Lögberg - 01.11.1917, Síða 6
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 1. NÓVEMBER 1917
Hvað verður um arf-
leifð Islendinga?
(AlþýBufræ&sla stúdentafélagsins).
I. Arfurinn.
ÞaS er kunnara en frá þurfi a?5
segja hvílikir ágpetismenn hinir fornu
íslendingar voru. Menn vita það al-
ment, að tunga siú, er þeir fluttu meö
sér frá Noregi, mótaSist svo i þöndum
þeirra, aS engri tungu er gefiS meira
afl, meiri mýkt, meiri auSur og lipurS
meiri skýrkiki eSa fegri hljómur
Menn vita, aS þeir rituSu á þessa
tungu ódauSleg snildarverk. Hitt er
og kunnugt, aS gæfan varS önnur en
gjörfuleikurinn. Syrti fljótt yfir, er
landiS hafSi komist undir erlent vald,
og reyndust rétt varnarorS þinars
Þveræings, er hann skoraSi á menn
hér á landi aS ljá konungi einskis
fangstaSar á landi eSa þjóS. Því aS
íslendingum varS þaS ofraun, aS gæta
þess réttar, sean þeir höfSu áskiIiS
sér i gamla sáttmála. Komu því
brátt hinar mestu ratinaaldir yfir
landiS, svo aS landsmönnum varS
eklcert frjálst, en kúgun, óstjórn og
sultur á al'Iar hliSar. Þá varS gáfu-
rnönnum vorum enginn Vegur fær, og
urSu þeir aS flýja inn í eigiS hug-
skot sitt. Má segja sama um þjóSina
sem Bjarni kvaS um Jón Hjaltalín,
aS hún “gerSi sér þar hlátraheim, er
heimur grætti’’. En þetta varS þó oss
til góSs, afkomendum þeirra, því aS
af þessum rökum er þaS runniS, aS
þjóSin geymdi andarauS fornmanna
og jók viS, þrátt fyrir alt hiS mikla
böl, sem á hana lagSist.
Nú hafa íslendingar bætt mjög
efnahag sinn hina síSustu áratugi,
og hafa sýnt í því kapp meS forsjá.
Og þótt lengra sé leitaS verSur hiS
sama ofan á. Má segja, aS heila öld
hafi þeir unniS aS J>e»su, þqtt mestu
hafi munaS hin síSustu árin. ÍÞessu
miega allir fagna, og væri vel, ef hag-
ur vor hefSi blómgast svo vel á öfflum
sviSum. Þar er nú á aS Hta. Eigi
er minna vert aS gæta fengins fjár
en afla. Vér áttum eigi mikiS, þegar
einokunarkrumlan réttist upp. Hún
hafSi tekiö alt, sem tækt var. Þó var
til eign, sem hún náöi ekki. Þá eign
nefni eg arf tslendinga.
Hver er nú sá arfur? munuö þér
spyrja. En eigi þarf þó þar mörgum
blööum um aS fletta, þvi þaS er al-
kunna, enda nefndi eg hann í upphafi
máls niins: tunguna og hinar fornu
bókmentir vorar. Þessu sinni mun eg
aö eins tala um hinn síöastnefnda
hluta arfleifSarínnar.
Engin þjóS á NorSurlöndum hefir
fengiS slíkan bókmentaarf sem vér.
Og þaS Veit eg, aS hver hinna þjóS-
anna sem væri, mundi gefa fyrir arf
vom, tunguna og bókmentirnar, 'hundr
uö miljóna af krónum, ef slíkt feng-
ist fyrir fé. Er þar fyrst á aS minn-
ast kviöurnar í hinni eldri eddu eöa
Sæmundareddu. Þar fylgist alt aS,
fegurS máisins og aflmikil orösnild
og gagnorS, hugnæmt efni, sem er
gullnáma þeirra manna, er fræSast
vilja um hug og háttu hinna fornu
þjóöa, feöra vorra og frændþjóöa
J>eirra, og frábær meöferS þess. Má
hér minna á SigurSarkviöurnar,
HelgakviSurnar, Völsungakviöu o. fl.
Munu flestir kannast eitthvaS viS
þær kviSurnar, sem eg nefndi fyrstar,
enda Iiöur engum úr minni þessi lýs-
ing, sem heyrt hefir:
Svá bar Helgi
af hildingum
sem itrskapaSr
askur af þyrni,
eöa dýrkálfr
döggu silunginn,
sá er öfri ferr
öllum dýrum,
en horn glóa
viö himin sjálfan.
