Lögberg - 22.03.1923, Blaðsíða 7
LÖGBERG, FIMTTJDAGINN
22. MARZ, 1923
BlSí. 7
Sextíu og fjögra
Nú laus við gigt.
Albertamaður mælir mjög með
Dodd’s Kidney Pills.
Mr. A. J. Ilierman, skýrir frá
hvernig Dodd’s Kidney Pills
komu honum að liði.
Munson, Alta, marz 19. (Einka-
fregn). —Mr. Bierman, velþektur |
borgari á þessum stað, hefir óbil-1
andi trú á Dodd’s Kidney Pills. j
“Eg þjáðist af gigt í 18 mánuði.
ipoldi ekki að liggja á ihægri hlið-
inni nóttum saman. Eg reyndi
nokkrar öskjur af Dodd’ Kidney |
Pills og fór batnandi daglega. Eft-1
ir a ðhafá notað átta öskjur, var
eg orðinn alheill. Síðan hefi eg
meðal þetta ávait á heimilinu.
“Eg held ávalt upp á'Dodd’s
Kidney Pills og vil láta sem flesta
vita af því.
Gigt orsakast af þvagsýru, sem
berst út í blóðið. Eina ráðið tli
lækninga, er að halda nýrunum í
se mbeztu ásigkomulagi, svo þaa
fái unnið verk sitt vel.
Dodd’s Kidney Pills halda nýr-
unum hraustum.
Spvrjið nágranna yðar um
Dodd’s meðölin.
Samtíningur
(rá California.
Nú er 3. marz 1923. Veörið
hefir verið ákjósanlegt hér í Los
Angeles síðan um miðjan febrú-
ar að talsvert rigndi um tíma, sið-
an hefir verið stöðugt sólskin og
blíða um daga og mátulega svalar
nætur til að sofa vel undir tveim-
ur góðum ábreiðum.
Eg hefi ekki gefið mér tima til
að tína neitt saman héðan allan
þenna góðviðriskafla, hefi verið
að keppast við að reka naglana í
litla húsið mitt sér í Carlson
Court númer 1620. En oft hafa
fingurnir kárnað, þegar höggin
hafa lent á þá staðinn fyrir á nagl-
ana, og jafn-oft hafa ljót orð
hrotið til að draga úr verkinn í
bráð. Þetta mun enginn lá mér,
sem hefir reynt hvað það er að
berja fingurna í staðinn fyrir
naglann. Jafnvel séra Kristinn,
sem æfinlega hefir veriö vinur
minn og í öllu viljað mér vel, mun
ekki kasta á mig þungum steini
fyrir þetta hálfljóta orðbragð við
þessi tækifæri, ef hann hefir hug-
mynd um hvað það er sárt að
berja fast á bera fingurna með
hamri.
Eftir hádegið í dag er hér rign-
jng; ein þessi rigning, sem manni
half-ldðEt á' meðan hún varir, en
vildi þó ekki vera án þó þess væri
kostur, af því maður veit, að regn-
ið er nauðsynlegt til að hreinsa
loftið, vökva gróður jarðar og að
öllu leyti að styrkja alt líf og
heilsu. — Eg sest því niður ró-
j legur og reyni að láta fara sem
bezt um mig að hægt er,— hið
I bezta sæti, sem fyrir hendi er, er
j naglakaggi, hálf-fullur af nöglum,
svo ekki er hægt að hvolfa hon-
! um; en það gjörir nú minna; eg
tek strigabuxurnar minar, brýt
þær saman og sezt ])ar ofan á, til
aö búa til svolítið af “samtíningi”,
og er viss um að mér muni líða vel
á kútnum, en ef ekki, — ja, þá
bara hætti eg.
Nokkrir kunningjar mínir hafa
skrifað mér að austau og á meðal
annars efnis beiðst eftir meira af
“samtíningi”. Eg þakka þeim
hjartanlega fyrir bréfin, sem ávalt
eru kærkomin hér í útlegðinni. En
hvað “samtíningnum” viðvíkur, þá
skal þess getið, að eg hefi mjög að
stríða við tilfinnanlegan skort á
efni i hann, þvi nú ferðast eg hér
ekkert um og frétti fátt, bara hefi
nefið á hverfisteininum hér á lóð-
inni alla daga frá morgni til
kvölds.
