Lögberg - 15.01.1920, Blaðsíða 6

Lögberg - 15.01.1920, Blaðsíða 6
Bls. 6 LÖGBERG FIMTUADGINN 15. JANÚAR 1920. Æska er æfi skólk, Alt, sein lærist þa. VerSi vors a6 geislum Vesi lifsins 4. P. P. P Sagan af Monte Cristo. Hann sýndist líka haifa ýmugust á mér, og eina nótt, þegar eg lá vakandi í rúmi mínu, heyrði eg þungan grátekka berast frá herberginu hans, og eg gat ekki stilt mig um að fara upþ til hans; en þegar eg kom upp, var hann hættur að gráta, en hafði kropið niður í 'heitri og inuilegri bæn. Einn var hann dag frá degi og einmanalegri. M. Morrel og Merœdes kotmu að sjá hann, en stofudyrnar hans voru læstar, og þó eg væri viss um, að hann væri heima, fékst hann ékki tii að %efa neitt hljóð af sér. Svo hann var látinn eiga sig og enginn virtist veita honum eftirtekt. Að vísu sá eg menn koma á vissum tímum og fara upp til hans, og koma aftur eftir stundankorn, og ávalt höfðu þeir þá eitthvað meðferðis, sem þeir vildu fela. Það voru munir hans, sem hann var smátt og smátt að selja, til þess að geta dregið fram lífið. Að síðustu var alt, sem hann átti, búið og hann skuidaði þriggja vikna húsaleigu, og þeir hótuðu að láta bera hann út; en hann beiddi um að mega vera eina viku til og það var honum veitt. Eg fór og sagði Morrel þetta og Mjóp svo til Mercedes og komu þau l>æði undir eins og með Morrel kom læknir. Hann skoðaði Dantés og sagði, að það væri magasjúkdómur, sem að honum gengi og þyrfti hann því að fasta. Eg var þar stadclur líka, og man eg eftir gleðisvipnum á and- Mti gamla manmsins, þegar læknirinn ráðlagði honum að fasta. Upp frá því voru stofudyrnar hans ávalt opn- ar og hann hafði ástæðu til þess að neyta ekki mat- ar, — það var boð læiknisins. Morrél vildi láta taka gamla manninn í burtu, hvort sem hann vildi eða ekki, en fékk því ekki ráðið, svo Mercedes varð eftir hjá honum, en Mor- rel fór í burtu, og þegar hann gekk út, gaf hann Mercedes v.ísbendingu; hún sneri sér við, og sá hann leggja buddu með peningum í á kommóðu, sem stóð við vegginn. SjúkMngurinn nærðist ekkert í níu daga og dó svo með formæMng á vörum yfir þá, sem*ógæf- una höfðu leitt yfir liann, en við Meroedes sagði hann: “Ef að þú sérð Edmond minn nokkurn tíma aftur, þá segðu honum, að eg hatfi blessað hann á mínum dánarbeði.” “Þetta hefir sannarlega verið hryggilegur atburður,” sagði ábótinn í klökkum rómi. “Og hryggilegri fyrir það, að þetta voru manna verk, en ekki Guðs,” bætti Caderousise við. “Segðu mér frá mönnum þessum,” mælti á- bótinn, “og mundú eftir því,” bætti hann við í áköfum róm, “og þú hefir lofað mér að segja frá öllu. Segðu því hvaða menn það voru, sem drápu fbðurinn úr hungri, en soninn úr örvæntingu.” “Tveir öfundsjufcir menn,” mælti Cader- ousse, og bætti við eftir ofurMtla þögn: “ Annar út af ástamálum, hinn sökum metnaðar. Þeir hétu Fernand og Danglars, og klöguðu Edmond fyrir að vera umboðsmann Napóleons Bómaparte. Danglars ritaði kæruna sjálfur, og ti'l þess að rit- hönd hans skyldi síður þekkjast, þá gjörði hann það með vinstri hendinni, og svo fór Fernand með bréfið í póstinn. Eg