Lögberg - 11.10.1917, Blaðsíða 6
3
/
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 11. OKTÓBER 1917
Það er ekkert eins gott og
heimatilbúið Pie, kökur og
'3 brauð búið til úr
142
;* PURITV
„ J FtOUR ;
'more bread and BETTER BREAD’
Asmundar saga fóta-
lausa.
Asmtmdur Ásmundsson var fædd-
iti afi Bægisstööum í ÞistilfirSi í N.-
Þingeyjarsýslu, 26. apríl 1845. For-
eldrar hans voru þau Ásmundur Jóns-
son, þess er eitt sinn bjó á Hóli í
Kaupangssveit í Eyjafiröi; Helgason-
ar, og Kristín Ingveldur Ásmundsdótt-
ir frá Fjöllum i Kelduhv'erfi. Fimm
vetra gamall fluttist hann meS for-
eldrum sinum aíi Máná á Tjörnesi í
S.-T,ingeyiarsýslu, og dvaldist hjá
þeim, til þess er hann var tvítugur, j
þar á nesinu. afi Máná, Mánárseli og
HallbjarnarstöSum. — Um tvítugt ré?5-
ist hann frá foreldrum sínum í vinnu-
mensku austur í Kelduhverfi. um
þriggja ára skeið og hvarf síðan til
þeirra aftur í Þórunnarsel í Keldu-
hverfi. Næsta vetur í marz kom sá
atburður fvrir, er hafði mjög diúptæk
áhrif á lífskiör hans jafnan sifian.
Hann haföi ltugsaö sér aö sjá um
foreldra sina til dauðadags, og táta
eitt vfir sig og þau ganga. Var þá
afráðið, að fá kot þar í Hverfinu til
ábúðar, og var hann sendur af föður
sínum i þeim erindum austur i Þistil-
fjörð til þess manns, sem við var að
eiga um. Þykir hér hlýða, að skýra
frá þeim atburði nákvæmlega.
Hann lagði upp um morgun frá
Skógum i Axarfirði að Núpi, og hugð-
ist að leggia þar á Axarf iarðarheiði,
en var ráðið frá, því sú leið var sjald-
farin og torsótt. Hélt hann síðan að
Sandfellshaga. sem er næsti bær und-
ir heiðinni á alfaraleið. Var þá nokk-
uð liðið á dag, er hann lagði á heið-
ina, og veður ekki sem tryggilegast.
Átti hann von á að mæta manni, sem
um morgunin fór til fylgdar Iang-
ferðamanni og v'on var á, að kæmi til1
baka. Hélt hann leiðar sinnar, en
varð ekki var við för mannsins; enda
hafði hann ekki farið nema fjórðung
leiðarinnar, þegar hvessa tók á norð-
austan með snörpu renningsskriði, og
hóf upp bakka í norðri. Grimdarfrost
var á, því hafþök af ís voru fyrir öllu
Norðurlandi. Leið nú ekki á löngu.
að loft varð kafþykt, og gekk upp
veðrið með kafaldshrið og hörkufrosti
og var það sú grimmasta stórhrið, er
hann sá fyr og síðar. Þótti honum
sem sig mundi hrekja af leið og hélt
sig fast í veðrið. Var leið hans í
fangið um stund, unz hann kom upp á
hæð nokkra og á bersvæði. Var þar
svo mikið ofviðri, að hann þóttist sjá
að óráðlegt væri að halda lengra að
svo komnu. Hugðist hann því a'ö
snúa til baka sömu leið og Ieita hlép,
og láta þar fyrir berast, unz af gengi
veðrið. Hélt hann þá til baka, en
hafði skamt farið, er hann hrapaði
fram af hengiflugi. Vissi hann þá
óglögt hvað gerðist. Fann að hann
komst við í hrapinu, og kendi sárs-
auka.
Eigi vissi hann, hversu Iangt mundi
um liðið, er hann raknaði við. Þá
kendi hann mikils sársauka í vinstri
öxlinni, var mjög máttfarinn og skalf
af kulda. Skíði hans, stafur og mal-
poki lágu á fönninni umhverfis hann,
og svo grjótmöl, er hann hafði tekið
með sér í hrapinu. Gat hann með
naumindum komist á fætur, og vildi
finna eitthvart hlé- því veðrið stóð
eftir gljúfri því, er hann hafði hrap-
að í, —• en þar var fokið í öll skjól.
