Lögberg - 13.09.1923, Page 4
BJs 4
LÖGBERG, FIMTUDAGINN
13. SEPTEMBER 1923.
Skólarnir.
Dagarnir eru farnir að styttast, en næt-
urnar að lengjast. Sumarið með sólskini og
blíðuveður er að því komið að kveðja, en haust'
i með húmsvalar nætur er fyrir dvrum.
Arstíða skiftin, eða breyting árstíðanna
hefir ósegjanlega mikil álirif á hugsanir og at-
hafnir inannanna.
Vorið og sumarið kallar unga og gamla út
í ljósið, ylinn og lífið.
llaustið og veturinn safnar því saman við
arinelda heimilanna.
Sumarið er starfstíð líkamans. Veturinn
andans. Undir atorku og einlægum vilja
mannanna á tíð sumarsins, er hin efnalega af-
koma þeirra vanalegast komin, og hin andlega
undir samvizkusamlegri notkun vetrarins. —
Eða, ef þetta er ekki svo, þá ætti það að vera
það.
Á þeirri tíð, sem vér lifum á, er ekki lögð
eins rnikil áherzla á neitt, eins og mentun æsku*
lýðsins. Aldrei í sögu mannanna hefir fólk
lagt eins mikið á sig til þess, að veita ungdóm-
inum þroska, eins og á vorum dögum.
Dýrir skólar eru reistir í borgum og bygð-
um, til þess að hver einasti unglingur eigi kost
á að njóta þar mentunar, og þeir eldri eru fús-
ir á að taka sitt síðasta cent til að gera þá svo
úr garði, að þeir verði að sem beztum notum.
Það er fjarri oss að lasta þetta, því það
sýnir, hve ant þeim eldri er um að æskulýður'
inn sé búinn sem bezt undir lífsstarf sitt, þó
jafnvel það geti og hafi gengið fram úr hófi í
allmörgum tilfellum, því það er aldrei skraut
eða dýrleiki bvgginganna, sem gefur þeim
gildi sem skólum, heldur það, sem fram fer í
þeim, — kenslan sjálf og einlægni nemendauna.
En á síðari árum hefir tilfinning manna
vaknað fyrir því að not það, sem nemendurn-
ir hefðu af skóhigöngunni, væri ekki í samræmi
við kostnað þann hinn ægilega, sem skóla út-
haldið hefði í för með sér. Með öðrum orðum,
að menn væiu að tapa árlega á skólaúthaldinu.
Sú tilfinning er ekki tekin úr lausu lofti,
heldur er hún ávöxtur reynslunnar.
Nemendumir hafa ekki það gagn af skóla-
göngunni, sem þeir ættu að hafa.
Þeir kunna ekki hinar fyrirsettu náms-
greinar og standa svo uppi ráðalausir, þegar
að prófunum kemur, og falla.
Hvernig stendur á þessu?
Það yrði ef til vill erfitt að telja upp allar
ástæður, sem að því liggja, og líka of langt mál.
En nokkrar má nefna.
Alvöruleysi í sambandi við mentamálin er
eitt af aðal meinsemdum vorra daga.
Nemendurnir eru búnir að fá það inn í sig,
að námstíðin sé og eigi að vera nokkurs konar
leikur, sem ekkert sé á móti að leika, ef hann
kemur ekki í bága við neitt annað, sem þeim
þykir meira í varið.
Það er fremur sjaldgæft nú á dögpm, að
náæismaður, eða námsmey, leiti sér mentunar
af innri þrá, heldur af því, að það er hefð og
gefur líka von um léttari og betur launaðar lífs*
stöður, ef svo vildi til, að þau slampist í gegn'
um námið.
Skemtanadekrið, sem komið er inn í menta-
málin, á líka sinn þátt í-að veikja starfs- og
viljaþrek nemendanna.
Það að láta skólakensluna vera sem alira
skemtilegasta fyrir nemandann,— að hann hafi
sem minst fyrir henni og að hún samrýmist sem
bezt skemtanaþrá hans, er að voru áliti eyði-
legging fyrir alla hlutaðeigendur, en slíkt er þó
óneitanléga stefna nútíðarinnar.
