Lögberg - 11.10.1917, Side 4
4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 11. OKTÓBER 1917
Jögbeig
Gefið út hvern Fimtudag af The Col-
umbia Pre*s, Ltd.,Cor. William Ave. &
Sherbrook Str., Winnipeg, Man.
TALSIMI: CARRY 2156
SIG. JUL. JÓHANNESSON, Editor
J. J. VOPNl, Business Manauer
lltan&skrift til blaðsina:
Tt|E C0LUMBI4 PRE3S, Ltd., Box 3172, Winnipsg.
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipag, IV|an.
VERÐ BLAÐSINS: $2.00 um árið.
«9*27
1 einlœgní.
Lögbergi berast bréf dagsdeglega með fyrir-
spurnum um það, hvað í raun og veru sé að gerast
á bak við tjöldin í stjómmálum og hvers vegna
það sé að vissir einstaklingar séu að sleikja sig
saman úr báðum flbkkunum, án þess að taka fólk-
ið til greina eða ráðgast við það. Sum þessara
bréfa lýsa svo mikilli gremju gegn gömlum og góð-
um mönnum í frjálslynda flokknum og jafnvel
gegn flokknum sjálfum, að Lögberg telur þau ekki
sanngjöm.
Samt sem áður er þetta farið að ganga svo
langt að eg sem ritstjóri blaðsins verð, blaðsins og
flokksins og málefnanna vegna að skýra eftir
mínum persónulega skilningi hvað verið er að
gera og hvað nauðsynlegt er að fólkið geri.
Skal hér birtur kafli úr einu bréfinu, frá
sönnum og trúum frjálslyndum manni, sem unnið
hefir flokknum alt mögulegt gaem síðan um alda-
mót. Bréfkaflinn er á þessa leið:
“HáU- ’Hi ritstjóri Lögbergs!
Viltu vera svo hreinlyndur að segja mér bréf-
lega, ef þú þorir það ekki í blaðinu, hvað pólitízku
taflmennimir eru að tefla á bak við tjöldin? Við
alþýðumennirnir, sem aldrei erum spurðir til ráða,
og enginn þessara stóm manna virðist muna eftir
nema um kosningarnar, emm famir að hugsa fyr-
ir okkur og sumstaðar hefir það komið til orða að
við tækjum algerlega til okkar eigin ráða, fyrst
leiðtogarnir hugsa sér að velja þá leiðina að fara
með alt á bak við okkur.
pað lítur ekki út fyrir annað en að það tafl,
sem verið er að tefla, sé “refskák”, og því skal lof-
að af mér og fleirum að þeir hinir sömu, esm í því
tafli taka þátt, skulu einir og aðstoðarlausir tefla
refskákina sína, þegar til þess kemur að atkvæð-
um verður kastað.
Okkur finst að ekkert frjálslynt blað sé leng-
ur til hér nema Lögberg, og mátt þú vera viss um
að þér verður munað það síðar hversu vel þú hefir
talað máli fólksins á þessum tímum, þegar þess
er gætt að sá flokkur sem þú fylgir hefir alger-
lega bmgðist trausti þpóðarinnar, eða margir leið-
andi menn hans hér í Manitoba. J?að er einmitt
á þeim tímum sem eitthvað reynir á sem menn-
imir hljóta dóma sína — þá varanlegu dóma, sem
sagan geymir. Frá mínu siónarmiði hefir Lög-
berg undir þinni stióm orðið til þess að b.iarga
hinum íslenzka hluta liberal flokksins frá glötun
og eyðileggingu; því hefðir þú ekki staðið á verði
þá hefði Heimskringla í faðmlögum við ýmsa leið-
andi liberala svæft alla sjálfstæði hjá íslending-
um, fengið þá til að hlaupa frá því merki sem þeir
hafa svo vel og drengilega haldið uppi og látið þá
yfirgefa sinn gamla og góða leiðtoga.
Eg vil ekki koma þér í neina klípu, því það
er lífsspursmál fyrir okkur að Vú sért ekki látinn
fara frá blaðinu aftur og einhver drusla tekin í
staðinn. J7ess vegna krefst eg þess ekki að þú
birtir þetta bréf eða þennan kafla, en bréflega bið
eg þig að svara mér og láta okkur hér vita það
prívatlega í hvaða gildru verið er að leiða okkur
Eg get sagt þér það hreinskilnislega að þú
mátt segja það hverjum sem er að í mínu bygð-
arlagi og alstaðar þar sem eg þekki til úti á landi
fylgir fólkið eindregið Laurier og stefnu hans og
verður með hvaða góðum manni sem honum fylgir,
og eir'^gið á móti öðmm.
