Lögberg - 22.03.1923, Blaðsíða 1
Það er til myndasmiður
í borginni
W. W. ROBSON
Athugiö nýja staðinn.
KENNEDY BLDG. 317 Portage Ave. Mót Eaton
SPEiRS-PARNELL BAKÍNGCO.
ábyrgjast yður
fulla vigt, beztu vörur fyr-
ir lœgsta verð sem verið
getur. REYNIÐ ÞAÐ!
TALSlMI: N6617 - WINNIPEG
35. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 22. MARZ 1923
NUMER 12
JL
Magnús Paulson dáinn.
Á sunnudaginn var, 18. þ. m., lézt Magnús Paulson að
heimili sínu, 784 Beverley Street, Winnipeg, úr innvortis-
sjúkdómi. Jarðarför hans fer fram í dag (fimtudag), og
hefst með húskveðju á heimilinu kl. 1.30. Svo verður
líkið flutt í Fyrstu lútersku kirkju og athöfninni haldið þar
áfram kl. 2.30. Magnús heitinn veiktist um miðjan des-
embermánuð, svo að hann varð að láta af ¦ vinnu, en hafði
þó fótavist þar til síðustu tvær vikurnar, og fulla rænu svo
að segja til hinstu stundar, Með Magnúsi heitnum er fall-
inn í valinn einn af atkvæðamestu mönnum Vestur-
íslendinga.
Cyrus E. Woods' sendiherra
Bandaríkjanna á Spáni, hefir verið
útnefndur af Harding forseta tii
sendiherra í Japan, í stað Charles
B. Warren, er látið hefir af því
embætti. Alexander P. Moore
í Pittsburg, hefir verið skipaður tiil
að gegna sendiberraembætti á
Spáni.
Bretland.
Canada.
Hin konunglega rannsóknar-
nefnd, er setið hefir um hríð á
rökatólum ;í þeim tilgangi að reyno.
að kounast fyrir um, ihvað hæf+.
væri í því, að eigendur skipa
þeirra, er vörur flytja milli hafn-
staðanna við Vötnin miklu, hefðu
stofnað með sér nokkurskonar
samábyrgð, er réSi átölulaust lof-
um og lögum hvað farmgjöld á-
hrærði, er nú í þann veginn að
Ijúka starfi sínu. Virtist almenn-
ingur líta svo á að téð sam-
tök skipaeigendanna, befðu orðlð
bændum til hins mesta tjóns, þar
sem þeir að sjálfsögðu neyðast til
aðj nota iskipin til flutninga fyrir
korn ®itt, hvað svo sem farmgjöld-
unum 'liði.
Nefndin sat að verki í Winnipeg
alllangan tirna og eins í fleiri
borgum vestanlands. Mismunandi
skoðun kom í ljós hjá vitnum þeim,
er nefndin yfirheyrði og það svo
mjög, að erfitt mun vera, ef ekki
með öllu ókleift, að renna grun í
hvier árangurinn af starfi hennar
kann að verða. Nú hefir nefndin
lokiS störfum sírtum i Montreal
og telja austanblöSin suma vitn-
isburSi þá, er þar voru framborn-
ir, svo allsendis ósamhljóða, að
ekki sé viðlit, að draga af þeim
nokkrar ábyggilegar ályktanir,
enn sem komið er.
* * *
Umræður um innflutningsmál-
in í samibaridsþinginu, urðu bæði
harðar og langar og varð að fresta
þeim þrisvar, áður en fjárlagalið-
irnir í sambandi við þau, hluiii
samþykki. Voru skoðanir þing-
manna ærið skiftar, um uppá-
stungur þær, er ráðgjafi innflutu-
ingsmálanna, Hon. Oharles Ste-
wart, tlagði fram. pótti ýms-
um þær ekki nógu ákveðnar, en
aðrir tö|ldu þær helzti strangar.
Sumir austan þingmanna töldu
ástandið í Sléttufylkjunum þan.i-
ig, að ekki væri árennilegt að
hvetja nýbyggja þangað, und r
núverandi kringuanstæSum. pessu
mótmæltu vestan þingmenn all-
flestir og sögðu stórflæmi enn ó-
bygð vera vestanlands, er vel
væru ihæf til áibúðar og biSu þess
að «ins, að hönd yrði lögð á
plóginn.