En VöIsungakviSu þekkja miklu færri,
og er hún þó einna fegurst af öllum
fornum kvæSum. þar er getiS svan-
tneyja, er þeir Völundur ög bræSur
hans fundu viS Úlfsjá í Úlfdölum.
Sátu J>ær þar og spunnu lin, en svana-
hamirnir lágu hjá J>eim. Þeir gengu
aö eiga J>ær, og voru þau ásamt sjö
vetur, en allan áttunda veturinn þráöu
svanmeyjarnar eöa valkyrjurnar sína
fyrri iöju. “En þann niunda nattör
of skildi, meyjar fýstusk á myrkvan
viS”. En J>ótt menn muni nú lítt til
kviöunnar, þá er þó auSsætt af þjóö-
sögunum, aS hugmyndin um svan-
meyjarnar hefir lifaö frá kyni til kyns
Því sagan um konu úr sjónum er auö-
sjáanlega sama saga í ööru gerfi.
“Meyjar fýstqsk á myrkan viö” segir
i kviöunni. “Mér er um og ó, eg á
sjö börn í sjó og sjö á landi”, sagSi
konan. Nútíma höfundur einn hefir
tekiö sér þetta fyrir yrkisefni, en því
miöur hrært þar saman viö biblíu-
hugmyndum um Faraó og. selina. Þetta
ágæta yrkisefni bíöur enn þá eftir.
nægilega högum manni, er gæti gert
úr því sniidarverk.
Annars er J>aríleysa aö nefna sér-
stakar kviSur, því þar vaöa menn i
gullsandi, hv'ar sem þeir stiga. — Enn
má minna á skáldakvæöi og vísur og
nægir aö minna á jafnágætt skáld sem
Egill var Skallagrímsson. Eg get eigi
stilt mig um aö nefna nokkur dæmi.
Lýsing Egils á Eiríki konungi mun
verSa minnisstæS hverjtim, er les eSa
heyrir:
Vara J>at tunglskin
tryggt aö lita
né ógnlaust
Eiriks brá,
þá er ormfránn
ennimáni
skein allvalds
ægigeislum.
Sjálfslýsing hans í sama kvæöi Ar-
inbjarnardrápu, er einkennileg og
góölátlega spaugsöm:
Né haimfagrt
höldum þótti.
skaldfé mitt
at skata húsum,
þá er úlfgrátt
viö Yggar miöi
hattar staup
af hilnii iþák.
Síöasta vísa J>essa kvæöis sýnir, svo
sem ótal aörar, aS þaS er engin nýj-
ung á íslenzkum kveöskap, aS skáld
noti likingar og haldi J>eim sjálfum
sér samkviemum til enda:
Var eg árvakr,
bar ek orö saman
mcö málþjóns
morginverkum.
KlóS eg 'lofköst,
J>snn er lengi stendr
f>' rotgjarn
1 bjargar túni.
Þá ætti helzt hver maSur aö kunna
Sonartorrek hans, þvi þaS er hrein
perla í íslenzkum skáldskap :
Mjök hefir Rán
of rysktan mik.
Emk ofsnauör
at ástvinum.
Sleit marr bönd
minnar áttar,
snaran þátt
af sjálfum mér.
Og svo gengur sorgin nærri honum
yfir sonarmissinum, aö hann heitast
viö guöina, svo sem siöar geröi Bólu-
Hjálmar. Egill kvaS:
Veit eg sök
sveröi rækak
var ölsmiö
allra tíma.
Roöa vágs bræSr
ef vega mættak,
færak andvígr
Ægis mani..
Þetta er tekiö af handahófi úr
kvæSum Egils, en þaö er sannast sagt
aö þau eru öll gerö af hinni mestu
snild. Og J>ótt eg hafi eigi nefnt fleiri
en Egil, þá eru þó fjöldamörg önnur
fornskáld, sem eru prýöi bókmienta
vorra og væri prýSi hvers lands bók-
mentum, og fuk er af gullfallegum
lausavísum í sögunum víösvegar. Mun
eg láta nægja aS minna á }>essa vísu
Þóris jökuls, er hann kvaS áSur en
hann var leiddur tíl höggs:
Upp skaltu á kjól klifa,
köld er sjávar drifa,
'kostaSu huginn aö heröa,
hér muntu lífit veröa.
Skalf beygjattu, skalli,
}>ó at skúr á þig falii,
ást hefir þú meyja,
eitt sinn skal hver deyja.