Einn landi minn, mér ])ó víst ó-
kunnugur, T. .Thorlaksson að Ver-
non, B.C., skrifar mér vinsamlegt
og vel ritað bréf, og segist hafa
gaman af að lesa “samtíninginn”
; minn, og mælist til að eg við tæki-
; færi skrifi héðan um griparækt,
j sem hann segist hafa stundað i B.
; C. urn næstliðin 25 ár, og sem
hann segist þvi hafa gaman af að
heyra um héöan; hann getur þess
einnig, að hann eigi 8 syni á öllum
aldri frá 8 til 30 ára, og að þeir
séu allir heima hjá hcmum. Ekki
skylcli mig unðra, þó að hr. Thor-
lakson hafi, er hann skrifaði þetta,
haft í huga, að ef til vildi væri
California ákjósanlegur staður
fyrir eitthvað af drengjunum
i hans, en um það skal eg þó ekki
; segja með vissu. En eftir því sem
sumir skrifa af og til, væri liklegt
að þeir mundu álita tsland álitleg-
asta staðinn fyrir þenna stóra, ís-
lenzka bræðrahóp að leita til sem
framtíðar verustaðar. En eg er
ekki mjög á þeirra manna máli, er
bara undrandi yfir, að nokkur
skuli halda þvílíku fram: skal þó
ekki gjöra neinn útkrók hér á
naglakútnum til að fara að þrefa
um það. — Eitt er víst, að 8 is-
lenzkir bræður, allir i heimahús-
um, er stór-merkilegur bræðra-
hópur, hvar sem þeir eru, og von-
andi eiga þeir álitlegri framtíð
tið fyrir höndum, en að ryðja sér
braut á íslandi, og eg er sannfærð-
ur um að California mundi bjóða
þeim betri kjör.— Eg bið herra
Thorlaksson að misvirða ekki, þó
eg hafi vanrækt að skrifa honum
og viðurkenna bréf hans meðtekiö.
Eg þakka honum hér með fyrir
það, og skal nú gjöra tilraun til að
verða við tilmælum hans og minn-
ast á griparæktar tækifæri hér i
California, eins og það kemur mér
fyrir sjónir.
Flestum er ljóst, að hér í Suð-
ur California er í raun og veru
enginn vetur hvað tiðarfar snert-
ir, og hér grær og þróast alt á
jörðunni allan veturinn og gripir
ganga úti sjálfala, og fitna líkt og
þeir gjöra austur frá í maí, júní og
júlí, því veðrið hér yfir vetrarmán-
uðina líkist mest maí- og júní-
veðri austur frá, og regnskúrir
eru hér þá tíðir til að vökva jörð-
ina til gróðurs, og vatns áveita því
ónauðsynleg þar til á vorin i mai
eða júni, þegar hættir að rigna. I
fljótu bragði mætti því ætla, að
griparækt væri ákjósanlegur at-
vinnuvegur hér, en við nánarf
kynningu og athugun, er þetta þó
ekki svo
Landið hér í California skiftist
aðallega í 3 flokka; sá flokkurinn,
sem mest af landinu hlýtur að
skipast í, er sléttlendið, dalabot'n-
arnir og alt það land, sem hægt er
að yrkja, og það er langt of hátt i
verði til þess að griparækt geti
borgað sig á því nema í samlögum
við annað, sem gefur meiri arð, og
slík griparækt er í svo smáum stíl,
að varla er hægt að karla það
griparækt. Undantekning á sér
þó staö i þessu efni, því víða eru
á þessu dýra landi ljómandi bú,
bæði í smáum og stórum stíl, sem
borga sig vel, því ekkert er þar
sparað til að gjöra landið aröber-
andi; til dæmis er alfalfa ræktaö
þar á stórum flákum og kýrnar
fóðraðar á því mikið meira en
þeim er beitt, bæði sumar og vet-
ur, og vatnsáveita notnð, sem oft
kostar ærna peninga að koma fyr-
ir og halda í lagi. Helst eru slik
kúabú í námunda viö stærri bæi-
ina, þar sem góð sala er og hátt
verð fæst fyrir alt, sem búin fram-
leiða. Þessi bú verða ekki stofn-
sett af þeim, er efnalitlir eru, þvi
í fyrsta lagi er landið anrtað
hvort ótilbúið hvað ræktun og
byggingar snertir og kýrnar dýrar
hér, vanalega frá $73 til $200 hver
eftir gæðum, eða, ef landið er áð-
ur til reiðu og hús og vatnsleiðsla
i góðu lagi, þá verður þetta ásamt
kúnum svo hátt í verði, að aðeins
stórefnaðir menn geta átt kost á
að komast þar að.