Skólamentunin verður að vera áreynsla,
eða hún er einskis virði.
Það er einmitt áreynsluleysið, sem er að
gera námsfólkið ónýtt, ekki að eins andlega,
heldur og líkamlega.
Námsfólk getur með engu móti gert nám-
inu viðunanleg skil, ef það situr á hreyfi-
myndahúsum þrjú kveld í viku, en er á döns-
um hin þrjú.
Námið krefst allra krafta þeirra óskiftra,
ef það á að verða að nokkrum verulegum not-
um, og lífið krefst þess, að námsfólkinu sé
kent þegar í æsku, að hvert það viðfangsefni,
sem vel á úr hendi að fara, þurfi á öllum og ó'
skiftum kröftum manna að halda.
Hvers vegna halda menn, að meira en fim-
tíu af hundraði þess námsfólks, sem gekk und-
ir próf hér í Manitoba síðastliðið sumar, hafi
fallið á prófinu?
Halda menn, að það hafi verið af skorti á
námsgáfum? Nei, langt í frá. Menn vita, að
það stafaði af kæringar- og áhugaleysi með það
verk, sem því var falið að gera — menn \/ita,
að það var af því, að námsfólkið sveik sjálft sig
og alla aðstandendur sína og sóaði tíma sínum
í andvaraleysi þegar það átti að vera að læra.
Agaleysi á ekjú all-lítinn þátt í þessu á-
standi. Og þegar vér tölum um aga, þá eigum
vér ekki að eins við að nemendunum sé kent að
haga sér sæinilega, því vér vitum ekki til, að út #
á þá hliðina í sambandi við mentamálin sé svo
mikið að setja. En aginn verður að ná lengru
en það. Hann verður að ná til námsins sjálfs.
Hann verður að knýja nemandann til að leysa
af hendi verk þau, sem honum eru falin að gera.
Á jiann hátt að hann skilji ákveðið, að honum
haldist ekki neitt annað uppi.
Oss getur skilist, að á þessari eftirlætis-
öld, þá veigri kennarar og skólastjórar sér við
að beita hörðu við nemendurna í þessu efni.
En það er þó eina ráðið við þá, sem kærulausir
eru. Eina ráðið fyrir kennarana, til þess að
þeim verði nokkuð ágengt, og eina ráðið til
þess að vekja það námsfólk til' skilnings um,
að ef það ætlar sér nokkum tíma að verða að
manneskjum, þá verður það að beita kröftum
sínum.
f þessu sambandi minnist s<4, er þetta rit'
ar, atviks eins, sem kom fyrir hér í Winnipeg
árið 1894 við skóla, er hann stundaði nám við.
Þar var einn ungur maður, sem ávalt kom í
skólann án þess að hafa lesið eitt orð í lexíum
sínum og þóttist góður af og svaraði kennar-
anum fullum hálsi, þegar hann vandaði um
við hann. Svo fór þó um síðir, að kennarinn
sagði skólastjóranum frá þessu. Skólastjóri
vandaði um við piltinn með góðu; en það hafði
engan árangur. Næst segir hann honum, að ef
hann bæti ekki ráð sitt, þá reki hann hann úr
skólanum. En náunginn sat við sinn keip eftir
sem áður. Svo var það morgun einn, að kenn-
arinn var að hlýða yfir í bekknum, og þessi
piltur kunni ekkcrt að vanda og var óvanalega
framur í orði, að skólastjóri, sem hafði staðið
við herbergishurðina, er var lítið eitt opin,
kemur inn í kenslustofuna með fasi allmiklu,
tekur í hálsmálið á piltinum, rykkir honum úr
sæti sínu, skipar honum að taka saman bækur
sínar, sem hann þó ekki'gerði, heldur tekur
skólastjóri þær og hendir þeim út úr herberg-
inu og piltinum á efttr, og bannar honum að
koma inn fyrir dyr skólans unz hann hefði
tekið sinnaskiftum.
Pilturinn fór heim til sín, og faðir hans
kom eftir miðjan daginn og var hinn reiðasti.
En skólastjóri sat við sinn keip. .Eftir tvær
vikur kom pilturinn aftur í skólann og var upp
frá því fyrirmyndar námsmaður.
