Lögberg - 17.06.1920, Síða 1

Lögberg - 17.06.1920, Síða 1
SPEIRS-PARNELL BAKINGCO. ábyrgjast yður fulla vigt, beztu vörur fyr- ir lœgsta verð sem verið getur. R E Y N IÐ Þ AÐ! TALSÍMI: Garry 2346 - WINNIPEG Það er til myndasmiður í borginni W. W. ROBSON 490 Main St. - Garry 1320 33. ARGANGUR WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 17.JÚNÍ 1920 — NUMER 23 Helztu Viðburðir Síðustu Viku Canada. í Port Arthur lögðu um 1000 manns niöur vinnu í skipasmíða- stöðvum, en hafa tekið- aftur til starfa eftir þriggja vikna úti- vist. Tilsjónarmaður bændaflokks á Ontario þingi sagði nýlega í ræðu “pað væri ódæma ósköp sem full- trúum bænda hefði boðist af pen- íngum, til þess að samþykkja viss lagafrumvörp á síðasta þingi. En .sem betur fór féll enginn af flokki bændanni fyrir þeirri freistingu að taka miútu”. Hicks heitir mað- urinn og þykir ærið djarfmæltur. Á þingi eins kirkjusambands Presbytera, voru kosnir menn til að fara á fund stjórnarinnar og krefjast eftirlits og aðgerða á ó- sið, sem fylgir hesta ati, eða því þegar hross eru reynd, hvert fljótast sé að hlaupa. Um það er veðjað og brallað með ýmsu móti, að sögn, sem féglæframönnum er líkt. Sendimönnum var tjáð af atjórnarinnar hendi, að hún mundi hafa þetta í huga, en þeim þótti það of óákveðið loforð, kváðu það óhæfu að lögtaka atferli, sem beint væri áhættuspil um fé, er þó' væri bannað að öðru leyti í landinu. Stjórnin gaf í skyn, að ekki mundi vinsælt að aftaka þenna gamla vana. Verzlunarnefndin ætlar að birta nöfn þeirra manna og okurfélaga, .sem sekir Ihafa gerst, að áliti henn ar, um fjárdrátt á sykurverzlun. í þeim hóp eru bæði heildsalar og smásalar, einkum austanlands Allar upplýsingar hér að lútandi verða lagðar fyrir dómsmálaráð- herrá í fylkjunum, er svo úrskurð- ar hvort mál skuli 'höfðað á hend- ur þessum mönnunt, lsamkvæmt lögum um félagsskap og hæfilegt söluverð. Nú koma lagabreytingar og til- lögur í örara lagi frá Ottawa þingi. Ein er sú að hækka flutn- ■jingsgjöld á ábyrgþarbréfum og öllu öðru sem með pósti er flutt og ábyrgð keypt á, um 5 cent pundið, úr 5 centum upp í 10 cent. Gjald undir tímarit og blöð sem koma út ofitar en einu sinni á mánuði, er fært upp um eitt cent á pundið eða brot úr pundi. pau sem lengra flytjast en fjörutíu mílur greiði cent á pundið eða brot úr pundi til áramóta, en síðar hálft annað cent. Til þess að útrýma engiisprett- um var nýtt ráð tekið upp af hálfu fylkisins, að beita á vegarstæði vélum þeim sem asfalt er brætt með, þá götur í bæjum eru því efni lagðar. Með því að reyna hvort öllum eggjum verði útrýmt, en áður hafði það reynt verið með ol'íu, er ekki þótti takast til fulls. Ekki er en fullreynt hvernig þetta gefst, þó líklegt megi þykja, að með því móti sé unnt að brenna allan svörð, þar «em vélinni verð- ur viðkomið, en það er helzt með fram brautum. Skattinum á óhófs- eða munað- arvörum er alla tíð verið að breyta á þingi. Sííðustu fréttir segja að skatturinn sé tekinn af sport- varningi, þeim sem baseball, lacrosse, hockey og foofcball leik- arar þurfa á að halda, er skattur er á öllum öðrum varningi, sem til leik a er hafður og meira kostar en fimtíu cent Á flos og silkivörum