Lögberg - 08.11.1917, Blaðsíða 1
SPIERS-PARNELL BAKING CO.
ábyrgjast yður
fulla vigt, beztu vörur fyr-
ir lœgsta verð sem' verið
getur. REYNIÐ ÞÁ!
TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG
Tals. Gnrry 1280 Stoinsett 188T
Steele & Co., Ltd.
MYNDASMIDIR
Horni Main og Bannatyne, WINNXPEG
Fyrstu dyr vestur af Main MAN.
30. ARGANGUR
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 8. NÖVEMBER 1917
NÚMER 44
Skilmálar fyrir „sigurláni“ Canada.
Lánit5 vertSur opnað á mánudag-
inn 12. þ. m fyrir fimm, tíu og tutt-
ugu og fimm ára verðbréfum dag-
settum 1. deSember 1917. Vextiv
borgast tvisvar á áriy 1. júlí og 1.
desember. Lægstu vð'Sbréf verða
$50.00. Verðið er dollar fyrir dollar-
inn, og vextirnir 5l/2%. Má skifta
borguninni jafnt niður á fimrn mán-
Kði. Þegar það er athugað að
þannig má skifta borguninni og v'ext-
^ir eru greiddir fyrir fulla sex mán-
uði, eru kjörin ágæt; verði vextir
greiddir 1. júlí 1918. Þannig er
eiginlega verðið lækkað, því verð-
bréfin gefa af sér 5,61 per cent í 20
ár, 5,68 per cent í 10 ár og 5,81 per
cent i fimm ár. Þessi verðbréf má
nota í skiftum framvegis og verða
þau undanþegin öllum tollum og
gjöldum, þár á meðal tekjuskatti.
Þeir sem eiga verðbréf í “Canada
C-------------------------------------
dabutive stock” sem í gjalddaga falla
1. október 1919 eða í herláni Canada,
geta breytt þeim þannig að þeir fái
sigurlánsverðbréf, sem þeim svarar,
samkvæmt því sem hér segir.
“Debutive stock” sem fellur í
gjalddaga 1. október 1919 með fullu
verði og samsettum vöxtum.
Herlán sem fellur í -gjald^aga 1.
desember 1925 fyrir 97/2% sam-
setta vexti.
Þetta hvorttveggja verður tekið
gilt, sem hlutaborgun í sigurláni til
hvaða tima sem er.
Herlán sem i gjalddaga falla 1.
marz 1931 fyrir 97/% og samsetta
vöxtu.
Herlán sem í gjalddaga fellur 1.
marz 1937 fyrir 96% og samsetta
vöxtu.
Þetta hvorttveggja er tekið gilt
sem hlutaborgun í Stgurláninu sem í
gjalddaga fellur 1937.
Rretland.
Orusta varö í Norðursjónum á
föstudaginn milli Breta og Þjóðverja.
eru fréttirnar ekki sem glöggastar, en
segja óhikað að Bretar ha'fi unnið
mikinn sigur. Skipin mættust í
Cattegat, sem er á milli Danmerkur
og Svíbjóðar. Tóku Bretar 64 fanga
og söktul alls 11 skipum fyrir óvin-
um sínum; er það mikill sigur þótt
skipin væru öll lítil, sérstaklega þegar
þess er gætt að Bretar urðu fyrir
engu tjóni sjálfir.
Kosningar fóru fram í kjör-
dæminu North Sanford á Englandi;
á föstudaginn; var verkamanna þing-
maður kosinn, en Sir Charles Mallet,
samsteypu þingmanns efni beið ósig-
ur; sá sem kosinn var heitir Ben
Tillett. Er J^tta talinn allmikill ó-
sigur fyrir samsteypustjórnina.
Bretar lentu í harðri orustu við
Tyrki á fimtudaginn austur í Pal-
estina. Hertóku þeir borgina Beres-
heba eftir harða og ltyiga mótstöðu;
tóku nokkrar byssur og um 60 fanga.
Frakkland.