Lét hann þá fyrirberast undir steini,
þó ekki nyti hann skjóls, nema að
hálfu leyti. Vinstri handleggur hans
var með öllu máttlaus og þrautirnar
í öxlinni afskaplegar. Átti hann í.ú
von á dauða sínum á hverri stundu og
sótti á hann svefnhöfgi öðru hvoru;
en þrautirnar vöktu hann jafnharðan
til lifsins. Lá hann þarna þá nótt
alla.
Með næsta morgni vaknaði ný lifs-
von, þvi þá var uppstytt hríðinni og
bjartviðri. Fætur hans voru þá mjög
stirðir og dofnir. Leitaði hann þá
út úr gilinu, og reyndist auðvelt að
komast norður úr því. Tók hann þá
stefnu á ný austur í Þistilfjörð.
Reikaði hann þann dag allan, og fór
mjög af réttri leið. Var gangurinn
honum erfiður, sökum þess. að vinstri
handleggur hans var genginn úr liði
um öxlina. Hékk hann máttlaus nið-
ur — og lengra sökum liðhlaupsins.
Komst höndin því við, er liann bar
til vinstri fótinn, og jók það mjög
sársaukann. Undir kveldið virtist
honum sem hann væri kominn nálægt
mannabygð, og reyndi þá að kalla á
hjálp, en árangurslaust. Þegar dimt
var orðið, þóttist hann koma að
vörðubroti. Treystist hann þá ekki
til að halda lengra, og lét þar fyrir
berast næstu nótt alla. Hreinviðri
var og frostharka.
Næsta morgun um sólaarupprás
færðist hann enn á flakk, og stefndi
í austurátt, en komst þar ekki áfram
fyrir grjóturð og skrofi. Sneri hann
þá aftur og reikaði í vestur. Þóttist
hann þá sjá þústu nokkra álengdar.
en þó mjög óglögt. En er hann kom
á þær stöðvar, er hann hafði dvalið
um nóttina, var sem sjón hans glöggv-
aðist; sá hann þá ljáför og áburðar-
hlöss umhverfis sig. Var hann þá
staddur á túni og blasti nú við honum
bær skamt frá. Reyndist það síðar
að vörðubrot það, er hann þóttist
vera hjá um nóttina, var eitt hlassið.
Er þar nú skemst frá að segja, að
hann kom þar á bæ, er á Sjóarlandi
lieitir, og var fólkið enn ekki risið úr
rekkju. Drógst hann þá upp á glugga
og “guðaði”, og er undir var tekið
bað hann fólkið að opna bæinn, því
liann hefði “Iegið úti”. Var honum
tekið hið bezta. og alt gert honum til
hjálpar. Fætur hans báðir og vinstri
hönd var alt beinkalið. Voru limir
hans þýddir í snjóvatni í tíu daga, en
varð þó ekki bjargað, og hafa læknar
sagt siðan, að óhugsandi hefði verið
að bjarga þeim, sökum þess, að þeir
hafi frosið hina fyrri nótt, þiðnað að
nokkru um daginn, sem hann var á
ferli, og frosið á ný seinni nóttina.
Féll holdið inn og datt af beinum.
Mánuð lá hann á Sjóarlandi, og þjáð-
ist mjög af þrautum í öxlinni. ofsa-
legum krainpa og sinadráttum.
Að mánuði liðnum var hann flutt-
ur heim til sín í Þórunnarsel og var
þá kominn læknir frá Akureyri. Þórð-
ur Tómasson, Sæmundssonar. Næsta
dag tók hann af vinstri hönd, rétt
fyrir framan miðjan framhandlegg,
og annan fótinn um ökla, en sagði að-
stoðarmanni sínum fyrir um aðferð-
ina. Tók sá af hinn fótinn nokkru
síðar og fórst það v'el. Á hægri hendi
kól hann einnig, en ekki til stórskemda
Ekki gat læknirinn kift öxlinni í lið
sökum bólgu. Síðar kom það fyrir
eitt sinn, er hann var að hagræða sér
i rúminu, að leggurinn hljóp upp, en
ekki þó í liðinn, heldur framan við.
og settist þar að.
