Lögberg - 15.04.1920, Blaðsíða 4

Lögberg - 15.04.1920, Blaðsíða 4
Bl« 4 L,OGBIíRC, FIMTUDAGINN 15. APRÍL 1920 Jögberg Gefið út hvern Fimtudag af The Col- umbia Press, Ltd.,iCor. William Ave. & Sherbrook Str., Winnipeg, Man. TALSIMI: GAKKY 416 og 417 Jón J. Bíldfell, Editor Utanáskríft til blaðsins: THE COLUNIBIA PRESS, Ltd., Box 3172, Winnlpeg. IRan. Utanáskrift ritstjórans: EDITOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, Ma«- VERÐ BLAÐSINS: $2.00 um árið. KmiiniiiiimBtwBmiiBiMBmBBiiBBiiiiiiBmHiniiuiiiinniiiHiiiiimiiiiyiíiiiiiiiimimiuiiiiiniiniiiiiiintiiiuiiiniiiimiiiiniiiiiHff Og enn er það svo, að athafnaleysið leiðir til þverrandi karlmensku og harðfengis. Menn missa líkamsþrótt og áhuga, verða móttæki- Iegri fyrir líkamlega og andlega faraldssýki — blóðið þynnist, andlitin fölna og svo að síðustu legst lífið yfir menn eins og martröð, sem vill sjúga úr mönnum blóð og merg. Þannig fer þessi löstur með hvem þann, sem hann nær á vald sitt, og er því ávalt hættu- legur. ' En hann er sérs'taklega hættulegur nú í dýrtíðar ástandinu og væri gott fyrir þá menn, sem ant er um að henni linni, að hætta að hrópa “minni vinnu, meira kaup. ” Því eftir því sem mönnum verður ver við vinnuna, því tregari verða menn til hennar. En eftir því sem minna er unnið, því minni verður framleiðslan. x En þurð á framleiðslú, er undirrót dýr- tíðarinnar. -------o------- Stjórn fólksins. Fyr og nú. Þegar maður ber saman í huga sínum liugsunarhátt og áhugamlál þeirra manna og þeirra tíma, er ársól lífsins brann á vanga þeim, sem ellin er nú farin að beygja, við hugsunar- liátt og áhugamál þeirra, sem nú eru að vaxa upp, þá göngum vér þess ekki duldir, að breyt- ingin er mikil, og suma höfum vér heyrt taka sér íslenzka málsháttinn í munn með sérstakri áherzlu: “Heimur versnandi fer. ’’ Vér getum samt naumast felt oss við þenn- an málshátt, sökum þess, að ef um afturför er að ra»ða, þá er það alls ekki heimurinn, sem fer versnandi, heldur fólkið í honum. Heimurinn sjáífur er alt af jafngóður, og jafn fagur, grundimar, skógarnir, fjöllin, vötn- in, hafið og himininn, alt túlkar þetta, ásamt allri náttúrunni dýrð guðs og fegurð, enginn ljótleiki til þar í neinni mynd, nema því að eins, að vér mennirnir séum valdir að honum. Ekki skal samt kvarta undan því, þótt á- hugamál og hugsunarháttur manna hafi ekki staðið í stað,. því ef þær hefðu gjört það, væri ástandið ömurlegt. Mannlífið væri þá svipað tjörn, sem ekkert vatn rennur í né heldur úr, hún fúlnar. Maður skykli því ekki furða sig á, þótt breyting sé orðin mikil í þessu efni frá því sem var þá og því, sem nú er. Aðal atriðið er, að breytingin stefni í rétta átt, að “vév göngum til góðs, götuna fram eftir veg.” Vér erum oft að hugsa um, hvort það sé ráðandi tilfinning og hafi ávalt verið hjá eldri kynslóðinni, að finnast sú yngri vera í afturför — að finnast fólkið í heiminum vera að versna. Oss er á hverjum degi í ræðu og riti bent á breytingar þær til afturfarar, sem mönnum finst hin vngri kynslóð vera að taka, og frá sjónanniði eldra fóiksins er það víst litlum vafa bundið, að þetta er svo. Ein af ]ieim breytingum er aðstaða fólks vfirleitt til allrar almennrar og algengrar vinnu. Það hefir æfinlega verið þymir