var með þeim, þegar þetta var framkvæmt, en þeir veittu mér svo mikið af víni, að eg var orðinn ölvaður og gerði alt, sem maður í sllíkum kringumstæðum getur gert til þess að aftra þessu, en þeir fuMvissuðu mig um, að þetta væri að eins meinlaust gaman.” “Og svo daginn eftir, — daginn eftir, herra minn, hefirðu hlotið að sjá hvernig kornið var, og þú varst viðstaddur, þegar Edmond Dantés var tekinn fastur, en sagðir ekki orð,” mælti ábótinn. “ Já, herra minn.” mælti Caderousse, “eg var viðstaddur, og mig langaði til þess að bera sann- leikanum vitni, en Danglars aftraði mér þess.” “Ef að hann er sekur og það er satt, að hann hafi farið að sjá Napóleon á eynni og ef að hann verður kærður um að hafa verið bréfberi á miHi Napóleons og stuðningsmanna hahs í París, og ef að þeir finna bréfið á honum, þá verða alHr þeir, sem hans taum draga, áMtnir að vera með- sekir honum,” mælti Danglars. “Eg skal játa, að eg var hálf-hræddur við þetta, og ekki sízt sökum þess afar ískyggilega stjórnmála ástands, sem í landinu var, og þagði. Eg skal játa, að það bar vott um hugleysi, en það var ekki glæpur.” Nú varð dálítil þögn. Abótinn stóð upp úr sæti sínu og gekk um gólf og var auðsjáanlega þmigt í skapi. Svo gekk hann að stól sínum, sett- ist niður og mælti: “Þú hetfir tvívegis minst á mann, sem M. Morrel heitir; hvaða maður er þaðf ” “Eigandi sikipsins Pharaoh og húsbóndi Ed-, mond Danteés,” svaraði Caderousse. “Hvaða þátt tók hann í þessari sorgarsögu?” spurði ábótinn. “Þann eina, sem heiðarlegur og þrekmikill maður gat gert,” svaraði Caderousse. “Tuttugu sinnum reyndi hann að frelsa Ed- mond. Þegar keisarinn kom til baka, þá skrifaði hann bæði með allri þeirri einlægni og auðmýkt, sem hann átti till, og þegar það dugði ekki, þá hafði hann “í hótunum, og svo áfjáður gerðist hann, að á öðru viðreisnar tímabilinu var hann kærður um að vera í sainbandi við Napóleon.” “Hann kom tíu sinnum til þess að vitja um föður Edmonds og bauðst til að taka hann heim á sitt eigið heimili; en tveimur dögum áður en faðir Edmonds dó, eins og eg hefi áður skýrt frá, kom hann til hans og skildi eftir peningabuddu sína á borðinu í herbergi gamla mannsins. Og gengu peningarnir, sean í henni voru, til þess að borga skuldir, sem hann var kominn í og svo fyrir útfararkostnaðinn. Eg hefi budduna hér hjá mér —stóraubuddu úr rauðu silki.” “Er þessi M. Morrel enn á lífif” spurði á- bótinn. “Já,” svaraði Caderousse. “Þá ætti hann skilið að búa við allsnægtir og vera ánægður,’ sagði ábótinn. Bros, sem í var beiskja og ísikalt háð, lék um varir Cadorousse. “Já, ánægður, eins og eg er sjálfur,” svaraði hann. “Eftir tuttugu og fimm ára stríð,” hélt Ca- derousse áfram, “og nafn, sem aldrei hafði falMð blettur á, þá er hann nú öreigi. Hann hefir tapað fimm skipum sínum, er hann háfði í förum, á síð- ustu tveimur árum. Hefir tapað stórkostlega á því að þrjú verzlunarhús, sem hann var viðrið- inn, hafa orðið gjaldþrota, og eina viðreisnarvon hans er nú skipið Pharaoh, sem vesMngs Edmond var fyrir, og sem von er nú á með farm af indigó