Þá er eigi siöttr mikils vert um rit
forfeöra v'orra í óbundnu máli. Þar
er J>á fyrst á aö minnast íslendinga-
ögur, er hafa alia hina sömu kosti sem
kvæöin: gagnoröa snilli i máli og
meöferö, og sannikaliaSar námur J>eim
mönnum, er leita aö fornu gulli J>jóS-
menningar vorrar. Þessar sögur eru
ekki skáldskapur, heldur sagnfræö:,
sem byggja má á, þótt sumstaöar
kenni þjóösagna og hjátrúar og ekki
megi.taka öllu meö trúarinnar augunt.
Slikt rýrir eigi tiitrú sögunnar í aöal-
atriöum. En gjörsamlega ástæöulaust
er aö kalla Jæssar sögur skáldskap.
Þvi aö alt efni sögunnar hafa höf.
haft i munnmælum þeim, er þeir
höföu heyrt frá blautu barnsbeini og
rituSu sem réttast þeir kunnu. Sagn-
ritararnir háfa því alls eigi ort, og
ef sögurnar eru skáldskapur, þá eru
ij>ær þjóösögur. En þær eru eigi skáld-
skapur. ÞaS er alls eigi nein minsta
ástæöa til aö efast um, aö þæri hafi
geymzt réttar á vörum manna, því aS
þá voru eigi bækur eSa ritföng al-
geng eöa almenningseign, og þess
vegna uröu menn aS leggja miklu
meira á minniö og uröu því langtum
minnugri en vér erum. Þó þekki eg
marga samtíöarmenn vora, sem segja
langar sögur réttar og riákvæmar og
samtöl manna orörétt. Svo voru mér
sagöar fornaldarsögur NorSurlanda,
og Ias eg þær skömmu siöar og sá aö
sögumaöur haföi fariö svo tneö sem
fyrr var sagt. En úr því slíkt er al-
títt um samtíSamenn vora, J>á er þó
sannarlega engin ástæSa til aö ímynda
sér, aö miklu minnisbetri menn hafi
eigi getaS gert jafn vel, einkum þar
sem sögn hafSi veriö þeim í staS lest-
urs í uppvCxtinum. ÞaS er ekki einu
sipni ástæöa til aS efast um, aö mörg
tilsvör manna og ræSur hafi varöveist
orSréttar, svo aS varlega er fullyrö-
andi, aö söguritarinn hafi ráöiö orSa-
'lagi aS öllu. En hver einkenni skáld-
skapar eru þá eftir? Eg hefi aö eins
nefnt þessa almennu ástæöu móti þvi
aö rétt sé frásagt, er menn kal'la ts-
lendingasögur sikáidskap, því aö hún
nægir. Annars eru mörg fleiri rök
til J>ess, sem eg segi hér, t. d. rétt-
hermi sagnanna um heiti manna og
staöa og um ættir manna. Sú ástæöa
nægir og ein út af fyrir sig. Eitt má
enn þá benda á. Efasemdamennirnir
trúa því sem nýju neti, aS lögsögu-
maSur hafi þuliö upp öll lög landsins
á lögbergi, )>ótt óskrifuö væri. Og
hann hefir þó sannárlega ekki mátt
breyta mikiö um orölag. En aS menn
hafi geymt rétta sögu frænda og vina.
þaS J>ykir þeim ótrúlegt. ÓtvíræS-
lega er þó aS minsta kosti H'eims-
kringla eöa Sturlunga vísindaleg sögu
rit, og má ljósast sjá á orSum Snorra
sjálfs, hver aöferö hans hefir veriS,
er hann samdi Heimskringlu sína. Þá
hina sömu aöferö hafa hinir beztu og
glöggustu vísindamenn nútímans. Um
hina ágætu hljóöfærisritgerS hljóta
J>ó allir aö veröa sammála, aö hún sé
hrein og skær vísindi. Er þaö merki-
legt, aS einstakur maSur hér hefir
veriS svo glöggur á þessa hluti, þótt
þá v'æri alls ekkert til aS byggja á,
því aö WjóSfræSi varö eigi til fyrr en
mörgum öldum síöar. Þetta er ein-
stakur viti upp úr hafi a'ldanna, en
sorti til beggja handa.
Auk iþessa höfum vér tekiö í arf
tunguna, sem fyrr var getiö, og rétt
til fullveldis, þó aö illa færi stjórn-
málin, gott ætterni og eölisfar, miklar
gáfur og marga fleiri kosti. Ókosti
einnig, en um þá tala eg ekki. Lifn-
aSarháttu, siSi og menning á háu stigi,
eldgamla menning hinnar þýöversku
þjóökvíslar. AS þessu sinni spyr eg
eigi um fleira en bókmentaarfinn:
Hvernig förum vér meö hann?