Við þessa harðneskju skólastjórans græddu
allir: Skólinn, pilturinn og foreldrar hans.
Með þessu dæmi erum vér ekki að halda því
fram, að þannig ætti að breyta við námsfólk
yfir höfuð. Sem betur fer, þarf það ekki
slíkrar ráðningar, en þeir, sem ekkert gera á
skólum annað en svíkjast um og glepja fyrír
öðrum, þurfa, að vera vaktir á einhvern hátt.
Sléttufylkin.
Þegar að maður ferðast um sléttufylkin í
Canada um hásumars tíð, og landið í kringum
mann er ein kornstangamóða eins langt og aug-
að eygir, og bændabýlin reisuleg standa upp úr
henni hér og þar eins og eyjar úr hafi; þegar
maður hefir séð borgirnar og bæina, nautgrip-
ina og sauðfjárhjarðirnar; fjöllin, skógiana,
árnar og vötnin, þá segja menn, að þeir 'þekki
sléttufylkin í Canada.
Fyrst og fremst eru það nú tiltölulega fá-
ir, sem á þenna hátt eiga kost á að kynnast
sléttufylkjunum, og sumir þeirra fara í gegn
um þau án þess að sjá nokkurn hlut, sem er í
frásögur faerandi, eins og gengur. En það eru
langflestir Canadamenn, og það meira að segja
menn, sem búa í sléttufylkjunum sjálfum, sem
vita alt of lítið um þau.
Nýlega hefir innanríkismála deild stjórn-
arinnar í Canada gefið út bækling, þar sem
sagt er frá náttúruauðlegð sléttufylkjanna,
sem er bæði fróðlegur og merkilegur. Þar er
talað um loftslagið, komrækt og komræktar-
lönd, námur, timbur, fiskveiðar, orkuafl, grá- '
vöru, villudýr og skemtigarða.
1 Albei;ta fylkinu er að finna 15 af hundr-
aði af öllum kolaforða heimsins, og árið sem
leið var í því fylki framleitt 41 af hundraði af
öllum þeim kolum, sem framleidd vora í
Canada.
1 Manitoba hafa víðáttumiklar koparnám-
ur fundist; í Flin Flon námunum vita menn að
eru 16,000,000 tonn af kopar og zink. Leir til
múrsteinsleir er að finna víða í Manitoba.
Gull hefir líka fundist í norður hluta fylkisins,
en enn er ekki verulega reynt, hve víðtækar eða
auðugar þær námur eru.
Við Manitoba vatn eru gypsum námurnar,
sem enginn veit live víðáttumiklar era. Sams-
lags námur eru og til í Alberta, þó þær séu ekki
unnar enn sem komið er.
Árið 1922 voru tekin 6,400,000 teningsfet
af gasi úr jörðu í Sléttufylkjunum og steinolía
hefir fundist í jörðu í Alberta, og er verið að
grafa eða leita eftir henni í báðum hinum
fvlkjunum. Saltnámur hafa fundist á brömur
eða fjóruin stöðum ásamt tleiri verðmadum
námum. Plnginn maður getur gert sér hug-
mynd um náttúruauðlegð ]>á, sem Norður-
Manitoba hefir að geyma.
í þremur VesturfyÍkjunum eru frá átta til
ellefu miljónir ekra af landi með timbrj, sem
hæft er til sögunar og sölu, og er þar um að
ræða frá 33 til 42 biljónir feta af borðvið, þeg-
ar búið er að saga timbrið. Auk þess er mikið
af smærra timbri, þegar norðar dregur, sem
verðmætt er, eða getur orðið til pappírsgerðar.
1 öllum Sléttufylkjunum eru skóglendur, sem
settar hafa verið til síðu og era verndaðar af
því opinbera.
Árið 1920 námu fiskiveiðar í Norður-
Manitoba $1,200,000 . Hin fylkin hafa ekki
enn þá lagt rækt við fiskiveiðarnar innan sinna ^
vébanda, en auður sá, sem bíður þeirra, sem ‘
hafa mannskap til að sækja hann í hinum norð-
lægu vötnum, er geysilega mikill.