* * *
Eins og getið hefir verið um
hér í blaðinu, þá undirskrifaði
Hon. Ernest Lapointe, fiskiveiða-
ráðgjafi, fyrir hönd sambands
stjórnarinnar, samning um bei-
lagfiskiveiðar við Bandarík-n.
Þess var og getið, að þar mundi
vera að ræða um hinn fyrsta ut-
anríkissamning, eða sáttmá'la, e.-
Canadastjórn hefði gert upp á
eigiíS eindæimi, án nokkurrar .'-
hlutunar frá brezkum stjórnar-
völdum. Töldu margir þetta
Jkveðifi spor í ^jálfstaaðisáttina,
^ar á meðal blaðið Maritoba
Free Press.
Hoii. Arthur Meighen, ltiðtogi
ihaldsflokksins, krafðiist þess, að
stjórnin tog8i fram f þinginu
skjól ÖI«I og skilríki er samning
Þenna snertu og varíi stjórnin vel
vi« því. Gögn þau er .stjórnin
lagð, fram sýndu, að ,hún leit svo
•i. að hér væri um að ræða
!nal, er að eins snerti Canada og
HamdarLdn, og vær; Bretun. því
a'Idendis óviðkomandi. pesou
til stuðnings benti stjórnarfor-
maðurinn ú það að, Bonar Law,
forsætisráðgjafi Breta, hefði lýst
I yfir því, að hann sæi ekkert ai>
i hugavert við samninginn, né
í heldur aðferðina, sem viðhöfð var,
að því er undirskriftina áhrærði.
I íHitt upplýstist þó, að sendíherra
Breta í Washington, Sir Auck-
i land Geddes, var mótfallinn ný-
imæli þessu og fór fram á að
| mega undirskrifa samninginn
I líka fyrir hönd Canada stjórna.-.
; ásamt Hon. Ernest Lapointe. Af
: því varð þó ekki í fyrstunni og 6-
il'íklegt talið, að nokkru verði um-
breytt héðan af, úr því sem kom-
ið er. Landstjórinn í Canada,
lávarður Byng af Vimy, hafði með
símskeyti útvegað fiskiveiðaráð-
gjafanum fult umboð til þess, að
undirskrifa téðan samning.
Stjórnarformenn Sléttu-
fylikjanna þriggja, Hon. John
Bracken í Manitoba, Hon Herbert
Greenfield, forsætisráðgjafi i Al-
iberta og Charles Dunning, Sask-
atchewan, áttu fund með sér í
Regina síðastliðinn laugardag, til
til þess að ræða mm kornsölumál-
ið og reyna að komast að ein-
hverri niðurstöðu um það, hverja
stefnu skyldi i því taka. Er mælt
að mótspyrnan í Manitoba þing-
inu, gegn hinni fyrirhuguðu korn-
sölunefnd, muni hafa gert stjórn-
arformönnunum töluvert orðugra
fyrir, með að finna sameiginleg-
an starfsgrundvöll.
Engar greinlegar fregnir, eru
enn við hendina af ráðgjafa
fundi þessum.
peir Maurice Duprey, fyrrum
, fylkisþingmaður í Manitoba, frá
St. Elizabeth, og Dr. M. B. Rom-
| bough, dýraiæknir í Winnipeg,
; voru teknir fastir síðastliðinn
! fimtudag og sakaðir um að hafa
stolið nálægt fjórutíu þúsundum
dala frá Adanac Grain félaginu
og Inter-Oceanic Grain félaginu.
'Æenn þessir vovu látnir lausir
gegn þrjátíu þúsund dala veði,
i þar til mál þeírra kemur fyrír
rétt. Félag þetta, sem 'kunnugt
;cr fór á hausinn fyrir aMönen
i o gvar forstjórinn Edouard Bess-
ette, furdinn sekur um ,þv'>fnað
og dæmdur í þriggja ára betrun-
arhúsvist.
Sir Jobn E. Tilley, sendiherra
Bretastjórnar í Bazilu, er nýlagð-
ur af stað heiim til Englands og
gerir ráð fyrir að dvelja þar fjóra
til fimm mánuði sér til heilsu-
bótar. Hefir hann gengt sendi-
herra embætti þar á þriðja ár.