og cochinael. En ef þetta skip skyldi nú fara sömu leiðina og hin, þá er hann algjörlega öreigi.” “0g á vesaUngs maðurinn konu og börn?” spnrði ábótinn. “ Já, hann á konu, sem hefir borið sig eins og hetja í þessu mótlæti og vakað yfir manni sínum eins og engill í raunum hans; hann á dtótir, sem var að því komin að giftast elskhuga sínum, en sem foreldrar hans hafa nú aftekið, sökum hinna efnalegu ástæðna, Morrel, og svo á hann son, sem er í hernum, og eins og þér getið skiMð, þá gjörir það honum lífið erfiðara. Ef að hann væri ein- hleypur, þá mundi hann skjóta sjálfan sig, svo að alt væri búið.’ “Hryggilegt,” mælti ábótinn. “Þannig launar guð dygðugt Mferni,” hélt Caderousse áfram. “Þér sjáið mig, eg hefi aldrei aðhafst neitt ljótt, sem eg hefi nú ekki minst á, en samt er eg öreigi, sem verð að hor.fa upp á kon- una mína dragast upp úr hitaveiki fyrir augunum á mér án þess að geta hjálpað henni. Eg býst við, að eg deyi úr hungri, eins og Dantés, þar sem Fer- nand og Danglars baða í rósum.” “Hvernig stendur á því?” spurði ábótinn. * ‘ Prettvísi þeirra ’hefir öM snúist þeim til vel- gengni, þar sem heiðvirðir menn eiga við skort að búa,” mælti Caderousse. “Hvað er orðið af Dangflars, sem upptökin átti að þessu öUu og er því aðal sakadólgurinn?” spurði ábótinn. “Hann fór frá Marseilles, og var, samkvæmt vottorði frá Morrel, sem ekkert vissi um glæp þann er hann hafði framið, tekinn í þjónustu banka eins á Spáni, sem féhirðir. f stríðinu við Spánverja var hann einn af umboðsmönnum Frakka á Spáni og græddi of fjár og ávaxtaði, eða réttara sagt margfaldaði fé sitt á kaupsýslu. Svo giftist hann dóttur bankastjórans, en hún dó eftir stuttan samvistartíma og giftist hann þá aftnr dóttur manns eins, sem var hátt standandi við hirðina og hét de Nargonne, og var hún efckja, þeg- ar Dangtlars átti hana. Hann er nú miljónamær- ingur, býr í stórhýsi, hefir márga þjóna óg fult hesthúsið af gæðingum.” “Nú,” sagði ábótinn í einkennilegum rómi. “Hann er þá víst ánægður.” “En Fernand?” spurði ábótinn svo. “Hans eru bæði metorð og auður,” mælti Caderousse, ‘ ‘hvorttveggja. ’ ’ Framih. Vögguljóð eða heilræði. Nú, í nafni Jesú, til náðar um sinn, Legg eg þig í vögguna, vesMngur minn; Legg eg þig í vögguna, værð gefi þér Huggarinn hæstur, sá himneskur er; Huggarinn hæstur hjálpræði þér vann, Lofaður sé Drottonn, sem lét þig fæðast mann; Lofaður sé Drottinn, sem leið fyrir þig pín, Friðinn þér veitti í faðminum sín; Friðinn þér veitti forþénustan klár, Heilagan anda og himnesfca náð; Heilagur andi þig hreinsa vel vann, Mitt í skíminni meðtókstu hann; Mitt í skíminni; þá minningu prís, því skalt honum þó'knast og þéna með prís; Því skalt honum þóknast, þá þú skilning fær, IDýða hans boðorðum og hafa þau kær; Hlýðnin er upphaf -til heiManna títt, Því skaltu varast þrályndið strítt; Því skaltu varast þrályndi og móð, Blót og bakmælgi, barnkindin góð; Blót og bakmælgi bönnuð er þér, Hlýddu þínum foreldrum í hverju sem ber; Hlýddu þínum foreldrum og heiðraðu þá, Öllum yfirboðurum undan skaltu slá; öllum