II. Meðferðin.
Gullnáma höföum vér fengiS aS
erföum, en íslands óhamingju veröur
aít aö vopni. Danir sendu hingaö
gáfaöa íslenzka menn, sem þeir höföu
í sinni þjónustu, og létu þá smala
gullinu til Kaupmannahafnar í hrúg-
um. En áöur höföu þeir búiS svo í
haginn ,meö stjórn sinni og verzlun,
aS hér lá alt í kalda koli, svo aS eng-
um kom til hugar aö varna því, aö
svo dýrir fjársjóöir væru fluttir úr
landi. En þetta v'arS eigi á vorum
dögum og vér eigum enga sök á því.
Er oss þaS gott aS vita, því aS hætt
er viö aö sala forngripa vorra úr
landi verSi oss til nægilegs áfellis.
Þetta varö nú til J>ess, aS aörir unnu
námana á undan oss, — eSa lögöu til
nöfn á titilblöö bókanna, þótt íslend-
ingar heföu unniö verkiS. Nú eru
margar stærri og merkari þjóSir
teknar aS vinna námana. ÞaS var
vel Jxdandi, aö aörir yröu fyrri til aö
gefa út fornrit vor og vinna aS þeim,
en hitit er ó]x>Iandi, aö handritin eru
horfin í annara hendur, þegar vér
viljum byrja.
En lesiS getum vér þó bækurnar og
notaS arf vorn aS nokkru leyti. Þetta
höfutn vér gert áöur meira en nú.
Vil eg benda a þaö aö auöséS er á
kvæöunum, aS hin eldri góöskáld v'or
hafa veriö langtum kunnari eddtt-
kvæStmum en hin yngri, enda kunnaS
betur aS yrkja
Litils háttar höfum vér unniö úr
námanum. Hafa þaö gert einstakir
fræöimenn vorir, sumir hér á landi.
en fleiri erlendis. En þetta þótti oss
hvergi nærri nóg. Vér vildum koma
hér á fót ví’Sindum í þessari grein, og
í því skyni settum vér kennarastól í
íslenzkri tungu og íslenzkum fræöum
í nýstofnaSan háskóla vorn. Valdist
til þeirrar stóSu ágætur maöur og al-
þektur vísindamaSur í þeirri grein.
Vér fylgismenn háskólans ætluö
umst til aS þess yröi skamt aö bíöa,
aö hingaS sækti menn úr öllum Iönd-
um til þess aö leggja stund á íslenzk
fræöi, af því aö vér vilduni aS þaS
yröi fastur ásetningur þings og þjóS-
ar, aS hér yröi beztur staSur til Jæss
náms, og framkvæmdur yröi sá á-
setningur. AuSvitaS er þar mikill og
illur þröskuldur í vegi, aö handrit vor
eru í hershöndum erlendis. En þá
mundu menn mega búast viö þv'í, aö
hiö’forna víkingablóö hitnaöi viö mót-
stöSuna, svo aö hrundiS yrSi úr vegi
verstu erfiöleikunum. Þetta verkefni
fyrir vísindamenn vora næst nú eigi
aftur frá Dönum, úr því J>aS nú lenti
þar einu sinnt. En Danir mundu vera
allir af vilja geröir til þess aö hjálpa
oss til þess að Ijósrita (fototyperaj
öll handritin. Vér þurfum því eigi
annaö en leggja fram nokkra tugi
þúsunda króna til verksins, og er það
sannast sagt, aö oss er }>aS meira en
meSalskömm, ef þaS dregst lengi.
AuSvitaS þurfum vér og aö fjölga
kennurum í svo margbreyttri og mik-
ilsverSri grein sem islenzk fræöi eiga
aö vera hér. Þetta hvorttv’eggja væri
engin ofætlun og er sjálfsagöur hlu-t-
ur, ef vér ætlum ekki aö láta grútar-
háttinn kyrkja háskólann, langmerk-
asta og affarasælast fyrirtæki vort,
ef rétt er meö fariö.