Næsti flokkur lands hér að
stærð eru fjöllin, bæði þau sem eru
há, víðáttumikil og snjóþakin á
vetrin, og svo mikið af lægri fjöll-
um grýttum og gróðurlitlum eða
alveg gróðurlausum, þar með tald-
ir heilir flákár af grýttum og gróð-
urlausum öræfum, sem enga björg
hafa fyrir skepnur, hvorki sumar
eða vetur. Þó allvíða í þessu
fjallendi sé að finna mannabygð-
ir með fáeina hálf-horaða og
svanga gripi á beit hér og þar, þá
er ekki neitt hægt um það að tala,
nema aumkva í huga þá menn, sem
það land byggja, og manni dettur
helzt í hug að gera sér ómak til að
klaga, þá armingja, sem þar búa,
fyrir illa meðferð á skepnum. En
endirinn verður sá, að maður bara
sárkenir í brjósti um þá, og reyn-
ir svo að gleyma öllu því auma
lífi, sem þar á sér stað.
Þriðji flokkur lands hér er það
sem er grasgróið, en of bratt til
ræktunar; mestur hluti þess ligg-
ur neðst í fjallahlíðunum ofan við
sléttlendiö, og af því eru afar víð-
áttumiklir flákar sumstaðar; það
liggur í .ótal öldum, hryggjum,
bungum, brekkum, giljum og
kvosum, neðst alvaxið grasi, ofar
grjót og gras á víxl, og enn ofar
meira af grjóti en grasi, en þó
mikil beit, einkum fyrir sauðfén-
að á gróðrartimanum, eða frá því
byrjar að rigna á haustin og þar-
til sólin brennir alt gras með hita
og þurk þegar fram á sumarið
kemur. Þetta land er það eina
beitiland, sem hér er, og er ekki
dýrt, það bezta af því $25 til $30
ekran og svo niður í mjög lágt
verð, þar sem graslítið er.
í þessum grashlíðum ganga þús-
undir nauta og þúsundir sauð-
fjár, sem er eign ýmsra, bæði auð-
ugra gripafélaga og lika einstak-
linga, sem hafa hver sína hjörð á
því landi, sem ])eir eiga umráð yf-
ir með eignarrétti eða með því að
leigja það af öðrum.
Hér sem viðast hafa þeir efn-
uðu “tögl og hagldir”; þeir bæði
kaupa og leigja stóra fláka, setja
öflugar virgiröingar i kring um
landflákann, oft mörg þúsund
ekrur i einu flæmi, og reka svo
gripahópinn inn í girðinguna, og
þar þrífst hann og fitnar á meðan
grasið grær. Þegar þurkarnir
i koma á sumrin, eru gripirnir ann-
að hvort settir á markaðinn til
slátrunar, eða þeir eru færðir
þangað, sem hægt er að fóðra þá
á alfalfa á meðan þeim er ekki
slátrað, því að láta þá vera í fjall-
lendinu eftir að sólin og þurviðrið
skræla grasið, þýðir að missa af
þeim öll holdin er þeir söfnuðu í
gróindunum. Þessi aðferð er hin-
um efnuðu gróðavegur; hinir
efnalitlu hafa minna tækifæri, þvi
þeirra landaumráð með eignar-
rétti eða á leigu eru oftast lítil, i
samanburði við landeignir hinna;
land hinna efnalitlu er ef til vill
j óinngirt og verða þeir þvi að
standa yfir þeim gripum er þeir
I hafa þar og þó einkum sauðfé til
j varnar fyrir úlfi er á það sækir
j og jafnvel á naut líka. Eg aumk-
j aði of slíka menn, er eg sá þá
húka fram á stafina og horfa með
þreytusvip yfir litla hópinn sinn,
og eg fann, að eg hefði varla gjört
mér þá griparæktar aðferð að
góðu nema út úr neyð. Svo kem-
ur þurkurinn og hitinn yfir þá
líka, þegar fram á sumarið kem-
ur. Þá neyðast þeir til að flytja
hópinn niður á sléttlendiö og
beita honum þar á hvað sem er
aö fá,— á illgresi innan um ald-
ina trén, gamla illa ræktaða alfalfa
akra, eða hvað annað, sem kostur
Hinn sjötti í röðinni af fjölskyldunni
PANTIÐ NÚ OG VERIÐ IR UM AÐ FA BIFREIÐ PESSU VERÐI. VISS- MEÐ
Runabout - $405
ToUring .... $445
Coupe - - - $695
Sedan .... $785
Chassis - - $345
Truck Chassis $495
F.O.B. FORD, ON’T., GOVERNMENT SALES TAX ICXTRA Starting an<l Electric Libhting Staníl- ar<l Equipnicnt. on Scdan and Coupe.