yfirboðurum áttu að sýna dygð; Forðastu að gjöra fátækum stygð; ,Forðastu að gjöra fáráðum mein, Iðkaðu Guðs orð, .sVo elskan sé hrein; Iðkaðu Guðs orð af alhuga og lyst, Föðurnum þákkaðu fyrir Jesúm Krist; Föðurnum þakkaðu fyrir alt gott þér tjáð; • Bænrækinn vertu og biddu Guð um náð; Bæn skaltu með ganga bæði út og inn, kirkjuna etaka og kenniföður þinn; I kirkjunni lærir þú kristinna sið, Blessan Guðs orða þau boða þér frið; Blessaður Guðs ótti, hann bætir þitt geð, Til allra inannkosta liann afl fær þér léð; Til allra mannkosta er eflingin góð, Fylgi þér í dauðanum, fyrir Jesú blóð; Fyilgi þér í dauðanum frelsarinn minn, Flytji hann þig tfagnandi í fjárhópinn sinn; Flytji hann þig fagnandi í friðarins rann, Blessi þig betur, en biðja eg kann; Blessi þig betur, barnunginn minn, Til aðgæzlu sendi hann þér engilinn sinn; Aðgæzlan Drottins þig umfaðmi og leið, Veiti hann þér værðina og verndi frá neyð; Yeiti hann þér værðina og veki með ró, Andtega speki með aldrinum þó; Andlega speki þá öðlist og frið, Farsældar óskin miín festist þig við; Farsaridar óskunum falinn sért þú, Und 'sigurmerki Drottins sofnaðu nú; Sigurmerfki Drottins svæfi þig vært, Iðka þú mín heilræði, elsku-barnið kært; Iðkið þið mín heilræði, eldri menn og fljóð, Þiljið yfir þráfaldlega þessi vögguljóð; Þyljið vfir börnunum, þá þau svæfa skal. Hjálpi oss Guð og ihýsi í himna dýrðar sal! Þessi vögguljóð eða heilræði lærði eg af móð- Ur minni sálugu, þegar eg var barn. Hún var vön að sitja með okkur systkinin í ljósaskiftunum og kenna okkur bænir, vers og ýmislegt fallegt. Af því eg liugsa, að það kunni þau ekki margir, en mér finst þau vera þess verð að þau ekki gleymist, þá dattmér í hug að setja þau í Sólskinsblað barn- anna, tll minningar um látinn, horfinn ástvin: sonarson okkar, Þorkel Georg. Vildi eg mælast til við íslenzkar mæður, að þær héldi þeim við, með því að raula börnin sín í svefn við þau. Með vinsemd og virðingu og innilegum jóla- óskum til barnanna. Ingibjörg Jónsdóttir Clemens. Flekkótti lúðurþeytarinn. Hamlin er lítill bær fyrir handan hafið. Fyrir löngu síðan kom einkennilegt atvik fyrir í þessum litla bæ. Inn þangað ruddist stór hópur af völsk- um, stórum og grimmum. Svo grimmar voru þær, að þær átu hunda og ketti og bitu lítil börn, átu af borðum manna og hlu]>u um göturnar um hádag. Vitrir menrr reyndu að finna ráð til þess að fcoma þeim af sér, en efckert dugði. Þær brutu gildrurnar og vildu ekki éta eitrið. Borgarstjór- inn sagði: “ Eg vildi að eg hefði snöru nógu stóra og sterka til þess að drepa allar völskurnar í Ham- lin. Eg skyldi getfa alt niitt gull til þess.” Bétt í þe^su var barið að dyrum. “Kom inn”, sagði bæjarstjórinn. Hurðinni var lokið upp og inn kom ókunnugur maður. Hann var hár og grannvaxinn, með Ijósblá augu og Ijóst hár. Káp- an hans var hálf gul og hálf rauð. Enginn hafði séð hann áður. Hann fór til bæjarstjórans og sagði: “Eg get rekið allar rotturnar úr þessum bæ.” “Ilver ert þú?” spurðu vitringarnir. “Og hvernig getur þú gert þetta?” — “Eg er kallaður ‘Lúðurþeytarinn ,í flekkóttu fötunum.’ En eg get ekki sagt ykkur, hvernig eg losa yfckur við völsk urnar, og ef að þú vilt lofa anér því að gefa mér þúsund gullpeninga, þá skal eg fljótt sýna ykkur hvernigeg geri það.” “Þúsund,” hrópaði bæjarstjórinn; “eg skal gefa þér fimm þúsund gullpeninga”. Lúðurþeytarinn fót úr á götu og dró upp úr vasa sínum hljóðpípu og fór að spila glaðlegt lag. Þegar rottui-nar heyrðu það, komu þær hlaupandi á eftir honnum, því þær héldu, að það talaði um mat og annað góðgæti, og gleymdu öllu öðru. Lúð- urþeytarinn gekk spilandi á undan, þangað til hann kom að á nokkurri; þá hlupu allar rotturnar út í hana og druknuðu. — En hvað fól'kið varð glatt! Það hringdi klukkum og börnin hoppuðu af gleði, þegar þau heyrðu að- rotturnar væru dauðar. Nú fór flekkótti lúðurþeytarinn inn til bæjar- stjórans og beiddi um þúsund gullpeninga. — “Þúsund,” sagði bæjarstjórinn, “það eru alt of miklir peningar. Eg gef þér fimtíu. ” — “Ef þú borgar mér ekki peningana mína, þá mun þig iðra þess seinna,” sagði ókunnugi maðurinn. “Þú getur ekki gert okkur neitt til illis eftir þetta; rotturnar eru dauðar og þú getur ekki kom- ið með þær aftur,” mælti bæjarstjórinn. Lúðurþeytarinn fór út á götu og fór aftur að spila. Og þegar börnin heyrðu það, þá fcomu þau hlaupandi úr öllum áttum. Hann gekk á undan og spilaði, þangað tii hann kom að hæð nokkurri. Þar opnaðist hurð og öll börnin gengu inn. Hæðin lokaðist á eftir þeim. Einn Mtill drengur, sem var haltur og gat ekki hlaupið eins og hin börnin, varð etftir af þeim. Bæjarstjórirm og vitru mennirnir komu hlaupandi á eftir og fundu drenginn grát- andi. “Af hverju ertu að gráta?” spurðu þeir. “Mig langaði að fara með hinum börnunum,” mælti drengurinn, ‘ ‘ þegar maðurinn spilaði á píp- una sína; hún sagði okkur frá fallega landinu, þar sem börnin þyrftu eikki að gera annað en að leifca sér og væru aldrei veik, hölt eða blind. Eg hljóp eins hart og eg gat, en þau voru tfarin inn og hæð- in lokuð,” sagði drengurinn. Bæjarstjórinn sendi menn í allar áttir að leita að lúðurþeytaranum, með þeim uimmælum, að hann skyldi fcoma með börnin, þá iskyldi Iiann fá alla gullpeningana, sem til væru í Haanlin. Fólkið beið dftir börnunum sínum, en þau komu ekfci til baka. Þetta skeði alt fyrií löngu síðan, en enginn hefir séð lúðurþeytarann eða litlu börnin síðan. — Ef þú ferð til Hamlin, mun fólkið -sýna þér hæð- ina og ána. Enginn má syngja eða spila á því stræti, sem börnin eltu lúðurþeytarann í landið fyrir handan hæðirnar. J. G. Sigr. Sigurbjörnsson þýddi. Borgað í sömu mynt. Einu sinni var voldugur Soldán, er hafði við hina glæsiflegu hirð sína nofckra smjaðrara, sem alveg sýndust óþreytandi í því, að hláða lofi á hann fyrir alt sem hann sagði eða gerði. Smjaðr- ararnir vora níu að tölu, en um þetta sama leyti var við hirðina Vezír einn spakur mjög, er aldrei sagði annað en hreinan sannleikann, hverra afleið- inga sem var að vænta; hét sá Elíaim. Dag nokk- urn kvaddi Soldáninn tímenningana á sinn fund, sýndi þeim tíu demantshringa og mælti á þessa leið: “Herrar mínir, þessa