Lögberg - 29.03.1923, Blaðsíða 4

Lögberg - 29.03.1923, Blaðsíða 4
BLs. 4 LÖGBERG, FIMTUDAGINN 29. MARZ 1923. Jögberg Gefið út hvern Fimtudag af The Col- nmbta Press, Ltd.^Cor. William Ave. & Sherbrook Str.. Winnipeg, Man. Talsimari N-6327 o(í N-6328 Jðn J. Bfldfeli, Editor (jtanáskrift til blaðains: THE COLUNIBIA PRESS, Ltd., Box 3172, Winnlpsg, Ma>V Utan&akrift ritstjórans: EOiTOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, N|an. The “LöKbsra'’ '.s printed and published by The Columbia Preas, Limlted. in the Columbia Block, S53 tx 857 Sherbrooke Street. Wlnnipeg, Manitoba Afturhald og öfgar, pegar óforsjálni og öfgum lendir saman, þá er sjaldnast von á góðu, enda hefir margt slysið hlotnast út af því. Eitt slíkt vildi til 'hér í Winnipeg í siðustu viku og það á stað sem síst skyldi — í þinghússal fylkisins. Stjórnin var orðin óró út af því hve illa gekk að fá fjárhagdlögin samþykt, svo að aðal leiðtogi hennár í þinginu, dómsmálaráðherra Craig, tók það óyndisúrræði að reyna að taka með valdi fyrir munn þeirra manna, sem héldu uppi stöðugu skrafi um þau. petta tiltæki er náttúrlega óhugsað óyndisúr- ræði, sem að engir stjórnmálamenn mundu láta sig >henda, því það er sýnilegt hrot á þingræði og sver þetta tiltæki sig miklu fremur í ætt til afturhalds- flokksins, sem áður hefir reynt þetta 'hér í land- inu, þó þeim tækist það ekki, en eðlilegrar hugsun- ar bændaflokksins, sem í þetta sinn hefði þó átt að ráða mestu. ' Gjörræði þessu var mótmælt af verkamanna- flokknum á þinginu með ótakmörkuðum æsinga- vafl’.í, sem gekk nálega eins langt í fjarstæðu áttina og hitt. Hvað var að hér? pað vantaði jafnvægið — hugsjónina, sem sigl- ir á milJi afturhalds og öfga. Merki frjálslynda flok'ksins var fallið niður f þingsalnum. T. C. Norris leiðtogi flokksins veikur, Thos. H. Johnson ekki lengur í tölu þingmanna. Með þeim báðum eða jafnvel öðrum þeirra á þingi, hefði ekkert þessu Jfkt getað komið fyrir. Tímarit Þjóðrœknisfélags Islendinga. “Tvenn sambönd”, eftir séra Guðmund Árna- son. Sambönd þau, sem hér er um að ræða, eru sambönd Vestur-íslendinga við þjóðir þær, sem þeir dvelja hjá og svo við ættþjóð þeirra ísland. Ritgerð þessi er hóflega skrifuð og ýmislegt vel athugað. Hispurslaust viðurkennir höfundurirn að í framtíðinni eigi íslendingar að eiga hér sam- eginlegt þjóðerni með hinum enskumælandi þjóðum og er það víst alveg rétt álitið. — Ef við viljum reynast Iborgaralegum skýldum (okkar trú, getum við hóMur ekki annað, og því getur naumast verið um nokkur önnur samhönd að ræða, en þau, sem vér þar 'höfum svarist undir. — Ekki einu sinni að vera sem heild innan stærri heildar, eins og þó greinarhöfundurinn segir að sambandið ætti að vera. — íslendingar verða eitt mtð þeim þjóðum, sem þeir búa hjá, eftir að þeir hafa gjörst þar iborgarar. Eitt í starfi og ábugamálum þjóðanna. — Eitt í vonum þeirra og vellíðan. — Eitt í erf- iðleikum þeirra og andstreymi — “allir eitt.” En til þess að geta notið sín sem bezt og orðið sem liðtækastur á því sviði, þurfa þeir lEka. að vera sér sjálfum trúir, uppruna sínum og eðli, enda bendir greinarhöfundurinn á það — þeir verða og eiga, að brúa hafið, sem