Lögberg - 05.08.1920, Blaðsíða 5
LÚUBERG, FIMTUDAGINN 5 ÁGtrST 1920
I
og alla vega litum klæðum, og
fóru svo með hamn hátíðlegir og
alvarlegir gegnum göturnar.peg-
ar það var búið, var uxanum sálg-
að og slátrararnir settust að krás-
inni, þangað til alt var búið.
Næsta vika eftir hvítasunnu
nefnist helgivika eða sæluvika, og
lítur svo út af 'biskupasögum og
fleirum sögum vorum, eins og það
hafi verið haldið mikið upp á
hana á íslandi. pá er næsti sunnu-
,dagur kallaður Trinitatis eða
þrenningar hátíð, og er það eigin-
lega eina sumarhátíðin; við hana
eru og miðaðir allir sunnudagar
þaðan frá og til jólaföstu. pessi
hátíð var istofnuð upphaflega á
12. öld í minning þess, að faðir,
sonur og heilagur andi væri eitt,
væri þrenning, en ekki var hún i
lög leidd, fyr en Jón páfi, 22.
því nafni, gerði það árið ]
Meðan páfatrú var á íslandi,
haldið mikið upp á þessa h
en alt minna hefir það verið i
siðaskistin. —Fimtudagurinn i
ur eftir Trinitatis er kallaði
islenzku dýridagur, og er það s
og Kriists líkama hátíð. pessi
ur var leiddur í iög á íslan
alþingi 1326, og síðan hali
heilagur meðan páfatrú stóð
Junius er ií ailmanaki Guðbrs
kallaður Nóttleysumánuður,
að þá er lengstur dagurinr
nóttin björtust, og sumstaðar I
anlands á íslandi gengur sól
í æginn alla nóttina um nokl
hluta mánaðarins. Junius
latinskt nafn, og halda sumi:
það eigi uppruna sinn að r
til orðsins juniores, líkt og m
vera nefndur eftir Majores
svo voru þeir kallaðir með I
verjum, sem skyidir voru til
þjónustu á sjó eða landi, en
voru menn frá 17 ára og þar
ti] sex um fertugt. Aðrir h,
að mánuðurinn sé kallaður (
gyðjunni Juno, sem var sj
Júpiters og kona hans, og
aðnr halda að hann dragi ]
sitt af hinum nafnfræga fre
og lýðveldismanni Junius Brv
sem stökti burt 'hinum síð
konungi Rómverja, Tarkvi
dramibláta, en það var einmi
þessum hlufa ársins 509 f. R
júnímánuði héldu Rómve
nokkra hátíðisdaga guðí sí-
Mercurius, sem var verzluna,
þeirra og jafnframt sendiboði,
og Hermóður hinn hvati h<
Norðu rlöndum. Výð .Merc'u:
kendu og Rómverjar þann v
daginn, sem vér nú köllum n
vikudag, en áður hét Óðinsda
þangað til Jón biskup hinn h
ögmundarson fékk breytt sur
af daganöfnunum snemma á
öld.
Fardagar eru
um mánuði, því þeir
fjórir fyrstu dagarn
sumars. (Snorri Sti
svo í Eddu að þá hy
baldist til Jafndæg]
telur hann þaðan í fj
er sól sest í eyktars
til jafndægris og vor
fardaga. pá flytja
fcrlum og eiga að ;
efsta fardag. pefi
annars sjá af því a
bannaði Glúmi að si
pverá en til efsta fai
Einar Eyólfsson, sen
við eftir hann, einn <
bóndi og yfirráðandi
að réttum lögum.
1. Júní er helgaðu
nokkrum, rómverskum manni. pað
er sagt um hann, að hann hafi
gefið Petrónellu hinni helgu (sjá
31. maí) kvöldmáltíðar sakrament-
ið. áður en hún lést, og jarðað
síðan lík hennar. petta kom til
eyrna Flaccusi eð^lmanni sem beð
ið hafi Petrónellu, og varð hann
þessu svo reiður, að hann lét draga
Nicomedes fyrir sig og vildi kúga
hann til blóta. pegar það tókst
ekki, var Nicomedes laminn blý-
kleppum til baria og líkinu sökt í
ána Tdfur. paðan náðu vinir
hans því seinna, og var það þá
grafið á virðulegan hátt.
