Lögberg - 18.10.1917, Side 6
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 18. OKTÓBER 1917
3
Verið vissir um að senda kornbirgðir yðar til
JÓN M. BORGFJÖRÐ
segjr: “Eg meðtók
peningana fyrir kom-
vagninn, sem eg sendi
yður, og er eg mjög
vel ánægður með það
hvemig þér hafið
höndlað það. Eg þakka
yður fyrir það hversu
vel þér höndlið vömr
bændanna.”
hins mikla bœnda-félags
pegar þér látið oss höndla korn yðar, þá eruð þér vissir um
að því verður samvizkusamlega sint. þetta bændafélag á eignir
sem nema 3,000,000.00 og hefir skrifstofur í Winnipeg, Calgary og
Regina; það hefir 300 sveita kornhlöður víðsvegar um vesturfylkin
þrjú, og með endastöðvar í Fort William og Port Arthur, og getur
ábyrgst yður fullkomlega hæsta verð og fljótustu afgreiðslu.
Fáið y ður flutningsform og leiðbeiningar
P. C. TH0RLE1FSS0N
segir: “Meðtakið mín-
ar beztu þakkir fyrir
það, hversu vel þér
hafið höndlað kom
mitt, og fyrir það
hversu góður árangur-
inn varð. Eg skal
reyna að £á aðra menn
í mínu héraði til að
senda yður kom sitt”.
Uhited Grain Growers Ltd.
Winnipeg, Regina, Calgary.
<
j Sendið hleðsluskjöl og upplýsinga eyðublöð.
i .........................:.....’..............
I
I ..............................................
| W.L. Nafn ....................................
ókeyp
Rífið hér af miðann og sendið oss hann aftur; þá skulum vér
1S senda yður flutningsform og leiðbeiningar.
I
Oct. 18. Áritan
WINNIPEG — REGINA — CALGARY
__Samsteypa Grain Growers Grain Co. og Alberta bændasam-
vinnu félagsins.
Heilbrigði.
(Framh.,).
VIII. Peslin e'ða svarti dauði.
Og þar konuim viö aS þeirri drep-
sóttinni. sem retíö hefir þótt ægilcgust
allra, því enginn sjúkdómur hefir
reynst eins lífskæöur og hún. í sum-
um farsóttum af pest hefir manndauð-
inn numið alt að 90%—100% af þeim
sem veiktust, og stundum hafa svo
nargir veikst og dáið, að heilir bæir
og heilar sveitir hafa mátt heita
mannlausar eftir.
Af því eg hefi áður skrifað nokk-
uð ýtarlega um sögu pestarinnar
tEimreiðin XIÍ., 82), ætla eg að
hlaupa y.fir flest, sem eg þar hefi
skrifað, en snúa mér að ýmsum öðr-
um atriðum i náttúrusögu þessarar
veiki.
Pestin geisar enn hér og hvar aust-
rir í Asíu. en einkum á Indlandi, með
ólíka ákefð og hún gerði hér í Evropu
frá þvi á 14. öld, þegar hún var köll-
uð “svarti-dauði”, og fram á 18. öld.
Á siðustu 10 árum telst svo til, að
árlega hafi dáið um y2 miljón Ind-
verja úr pest, og þrátt fyrir allan
dugnað, enskra lækna og stjórnar-
valda hefir ekki tekist að stemma
stigu fvrir þessari iilu plágu. ' Og
hvers v’egna? Til þess er því að
svara, að sú árans pest ríður ekki við
eintej-niinig. Svo er sem sé mál með
vexti, að auk mannanna veikjast líka
dýr af pest, einkum rottur og önnur
nagdýr, og flærnar. sem lifa á rottun-
um, geta flutt veikina á menn. En að
útrýma öllum rottum og flóm á Ind-
landi, er enginn hægðarleikur, eink-
um þegar þess er gætt, að trúarbrögð
Indverja banna þeim að stytta nokkru,
dýri aldur. Þar er það jafnvel synd.
að sprengja lús, hvað þá heldur að
kremja sundur fló!