Rúmt ár lá hann rúmfastur, en var
um vorið fluttur að Máná, því foreldr-
ar hans íluttust þangað buferlum
Sumarið næsta, þegar hann var sem
mest þjáður, hlóðst enn á hann sú
sára sorg, að missa móður sina. Án
hennar mátti hann þó sízt vera, því
þrautir hans gengu henni mjög að
hjarta, og hún annaðist hann með
þeirri umhyggjusemi og fórnfýsi,
sem góð móðir á mesta í eigu sinni.
Eftir að rúmt ár var liðið. fór hann
aö skríða á hnjánum, og var svo i þriú
misseri. Seinasta misserið heyjaði
hann tólf hesta heys á.blautri mýri. ?>á
lét hann smíða sér tréskokka sívala,
sem hann fóðraði innan með þófa-
blöðum og sokkum, og stakk siðan
stúfunum ofan í. Leggjarhöfuðin
máttu ekki hafa þrengsli, né koma
hart niður, og varð þó ekki við það
ráðið, svo að úr þeim blæddi því nrer
a hverjum degi um átján ára skeið.
Aldrei greri fyrir stúfana að neðan
því dauð beinflís var neðan í hvor-
um stúf allan þann tíma.
Næsta ár hafði hann ofan af fyrir
sér með v'innu sinni, bæði á sjó og
landi. Á því timabili kyntist hann
Kristbjörgu Jónsdóttur og Vigdísar
frá Rauðuskriðu í S.-Þingeyjarsýslu,
en hún var hálfsystir þeirra Árna
Magnússonar. bónda á Rauðuskriðu,
og Sigurðar Magnússonar bónda að
Arnarvatni. Árið 1875 gekk hann að
eiga hana. Dvaldist eftir það tvö ár
á Tjörnesi og flutist siðan austur í
Þistilfjörð að Kúðá. Þar dvaldi hann
í sex ár hjá Ólafi Mikael Jónssjmi,
sem reyndist honum svo ágætur dreng-
ur í allá staði, að hann telur sig eiga
honum mest að þakka allra manna
vandalausra, á meðan hans naut við.
Komst hann þar í nokkur efni, eftir |
því sem við mátti búast og leið þar
vel.
Sumarið 1883 fluttist hann með
konu sinni til Vesturheims og settist
að í Argylebygð. Innan skamms nam
hann þar land, og bjó þar i þrettán
ár. Fjórum árum eftir að hann kom
vestur, ágerðust sárindin i fótastúfum
hans með bólgu og blóðrás, svo að
hann gat ekki haft fótaferð. Komst
hann þá í kynni við Iækni einn, dr.
Gunn, sem reyndist honum aíbragðs
vel. Kom hann honum fyrir á sjúkra-
húsi í Winnipeg. og var nú á ný tekið
neðan af báðum leggjum. Greri eftir
það fyrir stúfana betur en áður. Þá
lét hann einnig smíða sér nýja skokka,
en þeir voru þannig gerðir, að utan-
um kringlótta tréflugu var fest sterk
járngjörð, en úr gjörðinni gengu'
spengur fjórar upp legginn, sem komu |
saman i boga tvær og tv'ær innanfótar
og utanfótar. Þar voru á þolinmóðir
um hnjáliði, en spengur gengu úr
þeim upp um lærin og voru á þær
íestir leðurhólkar, sem spentir voru
um lærin rríeð Ieðurþvengjum. Enn
iágu úr þessu tengsli upp í mittisól. }
Innan á spengurnar var svo fóðrað]
með járnþynnu. Eigi færri en 10—20
sokkaboli af mismunandi lengd þurfti
hann að hafa á hverjum fótlegg, til j
að fylla upp í hólka þessa og verjast |
sárum. Hækjulaus gengur hann jafn- j
an, bn hefir stafprik; þó getur hann }
borið sig án þess, en ekki staðið
óstuddur.
Búskap sinn byrjaði Ásmundur með }
einni kú. en hafði um skeið allmikið
undir höndum, og þegar flest var:
3 hross, 15—20 nautgripi, 60 sauð-
kindur, nokkur svín og um 50 alifugla
Á þessum árum kom vestur um haf
ölafur Mikael Jónsson, sá, sem fyr er
getið. Varð þá með þeim fagnaðar-
fundur, Ásmundi og honum. Ásmund-
ur gat þá að nokkru launað honum
.•elgerðir hans við sig, og léð honum
til afnota hálfa bújörð sina. Nú er
Olafur þessi fyrir löngu dáinn.
