Lögberg - 02.03.1922, Síða 5

Lögberg - 02.03.1922, Síða 5
LÖGBERU, EIMTUDAGINN 2. MAEZ 1922. Bla. 5 Hann hefir nú engan verk í bakinu. SYNGUR NÚ LOFGERÐ UM DODD’S KIDNAY PILLS. Saskatchewan maður, sem feng- ið hefir heilsu og þyngst um tuttugu pund, mælir með Dodd’s Kidney PiIIs. Wakaw, Sask., 27. febrúar. — (Hraðfrétt) Simon Gaw'luk, vel- þektur borgari hér, er ákveðinn vinur Dodd’s Kidney Pills. Telur þær óviðjafnanlegar. “Eg er meira en þakklátur fyr- ir að hafa notað Dodd’s Kidney Pills,” segir Mr. Gawluk. “Eg þjáðist af bakverk, en er nú af völdum Dodd’s Kidney Pills al- heill og tuttugu pundum þyngri.” Að sjúkdómur Mr. Gawluks stafaði frá nýrunum, sannast bezt af lækning þeirri, er ihann 'hlaut frá Dodd’s Pills. pær eru ekta nýrna meðal og styrkja nýrun og hreinsa blóðið. Hreint blóð þýð- ir góða heilsu. Spyrjið nágranna yðar hvort Dodd’s Kidney Pills geri ekki skyldu sína. pessi rödd hlýtur fyr eða síðar að hljóma stöðugt í hvers manns huga. Og “hann, herrann”, hjarta guðs, kominn í iheiminn til að sá kærleikanum í hjörtun, og taka þaðan alla beiskju — hann legg- ur fyrst og síðast alla áherzlu á það, um fram alt, að elska guð föðurinn um alla hluti fram. Og engum er gefið meira tækifæri né lengri frestur til að læra það, en hinum gömlu, sem búnir eru að sigla yfir hinn oft svo voðalega ólgusjó mannlífsins, stöðugt elsk- aður og varðveittur af guði, þrátt fyrir alt og þrátt fyrir alt. prátt fyrir alla vöntun á sannri elsku á móti. — pessa sælu ættum við allir og öll hér á Betel í meiri og minni mæli að þekkja. Og svo erum við svo oft mipt á þá sælu í gegn um velvild fólksins, sem það af kærleika sínum keppist við að sýna þessu heimili og stofnun. pað var á laugardaginn, þann 25. þ. m., afmælismánuðinn minn, áður en eg fór upp í herbergið mitt til að fá mér miðda^s-Iúr- inn minn sæta, að mér var sagt, að. nokkrar konur ætluðu að koma hingað til að gefa okkur kaffi með góðgæti kl. 3. pað þóttu mér góð- ar fréttir, og þegar eg var að ieggja aftur augun, datt mér í hug, að það væri leiðinlegt að geta ekki dreymt það, sem maður vildi, því þá hefði eg getað verið hjá konunum og drukkið kaffið bæði^ í vöku og svefni. — En það hefði nú verið of mikið af því góða. Alt er bezt eins og það er. — pað var engin tálvon, sem eg sofnaði út frá. pegar eg vaknaði og kom niður, voru konurnar komnar, all- ar saman ungar konur og falleg- ar- Eg gat ekki náð því hvað þær sem félag kölluðu sig. Nafnið var enskt og eg skildi ekki vel hvað það ■ þýddi, — það var eitt- hvert gleðskapar félag. En þær voru elskulegar og prúðmann- legar ‘í allri framkomu, og kaffið með tilheyrandi ágætlega gott, og þetta var nú alt í sannleika nóg. — Svo eftir að hafa veitt kaffið léku konurnar sjálfar þar á hljóð- færi og sungu með mikið af ís- lenzkum kvæðum og lögum, og líklega enskum vísum einnig, því fyrir víst einar þrjár af þeim voru enskar. En það þótti mér verst, að eg tapaði bæði af söngnum, og af því að fá að kveðja þær pað var alt Mr. J. J. Bildfell að kenna frá mínu sjónarmiði, en