Lögberg - 12.08.1920, Síða 8
«Í3. ií
LÖGBEHG FIMTUADGINN 12. ÁGÚST 1920
BRÚKIÐ
Safaið umbúðunum og Coupons fyrir Premíur
Orbo
rginm
§éra Jónas A, Sigurtisson frá
Churchbridge, Sask., prédikar í
Fyrstu lút. kirkju í Winnipeg á
sunnudaginn kemur bæói aó
morgni og að kveldi.
Goodtemplara stúkurnar Hekla
ög Skuld ætla að fara skemtiferð
út í City_Park næstkomandi iaug-
ardag 14. þ. m., kl. 2. e. h.. Stúk-
urnar óska að sem flestir með-
limir verði þar; reynt verður á
ýmsan hátt að 'hafa (>ar glaða
stund og góða.
Jón Guðmundsson frá Lundar
pg eldri dóttir hans, voru flutt á
«júkrahús bæjarins í byrjun vik-
unnar, kona’Jóns hefir legið
sjúkrahúsinu um tveggja vikna
tíma. . •>>,- .
Til sölu í Árborg, Man., gott í-
búðarhús, fjós og heyhlaða; inn-
girt, gott vatn, einnig fylgja 10
ekrur af landi iþessari eigm skamt
frá, vel til fallnar til lóða út-
mælingar. — G. S. Guðmundsson,
Framnes, Man.
K, N.
ísland gálga ekki á sér
eða hengi spotta,
seigðu þjóð að senda þér
Scx af víni potta!
pegar fengið þetta er,
þú skalt kútinn totta,
ólundin þá úr þér fer,
allir sjá þig glotta!
Pjalar Jón.
Miss Gerða Christopherson frá
Langruth, Man., sem dvalið hefir
um mánaðartíma hér í bænum með
móðurlaust ungbarn séra Sig-
urðar S. Christophersonar, bróður
sínsr til lækninga, hélt heimleið-
is fyrir helgina; hafði barnið
náð góðum bata og þroskaðist vel.
Aðfaranótt hins 4. þ. m. urðu
a þau hr. H. H. Sveinsson, Cypress
River, og kona hans fyrir þeirri
sáru sorg, að missa yngri dóttur
sína, Sigríði, úr lungnabólgu eftir
fárra daga Iegu. Sigríður sál,
var rúmlega 14 ára gömul, góð og
pfnileg stúlka. Jarðarför henn-
ar fór fram síðastliðinn fimtu-
dag frá kirkju Fríkirkju safnað-
ar.
Skóli fyrir annars stigs kenn-
aia próf (Normal School) hófst
hér í bænum þann 9. Af þremur
íslenzkum stúlkum vitum vér þar,
þeim Miss Skúlason frá Nýja ís-
landi, Miss Samson og Miss Sig-
urjónsson héðan úr bænum. Skól-
inn stendur til jóla.
Afar miklir hitar hafa verið hér
að undanfqrnu, um og yfir 90 ^r.
í skugga á laugardag, sunnudag
og mánudag; heldur svalara á
þriðjudaginn og regn að morgn-
inum. Kornskurðarvinna er nú al-
ment hafin hér í Manitoba og út-
lit með uppskeru með betra móti;
haglél þau, sem allvíða gengu yfir
í síðustu viku, hafa ekki að sögn
og sem betur fór valdið eins miklu
tjóni og í fyrstu var haldið.
pann 24. júlí s. 1., voru gefin
saman í hjónaband, þau Jónas M.
Jónasson og Miss. Evelyn Guð-
rún Johnson. Séra Jóhann
Bjarnason gifti og fór hjónavígsL
an fram á heimili hans I Árborg.
Brúðguminn er sonur þeirra hjóna
Jónasar porsteinssonar og konu
hans Lilju Friðfinnsdóttur, er
búa í Djúpadal í Geysisbygð. pau
hjón eru úr Skagafirði og komu
vestur um haf fyrir mörgum ár-
um. Brúðurin er Steingríms-
c^óttir Guðvarðarsonar, en móðir
hennar Jónína dóttir Einars Jóns-
sonar og konu hans Bjargar 111-
ugadóttir, er lengi bjuggu á
Landamótum í Árnesbygð. en eiga
nú heima í Breiðuvík. Er hún upp-
alin hjá þeim afa s'ínum og ömmu.