Allmiklar skuldir hvíldu á búi Ás-
mundar, og að siðustu sá hann sér
þann kost vænstan. að selja búland
sitt og kvikfénað, og bregða búi.
Eftir það hafði hann ofan af fyrir
sér með fjárgevmslu og nautgripa á
sumrum í 15 ár, og fluttist á þvl tíma-
bili til Baldur, sem er þorp í,Argvle.
Þar keypti hann húsgrunn, flutti á
hann smáhýsi, sem hann átti, og bjó
um sig að öðru leyti. Þar átti hann
heima í 10 ár. Á því tímabili (\ nóv.
1910) andaðist kona hans Kristbjörg
tæpra 83 ára gömul (í. 22. nóv. 1827).
Höfðu þau þá verið í hjónabandi i
35 ár, en ekki orðið barna auðið. Hún
hafði lagt fram krafta sina, ekki síður
en hann, og borið hita og þunga dags-
ins. því hún var bæði ötul og dugleg,
til verka. Telur Ásmundur það mesta
lán sitt, að hafa átt hana að; enda
dæmi hennar því nær einstætt, að taka
hann að sér svo á sig kominn, sem}
hann var.
Eftir það seldi hann húseign sina,
t-g hefir síðan dvalið hjá þessum
mönnum; Andrési Helgasyni bróður-
syni sínum, Baldur, Stefáni Péturs-
svni, sem var einn þeirra, er óku hon-
um vestur yfir Axarfjarðarheiði eft-
ir legu hans á Sjáarlandi, Andrési
Andréssyni, Birni Andréssyni, Jó-
hanni Sigurðsyni, Jónasi Helgasyni og
Stefáni Jónssyni, sem allir eru bænd-
ur í Argyle. Allir hafa þeir reynst
honum hið bezta, og boðið hann jafn-
an velkominn á heimili sín. Mörgum
öðrum ónefndum á hann mikið að
þakka, frá því fyrsta til þess síðasta
fyrir velgerðir og stuðning í baráttu
hans fyrir lífinu, og biður hann þann,
sem þettá ritar, að flytja þeim öllum
innilegt þakklæti sitt.
Síðustu árin hefir hann talsvert
unnið að eldiviðarsögun, þar sem
hann hefir verið, og tekið til handar-
gagns. Þykir hann enn vera þaríur
karl á heimili, hvar sem hann er. Nú
síðast hafa kviðslit beggja megin
bæzt við það, sem á undan var komið.
Eg hefi skrifað þessar línur sökum
þess, að eg hygg sögu Ásmundar eiga
sér fáa líka. Hún er hvortveggja i
senn, harmsaga og saga sigurvinninga
Lífsseigja hans hefir verið næsta mik-
il, þrautseigja hans og kjarkur óvil-
Auglýsið í Lögbergi það sem selja þarf.
mr ✓ • .. l • 3c» timbur, fialviður af öllum
Nyjar vorubirgöir tegundum, geirettur og ai8-
konar aðrir strikaðir tiglar, hurðir og gluggar til vetrarins.
Komið og sjáið vörur vorar. Vér erumætíð glaðir
að sýna þó ekkert sé keypt.
The Empire Sash & Door Co,
---------------- Limited ------------
HENRY AVE. EAST - WINNIPEG
andi. Þetta dæmi um fótalausan mann
einhentan og genginn úr liði um öxl,
sem hefir séð sér farborða með slíkri
atorku, er þess vert, að haldið sé á
lofti. Hann hefir ekki “gengið heill
til skógar”, og hefir þó höggvið skóg.
Einnig hefir hann unnið mörg þau
verk, sem fullrosknir menn heilfættir
og heilhentir telja sér erfið. Hann
hefir einnig unnið að slætti með orfi
og ljá. sjóróðrum, fjárhirðingu,
mokstri, slegið og rakað með vélum,
bygt heyhlöss og kornhlöss, jafnvel
slegið með kornbindingarvél, sem
stjórnað er með 3—4 vogarstöngum,
auk þess að hafa stjórn á hestum.