* * *
Aukakosningar fara fram í
tveim kjördæmum á Bretlandi inn-
an skamms. Hin fyrri er í Lud-
low kjördeildinni í Salop og hefir
stjórnarflokkurinn útnefnt þar
Col. George Clive. Bændur sem
h.'fjlast að stefnu íhalds eða stjórn-
arflokksins, eru sáróánægðir með
þingmannsefnið, með því að þeir
vildu fyrir hvern mun fá C. Ric-
hard Kilvert. Má því nokkurnveg-
inn ganga út frá því sem gefnu, að
sökum Iþess klofnings, muni
stjórnin tapa kjördæminu. Sú
siíðari fer fram í Angelesy kjör-
dæminu, er losnaði) við fráfall
Brig-Gen. éir Owen Thomas. —
Stjórnin gerir sér litlar vonir um
að vinna þetta kjördæmi, með því
að verkaflokksmaðurinn, er þar
ibýður sig fram, E. T. John, er
þjóðkunnur áhrifamaður og sagð-
ur að njóta þar afar mikils fylgis.
Ófrétt er enn um afstóðu frjáls-
lynda flokksins, ' eða flokksbrot-
anna, til þessara aukakosninga.
* * *
í ræðu, sem Sir John Simon,
einn af allra áhrifamestu stuðn-
ingsmönnum frj^slynda flokks-
Lrotsins í enska þinginu, 'þess er
Herbert Asquith veitir forystu,
flutti nýlega, fór hann afar hörð-
um orðum um yfirgang Frakka í
Ruhr héruðunum. Taldi hann
afarilla hafa tekist í fyrstu, er
friðarþingið í Versölum lét skaða-
bótamálið að heita mátti afskifta-
laust. Síðan hefðu menn verið
að leika sér að skaðabótakröfunum
ilnefna afskaplegar upphæðir,
sem enginn minsta vissa hefði
fengist fyrir, að pjóðverjar gætu
nokkru sinni greitt. Gekk Sir
John það langt, að hann kvaðst
ekki betur sjá, en að Frakkar væru
að nota skaðabótakröfuna að yfii-
skyni til þess að eiga því hægra
með að innlima þýzk landflæmi.
Frá íslandi.
Bandaríkin.
Dómsmálaráðgjafi Bandaríkj-
anna, Mr. Daugherty, lýsti nýverið
yfir þeirri skoðun sinni að Miami
Beach, Florida, að Republicana
flokkurinn mundi á næsta ári út-
nefna Harding forseta af nýju o.;
mundi enginn annar maður úi-
þeim flokki láta sér til hugar
koma að sækja á móti honum.
"Flokkurinn krefst þess að Hard-
ing verði endurkosinn og þjóðin
gerir það Hka," bætti Mr. Daug-
herty við.
Lieut^CoI. Dwight F. Davis, frá
St. Louis, hefir verið útnefndur af
Harcling forseta, til vara hermála-
ráðgjafa, í stað James Mayhew
Wainright, er kjörinn var til
þingmanns í neðri málstofunni við
síðustu kosningar.
* « •
Nýlátinn er W. Bourke Cockrar,
þingmaður frá New York, nafn-
kunnur mælskumaður, sjötugur að
aldri.
Erindi flytur í Bárubúð á
sunnudaginn (4. febr.) íllenzkur
maður, Pétur Breiðfjörð, og mun
mörgum þykja efni þess nýstár-
legt og fræðandi. Segir hann
frá 5 ára þjónustu í Canada hern-
um. Að frásögn hans verði
að mörgu leyti merkileg má m. a.
annars ráða af þVí, að hann hef-
ir tekið þátt í sumum stærs-bi
orustum heimsstyrjaldarinnar, t.
d. við Ypres, Somme og áhlaupinu
við Vimy-hæðir. Má vafalaust
vænta sannfræðandi og greini-
legrar frásagnar, er sjónarvott-
ur segir frá þessum hrikaleik.
* * *
pesisir umsækjendur um banka-
stjórastöðurnar voru nefndir í
gærkveldi: Eggert Briem f rá
Viðey, Jens B. Waage bankabók-
ari, Jón Laxdal stórkaupmaður,
Joii Sveinsson borgarstjóri á
Akureyri, Lárus Fjeldsted
hæðstaréttarmálaflutningsmaður
Magnús Guðmundsson fyrv. fjár-
málaráðherra, Martin Bartels
bankamaður í Khöfn og» Viggo
Björnsson bankastjóri í Vest-
mannaeyjum.
