Lögberg - 24.05.1923, Blaðsíða 2
Bte. 2
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 24.MAÍ 19*3,
Fimm ára þjáningar
á enda.
pegar hann tók Fruit-a-tivea
vi8 gigt..
Hið fræga ávaxtalyf.
pað e rnú engum vafa undir-
orpið, að “Fruit-a-tives” er með-
alið, sem fóJk hefir verið að
leita að, við gigt og bakverk.
Vitnisburðir víðsvegar um Can-
ada sanna þetta bezt.^,-
Mr. John E. Guilderson of
Parrsboro, N.S., skrifar: “Eg
þjáðist af gigt í fimm ár, reyndi
fjölda meðala og læknir í Am-
herst og víðar, en alt af kom gigt-
in aftur.
Árið 1916 sá eg auglýsingu
um “Fruit-a-tives” og fékk eina
öskju. Eftir sex mánaða notk-
un, var eg orðinn alheill.”
50 cent askjan, 6 fyrir $2,50,
reynsluskerfur 25cent. Hjá öllum
lyfsölum, eða beint frá Fruit-a-
tives Limited, Ottawa, Ont.
Dánarminning.
Sigríður Hávarðsdóttir Erlendson
Að kveldi hins 9. apríl síð-
astliðinn, ilézt að heimili sínu í
Svoldarbygð í Norður Dakota,
merkiskonan S^gríður Hávarðar-
dóttir Erlendsson, eiginkona hins
góðkunna *öldungs Guðbrandar
Erlendssonar. Hafði hún legið
rúmföst í tvo mánuði', en vinir
hennar voru vongóðir um bata
framan af Iegunnj og einnig
lseknirinn, sem stunda^1 hana.
En eftir því, sem á leið var auð-
sætt að hverju stefndi. Bssnamein-
ið var hjartahilun.
Sigríður Ingibjörg, því svo hét
h'n látna fullu nafní, var fædd
24. jan. 1852 að Gaukstöðum á
Jökuldaí í Norður-Múlasýslu.
Foreldrar hennar voru óðalsbóndi
Hávarður Magnússon og kona
hans Hallfríður Pétursdóttir
Magnús faðir Hávarðar var Guð-
mundsson, Andréssonar. Pálss-
sonar á Glúmstöðum í Fljótsdal
En Hallfríður móðir Sigríðar,
var ein af hinum alkunnu Hákon-
arstaða systkinum. Fluttist
hingað vestur af þeim Pétur Jök-
u'H eldr'. Sigfinnur og Gunnlaug-
ur. en allir voru búsettir í fs-
lendingabygðinni í grend við
Minneota. Heíma á ættjörðinni
dóu Vigfús, fað*r Geo. Peterson í
Pembina og þeirra bræðra, og
Kristín fyrri kona Jósefs frá
Haugstöðum, er lézt I Minneota
fyrir nokkrum árum.
Sigríður heitm ólst upp hjá
foreldrum sínum þar til hún var
17 ára gömul. Fór hún þá P1
unnusta síns, Guðbrandar Er-
lendssonar á Valþjófsstað í Fljóts-
dal, er að miklu Iieyti var upp-
fóstraður af séra Pétri Jónssyni.
€r þar var þá prestur. Eftir eins
árs dvöl þar á staðnum, giftust
þau Guðbrandur og Sigríður í
júní 1870. Ári síðar fluttu þau
að Gaukstöðum, og áttu þar í fjög-
ur ár félagsbú með foreldrum
hennar. Árið 1875 fluttu þau
Guðbrandur og Sigríður til Ame-
ríku, og settust fyrst að í Nýja
Skotlandi, eins og sagt er frá í
riti Guðbrandar “Markland”. par
bjuggu þau í siex ár á heimilis-
réttarlandi, en fluttu hurt þaðan í
ágúst 1881. Var þá íslendinga-
bygðin í Nýja Skotlandi að eyðast.
syni, tengdasyni sínum í Svoldar-
bygð og Ibjuggu þar síðan.