Á föstudaginn lenti í snarpri or-
ustu milli Frakka og Þjóðverja þar
sem heitir Corbeny, skamt frá Ailette
ánni. Hafa smá orustur staðið yfir
á þessu svæði síðan 23. október og
höfðu Frakkar smáþokast áfram. A
þeim tíma höfðu þeir hertekið 500
flanga, 422 byssur litlar og 724 stærri.
En í þessari síðustu orustu flýðu
Þjóðverjar á stóru svæði, en evði-
lögðu alt um leið; brendu brýr og hús
o. s. frv.
4--—, ........ ..... 5N
IAgœtis piltur fallinn
—~—-- ....—■ - ■ ■ --Jy
Licut. Jón Einarsson.
1 vikunni sem le^ð kom sú harma-
fregn að fallinn vær\ Eeut. Jón Ein-
arsson. Hann er sonur Jóh. Einars-
sonar kaupm. og bónda í Lögbergs-
nýlendu og konu hans Sigurlaugar
Þorsteinsdóttur.
Jón tók fullnaðarpróf við liáskól-
ann i Manítoba árið 1914 oe stund-
aði eftir það lögfræði í 'YjBrkton í
Saskatchewan, þangað til í hittið fyrra
að hann innritaðist í herinn. Var
hann einn af stofnendum 223. her-
deildarinnar. Hann tók herstjórnar-
próf bæði Lieutenants og Captains og
síðan fór hann til Ottawa og iærði
þar að stjórna fallbyssum.
Þegar boð kom um það að sérstak-
lega þyrfti á mönnum að lialda austur
á vígvöllutn sem í því væru æfðir, var
itann einn þeirra er buöu sig fram og
fór áleiðis til Englands í fyrra sumar
En í skotgröfunum hafði hann verið
um-ár.
Jón var sérlega vel gefinn maður
eins og hann á ættir til. Prúðmenni
í Jramgcíngu, stiiltur og gætinn, en
jafnframt mikkill hæfileika maður.
Hans er því sárt saknað.
Hann á tvo bræður í hernum, Vil-
hjálm ffíolínistaj, sem nú er á Frakk-
landi og Jóhann sem er á förttm
héðan.
ítalía.
Hanwlton Fyfe frá Lundúnaborg,
fréttaritari biaðsins Daily Mail hefir
verið í öllum hernaðarlöndum og nú
síðast á ítalíu. Hann segir á föstu-
daginn að stónkostleg iiætta sé á því,.
að uppreist verði á ítalíu. Kveður
hann allmikla mótstöðu hafi verið í
byrjun gegn því, að Italía færi i
stríðið og hafi foringi þess flokks
verið Giolitti, maður sem hafi afar
mikið fylgi. Þessi flokkur segir
Tyfe að láti ekkert trckifæri ónotað
til þess að prédika frið og fá þjóðinta
til þess að risa upp gegn stjórninni.
Matarskortur hafi orðið til þess að
alvarlegar óeirðir hafi orðið í bæn-
um Turin og víðar og ósigur sá sem
þjóðin liafi biðið nú nýlega auki
óþolinmæðina og gefi friöarkröfun-
um byr undir báða vængi. Allmikið
ámaeli segir hann að bandamenn
hljóti fyrir það að hafa ekki sent
ítölum %hjálp nógu snemma, en nú
hafi þeir ekki einungis tapað öllu
sem þeir höfðu unnið, beldur miklu
meiru; ef Cadorna lfershöfðingja
hefði verið sent lið til hjálpar, niundi
hann hafa getað veitt nægilega mót-
stöðu og afstýrt iþeini voða, sem nú
sé skollinn á.
Á föstudaginn komu fréttir er
sögðu Frakka hafa sent lið til styrkt-
ar ítölum; höfðu þvi mæzt samein-
aðar herweitir ítala og Frakka
veitt Austurríkismönnum svo mikla
mótstöðu á bökkum árinnar Tagli-
amento að þeir hefðu orðið að hörfa
undan. Hafa Italir ákveðið að hafa
þar herstöðvar sínar fyrst um sinn.