Nýlega er látin <hér á sjúkra-
húsniu ungfrú Málfríður Jóns-
dóttir frá Klömbrum í pingeyj-
sýslu, heitmey Hallsteins Karls-
sonar frú. Húsavik. Málfríður
var stórmyndarleg og vel látin
stúlka. Einnig er nýlátin hér í
bæ, Valgerður, Sigurðardóttir,
kona Ólafs porsteinssonar öku-
manns og Ragnhildur Metúsal-
emsdóttir, ekkja eftir séra Stefán
Pétursson síðast prest að Hjalta-
stað, en tengdamóðir Davíðs Sig-
urðssonar, timburmeistara. Dag-
ur 11. jan
Síkuggamyndir og fyrirlestur
Lárusar J. Rist kennara á sunnu-
daginn var vel sóttur og gazt
mönnum vel að. Hann sýndi
fjölda mynda frá ferðalagi sinu
og frá Ameríku víðsvegar bæði
frá borgum og landsbygð. Skýrði I
hann þær vel og skilmerkilega;
sagði margan fróíleik frá íslend-
ingum vestan Ihafs. Bar hann
þeim ágætlega söguna, en hvatti
ekki til vesturflutninga. Myndirn-
ar voru <svo margbreytilegar ag
góðar, að sjaldan eða aldrei munu
slíkar myndir hafa verið sýn.lar
*ér. Einkum voru myndirnc.r
frá Nigarfossinum stórtfengleg-
ar. —-Dagur 25. jan.
Akureyrarkirkja er fyrir löngu
orðinn of litil fyrir söfnuðinn og
auk þess. mjög illa sett í bænum.
Margir Akureyrarbúar hafa því
mikinn áhuga á því, að komið
verði upp nýrri kirkju fyrir bæ-
inn. Hefir það mál verið í und-
irbúningi um langt skeið. Nú er
hér í blaðinu auglýstur aukasafn-
aðarfundur, til þess að ræða um
málið og vill blaðið hvetja bæjar-
búa, til að sinna þessu máli og
sækja fundinn. —^Dagur 25. jan.
Nýlega er látin hér í bæ Elín
Árnadóttir, Friðrikssonar frá
Skáldalæk, efnileg stúlka, 11 ára
gömul. Sömuleiðis porsteinn
ólafsson, aldriaður verkamaður.
Nýlega er og látinn merkisbónd-
inn Tryggvi Ólafsson á Gilsá í
Saurbæjarhreppi, rúmlega sex—
tuguv að aldri. —Dagur 25. jan.
Sigurður Sigurðsson forseti
Búnaðarfélagsins fór utan upp úr
nýárinu. Fer til Kristianíu og
dvelst þar um hríð. Búnaðar-
þingið á að koma saman 5. april.
í gær um kl. 2, kviknaði í "Hó-
tel ísland". Var slökkviliðið kvatt
tiil hjálpar og tókst þvi brátt að
slökkva ;!n j^eas að nota spraut-
urna iknaí í milli
lofta yfir fatageymsl'u klefa við
veitingasalinn. —Vísir 12. febr.
Látinn er á Landkotsspítala
Árni M. Guðmundsson, námsmað-
ur á Stýrimannaskólanum. Hann
var ættaður frá Skrapatungu í
Húnavatnssýslu. Hann var efnis-
| maður, tuttugu og tveggja ára
! gamall.
Séra Jón Thorstensen á ping-
völlum hefir fengið lausn frá
prestskap fi'á næstu fardögum.
í morgun (l^.'febr.) andaðist
Jón bóndi porsteinsson á Kalastöð-
um á Hvalfjarðarströnd, faðir
Snæbjörns stjórnarráðsritai'a.
Góður afli er nú í Miínessjó,
þegar gefur á sjó. En í Vest-
mannaeyjum hefir lítið aflast til
þessa enda miklar ógæftir.
Séra Bjarna Jónssyni dómkirkju
presti, hefir verið boðið á hina al-
mennu prestastefnu í Danmörku,
se mhaldin verður um miðj'an ma>
mánum og hefir hann jafnframt
verið beðinn að halda nokkra fyr-
irlestra og samkomur þar í landi.