Þiessar ættti aö vera undirtektir
vorar undir stofnun háskóians og
kertslunnar í islenzkum fræöum. En
hverjar hafa þær orSiö? Á þingi
urðu harðar deilur um mjög lúsar-
lega fjárveitingu til þess, aö afrita
skjöl og handrit vor erlendis. Þó er
hitt verra, aS enginn verðúr til þess
aS nota sér kensluna í því skyni, aS
verða vísindamaSur. Og þau firn
hafa heyrst, að kennarar hafi ráðiS
islenzkum stúdentum til þess, aö nema
heldur islenzku í Kaupmannahöfn
heldur en hér, og þeir látiS sér aS
kenningu verða. Þetta er þjóSar-
skömm og morðtilraun viö beztu
stofnun landsins.
AlþjóS manna rækir og illa þenna
arf 'sinn. Því að miklu minna lesa
menn nú hinar fornu bókmentir vor-
ar en fyr. Einkum er illa statt í bæj-
unum, en íbúar þeirra eru nú orönir
fullur þriöjungur alls landsIýSs.
III. Hvað verður um arfinn ?
Ef v'ér vanrækjum hann og kunn-
um eigi aö meta hann, )>á veröur
hann eign útlendra manna, og ts-
lendingar munu fyrirveröa sig sárt á
komandi öldum. En þá verður of
seint aö naga sig í handarbökin.
í bezta lagi gætu islenzkir fræði-
Auglýsið í Lögbergi það sem selja þarf.
M/* .. 1 • timbur, fjalviður af öllum
iNyjar vorubirgðir tegundum, geirettur og ala-
konar aðrír strikaðir tiglar, hurðir og gluggar til vetrarins.
Komið og sjáið vörur vorar. Vér erumaetíð glaðir
að sýna þó ekkert sé keypt.
The Empire Sash & Door Co>
------------------- Limltad -----------------
HENRY AVE. EAST - WINNIPEG
menn þá átt hlut í honum meö hinum
erlendu mönnum.
En ef oss fer eigi sem ]>eim fuglin-
um, sem verstur er og drítur í sitl
eigiö hreiður, heldur vinnum vér
meö rögg og drengskap aö hag vor-
um og heiöri, þá veröur hann alþjóð-
areign, ávaxtast hér og aflar oss
maklegrar viröingar hjá öðrum þjóð-
um.
Á fyrri öldum varSveitti hafiö oss,
en er samgþngur eru nú orönar miklu
auöveldari viS önnur lönd og marg-
falt tíðari, þá dugar nú eigi lengur
9ofandi mótstaða. Nú þurfum vér
aS vaka og vera á verSi, gæta )>ess,
aö vér gefum eigi of mikið fyrir pip-
una, og beita mannviti og dugnaSi
til þess aö auka og skýra erfðagullið
dýra.
Kallar nauösyn stofninn allan
til aö gæta og v'egsemd veita
vitru starfi feöra arfi.
Norrænn andi yifir löndin
aldir leiði frægöar heiðar.
Bjarni Jónsson frá Vogi.
—Skírnir.
J?akkarávarp.
ViS undirskrifuS vottum hér meS
okkar innilegasta hjartans J>akklæti
til kvenfélagsins “Fjallkonan” aö
Langruth, Man., fyrir mynd í fallega
umgjörö og miög faílegan blóm-
krans í kringum myndina. Myndin
er af Tómasi sál. syni okkar, sem féll
á Frakklandi 27. maí 1917. Fyrir
þessa fallegu gjöf og alla þá hlut-
tekning, sem kvenfélagiS og fólkiS í
Langruth og Bigg Point hefir sýnt
okkur viS missi sonar okkar, þökkum
viS, og v’onum aS þessar sömu kon-
ur, sem eiga drengina sína í stríöinu,
megi sjá þá (koma heila heim og
verði ekki fyrir því mótlæti, sem við
urðum fyrir.
MeS bezta þakklæti til ykfcar allra.
22. október 1917.
Mr. og Mrs. J. Thordarson.
Langruth, Man.
Bltar.
Harðindi.
Altaf haröna Kringlu kjör
kringlur þynnast, ekkert smjör,
nú er hún í næðingi,
nærS á stjórnarbræðingj.
Dúsan ]>ornar, dvergspeninn
dreitlar næstum útsoginn,
vanin undir viðriniS
vafasamt er útlitið.
M. Markússon.
Bradbury, sem sagöi “ViS erum
ekki aS skipa yfckur að fara, heldur
erum við aS biðja ykkur að koma”
og yfirgaf svo piltana viS blóðvöllinn,
J>orir ekki aS sækja um þingmensku
á móti Adamson. Hefir víst búist
viS köldum viStökum hjá Islending-
um.
