Lögberg - 22.01.1920, Side 1

Lögberg - 22.01.1920, Side 1
SPEIRS-PARNELL BAKINGCO. ábyrgjast yður fulla vigt, beztu vörur fyr- ir lœgsta verð sem verið getur. REYNIÐ ÞAÐ! TALSlMI: Garry 2346 - WINNIPEG Það er til myndasmiður í borginni W. W. ROBSON 490 Main St. - Garry 1320 33. ARGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 22. JANÚAR 1920 NUMER 4 Helztu Viðburðir Síðustu Viku Canada. Gull-framleiðsla í British Col- umbia fytki var tiil muna minni á síðasta ári, en hún hefir verið á undanförnum árum, og er þar kant um verkföllum og auknum ko&tn- aði, og tþað er ekki einasta gull- framleiðslan, .sem hefir farið þverrandi, heldur öll námafram- lciðsla að kola framleiðslu undan- tekinni. R- B. Rusell, sá er fundinn var sekur um uppreisnar tilraunir og dæmdur í tveggja ára fangelsi af ;alf dómara nýlega, hefir ver- ið útnefndur sem þingmannsefni Sósíalista hér í bænum, til að sækja um kosning við næstu fylk- iskosningar. Dagblöðin þrjú hér í bænum hættu að 'koma út á laugardaginn var. Er það sökum pappírsskorts. En hann stafar af iþví, að pappírs- gerðarverkstæði það, sem blöðin verzluðu við, neitar að sélja pappír til Canada, það er segja Manito- "ba og Saskatchewan. Eigendur mylnunnar, sem eru Bandaríkja- menn, fengu hærra verð fyrir pappírinn í Bandaríkjunum, en l>eir gátu fengið í Canada, og við það bættist premían, sem þeir fá frá Bandaríkjaþinginu. — pegar mylnan hætti að senda pappír til Vesturfylkjanna, tók Canada- stjórnin í taumana og bannaði alla sölu á pappír frá mylnunni, og við íþað stendur enn. Mylnan stendur Canada mégin við landa- mærin og fær alt sitt efni í papp- írinn frá Canada. Saskatchewan stjórnin hefir okki latið iijíða, að færa sér í nyt hlunnindi þau, sem fylkjunum eru gefin með hinum svo kölluðu bind- indislögum Canada. Hon. W. F. Turgeon, dómsimálastjóri fylkis- ins, hefir lýst yfir því í Saskatc'he- wan þinginu 16. iþ.m., að hann samkvæmt þeiím lögum ætlaði að bera fram uppástungu um að stjórnin undirbúi nú þegar undir atkvæðagreiðslu, sem fram fari í fylkinu um það að banna innflutn- ing á öllu áfengi til drykkjar inn í fylkið. pessi tillaga verður svo að sendast istjórninni í Ottawa, sem ákveður hvenær slík atkvæða- greiðsla fari fram. $18,000 var stolið úr pósti, sem sendur var með skipi frá Alaska til Vancouver nýlega. Hæstiréttur Manitobafylkis hef- ir gef’ð út dóm í máli R. B. Russ- ell, og var rótturinn sammála um, að ékkert hefði kolmið fram í mót- bárum verjanda, sem gæfi hina minstu ástæðu til 'þess að breyta ákvæði kviðdómsins. Svo að dóm- ur undirréttarins stendur óhagg- aður. Lögmaður verjanda, Ro- bert Cassidy, beiddi um leyfi að fá að áfrýja málinu til hæstarétt- ar Canada. En sökum þess að all- ir dómararnir í yfirrétti Manito- ba voru einhuga um málið, var ékki unt að veita þá beiðni. Tal- aði málaflutningsmaðurinn þá um að áfrýja málinu til leyndarráðs Breta. Maður að nafni Joe Weir, sem heima á að 182 Chalmers ave. í Rlmwood austan við Rauðá, var að fægja marghleypu sína á laug- ardagskveldið var heima hjá sér, þegar skot hljóp úr henni og 3 brjóst mannsins. Hann liggur nú 'hættulega særður á sjúkrahúsi bæjarins. A. Pringle, umsjónarmaður