honum máske að þakka frá þeirra sjöt, aimiði, að losast við þenna íeið- ir.lega karl, mig. — Eg var nefni- Jega kominn inn í öldungadeilá- *na, og var þar að hlusta ágætu grein eða fyrirlest Mr. Bildfell, með fyrirsc “í deiglunni.” Að henni inni, eða lesinni, óskaði eg væri orðinn “svo j ensku”, að eg gæti snúi? greininni, á enskt mál. var að lesa fyrir okkur þarna í öldungadeildinni Hjálmar Hjálmarsson; koi ac á heimilið í miðjum nc í haust er leið, og hefir lega verið kærkominn gesti að öllum þeim, sem blin. eða á einhvern ihátt bresti hreysti til að lesa sjálfir daga og kveld síðan hann’ I hann einlægt fyrir alla 1] a hann vilja hlusta, 0g e árs gamall. Viðvíkjandi heimsók óatt mér í hug á meða drekka hið ilmandi kaf ar sérstakar náðarg 8áið gefið mannkyni: þeirra, ekki sú sízta deyfandi efni, er 1 voðalegu kvalir, þeí sjúkdómar sæktu að. andi við það datt mé „ * /lð hefði verið láti so ressa °k gleðja og r - m er það’s j«inu™r ''“»•<>? i einung,s það, heldur ri ÍTandÍ hin*a« mt skara . Æ/lnlega, þegar ein íng kemur, en hverfur og ofurlítill tómleiki , avo var það nú, þegar var þögnuð og konuri En það stóð ekki lengi, því fáum mínútum rétt á eftir, komu hér tveir menn. Annar þeirra var Mr. Einar Einarsson, stórbóndi frá Aðnum hér skamt frá, og Mr. Guttormur Guttormsson, sklád, frá íslendingafljóti. Mr. Gutt- ormsson hafði aldrei komið hing- að til Betel fyrri, og þóttist Mr. Einarsson gera okkur hér stóran greiða, eins og hann einnig gerði, að koma með skáldið Ihingað. En því miður var dvöl Mr. Guttorms- sonar mjög lítil hér, þar sem hann átti þó marga góða kunn- ingja og að minsta kosti einn góðan vin, þar sem eg var. En C.P.R. er svo ergilega óbónþæg- in. parna má ekki hinkra við auganblik fram yfir. Hann er hreint ekkert betri en Eaton. — Mr. Einarsson kalla eg ekki stór- bónda vegna þess eingöngu, að hann er stórlega drengur góður, heldur menira vegna þess, að all- ur búskapur hans er myndarleg- ur og í stórum stíl. Til dæmis hefir hann ágæta ljósavél, sem kostaði hann 1200 dali, og fram- leiðir 36 rafljós, sem notuð eru bæði innan um alt húsið og úti ú fjósum og víðar. Húsið er stórt og mjög vandað, og alt eftir þessu. Eg ætla þá ekki að segja meira að sinni, “en kveð alla þá, sem mér eru góðir, með kossi og handabandi, en hina upp á ensku.” Gimli, 28. febrúar 1922. J. Briem. --------o-------- Or herbúðum Sameinuðu Bændafélaganna. U. F. M. Bænda samtökin í Manitoba eru að verða svo veigamikill þátt- ur í framþróunarsögu fylki&búa, að ranglátt væri að geta þeirra að engu. Við og við mun Iblað vort .flytja fregnir af því helzta, sem innan takmarka þess félagsskapar er að gerast, einkum þó að því er við- kemur hluttöku hinna ýmsu bœndafélags deilda í samfélags- lífi hvers héraðs um sig. Nú upp á síðkastið, frekar en nokkru sinni fyr, hafa deildirnar (Locals) verið vel vakandi, og er svo að sjá, sem hið harða árferði hafi á engan hátt dregið úr álhuganum, eins og þó víða vill ibrenna við, heldur einnig það gagnstæða. Deildir þessar hafa víðast hvar á yfirstandandi