Fyrir nákvæmar rannsóknir ýmsra
ágætra enskra lækna og vísindamanna
sem margir hafa látið líf sitt við þær
rannsóknir, hefir það sannast, hvern-
ig sýkingin af pest hagar sér. Þar
hefir hvað eftir annað komið í ljós
að á undan mannapestinni fer rottu-
pest. Þegar dauðar rottur finnast
hingað og þangað eða veikar rottur,
sem slaga um gólfin eins og druknar
af víni, þá er mönnum hætt, sem þar
eru á ferð. Því þegar rottan deyr,
yfirgefa allar flærnar rottuhræið —
og þeirra tala er stundum legíó. En
flærnar vilja ekki lengi una við, að
jæim sé útbygt og flýja í hýruna hjá
mönnum og smitta þá. Og nú er það
alkunnugt, hv'e óþrifnaður er algeng-
ur hjá Indverjum og QÖrum Asíu-
þióðum, og húsakynnin mestu kytrur.
þar sem alt liggur í einni kös. menn
og rottur, og flær dansandi dauða-
dansinn á milli j>eirra.
1910—1911 geisaði pestin norður
í Mantsjúríu og var feiknalega skæð,
og er að lesa sögurnar þaðan alveg
álika og þegar svartidauði var upp á |
sitt versta hér í álfu. Þar uppgötv-
aðist að }>að voru ekki rottur, sem
þar hleyptu farsóttinni á stað, heldur
önnur nagdýrategund, sem “tarbagan”
nefnist (nokkurs konar múrmeldýr).
Á seinni árum hefir pestin hvað eftir
annað fluzt til hafnarbæja í Evrópu,
einkum til Rússlands og Englands, en
jtað hefir tekist að stöðva hana fyrir
það, að hún hefir ekki verið eins
næm í Evrópu og austur í Asíu. og
verður minst á það síðar.
Pestin lýsir sér á margvíslegan hátt
en einkum sem kýlapest eða lungna-
pest.
Maður, sem hefir smittast af pest,
veikist 5—8 dögum eftir smittunina.
Byrjar þá ákafur hiti, maðurinn fær
óráð, sem líkist ölæði, og á bágt með
að ganga—-slagar eins og drukkinn.
cjé nú veikin upp á sitt svæsnasta,
legst maðurinn óðara fyrir og er
datrður eftir nokkra klukkutíma, eða
samdægurs. Venjulega líður J>ó lengri
tirni, og sumum batnar. Kýlapestin
lýsir sér með bólgu í eitlunum og
íylgir því margskonar ill ltðan. Sú
tegund veikinnar er þó langtum v'æg-
ari, og smittar miklu síður en lungna-
pestin.
Lungnapestin lýsir sér svipað og
áköf lungnabólga, og það er sú teg-
und pestar, sem er mest braðdrepandi
allra sjúkdóma. Svartidauði var
lungnapest, og þær farsóttir af pest
austur í Asíu, sem verstar eru. það
eru jiær, sem leggjast á lungu sjúkl-
inganna. Lungnapestin er langtum
næmari en kýlapestin, og hún smittar
aðallega mann frá manni, þar sem
kýlapestin smittar litið, en útbreiðist
aðallega með dýrum }>eim, sem áður
var um getið. En hvers vegna hefir
pestin eigi orðið skæð í Evrópu og
austur í Asíu? — Jú, það er af }>eim
ástæðum, sem nú skal greina. Það er
oftast kýlapest. sem borist hefir til
Evrópu, en hún smittar lítið mann frá
nianni, og rottur eru ekki eins algeng-
ar innan um manrtabýli í Evrópu eins
og austur í löridum. 1 öðru lagi eru
húsakynnin svo langt um betri hér en
þar, en það dregur svo mikið úr sýk-
ingarhættunni við lungnapest. I þriðja
lagi finst ekki í Evrópu sú tegund af
flóm, sem þar lifir á rottum og ber
veikina á milli.