5. Júní er helgaður Bonifacius,
sem allast þostuli pýzkalands.
Kann, hét Winfriid upphaflega og
var fæddur á Englandi hér um
bil 680. pegar á unga aldri varð
hann munkur af Benediktsreglu
og áibóti var hann orðinn árið 716
þegar honum fyrst datt í hug að
reyna að kristna Frísa og pjóð-
verja, sem um þær mundir voru
allír heiðnir. í fyrstunni gekk
honum þetta mjög stirt, enda þótt
hann hefði góðan styrk af páfan-
um, sem þá var, Gregor annar.
Smám saman tókst honum að
snúa mörgum til kriistinnar trúar
cg stofna söfnuði hingað og þang-
að; páfi gerði bann að biskupi
723 og níu árum síðar að erkibisk-
upi alls pýzkalands. pá hafði
hann kristnað mestan þorra pjóð-
verja og árið 754 hafði hann kom-
ið kristni þar algjörlega á fastan
fót. petta ár fór hann ti'l Frís-
lands að boða þar trú að nýju, en
það tókst ekki betur en svo, að
Frísar réðust eitt sinn á hann að
óvörum og drápu hann og alla
hans menn, eitthvað 50 að tölu,
við borg þá, sem Dockum heitir.
pá hafði Bonifacius fimm um sjö-
tugt, og var hann skömmu síðar
tekinn í dýrðlingatölu og það að
maklegleikum.
8. Júní er kallaður eftir Medar-
dus, sem var biskup á Frakklandi
á sjöttu öld. pað er sagt um hann
að hann hafi ekki sést fyrir og
gefið fátæklingum hverja spjör-
ma utan af sér á fætur annari, ef
hann hafði ekki annað handtæki-
legra. pegar hann dó, árið 545,
er sagt að tvær hvítar dúfur hafi
komið af himnum og staðnæmst
við kistu hans. Skömmu síðar
■lögöu þær af stað til himna aftur
og þá var þriðja dúfan í för með
þeim, engu óálitlegri en hinar
tvær. Sama daginn átti að hafa
rignt volgu vatni, og það var því
trú manna lengi fram eftir mið-
öldum, að ef það rigndi Medard-
usdag, mundi ekki stytta upp fyr
en eftir 210 daga.
11. Júní er Barnabasmessa,
sem er kend við Barnabas, einn
70 lærisveinum Krists. Hann
var með Páli postula stundum síð-
an, en æfilok hans eru sögð að
hafa verið þau, að Gyðingar á
eynni Kípur gerðu eitt sinn að-
súg að honum, bundu reiptagl um
hálsinn á honum, drógu hann á
bál og brendu hann til kaldra
kola.
15. Júní er Vítusmessa, Vítus
þessi var ítalskur að ætt og var
drepinn 12 ára gamall af Díók-
iletían keisara ásamt móður hans,
sem hét Cresentia, og kennara sín
um Modestusi. Faðir Vitusar
var heiðingi, og viildi kúga son
sinn til að afneita kristihni trú,
en hann stóð óbilugur og gat eft-
ir þetta gert hvert kraftaverkið
öðru meira. Díókletían lét kasta
honuum í ketil fullan af sjóðandi
biki, og þegar það kom fyrir ekki,
1 var honum kastað fyrir björn, en
hér fór alt á sömu leið; þó gat
Díókletían loksins unnið á hon-
um með því að hengja hann. —
Vítus hinn helgi er verndari Bæ-
heimsmanna og átrúnaðargoð,
hér á Norðurlöndum var honum
fyrst helgaður dagur 1169 í minn-
ingu þess, að 'borgin Arkóna í
eynni Re (Rygen) var þá umnin af
Dönum. — Á Vítusmessu héldu
menn fyr meir að væri lengstur
dagur, svo sem sjá má á vísunni:
Lúcía nótt þá llengsta gefr:
lengstan daginn Vítus hefr,
Gregorius og Lambert lætr
lengdina jafna dags og nætr.