Til i}>ess að sýna einlægni sína í
samsteypuverkinu hefir Borden ný-
lega útnefnt fjóra menn í efr: deild,
og þar af engan úr frjálslynda flokkn-
um; tveir þeirra eru leiðtogar aftur-
haldsflo'kknum, hvor í sínu fylki;
annar hinn alþekti Willoughby.
Blööin segja aö asmsteypustjórn-
inni sé ant um þaS aS taka viö C. N.
R. félaginu og borga allar miljónirn-
ar sem allra fyrst. Samvizkusamir
menn hefðu látiS þaS bíSa þangaö ti’
búið var að kjósa þá. — En þessir
menn hafa haldiö aS vissara væri aö
ljúka því af.
pakkarávarp.
Öllum J>eim mörgu vinum, skildum
og vandalausum, sem veittu hjálp,
bæði fjármunalega og á annan hátt
aSstoðuðu dóttur mína Kristjönu Sig-
urrós Stefánsson í hennar löngu og
erfiSu sjúkdómslegu, sem leiddi hana
til bana síöastliðinn septem'ber að
Hallson í N.-Dakota, sem og öllum
}>eim, sem með nærveru sinni heiðr-
uSu útför hennar og sýndu hluttekn-
ingu viö fráfalliS, votta eg mitt inni-
legasta hjartans ]>akklæti og bið góð-
an guð að launa.
Selkirk, Man., 26. okt. 1917.
Kristín Benson.
Móðir hinnar látnu.
Útgáfunefnd kirkjufélagsins mælist
vinsamlega til þess aS þeir sem hafa
Gjörðabók síSasta kirkjuþings til út-
9Ölu gjöri skilagrein hið allra fyrsta
og sendi óseldar bækur, ef nokkrar
eru til ráösmanns nefndarinnar.
1 umboði nefndarinnar.
John J. Vopni, ráSsm.
| Box 3144 Winnipeg, Man.
a
IðLIKIN
IðliBKIN
a
vinna fyrir sér með því að syngja úti á götum og
afla sér peninga, eins og fatlaðir menn og fátækir
gera stundum í Winnipeg. Hann hafði ákaflega
falleg hljóð og var sérlega prúður og kurteis í allri
framkomu.
Kona borgarstjórans í Eisenbach hét Ursula
Cotta; hún veitti þessum fátæka pilti eftirtekt og
styrkti hann heihnikið.
Lúther fór í háskólann í bænum Erfurt þeg-
ar hann var 18 ára gamall og eftir því sam hann
las lengur hneigðist hann meira að guðfræði.
Kann útskrifaðist í guðfræði og varð prestur árið
1507, og síðan háskólakennari í Wittenberg.
Lúther var ákaflega tilfinningaríkur maður;
hann var alinn upp og mentaður í kaþólskri trú
og trúði einlæglega; hann ásetti sér að kenna og
prédika guðs orð hreint og óblandað, en honum
fanst sem kenningar kaþólsku prestanna og líf-
erni þeirra ekki vera 1 samræmi hvað við annað.
Hann fór til Rómaborgar árið 1511. par
bjóst hann við að sjá siðferði á háu stigi, gott fólk
og guðhrætt og kristilegt líferni. En í stað þess
sá hann að fólkið var spilt og gjálíft; prestamir
lifðu ekki eftir því sem þeir kendu o. s. frv. Og
hann snerist í þeirri ferð frá kaþólsku kenning-
unum.
pegar hann kom heim aftur til pýzkalands
1512 var hann gerður að Dr. í guðfræði og hélt
bæði áfram að kenna og prédika.
En svo kom nokkuð fyrir sem varð til þess
að hann varð heimsfrægur maður. pað var siður
kaþólsku kirkjunnar, sem páfinn í Rómaborg á
ftalíu stjómaði, að selja mönnum syndafyrirgefn-
ingu fyrir peninga. Maður sem hét Johann
Tetzel ferðaðist um með kofort, fult af skjölum,
sem þurfti ekki annað en fylla inn og skrifa á
nöfn manna og undirrita, ef þeir vildu borga fyrir
það peninga. í þessum skjölum var Jtví haldið
fram að páfinn leysti menn frá öllum syndum
fyrir borgun í nafni guðs. Og svo gátu menn líka
keypt syndafyrirgefningu fyrir aðra mann, sem
dánir voru.