Mánitoba hefir orkuafl í ám og vatnsföll-
uin, sem nemur þremur miljóna hestafla, og af
því orkuafli eru að eins hundrað Jiúsund hest-
öfl starfrækt nú. í Saskatchevan eru um fimm
hundruð þúsund hestöfl, sem bíða þess að þau
séu beizluð, og Alberta hefir um fjögur hundr-
uð þúsund, og af því afli er nú búið að höndla
þrjátíu þúsund hestöfl í Bowánni.
Samkvæmt skýrslum þeim, sem þeir, er
leyfi fengu til dýraveiða árið 1921, gá,fu, þá
nam grávörutekjan $200,000.
t Canada eru fimtíu og tveir búgarðar, þur
sem dýrarækt er stunduð, og framleiða þeir nú
árlega mikið af grávöru.
Um aðrar framleiðslulindir Sléttufylkj-
anna, svo sem hveiti og aðrar korntegundir,
afurðir sauðfjár, nautgripa, svína og alifugla,
eru mönnum svo kunnar, að hér gjörist ekki
þörf að geta þeirra.
Hnignun í skáldskap
Eftir Edivin Markham, LL.D:.
(Niðurl.)
Þetta eru að eins fáar bækur af mörgum, sem
gera kynferðis spursmálið og vöxt ]>oss að um-
talsefni á þessari umbreytinga tíð. Hvað er
það svo, sem að þessum sögum er?
Það er það, að flestar þeirra segja að eins
frá sérstökum hnignunar atvikuip, en eru svo
fram settar, að æskufólkið og hið óupplýsta
eldra fólk trúir því, að í þessum óalgengu til'
fellum sé að finna sanna og ábyggilega mynd
af félagslífi, sem bezt er hjá þjóð vorri, og
þess vegna eftirbreytnisvert, — svo fram sett,
að það freistar örlyndra ungmenna til þess að
henda öllum tálmunum út í veður og vind, til
þess að geta fundið til hinnar lokkandi ástríðu
hins trylta dansleiks og svimandi hringiðu hins
falska frelsis.
Erum við búin að gleyma fyrirmynd þeirri,
sem oss er gefin í “Scarlet Letters,” “Adam
Bede” og “Anna Karenina”, þar sem um
þetta kynferðis spursmál er talað, en það er
gert á þann hátt, að það er í fullu samræmi við
reynslu og raunveruileik þann, sem fram hefir
komið við heildina.
Sem betur fer, þá eru það tiltölulega fáir
af enskum og bandaríkskum höfundum, sem
veltast í þessari kynferðis-vilpu. Nýlega hef-
ir mér borist saga, sem heitir “Faint Per-
fume.” Saga sú dregur ekkert úr kynferðis-
spursmálinu, eða ógæfu þeirri, sem illa saman-
valdar persónur lenda í, en samt er þar gjörð
tilraun til þess að forðast hneyksli og lyfta sál-
inni á vængjum hinna fornu hugsjóna.
Við höfuni og bók Will. Levington Com-
fort’s, “Public Square”. Kynferðis ástríðurn-
ar, ógæfan sem þær hafa í för með sér og sigur
þeirra, er látið koma þar fram, en framsetn-
ingin stríðir ekki á móti hóflegu aðhaldi og
sigri hins sanna í lífinu.
í fvrra kom út bók eftir Edith Warton,
sem heitir “Glimpses of the Moon.” 1 gegn
um alla þá sögu er meinlætis ástum fléttað, sem
sagan snýst um, en það er talað um það með
stillingu og sum atriði eru þar, sem lesandinn
sjálfur verður að gjöra sér grein fyrir.
Af þessum sögum sér maður, að það er
hægt að greina og tala um þessi spursmál
lífsins á þann hátt, að kynferðis spursmálið
veki menn ekki einasta til nautnarinnar sem því
fylgir, heldur líka hættunnar.
Vér erum komnir langt burtu frá því tíma-
bili, er hinir grísk-dramatisku höfundar sögðu,
að það væri svívirðing að sjg konu leika ásta-
rullu á leiksviði. Vér, sem nú lifum, þekkjum
ástir, sem, eins og á milli Richard og Lucé við
ána í “Richard Feverel”, og eftir að hafa þekt
þá fegurð, reynir maður að varaa þess, að liún
sé eyðilögð eða úr henni dregið í þessum af-
vegaleiðandi sögum.