22. Júní. pessi dagur er helg—
aður 10,000 píslarvottum, sem
sagt er að Hadrian keisari hafi
látið krossfesta á fjallinu Ararat,
af því þeir vildu ekki blóta heiðin
goð. Eftir dauða þeirra urðu öll
hin sömu undur sem eftir kross-
festing Krists; björgin brotnuðu,
það varð myrkvi á sólu, afarmikill
landskjálfti o. s. frv.
24. Júní er Jónsmessa, sem á að
hafa verið fæðingardagur Jóns
(Jóhannesar) skírara, því sagt
er að ihann hafi fæðst réttu missiri
á undan Kristi. Annars eru það
oftast nær andlátsdagar dýrðlinga
sem haJldnir eru heilagir, en um
Jón skírara er öðru máli að gegna,
því hann var kallaður heilagur
alt frá fæðingu. Ekki vita menn
með vissu, hvenær Jónsmessa var
stofnuð fyrst, en á 6. öld var hún
almennur hátíðisdagur. Á ís-
lensku eru til tvær sögur af Jóni
skírara, sem Unger hefir látið
prenta í postulasögum. önnur
þeirra er nánast predikun á Jóns-
messu, en hin er meira í sögu-
formi( og er rituð af presti nokkr-
um, sem Grímur hét, fyrir Run-
ólf ábóta í Veri á ofanverðri 13.
öld. —Jónsmessa var úr lögum
numin á íslandi áirið 1770. Jóns
messunóttin var höfð I miklum
metum till forna, og ýmislegur á-
trúnaður við hana bundin bæði hér
á landi og erlendis. Hún þótti
þannig hjá oss best fallin til að
fá sér kraftagrös og náttúru—
steina, og döggin var svo heil-
næm þessa nótt, að ef menn
veltu sér bérir í henni, urðu menn
alheilir af öllum sjúkleika. Sömu
trú höfðu menn og í öðrum lönd-
um, ef menn fóru og lauguðu sig
i uppsprettum eða drukku úr
þeim þessa nótt. pað var og trú
manna erlendis, að illir andar
gengju lausir þessa nótt og gerðu
alt það ilt af sér sem þeir gætu.
27. Júní er dagur, sem settur er
til minningar um Sjösofendur, og
er munkasaga til um þá, sem prent
uð er á íslenzku í NýrriSumargjöf
Pegar Decius keisari ofsótti
kristna menn sem mest um miðja
3. öld, voru þeirra á meðal 7 bræð
ur eða 7 vinir, sem sumir segja
ér eitt sinn voru dregnir fyrir
keisarann og hótað öllu illu, ef
þeir létu ekki af trú sinni. Keis-
arinn gaf þeim þó dálítinn um-
hugsunartíma, og þeir fóru þá í
helli nokkurn nálægt Efesusborg
og lögðust til svefns. pessu komst
keisarinn að, og lét hlaða grjóti
fyrir hellismunnann, en bræðurn-
ir sváfu þarna í 200 ár, og vökn-
uðu loks við það að hjarðsveinn
einn af tilviljun opnaði hel'lismunn
an og að nýtt loft streymdi inn á
þá. pá fór yngsti bróðirinn til
borgarinnar að kaupa matvæli, en
nú voru allir borgarmenn orðnir
kristnir, og þegar þeir heyrðu
söguna um bræðurnar, fór múg-
ur og margmenni upp að hellinum
að tala við iþá; þeir lögðust þó
skömmu síðar til svefns aftur og
sofa þar enn til dómsdags.
29. júní er Péturs messa og Páls
því þann dag er sagt að Neró keis-
ari hafi líflátið þá árið 63. Pétur
posuli var krossfestur á höfði eft-
ir ei'gin beiðni, en Páll hálshöggv-
inn. Til eru sögur á íslenzku um
þá báða, og er þessa ítarlega get-
ið. Næsti dagur fyrir Péturs
messu og Páls var að fornu þing-
reiðardagur íslendinga, svo sem
sjá má á Rímbeglu og víðar.