Að því er “grútinn” snertir skoðum við hann
sem versta samsæri milli flokkanna til þess að
kæfa þjóðarviljann.-----------------------
J7inn einlægur.
Kjósandi í Nýja íslandi.
Bréfið er hér um bil f.jórum sinnum lengra
en hér er birt, en hitt er um önnur mál. pess skal
getið að betta bréf er í samræmi við allan f.iölda
þeirra bréfa, sem ritstjóri Lögbergs fær. “Grút-
urinn” sem bréfritarinn vitnar til er samsteypu-
stiómar bnvmyndin, og er það einkar vel valið
nafn og viðeigandi.
Sem ritstjóri Lögbergs, sem sannur íslend-
ingur, sem einlægur maður í hinum sannfrjáls-
lynda flokki finst mér eg verði að svara þessu
bréfi opinberlega. Eg hefi ekki farið í neinar fel-
ur með skoðun mína á stjómmálum landsins eins
og nú víkur við. Eg álít að hér sé verið að leika
þs-r'-n leið á þjóðina, sem hún verði að vinna á
móti.
Mér var ekki einungis boðið að koma í fr.jáls-
lynHfi fi^Vkinn þegsn eg kom hingað vestur fyrir
nálega 20 árum, heldur margbeðinn þess. Eg var
þá eins og nú með kvenréttindum, vínbanni og
beinnj l^íggiöf, en á móti þessum málum öllum var
flokkurinn þá. Nú hefir hann aftur á móti tekið
svo miklum framförnm í stefnu sinni og skoðun
að hann er — sé stfefnunni fylet — bezti og al-
þýðlegasti flokkur, sem þessi þjóð hefir þekt. Eg'
hefi verið einlægur starfsmaður þessa flokks síð-
en 1907, eða í 10 ár. Mér hefir lærst að þvkia
vænt um þennan flokk og mér er ant um sóma
hans og gengi; mig tekur það því sárt þegar menn
bregðast honum og ganga í lið með óvinum þjóð-
arinnar, því það kalla eg alt afturhald óhikað.
Mér hefir verið innrætt af leiðtogum flokksins að
aldrei hafi ærlegra né framfarameira félág verið
til í bessari álfu, og mér hefir verið inrnætt það
að okkar góði og gamM leiðtogi Sir Wilfrid Laurier
væri ærlegasti, einlægasti og hæfileikamesti
stjómmálamaður sem þessi þjóð hefði framleitt.
pessu hefi eg trúað og vitað að það var satt.
Eg hefi altaf álitið að gildi hvers manns og
hvers flokks væri þá fyrst reynt til þrautar þegar
um eldraun væri að tala. Nú í fj rsta skifti síðan
um aldamót — í fyrsta skifti síðan eg kom í þenn-
an flokk — er um eldraun að tala. Nú sást það
hvort treysta mætti frjálslyndri stefnu eða aft-
urhaldið væri akkenð þegar í nauðir ræki. Nú
sást það hvort leiðtoginn okkar væri það sem
sagt hafði verið.
Aðal hjartapunktur fr.jálslynda flokksins er
það að fólkið fái að ráða málum sínum; það er
bein löggjöf. Mér var uppálagt það árið 1914 og
1915 að kenna fólkinu gildi þess gleðiboðskapar;
eg reyndi það af veikum mætti, en í fullri alvöru
og allri einlægni. Nú var um það að ræða í Ottawa
í sumar hvort fólkið ^tti að ráða eða fáeinir menn.
Leiðtoginn okkar Sir Wilfrid Laurier stóð þá upp
sem talsmaður þjóðarinnar og frjálslyndisins og
heimtaði þjóðar atkvæði — beina löggjöf. En þá
ganga sumir menn í frjálslynda flokknum í fé-
lag við afturhaldið og neita að styðja grundvall-
aratriði síns eigin flokks. Og svo er skorað á
okkur frjálslynda menn að kasta því alt í einu,
sem okkur hefir verið kent að væn bezt og fegurst
í stefnu flokksins. Okkur er skipað að hlaupa frá
okkar eigi fána og yfirgefa okkar eigin leiðtoga.
í hreinlyndi sagt get eg ekki svarað bréfritaran-
um öðru en því að eg skil ekki íremur í þessu en
þótt eg ætti að lesa kínversku.