vetri, stofnað til skemtisamkvæma, þar sem fræð- andi erindi hafa verið flutt af innanhéraðsmönnum, og eins á- gætum ræðuskörungum frá Win- nipeg og fleiri borgurum. Einn- ig hafa fyrirtaks söngkraftar ver- ið víða til staðar, er skemt hafa bæði með einsöngum og fleir- rödduðum söng. pessi samkvæmi hafa víða verið taldir fegurstu sól- skinsblettirnlr, sem skammdegfe- skýin aldrei fengu hulið. Á skemtimótum þessum hefir stundum nokkuð verið rætt um stjórnmálin, svo sem um breyt- ingar á núverandi kosninga lög- gjöf, og má það ráða af umræð- um víðasthvar, að bændur yfir- leitt sé hlyntir fyrirkomulagi hlutfallskosninga og telji í því fólgna æskilega rétttarbót frá því sem nú er. Enn fremur hef- ir það víða komið skýrt í Ijós, svo sem i Marquette og Neepawa héruðunum, að bændur telja sam- •bandsstjórninni skylt, að leggja álla rækt við þjóðeignabrautirnar, Canadian National Railways. Bændafélags deildirnar hafa rú tekið upp þann góða sið, að skiftast á mönnum, láta einn þann færasta úr þessari deild- inni heimsækja til fræðslu og uppörfunar. Slík mannaskifti hafa átt miklum vinsældum að fagna í hvívetna. Kosningar fóru fram í kvenfé- lagsdeild U.F.M., að Grand Nar- rows, í síðastliðnum desember- mánuði, og var stjórnin endur- kosin í einu hljóði. Deildin þar k^ypti Boggy Creek skólahúsið gamla, hefir endurbætt það að mun og gert úr því hina ágætustu samkvæmishöll. Ekki hefir “þarf- asti þjónninn” verið hafður út undan, því rúmgott og hlýtt hest- hús hefir verið reist í námunda við samkomustaðinn, og getur ihestunum því liðið vel meðan eig- endur þeirra eru að skemta sér og ræða um landsins gagn og nauðsynjar. Nýlega hafa fundir verið haldnir í deildum að Langruth, Erickson, Millbrook, Norris-Lake og Teulon, er allir hafa fjölsóttir verið og fræðandi. Alstaðar hefir verið ibrýnt fyrir áheyrendunum, nauðsyn samvinnunnar í iðnaði og annari framleiðslu. Fyrir rúmu ári keypti U. F. M., rjómabú, er nú nefnist Tihe Man- itoba Cooperative Creamery. Árangur þess samvinnufyrirtækis hefir þegar orðið meiri, en jafnvel no'kkrum dreymdi um, og hefir þar skýrt sannast, hve samstarfið getur komið miklu til leiðar, ef einlægni og áhugi fylgir.. Allvíða eru bændafélagsdeild- irnar búnar að' koma á fót góðum bókasöfnum, sem orðið hafa og ■ erða í framtíðinni fjölda fólks til gagns og gleði. --------o-------- Leynir. Svo heitir nýfundinn hellir í Gjábakkahrauni í pingvallasveit, og skýrir hr. Matthías pórðar- son fornmenjafræðingu rí Rvík svo frá honum í Vísi 2. ágúst siðastliðinn: •» í Eimreiðinni var skýrt frá all- miklum helli 1 fyrra, Gjábakka- hélli, skamt fyrir austan Gjá- bakka, og í Vísi var enn sagt frá tveimur minni íhellum skamt þar frá. í fyrrasumar fóru tveir ung- ir menn úr Reykjavík að skoða þessa hella, og kváðust þá hafa fundið enn einn, nokkru austar en hina, og kváðu vera allvíðan helli. Fyrra sunnudag (24. júlí) var eg á pingvöllum og gekk við fjórða mann að leita hellis þessa. Fundum við hann brátt og geng- um í hann allir. Um 67 m. frá opinu, sem er