1 öllum hafnarbæjum í Ev'rópu er
haft vakandi auga með'rottum í skip-
um frá Asíu, og enn fremur er strangt
eftirlit haft með öllum skipverjum,
sem þaðan koma. Og læknar eru yfir-
leitt, fyrir vaxandi j>ekkingu, farnir
að hafa gát á öllum sjúkdómum, sem
likjast kunna pést. Það er helzt á
landamærum Rússlands, sem hættast
er við, að pestin breiðist frá Asíu
vestur á bóginn; en hingað til hefir
þó vörnin þar reynst nógu örugg.
Þýzkum gerlafræðingnm. hefir tek-
ist að búa til pestargrímu, sem virðist
vera óyggjandi vörn fyrir lækna og
aðra, sem hjúkra lungna-pestarsjúkl-
íngum. Hugmyndin er ekki ný. Á
miðöldunum höfðu læknar líka grím-
ur, en þær voru ekki af nógu vand-
aðri gerð og reyndust gagnslausar.
Síðan Yetsín og Kitasató fundu
pestar-sóttkveikjuna 1894, hefir þekk-
ingu vorri á pest fleygt fram á ári
hverju. Yfirleitt má nú fullyrða, að
Norðurálfubúum standi lítil hætta af
pestinni, nenta hún skyldi taka up;> á
]>ví. að breyta sínu háttalagi að mikl-
um mun. Þvi hvorki hefir pestin
breiðst út í þeim hlutum borganna
austur í Astu þar sem hvítir n-enn
búa og eins og áður er skráð, hefir
hún heldur ekki getað náð veruiegri
fótfestu meðal hvítra manna í Ev-
rópu, þegar hún hefir þangað borist;
er> j>að hefir skeð margsinnis á síð-
asta mannsaldri.
IX. Enski svitinn.
, t•
Eg hefi nú s 40 ykkur frá þeim 4
drepsóttum, sem nú þekkjast illræmd-
astar allra farsótta. En rétt er að
minnast einnar drepsóttar enn, þó
langt sé siðan að hún var síðast á
ferli: en það er cnski svitinn. Enskur
var hann kallaður af því, að sjúk-
dómurinn kom mp á Englandi og virc-
ist lengi bttndin við það land, án þess
að breiðast út frekar,- Hann hófst
1486 (og gekk þrisvar yfir Englaad
eitt á timabilinu 1486—1518); koai
þá upp alt í einu án j>ess að nokkuð
hefði áður til hans spurst annarstaðar
og geisaði um alt England, en breidd-
ist hvorki til Skotlands né írlands,
fyr en 1529—1551; þá komst fac-
sóttin líka til Skotlands og trlands og
siðan til Norður-Evrópu.
Þessi veiki var eins mannskæð, eða
því nær eins mannskæð og pestinfDO^
er haldið að dáið hafi í sumum bæj
umj.
Veikin byrjaði með köldu og siðan
áköfum svita, en þar á eftir seig á
menn svefnmók og máttleysi. Margir
dóu eftr fáeinar klukkustundir og
fólkið hrundi unnvörpum. —
Um enska svitann hefi eg skrifað
ítarlega áður ('Eimreiðin XIII, 38—
42) og leyfi eg mér að vísa til þess.
Það er haldið, að enski svitinn hafi
v'erið samskonar veiki og j>ekkist suð-
ur í löndum og kölluð er á þýzku
Schwcissfriesel, en á frönsku suette
miliaire. Nú er þessi veiki ekki verri
en meðalkveí, en áður fyr varð hún
af einhverjunt óþektum ástæðum svo
framúrskarandi hættuleg, eins og
sagan segir. Seinast vita menn til að
enskur sviti hafi komið upp í Rött-
ingen. smábæ í Schwaben, 1802.
Fjöldi borgarbúa d'ó, en sóttin breidd-
ist ekki út um sveitir.