yfir prent pappir í Canada, hefir sagt af sér. Fljótfærni getur stundum haft eí'tirköst sem mönnum verða minn- istæð. Verkfræðingur einn frá Toronto Canada, var á ferð í New York og kom þar inn í gullstáss- búð og keypti þar einhvern hlut og borgöi með ávísan. En kaup- manninum leizt hvorki á ávísun- ina né manninn og lét taka hann fastann og kærði fyrir að gefa fálsaða ávísun. Svo sannaðist að ávísun Canadamannsins var að öllu leyti lögleg og var honum þá slept. En hann þóttist il'la leikinn og höfðaði imál á móti kaupmann- inum og krafðist $ 100,000 í skaða- bætur fyrir mannorðsspjöll og hef- ir hann nú unnið málið. Verkfræði'ngur þessi heitir Alex MacAuley, en kaupmaðurinn sem á sig hljóp T. P. Starr. Canada maður að nafni Edwin Reginald 32 ára gamall, hefir ver- ið dæmdur í 17 <ára fangelsi á Englandi fyrir að gera tilraun til þess að ræna banka í Wood Green. Kom hann inn í bankann vopnaður, miðaði marghleypu á einn af bankaþjónunum og hleypti af en hitti ékki, en áður en hann gat gert meira var hann tekinn fastur. Búist er við að atkvæðagreiðsla um in'nflutnigsbann á áfengum drykkjum fari fram í Alberta áður en langt um líður, eftir því sem stjórnarformaðurinn þar sagði ný- lega. Eldur kom upp í gestgjafahúsi í Calgary nýlega og brann bygg- ingin mjög, brann þar inni eitt- hvað af fólki, vér vitum ekki hvað margir. En við yfirheyrslu út af dauða tveggja sem í eldinum fór- ust kom það fnm að vökumaðurinn hefði verið niður í kjallra við pen- inga spil, þegar eldurinn kom upp. Á mánudagskveldið var léku íslenzku Hockeyleikararnir á móti Hockeyleikara flokknum frá Brandon 1 Amphitheatre skauta skálanum í Winnipeg. Fálkarnir unnu með 9 á móti tveimur. Bandarikin Sendiherrar frá átta þjóðum, sem nú eru í Bandaríkjunum, hafa íarið fram á, að fundur sé tafar- laust kallaður, þar isem mæti um- boðsimenn frá pýzkálandi, Aust- urríki og öðrum óvinaþjóðum. Verkefnið, sem fyrir liggur, er að hjálpa löndum þeim, þar sem stríðið hefir valdið mestu tjóni, til þess að ná <sér sem fyrst aftur, og svo að tala um verzlunarsam- band þjóða. pæ r þjóðir, sem gangast fyrir þessum fundi, eru Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Holland, Sviss, Danmörk, Svíþjóð og Noregur. Enn fremur er ætlast til, að í þessari hreyfingu taki þátt auk þjóðanna, sem nefndar hafa verið, Italía, Japan, Belgía og Suður-Ameríku þjóðirnar. í yfirlýsing frá þjóðum þeim, sem fyrir þessu gangast, stendur: — “Meiri parturinn af fé því, sem þarf til þess að korna á jafnvægi á meðal þjóðanna, verður að koma frá þeim þjóðum, sem mikið eiga hjá öðrum fyrir vörur, sem þær hafa selt, og þar sem peningarnir haf haldið slnu gangverði. — Lán- veiting til langs tíma, er að eins æskileg þar sem slíkt er óhjá- kvæmilegt til þess að endurreisa iðnaðarfyrirtæki. Fyrir þá skuld, og líka sökuim þess, að krafirnar eru svo brýnar heima fyrir hjá þjóðunum sjálfum, ætti að tak- marka þessi lán eins mikið og unt er. pessi lán eða hjálp skyldi gef- in á þann hátt, að á engan hátt komi í bága við verzlunarsambönd lánþiggjenda við aðrar þjóðir, og því mega engar hömlur fylgja frá hendi stjórna þeirra, sem lánin veita. Leonard Wood hershöfðingi