Elías F. Holm og kona hans hafa
orðið fyrir þeirri sorg, að missa
son sinn, Athos, tveggja ára gernl-
an.
Fjórða ársþing
þjóðræknisfélags Islendinga í
Vesturheimi.
Eins og auglýst hafði verið í
blöðunum var þingið sett og hald-
ið í íslenzka Goodtemplara hús-
inu í Winnipeg dagana 26.—28.
febr. s. 1.
Forseti félagsnis, séra Jónas
A. Sigurðsson, setti þingið kl.
2,20 eftir hádegi hins fyrsta
þingdags. Var fyrst sunginn
sálmurinn "Faðir andanna;" því
næst las forseti biblíutexta, og
séra Guðm. Árnason flutti bæn.
Var þá tekið til þingstarfa. Rit-
ari las dagskrá þá er auglýst
hafði verið í blöðunum og var
hún samþykt að því eina ákvæði
viðbættu, að kosningar ekyldu
fram fara kl. 3 e. h. síðasta þing-
dag.
pessi mál lágu fyrir þinginu:
Skýrslur embættismanna.
Grundvallarlaga breytingar.
Stofnun söngfélags.
Samvinna og mannaskifti við
ísland.
Sjóðstofnun til íslenzkunáms.
Útgáfa Tímaritsins.
Islenzku kensla.
Útbreiðsla félagsins.
Ný mál og kosningar embætt-
ismanna.
Forseti las ritaða skýrslu í á-
varpsformi til þingsins. Gerði
hann þar grein fyrir starfi sínu
og félagsins á árinu. Gat luum
þar meðal annars, að þrjár nýjar
deildir hefðu verið stofnaSar á
árinu, og gengið í aðalfélagið,
ein1 á Gimli, önnur í Selkirk og
hin þriðja nýstofnuð að Church-
bridge. pá hafði og deild að
Silver Bay, er nefnist "Framtíð-
in", æskt upptöku í félagið, gegn
því að ársgjaldið yrði að eins
1 dollar á ári. Engin af eldn
deildunum hafði fallið úr sög-
unni. Sumar deildirnar hefðu
afkastað mi'klu árinu í fá'ags
og kenslumálum, t. d. "Frón" í
Winnipeg, "Fjallkonan" í Wyn.
yard og "Harpa" í Winnipegos-
is. Frá óðrum deildum hefði
hann færra heyrt,^ en eflaust
hefðu þær líka unnið i sömu átt.
Útgáfa Tímaritsins, sem væri eitt
af aðalstörfum félagsins, héldi
áfram eins og að undanförnu
undir ritstjórn séra Rögnv. Pét-
urssonar. Væri til þess vand-
að bæði að efni og frágangi. pá
hefði og aðalfélagið haldið uppi
umferðakenslu í íslenzku í Winni-
peg og ráðið til þess tvo kenn-
ara, og auk þess veitt sumum
fjárstyrk tiíl samskonar ^starfa.
Að síðustu lagði hann til, að þing-
ið sæi sér fært að semja og sam-
l þykkja tillögu, er gæfi erinds-
rekum frá deildum, utan Winni-
pegborgar, meiri þingréttindi og
atkvæði í málum félagsins en
hingað til hefði átt sér stað.
pa gjörði ritari stutta grein
fyrir störfum nefndarinnar á ár-
inu. Höfðu 11 nefndarfundir
verið haldnir, og forseti sökum
fjarveru og illrar aðstöðu að eins
'getað setið 3 þeirra. Tveir
fundir voru ekki beinlínis um fé-
lagsmál. Hinn fyrri til undir-
búnings samsæti, er tónlista-
| manninum Percy Grainger var
haldið á Fort Garry hótelinu 1.
, marz síðast)!iðinn vetur, og hinn
; síðari i því skyni að stuðla að
i söngsamkomum Eggerts Stefáns.
sonar út um bygðir og hér í bor.j-
inni. Af þeim sjö málum er
síðasta ársþing afgreiddi, var
eitt sett í milliþinganefnd en af
hinum sex, er nefndinni var fal-
ið að ráðstafa, hafa þrjú verið
afgreidd; en þrjú af eðlilegum
ástæðuin verið geymd þessu
þingi til frekari íhugunar. Er
þar átt við lesbókina, söngfélag-
ið og mannaskiftin við ísland.