X. Hver er uppruni sóttkveikjanna.
Áður en Lamarck og Darvin komu
fram með breytiþróunarkenninguna,
voru flestir náttúrufræðingar J>eirrar
skoðunar, að guð hefði skapað alla
hluti á 6 dögum (eins og biblían skýr-
ir frá) og ]>á líka allar tegundir dýra
og urta, hverja fyrir sig. Þessari
skoðun fylgdi t. d. Linné, en éftir
henni hlaut Nói að hafa tekið með
sér út á örkina sína tegundina af
hverju tægi af öllum dýrum og öllum
jörtum. nema máske þeim, sem gátu
hafst við í vatninu. Vantrúarmenn
i þá daga komu stundum með óþægi-
legar spurningar, eins og t. d.: “Á
hverju lifðu ljónin og rándýrin i
örkinni? Hvar geymdi Nói lýsnar,
flærnar, lændilormana og önnur
sníkjudýr mannlegs likama?” Og
hefðu þeir þá þekt allar sóttkveiki-
urnar, sení v'ér nú þekkjum, þá hefðu
]>eir sjálfsagt spurt um kólerubakter-
íurnar, pestarbakteríurnar og urmul-
inn af sóttkveikjum manna, dýra og
jurta. Hvar gevmdi Nói allan j>ann
ólánssöfnuð.
En vér nútímamenn, sem þykjumst
vera — og erum ef til vill i sumu —
miklu fróðari. og höHumst að kenn-
ingu Darwins um ttppruna dýratcg-
unda og jurta. Vér spyrjum: “Hvai
voru snikjudýrin og bakteríurnar, sem
nú j>já ntanninn, áður en maðurinn
og æðri dýrin voru til ?” Þessu getur
enginn svarað mieð vissu. En ef vér
trúum þvi, að æðri dýrin séu svo ti!
orðin að lægri tilverur hafi sniam-
saman breyst og þfóast, virðist ]>að
enn skiljanlegra, að hinar lægstu ver-
tir sétt sífcldum breytingum undirorpn-
ar. og að t. d. meinlausir gerlar geti
við hentug skilvrði og breytiþróun í
mannslíkamanum orðið að skaðræðis
sóttkveikjum. Ymsar tilraunir gerla-
fræðinga benda á, að þessu sé þannig
farið. Það er t. d. alkunnugt. að tak-
ast má með misjöínum hita og kulda
eða mismunandi næringarvökva, ým-
ist að v'eikla eða magna sóttkveikur.
Vér vitum Hka, að mannslíkamtnn
Auglýsið í Lögbergi það sem selja þarf.
ti/* .. | • timbur, fjalviður af öllum
Wyjar vorubirgðir tegUndum, geirettur og au-
konar aðrir strikaðir tiglar, hurðir og gluggar til vetrarins.
Komið og sjáið vörur vorar. Vér erumætíð glaðir
að sýna þó ekkert sé keypt.
The Empire Sash & Door Co.
Limited
HENRY AVE. EAST
WINNIPEG
getur verið misjafnlega fyrirkallað-
ur. Bakteríur vinna ekki á sumum
mönnum, nema þeir hafi orðið fyrit
etnhverri veiklun eða áfalli. Og eins
getur mótstöðuafl heillar kynslóðar
verið misntunandi á ýmsum timr.m,
Má vel vera, að nútima-ikynslóðin þoli
vel ágang ýmsra sóttkveikja, sem
forfeður okkar þoldu ekki, og eins
þvert á móti. Þegar styrjaldir og
hallæri höfðu veiklað þjóðirnar áður
á tíntum, áttu ýmsar sóttir greiðari
gang á eftir. Þó vér getum hrósað
sigri og hælt vísindunum fyrir, hve
vel hefir tekist að stemma stigu fyrir
þeim drepsóttum, sem hér á undan
hefir verið skýrt frá, þá megum vér
ekki halda, að allur sigur sé unnin
enn, og okkur ferst ekki, fremur enn
Sanheríb sáluga, að ofdrembast og
tala digurmannlega. Saga enska svit-
>ns bendir á, að meinlausar sóttir geti
ef til vill alt í einu orðið háskalegt.r.