Lýsingin á því, þegar Italir voru aö
flýja undarf ofurafli Þjóðverja er
ægileg. Straumurinn af hersveitum,
hestum, vögnum og bifreiðum hélt
áfram svö sólarhringum skifti, nótt
og dag. Vegirnir voru stráðir særð-
ttm mönnum og dauðttni, lemstruðum
hestum og brotnum vögnunt. Regnið
var óskaplegt og bleytan svo mikil að
víða var svo að segja ófært og runnu
lækir af blóðblönduðu vatni þar sem
hallar voru, en stóreflis tjarnir mynd-
uðust annarsstaðar. Menn urðu
stundum fastir í bleytunni og var
ekið yfir þá; létu þeir þannig líf sitt
við mestu hörmungar.
Benedikt Frímannsson látinn.
Hann andaðist að heimili sínu á
Gimli, Manitoba fyrsta nóvember.
Jarðarförin fer frani frá heimili hins
látna lattgardaginn 10. þ. m. kl. 2.30
e. h. Aðstandendur óska að engin
blónt séu send.
Benedikts sál. verður nánar getið
í þesus blaði síðar.
Noregur.
19. október segir bréf frá Noregi
að 479 skip hafi farist upp að þeim
tíma frá því striðið hófst og voru
þau alls 777,000 smálestir. Þetta
voru alt.gufuskip. Auk þess höfðu
Norðmenn mist 160 seglskip, sem
voru 155,000 smálestir. Eru það alls
932,000 smálestir. Á þessum skipum
hafa farist 698 manns. Minkun
verzlunarflotans norska síðan stríðið
hófst eru 319 skip, 515,000 smálesta
rúirn. Hefir verið mikið smíðað af
nýjurn skipum, en e*kki nándar nærri
jafnt við það sem sökt hefir verið.
Nú eru Norðmenn að panta mörg skip
frá Japan, því Japan er nú hér um
bil eina landið sem getur smíðað skip
til sölu.
Danmörk.
Þar er afar þröngt í búi. Engar
nauðsynjar til nema af skornum
skamti, og fá rnenn einungis það sem
þeini cr úthlutað. Olíuskortur er þar
svo tilfinnanlegur að til vandræða
liorfir.
Svíþjóð.
Loksins eru stjórnmálin þar komin
í nokkurn veginn samt lag. íhalds-
flokkurinn sent Widen er fyrir gat
ekki myndað stjórn og varð það hlut-
verk Nils Edens að gera það. í
ráðaneytinu eru sex ntenn úr vinstri
manna flokknum svokallaða og fjórir
jafnaðarmenn. Sá helzti af jafnaðar-
mönnum er liinn mikilhæfi stjórn-
málaskörungur Hjálmar Branting.
og var hann gerður að fjármála'ráð-
lierra, en Dr. Hellner heitip sá sem
valinn var útanríkisráðherra og er
hann utanflokka maður. F.den for-
sætisráðherra er fæddur árið 1871 og
hefir verið kennari í sagnfræði við
háskólann í Uppsölum síðan 1899.
Uppreist í Brasilíu.
Blöðin skýrðu frá þvi fyrir skömmu
að Brasilíustjórnin hefði sagt Þjóð-
verjum stríð á hendur; en fáum dög-
um síðar varð uþpreist í suðurhluta
Brasilíu; eru þar stórar þýzkar ný-
lendur og kvað svo mikið að óeirðum
að allar járnbrautarlestir voru stöðv-
aðar, nema f^einar sem varðar voru
mieð herliði. Segja blöðin að her-
stórnin hafi beitt hinum mesta strang
leS'a við uppreistarmennina, en blöð-
um er bannað að flytja fréttir um
það hvernig með þá hafi verið farið.
Alþingi heiðrar Stephan G. Steph-
anson.
“Á loknum fundi í sameinuðu þingi
sem haldinn vax 15. september sam-.
þyktu báðar deildir þingsins að heim-
ila forsetamim að veita skáldinu
Stephani G. Stephanssyni 5000 króna
heiðursgjöf og telja ufiphæðina til
þingkostnaðar”.—Vísir.
