Lögberg - 21.10.1920, Page 3

Lögberg - 21.10.1920, Page 3
LÖGBERU FIMTUDAGINN 21. OKTÓBER 1920 Bls. a V Nelly frá SKorne Mills. Eftir Charles Garvice. Geislar ljósanna, hljóðfærasöngurinn og dansandi persónurnar, höf'ðu sömu áhrif á hinar ofreyndu taugar hennar og köid vatnsbuna á manneskju, sem ætlar að falla í öngvit. 1 fyrsta skifti vaknaði dramb hjá henni. Hún hafði mist Drake algerlega, en hún ætlaði ekki að kvarta eða syrgja; aðrar stúlkur á undan henni höfðu mist kærasta sína og eiginmenn í faðm dauðans, og þær urðu að bera sinn þunga missi; hún varð líka að læra að bera sinn. Ungur maður kom fljótlega til hennar glað- ur á svip. “Ó, ungfrú Lorton, þetta er okkar dans!” sagði hann. “Eg hefi leitað yðar allstaðar, eg hefi, satt að segja, verið mjög hryggur.” Nelly vætti varirnar og Jivíngaði sig til að brosa. ‘ ‘ Eg var úti á hj allanum; hér var svo heitt ’ ’ “Eruð þér þreyttar? Þér eruð dálítið föl- ar!” sagði hann. “Máske þér viljið síður dansa!” Hún dansaði eins og í draumi, hún starði fram undan sér með undarlegum augum, og á vörum hennar lá þvingað bros. Litlu síðar vará liún heitari, blóðið byrjaði hringrás sína og rauðir blettir sáust á kinnum hennar. Hver sem sá hana hlaut að álíta að hún skemti sér vel; engan gat grunað að sorg byggi í huga hennar, og að hana langaði mest til að vera ein í her- berginu með sorg sína. Það er mikið talað um þjáningar kvenna, en enginn okkar veit hve sárar þær eru, því guð- irnir hafa gefið þeim, mikinn og undarlegan kjark til að líða með kyrð, til að brosa mitt í þjáningunum, til að segja algeng orð. meðan hugur þeirra er örvilnaður. Því göfugri sem konan er, því meiri þolinmæði hefir hún til að hera mótætið—og vesalings Nellv okkar var að eðlisfari göfug. Allir, sem sáu hana, fyltust aðdáun eða öfund; hún var svo ung og indæl, ósnert af heiminum, og drættirnir um varirnar voru svo barnalegir og jafnframt alvarlegir, að margir, sem gerðu samanburð á henni og Lucy, álitu Nelly eftirsóknarverðari. Einn af þeim var Drake; hann hafði farið inn í reykingaherbergð og kveikt í vindil, og meðan hann gekk þar fram og aftur, hugsaði hann um þessa gátu, sem forlögin höfðu fengið honum til að ráða. Með beiskju og reiði hugsaði hann um sam- veruna með Lucy. Hvaða ógæfusöm tilviljun hafði komið með liana liingað, og hvers vegna hafði hún skift um skoðun svo skyndilega! Var það satt, að hún elskaði hann enn þá? Hann gat ekki trúað því, og samt sem áður—ástaratlot handar hennar, augnatillit liennar—og kossinn. Hann fleygði vindlinum, því í geðshræringu sxnni hafði hann bitið hann í sundur—og féll í þungar- hugsanir. Og, gat hún ímyndað sér, að. hann mundi heitbindast henni aftur? Hann hló háðslega. Þó engin Nelly hefði verið, vildi hann ekki trúlofast henni aftur. En nú var Nelly til. Já, guði sé lof—það var Nelly hans elskaða, blíða og fallega Nell, sem skein eins og stjarna á himni guðs í samanburði við Luce. Hann hló að hugsaninni um ást í sam- bandi við Luce. Töfrablindni gæti maður máske kallað það — en ást — nei. Og hún hafði yfirgeiið hann með kossi, eins og hún væri sannfærð um að hún hefði náð honum aftur í sitt vald. Þetta var nóg til gð verða hrjálaður yfir! Og það var líkt henni að haga sér í dans- salnum, eins og hún hefði kröfu til hans, og hún mundi máske segja Chesney að------- Hann flýtti sér út úr reykingaklefanum, og kom nógu snemma til að sjá Chesney fólkið vera að fara. Þegar lafði Luce kvaddi húsmóðirina og þakkaði henni fyrir þetta skemtilega kvöld, sem benni var í þetta eina skifti hrein alvara, sá hann hana líta í kring um sig í salnum, eins og hún væri að líta'eftir einhverjum; en hann fól sig, svo hún sá hann ekki. Þegar hún var farin, gekk hann inn í dans- salinn og leit eftir Nelly. Hún mætti augua- tilliti hans, og hann brosti dálítið kvíðandi og órólegur, því honum virtist liann sjá ókunnan svip í andliti hcnnar? En þegar hún brosti t’.l hans aftur—engan grunaði hvað það bros kost- aði Nelly—varð hann glaðari, réði sér dans- stúlku og tók þátt í dansinum. Nú var fjör í dansinum, því hver dansinn Ivlgdi eftir annan og gleðin var á hæsta stigi. Sumir af mönnunum hlóu, máske heldur hátt, 'og stúlkurnar voru blóðrjóðar af kampavíni og dansinum. Elskendurnir fundu sér pláss í af- kimum og hornum, og sumir af mönnunum gengu inn í reykingaklefann, þar sem þeir gátu í friði spilað, reykt og neytt víns. Dick skemti sér afarvel við þenna fyrsta dansleik sinn; hann hafði neytt matar með góðri lyst við kvöldverðinn—og nú dekraði hann við laglega, unga stúlku—náskylda frænku Maltbys. Þeta var líka dansleikurinn hennar, og Dick hafði dansað þrjá dansa í röð með henni, áður en hún varð þess vör að það var brot á siðunum. “Dansa aftur með yður? Nei, það get eg ekki!” svaraði hún, þegar Dick bað hana um fjórða dansinn. “Það má eð ekki—það er ekki leyfilegt!” “Hversvegna ekki?” spurð Dick sakleysis- lega. “Ef þér væruð ekki jafn ungur, þá munduð þér ekki spyrja mig um þetta!” sagði hún hörkulega en með gletnisbros í björtu ungu augunum. “Eg er eflaust eins gamall og þér,” svar- aði hann. “Eruð þér? Því trúi eg ekki. Þér lítið út eins og þér séuð nýlega sloppinn úr skólanum. Eg er—nei, eg vil ekki segja yður það; þér sögðuð þetta eflaust í því skyni að fá að vita um aldur minn. En ef þér viljið vita hvers vegna eg vil ekki dansa við yður aftur, þá er það af því, að engin stúlka á að dansa þrisvar sinnum í röð við sama mann.” “En fyrst eg er nú aðeins skólapiltur, þá getur það ekki gert neitt ilt,” sagði Dick blátt áfram. “Það skeytir enginn um hvað drengir gera. Komið þér nú! ” Hún lézt athuga hann nákvæmlega. “Nei, eg vil ekki koma. Og mér finst það ókurteysi af yður, að taka ekki svari mínu með alvöru. “Nú, jæja,” sagði hann glaðlega. “Þér viljið þá máske verða samferða og fá ögn af kvöldmat?” “En það er ekki hálf stund síðan við noytt- um kvöldmatar.” “Verðið þér þá samferða og horfið á mig eta, ’ ’ sagði hann. ‘ ‘ Kæra þökk! Eg hefi aldrei skeytt um að sjá dýrin fóðruð—ekki einu sinni í dýragarðin- um. ’ ’ “Þetta var mjög vel svarað,” sagði