Og fólkið trúði því að þetta væri satt og rétt;
það trúði því að páfinn værr umboðsmaður guðs
og gæti þetta, það streymdi í stórum hópum til
Johanns Tetzels til þess að kaupa þessi bréf, og
hann rakaði saman peningum fyrir þau.
pið skiljið öll hversu ljótt þetta var og hversu
heimskulegt.
Svo kom Lúther fram opinberega á móti
þessu. Hann byrjaði að prédika á móti því í
kirkju sinni og sagði að það væri ekkert nema
ljótar og heimfekulegar mannasetningar.
31. október 1517 skrifaði hann 95 setningar á
skjal og negldi það utan á kirkjuhurðina í Witten-
berg. f þessum setningum voru eindregin mót-
mæli gegn syndakvittunarsölunni; Lúther sagði
þar að páfinn væri svikari, sem narraði fé út úr
trúgjömu fólki; hann væri lygari og guðlastari,
sem segðist vera fulltrúi guðs, þegar hann væri
áð vinna fyrir þann vonda.
Og Lúther sagði að enginn gæti fyrirgefið
syndir nema guð einn og enginn gæti keypt sig
undan hegningu fyrir syndir með neinum pening-
um. Hann skoraði á fólkið að láta ekki narra sig
til þess að kaupa þessi fölsku bréf, og hann sagð-
ist vera reiðubúinn til þess að verja mál sitt á
háskólanum á móti hverjum sem væri.
Páfinn varð náttúrlega ofsareiður. Hann
heimtaði það á hverju kirkjuþingi eftir annað að
Lúther tæki aftur það sem hann hefði sagt, og
hann fékk í lið með sér keisara og konunga til
þess að reyna að kúga Lúther og þá sem fylgdu
honum. •
En Lúther lét sig ekki. Hann flutti hverja
vamarræðuna á fætur annari og sýndi fram á það
svo hundruð manna heyrðu, hvað páfakenningin
væri svívirðileg og Ijót. Hann sagðist vera að
kenna guðs orð rétt og hreint, og það væri ómögu-
legt fyrir sig að breyta frá því.
Páfinn bannfærði þá Lúther og samt lét hann
sig ekki. Ef þið vitið ekki hvað það þýddi í gamla
daga að bannfæra, þá var það svona. Páfinn gaf
út yfirlýsingu um að einhver væri villutrúarmað-
ur og að hann skyldi vera útskúfaður frá öllum
mönnum. Enginn mátti lofa þeim sem bannfærð-
ur var að vera í húsum sínum; enginn mátti gefa
honum að borða — og ekki einu sinni selja honum
það — enginn mátti gefa honum að drekka; eng-
inn mátti hjálpa honum þótt hann væri veikur
eða gera -neitt fyrir hann eða hafa neitt saman
við hann að sælda. Ef það komst upp að einhver
vinur hans hjálpaði honum, þá var sá kominn í
bann líka. Og öllum va/ heimilt að lifláta þann
sem bannfærður hafði verið.
pið sjáið það því, að ekki var neitt gaman að
vera settur í bann. En Lúther skeytti því ekki.
Hann hélt áfram að prédika og hann skrifaði
ósköpin öll af smábæklingum; eitt árið skrifaði
hann og gaf út 30 og annað árið 83. Og hann var
svo vel kyntur og fólkinu þótti svo vænt um hann
fyrir það sem hann kendi og boðaði því, að al-
staðar var troðfult hús þar sem hann talaði.
Loksins var grimd páfans orðin svo mikil að
vinir Lúthers voru hræddir um að hann yrði líf-
látinn; þeir tóku hann því einu sinni og fóru með
hann í kastala nálægt Eisenbach og héldu honum
þar lengi í varðhaldi, til þess að forða honum frá
því að vera brendur á báli; því í þá daga voru
flestir brendir á báli, sem páfinn kallaði villutrú-
armenn.
f þessu fangelsi skrifaði Lúther fjölda af rit-
um og þar þýddi hann biblíuna á móðurmál sitt.
J?á gat fólkið lesið hana á sinni eigin tungu, en
það hafði það aldrei getað áður; því hún var ekki
til nema á latínu, hebresku eða þeim'málum, sem
fólkið skildi ekki.
Samt kom Lúther á endanum út úr þessu
fangelsi og fór þá að prédika, og kendi hvað sem
páfabannið sagði og fóikið fylgdi honum svo vel
að bannið hafði enga þýðingu.