Þetta eru skemtilegar fréttir; hafa
bræður vorir heima látið sér farast
sómasamlega viö þennan mikla mann.
Bæjarstjórnin.
Krafa barst yfirráði bæjarins á
fimtudaginn' þar sem 1000 nfanns, er
hjá bænum vinna heimta 10%—15%
launahækkun, nemur það alls, eftir
])vi sem bæjarráðsmenn segja um
$75,000 á ári. Sumir yfirráðsmenn-
irnir ltalda því fram að þetta sé i
þvi skyni gert að hafa það sem kosn-
ingasvipu á þá sem um embættin
sækja; og muni verkamánnafélögin
lióta því að ikjósa sína eigin menn i
bæjarráðið ef kröfunum sé ekki sint.
Yfirráðsmenn bæjarins hafa á-
kveðið að selja eldivið öllum aðstand-
endum hermanna hér í bænum nteð
mikl.u lægra verði en hann fæst ann-
arsstaðar.
Bærinn hefir la^t $1.000.000 ti)
hjálpar sjúkum í síðastliðin þrjú ár,
eru það aðallega tillög til sjúkrahús-
anna tneð þeini er ekk,i gátu ixtrgað
fyrir sig sjálfir. Síðastliðið ár voru
borgaðir $373,428 i þesstl skyni; ti!
King Edward sjúkriahússins hafði
bæjarstjórnin torgað $236.981 og til
aðalsjúkrahússins $36,418.25, til St.
Boneface sjúkrahúissins $24,063. til
Ninette $14,014, til Victoria sjúkra-
hússins $5,949, til “Convalesent”
sjúkra'hússins $1,053, til Misericor-
dia sjúkrahússins $1,053, til Grace
sjúkrahússins éSálithjálparhersins)
$4,500 og til North Winnipeg sjúkra-
hússins $2,000.
Áríðandi skýring.
“Löglærgi" berast bréf og fyrir-
spurnir daglega viðvíkjandi her-
skyldulögunum, sérstaklega er það
mörgium óljóst hverjir eigi að gefá
sig frarn og hverjir þtrfíi þess ekki.
I stuttu máli eru lögin þannig, að
allir ókvæntir menn á firunum 20—34
sem annaðhvort eru fæddir undir
brezku flaggi eða hafa tekið borgara-
bréf verða að gefa sig rram til her-
þjónustu eða mæta fyrir herdómi fvr-
ir 10 nóv. til þess að biðja um undan-
þágu, e^þeir vilja ekki fara í stríðið
eða geta ekki komið því við.
Allir sem hafa flutt hingað áður
en þeir urðu 21 árs hafa eignast borg-
ararétt með feðrum sínum ef þeir
hafa tekið borgarabréf. Þeir aftuir
á rnóti sem ekki hafa borgarabrét
iþurfa ekki að gefa sig fram og eru
ekki herskyldir, hv’ersu lengi sem þeir
hafa verið hér í landi. En eftir 10.
nóv. getur hvaða embættismaður eða
hervaldsmaður tekið hvern sem er
tali þar sem hann mætir honuim og
krafist þess að hann sýni annaðhvort
að hann hafi mætt fyrir liernefndinm
eða hafi ekki þurft þess. Til bess
að sanna að maður þurfi ekki að
mæta. Þess vegna ættu allir íslend-
ingar að fá vottorð hjá Ó. Í3. Thor-
geirssyni ræðismanni Dana hér í
tenum eöa einhverjum öðrum em-
bættismanni sejn slikar sannanir gætu
veitt. íslendingum er heillavænleg-
ast að eiga við Thorgeirsson í þessu
efni.
Áriðandi er einnig fyrir alla að
mæta fyrir herdóminum hvort sem
þeir get^ farið í stríðið eða ekki;
því hver sem það vanrækir tapar at-
kvæði sinu, en þeir sem ekki geta
farið og mæta samt til þess að biðja
um undanlþágu hafa atkvæðisrétt.
Lesið þessa grein vel og rækilega
og er með henni svaraö fjölda bréfa
sem vér komumst ekki yfir að svara.