Margt fleira hefir hann unnið, sem
ekki verður hér talið. Altítt er það
í Kanada, að innfæddir menn þar
ganga um og biðjast beiningú, hafi
þeir mist aðra hönd. Komið hefir
það fyrir, að þarlendir menn hafa
vísað þeim til Ásmundar til eftir-
breytni. Veðuróblíða íslands lék
hann hart. en hún hefir einnig stapp-
að í hann stáli. Þrautir hans hafa
ekki bugað kjark hans né bjartsýni.
Hann er trúhneigður, alvörugefinn óg
fáskiftinn, en þó fljótur til glaðværð-
ar, og ber vel ellina.
Út á við hefir hann gert þjóðinni
sóma.
Ritað i desember 1916.
Jónas borbergsson.
—Eimreiðin.
Frá Blaine, Wash.
Þann 13. ágúst siðastliðinn andað
ist á Point Roberts, Wash. Ingvar
Franklin Goodman. Hann var son-
ur þeirra hjóna Ingvars og önnu
Goodman á Pt. Roberts.
Franklin heitinn var fæddur 7. nóv'.
1902, hann var efnilegur og góður
piltur. er því foreldrum hans og öll-
um er til hans þektu, söknuðurinn
miög sár. Hann var iaröaður í
grafreit Pt. Roberts bygðar. Fjöldi
fólks fylgdi honum til grafar.
Síðastliðinn ágúst andaðist á Pt
Roberts, Wash., ekkian Þuríður
Ivfagnúsdóttir, Kelly. Hún var fædd
í Transtaðshólma, en ólst að nokkru
leyti upp þar og á Fljótshólum í
Gaulverjabæjarhreppi í Árnessýslu.
Hún bjó lengi í Króki, og var alþekt
á þeim stöðvum fyrir dugnað og
skörungsskap. Menn sína báða
misti hún þar, hinn fyrra Björn, ætl-
aðan úr sömu sveit, hinn siðari Þor-
kel ættaðan úr Stokkseyrarhreppi.
Bjó hún þar all-lengi eftir það sein
ekkja og ól þar upp börn sín.
Til Ameríku fór hún fullorðin, og
bjó fyrst í Winnipeg, en þaðan flutt-
ist hún hingað vestur og dvaldi lengi
í Bellingham, Wash., en síðar á Pt.
Roberts. Hún dó þar eftir að hafa
notið aðhjúkrunar Sigriðar dóttur
sinnar. Meðal barna henanr sem á
lífi eru, auk Sgríðar sem áður er
nefnd, eru tvær dætur í Reykjavík og
sonur, Magnús að nafni. sem býr í
Holtum í Rangárvallasýslu.
• Þuríður heitin var íslenk í anda í
orðsins fylstu merkingu. Hún hafði
og einkenni þau sem sæma hverri ísl.
konu.
Hún hafði lifað í þeirri von að fá
að sjá landið ástkæra, Island, en svo
varð ekki, heldur varð förin til'hin?
landsins, framtíðarlandsins eilífa —
handan yfir dauðans haf. Hún v'ar
um 70 ára að aldri er hún andaðist.
Nýlega voru gefin saman í hjóna-
band hér í Blaine, þau Augustus
Sigurður Reykdal og ungfrú Olivia
Björný Thordarson.
Er Augustus sonur þeirra hióna
Jóns og Ragnhildar Reykdal. en kona
haps er dóttir Sigurðar skósmiðs
ThordarSonar og Ingibjargar konu
hans. Ungu hjónin búa hér í Blairie.
Gefin saman í hjónaband hér í
Blaine, þau Hans M. Thorarinson,
sonur Magnúsar Thorarinsonar og
konu hans og Mrs. Guðbjörg Finns-
son, ættuð úr Húnavatnssýslu og
ekkja eftir Finn heitinn Finnsson er
dó hér fyrir nokkrum árum síðan. —
Þau hjón eru búsett hér.
Sig. Ólafsson.
Börnin safna $2,000 virði.
Tvö þúsund dala virði af dagblöð-
um komu skólabörnin með á fjórum
mánuðum, marz apríl, maí og júní.