er á milli hins ný-inn- flutta manns og þess tímabils, sem þjóðir þessa meginlands eru í þjóðernislegum skilningi orðnar eitt, með efniviðum ísíienzkrar menningar og iífs- reynslu og til þess er þeim sambandið við stofn- þjóðina ómissandi. Sjötta og síðasta rifcgjöi-ðin um þjóðræknissam- tök, eftir séra Rögnvald Pétursson, er langt mál um iítið efni. Er þar sagt frá þrátti Vestur-fs- lendinga um hvort þjóðhátíð þeirra skuli fremur haldin 2. ágúst eða 17 júní, á meir en 20 blaðsíðum. m. Frumsamdar sögur í ritinu eru fjórar, “Erf*a- féð”, eftir J. Magnús Bjarnason, um afkomendur ísiendinga og erfðagripi, sem bann finnur á Hóno- lúlú í Haiwaii eyjunum, þegar bann var þar á ferð. Saga þessi er lipur og vel sögð, skaði að e>ki skuli vera hægt að gefa verk þess manns út í heild. "Út við flæðanhálið,” eftir Guðmund Frið- jónsson, er saga um einn af þessum íslenzku bænd- um, sem minna svo mjög á hina djörfu þróttmiklu og berskáu fornaldarbetjur. peir bafa að vísu ekki verið í hernaði í vanalegum skilningi, en þeir bafa strítt við óblíðu íslenzkrar náttúru, við bylji og frosthörkur upp á regin fjöllum og hvergi brugðið, _þeir hafa reynt afl við ægir og borið sig- ur úr býtum, og þeir hafa lært og skilið lífið — iíf- ið eins og það er við hjarta 'íslenzkrar náttúru. peir eru heilir menn ekki haltrandi. >— pannig er sagt fra Framari í þessari sögu. Framsetning sögunn- ar er þróttmikil og ram-íslenzk. “Fiskur í alla mata,” er skemtileg saga, eftir Arnrúnu frá Felli. Síðasta sagan í ritinu er “Að leikslokum,’ eftir Guðrúnu H. Finnsdóttir. Fyrsta sagan, sem vér iásum eftir þenna böf. “Landskuld”, þótti oss góð. Hugsunin þar heil- brigð, jafnvægið eðlilegt og lí framsetningunni var líf og þróttur, sem hreif lesandann á vald sitt. pessi síðasta er naumast eins góð, frá voru gjónarmiði. Efni sögunnar alt of stórt til þe®s að hægt sé að gera því góð skil í svo stuttu májli. Af verkfallinu mikla hér í Winnipeg og því sem því var samfara fær maður ekki rétta mynd, með því að lesa þessa sögu. Eymd verkafólksins og rang- læti það sem því finst að það hafi verið beitt, bald- ið uppi annarsvegar, en herfylkingum stjórnarinn- ar hins vegar. Ólag iðnaðarmálanna bér ihjá oss og annarstaðar er nálega óuppausanleg lind fyrir skáld og rithöfunda að ausa úr. * Utþrá og yfirvegun. í síðasta eintaki Lögbergs er ritstjómargrein, sem kölluð er “Útþrá æskunnar”. Grein þessi er ekki löng, og ekki heldur neitt sérlega inni- haldsrík, og þó er Ihún áreiðanlega þess verð, að lesa hana oftar en einu simni, af því hún fel- ur í sér inngang til umhugsunar og umtals um það málefni, sem veldur mjög svo skaðlegum á- hrifum og afleiðingulm í mannfélaginu. Útþrá æskunnar er ótæmandi umhugsun- ar og umtalsefni, hún hefur verið til á öllum tímum, og var og er fjölda manna eiginleg. Áð- urmeir, var útiþráin förunautur kjarks og hreysti einkum. En jafnóðum og öflugri samgöngutæki brúuðu útþöfin og styttu fjarlægðina, þá er út- þráin orðin fylgikona fjöidans, orðin þjóðfélög- unum að ægilegri velferðar hömlu. Margir eldri menn hljóta að minnast þess, að þá í æsku vant- aði ekki viljann, já, og meira: vantaði ekki sára löngun til að fljúga