hann hlæjandi. “Nelly systir mín hefði ekki getað svarað betur.” “Nelly systir yðar? Er það unga stúlkan sem núna dansar með kaptein White ? En hvað hún er fögur.” “ Sýnist yður? Já, liún er það í rauninni. Menn segja að við séum mjög lík.” Hláturinn, sem liann hafði búist við, kom sirax, og hann notaði tækifærið til a,ð leiða hana burt í eitt af hornunum, þar sem þau gátu talað saman ótrufluð. “Mér þætti gaman að vita hvort þér yrðuð móðgaðar, ef eg segði yður að þér væruð sá elskuverðasta stúlka sem eg þekki?” sagði Dick með sakleysi og auðmýkt, sem gerði ómögulegt að verða móðguð,—að núnsta kosti fanst henni það. “Alls ekki. Og mér þætti gaman að vita hvort yður sárnaði ef eg segði, að mér finst þér vera sá ruddalegasti og djarfasti ungi maður, sem eg þekki!” “Ó, nei—alls ekki. Þetta er ekki í fyrsta skifti sem eg lieyri, að eg ké sá ruddalegasti og djarfasti piltur.. Eg á nefnilega systur, sem er yfirburða hrenskilin. En sú köllun sem bíður yðar, ungfrú Angel!” “Köllun?” endurtók hún liikandi, hún var nógu gömul til að finna, að nú var lögð gildra fyrir hana. “Já,” svaraði hann alvarlegur, “þá köllun að endurbæta mig! Fyrst yður finst eg svo ó- mögulegur í kvöld, þá þætti mér gaman að vita, hvað þér munduð hafa hugsað um mig í gær, áður en mér veittist sá heiður að kynnast yður. Nú er sannarlega tækifæri fyrir yður, ungfiú Angel, tækifæri, sem ef til vill aldrei síðar fæst. Haldið áfram að veita mér hin bætandi áhrif yðar. Frændi yðar hefir nefnilega boðið mér að koma hingað á morgun—við ætlum á héra- veiðar.” ‘ ‘ Þið náið engum. Það ætti í rauninni ekki að leyfa drengjum að—” “Hver er það nú sem er ókurteis?” spurði hann hana. “Eg ætlaði að segja, að ef þér kæmuð út ásamt morgunverðarfólkinu, þá gæti eg fengið leiðbeiningu í kurteisi og góðum sið- um—er það ekki?” “Mér gæti ekki dottið í hug að koma,” sagði hún. “Ó, jú, þér komið eflaust,” sagði hann sannfærður. “ Stúlkurnar gera alt af það, sem þær meina að vilja ekk gera.” "”“Nei, £r það satt?” sagði hún háðslega.— “En eg þekki mína skyldu—og hana skal eg gera — eg skal segja systur yðar — en. sko!” sagði hún alt í einu hræðsluleg og benti fram undan sér. Dick leit áfram og sá Nelly sitja á eikar- bekk rétt fyrir neðan þau. Hún hallaðist aftur á bak með lokuð augu og mjallhvítt andlit. “Ó, farið þér til hennar, henni líður illa— mér þykir það leitt—farið þér strax.” Dick hljóp ofana stigaann, og unga stúlkaji gekk á eftir honum fáein skref, svo stóð hún kyr og horfði á þau. “Hello, Nell! Hvað er að?” surði Dick. Hún opnaði augun, stóð strax upp og revndi af öllum mætti að ná sjálfsstjórn sinni, til þess að enda hlutverk sitt þetta kvöld, sem henni fanst aldrei ætla að enda. “Ekkert—alls ekkert. Eg er aðeins dálít- ið þreytt.” A þessu augnabliki kom Drake til þeirra. “Þetta er minn dans, Nell,” sagði hann. Andlit lians og rödd var alvarlegt, því hann var ennþá órólegur. “Eg hefi leitað að þér—” Hann þagnaði skyndilega og Tétti hendina fram, því hún varð aftur náföl. Eitt augnablik leit hún