Okkur er sagt að vilji fólksins eigi að ráða,
en fáeinir, vissir merin sem hafa fengið þá flugu
inn í heilann að þeir séu öli þ.ióðin, þjóta fram og
aftur til höfuðstaðarins til þess að sitja á ráð-
stefnu með þeim mönnum, sem að öllu leyti hafa
reynst ótrúir og ófærir til st.jórnar og þeir láta
ræning.jaflokkinn í Ottawa skilja það að ef þeir
siálfir geti fengið þá virðingu að sitja þeim við
hlið á hinum saurugu bekkjum þar eystra, þá
skuli þeir yfirgefa sitt eigið flagg, sinn eiginn
trúa foringja, flokk sinn og stefnu
Calder ráðherra í Saskatchewan, Sifton for-
sætisráðherra í Alberta, Hudson ráðherra í Mani-
toba hafa aldrei, svo eg viti til, fengið neitt um-
boð frá fólkinu til þess að semja um neinn bræð-
ing við Bordenklíkuna. peir voru kosnir til bess
að vinna verk fykisbúa hver hjá sér, en þeir hafa
ekkert umboð í sambandsmálum fremur en eg eða
hver óbreyttur borgari landsins.
Eg álít fyrir mitt leyti að þeir séu allir of
hreinir menn til þess að saurga sig í faðmlögum
við þá menn, sem lengst hafa gengið í því að lát.
viðgangast rán, svik og fjárdrátt.
pað mátti þó ekki minna vera en að þeir köll-
uðu almennan borgara- eða fulltrúaíund fólksins
hver í sínu fylki, til þess að komast að raun um
hvort fólkið hefði lyst á þess konar bræðing eða
“grút”, eins og bréfritarinn réttilega nefnir það.
Allir vita og allir virðast viðurkenna að
Borden flokkurinn hafi fylt mæli synda sinna svo
að fyrir löngu sé farið að flóa út úr. Allir vita að
hann hefir látið hverja óhæfuna viðgangast á fæt-
ur annari. Undir hans stóm hafa auðfélögin verið
vemduð og alþýðan kvalin með ofþyngd alls kon-
ar dýrtíða’’ bvrðar, sem beinlínis em stjóminni að
kenna. Undir þessari stjóm hafa hermönnum
vorum verið fengnr sviknir skór, sviknir s.jónauk-
ar, svikin meðul, sviknar umbúðir, svikin föt,
ónýtar byssur og þeir settir upp á þrítuga, ein-
eygða, halta hesta, og þannig vom þeir sendir út
í lífsh«»ftnv,a til bess að beriast fyrir oss. Undir
þessari stjóm hafa hersveitir vorar verið fengnar
til stjórnar póiltískum flokkshenglum, sem enga
hermála bekkingu né reynslu höfðu, en öðmm fær-
ari neitað þegar þeir vildu leggja fram krafta sína.
Undir þessari stjórn hafa auðfélögunum ver-
ið gefin tækifæri til þess að ná í sinn vasa $1,000,-
000 ff'órum milíónum dala) af því láni, sem tekið
var til stríðsþarfa. Undir þessari st.jóm hefir
þjóðin verið látin taka sér á herðar $600,000,000
(sex hundruð miljón dala) skuld sem hvílir á
tveimur alræmdum fjárglæframönnum. Undir
þessari stjóm á að láta þjóðina borga $60,000,000
(sextíu miljónir dala) fyrír verðlaus hlutabréf,
sem embættismenn s.jálfrar stjómarinnar hafa
lýst yfir að væru einskis virði.
Undir þessari stjóm hefir dóms úrskurðum
Manitoba fylkis verið stungið undir stól og réttar-
fari traðkað. Undir þessari stjóm hefir verið skip-
uð hver nefndin á fætur annari á fólksins kostnað
fyrir hundruð þúsunda að launum, til þess að hylia
sannleikann og hnekkja honum í sambandi við
Robert Rogers og fleiri hans líka.
Undir þessari st jóm hafa verið brotnir helgir
samningar sem í nafni konungsins voru gerðir við
trúa borgara landsins, og framtíð þessa ríkis þarn
ig stofnað í voða og sundrurg innbyrðis er fyrir-
litning og óálit út á við.
Undir þessari stjóm hafa löglega kosnir full-
trúar þjóðarinnar verið sviftir málfrelsi í sjálfu
þinginu á meðan verið var að koma fram afglapa-
verkunum og harðstjómar athðfnunum.
Undir þessari stjórn hefir frjálslyndi flokk-
urinn í heild sinni verið kallaður landráðafolkkur.
og Ieiðtogi hans svívirtur á þann glæpsamlegasta
og viðbjóðlegasta hátt sem nokkur saga þekkir.