AÐ meðaltali, telur hver f jölskylda í Canada, fimm meðlimi
Hið nýja lága verð Fordbíla gerir kleift að bæta sjötta meðlimnum við.
þér eruð að hugsa um að kaupa bíl -— Fordbíl? >
.... .Yður skilst að maður — eða fjölskylda — án bíls, stendur ver að vígi.
yður ski st það einn'g, að hið lága verð Fordblla, veitir yður kost á að láta
fjölskyldu yðar njóta sömu þægindanna og annað fólk nýtur.
Fordbíll hentar hinum daglegu störfum — léttir starf yðar og fjölskyldJ,
unnar og losa yður frá áhyggjum — veitir yður afgangs tíma til hressingar
og til þess að heimsækja vini. Flýtir fyrir sveitamanninum að komast inn
til bæjarins og flytur borgarbúann á skömmum tíma upp í sveit.
Sjötti meðlimur hinnar canadisku fjölskyldu, á að vera — Ford-bíllinn.
Verð á Touring-bíl er $445. — Flutningsgjald oig stjórnarskattur að auki.
Og bíl má kaupa með mánaðarlegum afborgunum.
FORD MOTOR COMPANY OF CANADA, LIMITED, FORD, ONTARIO
er á að fá—, eða þeir verða að og fluttist til Ameriku árið 1898,
selja, oft þá fyrir lágt verð, hin- og settist að í Winnipeg í Mani-
um, sem meiri landumráð hafa og toba. Að tveim áriun liðnum
eiga því hægra -með að koma sér gekk hún að eiga eftirlifandi
fyrir; og oft þurfa þeir að gjalda rcann s,nrij Lárug Finnbogason
hátt verð fyrir farra v.kna eða fr- Illugastöðum í Laxár.
jafnvel farra daga beit fyr.r skepn- .
urnar og vera yfir þeim dag og , . ,, . Tir .
nótt, að þær ekki gjöri öðrum í Manitobavatni, nalægt West-
skaða. bourne, og fóru þaðan norður
í mínum augum er griparækt me® vatninu að vestan, og settust
hér þvi ekki mjög álitlegur at- að í íslenzku -bygðinni yið Beck-
vinnuvegur, nema fyrir þá, sem ! ville og Amaranth. par bjuggu
eru nú þegar búnir að ná haldi með j þau til þessa.
eign eða leigu á stórum flákum af Sigurlaug sál. var gætin hvers-
bezta beitilandinu, og svo mun l)að l dagslega og prýðilega greind; -il-
vera, að hið bezta og álitlegasta af
beitilandi hér í California, er nú
þegar mjög alrnent komið í umráð
hinna auðugri, sem hér eru, og
þeir geta haft það mín vegna, því
eg ætla ekki að reyna að keppa
við þá um þann atvinnuveg.
Svona litur nú griparæktin.
úðleg í viðmóti og yfirlætislaus.
Góðfús var hún við fátæka og við
alla, sem áttu bágt, og vildi gjarn-
an bæta hag þeirra; var hún sam-
hent manni sínum í því. pau
hjón réttu hlýlega hendina hverj-
um, er þar bar að garði. Héldu
Vel hélt Sigurlaug sál. trú sínr,
og studdi kristilega starfsen.i
Strandar safnaðar með ráði og
dáð. Vann hún að því með mik-
illi atorku, ásamt störfum hei r.-
ilisins meðan kraftar leyfðu.
Hefir heimilið mjög skarðast við
fráfall hennar.
Skilur hún eftir eiginmann ]
aldraðan 0g tvö börn: Emil Sig-
urvin og Sigríði Sesselju, bæði í
pú ert gengin.
Gleði er þér fengin,
og friður á ný.
Við fögnum því.
s. s. c.
Frá íslandi.
Bæjarfógetimí á
hefir símað hingað, að
dufl hafi séðst á reki
fjarðarmynninu.