.Tafnvel Fielding sýnist halda sér í skefjum
og hafa ákveðið augnamið, því hvað ruddaleg-
ar sem hann gjörir saurlifnaðar persónurnar í
sögum sínum, þá gleymir hann aldrei að gera
]>ær hlægilegar. En í þessum nýju sögum, sem
hér eru til umtals, þá eru persónuraar sneiddar
allri siðferðilegri meðvitund, látnar stika reig
ingslegar í gegn um lífið, virtar og óátaldar, í-
mynd æðstu hugsjóna og fullnaðar frelsis.
I>ó að fólk sé til í heiminum, sem skortir
jafnvægi í kvnferðis spursmáJinu, og sem ekki
hugsar meira um það, þegar það er að velja sér
maka, heldur en menn gefa hestum eða kúm, á
því er ekkert að undra sig. En slíkt fólk verð-
ur að taka sem undantekning, ekki sem heikl,
og hinar takmörkuðu athafnir þess fólks, eins
og þær koma fram í nútíðar skáldskap, gefa
ekki heildar yfirlit yfir lífið. Það gefur að eins
sjúkt útsýni á smáblettum þess, og sökum sjóna-
skortsins sýnir það oss lífið eins og mvndavél-
in og málvélin (dictograph) gjörir.
Er þá ætlast til, að vér skoðum lífið í
P'lreudean kynferðis sjónarmiði, frá hinu
}>rönga kjallara-gólfs sjónarmiði tilverunnar,
án þess að taka hið minsta tillit til hinna æðri
sjónarhæða, þar sem vonardraumarnir skína
inn í róslitaða möskva mannlífsins?
Ef að hús lífsins á sína dimmu klefa, þá á
það líka sína björtu sali, þar sem gluggarair
endurspegla ljós stjarnanna . Það eru til bæði
ill og góð öfl í lífinu, og það sorglegasta er, að
þessir ungu ástríðu postular, með þeirra tak-
markaða skilningi á sálarfræði og gagngjörðu
neitun á andlegum hugsjónum tilverannar, era
að dreifa pest, sem miðar til þess að afvega •
leiða ungdóminn og kveikja eyðileggjandi
mannhatur í hugum allra manna, — þeir eru,
máske óafvitandi, að vinna að afturför og eyði-
legging.
■■ ■■■■■■■■■■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■■■■:■
_■
£ TilboÖ við opnun
ii
Ra
■■
B
■■
■■
B
H
H
H
■■
■■
H
H
H
■■
H
H
H
H
■■
“■
■■
H
::
Skólans
NEMENDUR, sem innritast til J7RIGGJA mán-
aða við skóla vorn, fá ÓKEYPIS kenslu fyrsta
mánuðinn.
f VERZLUNARFRÆÐIDEILDINNI
Dagskóli, $15.00 á mánuði
Kveldskótó .... $6.00 á mánuði
TILBOÐ VID OPNUN SKÓLANS
priggja mán. dagskóli $30.00
priggja mán. kvöldsk. $12.00
10% afsláttur gefinn á öllu verkfræðis kenslu-
gjaldi.
Vér bjóðum yður afi heimsækja skóla vorn og
skoða hann. það er undir sjálfum yður komið,
hvort þér innritist þar eða eigi; það er undir yðar
eigin dómgreind komið.
Vér erum sannfærðir um, að þér munið verða oss
sammála um það, að vér höfum stærsta, bezt
lýsta og bezt útbúna Prívat Skólann í landinu,
bygðan samkvæmt ströngustu heilbrigðisreglum.
Kensluaðferðir vorar eru þær beztu, er þekkjast
Sérver nemandi nýtur persónulegrar tilsagnar.
pað kostar yður ekkert, að rannsaka starfrækslu-
aðferðir skólans, en getur komið yður að ómetan-
legu gagni.
■; UNITED TECHNICAL SCH00LS Ltd.