Fundir í Nýja Islandi
Adamson þingmannsefni held-
ur fundi á eftirfarandi stöðum
og tíma.
Mánudaginn 12. nóv. kl. 8 e. h.
að GIMLI
priðjudaginn 13. nóv. kl. 2 e. h.
í ÁRNESI
og sama dag klukkan 8 e. h.
í RIVERTON.
Miðvikudaginn 14. nóv. kl. 2 e.1t.
að VIDI
Sama dag kí. 8 eftir hádegi
að ÁRBORG.
V
VILTU LÁTA CANADA NJÓT A PENINGA |?INNA?
Eða viltu bíða þar til pjóðverja ----- taka þá?
Kominn í dómsmála-ráðherra sœtið.
Ráðherraskifti.
Á laugardaginn var gerðust þau
tíðindi að A. B. Hudson dómsmála-
stjóri í Man'vtoba sagði af sér því em-
bætti og var Tlios. H. Johnson verka-
málaráðherra valinn af stjórninni til
Ivess að koma í staðinn hans. Við
embætti Johnsons'tekur aftur á ínóti
George A. Gierson þingmaður fyrir
Minnedosa. Hudson fór ekki úr ráða-
neytinu v'egna neins misskilnings
heldur sökum þess að hann hefir svo
mörgum störfum að gegna fvrir sjálf-
an sig að honurn var ómögulegt að
kornast yfír þau. Hudson er vel gei-
inn maður, en sá er stöðu hans tekur
er ekki síðun; og áleit ritstjóri “Lög-
bergs” í upphafi að liann heföi átt
að skipa það embætti frá byrjun..
Staða sú er Johnson hefir fylt er
erfið og vandasöm og munu flestir
telja hana hafa verið vel skipaða
undir hans stjórn. Sá er nú tekur við
er niikilhæfur maður og má vænta
þess að Itonuni farnist vel.
Grieson verður að fara til kosninga
samkvæmt lögum, en ekki mun það
verða nema til málamynda, því að
líkindum verður hann kosinn gagn-
sóknarlaust.
Bitar.
Giftið ykkur ekki stúlkur fyr en
þið hafið séð og heyrt “Barnfóstruna”
Hon. Thos. H. Johnson,
dómsmálaráðherra.
Bæjarfréttir.
Einar G. Martin frá Hnausum
var >á ferð í bænum á þriðjudaginn
að selja eldiv'ið. Kostar hlassið
fcordið) af “Poplar” $4.00 á-Hnaus-
um og seldi Martin mikið af við hér
í bænum fyrir það verð.
Þriðjudagskveldið 20. þ. m. veröur
“Barnfóstran” leikin i Goodtemplara
húsinu til arðs fvrir gainalmenna
heimilið Betel. Allir velkomnir; að-
gangur ókeypis. samskota leitað.
auglýst i næsta blaði.
Christjan Helgason frá Foam Lake
Attðunn Arngrímsson frá Leslie, Jón
Einarsson. Steingríniur Johnson og
Eggert Björnsson frá Kandahar
kornu til bæjarins um helgina; voru
allir að flytja nautgripi til söht.
Jón Magnússon. Helgi Björnsson
og kona hans frá Marv Hill komu
til bæjarins á finvtúdagiAn og fóru
heim samdægurs.
Mr. og Mrs. Sveinsson frá Arnaud
voru hér í bænttm í fyrri viku.
Gefin Sarnan í hjónaband í kirkj-
unni á Hnausutn í Nýja Islandi þ.
28. okt. sft 1. vortt þau Oliwer C. Clirist-
ensen og Brvnveig Aðalbjörg Einars-
san. Brúðguminn er danskur að ætt.
en fæddur itér í landi. Brúðurinn er
dóttir Bárðar Eitiarssonar og konu
hans Guðfinnu Gísladóttur er búa í
Skógargerði í Árnes-bvgð. Séra Tó-
hann Bjarnason gifti. Heimili ungu
hjónanna verður fyrst um sinn í
Árnes-bygð.
Ling stúlka getur fengið vist, eng-
in börn á heimilinu. 275 Auburry St.