á hann sorgþrungnum augum, en leit strax af honum aftur og láut til hliðar, til þess að laga kjólinn sinn. “Eg er þreytt,” sagði hún og neyddi Jíig til að brosa. “Það er svo heitt, eigum við ekki oð fara heim? Eg meina Dick og eg—þú þarft ekki—” “Jú, auðvitað, strax,” sagði hann. “Bíð þú aðeins á meðan eg sæki vatn handa þér — bíð þú—” “Dick, vitu láta koma með vagninn?” sagði hún með þeim róm sem hann kannaðist ekki við. Það var eins og hún í þessar fimm mínútur vær orðin að fullþroskaðri stúlku. “Við getum farið strax; mér er batnað.” Dick fór og ungfrú Angel kom til hennar liikandi. “Get eg ekkert gert fyrir yður? Eg veit hvað þetta er—yður finst að yfir yður ætli að líða—” Nelly brosti. “Guð gefi að þér fáið aldrei að vita hvað það er!” hugsaði liún og leit á ungu stúlkuna. A þessu augnabliki fanst henni að hún væri mörgum árum eldri en ungfrú Angel. “ Já, máske,” sagði hún. “En það batnar strax þegar eg kem út og anda að mér fersku lofti.” Ungfrú Angel tók strax af sér sjalið, sem Dick hafði sótt handa henni, og fékk hana til að * láta það á sig. “Komið þér með mér,” sagði hún. “Þér getið beðið eftir vagninum úti. ’ ’ Nelly fór út með henni, og þegar hún and- aði að sér kalda ferska loftinu, varð henni hug- hægra og snéri sér.að ungu stúlkunni. “Nú líður mér vel. Þér megið ekki láta mig tefja yður; hér er sjalið yðar—” Nú kom Ðick með vagninn og Drake með kápuna hennar og vín ^ glasi. Hann hafði um leið tekið með sér yfirliöfnina sína og hattinn. Hún drakk ögn af víninu og rétti svo hendi sína að ungfrú Angel, til þess að þakka henni og bjóða góða nótt. “Nú er þetta liðið hjá — alveg!” heyrði Drake hana segja, og það gladdi hann, því það er óþægilegt fyrir mann að sjá líða yfir stúlku. Þau stigu upp í vagninn og honum var ekið af stað. 1 stað þess að hníga aftur á bak í eitt- hvort hornið, sat Nelly upprétt og þvingaði sig til að brosa. “Þetta var mjög skemtilegt kvöld,” sagði Dick og"stundi. “Nú furðar mig ekki iengur á því, að ungu stúlkunum þykir skemtilogt að vera með í dansleikum og taka þátt í öðrum samkomum.” “ Já,” sagði Nelly svo fjörlega, að þá furð- aði báða, “þetta var skemtilegt kvöld. Og hve fögur ungfrú Angel er, Dick.” “ Já eg vissi að þú hafðir gott fegurðarvit” sagði hann ánægður. “Eg held mér sé óhætt að fullyrða, að liún hafi verð ein af fallegustu stúlkunum við dansleikinn.” v Nelly hló—hláturinn hennar var dimmur— hvorugur karlmannanna tók samt eftir því, og Dick hélt áfram að hrósa dansleiknum, án þess að gruna liugsanir Nelly. Drake var næstum þögull, að sitja við hlið hennar, var honum stór buggun eftir ónotalegu samvistirnar með Luce. Ó, hvílíkur munur þó var á þessari ást og þeirri, sem hann hafði felt til þeirrar stúlku er hann nú var laus við. Guði sé lof að hann losnaði við hana—það var leiðintegt að verða að hugsa þannig, en hann gat ekki annað. Daginn eftir ætlaði hann að segja henni alt, já, hann ætlaði að segja henni hver hann væri —og líka trúlofan sinni og Luce. Það væri mjög óþægilegt fyrir hann, en hann