Julius Kallar Guðbrandur bisk-
up Maðkamánuð og á dönsku heit-
ir hann “Ormemaaned”, sem er
sama. Upphaflega kölluðu Róm-
verjar þenna mánuð “Qvintilis”
(ihinn fimta) af því hann var
fimti í röðinni frá marz, sem þeir
töldu fyrstan í árinu eftir boði
Rómúlusar konungs. Á fyrstu
öld fyrir Krist var nafninu breytt
og mánuðurinn kallaður “Julius”
til heiðurs við Julius Caesar. Ann-
ars helguðu Rómverjar þenna
mánuð Jupiter, sem var æðsta
goð þeirra líkt og óðinn hér á
Norðurlöndum. pað lítur þó út
sem fornmenn hafi stundum hugs-
að ser að Jupiter og pór væri
sama, því hof Jupiters eru oft
kölluð pórs hof í gömlum bókum.
2. Júlí er vitjunar dagur Maríu
meyjar. pessi hátíðisdagur var
skipaður af tírbani páfa hinum
sjötta árið 1389 til minningar um
það þegar María heimsótti Elisa-
bethu frændkonu sína. Á ls-
landi var þó engin messa haldin
þenna dag, fyr en Sveinn biskup
Fétursson skipaði hana með úr-
skurði á prestastefnu , sem hald-
in var í Skálholti vorið 1472. páð
hefur þó víst aldrei verið haldið
mikið upp á iþenna hátíðisdag,
enda var hann einn af þeim, sem
úr voru feldir með lögum á ís-
landi 1770. Dagurinn heitir og
öðru nafni pingmaríumessa, því
þá stóð alþingi sem hæst, en ekki
tálmaði það neitt gjörðum þess þó
heilagt væri haldið. Dómar allir
máttu fram fara, og það var meira
að segja leyfilegt að taka þar
menn af lífi Iþenna dag, ef þess
þótti þörf. En hefir dagurinn
eitt nafn og kallast Svithúns-
messa hin fyrri. Hátíð þessi er
bresk upphaflega og tíðkaðist ekki
,mikið á Norðurlöndum, nema á
islandi. í almanaki Breta er ein-
ungis talin ein Svithúnsmessa, og
það er hin síðari, sem er 15. júlí.
Svithún (St. Swithin) var biskup
í Winohester og kennari Elfráðs
konungs mikla (dáin 901). pað er
sagt, að hann hafi þegar í lifanda
iífi gert mörg tákn og stórmerki,
pegar hann dó, brutu munkar út
af boðum ihans og viidu jarða
hann annarstaðar, en hann hafði
sjálfur ákveðið; fyrir þetta er
sagt að Svithín hafi hefnt sín á
þeim með því að láta rigna í 40
daga, og var það Tengi eftir al-
þýðutrú, að ef það rigndi á Svit-
húnsmessu, mundi ekki stytta
upp' í 40 daga.
Heillaósk.
I tilefni af gullbrúðkaupi sem um
er ritað í síðasta Lögbergi, 29. júlí,
dettur mér í hug að skrifa þessar
fáu línur.
Þau valinkunnu háöldruðu heið-
urs hjón Guðbrand Erlendsson og
Sigríði Hávarðardóttir, hefi eg
aldrei séð eða persónulega kynst.