svipað og á Gjá- báldcahelli, fundum við miða með nöfnum piltanna tveggja. Leituð- umst við nú við að komast lengra lengra og fundum framhald hell- isins hægra megin, fremur þröngt op í miklu niðurfalli. Gátum við komist inn fyrir þau þrengsli og hélzt þó urðin nær óslitin, en héll- irinn allhár og víður. Nokkru innar komum við að svo miklu niðurfalli, að nær fylti ihellinn og varð ekki komist yfir það. Vinstra megin yst fann eg þó enn smugu eina litla og gátum við með naum- indum komist þar inn um, eftir að hafa rýmt nokkuð til. Enn gengum við um stund og sóttist janan seint, því urð var mikil á botninum víast hvar og niðurföll nokkur stór og mjög ógreitt um- ferðar, en ljósáhald höfðum við að eins eitt. Loks tók hellirinn að lækka mjög undir loft og stóð þar stoð ein á miðju gólfi, en litlu innar var hellisbotninn. Létum við þar eftir á vörðu lítilli, er við hlóðum, miða með nöfnum okkar og danska mynt slegna á þessu ári. Á útleið athuguðum við ýmis- legt betur og fann eg þá aflhelli á vinstri hönd eða vesturúr, innar- iega. Var hann víður mjög sum- staðar, en fremur lágur, nokkurra tuga metra langur á að gizka; hann greindist í tvo eða þrjá hella með víðurn, flötum hvelf- ingum, óhrundum; var inan til vel manngengur og hinn vistleg- asti. Aðal íhellirinn var um 6 m. að vídd og 3 að hæð þar sem hann virtist óhruninn, en hvergi sáust svo reglulegir og fallegir hellis- veggir sem í hinum hellunum. Sumstaðar varð vart við leir, er komist hafði með vatni gegnum hvelfinguna og virtist hellirinn ekki vera djúpt í jörðu. Framar- lega mjög var afar digur stoð í miðjum hellinum og þó vítt beggja vegna. Á leiðinni inn hellinn létum við rekjast band af hnykli og hnýtt- um á merki inni við hellisbotn- inn. Á útgöngunni undum við bandið upp aftur og mældist það sðar 233 m. 742 fet), en aðgæt- andi er, að 'bandið var dregið upp og ofan öll niðurföllin. Gjábakka- hellir var um 70 m. lengri. peir voru með mér Ólafur stú- dent Ólafsson frá Geldingaholti, og Eyfirðingar tveir, Tryggvi Magnús og Finnur Sigmunds- son. Enn kunna að finnast hér fleiri hellar á þessu svæði; ættu ungir menn að fara til pingvalla og gera sér það til gamans og fróðleiks að rannsaka betur hraunið og leita fleiri hella. — Nauðsynlegt er að hafa gott ljósáhald, helzt reið- hjólaljós. --------o-------- ÓDÝR HERSKIP. Nú þegar Englendingar og Ameríkumenn eru að gera samn- inga um það, að draga saman flota sina, og leggja niður all- mikið af skipum, gæti það verið ómaksins vert, að láta athuga vandlega, hvort ekki væru þar á meðal skip, sem væru hentug til landvarna hér. Má búast við þvi, að ef svo væri, þá mætti fá skip fyrir lítið eða alls ekki neitt, því að öðrum kosti verða þau rif- in eða eyðilögð á annan hátt, og það ef til vill ný og ágæt her- skip. Englendingar eru að ræða um það, hvort ekki muni vera hægt að nota þau til geymslu, eins og gamla “barka”. peir vita sem sagt ekkert hvað við þau á að gera, en finst leitt að rífa þau. Og líkt er vafalaust um Ameríku- menn. “Fylla” hefir reynst ágætt skip