í holdi niargra manna og kvenna, á öllum tímum, að þurfa að neyta brauðs í sveita síns andlitis. Eil vér efuinst um, að nokkuni tíma í sögu mannanna hafi fólk verið jafn ófúst til þess eins og það er nú. Afkonm hvers manns og hverrar konu, og þá líka allra þjóða er náknýtt við áhuga og viijaþrek til vinnu og afkasta. En enginn maður, sem leggur eyrað við áhugamálum fjöídans nú á tímum, getur neitað að eitt þeirra og ef til vill það almennasta, og sem liggur næst hjarta fólksins, er að koma sér hjá sem mestri, lielzf allri vinnu, sem reynir nokkuð til muna á líkamskraftana. Piltamir byrja þegat snemma á skólaárum sínum að búa sig undir lífsstöður, og aðal at- riðið er, að þær séu léttar og vel borgaðar. Stúlkurnar byrja og snemma að líta eftir mannsefnum, sem geta veitt þeim góð heim- ili og sem þægilegasta lífsstöðu, helzt að þær þurfi ekki að drepa fingurgómi sínum i deigt— Þar sem þær geti notið lífsins án þess að leggja mikið í sölunulr; allir nú, konur jafnt sem karl- ar, afneita erfiðisvinnu, hliðra sér hjá verk- ®m, sem þeir er eldri era, fundu nautn í að leysa af hendi. Þessi breyting er að voru áliti skaðleg fyr- ii land og lýð; hún hefir ekkert nema tap í för með sér. Forfeður vorir á Islandi og í Noregi höfðu glögt auga fyrir þessari hættu og þarf ekki ann- að í því sambandi, en henda á samtal Ketils Kaums við Þorstein son sinn: “Önnur gerist nú atferð ungra manna en þá, er ek var ungur, í’á girntust menn á nokkur frama verk, annat tveggja at ráðast í hemað, eða afla fjár ok sóma með einhverjum atferðum þeim, er nokk- ur mannhætta var í, en nú vilja ungir menn gerast heima elskir ok sitja við bakelda ok kýla vömb sína á miði ok nmnngáti, ok þverr því karlmenska og harðfengi, en ek hefir því fjár aflað ok virðingar at ek þorða at leggja mik í hættu ok horð einvígi. ” Ketiíl Kaumur var viss um, að athafna- ltysi Þorsteins sonar síns mundi leiða til þverrandi karlmensku og harðfengis, og tiJ þess að varna þess, að synir ríkra höfðingja í forn- öld, sérstajdega þeir sem áttu að taka við ríkj- um eða búum feðra sinna, þá var siður að fé það, sem í hernaði var fengið, væri ekki arf- gengt, heJdur legðist í haug með þeim, sem vann það, svo sá, sem við búsforráðum tæki, yrði að afla sér fjár sjálfur, til þess að geta baldið við ættar oðalinu, en að láta það ganga ur greipum sér fyrir ómensku, var ófyrirgefan- leg svívirðing. VI. Landbúnaðarlöggjöf Norrisstjórnarinnar. VIII. Mjólkur og smjör framleiðsla. 1 síðasta blaði mintumst vér á smjör fram- leiðslu fylkisins, og hvernig að hún hefði auk- ist á tíð Norrisstjómarinnar, úr þurð svo mik- illi, a§ fylkisbúar þurftu að kaupa smjör handa sjálfum sér, á þremur síðustu stjórnaráram Roblins upp á $688,260, upp í framleiðslu svo mikla, að á þremur síðustu stjórnarárum Norr- isstjórnarinnar var öll þessi þurð horfin og fylkisbúar seldu $d,341,904 virði af smjöri út úr fvlkinu umfram þarfir sínar. En þá var lítið meira en hálfsögð sagan, því þar er hvorki talin mjólk sú, sem seld er í bæjum, né heldur rjómi. • Menn munu máske segja, að slíkt hafi átt sér stað í stjórnartíð Roblins, þá hafi menn drukkið ba>ði rjóma og mjólk. En í því hefir og orðið framför. Síðasta árið, sem Roblin sat að v’öldum, voru 