Eliefu ibörn eignuðust iþau Sig-
ríður og Guðbrandur. Tveir
drengir, Erlendur og Sigurður
Helgi dóu á fyrsta ári, Anna pór-
un lézt í Duluth. 9 ára; Guðrún
lézt í Hallsonbygð 18 ára; Anna,
gift Kristjáni Thorsteinssyni, lézt
28 ára heima hjá foreldrum sín-
um. Sex börn þeirra eru á lífi:
Hallfríður, gift Tryggva Dínus-
syni, sem áður er nefndur; Há-
varður. er býr á föðurleifð sinni í
Hallsonbygð; Helga. gift Einari
Snædal, East Lake í Co»lorado;
Pálína, hjúkrunarkona, gift Jóni
Askdal, einnig í East Lake Color-
ado; Stefanía, gift Einari Á3-
mundssyni. nú hjá Pálínu systir
sinni, og Pétur, ókvæntur, einnig
í Colorado. Auk þess eru á ’ífi
20 barnabörn, en eitt er látið. og
eitt barnabarnsbarn. Er þetta
hinn mannvænlegasti hópur. sem
sýnt hefir hinum ^aldurhnignu
hjónum ástúð og virðingu í ríkum
mæli.
Sigríði' heitina lifa tveir bræður
og ein systir: Pétur Magnús,
ekkjumaður, er býr með dætrum
sýnum, póru og Sigriði í Grafton,
N. Dak., Guðmundur. bóndi við
Lundar, Man.; Kristín og Helga,
ógift, til heimilis hjá hjónunum.
Guðmundi Thorlákssyni og Guð-
rúnu Þorsteinsdóttur í Akrabygð í
Norður Dakota.
pau Guðbrandur og Sigríður
voru húin að vera gift í nærri 53
ár. Var þeim haldið gullbrúð-
kaup fyrir þremur árum að Hall-
son. Var þar fjölmenni mikið
samankomið, og kom þar greini-
lega :í ljós /hve mikils gullbrúð-
hjónin voru metin í bygð sinni.
Voru þar mörg verðskulduð við-
urkenningarorð töluð í þeirra
garð, Ipg þeim færð heiðursgjöf
frá vinum þeirra. Aldrei hefir
sá, er iþetta ritar, séð jafnungleg
gullbrúðhjón. og þar gat að líta.
Sambúð þeirra ihjóna var hm
ástúðlegasta og nutu þau mikilla
vinsælda hjá öllum, er þeim kynt
ust. Guðbrandur er Ijúfmenni
hið mesta, eins og kunnugt er,
greindur vel og tók ætíð góðan
þátt í öllu er til heilla horfði
■bygð sinni. í veikindum var hans
oft vitjað, lagði hann þá oft á sig
mikla fyrirhöfn og vökur til að
hjálpa. Forseti safnaðarins á
Hallson var hann um langt sikeið,
og ætíð þar einn af bestu liðs
mönnum. Svo mætti fleira telja,
Útávið gætti konunnar minna, en
kunnugir vissu að hún var öflug
ur bakhjarl manni sínum, í öliu
er til heilla ihorfði, og að hann
hefði iek>ki getað eins oft vikið sér
frá heimilinu öðrum til hjálpar,
ef hin trúfasta eiginkona hefði
ekki rækt sitt hlutverk, eins og
hún gerði.
Sigríður heit. var greind kona
og einarðleg. Hún átti fagra söng-
rödd, og söng oft við vinnu sína
eins og maður hennar getur um
í riti sínu. Hún var hreinskilin
í allri framkomu, stilt í fasi, en
einbeitt í því, er henni lá á hjarta
Heimili sitt rækti hún með sér-
stakri alúð, og var hún ein af
þeirn konum, er sérstaJkt lag hafði
á því að gera iheimilislegt hjá sér.
pau hjón voru samtaka í gestrisni
og a'Mð. Með stillingu bar hún
alt mótlæti lífsins, og eins dauða-
stríð sitt, þvi í kyrþey lýsti hjá
henni traustið til Drottins.
Hún var jarðsett þann 17. apríl
að viðstöddu fjölmenni, þrátt fyr-
ir þvínær ófæia vegi. Var lögð
til hinstu hvíldar í grafreit Hall
son safnaðar.