er skatturinn tekinn af, því sem kostar minna en tvo dali yarðið, af kniplingum og þessháttar flúri undir 50 centum af gólfteppum undir 6 dollars. Breytingar til- lögur eru margar, svo að skatta- lögin verða sem ný, ef allar kom- ast fram. íkvöld ibyrja fundáhöld út af næstu kosningum. Fundur verð- ufc haldinn á fjórum stöðum, þar á meðal í Goodtemplarahúsinu á Sargent. Ræðumenn þar meðal anara Hon. T. H. Johnson, dóms- málaráðherra og ýmsir af þing- mannaefnum sem útnefndir eru að sækja til kosninga á næsta þingi. peir sem vilja vita hvað iim er að vera og kynnast tilvon- andi, fulltrúaefnum, æfctu að fjöl- menna á fundina. í minningu þess að Speirs-Par- nell félagið hafði staðið í tíu ár, voru öllum starfsmönnum þess sem verið hafa' í þjónustu þess í meir en missiri, gefin uppbót á launum. Verkamenn þeir voru yfir hálft annað hundrað. Nefnd' var sett á þingi fyrir nokkrum árum að yfirlíta alt sem gert hefir verið viðvíkjandi Hud- sons flóa brautinni, og hefir hún nú lagt fram álit sitt. Seg- ir að það muni verða arðsöm leið með tímanum, enda sé bæði mikil fiskivon og auðugar námur nyðra. Nefndin talar virðulega um rann- sóknir Vilhjálms Stefánssonar og vill að tillögum hans um hrein- dýra og moskus-uxa hjarðir sé gaumur gefinn. iSamkvæmt vjitn,isbunði jkunn- ugra er enginn vafi á? að sjóleiðin er farandi í fjóra mánuði af ári hverju. Sjálfur flóinn er íslaus einar 30—40 mílur frá fjörumáli og mundi vera auður allt árið, ef ekki væri fyrir rekís úr Fox sundi er í hann kemur útnorðan til. Haganlegast þýkir að hafa stór skip til flutninga, þegar þar að kemur, traustlega gerð að framan. Nefndin leggur til, að nota þá höfn sem þegar hefir verið unnið mikið að, fyrst um sinn, meðan ekki er mikið um flutning. Hver _á er full af fiski og flóinn líka, en á landi er málmur í jörð, eink- um gull og kopar. Heyrst hefir, að hveitisölu- nefndin muni halda völdum eitt árið enn. pað er haft eftir Hon. Sir George Foster, að sjálfsagt sé að Canada haldi þeim ráðstöf- unum, sem gefi landsmönnum góða aðstöðú tiil að fá sem bezt verð fyrir varning sinn. Próf. James Ballantyne var kjörinn oddviti eða æðsti prestur á þingi Presbytera, er haldið var í Ottawa af kirkjuþingsmönnum úr öllu landinu. Næsta ársþing á að haldast í Vancouvr. í Toronto á að byggja við King Edward Hotel, og er sá viðauki ekkert smáræði, á að kosta hálfa þriðju miljón dala. Er sagt, að bótel þetta muni slaga hátt upp í þeim stærstu, sem hér 1 álfu ger- ast. Nýlega fóru hér um nokkrar hersveitir af Czecho-Slovacks, er börðust í Sílberíu undir forystu Kolchaks; stigu á skip í Wladivo- stock og fóru þessa leiðina heim. Verkamenn nokkrir er vinna við járnibrauta vagna smíðar í Kings- ton, Ont., fengu uppbót á launum sínum nýlega og með því móti skrifuðu þeir undir samninga að vinna stöðugt alt hið næsta ár. Ekki eru allir auralitlir í Can- ada sem betur fer, Dómsmálaráð- gjafinn gat þess nýlega á þingi, að 48 menn hér í landi greiddu skatt af tekjum er næmu meir en miljón dölum á ári. Bretland Loftskip hefir Bretastjórn lát- ið byggja, 585 feta langt, 70 feta breitt, sem getur borið 38 tonn. Sagt er að hægt sé því a, fljúga yfir hafið, enda útbúið með