Enn við hr. G. E. er mér sérlega
hlýtt og svo er með suma menn og
konur fleiri, pótt eg 'hafi engin per-
sónuleg kjrnni af þeim liaft. Ekki
veit eg hvernig best færi að færa
ástæður fyrir því, eða þeim tilfinn-
ingum svo að eg yrði ekki misskil-
inn. Enn hér finst að við öll sem
gömul erum og búin að leggja okk-
ar krafta fram í þessu mikla og
góða landi í þrjá til fjóra tugi ára,
og reynt eftir stöðui og kringum-
stæðum ag gera vorn orðstír góðan,
til uppbyggingar þessu þjóðfélagi
sem við erum runnir saman við, og
til sæmdar voru íslenzka þjóðemi
sem vér erum fni runnir. Allir
hafa í raun og sannleika stefnt að
sama marki. Enn misjöfn hefir
orkan og tillögin orðið sem eðli-
legt er. Enn af þessu leiðir að
mér finst að við öll gamla fólkið,
séum og höfum verið samferða
menn, og sama gildi hvort vér nú
eiðum ævikveldum eða verðum
grafnir að lyktum sunnan eða norð-
an línu.
Er það þá ekki eðlilegt að menn
og konur úr sama blóðuga bardag-
anum, úr sömu lestinni sem stefndi
að sama marki og áfangastað, beri
hlýjar tilfinningar hvað til annars.
Þegar Guðbr. Erlendsson gaf út
nýbyggjara söguna “Markland” sem
eg keypti og á, þá varð mér fyrst
vel til þessa manns, og mig langaði
til að rita nokkur þakkarorð fyrir
þá litlu bók, enn það fórst fyrir
sökum þess, eins og máske á sér
stað með marga fleiri að mér fanst
öðrum standa það nær en mér. Enn
eg þakka honum það nú þó of seint
sé, og í gegnum þá hreinskilnu frá-
sögn þekki eg þenna hreinhjartaða
góða mann. Samferðamanninn,
sem alt böl hefir viljað bæta, og
efla frið og eindrægni í hvívetna
meðal sinna landa.
Hann er sæmdar maður í vorum
flokki, og einsog sögur vorar geyma
nöfn Síðú Halls Steinþórs á Eyri
og Arnkelf goða, eins má landnáms
saga okkar geyma nafn Guðbrandar
Erlendssonar. Ef G E. hefði yer-
ið eða geta orðið hér á landnáms-
árunum jafn stórauðugur maður og
Steinþór á Eyri, þá hefði eflaust
lífsstefna þeirra orðið svipuð.
Báðir voru af guði og náttúrunni
skapaðir læknar, báðir trúmenn
miklir, báðir friðelskandi sæmdar-
menn með höfðingslmid, og atgerv
ismenn að líkamslistum.
Séra Kristinn segir: “Það er
íbfjart yfir elli Iþeifra, (guíibrúð-
hjónanna) einsog það hefir veriö
bjart yfir lífi þeirra.” Fagrari og
ánægjulegri orð er ekki hægt að
segja um nokktirn mann en að það
hafi eða sé bjart yfir lífi hans. Það
var bjart yfir Njáli þegar hann var
tekinn dauður úr brunanum. Það
er heilög ró, friður og sátt við hejm-
inn og alla menn sem gerir bjart yf-
ir mönnum, og það er hrein og
fölskvalaus samvizka sem veit ekki
af n<ýnum svörtum skugga eða
bletti á mannorðinu og æfistarfinu
sem gerir bjart yfir mönnum. Eg
á enga betri ósk til enn þessi orð
séra K. O. að það verði til enda
bjart yfir elli þessara heiðurs
hjóna. Og í dauðanum verði ein-
nig bjart yfir þeim.
Láms Guðmund'sson
BANFIELD’S
-----------ÁGÚSTMÁNAÐAR-------
HÚSMUNA SALA
FYRIR PENINGA UT í H0ND
Eins og Vant er Fer Salan á Húsmunum Hjá Oss Fram úr Öllum Dæmum í Þessum
Bæ. Kjörkaup í Hverri Deild Sannar Nafnið sem Vér Höfum Gefið Þessari Sölu.
Hin stærsta húsmuna sala fyrir peninga út í hönd
Eftirfylgjandi Skrá yfir Prísana Mun Sanna Þetta Fyllilega
Egta Walnut Dressers $62, vanal. $92.