hef- ir formlega tilþynt, að hann sæki um forseta embætti Bandaríkj- anna undir imerkjum Repúblíkana v'ð næstu forsetakosningar. Hinn sameiginlega iðnaðarnefnd Bandaríkjanna, er stendur í sam- bandi við yfir fjögur hundruð stærstu iðnaðarstofnanir þjóðar- innar, hefir gefið út yfirlýsingu um, að Bandaríkln þurfi á fjórum miljónum verkamanna að halda umfram þá sem þjóðin eigi nú ráð á, og til þess að bæta úr þessu, leggur nefndin til, að hæfilegur innflutningur til landsins sé Veyfður. pað virðist svo, isem þingmönn- um öldungad. Bandaríkjanna, — það er að segja þeim, sem með öllu eru mótfallnir því að friðarsamn- ingarnir séu undirritaðir af Bandaríkjamönnum—, sé alvara með að gjöra það að kapps-atriði við forsetkosningarnar næstu. — Pessu til stuðnings er þes getið, að Senator Borah fór nýlega á fund Frank 0. Lauder ríkisstjóra í Illi- nois til þesis að fá skýlaust svar frá honum um afstöðu hans til þessa atriðis, og lét hann skilja, að hann þyrfti ekki að vonast eftir stuðn- ingi frá Repúblíkana flokknum, nema því að eins að afstaða hans til málsins væri í samræmi við vilja flokksins. Ekki reyndist Bandaríkjastórn létt að láta starfrækslu járnbrauta ríkisins bera sig. Tekjuhallinn fyrir síðastl. nóvember nam um 64 milj. dollara og 548 milj. doll. er tapið komið upp í yfir tuttugu og þriggja mánaða tímabilið, sem járnbrautir landsins hafa verið starfræktar af landstjórninni. Konur úr Vesturríkjunum, sem telja sig i flokki Repúblíkana, komu saman á fundi nýlega til þess að ræða um í hönd farandi forseta kosningar í Bandaríkjun- um. Og á meðal annars, sem þær kröfðust, var að konur skyldi skipa jafnmörg sæti í framkvæmd- arnefnd flokksins eins og karl- menn. Dr. Moses Madden, Svertingi frá St. Louis, hefir borið fram bænarskrá fyrir dómsmálanefnd þingsins í Washington, um að myndað sé nýtt fylki undir umsjón ríkisins, og sé sett til síðu handa Svertingjum í Bandarkíjunum, þar sem þeir geti verið út af fyrir sig. Hann bendir á, að hentugt land- svæði til slíkrar ríkismyndunar Svertingja væri með fram Rio Grand fljótinu; en svæði það liýg- ur bæði í Texas og New Mexico. Ford félagið skifti frá átta til tíu mifjónum dollara upp á milli vinnufólks síns 1. jan. síðastl. Olíu náma eigendur tveir, F J. Roney og Earl Bawles, sem áttu ítök sín í Mexico, voru myrtir af ræningjaflokki, sem þeir urðu á vegi fyrir. Báðir mennirnir voru j Bandaríkjaþegnar. Bretland í ræðu, er Sir George Paish hélt nýlega í verzlunarsamkundu kaup- manna í Lundúnum, ‘komst hann svo að orði: “Eg hefi fengið orð fyrir að vera bjartsýnn maður, og eg vona að geta haldið áfram að vera það, áður en langt um líður. “En það, sem eg get sagt nú, er, að alt virðist ganga aftur á bak, og að það er nálega ekkert sýni- legt, er glætt geti bjartsýni fólks. Gjaldmiðill þjóðar vorrar heldur áfram að falla á markaði Banda- ríkjanna og er hvergi nærri búinn að ná sínu lágmarki enn. Gjaldþol Evrópu fer stöðugt þverrandi og útlitið virðist ‘hið alvarlegasta. / pað er eitt, sem nuaðsynlegt hef- ir reynst eftir öll istríð, og sem líka er nauðsynlegt eftir þetta stríð, og það er vinna — meiri vinna, en látin var í té á undan stríðinu. En í staðinn