Hugsum okkur t. d.. að jafn-næm
v'eiki og t. d. inflúensa yrði snögglega
jafnmögnuð og svartidauði var.
Þrátt fyrir alla vora nútíma-þekk-
ingu og sóttvarnir, mundi sú drepsótt
vinna óheyrilegt tjón, áður en hún
yrði kveðin niður. Vér skulutn vona
að þetta komi ekki fyrir, en vér meg-
um ekki loka augunum fyrir ]>eim
möguleika.
Fyr á öldu'm trúðu menn því, að
hverri farsótt stýrði sérstakur guð-
dómur eða andi—genius epidemicus— ■
og sá andi væri valdur að hinum ein-
kennilegu afbrigðum hverrar sóttar í
það og það skiftið. Og þá var sú trú
algeng, að himintunglin væru einnig
áhrifamikil, einkum halastjörnurnar.
Þegar þær voru á ferðinni. þótti það
ætíð vita á ilt; j>ær voru ekki einung-
is fyrirboðar, heldur og frömuðir
farsótta og allskonar óáran í mann-
fólkinu. Þessi trú er enn við lýöi
v'íðsvegar um heim, og hver veit nema
þessi gamla getgáta styðjist við ein-
hvern sannleika, eins og svo margar
gamlar kerlingarbækur. Að minsta
kosti hefir nafnkunnur vísindamaður
— sænski eðlisfræðingurinn Svante
Arrheníus — látið þá skoðun uppi, að
hægt sé að gera sér grein fyrir því
með Ij'ósum rökttm, að jafnsmáar
verur og hinar smæðstu sóttkveikjur
geti borist hnatta á milli, án þess að
^ortímast á leiðinni. Loftstraumar i
andrúmsloftinu, rafmagnsveiflur. þeg-
ar hærra dregur, afl ljósgeislanna og
aðdráttarafl hnattanna eru þau öfl,
sem hann sínir fram á, að geti feykt
fisinu áleiðis.
Nú er reyndar haldið, að úti í
geimnum drotni heljarkuldi; en það á
ekki að hefta förina, því sannanir
hafa verið færðar fyrir því, að
smæstu lifverur geti þolað þann mesta
frostkulda. sem tekist hefir að fram-
leiða, en það er -y- 269° C. Þær lifna
við aftur, þegar þær þiðna.
Arrheníus hefir ekki gefið }>essar
bollaleggingar út fyrir annað en
sennilegar getgátur, og eflaust verður
erfitt að færa sönnur á þær. En þær
eru þess verðar, að þeim sé gaumur
gefinn, þó flestum muni finnast, að
nóg sé illgresið í okkar jörð, svo ekki
þurfi í ábæti allskonar eiturkviku úr
Elivogum.
('Framh. á 3. bls.)
1
8 ó L 8 K I N
8 6 Ii S K I N
*
tala er svo mikill skyldleiki með löndunum að
>eim hefir oft verið líkt við kærustupör, sent ekki
ætti eftir annað en að láta gefa sig saman.
Einu sinni var prestur hér fyrir vestan, sem
heitir Hafsteinn Pétursson. Hann hélt tvær ræð-
ur, sem hann kallaði “Miss Canada”, “Jónatan”.
Canada táknaði þar unga og fríða konu, sem
öllum leizt vel á og var vel gefin að öllu leyti.
Hún var auðug, gáfuð, fögur, heilsugóð, vinsæl
og full af æskuvonum. pessi unga kona var
Canada. Hún breiddi faðminn brosandi og fögur
á móti öllum, hvaðan sem þeir komu og hverjir
sem þeir voru og bauð þeim að koma til sín og
njóta alls þess góða sem hún ætti í forðabúrinu
sínu. Og séra Hafsteinn lýsti því hvemig þessi
■fallega kona væri búin og sú lýsing er undur fögur.