nýj- ustu áhöldum ogm eð þeirri gerð er mikil reynsíla hefir bezta sýnt. Verzlun Bretlands í síðastliðn- um maímánuði nam meiri upphæð en dæmi eru til í sögu þess lands? og svo er sagt í skýrslum, að við- skiftin aukist hröðum skrefum, bæði innan lands og utan. Aukaskatt á fúlgur fjár, sem dregnar voru saman á stríðsárun- um, vill fjármála ráðherra Breta, A. Chamberlain, ekki lögfesta. heldur halda fjárdráttarskatti þeim, sem þá var á þesskonar auð- söfn lagður, kvað það vænlegra til inntekta heldur en nýjar álögur með breyttri tilhögun, er raska kynnu mjóu mundangi tiltrúar og fjárfars. Hann kvað skattinn nema 60 percent á öllum gróða, er úr hófi færi, og skattar á tekjur efnaðra stórum hærri en dæmi væru til. Clynes þingmaður hafði skorað á stjórnina að breyta skattafari, sá er oddviti var verka- manna, er á járnbrautum vinna, en siíðar ráðgjafi meðan stríð stóð. Watt heitir sá, sem gengið hefir næstur ráðaneytis forseta Ástralíu um landstjórn að undanförnu og fjármála ráðherra störfum gegndi í því landi. Hann fór til Bret- lands nýlega í erindum sins lands og kom ekki fram því sem hann vildi í ráðagerðum um fjármála- viðskifti Englands og Ástralíu, um valdasvið hins síðarnefnda í lands í Kyrrahafi og um skaða- bætur út af stríðinu, — sagði þá lausri stöðu sinni. Hann tilheyrir stærsta flokknum i Ástralíu, svo- kölluðum þjóðernis flokk, og er búist við, að til nokkurra tíðinda muni draga. í samningum hefir Bretastjórn staðið við Afghanistan um landa- mæri, er með köflum virtust fara út um þúfur, en teknir vorú upp aftur, svo að vænlega þykir horfa um niðurstöðUj áður lýkur. Á Bretlandi þykir það nýjung, að kvenfólk sækir þangað, sem menn leika þann leik að berjast með hnefunum. En það er nú al- siða, að kvenfólk sækir þangað engu slður en karlmenn og veðja um það hver bokkinn muni sigra. peir sem leika þenna leik nú á dögum hafa belgi bundna um hnefana, en áður fyr slógu þeir hverir aðra með berum hnúunum: aðferði.rnar áður hrottalegar, nú pataldur til gamans. Bandaríkin í Ghicago reyndust vera 2,701,212 ibúar, við nýafstaðið manntal. 9íð- ustu ártíund hefir íbúatalan vax- ið um hálfa miljón, sem telst ör- ari vöxtur en dæmi eru til um stór- brogir á því bili'. Olíu stöðvar Standard Oil fé- lagsins í Greeley, Kansas, brunnu til ösku með miljón dala skaða og þykja nýjar fréttir; með því að það félag er óvant stórslysum. Maður var á gangi í Chicago og sá böggul liggja í götusorpi, tók hann upp og bar heim til sín. X honum voru gimsteinar og baug- ar og gullstáss, metið til hundrað þúsund dala. Kaupmannsfrú ein auðug hafði tapað þessu, að sögn sem ekki er seld dýrara en keypt er. í Chicago er húsekla mikil. Bæj- arstjórn tók tig til og fékk sér landspildur er reisa skal á um 10 þúsund húsa. Allmörg þeirra eiga að vera fullgerð fyrir haustið. Nálægt 450 miljónir dollara eru áætlaðir til flotans af þinginu í Washington næsta ár. Ekki eru þeir á því að leggja niður vopnin svona alveg upp úr þurru. Alþjóðaþing kvennfélags- kvenna, stendur yfir í Geneva í Sviss. Á það þing fóru 30 erindrek- ar frá Bandaríkjunum og var Mrs. Carrie Chopman Catt fyrir hópn- um. Aður en þær fóru létu þær í ljósi að aöaláhugamál