Og þetta viðurkenna allir í frjálslynda flokkn-
um og margir afturhaldsmenn þar að auki. Og
svo koma farm vissir menn sem kalla sig frjáls-
lynda og seg.iast vera reiðbúnir að ganga í félag ö
við þessa stjóm og leyfa henni framhalds yfirráð,
ef þeir fái þá virðingu að sitja'hjá henni.
Segium að Borden — hinn allsóhæfi stióm-
andi gæfi það eftir að helmmgur þingmanna væri
af frjálslvnda flokknum og hann sjálfur leiðtoo-i.
Lítum á hver alvara því mundi fylgia og hvaða
afleiðingar það mundi hafa. Hann hefir þeg*r
tekið í stióm sína tvo menn. sem taldir eru frjáls-
lyndir og hafa verið í frjálslynda flokknum að
nafninu til. en eru í eðli og breytni afturhalds-
menn í orðsins fylstu merkingu.
Borden hefir þegar útnefnt í c-fri deildina svo
marga menn úr afturhaldsliðinu og þá af versta
tagi. en engan úr hinum flokknum, að jafnvel þótt
eitthvert ærlegt frumvarp slampaðist í gegn um
bræðingsstjómina í neðri deild, þá yrði það tafar-
laust felt í hinni; í útnefningunum í efri deildina
siást úlfshárin undan lambsgærunni, svo að ekki
er mögulegt á að villast.
Ff bræðingurinn tekst er með öllu loku fyrir
það skotið að framvegis verði rannsakaðar allar
svívirðingar Ottawastiómarinnar, sem hún hefír
framið þessi síðustu ár; en það hlýtur að verða
hlutverk allra sannfrjálslyndra manna um mörg
ár eftir að stríðið er um garð gengið. pá verður
blátt áfram að krefjast fullrar óháðrar rannsókn
ar á öllum þeim óheyrðu svívirðum, sem fram hufa
farið.
pað er mín persónuleg og einlæg sannfæring
að Roblin stiómin sæla hafi verið enrilhrein og
himinn heið í samanburði við þau illfygli sem sitja
í Ottawa-hreiðrinu nú.
Fari svo að frálslyndi flokkurinn, sem flokk-
ur, sverjist í bandalag við þessa stjóm, þá tekur
hann með því á eigin herðar ábyrgð á öllu því, sem
fram fer og fram hefir farið að sínum parti og
verður jafn sekur klíkunni. Frjálslyndi flokkur-
verður jafn sekur afturhalds klíkunni. Frjálslyndi
flokkurinn hefir þá kastað frá sér öllum möguleik-
um til þess að krefjast rannsóknar og hegningar.
Hugsum oss þingmannsefni sem beiddist at-
kvæða fólksins undir merki Bordens, en þættist þó
vera liberal. Hann sækti undir merkjum manns-
ins sem tók atkvæði af fólkinu og samþykti þannig
þá vanheilögu athöfn.
Hugsum oss menn sem 1911 héldu fram
frjálsri verzlun þegar hinn mikli leiðtogi féll fyrir
samsærismönnum þeim er svarist höfðu í fóst-
bræðralag gegn fólkinu—hugsum oss sömu menn-
ina nú sækja um kosningu til þings undir forustu
sama foringjans, sem þá lagði að velli okkar mikla
o<x góða mann og beitti til þess þeim ráðum sern
síðan eru öllum kunn. Gætum vér trúað því að
þeír hinir sömu væru frjálslyndir lengur? Nei,
hver sá sem nú talar um að fallast í faðmlög við
aftnrhal^sliðið og bræðast saman við það, hann er
á sömu fleytunni og Clifford Sifton; hann er ekki
frjálslyndur lengur, hann hefir hlaupið frá sím?
eigin merki og gengið í lið óvinanna og fólkið á
að kiósa sína eigin menn á móti honum — hver
sem hann er; hversu voldugur sem hann er.
Ef vér trúum því að frjálslyndi' stefnan «é
góð aðeins þá þegar ekkert reynir á, en ef í nauðir
reki þá verðum vér að flýja á náðir afturhaldsins,
þá burt með hana um aldur og æfi; verum þá allir
afturhaldsmenn, ekki aðeins á tímum eldraunanna,
heldur æfinlega.