737,838 pund af nýjum rjóma seld í fvlkinu til notkun- ar við ti'lbúning kraprjóma og ýmsra fleiri þarfa fylkisbúa, og var pundið selt á 32 cents. og nam sú upphæð $236,108. A síðastliðnu ári hafði sú neyzla fylkisbúa vaxið úr 737,838 pundum af smjörfitu, upp í 2,457,342 pund, og er því þar um að ræða aukna smjörfitu framleiðslu á stjómarárum Norris- stjómarinnar, sem nemur 1,719,504 pundum, og ef sú aukna framleiðsla er reiknuð til verðs, með sama verði og var í stjórnartíð Roblins, þá er þar um að ræða aukinn auð fylkisbúa um $550,241.28 fvrir árið 1919 að eins. En þegar maður tekur alla stjórnartíð Norristjóraarinnar, sem er rétt og sjálfsagt -í þessu sambandi, þá nemur sá aukni auður fyJk- isbúa $1,$55,198.36. Auk rjómans, sem fýlkisbúar hafa notað til ýmsra þarfa, eins og sagt hefir verið, þá er ótalin mjólkumeyzla fylkisbúa, en hún nam $975,500 á síðasta stjórnarári Roblins. A árinu 1919 nam hún $5,874,375, eða $4, 898,875 meira Jieldur en hún nam á síðasta stjórnarári Roblins. En Jiessi feikilegi munur liggur dálítið í verðhælckun, A síðasta stjómarári Roblins, 1914, kostaði mjólkurpundið 2 cent, en 1919 var j»að 3.9 cent. og er verðmunurinn því nálega helmingur eða 1.9 cent. En til hægðarauka skulum vér segja, að verðið hafi verið helmingi Iiærra árið 1919, en það var árið 1914, nemur . þá samt þessi aukna framleiðsla á árinu 1919 $2,937,187; en á allri stjórnartíð Norrisstjórn- arinnar nemur liún $6,394,023. Síðasta árið, er Rpblinstjórnin sat að völd- um, eða árið 1914, voru framleidd í fylkinu 8.050,355 pund af smjöri og þar að auki var smjör kevpt að til neyzlu upp á $142,720, sem með því smjörverði, sem þá var (26.5 cent. pundið), gjörir 536,679 pund. Alls notuðu því Manitoba-búar til heima- nevzlu það ár 9,187,034 pund af smjöri. En árið 1919 var heimaneyzlan 10,804,225 pund, og hafa Manitobabúar þannig eytt 1,617,191 pmidum meira af smjöri til sinna eig- in þarfa árið 1919, heldur en þeir gjörðu 1914, snn gjörir, >þegar það er metið til verðs á gang- verði því, sem var árið 1914, 328,555,61, og er það líka aukinn auður og framleiðsla í stjóra- a rtíð Norrisstjómarinnar. Vér höfum þá til að byrja með á síðasta ári Koblinstjórnarinnar smjörþurð hér í Manitoba, sem nemur 536,679 pundum. En í lok fjögra ára stjórnartímabils Norr- isstjórnarinnar höfum vér: Fyrst, bætt upp hallann á þessum 536,679 pundum, sem nemur........... ...... $142,720.00 Annað, selt smjör út úr fylkinu ....$5,138,896.00 Þriðja, aukið framleiðslu á rjóma trl notkunar fylkisb.............. 1,055,198.36 Fjórða, aukna mjólkur framleiðslu til heimaneyzlu um ............. 6,394,023.00 Fimta, aukna framleiðslu á smjöri til heimaneyzlu................. 1,328,555.61 sein gjörir samanlagt........... $14,059,392.36 Enn er eftir ótalin ein framleiðslugrein mjólkuriðnaðarins, og það er ostagerðin. En hún hefir eins og smjör og mjólkur framleiðsl- an tekið feikilegum framförum. Arið 1914 voru framleidd hér í fylkinu 471,355 pund af osti, sem seldist fyrir 14 cents pundið og nam sá tekjuliður fylkisbúa $65,989. Við enda ársins 1915 var sú framleiðsla fylkisbúa komin upp i 726,725 pund, árið 1916 var hún 880,728, árið 1917 komin í 1,093,887 pd, árið 1918 var hún 976,612 pd. og árið 