K. K. ó.
fróður í sögu ættjarðar sinnar og
fylgdi nákvæmlega tímanum í
málum þessa lands, með íslenzk-
um áhuga og drenglyndi, enda
sýndi það ljóslega þar sem honum
voru á hendur falin ábyrgðar-
mestil störf héraðs síns, söknuð-
urinn við viðskilnað hans er þ/í
sár hinum mörgu vinum hans, hin-
um ástkæru ættingjum hans, og
síðast enn eki sízt hinni hjart-
fólgnu systur hans, sem stöð við
hlið hans í blíðu og stríðu. í gleði
og sorg, alt að andlátsstund hans,
honum er svift ií burtu frá oss í
blóma lífsins, kallaður af alvizku
drottins til æðri starfa á landi
lífsns. Góður guð huggi og
styrkji hina iharmþrungnu syrgj-
endur.
Þorgils Ásmundsson
Erlendur Grímssonw
F.1886. D. 1923
Dánarfregn.
Þann 30. apr. andaðist í Port-
land, Oregon, Erlendur Grímsson.
Banamein ihans var hjartasjúk-
dómur, hann var sonur Sigurðar
Grímssonar, sem um eitt skeið bjó
að Sandakoti á Álftanesi í Gull-
bringusýslu. og fyrri konu hans
Kristínu Erlendsdóttur fyrrum
hreppstjóra að Breiðabólstöðum.
Erlendur sál. var fæddur að
Sandakoti árið 1886, hann ólst
up^p ihjá móðurafa sínum Erlendi
á Breiðabó'Istöðum, þar til hann
var 17 ára, þá flutti hann vestur
um haf og settist að í Alberta
fylki, stundaði þar járnvöruverzl-
- . ---- un um nokkur ár, var og sveitar-
&ettust þau að á Duluth í tæpt ár skrifari í Golden West og skóla
Fluttu þann 6. júlí 1882 til Pem-' og bæjarskrifari í “Worlds” Lake,
bioa. og dvöldu þar fram yfir
nýjiár 1883, er þau settust að á
heimilisréttarlandi sínu f Hall-
sonbygð. Bjuggu þau þar til 11.
nóv. 1918, er þau fluttu sig í
nýtt heímili hjá Tryggva Dínus-
n I I PM Hvl a8 þjaat af
mM I I LL ölæSandi og bölg-
| I| g Jg inni gyllíniæt?
■ ■ Inl UppskurCur önauð.
eynle^ur. fvl Dr.
Chase’s Ointment hjálpar þér strax.
60 cent hylkiC hjá lyísölum eða fr&
Edmanson, Bates & Co., Limited,
Toronto. Reynsluskerfur sendur 6-
keypis, ef nafn þeasa blaðe er tiltek-
18 ogr 2 cent frímerki sent.
árið 1918 flutti hann vestur á
Kyrrahafsströnd, settist að í Port-
land, Oregon, hélt þar um tíma
gistihús, einnig stundaði hann iþar
um tíma matvöruverzlun.
Eftirlifandi ættingjar hans eru
faðir Ibúandi í Red Deer, Alta. 4
alsystkini og 1 hálfsystir.
/Erlendur sál. var einhver hinn
allra bezti drengur og hvers
manns hugljúfi, lunderni hans
var svo aðlaðandi að hann dró að
sér sál 'hvers manns, sem hann
'komst í kynni við, jafinvel við
fyrstu viðkynningu, hann hafði
bjargfasta dómgreind, var vcl
Harmi er lamað mitt hugrúms
■megn
hljóður eg stari út í hláinn,
óvörum heyrði eg að ómaði fregn
‘■Erlendur Grímsson er dáinn.”
í góðvina hópi með glaðværa lund
göfugur reyndist hann dregur
í ástvina brjóstum blæðir nú und
brostinn í hjarta er strengur.
Oft svífa að oss sorgþrungin ský
þá só'lljós skín fegurst í heiði
mannlífið lýtur lögmáli /því
að lífsblómin fölni á meiði.
poí sorgin sé bitur, höl sé 'hart
og brjóstið fyllist af trega
eilífðar vormorguns vonarljós
bjart
oss veitir guðs náð dásamlega.
pví bak við sorganna skuggaleg
iský
skaparans a'lmættis kraftur
kveikir það Ijós, sem lýsir oss í
lífið og gleðina aftur.