fyrir það, þá er minna unnið — minna framleitt. Vinnutíminn er styttri og fram- leiðslan því minni. Sumt af fólkinu vinnur miklu minna, en góðu hófi gegnir. En ef það gerði skyldu <sína, þá; ætti það að leggja ,sig fram til | þess að vinna svo mikið, að auður þjóðanna yxi í staðinn fyrir að hann haldi áfram að þverra. pað verður að gerast, og það gleður mig að geta 'sagt, að leið er til út ur þeim ógöngum, sem vér erum nú staddir í. En það er engin ein þjóð, sem getur ráðið fram úr þessu. pjóð- irnar verða allar að leggjast á eitt til þess að hjálpa. Hér á Bretlands- eyjum ed ástandið erfitt, og svo er það á meginlandinu. pað verður að hjálpa pjóðverj- um til þesé að auka framleiðsluna. peim er, miklu meiri þörf á því, heldur en að bariist sé á móti' “keisaraisma” eða jafnvel “milit- arisma”. En það sem aðallega þarf að berjast gegn, er Bolshe- visminn. Alþjóða sambandið verður að standa á bak við Evrópu, svo að hún geti fengið nauðsynleg lán hjá þjóðum þeim, sem hún þarf að skifta við. Og það verður að gera ástandið eins og það er ljóst fyrir Banda- ríkjaþjóðinni, og dreg eg engan efa á, að þegar þeirri þjóð er þetta fyllilega ljóst, þá muni hún ekki liggja á liði sínu til að hjálpa.” Ákveðið er að ríkiserfinginn Breski, leggi á stað í Ástralíu ferð, 15 marz næstkomandi. Og hann hefir lýst því yfir, að hann ætli sér að heimsækja Canada aftur í baka leiðinni Sagt er að um 3,000,000 mælira al hveiti geti saimbandsmenn fengið frá Rúsélamdi ef þeir geti nálgast það. Lord Jellico, flotamálaráðgjafi Breta sem hér var á ferðinni fyrir skömmu og var á leið ásamt Sir Robert Borden forsætisráðherra Canada, til suður Ameríku, hefir \erið skyndilega kallaður heim. Winston Churchill er ákafur með að leggja til orustu á móti Bólsheviki mönnum, og reka þá til baka,, svo að Bretuim standi eng- >n hætta af þeim. En sagt er að Loyd George vilji fara hægara í sakirnar, og síðustu fréttir frá þingi leiðtoga sambands þjóðanna í París, sýna að skoðun hans hef- ir orðið ofan á, því ákveðið hefir verið að létta aflutningsbanni á vörum til Rússlands, eins og tekið er fram á öðrum stað hér í blað- inu. Frá öðrum löndum. JarðskjáLfti mikill varð í Mexico 13. þ.m., sem gerði ógurlegt tjón. Eldfjallið Popocatepelt hrundi og stíflaði á, sem rann við rætur þess. Vatnið flóði yfir alt, og þar með yfir bæinn Barranca, og druknaði fólkið unnvörpum. ó- skaplegur manndauði og skaði í öllu Puebla fylkinu og alla leið austur til Vera Cruz, og segja blöðin ,að þar austur frá, í bæn- um Couztian eða þar í kring, hafi þrjú þúsund manns farist. Sagt er, að Bretar og Rússar hafi komið sér saman um að skifta á föngum, og umboðsmaður Bol- sheviki stjórnarinnar á Rússlandi, Maxim Litvinoff, segir, að brezk- um konum, sem í varðhaldi hafi verið á Rússlandi, hafi verið slept lausum. Samningar í þessa átt milli Breta og Rússa, fóru fram í Kaupmannahöfn. Sambandsmenn hafa ákveðið að afnema bann ba?. sam hefir verið á vöruflutningi til Rúaslands. Fjármála ráðherra Kristinski í Soviet stjórninni á Rússlandi, er nýbúinn að birta fjármálaskýrslu aðal stjórnarinnar þar. Og sýnir skýrsla þessi, að tékjuha.’li hefir orðið hjá stórninni þar sem nemur 61,500,000,000 rúblum á síðustu átján mánuðum. En þegar betur er að gáð, þá er te^juhallinn miklu meiri. petta liggur í því, að í tekjudálkinn eru færðar 10 biljón rúblur, sem lagðar voru á þá, sem þar eru nefndir efnamenn. En af þeirri upphæð borgaðist þó ekki inn nema einn tíundi partur. 