir járndregningu. Þér finnið það út
að þetta er mjög heppileg aðferð til
þe«8 að þvo það sem þarf frá heim-
ilinu.
Tals. Garry 40
Rumford Laundry
William Avenue Garage
Allskonar aðgerðir á Bifreiðum
Dominion Tires, Goodyear, Dun-
lop og Maltease Cross og Tubes.
Alt verk ábyrgst og væntum eftir
verkiyðar.
363 William Ave., Wpeg, Ph. G. 3441
G0FINE & Co.
Tals. M. 3208. — 322-332 £3Uce Ave.
Horninu á Hargrave.
Verzla meS og virtSa brúlcaöa hús-
muni, eldstör og ofna. — Vér kaup-
um, seljum og skiftum á öllu sem er
nokkurs virCl.
KRABBI LÆKNAÐUR
R. D. EVANS
sá er fann upp hiÖ fræga Ev-
ans krabbalækningalyf, óskar
eftir að allir sem þjástaf krabba
skrifi honum. Lækningin eyð-
ir innvortis og útvortis krabba.
R. D. EVANS, Brandon, Man.
Þejr sem færa oss
þessa auglýsing
fá hjá oss beztu kjörkaup á
myndarömmum. 125 fer-
hyrnings þml. fyrir OC
aðeins......... ODC«
Reynið oss, vér gerum vandaö verk
Stækkum myr.dir þó gamlar séu.
359 Notre Dame Ave.
Mrs. J. Þórðarson ekkja Jóns
Þóróarrsonar fvrverandi þingtnalíns í,
NorSur'Dakota kom sunnan frá Ore-j Frá kvenfél. “Fjallkonan” að
gon nýlega. Kom hún fyrst tl Argyle: Langruth, Man...............$2o.OO
að heimsækja systur sína, konu Sig- Frá Hallgríms-söfnuði að Hólar,
tryggs Stefánssonar; þangað fylgdi
henni Jón sonur hennar frá Regina.
Hér í bæ dvelur hún um tíma og held-
ur til hjú Jóni Friðfinnssvni og syst-
ur sinni konu hans.
Sask.......................$18.35
Með innilegu þakklæti.
J. Jóhanncsson.
675 McDermot Ave., Winnipeg.
ATHUGIÐ!
Smáauglýsingar í blaðið verða
alls ekki tcknar framvegis nenia
því aðeins að borgun fylgi. Verð
er 35 cent fyrir hvern þumlung
dálkslcngdar í hvert sklftl. Engln
auglýsing tekin fyrir minna en 25
cents í hvert skifti sem hán birtlst.
Bréfum með smáauglýslngum, sem
borgun fylgir ekkl verður alls ekkl
sint.
Andlátsfregnir eru birtar án end-
urgjalds undir elns og þær berast
hlaðinu, en æfimlnningar og erfi-
ljóð verða alls ekkl blrt nema borg-
un fylgi með, sem svarar 15 cent-
um fyrir hvorn þumlung dálks-
lengdar.
Alt eyðist, sem af er tekið, og svo
er með legsteinana, er til sölu hafa
verið síðan í fyrra. Eg var sá eini,
sem auglýsti verðhækkun og margir
viðskiftavina minna hafa notað þetta
tækifæri.
i
Þið ættuð að senda eftir verðskrá
eða koma og sjá mig, sem fyrst. Nú
verður hvert tækifærið síðasta, en
þið sparið mikið með því að nota það.
Eitt er víst, að það getur orðið
nokkur tími þangað til að þið getið
kevpt Aberdeen Granite aftur.
A. S. Bardal.
KBNNARA VANTAR
við Siglunes skóla No. 1399 fyrir 8
mánuði, frá 1. september 1917 til 15.
desember og frá 15. febr. 1918 til 30.
júní. Umsækjendur tiltaki æfingu,
mentastig og kaup. Tilboðum reitt
nióttaka til 15. ágúst 1917.
Framar F. Eyford.
Siglunes P. O., Man.
9
Margrét Arason og Marta Sigurðs-
son frá Mountain í N. D. eru staddar
í Wynyard og þar í grendinni að heim
sækja vini og kunningja. Þær dvelja
þar fram yfir íslendingadaginn.