Far nú vel vinur/— nú sefur þú
sætt
syrgjendur kveðja þig hljóðir
söknuðinn alfaðir aleinn fær
igrætt
elskaði sonur og bróðir.
Fagnandi sálin að framandi
strönd
ferðast að æfinnar kveldl
þar hittumst við ódáins yndælu
lönd
í alheimsins dýrðlega veldi.
porgils Ásmundsson.
WHITEST, LIGHTEST^
Pétur Ó. Maxon.
varð hráðkvaddur að kvöldi þess
6. maí s.l. á heimili sínu að
Markerville. Gekk alheill að
kalla til 'herbergis um kvéldið —
en hálfri stundu seinna — þegar
rekkjunautur hans og bróðir, Ást-
valdur bjóst til hvílu. var pétur
liðið lik.
Hann var að eins 22 ára að aldri
—i fæddur 22. febrúar 1901 —
ihvers manns hugljúfi og gerfi-
legur maður, eins og ihann átti
kyn til. — Sá þriðji í röðinni af
6 börnum merkiishjónanna, Sig-
urðar Magnússonar (Maxson) frá
.Sævarlandi (dáinn 1912) og
mannúðarkonunnar miklu Önnu
Kristínar Pétursdóttur frá Stór-
hóli í Skagafirði.
pó í miðjum vorönnum væri,
mátti svo heita, að öll bygðin legði
niður verk þann 9. maí til að
fylgja ástmegi sínum til grafar.
P. H.
Magic
baking
powdeb
^gNTAINS
Œfiminning.
á kistunni en eg ihefi séð áður.
,Hr. A. S. Bardal útfararstjóri
frá Winnipeg sá um útförina en
heimaprestur okkar séra Jóhann
Bjarnason gerði prestverkin.
iHélt húskveðjuna heima á heim-
ili hins látna, og ræðu í kirkj-
unni.
Foreldrar Gunnsteins voru
Jón Guðmundsson dáinnn 25. apr.
1919 og Steinunn Magnúsdóttir.
sem húin eru að vera hér í nær
40 ár. Mest af þeim tíma bú-
s^ett í Hnausabygð. Jón Guð-
mundsson faðir Gunnsteins var
sonur Guðmundar Bjarnasonar og
konu hans Málfríðar er hjuggu
fjölda mör^ ár í Borgarhöfn í
Suðursveit, Austur Sk^ftafells-
sýslu á íslandi.
Systkini Jóns voru mörg og eitt
þeirra á meðal hin nafnfræga
gáfukona Oddný Guðmundsdóttir,
sem nú er dáin fyrir nokkrum ár-
um. Systkini Gunnsteins voru
7 — sex að þeim komust til full-
.orðins ára, Jónína gift sergt.
Mayor Jóni Laxdal; 2. Thórunn
gift Harry Page enskum manni
býr í ÍHnausabygð; 3. Gubl1
Bjarni. er gerðist sjálfboði þá hið
mikla stríð skall á og féll á Frakk-
landi 3. sept. 1918. 4. Málfríður
gift Gunnari S. Einarssyr i
hónda í Hnausabygð; 5. Einar
Ágúst, nú fyrirvinna hjá móður
sinni á 'Gíslastöðum, Hnausabygð.
Gunnsteinn ólst upp í foreldra-
'húsum og naut mentunar eins og
gerðist á þeim tíma hér. iþá hann
var unglingur og tók snemma við
stjórn heimilisÍTis og faraðist vel.
pann 3. sept. 1919 gekk hann að
eiga ungfrú Elínu Katrínu Thor-
steinsson, fósturdóttur Stefán-
heitins Jónssonar fyrrum kaur-
manns í Winnipeg, sem flestír
landar kannast við.