Svo lýsti hann Jónatan; hann táknaði Banda-
ríkin; hann er alvarlegur bóndi og góðlegur, blátt
áfram og trúverðugur. Maður sem auðséð er að
ekkert vill gera rangt; maður sem auðséð er að
vinnur ærlega vinnu. Hann er eins alþýðlegur
og frekast getur verið; hár vexti, grannur og
beinn; með mikið hár, stórt nef, með háan hatt
og í frakka.
pað einkennilega er að þessi mynd, sem skap-
ast hefir í huga fólksins og á að tákna Bandaríkin
er ekki ólík honum Abraham Lincoln, sem þið
sáuð myndina af síðast.
Columbia heitir þriðja persónan; hún táknar
líka Bandaríkin eða nokkum hluta þess. Stund-
um hafa skáldin látið þau vera hjón hann Jóna-
tan og hana Columbiu; stundum hafa þau verið
iölluð systkini.
Columbia heitir nú í raun og veru aðeins sá
hluti sem höfuðstaðurinn Washington er í. En
fyrst var nafnið notað af skáldinu Dr. Timothy
Dungtel árið 1800 í kvæði, sem hann orti, og var
það þá haft um alt landið. Hann segir þar:
“Columbia, Columbia
kjarkur þinn er óframgjam,
heimsins yngsta, bjarta drotning,
heiðríkjunnar óskabam”.
Nafnið Columbia var upphaflega notað Col-
umbus til heiðurs, sem fann Ameríku.
Nýlega er komin út bók eftir íslenzkan mann,
sem heitir Aðalsteinn Kristjánsson og á heima hér
í Winnipeg. Bókin heitir “Austur í blámóðu
fjalla”, og er þar margt skemtilegt sagt um ísland
og fslendinga.
Aðalsteinn fór heim til fslands árið 1913,
eftir að hann hafði verið lengi í Ameríku, og þeg-
ar hann kom vestur aftur dvaldi hann lengi í
New York. Hann ritaði síðan mókina, sem aðal-
lega er ætluð íslenzkum unglingum, og er þar
margt, sem þið hafið alderi heyrt talað um áður.
f bókinni er sagt frá mörgu frá New York,
sem er annar stærsti bær í heimi. par hefir gerst
svo margt að gaman er að lesa.
í New York eru hærri byggingar en í nokk-
urri annari borg. par er hæsta bygging í heimi
sem heitir Metropolitan byggingin og er fimmtíu
og tvílyft.
par er mynd af frelsisgyðjunni. par er kona
með ljóskórónu á höfðinu; hún heldur uppi hægri
hendinni með logandi blysi. Gyðjan er hol að'’inn-
an og má ganga alla leið upp í hendina. Er
skemtilegt og tilkomumikið að standa þar uppi og
horfa yfir höfnina, bæinn og héraðið umhverfis.
piö sjáið myndina á fyrstu síðunni.
Gyðjumyndin er 306 fet á hæð og er búin til
af manni, sem Bartholdi hét; hún er eitt af mestu
furðuverkum heimsins.
Myndin af þessari styttu er í bók Aðalsteins,
sömuleiðis mynd af Jónatan og Columbia, þar sem
þau haldast í hendur til sæmdar þjóðinni og hann
klæddur í stjörnukápu. En stjörnurnar eru merki
Bandaríkjanna, ein stjarna fyrir hvert ríki. Að-
alsteinn hefir góðfúslega lánað Sólskini þessar
myndir og væri gaman fyrir ykkur að lesa bókina
hans.
Eitt af kaupskipum Bandaríikjanna. , 1
Sólskins -s j óðurinn
„Margt smátt gerir eitt stórt.”
Sólskinssjóöur......................................
Solveig Gíslason, Hayland...........................$
Andrés Gíslason, Hayland............................
Lárus Gíslason, Hayland.............................
Arriþóra Gíslason, Hayland..........................
Óskar Gíslason. Hayland.............................
Sverrir Gísliason, Hayland..........................
Hielgi Gíslason, Hayiand .. ........................
Sigríöur Ólöf Kristin Goodmanson. Poplar Park ..
Ásgrímur Steini Goodmanson, Poplar Park.............
Lilian Eleanora Goodmanson, Poplar Park.............