eitthvað út í heiminn. En hvað var það sem hélt rnönnum? peir menn sem enginn þekti að sérlegri viðkvætmni, gátu með tárin í augunum og angurblíðum rómi, sung- ið gamla erindið, sem allir kannast við: “Gott á fuglinn fileygi'’ o. s. frv. Hjá flestum hugsandi mönnúm hreyfir sér einhver óljós hugmynd um það, að æskan eigi heimting á frjálsari viðbrögðum og framrensli, en hún nýtur á yfirstandandi tímum. Að eldri kyn- slóðin, foreldrar og yfirboðarar, dragi úr dýr- mætum eiginleikum æskumannsins með því að halda þeim í sinni kreddufullu þjónustu, þrengja æskumannínum til að hlýða ýmsu því, sem stríð- ir á móti hans tiihneigingum. Og uppeldisfræð- in heldur því auðvitað fram, sem skilyrði fyrir uppbygging kynsilóðarinnar, að meðfæddum hæfileikum æskumanna, sé uimfram allt hjálpað til þroskunar. Hin áminnsta grein í Lögbergi, segir: “A æskuna og æskuþrá manna eru vanalega lögð bönd, svo hún fær ekki að njóta sín, og stundum svo hastarlega, að vonir hennar verði að engu, og útþráin deyr.” Hinsvegar er iþað ýmislegt sem nauðsynlegt er að minna á í þessu sambandi. Fyrst er það þá fjórða boðorðið, guðs þóknanlegur vilji: “Heiðra skaltu föður þinn og móður,” og þá ann- að, sem auðvitað innibinst í fjórða boðorðinu, það er: kærleikurinn, kærteikur foreldra og yfirboð- ara til barna og fósturbama, og í þriðjalagi reynslan, sem Iíka er innifalið í fjórða boðorðinu, reynsla og þar af leiðandi imeiri þekking for- eldra og yfirboðara, en æskumannsins. petta sem nú er sagt nægir til að sýna fleiri hliðar á máli þessu, nægir til að sanna það, að málið er áreiðanlega umhugsunar vert. En þá vaknar þessi spuming upp fyrir oss sem Lög- bergs ritgerðin endaði á: “Er millibilið milli æsku og elli orðið svo mikið, að þær geti ekki lengur átt samleið?” og meira: Eru foreldrar og yfirboðarar fremur en nokkumtíma áður, að mis- beita valdi sínu yfir æskunni? Eða er æskunni fremur en áður að iimrætast óhlýðni við yfir- boðara? Eða eru máske áður óþektar ástríður að vaxa upp á milli æsku og elli? Af öllum þessum ástæðum getur óhamingj- an að einhverju leyti stafað, en þó er það mín skoðun að hið síðast talda sé aðalástæðan. En það leiðir til enn einnar spumingar: Hvað er það þá, sem vex upp á milli æsku og elli, og hindrar sam'leið og saimvinnu ? pað er ekki vandalaust að svara þeirri spurningu, og mum sitt sýnast hverjum um það. Enda getur það verið margt af því sem sérstak- lega einkennir nútámann, sem veldur samúðar- og hluttekningarleysi á báðar sáður, en það álít eg að skólafyrirkomulagið sé aðalorsökin. Of mikið af uppeldisskyldum foreldra og þeirra sem kærleikann hafa til bamanna, eru ó- viljandi ætlaðar skólakennurum, eða lagaðar þeim á vald, þó sjáanlega að þeir hvorki geti, eða hafi ástæður til að fullnægja þeim. pess utan eins og oft hefur verið tekið fram nú í seinni tíð, að skólaseta bamanna yfir sumartímann út á landinu, stríðir á móti kærleika og löngun æsku- mannsins til þekkingar og þátttöku í nauðsyn- legum vinnubrögðum. En svo ætla eg ekki að fara lengra út í það nú í bráðina. Hitt þykir nokkru skifta, að gera sér grein fyrir því, hvað útþrá er, og hvað af henni leáðir, svo hún megi ekki hindruð