Elín er systir Th. E. Thor-
steinssonar. bankastjóra fyrir
Royal bankann í Winnipeg, sem
flestir íslendingar þekkja og Ey-
ólfs ísfelds Thorsteinssonar.
pau hjón Gunnsteinn og Elín
eignuðust þrjú börn 2 drengi og
eina stúlku, er fæddist rúmum
tveimur mánuðum eftir lát föð-
ursins. Kona Gunnsteins flutti
sig með Qitlu drengina skömmu
eftir lát manns síns til vina
sinna í Wpg. Hvar hún ólst
upp og var þangað til hún gift-
ist.
Auk konu. barna, móður og syst-
kina, er öll Hnausabygð er syrgir
hinn velviljaða góða mann. Sá
sem þetta ritar hefur verið í ná-
grenni við Gunnstein frá því hann
var barn og annan eins ungling
og framkomu alt í gegn, hefi eg
aldrei þekt. Dugnaðurinn og
hjálpfýsin var dæmafá. ’Hvenær
sem maður leitaði til hjálpar
hans þá var það velkomið, hvort j
heldur það var fjárframlög til
einstaklinga eða þátttöku í ifé-
lagsmálum, auk allrar þeirrar
vinnu er hann gat í té látið var
ætíð hið sama. og það með svo
góðu, að ®Mkt eru fá dæmi. — Er
því við fráfaíl Gunnsteins stórt
skarð ihöggvið í okkar félagaskap
og verður því minning hans lengi
í huga þeirra er honum kyntust.
Blessuð sé minning hins látna!
M. Magnússon
CHEVROLET skarar ávalt fram úr
Ódýrasta
lífsábyrgÖ fyrir
fjölskylduna er
CHEVROLET
Bifreiðin
Chevrolet Touring, nýjasta tegundin.
Á fánm mínútum flytur hún yðnr úr mollulofti borgarinnar, út í hið hreina sveitaloft.
Útivist er frumskilyrði fyrir góðriheilsu. Ekkert samgöngntæki veitir yður jafnmörg
tœkifæri til að njóta hinnar heilsnsamlegn útivistar og Chevrolet bifreiðin. Hón
gefst ekki upp þó vegnrinn sé þnngfær, og þó eitthvaðverði að, eru stöðvar á hverjn
strái sem selja Chevrolet parta og annast viðgerðir. — Vér ernm einka-umboðsmenn
í Selkirk fyrir Chevrolet og höfnm ank þess brúkaðar bifreiðar af ýmsum tegnndnm.
Einnig önnnmst vér aðgerðir hvaðabifreiða sem er. Ef þér hafiðí hyggju að kanpa,
þá kaapið þér anðvitað Chevrolet. Finnið oss að máli og apyrjist fyrir um kjörin.
Sveinsson &
SELKIRK,
Sigurðsson Co. Ltd.
- Manifoba
♦ ^
f
Gunnsteinn Magnús Jónsson
' pess var getió í Lögbergi í vet-
ur að Gunnsteinn Magnús Jónsson
á Gíslastöðum væri dáinn, og við
fráfall hans mistum við Hnausa-
búar einn af okkar ágætustu
mönmim.
Hann var fæddur á Gíslastöðum
20. febr. 1890, dáinn 28. janúar
1923. Var jarðaður 31. s. m. í
Hnausa grafreit og fylgdi honum
til grafar flest alt fóllk er gat
farið. Fleiri blómsveigar voru
Frá Langruth, Man.
16-6 1923.
Veturinn er liðinn, en ísinn og
kuldinn er enn ófarinn, hefir
naumast komið hlýr dagur það
sem af er. Vatnagangur var svo
mikill pg ófærð, að elztu hændur
muna ekkert laka^a. Reru menn
um bæinn fram og aftur, nú eru
menn farnir að neyta fótanna.
Vatnið kom að norðan og féll inn
í bæinn í stórstraumi, og heyrð-
ist vatnaglaumur eins og við stór
vatnsföU á íslandi, þaikti það vest-
ari ihluta bæjarins og hélt svo til
austurs; braut það stórt skarð í
akvegi og járnbrautina ihér og
þar; leið á iþriðju viku án þess
að kæmi járnbrautarlest. Nú er
það að komast í lag, en kostnaðar-
samar verða þær viðgerðir allí.r
f
f
f
V
f
f
f
f
f
f
f
f
BlFREIDA SALA
Nú getið þér keypt lítið notaðar bif-
reiðar á framúrskarandi lágu verði
og litlum afborgunum.