1919 679,885 pund. Hin aukna framleiðsla í þessari grein á stjórnaráram Norrisstjórnarinnar nemur því 2,000,058 pundum, og sé sú aukna framleiðsla metin til verðs á sama verði sem fékst fyrir þá vöru 1914 (14 cent pundið), þá nemur sá aukni auður fylkisbúa $280,008.12. Og hver er sá hugsandi maður, sem segir, að vér höfum staðið í stað, eða neitar því, að Norrisstjórnin hafi gengið til góðs götuna fram eftir veg að því er þessa iðnaðargrein fylkisins snertir, sem öll önnur velferðarmál þessf • --------o-------- Á heimleið. Þess var getið ,í síðasta blaði, að sendi- manni heimaþjóðarinnar, . Kjiartani prófasti Helgasyni, hefði haldið verið kveðjusamsæti í Goodtemplarahúsinu, mánudagskveldið hinn 5. 'þ.m. og að daginn eftir hefði hann lagt af stað suður til íslendingabygðanna í Norður Dakota og Minnesota ríkjunum, í þeim tilgangi að ljúka þar fyrirlestraferðum sínuiti meðal þjóð- flokks vors vestan hafs, halda svo þaðan til New York og taka sér far á Gullfossi heim. Þegar fyrstu fregnirnar bárust af því vestur á síðastliðnu sumri, að Alþingi Islend- inga hefði fyrir milligöngu félagsins “íslend- ingur” í Reykjavík, veitt styrk til þess að senda mann að heiman til stuðn- ings voru nýstofnaða Þjóðræknisfélagi, þá sýndist einstaka mönnum innan vébanda vorra verða einhvern veginn ónotalega órótt innan- brjósts. Menn fóru að stinga saman nefjum um það, hvaða erindi slíkur sendiboði mundi eiga hingað, á hverjum væri líklegt að valið lenti, hvort hann mundi verða ákafur flokks- rnaður, ósjálfráður “agent” einhve/ra þeirra kenninga heima, er eigi njóta nema takmark- aðra vinsælda hér. Öðrum var þegar í önd- verðu, og er ef til vilt enn, fremur kalt til hinn- ar nýju þjóðræknisvakningar, og mundu lítt syrgt hafa, þótt eigi hefði orðið af sendiför- inni. En hvað sem öllum slíkum hugarburði léið, þá kom sendiboðinn engu að síður, og maður sá var Kjartan prófastur Helgason frá Hruna, er ferðast hefir um bygðir vorar hér vestra síðan í haust og líklegast fundið greið- ari götu inn að hjarta Vestur-íslendinga, en nokkur annar gestur að heiman, með allri virð- ingu fyrir hinum, hverjum um sig. “Nú er til vor kominn Kjartan prestur, kennimaður heima’ á Fróni beztur. Aldrei hefir hingað komið vestur, hjartfólgnari vetrarsetugestur. ” Þannig kvað K. N. í vetur. Ætli hann hafi ekki kveðið þar fyrir munn flestra þeirra, er urðu þeirrar ánægju aðnjótandi, að kynnast séra Kjartani persónulega og hlýða á hugðar- mál þau, er hann hafði að flvtja? Hver verður árangurinn af komu séra Kjartans? Hefir íslenzku þjóðemi vestan hafs græðst nokkur andlegur auður við boðskap Vetrarsetugestsins ? Um svarið ætlum vér að allir geti orðið sammála. Það getur ekki hjá því farið, að í sporum jafn gáfaðs prúðmennis og sóra Kjart- ans, hljóti að spretta einhverjir þeir laukar, er fegri þjóðlífið á margvíslegan hátt. Hvað margir og veglegir þeir verða, er undir oss sjálfum komið að mestu leyti. Her um bil síðustu orð séra Kjartans í kveðjusamsætinu voru eitthvað á þessa leið: “Ef svo færi, að þér yrðuð einhvers staðar vör við nýgræðing í sporum mínum frá í vetur, þá a>tla eg að biðja yður í öllum hamingjubænum að amast ekki við honum, heldur sýna honum alla nærgætni.” Og það er einmitt nærgætni, sem