þeirra á þessu þingi væri að koma því til leiðar að alsherje.r kvenréttinda- félag yrði stofnað, sem nefnt yrði World League of women votiss, með 100,000,000 meðlimum. I Úr ýmsum áttum.] í nýafstöðnum kosningum á ír- landi náðu Sinn Fein algerlega yfirhönd nema í sex sveitum Ulst- er héraðs. Talað er að Japanar og Eng- íendingar muni endurnýja banda- lagssamninga með nokkrum breyt- ingum. Kínverjar, er þeir heyrðu það, gerðu þeim orð, og mótmæltu slíku nema þeir væru 'hafðir í vit- orði og ráðum. Albert Belgiu koungur ætlar að ferðast til Braziliu seinnipartinn í sumar, ásamt drotningu sinni. Maður að nafni J. L. Cope legg- ur á stað í þessum mánuði áleiðis til suður heimskautsins. Fer hann á skipinu Terra Nova suður í höf, en þegar hann kemst ekki lengra suður eftir höfum, hugsar hann sér að fljúga það sem eftir er veg- ar. Mr. Cope býst við að dvelja fimm ár við rannsókir suður í heimskauta löndunum. Sagt er að erjur hafi átt sér stað og jafnvel til bardaga lent á milli Araba og brezkra hermanna í Palestínu. Fróða-friður. (Les 12. kap. af Ynglingásögu.). Híkti Frevr. og réði Svíuín, Rekka elstur varð með díum —, Ái’s og friðar fórnum nýjum Fornöld vora goðum batt. Alment ríkti Fróða-friður, Féll af himiiL árdögg niður, Allskyns brosti auðuu siðixr, Allir honum guldu skatt. Uppsala liann auðlegð trevsti, Afarmikið hof þar reisti, Allur lýður laut ‘ans lirevsti, Löngum ársæll reyndist Freyr. Lítt ]m5 fyrir ljósi rofi Liind og aura gaf ’ann hofi, A liann sagan lýkur lofi, — Lofstýr þann, sem ekki deyr. Öðrum fremur fésæll var liann, Frægðar orð hjá lýðum bar hann, Vel úr öllum vanda skar hann, / Vinsæll “meira en önnnr goð.’’ — Sízt <hanh truflar tign né auður —, Trúðu Svíar, að hann dauður Vernda nxundi liöld sem hauður, Heilla reynast öllu stoð. Feigs er rxxnir forlög skrifa Freyr iþeir sögðu enn þá lifa, — Fanst það vænst til þjóðarþrifa—, Þögðu um tjón er vann þá hel. Almenning lmns danða duldu, Drjúga skatta landsmenn guldu, Ailt það fé í liaug ’ans huldu —, “Helzl: þá ár óx friðar’’ vel. — Frevr er heygður, — fornöld liðin. Félaus hof. Við nýja siðinn Heiminn skortir Fróða-friðinn Fvr er þjóð við hagsæld batt —. Tungan, sagan týnist óðum, Trúin, foi’nhelg, giatast þjóðum, Faakkar mönnum frægum, góðuixi, Fálr gjalda kærleiksskatt. Ef þig fýsir lífið laga, Lifa, — eftir þína daga, A þig lofstýr lúki saga; Lögeggjan sé ganxli Freyr. Ár og frið það eun mun valda, Aðrir munxx skatt sinn gjalda, Andlega í horfi halda—, Harma, þegar burt þú deyr. Viljir þíi að Fróða-friðuy Farsæld manna bezt er styður, Stígi af lximni í heimsbygð niður, Helgi trú og líf og stjórn: Gef þá lönd seixi lausa aura, Lifðu ekki fyrir rnaura,------ — Flugumýri sel — og Saura, — Sjálfur ver þií kœrleiksfórn! Jónas A. Sigurðssson. Evrópuþjóðirnar hafa keypt kynstur af kolunx í Bandaríkjun- um, Holland, Frakkland og ítalía hafa keypt um 500 þús. tonn hvert cg svo hefir Danmörk, Noregur og Svíþjóð keypt mikinn forða af Bandaríkjakolum. Sagt er að 200 skip hafi verið sett til síðu til kolaflutninga á milli Bandaríkj- anna og Evrópu í sumar. Franskur læknir og gerlafræð- ingur hefir fundið lyf sem læknar að því er sagt er hina