til landhelgisvarna og hún er “sloo” úr enska flotanum. Gæti vel farið svo, að slíkt skip fengist ókeypis eða því sem næst — með rá og reiða. Væri það ekki, eins Og áður er sagt, ómaksins vert að láta at- huga þetta? pað gæti aldrei kostað mikið. M. —Vísir. Freiherr von Jaden og lsland. Um tuttugu ár munu nú frá því, er Dr. Hans Krticzka Freiherr von Jaden kom síðast til íslands, og fyrnist margt á skemri tíma, — en þeir sem kyntust íhonum hér heima, muna hann vel og eins hefir hann haldið óslítandi trygð við ísland öll þau ár og verið einn bezti vinur erlendis. Nýskeð hefir hann verið beðinn að flytja fyrirlestra um ísland í háskóla Vínarborgar og ætlaði hann að verða við þeim tilmælum. Hann er ef til vill sá útlendingur, sem flesta fyrirlestra hefir haldið um ísland og hafa þeir allir verið fjölsóttir og mjög rómaðir. pað eitt, að Vínarháskóli ihefir snúiðl sér til hans til að fræðast ýtar- lega um ísland, sýnir betur en nokkuð annað í hve miklu áliti hann er. Oft hafa honum bor- ist foeið%ir úr fjarlægum stöðum um að flytja erindi um ísland og þó að þann hafi fúslega viljað verða við þeim tilmælum, þá hef- ir hann ekki æfinlega komið því við vegna embættisanna. Dr. von. Jaden hefir nú um 25 áraskeið verið dómari í lands- dóminum f Vín, en isíðastliðinn júlímánuð, á 25 ára dómara af- mæli hans — var hann gerður að yfirdómara. Kjör hans eru eins og kjör annara em'bættismanna Austurríkis og mundu þau þykja flestum útkjálka-mentamönnum hér harla óviðunandi. Allir íslendingar, sem komið Ihafa til Vínarlborgar síðastlíðinn aldarfjórðung, hafa verið boðnir og velkomnir á heimili hans og konu han,S, frú Ástu Jaden, sem mjög er í hávegum höfð og mikils- metin þar í borginni "og betri en nokkur útsendur sendiherra fyrir ísland,” eins og merkur útlend- ingur sagði nýskeð við íslending, sem þar var á ferð. Gestrisni og alúð þeirra hjóna er mjög við- brugðið og heimili þeirra talandi vottur um ísland, — íslenzkasta heimili sem til er, að því leyti, að hvervetna er þar skreytt íslenzk- um munum, ábreiðum söðlum, trafakeflum, kolum og fleira þess háttar. Pó að mjög hafi skift til hins verra um fjárhag þeirra hjóna vegna styrjaldarhörmunganna þá eru þau glöð og halda rausn sinni. Mjög er þeim kært að ræða um Island og málefni þess og fylgja öllu af áhuga, sem bér gerist. Dr. Jaden les og skilur íslenzku full- komlega, en talar hana eklci að jafnaði. í bókasafni hans eru margar ágætar íslenzkar bækur, bæði gamlar og nýjar og siunar mjög fágætar, en síðan 1914 hefir hann enga íslenzka bók keypt, vegna hins afaróhentuga gengis- munar, og harmaði hann það mik- ið. Landi voru er það mikill sómi og ómetanlegur hagur, er svo mikilsmetinn maður sem Dr. Jad- en gerist ótilkvaddur talsmaður þess og vinnur því eins og hinn þezti fulltrúi eða ræðismaður Má ekki minna vera en þess sé lofsamlega minst og væri vel, að hann fengi einJhverntíma að verða þess var að viðleitni hans væri metin að makleikum hér á íslandi. Víðförull. —Vísir. --------o-------- “NÚ GET EG EKKI GEFIÐ TIL BAKA.” Eftir