1,500 milj. rúblur voru lagðar á fólkið í Petrograd, en af því borg- uðust ekki nema 9,000,000 rúblur, og af 2,000 milj. rúbla, sem íbúar Moscow áttu að greiða, komu inn að eins þrjár milj. rúbla; og tekur fjármálaráðherrann fralm, að nauðsynlegt 'hefði verið að mæta þessum halla, sem sé 33 biljónir rúbla — sem í raun og veru eru 45 bilj.—, með því að gefa út nýja seðla sem nema þeirri upphæð. — Fróðir menn segja, að Soviet- stjórnin á Ró/sslandi hafi verið búin að gefa út 80 biljón rúblna virði af slíkum bréfpeningum í júlí 1919, en síðan hafi þeir orðið að auka seðlaútgáfuna að mun. — Hætt er við, að hrun slíkrar bygg- ingar verði mikið. Fregnir frá París hinn 13. þ.m. segja, að sambandsþjóðirnar eða fulltrúar þeirra á friðarþinginu, hafi komið sér saman um að krefj- ast af pjóðverjum, að þeir fram- selji 880 menn, flest háttstandandi embættismenn og herforingja, sem sakaðir eru um að hafa framið glæpi og brotið viðurkendar hern- aðarreglur meðan á stríðinu stóð. Á skrá þessari standa meðal ann- ara nöfn þeirra Vilhjálms upp- gjafakeisara og krónprinsins þýzka. — Jafnaðarmanna foringj- arnir á pýzkalandi telja það bæði æskilegt og réttlátt, að isambands- menn hlutist til um, að mál Vil- hjállms sé rannsakað opin'berlega, en krefjast þess jafnframt, að rannsóknarrétturinn verði ein- göngu skipaður fulltrúum hlut- lausu þjóðanna, og skuli eiga sæti í ein'hverju því ríki, sem engan þátt tók í stríðinu, og tilnefna Svissland sem ákjósanlegasta staðinn. Um all-langt skeið hafa pjóð- verjum verið bannaðar siglingar til verzlunarborganna við Eystra- salt. — Nú hefir banninu verið létt af og sigldu þýzku skipin hlað- in vörum til hinna ýmsu hafna um miðja vikuna sem leið. Frá Terijoki kemur sú frétt að þegar Emma Guldman og Berk-, man og þeir aðrir æsingamenn sem j sendir voru burt úr Bandaríkun-1 um, hefðu ko,mið að landamærum j Rússlands þá hefðu Bolsevikingar tekið á móti þeim með opnum örm- j um og fögnuði miklum. Forsætisráðherra Frakka Clemenceau náði ekki útnefningu þegar valin voru forseta efnin Erönsku. Sá sem honum var yfir sterkari heitir Paul Deschanel og er forseti neðri deildar franska þingsins. Ársfundur Fyrsta lút safn- aðar í Winnipeg var haldinn þriðjudagskvöldið 20. þ.m. og var fjölmennur. Voru þar lagðir fram reikningar og em- bættismenn kosnir fyrir árið ný- byrjaða. pessir hlutu kosningu í einu hljóði til embætta: Fulltrú- ar: A. S. Bardal, Paul Johnston, Halldór Sigurðsson, Herbert Ax- ford og Olafur Björtisson. Djá'kn- ar: Mrs. Finnur Johnson, Mrs. H. Olson, Miss Inga Johnson, Dr. B.J. Brandson og Sigtryggur Bjerring. Yfirskoðunarmnn eru: Thorst. E. Thorsteinsson og Fred. Thordar- son. — Tillaga kom fram á fund- inum frá forstöðumanni sunnu- dagssk. safnaðarins um að breytt yrði til um sunnudagsskólann þannig, að í staðinn fyrir að skól- inn yrði í einu lagi eins og hann hefir verið