En eg sem einstaklingur er á sama máli og
bréfritarinn; eg hefi trú á frjálslyndu stefnunni
þegar ekki er um mikilvæg málefni að ræða, en
eg hefi enn þá meiri og sterkari trú á henni, þegar
til stórkasta kemur, og eg hefi aldrei haft sterk-
ari trú á henni en einmitt nú.
peir sem nú lýsa vantrausti á stefnu vorri og
leiðtoga vorum, sýna það að þeir eru ekki friáls-
lyndir menn, þeir eiga heima í afturhaldsflokkn-
um en ekki hjá oss; lofum þeim að fara þangað
sem þeir eiga heima — inn í sínar eigin kvíar og
leika þar allar refskákar sem þeim sýnist, en vér
hinir trúu skulum halda vorri stefnu og vorum
fána og vorum leiðtoga.
pað vill svo vel til að þetta land átti í striði
undir stjórn Sir Wilfrid Lauriers. Heyrðu menn
þá talað um annan eins þjófnað og fjárdrátt, aðr-
ar eins óhæfur og nú ? Nei, ekki það eg muni til.
Hefði sir Wilfrid verið forsætisráðherra í
Canada síðan stríðið hófst, hefði verið viðhöfð
meiri ráðvendni, meiri samvizkusemi. pá hefðu
menn verið fúsari að fara í herinn og miklu fleiri
gefið sig fram bæði í Quebec og annarsstaðar.
pá hefði ekki stríðið verið gert að sterku vígi fyrir
fjárdráttarmenn og þjófa til þes^ að skjóta frá
örvum sínum að þjakaðri alþýðu.
Vér verðum að gæta þess að það stríð sem
vér eitrum í er tvenns konar; það er út á við á
móti pjóðverjum og innanlands er það vamarstríð
gegn ofríki og ráni stjómar og auðvalds. Vér
treystum á frjálslynda flokkinn á þessum hörm-
ungatfmum, iafnframt því sem hann taki allan
sanngjaman þátt í stríðinu út á við gegn þýzka
keisaravaldinu að láta einnig til sín taka á móti
því valdi, sem læst hefir ránsklóm hér innan lands
inn í gegn um hold og bein og inn í hjartastað
þjóðarinnar til þess að geta sogið úr henni blóðið.
Blaðið “Free Press” hefir svikið flokkinn og
stefnu hans og gengið í lið með afturhalds blöðun-
um til þess að flétta böndin á hendur og fætur
fólksins. Blaðið “Tribune”, sem þóttist vera fólks-
ins blað, hefir farið eins að ráði sínu og af þessuro
fráhverfu blöðum, sem skift hafa um stefnu og
farið yfir til afturhaldsflokksins eru sumir leið-
togar vorir leiddir.
Ff grútarbræðslan tekst; ef nokkrir úr
frjálslynda flokknum ganga í félag við núverandi
stjóra til þess að hrifsa í eigin hendur völdin án
þess að leita álits fólksins áður en nokkrir samn-
ingar eru gerðir. þá verðum vér hinir trúu að taka
til vorra ráða. Vér verðum þá að sameina oss um
alþýðumenn sem þingmanns efni í hveriu kiör-
dæmi á móti bræðings — eða grútar kandidötun-
um. Vér verðum þá að grípa til þeirra ráða að
sameina alla verkamenn, bændur, jafriaðarmenn
og alla sannfrjálslynda menn, úr hvaða flokki
sem eru og hrinda af stóli þeim sem tekið hafa
saman höndum á móti öllum sönnum þjóðar vilja
og frelsi.
Afturhaldsflokkurinn horfðist í augu við
dauða o<r dimma pröf og hann vill nú fá flokk
vom sér til lífs og líknar og ef það gangi ekki, há
er útreikningurinn sá að draga frjálslynda flokk-
inn ofan í görfina með sér.
petta er ekki þeim láandi sem dauðvona eru
og fordæmdir hvort sem er—afturhaldsmönnum
—en það er ófyrirgefanlegt af nokkmm frjáls-
lyndum manni að láta villa sér sjónir og fallast
í faðma við hálfrotið lík afturhaldsstjómarinnar
til þess að bjarga henni frá greftrun.
Verði þjóðin svo ógæfusöm að leiðtogar frjáls-
lynda flokksins bregðist henni þegar mest á ríður
og gangi í félag við kúgunarvaldið, þá er aðeins
það ráð fyrir hendi sem Abraham Lincoln og aðrir
góðir menn í Bandaríkjunum gripu til þesar þeir
mynduðu Republican flokkinn um árið 1854.