Monetalis, í Vísi). petta er svarið í öllum búðum um allan bæinn, þegar einhver á að greiða gjald, er ekki stendur á krónu. Enginn hefir smápen- inga. Gull er löngu horfið, var lítið notað og sjaldséð, þótt það værþ aðalmyntin. Tvíkrönum og krónum úr silfri tók mjög að fækka á stríðsárunum, og á síð- ustu árum hafa þær 'horfið. Tutt- ugu-og-fimm-eyringar og tí-eyr- ingar úr silfri fóru að verða sjaldsénari og sjaldsénari. pá komu nikkelpeningarnir í þeirra stað. En nú eru allir þessir smá- peningar ihorfnir burtu; já, meira að segja eir-peningarnir og járn- peningarnir, sem slegnir voru á stríðsárunum, hafa sópast burtu líka. “Hvað er orðið af öllum þessum peningum?” spyrja menn. “pað eru einhverjir sem safna þeim,” segja sumir. Áður sögðu menn, að Islands- banki safnaði silfrinu til að auka málmforða sinn. O-nei, menn safna þeim ekki. Peningarnir fara þangað, sem þeir eru hafðir í meiri metum; þeir eru metnaðargjarnir. Ef þeir eiga að fá að njóta fullrar virðingar sinnar, verða þeir að fara úr landi — og þeir eru nú flestir farnir. Heiðarlegar silf- urkrónur vissu það, að þær stóðu í raun réttri hærra í tigninni, en prentaðir pappírsmiðar, er hvergi gátu sýnt sig nema heima fyrir, já, og voru oftast þannig til reika, að þeir gátu það jafnvel ekki heldur. Svo yfirgáfu útlejidu silfurpeningarnir alla ísl.banka- seðlana og krónumiðana og fóru út fyrir pollinn eins og hitt fína fólkið; og svo skoppuðu allir aur- arnir á eftir; þeir voru ekki allir þar sem þeir voru séðir — á ís- landi; þeir voru meiri fyrir sér. Nú situm við eftir með alla okkar seðla, sem kalla sig pen- inganöfnum og lifa á gamalli viðurkenningu, sem þeir fengu þegar þeir voru fulltrúar fyrir hreina, glóandi gullpeninga. En þeir eru nú samt farnir að lækka í tigninni; þeir finna það ekki að eins þá er þeir bregða sér út fyrir pollinn og hitta fyrir sér nafna sína í kóngsins Kaup- mannahöfn. peir finna það líka heima, þegar þeir eru sendir í búð- irnar, þeir fá ekki eins góð við- skifti og áður. En þótt þeir séu lítils virði, krónumiða-rgeyin, þá eru þeir að nafninu til 100 aurar, og af vana erum við að telja sumt í aurum, og þá vantar aurana, enginn getur “gefið til baka”! pað verður að gefa út aura- miða iíka. — En að brúka frí- merkin? Hafið þið séð frönsku auramiðana? pað eru frímerki, sett innan í svo ágæt og falleg gegnsæ hylki. Kaupmennirnir gera það sjálfir, í stórum stíl, og ríkið selur þeim frímerkin. En kaupmennirnir eru fegnir að fá þau, því að þeir auglýsa verzlun sína á hylkjunum og þeir geta S. Sigíússon að Lundar SELUR NÚ Titan Tractor og 3. botna P. og 0. Plóga fyiir $839.50. pessi kostaboð til viðskiftavina hans standa næstu tvo mánuði. pessir Tractors eru af nýjustu gerð, og sama er að segja um Plógana. peir sem ætla að kaupa verkfæri í vor, ættu að skrifa hon- um eða tala við hann bráðlega. S. Siáfussoit, - I.imdar, Man. ’gefið til baka.” Já, það getur verið ansi hentugt þetta með frímerkin, en betur kann eg við slegna mynt. Hún dugir líka betur til allra okkar “sæfara og