frá byrjun, þá verði tveir sunnudagsskólar myndaðir, anar al-íslenzkur, en hinn al- enskur. Var framkvæmdum í þvi máli frestað þar til þriðjudaginn 3. febrúar n. k. annan þriðjudag hér frá, þegar annar fundur skyldi haldinn til þess að gera út um það mál. — Samkvæmt framlögðum skýrslum féhirðis, eru fjár*hags- legar ástæður safnaðarins í góðu lagi, sem sjá má af eftirfylgjandi tölum: Tekjur safnaðarins á ár- inu voru $6,451.58, en útgjöldin $6,38b.90, og afgangur í sjóði því $64.68. — Tekjur kvenfélagsins á árinu voru $1,271.42, en útgjöld- in $965.73, í sjóði $305.69. — Tekj- ur djáknasjóðsins vor $116.30, og útgjöldin $94.95, í sjóði $21.35. — Presturinn gaf þessa skýrslu um embættiisverk: skírnir 27, ferm- ingar 29, hjónavígslur 17, greftr- anir 20, altarisgöngur 295. Nýir meðlimir, er í söfnuðinn gengu á árinU, 29, burt fluttur 1 er sagt hafði sig úr söfnuði. — Formaður sd.skólans skýrði frá, að innritað- ir væru þar alls 359 nemendur, að kennurum meðtöldum, fermdir 143, og ófermdir 189, kennarar 27. 219 flest sótti iskólann á einum degi, en 28 fæst, að meðaltali 136. Inmtektir skólans námu $369, út- gjöldin $300.96, í sjóði $68.04. Or bœnum. Snæbjörn Eimarsson, verzlunar- maður frá Lundar, sem var búinn að liggja lengi á sjúkrahúsi bæj- arins, er nú kominn heim til sín á góðum batavegi. fslenzka Stúdentafélagið í Win- tiipeg hefir ákveðið að halda dans- leik mikinn í Trawellers höllinni föstudagskvöldið ’þann 6. febr. n. k. Nánar auglýst síðar. Mrs. Skaptason biður þess get- ið, að bolhlíf sú, sem dregiö var um á barna samkomu Jóns Sig- urðisisonar félagsims hafi verið gefin af Mrs. Halli Skaptason, og að nr. 7 hafi hlotið hana. Til bæjarins komu í byrjun vik- unnar frá Kandahar, þau Karl | Frederickson og kona hans. Karl kom til þess að leita sér lækninga. Ársfundur Skjaldborgar safnað- ar var haldinn föstudaginn þann 16. þ.m. par voru lagðir fram reikningar og 'skýrslur yfir út- gjöld og inntektir safnaðarins á síðastl. ári, er sýndu, að hagur safnaðarins er í góðu ástandi. Á þessum fundi fór fram kosning fulltrúa og annara embættis- manna safnaðarins fyrir yfir- standandi ár. Enn fremur var á- kveðið að hafa safnaðarfund næst- komandi föstudag kl. 8 að kvöldi, til að ráða til lykta ýmsum óklár- uðum málum frá ofannnefndum ársfundi. Leiðrétting. — í kvæðinu Jóla- minning, eftir Axel Thorsteinsson, er út kom í Lögbergi 1. þ.m., hafa tvær prentvillur slæðst inn. í fyrstu línu í öðru erindi kvæðisins stendur: “Og margt var fengið, sem lamaði og lá”, en átti að vera: og margit var fargið, o.s.frv. í annari línu þriðja erindis stendur: “hve bjart var ljósið í hofum þín- um”, en átti að vera: :hve bjart var ljósið í stofum þíum. Paul Reykdal verzlunarmaður frá Lundar, var á ferð í bænum í vikunni. Helgi magri biður Lögberg að flytja öllum íslendingum kveðju sína og tilkynna þeim um leið, að undirbúningur mikill sé undir miðsvetrarsamsæti, sem hann hef- ir ákveðið að halda að L'eslie, í Saskatchewan fylki síðari partinn af febrúar mánuði A. D. 1920. — Nautum og fé er sLátrað, kjöt reykt, skreið dregin að og alt það, sem ágætast þykir íslenzkra rétta, verður þar fram reitt með allri þeirri