BIFREIÐAR “TIRES”
Goodyear og Dominion Tires ætlC
á reiBum höndum: Getum út-
vegaö hvaöa teguad sem þér
þarfnist.
Aðgerðir og “Vulcanlzing” sér-
stakur saiunur geflnn.
Battery aðgerðlr og bifreiðar tll-
búnar til reynslu, geimdar
og þvegnar.
AXJTO TIKE VCLCANIZING CO.
309 Cumberland Ave.
Tals. Garry 2767. Opið dag og n6tt.
Vrerkstofu Tals.:
Garry 2154
Hetm. Tais.:
Garry 2949
G. L. Stephenson
Plumber |
Allskonar raJmagnsáhöld, svo sem
straujárna víra, allar tegundir af
glösum og aflvaka (batteris).
VINNUSTOFA: 676 HOMf STREET
YEDECO öii
kvikindi, selt á
SOc, l.OO. 1.50, 2.50 gallonan
VEDECO ROACH:FOOD l5c.25cog 60ckann.
Góður árangur ábyrgstur
Vermin Destroying& Chemical Co.
636 Ingersol St. Tais. Sherbr 1285
Mrs, Wardale
643] Logan Ave. - Winnipeg
Brúkuð föt keypt og seld eða
þeim skift.
Talsimi G. 2355
Gerið vo vel að nefna þessa augl.
CASKIES
285 Edmonton St. Tals. M. 2C
Látið líta eftir loðskinna
fötum yðar tafarlaust áður
en þér leggið þau afsíðis
til geymslu. Látið það
ekki bregðast, -það sparar
yður dollara.
Nefnið þessa auglýsing
HUÐIR, LODSKINN
BEZTA VERÐ BORGAR
W. B0URKE & C0.
Pacific Ave., Brandon
Garfar .kinn Gerir við loð.kinn
Býr til feldi
Sanol
Eina áreiðanlega lækningin við s
ursýki, nýrnaveiki, gallsteinum, ný
steinum í blöðrunni.
Komið og sjáið viðurkenningar
samborgurum yðar.
Selt í öllum lyfjabúðum.
SANOL CO.
614 Portage Ave.
Talsími Sher. 6029.
J. H. M. CARSON
Býr til
Allskonar limi fyrir fatlaða menn,
elnnig kvlðslitsumbúðir o. fl.
Talsfml: Sh. 2048.
338 COLONY ST. — WINNIPEG,
C. H. NILS0N
KVENNA- og KARLA
SKRADDARI
Hin stærsta skandinaviska
skraddarastofa
208 Logan Ave.
1 öðrum dyrum frá Main St
Wianipeg, Man.
Tals. Qarry. 117
VÉR KAUPDM OG SELJUM,
ieigjum og skiftum á myndavélum
Myndir stækkaðar og alt, ser
tii mynda þarf, höfum vér. Sendr
eftir verSllsta,
Manitoba Photo Supply Co., Ltd.
336 Smith St., Winnípeg, Man.
KENNARA vantar við Kjari
skóla nr. 647, sem hefir “Second Cla
Prof. Certificate”, fyrir 9 mánui
Kenslutímabil frá 1. sept. 1917 til 3
maí 1918. — Tilboðum, sem tiltal
kaup sem óskað er eftir verður vei
móttaka af undirrituðum til 8. áeú
1917.
S. Arason, Sec.-Treas.
' Húsavík, Man.
“Auglýsing”
Kennara vantar við Odda skóla n
1830, frá 20. ágúst til 20. desembt
1917; frambjóðendur tiltaki mentasti
sitt og kaup. Tilboðum veitt móttak
til 5. ágúst 1917.
’Thor Stephánson, Sec.-Treas.
Winnipegosis, Mai
KENNARA VANTAR
fyrir Pig Point S. D.. í tiu mánuði.
Verður að hafa “Second Class Cer-
tificate”. Tilboðum er tiltaki kaup
og mentastig veitir undirritaður mót-
töku til 20. ágúst.
H. Hannesson, Sec.-Treas
Wild Oak, Man.