ætlaði samt að gera það. Hann var búinn að dylja hana þessa of lengi—það var heimskulegt af honum að segja henni ekki sitt rétta nafn og sína stöðu; en á morgun skyldi hann gera það. Einu sinni rétti hann hendi sína að hennar hendi, en hún sá hrcyfingu lians og flutti hendi sína þangað, sem hann gat ekki náð henni. Yagninn ók nú að dyrum heimilsins, og Dick stökk út, opnaði dyrnar með lykil og gekk beint inn í húsið. Þegar Drake hjálpaði Nelly út, dró hún hendi sína frá honum, til þess að laga kjólinn sinn, og gekk strax inn í litla dyra- ganginn og hann á eftir. Hjarta hennar sló sárt. Henni fanst hún ekki geta litið upp, eins og hún væri sú seka. Skyldi hann reyna að kyssa hana? Nei, nei, svo falskur getur hann ekki verið. Ilún rétti honum hendi sína. “Eg er syfjuð!—Góða nótt!” Hann leit á hana á meðan hann hélt hendi hennar, og á því augnabliki brann kossinn, sem Luce gaf honum, eins og eldur á vörum hans Hann gat ekki snert varir þessarar elskuðu stúlku, á meðan hann mundi og fann koss hinn- ar stúlkunnar. Það væri saurgun. ‘ ‘ Er þér nú alveg batnað ? Finnur þú ekki til magnleysis lengur?” spurði hann með kvíð- andi svip í rödd og augum. Nelly hélt að hún gæti lesið hugsanir hans og vissi ástæðuna til þess,- að hann hikaði. við að þrýsta henni að hjarta sínu. En nú— nú elskaði hann hana ekki lengur. Hún fölnaði þó hún reyndi að^láta sem ekkert væri. “ Já, eg er albata, ’ ’ sagði hún. “ Eg er að- eins svo þreytt og syfjuð.” “Þá vil eg ekki tefja þig,” sagði hann al- varlegur. “Góða nótt!” Hann hafði snúið sér við, en við löngunina eftir henni réði hann ekki. Hann snéri sér aft- ur við, greip hana í faðm sinn, lagði höfuð henn- ar við rjóst sitt og kysti hana með ákafamikilli blíðu og iðran. Nclly reyndi að losa sig, en gat ekki. Fá- einar sekúndur lá hún hreyfingarlaus; varir hennar snéru að hans vörum, og augu hennar leituðu hans með þeim svip, sem Drake mundi eftir í mörg ár eftir á. Sagan — FOUR “Nell”, hvíslaði ,hann hásum róm. “Eg liefi nokkuð að segja þér á morgun. Eg verð að biðja þig fyrirgefningar. Eg vildi helzt segja Jiér það í kveld, en eg hefi ekki kjark til þess. Á mogun skal eg segja þér alt.” Þessi orð brutu töfrahlekkina. Hún blóð- roðnaði af sneypu, reif sig lausa og flúði inn í dagstofuna. Drake horfði á eftir henni og beit á vörina. “Því þá ekki að segja henni það í kvöld?” •• I • timbur, fjalviður af öllum Wyjar vorubirgdir tegundum, geirettur og ai.- konar aðrir strikaðir tiglar, hurðir og gluggar. Komið og sjáið vörur vorar. Vér erumætíð glaðir að sýna þó ckkert sé keypt. The Empire Sash & Door Co. ————————-------■ Limitcd--------------- HENRY AVE. EAST . WINNIPEG Automobile og Gas Tractor Sérfræðinga v«rður meiri þörf en nokkru sinni áður í sögu þessa lands. Hví ekki að búa sig undir tafarlaust? Vér kennum yður Garage og Tractor vinnu. Allar tegundir véla — L head, T head, I head, Valve in the head 8-6-4-2-1 Cylinaer vélar eru notaðar við kensluna, einnig yfir 20 raf- magnsaðferðir. Vér höfum einnig Automobile og Tractor