vera. Útþrá, er innihaldsríkt og fallegt orð, getut innibundið í sér jafnt andlegar sem líkamlegar fyrirætlanir og framkvæmdir; fyrirætlanir, sem spretta upp af sárri löngun til að rnenta sig, þroska og fullkomna hæfileika sína að einhverju ákveðnu takmarki. En líka getur útþráin ver- ið tóm ástríða til að kasta sér út í sollinn, krafa eftir því, að fá að vera þar sem glaumurinn er mestur. Með öðrum orðum, útþráin er afl, oftast vilt afl, sem þarf að beizla eða að minnstakosti að hafa sterkar gætur á Hún getur áreiðan- lega orðið hlntaðeigandi æskumanni til falls, heimilinu til hins mesta hnekkis, og þjóðfélaginu hans til óhamingju á einhvern hátt. Hún er ótamið afl, sem útheimtir fullkomið athjygli, óeigingjarnt og kærleiksríkt hugarþ .1, og góða greind til hamingjusamlegrar forsjáar. Eg get ekki betur séð, en að æskumanninum með útþrána og ástvinum hans, hljóti sem oftast að vera það sameiginlegt mál, hvað líklegast er til vetferðar. Gamalt máltæki segir: “Heimskt e ' heimalið barn”, og sjáanlega lyftir sú skoðun undir útþrána. En svo segir annað máltæki jafn spaklegt: “Holt er heima hvað,” og þessi yfirvegun leiðir til þeirrar niðurstöðu að: “Kapp er best með forsjá”, og að útþráin er varhuga- verður eiginleiki, sem getur verið nauðsynlegt að hjáLpa við undir vissum kringumstæðum, en líka nauðsynlegt að hafa taumihald á. pað er mín skoðun að útþráin sé sá eigin- leiki fjölda margra íslendinga, sem alls ekki hef- ir verið iheftur til skaða á ‘mörgum næstliðnum árum, en þar á móti að hún sé að verða sá straumur seftn flæðir yfir bakkana og engar stýflur halda. En eins og æfinlega hefur þetta sínar undantekningar. Dýrmæt útþrá, hefur sem oftast ,sín eig'n framsóknarskiilyrði, og sín eigin laun í sér inni- falin. pað er eins og hindranirnar flýi, ef tak- markið er göfugt. Eins og líka að sú útþrá sem orsakast af léttúð, leiðir til falls. Við könnumst við það, og höfum persónulega þekkt marga mikjlhæfa menn, sem strax í æsku voru svo á- kveðnir og viljasterkir, að einhverju fyrirseltu takmarki, að þeir vöktu á sér eftirtekt góðra manna, sem hvöttu þá til fraftna, gáfu þeim heil- ræði, og leystu þá út með gjöfum. Engina verður óbarinn biskup, og slíkir menn verða oft- ast að reiyna mikið á sig, en þegar þeir hafa há- leitt augnamið, þá réttir margur þeim hjálpar- hönd, og þannig nær hin fagra tilgangsríka og réttmæta útþrá vanalega takmarkinu. Honum sem er lifandi grein á vínviðareikinni, verða til- lögð þroskaskilyrðin. pjóðfélaginu verður að skiljast það, að ár- lega vaxandi ginningaröfl og útsog léttúðarinnar, er engin eðlileg útþrá, og leiðir ekki til andlegr- ar þroskunar, né efnalegrar hagsældar. Daglega þarf að treysta þá undirstöðu hjá æskumanninum, sem kristileg lífsskoðun og dyggðarík breytni á að vaxa ofaná. SkóJamir ná ekki að hálfu leyti tilgangin- um. Við sjáum þess dagleg dæmi, að: “pað verður hverjum að list, sem hann leikur”, og al- staðar er sú meginregla viðurkend, nema í skóla- fyrirkomulaginu: barnungir og lífsreynslulaus- ir kennarar, sem hafa sókst eftir þessari atvinnu, á meðap þeir voru að búa sig undir aðra, og hverfa oft að öðru, þegar þeir eru að fá ofurlitla