Næst lagði féhirðir fram prent-
| aða fjárhagsskýrelu. Sýnir hún
! meðajl annars að tekjuhalli lítils-
I háttar er á aðalreikningi félags-
ins, sem þó er margsinnis jafn-
aður upp með ágóía þeim er
auglýsingarnar í Tímaritinu gáfu
af sér. Sala Tímaritsins á ár-
inu borgaði ekki heldur nándar
nærri útgáfu kostnaðinn, fremur
en á undanförnum árum. pessi
eini ábatasami tekjuliður félags-
ins (auglýsingarnar) er algjör-
lega að þakka hinum frábæra
dugnaði féhirðis. •
pá las fjármálaritari upp
skýrslu sýna um meðlimatolu og
innheimtur á ársgjöldum félags-
manna. Höfðu innheimtur
gengið tregt, sem sjá má af því,
að lítið yfir 200 dali hafði borg-
ast í félagssjóð á árinu, en það er
helmingur þeirra ársgjalda er
greidd hafa verið, því flestir fé.
lagsmenn standa í deildum, sem
auðvitað halda helmingi gjalds-
ins. Meðlimaskráin er prent-
uð í Tímaritinu, eins og að und-
anförnu.
Að síðustu gaf skjalavörður
skýrslu yfir seldar og óseldar
bækur á árinu, og bar henni i
öllum aðalatriðum saman við fjár-
hagsskýrsluna.
Að lofcnum skýrslum embættis-
manna voru lesin úpp símskeyti
frá félagi íslendinga 'í New
York, og ávarp í óbundnu máli
og ljóðum frá íþróttamanninum
Jöhannesi Jc>sefssyni og Jóni
1 bónda Stefánssyni.
Hófust því næst umræður út af
embættismanna skýrslum. Voru
við þær gjörðar lítilvægar athuga-
semdir, sem allar fengu fullnægj-
andi skýringar. Og voru þær
síðan samþyktar án frekari um-
svifa.
Að þessu loknu var tekin fyrir
dagskráin eins og hún er hér að
framan sýnd. Gekk það sem
eftir var dags í að ræða þnu "'ál
frá ýmsum sjónarmiðum og skipa
þau í nefndir. Viljum vér leit.ist
við að skýra frá afdrifum þessara
mála í sömu röð og nefndirnar
lögðu fram álit sín. KJ. hálf sjö
var fundi frestað til næsta dags.
Klukkan 8. að kvöldinu var aft-
ur komið saman í efri sal Good-
templarahússins. Flutti for-
seti félagsins, séra Jónas A. Sig-
urðsson, langt og snjalt erindi um
íslenzkt þjóðerni og þjóðararf, og
viðhald þess vor á meðal. pá
söng ungfrú Rósa Hermannson
tvö íslenzk lög, "Sólskríkjan" og
"Fuglar í búri", eftir Jón Laxdal.
Var að öllu þessu gjörður hinn
bezti rómur, og forseta greitt
þakklætis atkvæði á þann hátt, að
allir stóðu á fætur. í fjarveru
varaforseta stýrði féhirðir, Ásm.
P. Jóhannsson, samkomunni, og
talaði no'kkur orð á undan og á
eftir. Var þessari samkomu
eigi sHtið fyr en klukkan að ganga
ellefu um kvöldið.
Daginn eftir, 27. febr., kom þing
aftur saman kl. 2.30' e. h.. Var
fyrst lokið við nefndarskipanir í
þeim málum er á dagskrá voru.
Síðan voru tekin fyrir ný mál.
Dr. G. J. Gíslason, Grand Forks,
N. Dak., 'hóf máls um nýmæli þ 3
er hér skal greint frá.