ægilegu lungnatæringu, og það þótt sjúk- lingurinn sé langt leiddur. Að- ferðin sem notuð er við þetta, er innsprautun hins nýja lyfs. — Merkir læknar, sem hafa athugað verkanir þessa nýja lyfs, hafa lýst opinberlega yfir því, að loks- ins sé þessi plága yfirunnin. Læknaskólinn franski hfir boðið fé til þess að stvrkja og flýta fyrir tilraunum í þessa átt. Ur bœnnm. Á safnaðarfundi í Herðgbreiðar söfnuði 6. þ. m., var Ágúst Ey- ólfson kosinn erindreki á kirkju- þing sem hefst í Kandaihar 17. þ. m. Lesendui; vorir athugi auglýs- ingu frá Hollinsworfch í þessu blaði; er segir frá óvenjulegum kjörkaupum í þessari tíð. pær sem vilja vera vel búnar, eftir ný- ustu tísku, fyrir minna verð en gerst hefir að utxdanförnu ættu að sæta því fa;ri. Kvennfélag Fyrsta lút, safnað- arins í Winnipeg hefir ákveðið að bjóða til kvöldskemtunar (Lawn Social) á grasfletinum við kirkju safnaðarins á fimtudagskvöldið þann 24. þ.m. kl.. 8. e. h. Til skemtana við það tækifæri verður vandað eins og fólkið veit, að það félag gerir til allra sinna samkvæma, og verður skemtiskrá- in auglýst i næsta Lögbrgi. Landar góðir munið eftir kvöld- inu, fimtudagskvöldinu 24. þ. m., og látið ekkert hamla yður frá að vera þar viðstödd. Lögbergi ihefir verið sent minn- ingarrit um Helga Stefánsson sem lést að Wynvard 1916. pað er lagleg bók á að lita. Vér höfum ekki haft tíma til að lesa hana, en gjörum það við fyrsta tækifæri og getum hennar þá frekar. Að eins þrjú hundruð eintök hafa verið prentuð af bókinni, og þeir af vinum Helga heitins, sem lang- ar til þess að fá ritið, gjöri svo vel að snúa sér til hr. bóksala Finns Jónssonar eða Ólafs kon- suls porgeirssonar í Winnipeg. pann 8. þ. m. lést að heimili sínu, Völlum í Víðinesbygð, bónd- inn Sveinn Sigurðsson, 79 ára gamall, hann var ættaður frá pelamörk í Eyjafjaröarsýslu. Fluttist frá fslandi til Canada 1887, hafði búið í Víðinesbygðinni 32 ár, hann eftirlætur og 3 mann- vænleg börn, 2 syni og eina dóttir sem Winnipegbúar margir þekkja, það er Ms. Jódís Sigurðsson. Sveinn sál var jai'ðsunginn 13. þ. m. frá heinxili sínu, að viðstöddu flestöllu bygðarfól'ki af séra R. Runólfssyni. Skólalok Jóns Bjarnasonar skóla Á mánudaginn 14. þ.m.? var haldin samkoma í Goodtemplara- húsinu við skólalok J. B. skóla. Skólastjóri, séra Rúnólfur Mar- teisson, stýrði samkomunni. Fyrst var sunginn sálmurinn: ‘‘pú Jes- ús ert vegur til himinsins heim”; síðan var lesinn biblíukafli og flutt bæn. Fyrst á skemtiskránni var píanó sóló, sem ungfrú Helga Pálsson lék; þá söng Mrs. Alex Johnson. Svo sungu nokkrir nem- endur úr 11. bekknum; þá sagði ungfrú Kristbjörg Oddson, einn af nemendunum, æfisögu allra nemendanna í 11. bekk; þeir eru 22. Var þar sagt frá mörgu sögu- legu og oft hlegið dátt, en ekki voru áreiðanlegar heimildir fyrir öilum æfiáfcriðunum, enda gat sagnaritarinn þess. Eftir það sungu fjórraddaðan söng þau hr. P. Pálmason, hr. Davíð Jónasson, ungfrú Reykdal og ungfrú Her- mannsson, og sðan sungu nokkrar stúlkur. pá reis upp spákona úr 1. bekk og sagði fyrir um framtíð allra nemendanna, sem í þeim bekk hafa verið í vetur. Liggur mikil framtíð fyrir þeim öllum samkvæmt spádómunum. Spá- konan heitir Sigríður