barðræða.” En ef okkar peningar verða eins og nágrannanna og eins mikið metnir og þeir,sópast þeir þá ekki burt úr landinu líka, allir, allir, hversu marga sem við sláum? Jæja, ef það sannast, að við getum ekki haldið uppi fullri virð- ingu þeirra heima, þá sláum við aðra nýja, sem við kyrsetjum heima og skipum á bekk með bankaseðlunum okkar og höfum bara til að “gefa til baka“! L J O Ð M Œ L I 1. Eg reið um fagra fjallaslóð þars fjólan grær í lautum smáum, en birkiskógar blómgva lóð og blærinn leikur sér að stráum, þar lækjarbeltin buna tær um bratta hlíð í dalinn niður og foss í þrengslum hamra blær sem hrynji bára ströndu viður. séra GUÐLAUG GUÐMUNDSSON, prest á Stað í Steingrímsfirði. 11. pú vita skalt, að ein ei ert í eyðilega fjallasalnum. Eg fylgdi þér um fótmál hvert, sem farið hefir þú i dalnum; og hvert sinn, þegar sólin hlý er Bigin niður að hafsins straumi, í sélinu hérna’ eg hjá þér bý og hjala’ við þig um ást í draumi.’1 2. par niðar elfa ofan dal og óteljandi fossa myndar en þeirra hljóð í hamra sal þar háir endur-kveða tindar , þar synda lækjum endur á með unga-fjöld á sumardögum og lömb í flokkum leika smá í laufa kvikum skógardrögum. 3. Eg bélt svo fram sem leiðin lá um langa stund i dalinn væna um flatar sléttur fram með á unz fyrir.mér varð lækjarspræna þar selrúst gömul sést vel enn er svanbvít forðum bygði meyja en bún var eins og aðrir menn að ekki komst bún hjá að deyja. 4. En lautin sem hún sat oft í um sumarkvöld í aftanblænum þá gullinn roði reifði ský og ró varð yfir hlíðum grænum hún Iblikar enn af eyrarós sem á í hennar skauti rætur, þá kallar sumar sólarljós frá svefni vetrar blóm á fætur. 5. En nú eru síðan ótal ár að Áslaug sat í dalnum fríða og gætti þar sins föðurs fjár í frjóum brekkum grænna hlíða hún annað sjaldan heyrði hljóð en höfgan nið í fossi gráum sem kveður jafnan ástar óð um öldurnar á straumi bláum. 6. Henni fanst þó lífið leitt sem lifði hún þar í fjallasalnum því það var alt og ekki neitt er auga mannlegt sá í dalnum er festa mátti elsku á í einverunni fljóðið bjarta en þó var einhver ástarþrá sem órótt gjörði meyjar hjarta. 7. Um morgun einn hún blundi brá er bjarma sló á skjáinn þunna. Og nætur-tár af blóma brá hín ‘blíða þerrði morgunsunna. pá lifna sýndist sérhver grein við sólar yl og birtu ljósa, en gr'átin settist Áslaug ein á eyrina sína milli rósa. 8. Hún grét að vera ávalt ein, sem útlæg fram á regin-fjöllum, en í því bili sá hún svein, hann sýndist fegri mönnum öllum, er áður fyr í sveit hún sá, hann silkiklæði rauðleit skreyttu, með andlit bjart og augun blá, sem ástar geislum frá sér þeyttu. 9. pars fagurlokkað fljóðið beið hinn fríði sveininn staðar nemur, og talar þítt á þessa leið: “Eg þekkja vil hvað til þess kemu- að þornar ekki dögg um dag á dýrstri lilju meðal blóma, og æskan syngur sorgarlag um svikula ást og reynslu tóma. 10. Ef grætur þú, hin góða mær, eg glaður lifa má ei heldur; mín vonar-sól, sem skín isvo skær, þú skilur ei hvað slíku veldur; en álfasveins er 'hjartað hlýtt og hreinni ást þar muntu reyna, en finna máttu, fljóðið blítt, í fölsku brjósti menskra sveina. II. 1. 