rausn er pórunn'hyrna á| yfir að ráða. Skáldin eru farin að yrkja drápur sínar og ræðuskör- j ungarnir að semja ræður, með | meiri andagift, en J>eir hafa nokk- urn tíma átt yfir að ráða áður. Og svo má ekki glema söngnum, sem söngflokkur Helga magra er farinn að æfa. — Fólk getur reitt sig á að það verður mikið um dýrð- ir á miðsvetrarsamsæti þessu, því Hélgi magri hefir sjálfur látið þau boð út ganga, að það eigi að verða sú voldugaista hátíð, sem nokkru sinni hefir haldin verið í Leslie. Meira síðar. fslendingar í Nýja-íslandi eru hvattir til þess að sækja vel söng- samkomur prófessors Sveinbjörns- sons, sem auglýstar eru á öðrum stað í blaðinu. Hann sýngur þar í meðal annars margt íslenzkra; þjóðsöngva, og ættu þeir, sem I ant láta sér um viðhald íslenzks I þjóðernis hér í álfu, að fjölmenna. pví íslenzkir þjóðsöngvar eru bein- línis einn þátturinn af þjóðerni voru, og í skrautbúningi pró- fessorsins mega þeir teljast sann- arlegur partur. Gefin saman í hjónband í Ár- borg, þ. 12. þ.m., voru þau Ingvi Sveinn Eiríksson, frá Wawanesa. og MÍS.S Herdís Ingjaldsson frá Árborg. Séra Jóhann Bjarnason gifti. Brúðguminn er ættaður úr Dakota, sonur Sveins sál. Eiríks- sonar og konu hans Guðrúnar Halldórsdóttur, er lengi bjuggu í grend við Svold pósthús. Brúð- urin er Kristjánsdóttir Ingjalds- sonar, en uppeldisdóttir Ragnheið- ar móður Váldimars Jóhannesson- ar í Árborg. Ragnheiður er siystir Jóhannesar kaupm. Sigurðssonar og þeirra systkina. Framtíðar- heimili 'hinna ungu hjóna verður í grend við Wawaneisa hér í fylkinu. þar sem brúðguminn hefir nýlega keypt búgarð, hveitiland með öll- um byggingum og áhöfn. Asdís á Bjargi. Ásdís var í iðju’ og draumum ein um hitu þá, að elska — og stuðla’ að Grettis gengi og gæfu hans að þrá. En vonir bæði og bænir hennar barning vildu fá. Snemma kendi mikla manninn móðuraugað gl'ögt, sá í barnsins vögguvoðum viðbragð hetjusnögt, það var yndi — en annarsvegar örlög myrkrið dökt. Kvíðinn óx og þrautir þyngdust þegar hann komst á legg. Stríðnin, hvefsnin, bernsku- brekin brýndu lýðsins egg. Ein hún kveið og ein hún skildi alt það skapa-hregg. Djásnafár úr föðurgarði fór hinn sterki sveinn. Heillaósk né áfturkomu orðaði þar ei neinn. Með honum gekk á mikla veginn móðurhuginn einn. Mót þó blási kaldar kyljur kærleik minn þú áfct. En leys mig, son, frá loga-kvíða um Mfs þíns norðanátt. Látt’ ei hug minn harmi lostinn heilsa hVerri nátt. Undan skikkju íbrá hún brandi. Berðu ’ann lengi og vel; hans mun þurfa, en vænni vopna verðan þig eg tel. Still nú, frændi, storma þína og stöðva ’in miklu él.--- En ísalög frá lífi Grettis lögðust yfir Bjarg. Með hverju ári’ og öllum fregnum óx það harmafarg. Ásdís fann hvað undur litlu ástin hennar barg. Vit og snild og kappans kraftar komu’ í sama stað — iþegar Grettis heiðarhreysum haustin lögðust að, fáir lýstu gleðiglampar, Glámur sá um það. Samkoma sú er Kvennfélag Fyrsta lúterska safnaðar hélt á miðvikudagskvöldið 14. þ. m. var afar fjölmenn, samkomusalur kirk- junnar alskipaður, og naut fólk hinnar beztu skemtunar. Eins og auglýst hafði verið þá flufcti Hon. Thos. H. Johnson fyr- irlestur, fróðlegan og vel fram bor- inn um