Framtíðarheimili hinna ungu
hjóna verður í Geysisbygð.
Professors embætti í íslenzKri
tungu og nýrri tima bókmentum,
hefir verið stofnað við háskólann
í Kaupmannahöfn. Dr. Valtýr
Guðmundsson hefir verið kvaddur
til að gegna þessari veglegu stöðu.
Mr Brynjólfur porláksson or-
ganisti, kom til bæjarins á mánu-
Jagsmorguninn var, og hélt heim-
leiðis daginn eftir.
Wonderland.
Myndirnar á Wonderland eru
fyrirtaksgóðar þessa viku. Mið-
viku og fimtudag er sýndur
kvikmyndaleikurinn “The Web of
Deceit” með Dolores Cassinelli í
aðaLhlutverkiuu, en á föstu og
laugardagskvöldin “Brobhers Di-
vided” þar sem Frank Keenan
sýnir framúrskarandi leiksnild.
Einnig er sýndur á miðviku og
fimtudagskveldið 14. kaflinn að
“,The Adventures of Ruth” og hef-
ir Ruth Holland þar aðalhlutverk-
ið með höndum.
ÁBYGGILEG
UÓS--------og----t-AFLGJAFI í
TRAOC MARK. RCOtSTCRCO
Brúkaður viðar “Furnace” til
sölu með sanngjörnu verði. Frek-
ari upplýsingar fást hjá G. Good-
man, 786 Toronto St.
Gefin voru nýlega saman í hjóna-
band í bænum Fargo N. Dakota,
þau Miss Beatrice Alfson, er þar
átti heima, og Mr. Sigurgeir Leif-
ur frá Pembina. Hjónavígslan
fór fram að heimili Mr. og Mrs.
T. A. Alfson, foreldra brúðarinn-
ar. Séra A. E. Berntsen gifti.
Af utanbæjarfólki var viðstatt
giftingarathöfnina foreldrar brúð-
gumans, Mr. og Mrs. Leifur, Mr.
og Mrs.Hanson, Fergus Falls; An-
kon Alfson ásamt syni sínum, Miss
Viola Anderson, Glenwood, Minn.,
Mrs. Hanson og sonur hennar,
Glaton, Minn.; Mrs. A. Alfson,
Cyrus Minn., og Mr. og Mrs.
Reine frá Erdahl.
Framtíðarheimili ungu hjón-
anna verður í Pembina, N. Dakota.
Vér ábyrgjumst yður varanlega og óslitna
ÞJCNUSTU
Vér æskjum virðingarfylst viðskifta jafnt fyrri VERK-
SMIÐJUR sem HEIMILI. Tals. Main 9580. CONTRACT
DEPT. Umboðsmaður vor er reiðubúnn að finna yður að
máliog gefa yður kostnaðaráællun.
Winnipeg ElectricRailway Co.
!
W
ONDERLAN
THEATRE
D
Miðvikudag og Fimtudag
Dolores Cassinelli
“The Wcb of Deceit”
Föstudag og Laugardag
Frank Keenan
“Brothers Divided”
| Mánudag og priJjudag
Sessue Hayakawa
“The Beggar Prince”
GENERAL MANAGER
Listi yfir nöfn þeirra íslend-
inga, sem stóðust miðskólaprófin,
birtist í næsta blaði.
Prof. Halldór Hermannsson
kom vestan frá ALberta fyrir síð-
ustu helgi, dvaidi hér í bænum
þar til á þriðjudagskvöldið að hann
hélt heimleiðis.
V
V. Benediktsson frá Riverton
var fluttur á sjúkrahús bæjaríns
á mánudaginn var og var skorinn
upp af Dr. B. J. Brandson við
botnlangabólgu. Honum heilsast
vel.
Messuboð.
Sunnudaginn 22. ágúst verður
•haldin guðsþjónusta í Húsavíkur-
kirkju, Víðinesbygð, kt. 2 e. h.