Eru foreldrar eggjaðir á að hvetja
born sín til þess að safna saman öíl-
um blöðurr. sem þau geta. Pening-
arnir renna í Rauðakrosssjóðinn.
óeirðir í Kína.
Forsetinn í Kína heitir Feng
Kwa-Chang. Fyrra þriðjudag gaf
hann út þrjár skipanir allmerkilegar
1. stofnun þjóðnefndar, 2. kosningar
til þings og 3. að Dr. Sun Yat San
ÓVANALEG
Loðfata-Sala
með
25-35%
afslætti frá vanalegu söluverði
Hudson Seal yfirhöfn—
vanalega $200, fyrir .. $15#
Hudson Seal yfirhöfn—
vanal. $300, fyrir.$200
Svört tóuskinna “sets”—
vanal. $125, fyrir.......$76
Cross Fox Sets—
vanal. $150, fyrir.......$95
Taupe Wolf Sets—
vanal. $75, /fyrir ....... $50
Beaver Muffs sem vanal.
seljast á $40. fyrir .... $25
Red Fox Sets—vanalega
seld á $90, fyrir ...... $70
$40 til $50 “Black Wolf Sets”,
falleg, löng, silki áferð, vel loðin.
50 klæðis yfirhafnir — sýnis-
horn umboðsmanna, fyrir $12.50
Lítil niðurborgun á einbverjum hlut
faes' geymdur f>ar til þér eruð til-
búin að taka hann.
Orðtœki vort: „Minni ágóði, meiri
verzlun". Ábyrgðvor fjlgir vörunni
DOUGLAS & CO.
# Sem búa til beztu loðföt
372 PORTAGE AVE. WINNIPEG
skyldi tekinn fastur og honum hegnt.
En eins og menn muna var Dr. Sa»
einn aðalmaður þeirra, sem uppreist-
ina gerðu í Suður Kína. Sömuleiðis
skipaði forsetinn að taka fasta alla
félaga hans, þar á meðal alt þingið
í Canton. Hvert fylki á að kjósa 5
menn eða fulltrúa í þjóðnefndina og
á hún að koma saman í Peking innan
mánaðar og endurskoða kosningar-
lögin; en þingið á að koma saman
innan tíu mánaða. Verk þjóðnefnd-
arinnar er ekki annað en endurskoí-
un kosningalaganna.
i
>
8 O L S K 1 N
ir eigin samvizku.
1846 var hann kosinn á sambandsþúngið og þá
var að byrja afarmikið æsingamál.
Á þeim dögum var verzlað með fólk eins og
aðra vöru, helzt svertingja; og fólkið sem selt var
og keypt voru kallaðir þrælar. Vissir auðmenn
áttu heila hópa af þrælum^ sem þeir létu vinna
fyrir sig. Jlessu vildu góðir menn á þingi breyta
og afnema þrælahaldið. Lincoln greiddi undir
eins atkvæði með þeim og vann á móti þræla-
haldinu.
Flokkurinn sem barðist fyrir því að frelsa
þrælanc var stofnaður u'ti 1354 • g kal aðvr sa.-n-
veldisflokkur (Republicans). «
Lincoln varð bráðlega leiðtogi þessa flokks.
síðan reyndi hann að komast í efri deild þingsiná,
en náði ekki kosningu.
Árið 1860 var hann útnefndur fyrir forseta
NL8KIN t
Bandaríkjanna á stjórnflokksþingi í Chicago og
helzta málið sem þá var barist um var þrælahald-
ið. prír aðrir menn vildu verða forsetar þá, en
Lincoln fékk flest atkvæði við útnefninguna og
var svo kosinn.
Lincoln tók við forseta embætti 4. marz 1861.
pá vissu þrælasölumennimir að hann mundi gera
eitthvað og þeim var illa við. ]?að var í suður-
ríkjunum, sem þrælahaldið átti sér stað. Ellefu
ríki sögðu sig tafarlaust úr sambandi Bandaríkj-
anna. Fyrsta janúar 1863 lýsti Lincoln því yfir
að allir þrælar í uppreistarríkjunum væru frjálsir
menn og baráttan hélt áfram.