Orð Abrahams Lincolns við það tækifæri em
lifandi línur í veraldarsögunni. pau em þannig:
“Hinir mörgu leiðtogar, sem þjóðin trevsti hafa
brugðist; vér verðum að bindast félagsskap gegn
öllum þeim samsærum esm nú eiga sér stað og ef
vér byggjum vom nýja flokk á “Frelsisskránni”
þá erum vér vissir að sigra, þótt hinir opni öll hliö
helvítis og hleypi þaðan á móti oss öllum þess her-
sveitum”.
Og reynslan sýndi að hann hafði rétt að mæla
þótt ekki væri glæsilegt útlitið þá í svipinn.
Hversu vænt sem mér þykir um frjálslynda
flokkinn, þá vil eg heldur hjálpa til þess að grafs,
hann með hinu hálfdauða líki afturhaldsflokksins,
en að vita hann lifa við þá smán að hann svíki
grundvallaratriði sín og bregðist fólkinu þega?'
mest á ríður.
Eg hefi nú í fám orðum svarað bréfritaran-
um hreinskilnislega og blátt áfram; blaðamenn
um fram alla aðra eiga að vera hreinlyndir,
þeir eiga að tefla ærlegt manntafl en enga ref-
skák. Mín persónulega afstaða í málinu er eins
og eg hefi sagt hér að framan og eg vonast sterk-
iega til þess að þegar til kemur verði frjálslyndi
flokkurinn sameinaður — að fáum undanskildum.
sem gjama mega fara — eg vonast til þess að við
THE DOMINION BANK
SIR EDMUND B. CSLER, M.P,
Presiclent
W. D. MATTHEWS.
Vice-President
Hagsýni hjálpartil að vinna í tríðið
Byrjið sparisjóðs reikning og bætið við hann reglulega
Notre Darae Branch—W. M. HAMtE/TON, Manager.
Selklrk Branch—M. 8. BCTRÍ3ER, Manager.
NORTHERN CROWN BANK
Hlfuðitóll löggiltur 56.000,000 HöfuSstóll greiddur $1,431,200
Varasjóðu......$ 848,554
formaður.............- _ - Capt. WM ROBINSON
Vlcc-President - JAS. H. ASHDOWN
Sir D. C. CAMEUON, K.C3I.G. W. R. BAWI.F
( E. F. HLTTCIIINGS, A. McTAVISH OAMPBELI,. JOHN STOVED
Allskonar bankastörf afgreldd. Vér byríum relknlnga vlC elnstakllnga
eða félög og sanngjarnlr skllmfllar vetttlr. Ávtsanlr seldar tll hvaða
staBar sem er 6 (slandl. Sérstakur gatimur geflnn sparlrlóðslnnlögum,
sem byrja má me8 1 dollar. Rentur Iag8ar v!8 fl hverjum 8 mánu8um.
T* E. THORSTEIN8SON, Ráðsmaður
Co William Ave og Sherbrooke St., . Winnipeg, Man.
næstu kosningar verði aðeins um
tvent að ræða: pað er Borden
sem leiðtoga og afturhalds hala-
i ófan með honum með fáeinum
Siftonum, hlaupnum frá vorum
flokki, sem aldrei áttu heima hjá
os?; og hins vegar Laurier sem
leiðtoga með fylgi allra sarn-
frjálsra manna, allra sjáandi
verkamanna og allra þeirra sem
meta þjóðarviljann meira en
einstaklings hag og virðingar.
Eg vonast til að næsta kosn-
ingarbarátta verði háð á milli
þess anda sem leiddi bandamenn
út í stríðið, sem er þjóðstefnu-
andinn og frelsið og að þar verði
ein hjörð og einn hirðir — allir
fr.iálshugsandi menn og Laurier
leiðtoginr.; en hins vegar verði
sami andinn sem bandamenn
beriast á móti, sem sé ofbeldis-
andi, drotnunar- og einveldis-
andi, kúgunar- og þrældóms-
andi, sem ekki veigri sér við að
rjúfa helga samninga fremur
en pýzkalandskeisari og s. frv.,
og fyrir þeim flokki sem þessi
andi ræður verði Borden.
Ef þannig verður farið til
kosninga, þá hefi eg svo mikla
trú á dómgreind fólksins og
gæfu þessa lands að ekki geti
nema á einn veg farið um úrslit
iafnvel þótt opnuð verði öll hlið
helvítis og þaðan hleypt á móti
oss öllum hersveitum.
Hér er í stuttu máli mín per-
sórulega afstaða og eg veit að
fiöldi fólksins hugasr á sömu
leið.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Mótmæli.