Eggertsson, ættuð að norðan. Næst lék Miss Anna Sveinsson á píanó. í haust sem leið safnaði séra Halldór Jónsson í Leslie dálítilli fjárupphæð og sendi skólanum í þeim tilgangi að fyrir hana yrði keypt verðlaun handa þeim nem- endum skólans, sem bezt væri að sér í íslenzku. Verðlaunin voru ísl. bækur; gaf bóksali Finnur Johson nokkuð í viðbótt og var tiu nemendum veitt verðlaun. Verð- launin voru veitt samkvæmt þeirri meðál einkunn, sem nemendurnir hlutu í öllum þremur prófunum í vetur. pessir hlutu verðlaun í II. bekk (I): 1. ungfrú Sigríður Eggertsson, 2. Leslie Peterson; (II) 1. ungfrú Kristbjörg Oddson, 2. Helga Guðmundsson. — í 10. bekk hlutu verðlaun: 1. Jón Lax- dal, 2. Jón L. Marteinsson, 3. Jón Ö. Bildfell. Og á 9. bekk: 1. ung- frú Theodís Marteinsson, 2. ung- frú Ragnheiður Kjartansson, 3. \ ictor Freeman. Séra Adam porgnímsson afhenti nemendunum verðlaunin. — pessi verðlaun mættu ekki falla niður; þau eru nemendunum hvöt til að stunda nám íslenzkunnar, og það er nemendunum ekki lítilil menn- ingarauki að kunna vel íslenzka tungu. pá sungu þær ungfrú Austmann og ungfrú Reykdal tvísöng; þá las hr. Ólafur Eggertsson upp söguna “Svarta höllin.” Leslie Peterson flutti þá kveðjuorð fyrir hönd nemendanna. iSkólastjórinn /oar sfðan fram “Arinbjarnar bikar”. pað er silf- urbikar, gefinn af ihr. Arinbirni S. Bardal, og á að grafa á hann nöfn þeirra nemenda, sem beztan vitn- isburð fá í skóilanum. pessi nöfn eru komin á bikarinn: Frá árinu 1914: Jón Gilbert Johnson (9. bekk); 1915: Kristín S. Peterson (10. b.), Skúli Hjör- leifsson (11. b.); 1916: Guðrún Rafnkelsson (9.), Vilhelm Krist- jánsson (10.), J. Gilbert Johnson (11.); 1917: H. J. Stefánsson (9.), Lilja Johnson (10.), Hólmfríður Einarsson (11.); 1918: Helga F. Guðmundsson (9.), Kristín John- son (10.), Jón Straumfjörð (11.); 1919: Harald J. Stephenson (9.), Leslie Peterson (10.), Vilborg Eyjólfsson (11.); og 1920: Theo- dís Marteinsson (9.), Einar Ein- arsson og Harald J. Stephenson (10.), Leslie Peterson og Krist- björg Oddson (11.). Skólastjóri skýrði einnig frá því, að fé hefði verið gefið til verðlaua í skólanum þetta ár, en þeim verðlaunum yrði ekki útbýtt fyr en í haust, því að háskólapróf- ín 'hafi enn ekki verið haldin, en verðlaunin á að veita eftir vitnis- burði nemenda við þau próf. Til verðlaúna i hverjum bekk hafa fcerið gefnir 50 dalir, og fá tveir, eru 1. verðl. 30 dalir, en 2. verðl. 20 dalir. Féð hafa þessir menn gefið: Séra Hjörtur J. Leó fyrir 11. bekk, dr. B. J. Brandson fyrir 10. bekk, hr. S. W. Melsted fyrir 9. bekk Skólastjóri þakkaði öllum vinum skólans hjálp þeirra og áhuga fyrir framfcíð skólans. Sérstaklega mintist hann frú Láru Bjarnason, sem væri óþreytandi að hlynna að skólanum. Nú í vor gaf hún skól- ,anum skrifstofuborð og bókaskáp með nokkru af bókum og ýmislegt fleira. Samkomunni var slitið með þvi að syngja “God Save the King” og “Eldgamla ísafold”. Eft ir það var nemendunum, þeim serr. skemt höfðu á samkomunni og for- eldrum nemenda boðið að koma heim í skólahúsið; komu þangað allmargir og framreiddu nemend- ur í 10. bekk veitingarnar. — Sam- koman var ánægjuleg og henni vel stjórnað af Skólastjóra. — Að- gangur