æfingu. Eins og það sé það fyrsta, sem megi trúa unglingunum fyrir, og fela þeim á hendur sem sé siðavöndun hirma bamanna. peir ungl- ingar eru þó fágætir sem því verki eru vel vaxn- ir, hvað sem þekkingu þeirra í hinum fyrirskip- uðu lærdómsgreinum líður. Algengt er það, að maðurinn innan við þrítugt og oft eldri, er naum- ast snortinn ennþá af þeim undirstöðu sannind- um, sem verða honum í trú og lífsbreytni helgust og háleitust. Og eins lengi og maðurinn hefur ekki sannfæringu fyrir því, hvert stefna skal, þá getur hann ekki verið fullkominn leiðtogi ann- ara. Margir kunna að segja, að dygðaiðkanir bamanna komi skólunum ekkert við. En er ekki einhver ósamkvæmni i því, að þjóðfélögin hafi tvær andlegar uppeldisstofnanir, kirkjur og skóla, sem ekki ber nein skylda til að vinna sam- an. Skólamir með hagkvæanu fyrirkomulagi eru það menningar áhald, sem eitt getur komið í veg fyrir margar óákjósanlegar ástríður hjá þjóð- inni. Skólamir, með heilbrigða skoðun á sam- vinnufélagsskapar nauðsyn þjóðarinnar, geta, með tíð og tíma, komið í veg fyrir léttúðar- fulla og óhappasæla útþrá æskumannanna. Skólamir eru þekkingar arfur liðinna alda, og þeir standa best að vígi til að virða gildi reynslupnar, æskumanninum til uppbyggingar. Með heppilegu fyrirkomulagi standa þeir best að vfgi til að sætta æsku og elli. Fr. Guðmundsson. Brúðkaupsvísur Sungnar í silfurbrúðkaupi Mr og Mrs C F Edwards, Minneota, Minn., 3. des. 1922. Hér er brugöið upp sögunnar blikandi skjöld, Og til 'baka nú sést yfir fjórðung af öld. Yfir Kjartans og Guðrúnar góðfrsegu leið, Varpar gullroða minningin fögur og Iheið. Hér er brugðið upp sögunnar blikandi skjöld, Og til baka nú sést yfir fjórðung af öld. Yfir Kjartans og Guðrúnar góðfrægu leið, Varpar gullroða minningin fögur og heið. H'ún er bundin við hversdagsins blíðu og stríð, Og við baráttu og sigur í liðinni tíð. Yfir Kjartans og Guðrúnar góðfrægu leið, Varpar gullroða minningin fögur og heið. Hún er bundin við hversdagsins blíðu og stríð, Og við baráttu og sigur í liðinni tíð. Hún er bundin við fleira en frá verði greint. Við hinn falslausa drengskap sem vér höfum reynt. Hún er bundin við hversdagsins blíðu og stríð, Og við baráttu og sigur á liðinni tíð. Hún er bundin við fleira en frá verði greint. Við hinn falslausa drengs'kap sem vér höfum reynt. Og því sækja nú brúðhjónin hollvinir heim, þenna hátíðisdag til að fagna með þeim. Hún er bundin við fleira en frá verði greint. Við hinn falslausa drengskap sem vér höfum reynt. Og því sækja nú brúðhjónin hollvinir heim, þenna hátíðisdag til að fagna með þeim. Rví vér vitum það öll að þau eiga það flest, Sem að ágætast þykir og reynst hefir bezt. Og því sækja rnú brúðhjónin hollvinir heim, penna hátíðisdag til að fagna með þeim. pví vér vitum það öll að þau eiga það flest, Sem að ágætast þykir og reynst hefir bezt. Yfir Kjartans og Guðrúnar góðfrægjjj braut, Vaki gæskunnar himinn í láni og þraut. pví vér vitum það öll að þau eiga það flest, Sem að ágætast þykir og reynst hefir bezt. María G. Árnason. “Heimasætur himinsala.” Viðkvæmnin á vökunætur, Vonarlífið sína kvilla; Sálarhokur heppnast illa,— Hvergi neinar skaðabætur. Æfisól að ægi hnígur,— Efinn hjartablóð vort sýgur,—- Óttinn rnörgu að oss lýgur,— Arðurinn: slys og þra'tur.