1 rósablöðum blómálfarnir smáu búastað eiga hlýju sumri á. peir gægðust fram, en hvað var sem þeir sáu, er sólargeislinn varmur kysti þá? peir sáu mey í faðmi sveinsins fríða, og fuglinn litli söng á birkigrein. pau sjá éi hvernig sælu tímar líða, og svipill norn þau bak við stendur ein. 2. Og blómálfarnir höfuð létu bníga, þá heyrðu að fuglinn söng um örlög grimm, sem væri hinsta sumarsól að hníga í sollnar öldur bak við skýin dimm. En elskendurnir sáu ei veru svarta, Er sat þeim nær og feiknstaf báðum reit. pau hvíldu vært á beði rósra bjarta og beggja hjörtu saman slóu heit. 3. Á meðan sumarsunna dalnum hlúði og svanur lék á tjörn í klettaþröng, þar lifði sveinninn sæll hjá ungri brúði, í sjafnar draum, þeim tíðin fanstei löng. En daginn stytti, sól að ægi svölum settist snemma, dögg varð ihéla grá, rósin féll á 'bleikum jarðar bölum og iblómálfanna hópur leið í dá. 4. Nú kom haust—og harðir norðanvindar hrista bliknuð lauf á skógargrein, dísin hinnar litlu, bláu lindar þá ljóð um vetrarkulda syngur ein. Faðir þá með fák að heiman vendi, fagurt til að sækja meyja val. pá var hinnst að hryggu auga rendi hárfríð drósin yfir sæludal. III. 1. pað var á aftni einum, er eigló fögur hneig að sævi himin-hreinum og Hjálmar sló á teig, að fljóðið hans ið fríða, sem fól í hjarta sár, í hljóði sá til hlíða og höfugt feldi tár. 2. Hundur gó, en halur í hlaðið ríða vann, frár, sem flýgi valur, fákur á skeiði rann. Sá var silki skrúða seggur rauðum á. Hann veik að blómi brúða, er bliknaði sjón við þá. 3. Áslaug örmum vafði hinn ástarblíða hal, er sífelt syrgt hún hafði frá siðsta fund í dal. En nú að norna dómi þau ná-dys vígði köld, er síðsti sólarljómi á sæinn skein það kvöld. 4. pví hvort í annars örmum sinn anda mistu þar, en burt frá hejmsins hörmum þær helgu sálirnar svifu um leiðir ljósar, léttum vængjum á. Ást við drengs og drósar dauðinn brosti þá. Poleticus 1913. Alþýðan skal að eins fórn, hún er og verður kálfur; eg vil heimta heimastjórn, en hafa völdin sjáflur. Mig ef eigi seggir sjá, sem eg allvel þekki, það er segin saga þá: eg sé þá heldur ekki. A porraþræl. Hríðar-orri mæðir mitt minnisknarar svæði, stríðinn porri syngur sitt síðsta farar kvæði. STÖKUR. Leiðindi. Vonar dapurt lýsa log, þá leiðindin að sverfa, þau eru líkt og leyftra-flog, sem líða hjá og hverfa. Jeg er stundum hetja hörð, held ei neitt mig bugi, hugurinn yfir haf og jörð hefur sig á flugi. pá hamförum andans í út um líð eg geiminn, augum smáum on'um ský yfir lít jeg heiminn. pegar loks jeg vakna við, af værum skálda draumi, hrekst jeg innan um hark og nið iheimsins fyrir straumi. Mörg er byrðin þrauta þung, þó skal engu kviða, vilji Guð mun öndin ung endast til að stríða. Vísa, sem ort var, þegar fjöld- inn fékk atkvæðisrétt frá 25 ára aldri: Ráð eru köld og heimskan hylt, húmi földuð gjöldin, nú er öldin nógu vilt, nú hefir fjöldinn völdin.

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.