var ekki seldur að sam- komunni, en menn lögðu hver sinn 3kildng í “Arinbjarnar bikarinn” um leiö og þeir gengu út. Safnað- ist þannig um 30 dalir til styrktar fyrir skólann. Almenningur meðal íslendinga vestan hafs sér alt af betur og betur, að Jóns Bjarnasonar skóli er þjóðarbroti voru hér til ómetan- legs gagns, og hann er oss líka til sóma. petta ættum vér að sýna enn betur í verkinu og hlynna svo að skólanum, að hann yrði sem ís- lenzkúr minnisvarði og mentastöð í þessu landi um ókomnar aldir. En til þess að skólanum sé borg- ið, þarf hann að eignast heimili sem allra fyrst og sem allra mynd- arlegast. Verum samtaka! A. P. Forseta efni Republica. Eftir margar tilraunir varð sú niðurstaða á fulltrúaþingi Repu- blicana í Chicago, að útnefndur var sem forsetaefni flokksins W. G. Harding, frá Ohio en sem vara- forsetaefni C. Coolidge frá Massa- chusetts. peir höfðu mest fylgi framan af þingi Hiram Johnson, senator frá California, nafnkendur maður frá fyrri árum, er hann var fylkis- stjóri í því ríki og meðal annara stórræða sótti með Roosevelt til valda, gegn hinum fornu ráða- mönnum flokksins. Honum þótti mest fylgi veitast um landið, er kosnir voru fuMtrúar, en er á kjörþing kom, sýndi sig brátt, að Wood hershöfðingi, annar harð- fari frá Roosevelts dögum, hafði ineira fylgi, stóð svo í járnum þeirra á milli og hins þriðja, er Lowden heitir, í marga daga, en enginn var afburðurinn að lokum, unz niðurstaðan varð að sameina sig um mann, er þektur var að því að vera dyggur flokksmaður, áreiðanlegur og útbrotalaus. Hann var svo kosinn með öllum þorra atkvæða. Af velþektum mönnum lagðist cng.nn móti honum, að sögn, utan La Follette frá Wis- consin, hans menn stóðu með honum til hins síðasta og viku aldrei frá honum, þó óp væri að þeim gert öðru hvoru. Um forsetaefni Repuiblikana er sagt, að hann hafi unnið sig á- fram með staðfestu og dugnaði, unnið fyrir sér meðan á skóla- gaungu stóð, við ýmsa vinnu, bæði í sveit og bæjum, þar til hann eignaðist blað nokkurt í bæ sem heitir Marion, Ohio, og heppnaðist það vel, færði smám saman út kvíarnar, eignaðist hluti í fyrirtækjum og hlutdeild í stjórn þeirra, varð þingmaður í Ohio ríki og loks níkisstjóri. Full- trúi í öldungadeild á þjóðþingi varð hann 1914, kosinn þangað með mjög miklum meiri hluta. Hann virðist stiltur maður og varfærinn, ekki framgjarn úr hófi, og hafa traust þeirna sem þekkja hann. Coolidge sá er útnefndur vat til að sækja um varaforseta tign undir merkjum Republikana, er ríkisstjóri í Massachusetts, kunn- astur af því að hann sendi herlið til að skakka leikinn í Boston, er verkföll stóðu þar í fyrra. Af umræðunum virðist mega ráða, að mjög hafv fulltrúar þózt vant við komnir að sigla milli skers og báru, þeirra er alþjóða- sambandi fylgja og hinna, er hliðra vilja landinu hjá hlutdeild í. vanræðum hins gamla heims. Útnefningar niðurstaðan er sögð bera vitni um, að þeir innan flokksins sem forsprakkar voru í þeim stefnum, hafi dregið sig til baka fyrir manni, sem Mtið hefir látið til sín taka í þvií efni og traust hefir þeirra, sem ráðið hafa mestu til forna innan flokksins.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.