Friðrik Bjarnason frá Wynyard
var hér á ferð fyrir helgina á leið
suður til Dakota að finna systur sína
Elenborgu, sem lá hættulega veik.
Halldór Austmann, Gunnsteinn og
Hálfdán synir hans frá Islendinga-
filjóti voru á ferð í bænum á þriðju-
daginn.
___________ \
Aritan Guðmundar Sigttrjónssonar
iþróttamianns er þannig: G. Sigur-
jónsson, 27th Can. Batt., B. E. F.
France.
Hér er áritun Gtlðjóns Þorvalds-
sonar: John Thorvaldson, No. 476360,
4 Troop C. Sqd. T. G. H.. lst C. C.
B. G. Erance.
Jón Goodman andaðist aö heimili
sínti 268 Good Str. hér í Winnipeg á
þriðjudagsmorguninn 78 ára að aldri.
Hann lætur cftir sig ekkju og fjórar
dætur. Jón var bróðir Guðrúnar
Goodman ijósmóður í Leslie.
Tvær merkilegar myndir málaðar
af Þ. Þ. Þorsteinsysni eru nýkomnar
út. Önnur er af “Gullfossi” hin af
Jóni Sig'Urössyni. Stór mynd og fög-
ur og fjórar aðrar myndir af honum
smærri, þar á meðal ein þar sem hann
er með konu sinni.
“Barnfóstran" segir, “að |>ótt inn-
gangur kosti ekkert, þá sé útgangan
dýr. Glevmið ekki buddunum lteima
piltar!”
Rússland.
Þar hefir fátt skeð markvert jóð-
verjar ltafa ekki ttnnið eins ntikið á
Rússum nú og aö undanförntt, en þö
allmikið.
Kerensky forsætisráðherra sagði á
fimtudaginn að Rússar værtt orðnir
þreyttir á stríðinu; 'þeir hefðu verið
komnir i það 18 mánuðum á undan
Bretum og Frökkum og hefðu tvisv-
• ar að tninsta kosti bjargað þeim
þjóðutn báðunt frá óföntni. Nú
kvað hann það vera skyldu banda-
manna að koma til hjálpar, þvi hing-
aö til hefðu þeir verið einir sin meg-
in. Hann kvað þjóðina vera svo að
segja að þrotum kotnna en samt væri
áforitt hennar að halda áfram og
berjast til þrautar; kvað hann ýmsa
spvrja hvar brezki flotinn væri nú;
og hvers vegna hann kæmi ekk. í ljós
þegar þýzki flotinn væri kominn út.
LT’m stjórnarbyltinguna sagði Kereu- j
sky að ekki væri iiægt að dæma enn
þá; kvaðst hann vona að hún yröi
latidi og lýð til blessunar, en þar sem
hún væri ekk: nema sjö mánaða göm- j
ul væri ekki unt að fella neinn sann-1
----------------------------M--------
Hon. G. A. Grierson,
hinn nýi verltamála ráðherra
Manitoba-fylkis.
Hon. A. B. Hudson,
fyrverandi dómsmálaráðherra.
gjarnan dóm y.fir afleiðingum hennar
á Frakklandi hefði árangnrinn ekki
sést fyr en eftir ntörg ár; en alls hins
bezta kvaðst hann Væntia, hvað sem
verða kynni.
Rússneskum og tyrkneskum her-
skipunt lenti saman fyrra miðvikudag
í Svaftahafinu, þar sem heitir Inada-
fjörður, er það skamt frá Bosporus
fSæviðar sundi). Lyktaði viðskiftum
þeirra þannig að fallbyssubátur sem
Rússar voru á sökti fjóirum fluvninga
skipunt og einum fallbyssubáti fyrir
Tyrkjum.
Rússneska stjórnin hefir ákveðið
að takast á hendur eúikasölu á tei til
þess að ná peningum upp í herkostn-
að. Er áætlað að það rnuni veita
400,000 fúbla tekjttr á ári. Stjórnin
hefir ákveðið að taka 4,000,000 rúbla
lán.