allur nýgræðingur þarfnast mest. Þjó^fæknisfélagið er nýgræðingur í lífi vor Vestur-íslendinga. Ef allir sýndu því sömu nærgætnina og séra Kjartan, mundi enginn þurfa að óttast um framtíð þess. Séra Kjartan er vinmargur vestan hafs eftir vetrardvölina, og margri hlýrri kveðju var hann beðinn að skila heim. Honum var alment vel fagnað vestra, enda duldist honum það ekki, að hvar sem leiðin lá var hann alt af í systkina hópi, og mun tilfinn- ingum hans í því efni bezt lýst með eftirfar- andi vísu, er hann hafði yfir í kveðju samkvæm- inu og sagði að flogið hefði oftar en einu sinni í huga sinn á ferðalögunum í vetur : “Gott er að reka sig alistaðar á alúð og gestrisni landans, og jafnvel í tötrum og tárum að sjá tignarsvip norræna andans.” EGLUBUNDINN SPARNADUR Hefir það í för með sér að Mánaðar innlög verða Eftir 1 ár.... $1 .... 12.20 $2 24.39 $5 90.98 $10 121.96 Eftir 2 ár.... .... 24.76 49.52 123.80 247.6« Eftir 3 ár.... .... 37.70 75.41 188.52 377.04 Sparisjóðsdeild í hverju útibúi bankans. The Royal Bank of Cansda WINNIPEG (West Enil) BRANCHES r.íir. Wllllam & Stierbrook T. E. TKoriteinson, Manager Cor. Sargent & Beverley F. Thordarson, Manager Cor. Portage & Sherbrook R. L. Paterson, Manager Cor. Main & Logan M. A. 0’Hara Manager. 5% VEXTIR OG JAFNFRAMT 0 ÖRUGGASTA TRYGGING Leggið sparipeninga yðar í 5% Fyrsta Veðréttar Skuldabréf með arð- miða — Coupon Bonds — í Manitoba Farm Loans Association. — Höf- uðstóll og vextir ábyrgst af Manitoba stjórninni. — Skuldabréf gefin tlt fyrir eins til tíu ára tímabil, i upphæðum sniðnum eftir kröfum kaupenda. Vextir greiddir viO lok hverra sex mánaOa. Skrifið eftir upplýsingum. Lán handa bændum Penlngar lánaðir bændum til búnaðarframfara gegn mjög lágri rentu. Upplýsingar sendar tafarlaust þeim er æskja. The Manitoba Farm Loans Association WINNIPEG, - - MANIT0BA mWlllHIHPIIIWlllMIIMWIIIMHIfm—IIIIMIfllflHMIIIWIIIMIIIMIfBMWWri Minni Fiskimanna Flutt á samkomu í Riverton2G. Marzz 1920. Eg vildi fiska fisk, sem yrði étinn, Og finnast vera þjóð og landi trúr, En þannig fór, að flæktist eg í netin Og fiskimaður varð að ná mér úr; Svo flæktust iþið, mér jafnir í þeim efnum, Og orsök þess var kaupmanns gri&avon, En hann í ykkur náði, sem við nefnum: Vorn “navigator”, Baldvin Anderson. Hve margir þeir, sem moldum eru huldir, pað megna ekki’ að stíga í sínar tær, En ef þið ihengdir eruð fyrir skuldir, pið aftur gangið, til að borga þær. Og enga betri eiginmenn við iþekkjum, En ykkur, kæru bræður, því er ver, pið sjáið dauðir fyrir ykkar ekkjum Og annist menn, sem taka þær að sér. pið hafið víst af vosbúð nokkuð liðið, í vakir steyptst á hausinn—nærri’ eg get, — Og upp um sprungur annars staðar skiðið Og ekki dregið færri’ en hundrað net. Og margur, sem var myndarlega skaptur, Fór móti veðri út um svellin köld Og fraus í hel, en hefir iþiðnað aftur, Og hér mun dansa tóu-brokk í kvöld. í anda Vilhjálms unnuð þið æ betur Til arðs og sóma norðurfarans bygð. —pað er hann Magnús Markússon, sem getur sagt maklegt lof um ykkar hetjudygð. Og fyrir dirfð og drenglund, er þið sýnið, Og dugnað úti’ á lífsins reginsjó, pið eigið skilið bezta brennivínið. Sem “bestilt” er til vor frá Ontario. | ■ Og iþað var fyrr á öld að ykkar vizka Af öllum bar í trúar fræðigrein, Og æskilegt er enn, að vera’ að fiska, Ef einhvern skyldi vanta lærisvein. pað segja margar okkar ungu löndur, Sem opna sjónir fyrir hverjum glans, Að postullegur, gullinn geislavöndur Enn glói yfir böfði fiskimanns. Gutt. J. Guttormsson. 