Árið 1864 var hann aftur kosinn forseti.
præl^ríkin mynduðu hjá sér stjóm; þau kölluðu
sig hin “Sameinuðu ríki í Vesturheimi” og kusu
forseta sem hét Jefferson Davis. Fyrstu ríkin
sem uppreistina gerðu voru Suður Karolina,,
Georgia, Albama, Florida, Mississippi, Louisiana
og Texas. pegar fréttimar bárust heim til Eng-
lands um það að Lincoln hefði afnumið þrælahald-
ið, þá gerðu menn gys að því og hlógu að bama-
skap hans. En Lincoln fór sínu fram.
Stríðið varð svo á milli Suðurríkjanna og
Norðurríkjanna; er það venjulega nefnt þræla-
stríðið. pað endaði í apríl 1865 og þrælahalds rík-
in töpuðu. Abraham Lincoln var því maðurinn
sem lét hætta að verzla með fólk í Bandaríkjun-
um. Hann er því einn allra merkasti maður sem
heimurinn hefir átt.
Lincoln kvæntist árið 1842; kona hans hét
Mary Todd og þau áttu saman fjögur börn.
Abraham Lincoln var einkennilegur að mörgu
levti, bæði í sjón og reynd. Hann var fjarska ó-
fríður maður, sex fet og fjórir þumlungar á hæð
en ósköp grannur, miór um axlimar, lotinn í
herðum og ófríður. Hann var gráeygður, með
mikið og hrafnsvart hár. En þó hann væri svona
ófríður var hann skemtilegur og öllum sem kynt-
ust honum þótti vænt um hann.
Lincoln sagði að móðir sín hefði kent sér
þrent. sem hann hafði haldið trúlega: pað var að
bragða aldrei áfengi: blóta aldrei og segia aldrei
vísvitandi ósatt. Hann neytti aldrei tóbaks í
neinni mvnd.
Lincoln hugsaði altaf vel um öll mál; skanaði
sér á þeim sína eiVin skoðun eftir beztu sannfær-
ingu og hélt svo fram þeirri hlið sem hann áleit
að vfpri rétt og á móti hinni hver sem í hlut átti.
LincoV kunni iafn vel við sig í hva*a stöðu
og hvaða félagsskap sem var; hann var jafn glað-
ur og ánægður í félagi skógarhöggsmanna, fiski-
manna og annara starfsmanna, eins og hann var
í félagi hinna fínu, háu og voldugu.
14. apríl 1865 fór Lincoln ásamt konu sinni
og tveimur vinum sínum inn á Ford leikhúsið í
10. götu í Washington; þar læddist að honum
maður sem hét Joe Wilkes Booth og skaut hann
í höfuðið. Hann var fluttur þangað sem hann
var fæddur og dó í sama húsinu næsta dag. pessi
maður, sem myrti hann var fenginn til þess af
þrælahaldsmönnum, sem altaf voru reiðir vii
Lincoln.
f Lincoln skemtigarðinum í Chicago er helj-
ar mikil mynd af honum, þar sem hann situr á
stóli og svertingjarnir sem hann frelsaði falla á
kné í kring um hann og þakka honum fyrir frelsið;
miklu víðar eru merkilegar myndir af Abraham
Lincoln, hann er nokkurs konar dýrðlingur Banda-
ríkja þjóðarinnar og jafnvel alls heimsins. Hann
flutti sólskin inn í sálir hinna þrælkuðu manna;
hann flutti sólskin inn á þingið í Bandaríkjunum;
hann flutti sólskin einni stærstu og> voldugustu
þjóð heimsins og helzt þeim sem undirokaðir voru.
Hann var sjálfur sólskin fyrir allan heim.
Um slíka menn er skemtilegt fyrir sólskins-
börn að lesa og myndir af þess konar mönnum
þykir sólskinsbörnunum gaman að skoða.
Sólskin-
Hvort sem hugur þinn liggur
um lönd eða höf,
gefðu sérhverjum sumar
og sólskin að gjöf. —
Klappa blíðlega á barnskoll
og brostu þeim inót,
sem að harmana hylja
við hjarta síns rót.
pað er samhygðar sólskin,
er sæld veitir mest,
það er lang-fagrast ljósið
og lífsyndið bezit.
Sérhvert sann-kærleiks atlot
og sann-ástar hc'l,
er vort eilífa lífið
og almeina bót.
Hvert sem leiðin þí;i liggur,
þá líttu æ hýr,