Jóhannes Goodmanson, Poplar Park....................
Theodore Hjaltalín Bellingham.......................
Kristín Hjaltalín, Bellingham.......................
Ennely Hjaltalín. Bellingham........................
.50
,5p
.50
.50
.50
.50
.50
.25
.25
.25
.25
.25
.50
Frá Wynyard, Sask..
Bogi Péturson.................
Sigríður Pétursoon............
Friðrik Pétursson.............
Olöf Péturson........•........
Lily Péturson....................
Helen Péturson...............
Pétur Péturson................
Grace Péturson................
Baby Pétursor.................
Bergsveinn W. Johnson............
Sesselja W. Johnson...........
Kristján W. Johnson...........
Finnbogi W. Johnson...........
Margrét W. Johnson............
Haraldur G. Guðmundson........
Ingi Örn Sigurjónsson.........
Kári Haukur Sigurjónsson ....
Helga Magnússon........•......
Svafa Magnússori..............
Stefán Stephanson.............
Sigrún Stephanson.............
Þórey Sölvason................
Mrs. H. B. Johnson............
Sólskinsvinir................ . .
Sólskinsbörn..................
Frida Guðmundson, Elfros .. ..
Frá Silver Bay P. O., Man.:
Sigrún S. Magnússon...........
$ .25
. .25
. .25
. .25
. .15
. .10
. .10
. .10
. .10
. 1.00
. 1.00
. .25
. .25
. .25
. 1.00
. .25
, .25
. .25
. .25
.15
.15
.10
.50
.50
.50
.25
$1.00
Guðjón Björnsson...................................25
Gunsteinn Björnsson................................25
Björn Björnsson................................... 25
Guðrún Helga Björnson . . .. ......................25
Anna M. Helgason......................J............25
Kristbjörg Johnson............................. .25
Einar Johnson............................. .. .25
Kristín S. Helgason................................25
Billy Barnes.......................................25
Leo Barnes.........................................25
Allan Barnes.......................................25
Rúna Barnes...................( ...................25
George Thomas Barnes.............................. 25
Safriað af Halldóru Lilju Anderson, Skálholt. Man.:
Anna Sigríður Þórðarson.......................! .$ .25
Sigurður Franklin Sigtirðson.......................25
Ónefnd.............................................50
Gústaf Adolf Árnason...............................20
Lena Díana Árnason.................................10
Inga Rakel Árnason.................................10
Elma Ingibjörg Árnason........'....................10
Gúðrún Björg Heiðmann............................ 20
Kristján Jóhannes Heiðmann.........................20
Halldóra Lilja Anderson............................50
Frá Glenboro P. O., Man.:
Clara Guðlaug Ólafsson..........................$ .25
Sveinfríður Kristbjörg Sveinsson...................25
Liney Svanhvít Oleson..............................10
Tryggvi Eyólfur Oleson.............................10
Emilia Jónína Oleson...............................10
Kári Gunnlaugur Oleson......................... .10
Guðrún Sigurveig Oleson............................10
Marsil H. Thorsteinsson, Kramer, N. D..............25
Safnað af Vilmundi S. E. Thorleifssyni, Stony Hill:
Laufey Johnson............................... .. . .$ .50
Thorsteinn Johnson..................................50
Walter Johnson......................................50
Pálína Johnson..................................... 50
Ragnar Johnson......................................25
Hjalti Johnson..................................... 25
Geiri Rafnkelson....................................25
Stenun Rafnkelson...................................25
Steinunn R^fnkelson................................ 25
Eiríkur Rafnkelson..................../............25
Gordon Thorsteinson.................................25
Albert Thorsteinson.................................25
Marjory Thorsteinson............................... 25
Frá gömlu barni.....................................25
Wilhjálmur Johnson..................................50
John Johnson........................................50
Waldimar R. Rafnkelsön............................1.00
Vilhjálmur Jónasson............................... 25
Thorsteinn Jónasson.................................20
Lára Jónasson.................................... .10
Rose Ross.......................................... 60
Lauga Hjörleifson.................................1.00