1 ■ ■ ■ ■ ■ ■ winaiiia IWttlMWBWIIIIBlWiHHWIII iniimum Úr heimi hljómlistar- innar. Hljómleikar prófessor Svein- björnssonar síðastliðið fimtudags- kvöld tókust ágætlega, eins og við mátti búast. Aðsókn var all- góð, en hefði átt að vera miklu betri. Ef til vill hefir Islending- um hér 'í Winnipeg aldrei gefist betri kostur á að kynnast söng- listar hæfileikum Sveinbjörnsson- ar en í þetta sinn. prettán stykki voru á söng- skránni og ekki færri en tíu af þessum þrettán voru samin af próf. Sveínbjörnssyni sjálfum. Hið stærsta og veigamesta á skemtiskránni var Sonata fyrir Cello og Piano, eftir Sveinbjöms- son, en spiluð af hr. Fred. Dal- mann og kompónistanum sjálfum. Sonatan er í þremur pörtum, eins og vanalega á sér stað með son- ötu-“form”. ^Mér fanst þetta verk þola fullkominn samanburð við samskonar verk frægustu höfunda svo sem Griegs (op. 36) og fleiri. Sonatan var spiluð af mikilli list af báðum aðilum, enda báðir mennirnir viðurkendir Jistamenn. Að Sónötunni endaðri duttu mér í 'hug orð Sehumann’s, tþegar hann heyrði Chopin spila í fyrsta sinni “Takið ofan, góðir hálsar.” pað er þýðingarlaust að vera að fjölyrða um tónverk Sveinbjörns- sonar, iþau eru löngu orðin viður- kend hj'á öðrum þjóðum og það án allrar hjálpar samlanda hans. Vafalaust skuldar íslenzka þjóð- in engum manni meira en Svein- björnssyni. “Styrk”laus hefir hann rutt sér braut á sviði tón- listarinnar, og það svo skörulega að skara langt fram úr öllum sínum samþjóðarmönnum, og enn sem komið er engin hætta sýnileg. pað sem mér finst merkilegast við Svb. er, að hann virðist allstað- ar jafn. Hann býr til stór lista- verk og spilar þau ágætlega sjálf- ur, og ekki nóg með það, heldur spilar hann fjöldann allan af stærstu verkum annara tónskálda, svo sem Beethovens, 0hopin8 og Liszts og fleiri. Sem undirspil- ari á Svb. líklega fáa jafningja og er það án efa að þakka (hans víðtæku þekkingu á sviði hljóm- fræðinnar, samfara meðfæddum listamanns hæfileikuim. Og enn er ekki alt sagt, þvi í viðbót við það, sem að framan er skrifað, er maðurinn einnig ágætur söng- maður, því þó röddin sé nú farin að gefa sig, ber hún iþess full merki, að maðurinn hafi haft af- burða bassarödd. Og enn er stór ánægja að hlusta á söng hans, því fölva bletti raddarinnar fyílir hann upp með eldmóði sálar sinnar. Eitt finst mér sérstaklega eft- irtektavert við Sveinbjömsson, og það er, hvað list hans er lifandi. Jafnvel þó hann sé að spila eða svngja fyrir dottandi sálum, þá samt brennur eldur í sálu hans. Mér detta i hug orð Liszts, sem hann sagði við nemendur sína: “Ef þið ætlið að halda áheyrend- um ykkar volgum, verðið þið sjálf- ir að vera sjóðandi.” Petta er stór sannleikur, þó ein- kennilega sé til orða tekið. Áherslur Sveinbjörnssonar eru alt af 'ákveðnar og greinilegar, og jafnvel einkennilegt að heyra slíkt hér innan um flatnesikjuna ofckar og meinleysið í tónaríkinu.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.