AOeins í eina viku bjóðum vér yöur eftirgreindar tegundir bif-
reíöa á lægra veröi en nokkru sinni fyr.
Studebaker, Maxwells, McLaughlins
Hudsons, Overland, Chevrolet
Gray Dorts, Chalmers g$ 5”dir
ur
Sparið peninga með því að kaupa núna, við stórkostlega niðursettu
verði. Vér höfum aldrei haft betri kjörkaup á lítið brúkuðum bílum.
* 100 gallons af gasolíu fylgja hverri bifreið, sem keypt
WKeypis er þessa viku og nægir til allra sumarferða yðar.
Lítið inn Komið inn og skoðið bifreiðar vorar. Talsímar
Opið á kveldin Ef ^ér meýðekki v^aaðþví þá fónið N0333 0gN6334
—*----------------og vér sendum mann í bitreið heim tii -----------------—---------
yðar og hann gefur yður allar upplýsingar
westfipn Canada Motor Car Co. Ltd.
Used Car Dept. 263 Edmonton St.,
T
f
f
f
f
f
f
f
f
f
f
❖
f
f
f
f
f
f
❖
:♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
og bregður til beggja vona um
hveitisáning þetta vorið, verður
það seint til, en sumarið getur
ihikið bætt úr. ef >það reynist hag-
stætt.
Annars er líðan manna hér bæri-
leg.
ip. 11. þ. m. lést Jón Edward Á-
mundsson, ættaður úr prándheimi
í Noregi. Hann var 73 ára gam-
all og var búinn að dvelja hér í
landi um 23 ára og var mest af
þeim tíma í þessu umhverfi.
Eftirlifandi ekkja hans, Gunnlaug
Magnúsdóttir Ámundson, býr við
ísafold P. O. þar sem hún er með
þrem börnum sínum.
Jón sálugi var sleginn af hesti
og mun iþað hafa dregið hann til
bana.
S. S. C.
'berst í lofti.
Síðar hafa spurst áreiðanlegar
fnegnir af því, að nýtt gos /hefir
Jkomið á eldstöðvunum norðan
Vatnajökuls, sem gerðu vart við
sig ií haust. Á Norðurlandi hafa
bjarmar sést þegar myritfva tók
og sömuleiðis í Rangárvallasýslu.
Stefna þessara elda ibendir á, að
þeir muni vera á sama stað eins
og í haust sem leið.
Það einkennilegasta við eld ,fos
þetta er það, að enn, veit enginn
með fullri vissu hvar það er. —
Menn hafa þó gert tilraun til að
komast þangað, t. d. blaðamaður-
inn Mr. Hall, sem hér dvaldi í
vetur til þess að skoða eldstöðv-
arnar. En svo langt komst hann
ekki, að hann væri viss um hvar
eldstöðvarnar væru.
Sem betur fer, eru ekki horfur
á, að þetta eldgos geri bygðunum
skaða, svo teljandi verði. pað er
aðeins það smæsta af öskunni,
sem kemst til mannabygða — hitt
hirðir Ódáðahraun, jöklarnir eða
önnur öræfi.
ELDG08 ,E N N.
í páskavikunni þóttust ýmsir
sjá þess merki, að eldur munli
vera upp 1 óbygðum austur. Hér
suður með sjó féll þá aska, svo
að brá sást á tjörnum af vikrinu
og loftið var mórautt, eins og
Mjög eru það akrar enn blautir venja er til, þá er öskureykur
BREYTILEG VEÐRÁTTA.
j
!
Frændi W. frá Noregi heimsótti hann eitt sinn
er miklar rigningar gengu.
“Rignir altaf svona hjá ykkur”, spurði gestur-
inn.
“ó, nei”, sagði W. “það snjóar líka stundum.”
ry f >
Hættuleg lækning.
Læknir nokkur, er hafði gefið W. lyfseðil, kom
til hans eftir nokkra daga til að vita um heilsu
hans. “pér hafið fþá farið nákvæmlega eftir lyf-
seðli mínum?” —• “Nei, það varaðist eg — því a5
hann datt út um gluggann af þriðja lofti.”