Siglufirði
2 tundur-
úti fyrir
Látin er að Hömrum, konan
Helga Stefánsdöttir, eiginkona
Steinþórs bóndia þar, 52 ára göm-
ul. Röskleika og myndarkona.
nu griparæktm.TTM
Californíu út í mínum augum. Get-1 þau um tíma pósthúsið við Beck- j
ur verið, að mér kunni að missýn- ville- Var það lítt til næðis eða
ast 1 þessu efm, en við því er ekki j tímasparnaðar.
hægt að gjora. Það er ekki gripa-
ræktin hér, sem hr.ífur mig, eða
sem eg dáist að, heldur ýmislegt
annað, svo sem alifuglaræktin hér.
Eg veit að hún er mjög arðsöm
hverjum þeim, sem kann að reka
hana, og markaður er mjög góður
bæði fyrir egg og fugla, einnig er
auðvelt að rækta hér fuglafóður.
Líka ætti svínarækt að borga sig
mjög vel hér víða, þar sem alfalfa
grasiö vex bæði sumar og vetur
og vatnsveita er viðhöfð; enda
veit eg að á allmörgum stöðum i föðurgarði
hér, er aðallega lögö stund á að
framleiða svín, mjólk og alifugla;
það eru álitnir auðugustu staðirs-
ir og bændur þar virðast standa á
föstum fótum efnalega, þó þeir
hafi mjög litið af .aldinum, sem
þó er alstaðar á sléttlendinu rneira
og minna af. pað er mjög skilj-
anlegt að Iand, sem kostar i kring
um $200 ekran áður en nokkuð er
á því bygt eða unnið, og þegar þar
við bætist kostnaður við að byggja j
þvi, planta og fá vatn leitt yfir
það, má til að gefa mikið af sér,
eða það borgar sig^ekki að eiga
það. Vanalega er þetta háa verð
miðað við það arðsamasta, sem á
því getur vaxið, r.g það er mjög
margt. í mínum augum litur svo
út, eins og alfalfa ræktin hér sé
ef til vill einna vissastur atvinnu-
vegur, álitinn að gefa um 80 doll.
ekran á ári, og ekki mikil líkindi
fyrir uppskerubrest, ef vatn er
nægilegt til áveitu.
Um undanfarin nokkur ár hefir
þó alment annað verið metið arð-
samara, og eru það helzt rúsinur;
nú aftur er farið að tala um að
of mikið sé orðið framleitt af
þeim, en of lítið af alfalfa, svo að
rúsínur hafa fallið mjög i verði
síðustu tvö árin, en alfalfa hækk-
að í verði. 1 vetur selst það því
alt upp að $23 tonnið; minsta verð
á alfalfa er sagt að sé um $8, þeg-
ar nóg hefir verið af því, og 10
tonn af ekru er álitin meðal upp-1
skera. — Ekki skal því neitað, að : ið á D'örurnar við Kalmannstjörn.
aldina rækt hér geti verið það arð- |
samasta, sem hægt er að fram- j __________________________
leiða hér á landi, ef hún er i góðu
lagi og þekking á henni er næg hjá
þeim, sem hana rekur, en marga |
sem byrja og eru henni óvanir. |
mundi að líkidum skorta þekking- !
una á þeirri atvinnugrein.
Það kemur naumast fyrir, að !
eg þurfi að ráða fram hvað eg eigi j
að hafast að á landi hér í Cali- |
fornia, en ef sú ráðgáta kæmi fyr- i
ir mig til úrlausnar, þá mundi eg (
hiklaust kjósa mér til búskapar á I
landi hér 40—eðavmeira eftir efn- 1
um—ekrur af góðu alfalfa landi,
og það er ekki dýrasta landið hér
heldur, og á því mundi eg rækta \
alfalfa og einnig hafa á þvi kýr, j
svín og alifugla eftir kringum- j
stæðum. Ein kýr á ekru, er
“mottó ’ hér i Californiu, og eg
er viss um, að það er 'hægt, ef vel
er haldið á tækifærunum.
Naglakúturinn er orðinn óþol-
andi. Ef til vill meiri “samtining-
ur” síðar.
S. Thorawldson.
Œfiminning.