Kennari einn við Luther College
Decorah, Iova, Knut Gjerset að
nafni, ihefir unnið að því að rita
á enska tungu bók allstóra um
sögu ísíands. Hann er sagnfræð-
ingur góður, hefir áður ritað og
gefið út sögu Noregs í tveim bind-
um, sem ta|Iin er hin besta í sinni
röð. Hefir hann aflað sér upp-
lýsingar víðsvegar um þau atriði,
er honum voru eígi sem ljósust í
sögu landsins, bæði hér i Winni-
peg og í Fiske-safninu við Cor-
nelLháskólann í New York; og ís-
lenzkir fræðimenn,* eins og t. d.
prófessor Halldór Hermannsson
hafa lesið yfir handrit hans og
gefið því meðmæli sín. Bókaút-
gáfu félagið, McMillan Co., er
fúst á að gefa út pessa lslands-
sögu, eins og þeir höfðu áður gef
i'ð út Noregssögu sama höf., ef
þeir fá tryggingu fyrir. að 1000
eintök séu keypt af þeim í einu
lagi. Á bókin að kosta í lausa-
sölu 4 dalli, en venjulegur bóksölu
afsláttur að fást af þéssum þús-
und eintökum. Lagði hann nú
fyrir þingið spurningu um það,
hvort tækilegt væri, að pjóðrækn-
isfélagið styddi að framkvæmd
þessa fyrirtækis með því að á-
'byrgjast sólu á þessum þúsund
bókum.
Var þetta allmikið rætt með og
móti, og að lokum sett þriggja
manna nefnd til þess að íhuga
það nánar.
Pá kallaði forseti eftir skýrsl-
um frá nefndum.
Séra Rögnv. Pétursson skýrði
frá því, að milliþinganefndin, er
hefði með höndum sjóðstofnunar-
málið, hefði e'kkert'starfað á árinu,
með því að einh nefndarmanna
hefði þegar á ársþingi í fyrra
skorast undan að starfa í nefnd-
inni, og lagði til að þessu máli
væri vísað til þingnefndar, er
hefði rneð höndum samvinnu og
mannaskifti við ísland, og var það
þá þegar gjört.
Lagabreytingar voru þrjár, er
fyrir þinginu lágu. Hin fyrsta um
reglur fyrir vali heiðursfélaga.
ÁkveSur hún, að einn heiðursfél.
aðeins mætti velja á ári hverju og
réði stjórnarnefndin hver fyrir
því yrði. Hin næsta var uni niður-
færslu ársgjalds úr 2 dölum í 1
dal, og hin þriSja um að tvo
þriðju greiddra atkvæ^a þúrfi mcð
lagabreytingu á ársþingi, svo hún
(iðlist gildi. Nefnd sú er seti
til að íhuga þessar breytingar vav
skipuð 5 mönnum, þeim J. J. Bíld-
felj Asg. J. Blöndal, B. B. ÓI
J. J. Húnfjörð og Fred Swanso.i.
Lögðu þeir nú fram álit «itt, er
ræður þinginu að samþ. óbre>'tta
niðurfærslu gjaldsins og ákva^ n
um atkvæðafjöldann. En fyrsta
till. var nokkuð á annan hátt orð-
uð en i fyrstu.
UrSu um þetta langar og all-
snarpar umræSur og varð níður-
staSan sú, að fyi-stu -og annari
breytingunni var vísað til baka til
nefndarinnar, en sú þriðja sam-
þykt eins og hún lá fyrir þinginu.
Síðasta þingdag bar svo nefndin
fram þetta mál að nýju, og urðu
þau úrslit að niSurfærsla gjalds-
ins var samþykt. Verður því fcrv
tillag hvers fullorðins félaga $1 á
árií stað 2 dala var ritara falið að
tilkynna það deildum og öðrum
¦hlutaðeigendum. (En með þvi að
honum vinst ei*:i tími til að rita
hverjum einum, þá eru allir þjóð-
ræknismenn, og þar á meðal deild-
um við Silver Bay og fél. íslend-
inga í New York beðnir að taka
þetta sem fullnaðar tilkynningu
um þetta atriði).
Breytingin um val heiðursfélaga
var; nú nokkuð öðruvísi orðuð er
í fyrstu, þannig, að á eftir orðu.<
um: Heiðursfé^aga skal kjc3sa efc-
ir verðleikum" komi: "á ársþingi
samkvæmt tillögum stjórnar-
nefndarinnar", o. s. frv. Var
þessi breyting eða viSauki að lo.c-
um samþykt.