Eftirfarandi grein birtist í blaöinu
“Saskatoon Phonix” 2. október:
“Eg er einn þeirra manna sem er
útlendingur og var boðið að koma
hingað til þessa lands. Meira aS
segia eg var eggiaður og baS var
gengið á eftir mér til þess að fá mig
til að flytja hingað. og það gerðu
fulltrúar stjórnarinnar í Canada.
Nú hefi eg veriö sviftur rétti mín-
um sem borgari með lögum sem sam-
þykt hafa verið af meiri hluta þings-
ins i Ottawa.
MeS því að eg er nú kominn og
hefi í siSastliSin 14 ár reynt aS verSa
sem trúastur og sannastur Canada
borgari, hlýtt lögum landsins og stutt
stofnanir þjóSfélagsins lætur þaS ó-
viSkunnanlega mér í eyrum þegar mét
er sagt aS eg sé ekki álitinn hollur
borgari; aS eg sé grunaöur um land-
ráö; aS eg fái ekki sama rétt og aör-
ir samborgarar minir hér í landi, og
aS vegna þess aö eg sé ekki sannur
borgari veröi eg sviftur þeim fyrsta
og helgasta rétti, er eg hafi hlotiö
sem meSlimur í canadisku þjóöfélagi;
mér er þannig tilkynt þaS aö mér se
hegnt fyrir eitthvaS sem eg aldrei
hefi gert.
Pegar þannig er fariS aS sé eg
ekki betur en aS mér sé ofaukiö hér
í landi og veröi eg því aö leita fyriv
mér um verustaö í einhverju ööru
landi, þar sem borgararéttur minn sé
ekki virtur aö vettugi.
Þessi neySarúrræSi finst mér eg
veröa aS taka vegna þess aS haldi eg
áfram aö vera í Canada hefi eg enga
sönnun fyrir því aS eg veröi ekki
svftur öSrum réttindum og jafnvel
eignum; eg get átt von á aö hvaöa
réttur sem er veröi hvenær sern
hentugt þykir tekinn af mér og þeim
sem meS mér fluttu hingað til land>.
Þegar stjórn landsins hefir tekiö
af mér þann siöferöisrétt sem at-
KvæSi minu fylgir, þá er ekki nema
eitt spor óstigiS þangaS til þeir ef
til vill taka af mér eignir mínar líka.
sem auðvitaS eru mér ekki eins mikils
virSi og sá siðferöislegi réttur, sem
eg hlaut meS því að gerast félagi i
borgaraflokki þessa lands, sem eg nu
hefi veriö útskúfaöur frá.
Mér skilst því sem þaS eitt liggi
fyrir mér aö taka saman pjönkur
mínar og flytja burt héðan úr því
landi, ])ar sem eg hefi tapaö rétti
mínum, ekki vegna neins brots af
minni hálfu, heldur fyrir dýrslegt of-
beldi pólitískra manna, sem á þessum
tíma hafa stjórn þjóöarinnar sér i
höndum.
Eg er pólskur aö þjóSerni; fæddur
í Posen, sem verið hefir lagt undir
Prússland. ÞaS er flestum kunnugt
•S borgaraleg Iög hafa veriS samin
í Prússlandi á móti rétti Pólverja, sér-
staklega á móti tungu þeirra; en hinn
al’ra versti prússneski haröstjóri og
fylgjandi Bismarks kenninga — hinr
grimmasti járn- og blóSstjórnarmaS
ur á Prússlandi. hefSi aldrei þoraS aó
fara svo Iangt aS svifta pólska fó!k-
iS frumrétti síntim, sem er atkvæSis-
rétturinn og sá réttur aS velja sjálft
sína eigin fulltrúa á prússneska þing-
iS og rikisdaginn, til þess aS vernda
málefni þjóðarinnar og bera frum-
kröfur hennar.
Vér Pólverjar á Þýzkalandi höf-
um því sérstakan flókk og ákv’eSinn
hæöi í prússneska þinginu og á ríkis-
deginum, sem sér um aö svo miklu
leyti sem hægt er aö mál vor veröi
þar ekki fyrir horö borin. Enginn
lifandi maSur á Þýzkalandi hefir
nokkru sinni látiS sér koma þaS ti!
hugar aS uppræta þenna flokk, meS
hví aö taka atkvæöin af pólverskum
borgurum, þrátt fyrir þaö þótt pólski
flokkurinn hafi lengi veriS þyrnir t
siSu prússnesku stjórnarinnar.
ÞaS var ekki fyr en eg kom tií
Canada, sem eg varS fyrir því aS
vera sviftur borgararéttindum. ÞaS
var ekki fyr en eg kom til Canada
sem eg fékk þá reynslu aö viður-
kenning fyrir réttindum i þjóöfélag-
inu og samningur viö landsstjómina
sé einskis viröi.