Aliir velkomnir. Sama dag verð-
ur einnig haldin guðsþjónusta á
Gimli, sem verður betur auglýst
í næsta blaði. B-
-------------/
Gullbrúðkaup þeirra Mr. og
Mrs. Arngrímur Johnson, Minne-
pta, MinjK, var hátíðlegt haldið í
kirkju íslenzka safnaðarins þar í
bænum. Séra Guttormur Gutt-
ormsson stjórnaði samkvæminu og
flutti fyrstu ræðuna. Auk hans
töluðu A. R. Johnson, P. V. Pet-
erson og Hon. C. M. Gíslason frá
Ivanho. Gullbrúðhjónin komu út
hingað árið 1876 og hafa ávalt síð-
an dvalið í Minnesota-bygðinni.
Mr. og Mrs. Robert More frá
RusseLl, Man., komu til borgarinn-
ar í síðustu viku. Mrs. More er
íslenzk, dóttir Mr. og Mrs. E.
Bjarnason í Churchbridge og dvel-
ur her hjá systur sinni, Mrs. S.
Joel, á Lipton St., um tíma.
Mrs. 0. Bjarnason kom sunnan
frá Minneapolis fyrir stuttu síðan
og fór vestur til Leslie að heim-
sækja bróður sinn P. F. Magnús-
son, er þar býr. >‘
BIFREIÐAR “TIRES”
Goodyear or Ðomínlon Tiroti K'-if
4 reltum böndutm Getum Ot-
•egaP iivaCa teguna eem
pör þarfnittt.
Aðgerðum og **4'ulo»nl/.liig” »ír-
«taknr gannnur gefinn.
Battery aSgerCir og biíreiRar tll-
bönar tll reynalu. geymd<*r
og þvegnar.
ATTO TIRE VULCANIZfNG CO.
SOH Cumberlami Are
'inln. Garry 2707. GplC áttg og nött.
Phone: Garry 2616
JenkinsShoe Co.
639 Notre Dame
Avenue
Haldið yður svölum
Fáið Eina af Voruin
Alkunnu skyrtum
Stórt úrval af fallegum og góð-
um Sumarksyrtum, hvítum og
bleik litum, með kraga. Beztu
kaupin á markaðinum.
Verð frá
$2.25, $3.00 og $3.50
White & Manahan,
Limited
Main St., Winnipeg
509
MRS. SWAINSON, að 696 Sar-
gent ave. hefir ávalt fyrirliggj-
andi úrvalsbirgðir af nýtízku
kvenhöttum.— Hún er eina ísl.
konan sem slíka verzlun rekur í
Canada. íslendingar látið Mrs.
Swainson njóta viðskifta yðar.
Talsími Sher. 1407.
BLUE MBBON
TEA.
Það er auðvelt að segja eitt-
hvað vera gott, en það er annað
að sanna það. Blue Ribbon Te
stenzt reynsluna.
' REYNIÐ ÞAÐ.
Kennara vantar.
við Oddaskóla no. 1830, verður \að
hafa second class kennara leyfi.
Kenslutími frá 15. sept. til 15.
ídes., og frá 1. til 30. júní.
Umsækjendur tiltaki kaup, og
sendi umsóknir til undirritaðs.
Andrew Rasmussen Sec. Treas.,
Winnipegosis Man.
4 þ. m. lést Arinbjórn Björnsson
á almenna sjúkrahúsi bæjarins,
úr sullaveiki. Arinbjörn heitinn
hafði • verið lasinn alllengi af
þessari veiki, og tvisvar gengið
undir uppskurð. Bræður hins
látna Eggert og Jóhann bændur
frá Kandahar sóttu lík hins látna
bróður, og fluttu vestur til Kanda-
har, þar sem þaíT var jarðsett.
Arinbjörn heitinn var 50 ára
þegar hann lést, mjög vel látinn
maður og bezti drengur.
Wr. H. Paulson þingmaður frá
Leslie Sask. var gestur í bænum
í síðustu viku.
Jón Eyjólfsson frá Minneota,
Minn., sem dvalið hefir hér nyrðra]
kom til bæjarins frá Cypress
River, þar sem hann dvaldi um
tíma hjá dóttur sinni, og hélt
heimleiðis um síðustu helgi.
Mr. Hjálmar Árnason, er lengi
hefir unnið við strætahreinsun í
Winnipeg, slasaðist stórkostlega
fyrir skemstu og ligguP á sjúkra-
húsi bæjarins. Slysið orsakað-
ist þannig að Hjálmar varð undir
bifvagni, er líklega hefir farið of
geyst. Er maðurinn örkumlaður
mjög, brotinn á fæti og síðu,
kvað iþó vera heldur á batavegi. I .