Sigurlaug Jóhannsdóttir Beck
lézt að heimili sínu nálægt Amar-
anth, í Manitoba, 19. marz mán.
síðastliðinn. Hún >er fædd að
Ásabúðum í Skagafjarðarsýsi lfi
sept. 1875. Foreldrar hennar eru
þau, Jóhann Jóhannsson og Sig-
urlaug Magnúsdóttir frá Fjalli í
sömu sýslu. Hún var í föður-
garði þar til hún misti föður siun,
og fluttiist síðan með móður sinni
að Skaga í Húnavatnssýslu, og
var þar þangað til hún var 18 ára.
pá var hún á lausum kjala eitt ár.
POWDEB
^^gTAINS
NO
Látin er að Sandhólum í Saur-
bæjarhreppi konan Fann y Ein-
arsdóttir Bergdal, gift Jóni Berg-
dal organista. Ó1 hún tvíbura
er báðir dó*u, og hún nokkrum
dögum síðar. Fanny heitin var
greindar- og myndarkona á bezta
aldri.
lEftir ofviðrið mikla rak mikið
af dauðum fiski á land víða hér
suður með sjó. M. a. er sagt að
á fjórða þúsund af keilu hafi rek-
Snjóplógi var ekið um göturnar
í gær, í fyrsta skifti á þessum
vetri. Hafði snjóað svo mikið
á göturnar að töluverður þæf-
ingur var. Austan fjalls snjó-
aði einnig ákaft.
Innbrot var framið í fyrrinótt
í kjallara sendiherrabústaðar
Dana og stolið þar einhverju
smávegis.
•* * *
13. þ. m., andaðist Jón bóndi
.lónsson í Neðra-cHr'eppi r Skorra-
dal í Borgarfjarðarsýslu.
* * *
í veðrinu mikla varð það slys í
Krossavík við Sand undir Jökli,
að fimm menn druknuðu. Einn
þeirra var Aðalsteinn Elíasson,
er mun Trcfa verið formaður báts-
ins. í Krossavík hafði verið
gerður hlífargarður eða brim-
brjótur og var þar lega vélabáta.
En garðurinn brotnaði allmikið
í veðrinu og rak þrjá véj’báta í
land. Brotnuðu þeir allir svo,
að ekki er búist við að þeir náist
á flot. Mennirnir sem druknuðu
höfðu farið út á opnum báti og
ætlað að bjarga litlum vélarbáti,
en brim var mikið og hvolfdi
bátnum.
í fyrrinótt var stolið nær 3,000
krónum í peningum úr skrif-
jborðsskúffu á skrifstofu Hótel
ísland. Talið er, að þjófurinn
hafi farið inn í húsgarðinn um
dyr, sem vita að Vallarstræti, en
síðan inn í veitingasalinn, sem
ekki var vandlega læst, og var
það hrotið >upp. Lögreglan var
að rannsaka málið í gær, en hafði
einkis orðið vísari þegar Vísir
vissi síðast.
Hinir sárnopru marzvindar, |
eru mjög óþægilegir fyrir hör-
undið. peir veikja húðina,
valda sárum vörum og hrjúfum
höndum. En með Iþví að nota
Zam-Buk heldur hörundið sin”i.
eðlilegu mýkt og sínum fagra litarhætti.
Zam-Buk á í engu sammerkt við hin algengu smeðjulegu
smyrsl. Pau komast ekki inn úr hörundinu. En Zam-Bus.
þrengir sér inn í hvrja einustu svitaiholu, mýkir og græðir.
pannig græðir Zam-Buk hörundið og heldur því hreinu.
Sárindi og bólga flýja Zam-Buk. pau smyrsl reka alla
Sárindi og bólga, flýja Zam-JBuk. pau smyrsl reka alla
gerla á flótta, lækna bólur í hörundi og bólgu og kfláða.
Zam-Buk endurfegiaði hörund hennar.
Miss Rosa Wallace, Menie, Ont., skrifar:— pegar vor-
vindarnir ollu höndum mínum sárinda, bar eg ávalt á þær
Zam-Buk, og mýktust þær þá jafnskjótt. Zam-Buk eru á-
reiðanlega beztu smyrslin, er eg nokkru sinni hefi þekt. Eyða
einnig hörundsbólum og græða kalsár.”
“ROSEDALE” Drumheller’s Bestu
LUMP -OG- ELDAVJEL/
STÆRD
EGG
STOVE
NUT
SCREENED
bmn
TWIN CITY
w*hrB?$18’50
OIVETonmd
Phone B 62
MEIRI HITI—MINNI KOSTNADUR
THOS. JACKSON & SONS