— Er þá furða að augað vakir, grætur? Töfralampar ljúfrar nætur, Lýsa, benda huga mínum Út úr grafargöngum sínum,— Myrkfælnin fær meinabæ'tur.----- — Þarna uppi á einhver heima,— Einhver bygði stjörnugeima, Ljós þau kveikti, lét mig dreyma U>m líf, seín þar á rætur, Þegar barnið bernskufriðinn grætur. Vilst lief eg á vegi förnum,— Víða þóttist andinn heima.—-- Hver skóp háa himingeima?------ Hærra bent var efagjörnum.— “Heimasætur himinsala”, Heilla sálu ástardvala, Máttar, kærleiks tungum tala, Túlka oss jarðarbörnum Allra föður, — æðri sól og stjörnum! Jónas A. Sigurðsson. Ástœðurnar fyrir því að hugur íslenzkra bænda hnegist til Canada 37. Kafli. Stjónarfarskerfinu í Alberta, má skifta í þrjá flokka er inni- binda áhrif frá sambands, fylkis og héraðs eða sveitastjórn. Grun 1 vallarlög sambands- og fylkis- valda eru sniðin eftir brezku fv • irkomulagi. Bretlandi er stjórn- að af konungi að nafninu til, en þó eru það í rauninni kjörnir full- trúarar fólksins, er með völdin fara. Fuilltrúi konungs í sam- bandsþinginu, er landstjórinn. lEn í fylkjunum út af fyrir sig, fer fylkisstjórinn — Lieutenant Governor, með umiboð konungs Sambandsþingið skiftist í tvær deildir, efri og neðri málstofu. Stjórn'kjörnir tþingmenn eiga sæ i í efri málstofunni, en aðeins þjóð- kjörnir í hinni neðri. Fylkisþingin eru eind'ellduð, og fer þar ráðuneyti með völdin, er styðst við meiri hluta þings, eins og gildir um sambandsstjórnina. Bæði samíbandis og fylkastjórn- ir, haga störfum sínum á sam- ræmi við grundvallarlögin — The British North America Act, frá 1867. Er valdissvið alþjóðar- stjórnarinnar og fylkjanna þar á- kveðið. Eftirgreind málefni teljast til vapdsviðs sambandsstjórnarinn- ar: pjóðeignir og þjóðskuldir, verzlun og viðskifti, póstsam- bönd, manntal og hagskýrslur, hermál og varnir á sjó og landi, laun stjórnþjóna og annara em- bættismanna krúnunnar, vitar og siglingar, sóttvarnarhús og sjó- mannaspítalar, peningar og pen- ingaslátta, bankakerfið, fiski- veiðakerfið, vog og mál, sjálfs- skuldarábyrgðarskírteini, vaxta- ákvæði, gjaldþrota fyrirmæli, einkaleyfis réttindi, umsjón með Indíánum og lendum þeirra, þjóð- jarðir, málmar, timbur, vatnsorka, þegnréttindi, hjúskapur og hjú- skaparslit, hegningaríögin og framfylging þeirra, ásamt fang- •elsum. Valdsvið fylkjanna, er þannig á- kveðið: Réttur til þess að breyta grundvallarlögum fylkja, að und- anteknu þeim lið, er kveður á um embætti fylkisstjóra; skattar til fylkisútgjalda, lántökur fylkjun- um til handa, stofnun embætta í þágu fyllkisstjórnanna og laun þeirra embættismanna; fjárfram- lög Ojg starfræksla fylkisfang- elsa og annara betrunarstofnana, stjórn og starfræksla sjúkrahúsa, geðveikrahæla og liknarstofnana innan fylkis, uppboðsleyfi og önn- ur leyfi, opimber mannvirki önn- en þau, er áður hefir verið tekið fram að sambandsstjórnin ré5i yfir, isímalagnimgar innanfylkis, réttur til að framkvæma gifting- ar, eftirlit með framkvæmd dóms mála og fylkis/lögreglu og alllrar löggæzlu, er snertir fylkismál, svo og með mentamálum. Sambands- og