Garage, hvar oér getið fengið að njóta allra mögulegra æfinga. Skóli vor er *a eini, sem býr til Batteries, er fullnægja kröfum tímans. Vulcaníxing verksmiðja vor er talin að vera sú lang- fullkomnasta í Canada á allan hátt. Árangurinn af kenslu vorri hefir oss til mikillar ánægju sann- fært bæði sjálfa oss og aðra um $ð kenslan er sú rétta og sanna. —Skrifið eftir upplýsingum—ailir hjartanlega velkomnir til þesis að skoða skóla vorn og áhöld. GARBUTT M0T0R SCH00L, Ltd. City Public Market Building. CALGARY, ALTA. Komið til 5^4 King Street og skoðið Electric Washing Machine Það borgar sig að leita upplýsinga City Light & Power 54 King Street hugsaði liann. Þarna var enginn verndandi engill, sem hvíslaði að honnm: “Sá maður, sem hikar, tapar máli sínu!” Og hann hugsaði enn fremur: “Nei, ekki í kvöld—hún er svo þreytt—á morgun segi eg henni það.” Svo yfirgaf hann húsið. .Nelly stóð í miðri stofnnni með kríthvítt andlit og skjálfandi hendur, og meðan Dick tók af sér glófana sína með hægð, horfði hann rann- sakandi á hana. “Ef eg væri í þínum sporum, stúlka mín, þá skyldi eg drekka sterkt púns áður en eg legðist út af í rúmið. Ef þú vilt fara upp núna, þá skal eg búa það til handa þér og koma upp með það. Þú lítur út eins og þú ætlir að fá misl- inga, góða barn.” Nelly hló beiskjulega. “Lít eg þannig út?” sagði hún, lyfti hönd- unum upp, strauk hárið frá enninu og starði fram undan sér. “Máske eg geri það líka.” “Mislinga eða landfarsótt,” sagði hann og horfði enn þá rannsakandi á hana. “Far þú nú upp og háttaðn Nell.” “Eg fer nú,” sagði hún. Hún gekk til hans, lagði hendur sínar á axlir hans, laut niður og kysti hann. “Dick—þér—þykir þér enn þá vænt um mig?” spurði hún með klökkum róm. Hann starði undrandi á hana. ‘ ‘ Hvort mér þykir vænt um þig? Ilamingj- an góða—heyrðu nú, Nell, þú bagar þér ens og flón, og varir þínar voru eins beitar og eldur. Það er eflaust einhver veiki að búa um sig í þér.” Hún hló, hristi köfuðið og gekk upp stigann En bvað henni fundust stigaþrepin mörg! Eða var það af þ\*í, að fætur hennar vorn jafn þung- ir og blý! Þegar hún gekk fram hjá herbergi fi*ú Lortons, hrópaði stjúpan til hennar. Nelly lauk upp dyrunum og studdist við hurðina. “Ert það þú, Ellinor?” spurði frúin. “Þú hefir hátt—þú ættir að vera dálítið varkárari. Þú veizt hve laust eg sef. Eg hefi nýungar að segja þér,” rödd hennar var mjög ánægjuleg. ‘ ‘ Það er komið bréf; hérna er það, lestu það og hugsaðu nákvæmlega um það.”* Nelly gekk reikandi yfir gólfið við birtuna frá næturlampanum, tók við bréfinu, sem henni var rétt. Bauð frúnni góða nótt og gekk inn í sitt herbergi. Áður en hún var komin þangað inn, hafði hún gleymt bréfinu, og misti það á gólfið um leið og hún knéféll við rúmið sitt, lagði handlesrp-ina á hvítu ábreiðuna og skalf frá hvirfil til ilja. “Drake prake, Drake,” ómaði frá skjálf- andi vörunnm hennar. ‘ ‘ Ó, guð, vertu mér mis- l'imsa^nr! Eg get ekki þolað þetta—eg get það ekki!” o- I

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.