fágætu demantshringa hefi eg ákveðið að gefa yður í laun fyrir einlægni yðar o ghreinsilni við mig. Takið nú til má!s, hver yðar um sig, og segið mér í fullri alvöru, hverjar skoðanir þér hafið á Isjálfum mér persónu- lega og valdi mínu og frægð.” Smjaðrararnir níu keptust um það hver við annan, að hlaða lofi á Soldáninn og vegsama hans dýrð. Dró Soldán þá demantshring á bugfingur sérhvers hinna níu srnjaðrara, en sneri sér að því búnu til Elíams og spurði: “Hví mælið þér eigi sem hinir?” “Meistari,” svaraði vezírinn. “Enginn get- ur keypt sannleikann; hann fæst að eins gefins. Þótt þér séuð voldugur þjóðhöfðingi, þá ernð þér að eins dauðlegur maður — veikt verkfæri í liendi AaMah, er hann hefir sjálfur valið í þjón- ustu sína til þess að aúka á hamingju annara manna, sem hann getur einnig með einum andar- drætti látið gleymast að eilífu, ef honum svo þókn- ast.” — Smjaðrararnir störðu stcinhissa hver á annan, en Soldáninn sneri sér að Eliam og sagði: “Eg ætla ekki að útbýta tíunda hringnum, því þú hefir sagt, að sannleikurinn yrði ekki keyptur, heldur fengist 'hann ávalt gefins. Ef svo er, þá ætti traust og vinsemd að vera gefins líka. „ Skaltu nú livorttveggja af tmér þiggja, og vera framvegis vinur minn og ráðgjafi.” Smjaðrararnir vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið og hypjuðu sig á brott hið ibráðasta. Næsta dag snernma gengu þeir fyrir Söldán og mætlu til lians þessum orðum með uppgerðar- kurteysi: “Yðar hátign! Kaupmennirnir, sem seldu yður demántshringana, hafa leikið á yður; demantarnir eru allir falsaðir.” “Svo þér haldið, að eg hafi ekki vita ðþað?” svaraði Soldáninn. “Þér slóguð mér óspart gull- haímra og létuð rigna yfir mig fölsku ilofi og smjaðuryrðum, þess vegna taldi eg sjálfsagt, að borga yður í sömu mynt. Þér hafið því yfir engu að kvarta. Og nú vona eg að yður skiljist, hvers vegna eg gaf Elaim traust og vinsemd í staðinn fyrir tíunda flasaða djpmantshringinn. Elaim hefir ávalt verið mér sannur og einlægur starfs- bróðir, og þess vegna er það heilög skylda mín, að borga honum einnig í sömu mynt.” Lítill munur. Drengur misti boltann isinn inn uim glugga á húsi — “Hvernig vogar þú að koma hér nærri, hnofckiim þinn; þú varst nærri búinn að rota eitt af börnunumum mínum,” mælti húsbóndi reiðu- lega, er drengurinn kom að spyrja um boltann. ‘ ‘ En herra! 'þér eigið tíu börn, en eg á bara einn bolta,” svaraði drengurinn. Farin að eldast. Kenslukona var að segja börnunum frá því, að Columbus hefði fundið Ameríku. Stúlkan end- aði með þessuim orðum: “Og alt þetta skeði fyr- ir meir en f jögur hundruð árum. ’ ’ Lítill drengur horfði á hana undrandi og sagði: “Fádæma hafið þér gott minni.” Dýrt afsvar. Ungi maðurinn: “Haldið þér, að dóttir yðar vildi verða konan mín?” Lögmaðurinn: “Nei. Þetta kostar tíu dali.” Skrifst'ofustjórinn: “Get eg fengið tveggja tímafrí í dag, til þess að gitfta mig?” Húsibóndinn: “Þér megið fara í þetta sinn, en gætið þess, að í slík frí gef eg yður ek'ki farar- * leyfi oft.”

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.