fylkisstjómir hafa í sameiningu eftirlit með akuryrkjumálum að nokkru leyti, veldur það mestu um, hve mjög sambandsstjórnin hefir beitt sér fyrir að útbreiða vísindaþekkingu í þeim efnum og varið til hennar miklu fé. par af ieiðandi hefir hún ósj'álfrátt ávailt haft hönd í Ibagga með aðalframkvæmd þeim mála. pótt sambandsstjórain ' ráði eigi yfir skólum fylkjann:.. þá veitir hún þó styrk til sérfræði- skóla, svo sem landbúnaðar og iðnskóla. pingmanna tala í sambands- þinginu, frá fylkjunum, er miðuð við fóilksfjölda hvers fylkis um i sig. Samkvæmt The British ' North American Act, hefir Oue- bec fylki sextíu og firom fulltrúa á samibandsþingi, en þingmanna- tala hinna fyikjanna er ákveðin ; 1 hlutfalli við fólksfjölda í Quebcc. Alberta-fylki hefir tólf neðri ntál- stofu þingmenn og* 1 fimm í öld- ungadeildinni. Sambandsstjórnin hefir í hverjií fylki umboðsmenn, til innheimtu | tolla og eftirlits með námuiB ®g timburtekju. Einnig á sviði ak- uryrkju, fiskiveiða og skóg- græðslumálanna. Fylkjastjóri er útnefdnur af Iandstjóra, það er, sambands- ! stjórninni er hann skipaður tií ; fimm ára og ö|ll lög fyK<isþirigs | verða þess vegna að ná undirskrift hans, áður en þau ganga í gildi. ! Hann kveður formlega til þings í og slítur því, staðfestir allai stjórnarráðsamþyktir, tilkynning ar og embættismanna skipanir. Fimtíu og átta þingmenn, eiga sæti á fylkisþinginu í Alberta, kosnir í almennum kosningam pingið er kosið til fimm ára, þo má Ieysa það upp áður, ef nauð- syn þykir bera til. Kosningaréit hafa jafnt konur sem karlar, er ! öðlast hafa brezk þegnréttindi, I dvalið að minstal kosti ár í fylk- inu og þrjá mánuði í hlutaðeig- andi kjördæmi. Vilja þingsins, eða þingæiri- 'hllutans, framkvæmir ráðuneytið. Fyl'kisstjóri, að minsta koeti aí' formi til velur yfirráðgjafanii. enn hann aftur á mó.ti, kýa eér i samverkamenn í stjórnina. pessi ráðgajfaembætti emt í ; Alberta fylki: Forsetisráögjafi, dómsmálaráðgjafi, fylkieritari, fylkisféhirðir, akuryrkjuráðgjafi. mentamálaráðgjafi, heilbrigðis og héraðsmálaráðgajfi, ráðgjafi síms og opinberra verka. Tekjur sínar fær fýlkiestjóra- in með innanfylkissköttum, bto> og framlagi frá Sambandsstjóra- inni, sem uppbót fyrir fylkií- landeignir, svo og með sköttmi' af óyrktu llandi og sköttum frá verzlunar og fjármálastofnunum. Réttarfarinu er skift á hiíIIí tveggja dómstóla, héraðsdóms og yfirdóms. Er yfirdómurinn Sup- reme Court, æsti dómstóll innao fyllikisins. Héraðsdómurinn fjall- ar um minniháttar mál. f yfrr- rétti eiga 9 dómarar sæti. Sam- bandsstjórinn skipar dómiarana og 'greiðir laun þeirra, en að öðru leyti standast fylkin kostnað við réttarfarið. Fylkinu er sktft í dómþinghár, og er að minsta kosti einn héraðsdómari í SiTerri, auk málaflutningsmanns krún- unnar, fógeta og réttarþjóns. Ean má nefna friðdómara og lög regýudómara. Eignarbréf öll, eru látin að hendi í The Land Titles Offfce. peir lesendur Lögbergs, er cskja kynnu frekari upplýsinga uwi Canada, geta snúið sér bréflega til ritstjórans, J. J Bíldfelle, Col- imbia Building, William Ave. og íherbrooke St., Winnipeg, Mani- coba.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.