FESTIÐ ÞETTA MERKISPJALD
við yðar næstu
KAUPUM EGG OG ALIFUGLA • ] RJ0MA KÖNNU HÆSTA MARKAÐS- VERÐ BORGAÐ
RUSH
Canadian
WINNIPEG
%
o
O M.
1—
J
Heiðraði ritstjóri Lögbergs.I
Eg sé að einhver hefir sent
Lögberg kvæði eftir mig, flutt hér
6. júlí 1919, á fagnaðar samkomu
sem haldin var, við íheimkomu ís-
lenzku hermannanna, og birtist
22. júlí 1920.
Og verð eg að skýra frá að nafn
mitt hefir afbakast herfilega sem
er Ásgerður Freeman, en ekki
Frederickáon, eins og stendur í
Lögbergi.
|
Einnig eru prentvillur í kvæð-
inu, fjórða erindið er svona:
Sigrikrýnda sveina heiðrar valda,
vor sveit í dag, við komu þeirra
heim,, þökk og heiður hetjuml
ber að gjalda, er hika ei við hvað I
skyldan býður þeim. Við gleðj-|
umst 611, að heilir hóp vorn prýða, j
þótt hugraun sé hve margir aðr-j
ir líða.
Og í fimta erindinu á að vera:
Geymir þau sagan ókomnar um
aldir, en ekki greinir þau sagan.
Eg óska eftir að þetta sé leiðrétt.
Virðingarfylst
Ásgerður Freeman.
Piney Man.
Kennara vantar til Laufás sllóla
yfir 8 mánuði í það minsta, byrjar
1. sepember. Kennarinn (hann
eða hún) verður að hafa í það
minsta Third. Class Certificate
* Tilboð sem tiltaki kaup, óskað
eftir, og æfingu og mentastigi
sendist undirrituðum fyrir 23.
ágúst.
B. Jóhannsson.
Sec. treas.
KENNARA vantar við Arnes
South skóla No. 1048. Skólinn
byrjar 1. Sept. 1920 og stendur til
15. des. og frá 15. feBrT til 30 júní
1921. Umsækjendur tiltaki kaup
og meritastig, tilboðum veitt mót-
taka til 20. ágúst 1920. — H. F.
Magnússon, Sec.-Treas., Nes P. O.
Man.
Kennara vantar við Odda skóla
r.o. 1830, verður að hafa second
class kennaraleyfi. Kenslu tími
frá 15. sept. til 15. des., og frá 1.
marz til 30. júní. Umsækjendur
tiltaki kaup og sendi umsóknir til
undirritaðs. A. Rasmusen, Sec.-
Treas., Winnipegosis, Man.
KENNARA vantar við Egilsion
S. D. No. 1476, Swan River, Man.
frá 1. sept. 1920 til ársloka. Um-
sækjendur skýri frá mentastigi og
kaupgjaldi og snúi sér til S. J.
Sigurdson, Sec-Treas., Egilson S.
D., No. 1476, Swan River, Man.
Fowler Optical Co.
(Áður Roval Optical Co.)
Ilafa nú flutt sig að 340
Portage Ave. fimm húsum
vestan við Hargrave St.,
næst við Chicago Floral
Co. Ef oitthvað er að aug-
um vðar eða gleraugun í ó-
lagi, ]>á skuluð þér koma
fceint til
Fowler Optical Co.
340 PORTAGE AYE.
KENNARA vantar við Brú skóla
No. 368, karl eða konu, verður að
hafa Second Class kennara bréf.
Skóli byrjar 16. ágúst; tilboðum
fylgi skýring um Certificate og
hvaða kaupi búist sé við. Skrifið
T. S. Arason, Se- -Treas., Cypress
River, Man.
Kennari óskast.
við Siglunés skóla no. 1399 fyrir
•þrjá mánuði, frá 15. sept. til 15.
des. Umsækjendur til taki
mentastig og æfingu, sömuleiðis
kaup sem óskast.
Tilboðum veitt móttaka til 28.