Einu sinni til dæmis tóku sig til stúdentam-
ir í Wittenberg (það var 10. desember 1520),
kveiktu bál og brendu bannskjal páfans.
pessi barátta stóð yfir í mörg ár á milli páfa-
kirkjunnar og Lúthers manna, og á kirkjuþingi
sem haldið var í Augsborg árið 1530 var samin
trúarjátning fyrir þá, sem mæltu á móti kaþólsk-
unni og fylgdu kenningum Lúthers. J?að er köll-
uð Augsborgar trúarjátningin og þeir kallaðir
Lútherstrúarmenn sem þessari trúarjátningu
fylgja.
Lúther kvæntist 11. júní 1525 stúlku sem
hafði verið nunna. Hún hét Katrin Bora; þau
áttu sex börn og fyrirmyndar heimili.
pað er sagt að aldrei hafi nokkur maður ver-
ið betri við konu sína né bömin sín en Lúther og
samt hafði hann altaf svo mikið að gera að alveg
er dæmalaust.
Lúther er einn hinna allra merkustu manna í
sögunni. J?að eru ekki nema miklir menn, sem
hafa fasta sannfæringu, sem þora að setja sig upp
á móti eins mikilli grimd og páfavaldið var þá, og
þó að siðabótin sé ekki öll honum að þakka, þá er
hún það að langmestu leyti.
Lúther dó 17. febrúar 1546; hann varð því
63 ára gamall.
Lúther var stórgáfaður; hámentaður; bæn-
rækinn; hreinhjartaður; hugrakkur; vinfastur og
trúr; starfssamur; stöðuglyndur og ósérhlífinn.
Einkunnarorð hans vom þessi: “J?egar eitt-
hvert verk hefir verið byrjað með einlægri bæn til
guðs, þá er það hálfnað”.
Island.
Ritgjörð skrifuð á ensku og kom út í “Tribune
Junior” eftir Guðrúnu Vigfússon (15 ára).
ísland, móðurlandið mitt, landið með snjó-
þöktu fjöllin og joklana. — Landið sem víkingam-
ir lögðu undir sig fyrir meir en þúsund árum. J?ó
landið sé hrjóstmgt, dregur það að sér marga
ferðamenn á hverju ári, af því fegurð náttúmnn-
ar er þar svo mikii. Sumstaðar koma f jöllin beint
upp frá sjónum. ótal margar ár renna frá fjöll-
unum, gegnum gljúfur eftir dölunum, út í hafið.
Og þar em margir tignarlegir fossar, svo sem
Goðafoss, Gullfoss og Dettifoss.
Með eftirtektaverðustu fjöllunum eru Hekla
og Katla, með sínum stóru gýgum. Bæði hafa
þau stundum gjört mikinn skaða með eldgosum
og hraunleðju, sem hefir stundum eyðilagt heil-
ar bygðir. Margir halda að þau séu nú nærri
útbrunnin.
Geysi er gaman að sjá, þegar hann kastar
sjóðandi vatni mörg hundruð fet upp í loftið.
Hann gjörði þetta oft, en nú er hann farinn að
eldast, svo þú verður að geðjast honum með Jtví
að henda torfi í vatnið. Svo fer vatnið að sjóða
og þú heyrir hávaða, eins og þrumu, svo kastar
risinn torfinu, sem þú hentir í yatnið, með svo
miklum krafti að þú verður að gæta þín. Hvergi
í heimi er svo fallegur hver, þó margir fleiri séu
þar í nágrenninu.
Annað fallegt á íslandi em norðurljósin með
öllu sínu skrauti, kvöld eftir kvöld, dansandi eins
og álfar um himinhvolfið.
Eitt einkennilegt við ísland er það að á norð-
urhluta landsins sezt ekki sólin í þrjár vikur að
sumrinu. Jlessi guðlega sýn líður áfram við sjón-
deildarhringinn þangað til hún fer að hækka á
lofti að morgninum. par er því engin nótt um
þann tíma.
Sumarið er stutt og kalt. J?ar er því engin
akuryrkja nema kartöflur og garðávextir. Gras-
ið er stutt, og víða ekki hægt að slá það með sláttu-
vél. En beitiland er þar mikið, og kindur og hest-
ar ganga þar úti allan veturinn.
Margir lifa þar á fiskiveiði. Og í mörgum ám
er mikið af lax og silungi. fsland er fiskisælt, og
fyrir utan landsmenn fiska þar svo hundruðum
skiftir af Norðmönnum, Frökkum og Englending-
um.
Hvernig lítur fólkið út? J?essir afkomendur
víkinganna? Eg þarf ekki að lýsa þeim, þar sem