iðnaðarþingið sem haldið var í Washington í október og november s. 1. Skýrði hann nákvæmlega frá gjörðum þingsins og fyrirkomu- lagi öllu, og eins ástæðunum, sem ollu því að iðnaðarmálin voru tek- in svo mjög til greina í sambandi við friðarsamningana. Sem var sökum einlægrar viðleitni þjóð- anna til þess að koma á réttlátum friði í 'heiminum. En mikið af ó- eining þeirri sem raskað hefir ró manna, og raskar en, er einmitt sprottin af ósamkomulagi og tor- tryggni á milli verkafólks og vinnuveitenda. En samkomulag á milli þeirra flokka væri frum skil- yrði fyrir innbyrðis friði og ánægju. Auk fyrirlesturs Hon. Thomas H. Johnison skemtu þessir með söng og hljóðfæraslætti. Miss. porláksson dinsöng. Nístingsfrost og norðan byljir nauðuðu’ um hvert hans flet. öfund, svik og illvild manna aldrei viku’ um fet. — Ein á Bjargi allar nætur Ásdí's bað og grét. Bar sú ást — og einvörðungu útlaganum frið, og 1 vörn mót húmsins herjum honum veitti lið. Sá var eini Grettis geisli, er Gl'ámur réð ei við. pyngst var fórnin, er hún Ásdís Illuga af höndum lét, svo að Grettis miklu myrkur mættu þoka’ um set. Aldrei hún í augsýn manna áður né síðar grét. pó að bili heimsins hylli og heykist vinur hver, móðurástin býr á bjargi og breytir aldrei sér. Ásdís enn í völdum víða vor á meðal er. Jakob Thorarensen. — Skírnir. Að loknum skemtununm voru veitingar seldar. Skírnir. .1 Vér höfum meðtekið fjögur hefti af 93. árgangi Skírnis, prýðilega úr garði gerð og veigamikil. par er hver ritgerðin annari betri og svo eru prýðisfalleg kvæði innan um, til þess að gera ritið enn þá meira aðlaðandi. Eitt af þeim, Ás- dís á Bjargi, tö'kum vér upp í þetta blað Lögbergs. — Innihald heftaj þessara er sem fylgir: : Fyrsta hefti:—Björn M. Ölsen: Sigurður Nordal. Nýjar brautir, kvæði: Guðm. Guðmundsson. Veð- urfræði stöð á íslandi: Jón P. Ey- þórsson. Jötunn, kvæði: Matth. Jochumsson. pýðingar: Sigurður Nordal. Hruni, kvæði: Jón Björns- í son. ísland 1918: Vilhj. p. Gísla- son. Ritfregnir: Dr. J. H., Tr. p., G. F., Ásg. Ásg., Jak. Jóh. Smári, V. p. G., Matth. Joch. I öðru og þriðja befti, sem eru heft saman, er þetta efni: Dr. Björn Viðfirðingur, kvæði: Guðm. Friðjónsson. Dr. Björn Bjarnason frá Viðfirði: Guðm. Finnbogason. Sir George W. Dasent: Hálldór Hermannsson. Björn úr Mörk: Sigurður Nordal. “Ok nemdi tiu höfudit”: Guðm. Finnbógason. Ásdís á Bjargi: Jakob Thoraren- sen. Lækningar fornmanna: Stgr. Matthíasson. Sannfræði íslenzkra sagna: Finnur Jónsson. Ritfregn- ir: Jak. Jóh. Smári, H. Wiehe, Kf. Albertsson, Guðm. Finmbogason. Árferði á fslandi: porv. Thorodd- sen. Vit og strit: Jón Jónsson á Stafafelli. SkáKLskaparmál: Helgi Péturss. Skýrslur og reikningur Bókmentafélagsins, i—xxxiv. oddsen: Sigurður Guðmundsson, Maður og kona: TheO'dora Thor- oddsen. Endurminningar um Jón Árnason: Theodora Thoroddsen. Jón porlákstson: Guðm. Finnboga- son. Færeysk þjóðernisbarátta: Jón Helgason. Bækur sendar Skírni. Auk þessara hefta Skírnis, sem vér þökkum, meðtókum vér sögu Jóns J. Aðils háskólakennara um einokunarverzlun Dana á Íslandi frá 1602 til 1787, og verður þeirr- ar bókar minst síðar.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.