Þetta mál er mér svo mikiS alvöru-
mál. aö fyrsta spor mitt eftir stríSiS
verður þaS að kveSja þetta land og
fara aftur til Prússlands, þar sem eg
átti heima áöur en eg var lokkaður
til þessa lands; því eg álít aS það a’S
búa undir prússneskri og hálfgeröti
einveldisstjórn á Þýzkalandi veröi
öruggara fyrir mig og mina en aS
dvelja í svokölluðu þjóöstjórnarlandi,
þar sem borgararéttur sem heiöarlega
hefir veriS fenginn er tekinn aftur
meö valdi og án orsaka.
Þeear sá hluti Prússlands sem eg
heyri til var lagSur undir Þýzkalanö
var oss cl ki refinn reinn skriflegur
samningur; þaö er siöur þar frá alda
ööli að borgararétturinn sé sjálfsagö-
ur og engin skrif þurfa fyrir honum
Þetta heíir gilt --síSan á d-'g'un
EriSriks mikla. En þegar vér kom-
um til Canada gerði stjórnin samning
viö oss, ekki munnlegan aöeins. hcld-
ttr skriflegan; samning sem alls ekki
er tvíræS'M- né dulur, heldur ákveS-
inn og skýr.
í borgar..bréfi minu er þaö tekiö
fram aS á meöan eg fullnægi þeim
parti samninganna, er mig snerti,
njóti eg fullkomins réttar hér sem
canadiskur borgari.
Vér canadiskir borgarar. seip af
utlendu bergi erum brotnir ák(erum
r.úverandi stjórn í Ottawa — hina
samvizkulausu stjórn pólitískra þorp
ara, um þaö að þeir hafi ekki haldiö
heit sín viS oss; aö þeir hafi brotiö
|>ann samning sem við oss v'ar gerS-
ur og svikiS oss. Og i þessu sam-
bandi tek eg þaö fram aö eg tel ekki
hægt aS halda mér aö neinun’. parti
þessa samnings lagalega, þegar hann
hefir verið brolinn af hinni hliSinni.
Eftir þetta er ekki hægt aö krefjast
þess af mér sem borgarabréfiC heimt-
ar aS eg sé trúr þegn í Canada, að
eg skuli verja landiö og ljósta því
upp ef eg komist aS einhverjum svik-
ráöum viS konunginn.
Á þennan hátt liefir núveraudt
stjórn gefiö sterka ástæöu til land-
táSa og jafnvel uppreistar; og cf
nokkuö slikt skyldi koma fyrir, þá
ber núverandi sambandsstjóm fulla
og alla ábyrgS á því; stjórnin sem
hefir rofið lögmæta samninga viS
ors útlendingana, sem var boöiö aS
koma hingað og lokkaöir til þess.
Haldið þér herra ritstjóri aö vér
trúum því aö Canada sé í striöi tii
þess að hegna fyrir þá stefnu
Bethman-Holwegs, sem viröir ekki
samningsskjöl meira en bréfadruslui,
þegar vér finnum þaö út aS sömu
stefnu er fylgt hér í þessu landi viS
oss sem erum eins saklaus og Belgiu
menn voru?
Til allrar hamingju ber þjóðin í
Canada ekki ábyrgS á þessu, og eg
spyr yöur öll sem eruS af engil-sax-
neskum uppruna hv'ort vér höfum
ekki hegðaö oss hér sem góöir og trú-
ir canadiskir borgarar þessi þrjú ár
sem stríðiö hefir staSið yfir?
Þrátt fyrir þaS þótt vér höfum
oröiS aS líSa óútmálanlegar hörm-
ungar bæði líkamlcga og andlega-
þegar vér sáum þaö aS þetta fóstur
land vort var í blóðugu stríSi á rnóti
bræSrum vorum í því landi, sem vér
vorum frá, þá höfum vér samt veri'ö
í ööllu hollir og löghlýðnir.
Og svo fáum vér þaS aS verSlaun-
um og í viðurkdnningarskyni aö vera
sviftir borgararétti.
MeS því vér höfum enga ábyrgS
fyrir því aS framvegis v'erði ekki
tekiö af oss þaS sem vér höfum unn-
ið fyrir í þessu landi, þegar þaS lag
er komiö á aS vir'ða ekki stjórnar-
samninga við oss meira en hverja
aðra ómerka pappírsdruslu, þá sjá