ágúst 1920 af J. H. Johnson
Vogar P. O.
Man.
KENNARA vantar við Árdal-
skóla No. 1292, með annars eða
fyrsta flokks mentastig. Kenslu-
tími frá 1. sept. til 30. júní. Um_
sækjendur tiltaki kaup og sendi
tilboð til undirritaðs. — I. Ingj-
aldsson, Sec.-Treas., Arborg, Man.
Kennara vantar.
fyrir Vestri S. D. nr. 1669 frá 2
september 1920, til 24. des. 1920.
Usækjendur tiltaki mentastig
og kaup. Tilboðum veitt móttaka
til 20. ágúst 1920.
Mrs. G. Oliver sec treas.
Framnes P. O. Man.
Kennara vantar við Big Point
skóla no. 962, hafi second class
kennaraleyfi, helzt með normal
skólagöngu. Kennslutími frá
1. sept. til 30. júní. Umsækj-
endur tiltaki kaup og sendi um-
sóknir til undirritaðs.
Harald Bjarnason Sec. Treas.
Langruth Man.
Kennara vantar.
(fvrir Víðir skóla no. 1460 frá 1.
sept. þessa árs, til síðasta júní
1921. Verður að hafa að minsta
kosti 3. class professional menta
stig.
Umsækjendur tiltaki kaup og
æfingu, og sendi tilboð til undir-
ritaðs fyrir 25. ágúst 1920.
J. Sigurðsson Sec. treas
Víðip Man.
NÝJASTA RJÓMABÚIÐ I WINNIPEG,
sem fullnægir öllum ströngustu heilbrigð-
isreglum,er nú opnað til almennra við-
skifta og starfrækt af viðurkendum sér-
fræðingum. Þar fáið þér áreiðanlega
mœlda smjörfituna, nákvœma vigt og pen-
inga út í hönd.
Hafið það hugfast, að þe4ta Rjómabú er
stofnað samkvæmt áskorun fjölda bænda,
sem sent höfðu til vor egg og alifugla und-
anfarandi ár. Það er náeg trygging fyr-
ir alla.
Skrifið strax eftir Rjóma-M'erkiseðlunum, sem veita fulla tryggingu og ánægju.
CANADIAN PACKING C0. Ltd.
Eftirmenn MATTHEWS-BLACKWELL, LTD., Stofnsett 1852.
WINNIPEG, Man.
Engum Skatti bætt við verð
COLUMBIA
■; . \ , . ■ fy
Grafonolas eða Records
Það er enu engin \ erðhælckun á Columbia Grafonolas eða hljóm-
plötum—Records. Fjármála frumvarp nýja fjármála ráðgjafans
í Canada, setti engan aukaskqtí á Columbia Grafonolas eða
Records. Þú borgur nákvæmíega sama verð og áður en fjár-
lagafrumvadpið kom fraim.
Columbia Grafonola
Standard Modela up
to $360
Njótið fullkomnustu hljómlistar
Kaupið Columbia Grafonola Undir Eins
Kaupið Hljómplötur Eins ogVant Er
Hér era taldar nokkrar hljómplötur, sem vert
er að heyra:
Hold tlie Fort, and ln the Sweet Bye and Bye,
Temple Quartette ............... R407 $1.0*
TIk; Bells of St. Mary’s, George Meader, Tenor,
with Orchestra and Chimes, and Valo of Avon
Marcii, Wingate’a Band ........... R4020 $1.00
Venetian Moon, Ouet, James and Harrison, and
My Isle of Golden Dreams, Tenor Solo, Harri-
son .............................. A2954 $1.00
Hlglilainl lling and Swoi-d ]>ance, Bagpipe Solo
and Sliean Trews, Irish Jig and Sallors Horn-
Pipe, Bagpipe Solo ............... R4022 $1.00
Oountry Fair at Fiinkin Centre, Oal Sttewart,
(Uncle Josh) atld Jim Iduvson’s Hogs, Cal.
Stewart (Uncle Josh) .............. A2947 $1.00
Dlng Toes, Fox Trot, and Typhoon, JFox Trot,
A295Í
Piano Duet by Banta and Akst.
53 $1.00
Swan Manufacturing Co., 696 Sargent ave.
H. METHUSALEMS. Etgandi. Phone Sh. 805