Með þrem stórum skúffum, ávölum spegli 22
og 28 þuml., gljáalausir. Söluverð í ágúst fyr-
ir peninga út í hönd .................... $62.00
Dresser með Mahogany lit $39.75, vanal. $63
20 þuml. á breidd með tveim stórum og tveim
smáum skúffum, British bevel plate speglum
20x24 þuml. Að eins 15 til fyrir þetta verð.
Ágúst söluverð fyrir peninga....... $39.75
Vanal. $252 Egta Eikar Húsbúnaður á $186.00
Dragkista með tveim stórum og tveim smá-
um'draghólfum, Brit. Plate spegill Búnings-
borð með tveim smáum draghólfum og þreföldu
gleri. Trérúm af fullri stærð. Ágæt sala fyrir
peninga............................ $186.00
Vanal. $252 Walnut Húsmunir, 4 stykki $148
Dragkista með tveim stórum og tveim smáum
draghólfum og sterkum spegli. — Chiffonier,
með fimm draghólfum og spegli ofan á. Dress-
ing Table, með einu löngu draghólfi og þrem
speglum. Trérúm, í fullri stærð. Ágúst sölu-
verð fyrir peninga út í hönd.......... $148.00
Ábreiður fyltar Bómull $3.95, vanal. $5.50
Á tvöföld rúm. Vel fylt með góðri bómull,
með veri úr silkaline, Ijósleitt á lit. Ágúst-
söluverð, er............................... $3.95
Rúm meS Fjaðrabotni og Dýnum fyrir $31.50—
Vanaverðið $53.00.
Rúmstæðið hvítt, með gljákvoðu, stólpar 1
0g 1-16. þuml. milligerð 5-16. þml., bríkur XU
þml. úr eir; botn úr fjaðrastáli, bælast aldrei,
lagast eftir því sem á þeim liggur; dýna hvít,
úr baðmullarþófa—í lögum, með sterkum ver.
um vel stönguðum, 4 ft. og 4 ft. 6 þml. að stærð.
Söluverð þess alls fyrir peninga út í hönd all-
an ágústmánuð ....................... $31.50
Gular Gluggaskýlur 99c., Vanaverð $1.75
Verðið er lægra en verksmiðjuverð. Vænt
skýluefni, rjómalitað á þumlungs gilum Harts-
horn völturum. Fullbúnir með eyrum, nöglum
og hringum. Ágúst peninga söluverð...... 99c.
Ensk Wilton Teppi fyrir rétt Hálfvirði.
Með tvennri gerð að eins—vanaleg Turkey
áferð, með Yaprak kroti, vel þykk, glæsilega lit,
sérlega gerð fyrir dagstafur. petta er verð og
stærðir;
6-9x9—Vanav. $42. Fyrir peninga í ág. $21.00
9x9—Vanav. $56. Fyrir peninga í ág.. $28.00
9x10-6—Vanav. $65. Fyrir peninga í ág. $32.50
9x12—Vanav. $74. Fyrir peninga í ág. $37.00
Marglit Bað Handklæði, par $1.45. Vanal. $2.25
Góðar bómullar þurkur með kögri á endan-
um, 18x40 þuml. Að eins 72 pör til. Ágúst-
söluverð fyrir peninga t í hönd, parið .... $1.45
Dyramottur úr Strái.—Söluverð í ágúst fyrir peninga út í hönd ............. 35c.
FELTOL— Hinn ódýri Gólfdúkur í stað Linoleum, selt í ágúst fyrir 65 cent fer yardið
Og fyrir þetta áður óheyrða verð bjóðum vér nú allar birgðir vorar í þessum dúk, af rúðugerð,
blómaáferð, tígla eða mottu gerð, svo hæft getur fyrir hvað herbergi sem er; 6 feta breidd.
Verð í ágúst fyrir peninga út í hönd, hvert fer-yard á ................................ 65c.
Búð opin: 8.30 árdegis til 6 síðd. Á laugard.: J. A. Banúeld APEX Electric Vacuum Sýndurí Teppa-
0.0U aro. til 1 síðd. 492 MAIN STREET. Phone N6667 búð Vorri