Nefnd hafði verið sett til að
taka til íhugunar tillögur forsetc
í ávarpi hans til þingsins um
réttindi og atkv. erindsreka frá.
deildum. í henni voru þeir Fred
Swanson, Ólafur Bjarnason ~>x
Bjarni Magnússon. Lög^u þeir
fram álit þess efnis að breytingar
í þessu efni væri ekki heppilegar,
og þyrfti lagabreytingar áður en
nokkuð yrði að gjört. Var það
rætt með og móti, og að lokum
vísað til nefndarinnar til frekari
íhugunar. Kom hún sí.^ar með
endurskoðað nefndarálit, en gat
þó ekki til fufJs komiíi sér saftian
um það. Var það rætt með og
móti og að lokum felt, með því að
álitið var, að þetta þing gæti ekki
gjört ákvæði er kæmi í bága við
lógin. VarS það til þess að síðar
á þinginu voru lagðar fram laga-
breytingar till., er nánar verður
sagt frá á sínum tíma.
Nú var dagur að kvöldi kominn,
og því ákveðið að fresta þingfundi
til kl. 1 daginn eftir, þann 28. febr.
Klukkan 8 að kveldinu var
skemtisamkoma á sama stað. Fór
hún fram undir umsjón deildar-
innar, "Frón". Forseti deildar-
innar, br. Jón J. Bíldfefl, setti
samkomuna með ræðu. Miss Anna
Sveinsson (Mrs. Lowe) lék á pí-
anc'), Mrs. P. S. Dalman, Mrs. Alex
Johnson og Miss R. Hermannsson
sungu einsöngva. Sömuleiðis Mr.
Halldór pórólfsson, er söng meS-
al armars nýtt lag eftir pór. Jóns-
son kaupm. við kvæði eftir séra
Jónas A. Sigursson. pá sungu og
fjórraddað ungfrúrnar Hermanns-
son og Herman. og þeir herrar
Jóhannesson og Thorólfsson; séra
Ragnar Kvaran tailaði um smá-
sagnastíl og las upp þrjár smásög-
ur, eftir þá Guðm. FriSjónsson,
Sig Nordal og Einar H. Kvaran.
Séra Rögnv. Pétursson las upp
kvajði eftir St. G. Stefánsson. Fór
öll samkoman fram á íslenzku og
var að öllu gerður hinn besti róm-
ur. í neðri salnum báru konurn-
ar fram rausnarlegar veitingar.
En i efri salnum var dansað á eft-
ir langt fram yfir miðnætti, og
fóru víst allir ánægSir heim til
s i n.
Siðasta þngdag, þ. 28. febrúar
var fundur settur kl. 1,30 e. h.
P^orseti bar þinginu kveSju frá
séra Guttormi Guttormssyni í
Minneota; enn fremur ;las hann
upp tillögu frá Jóh. Jósefssyni í-
þróttamanni, er fer fram á, aS
þingið lýsi "ónáð sinni á því, að
veriS sé að hvetja eða narra ís-
lendinga á íslandi til þess að
flytja búferlum eða alfari til
Vosturheims". Var samþykt að
leggja tillöguna til síðu og þakka
tillögumanni bendinguna.
Samvinnu-' mannaskifta- og
sjtHNstofnunar nefndin lagði þá
fram éf.ii sitt. í þeirri nefnd
voru séra Rögnv. Pétursson, Árni
fíggertsson. Á. P. Jóhannsson,
Sveinb. Árnason og Thorst. J.
Gíslason. LagSi ,hún í stuttu
máli til, að kosin sé þriggja
manna milliþinganefnd, er hafi
þessi mál algjörlega með hóndum.
Var þac^ samþykt og i nefndina
kosnir:
Séra Rögnv. Pétursson.
Séra Ragnar Kvaran og
Gísli Jónsson.
pessi nefnd gerði og viðbót við
álit sitt, a€ stjórnarnefndinni sé
falið að leita upplýsinga um og
sjá um framkvæmdir viðvíkjandi
happadrættismiðum þeim, er rit-
ara félagsins voru sendir '.".á
Stúdentaráði háskóla íslands. En
þeir eru gefhir út og þeim leyfð
útbrenNsla á íslandi í þeim til-
gangi. að byggja Stúdentagarð
¦i Reykjavik fyrir utanbæjar
námsmenn. Var þat samþykt.
(Hefir nefndin síðan lleitaí leyf-
is aC selja nefnda miða, en veriS (
þverneitað, með því að landslög
Canada harðibanna lotteri og
happadrætti af öllum tegundum.
Miðar J^essir áttu aS seljast á 25c
f"Ni6url. á •">. bls.)