íjj Cor. Portage and Langside................ Phone N-6996
HiiiiaiiiiBiiiniiiiauiMiiiiHiiMiuaiiiH íiibiii ■:.■.„!■. ■ ■■■ ■ ■ ■ ■ ■
■ illlHillUIIIH'iliHilliHlliHliiiB BI ■iiiHlli
Wynyard-presturinn og kirkjan.
Framh. frá 2. bls.
hinnar Ev. Lút. kirkju, sem heldur slíku fram, það er mér ofvaxitf
að geta skilið. Verð eg því að líta svo á, að annað hvo viti séra
Friðri'k ekki neitt, eða vilji ekki vita um þ ástarfsemi, sem hér hefir
átt sér stað, til þess að koma kirkjumálum lúterskra Vestur-íslend-
inga í þetta horf, sem honum hefði þó stöðu sinni samkvæmt betur
sæmt að leggja liðsyrði, en lastyrði.
Til frekari upplýsinga set eg nú hér til samanburar, I., II. og
III. lið yfirlýsingar kirkjufélagsins 1923, og 3. og 4. gr. í frumvarpi
séra F. J. Bergmanns til væntanlegs samkomulags við Únítara 1917.
Séra F. J. Bergmann 1917.
3. gr. — Kirkjufélagið (hið
væntanlega) játar að kærleiks-
vilji guðs mönnunum til sálu-
hjálpar er að finna í biblíunni,
og að Jesús Kristur og fagnaðar-
erindið hans sé hin sanna upp-
spretta og regla trúar, kenningar
og ‘lífernis.
4. gr. —* Trúarjátningar ís-
lenzku þjóðkirkjunnar og kristn-
innar í heild, skoðar kirkjufélag-
ið mikilvæg söguleg skilyrði, er
sýnir isögulegt samhengi kristi-
legra trúarhugmynda, frá því i
fyrstu kristni og fram á daga
siðabótarinnar; álítur að stöðugt
framhald siðabótarinnar verði að
eiga sér stað í kirkjunni; og játn-
ingarnar ekki lagabönd, heldur
að eins bindandi.
X gét ekki komið auga á neinn
annan mun, en orðamun á stöku stað. Játningagrundvöllurinn
hinn sa’mi; sögulegt samhengi og framhald kirkju krists hið sama;
og frjáls og andleg afstaða til játninganna hin sama. Eini munur-
inn, sem í fljótu bragði sýnist vera, er seinni hluti I. liðs í yflr-
iýsingu kirkjufélagsins: “'Og játar trú á guðdóm Jesú Krists, samkv.
kenningum N- T. og samkv. post. trúarjátningunni.” En sá sem
þetta skrifar var svo kunnugur orðinn séra F. J. Bergmann, skrifum
hans, stefnu, trú og trúarskoðunum, og einnig þessu fraumvarpi
hans, að hann veit hví honum var svo ant um að nafnið: Jesús Krist-
ur væri látið standa í 3. grein frumvarpsins; það var af því, að
hann trúði á það nafn, trúði á guðdóm frelsarans, samkvæmt kenn-
ingum N. T. og það sem þar af leiðir: samkv. post. trúarjátningunni,
3em ekki er annað en savnantekin N. T. orð um guð, frelsarann og
kirkju hans. Eg sé því ekki muninn En a þessu nafni strand-
aði líka samkomulagið við Únítara; og þá er þeir mynduðu frjáls-
hyggju og frjálstrúar félagsskap sinn stryka þeir nafn þetta út úr
3. grein frumvarpsins. Persóna frelsarans verður því æfinlega
stóra atriðið, sem samkomulag eða sameining lúterskrar og Únítar-
iskrar kirkju strandar á. En þetta stóra atriði hélt séra F- J.
Bergmann fast við; Það heldur og kirkjufélagið lúterska fast við;
og við það hefir hin lút. þjóðkirkja íslands haldið fast frá því húh
varð til, og mun gera svo 'lengi sem hún er við lýði. pað er stóra
atriðið um guðsson Jesús Krist, samkv. kenningum N. T. og samkv.
post. trúarjátningunni. Og nafnið Jesús Kristur í 3. grein frum-
varps séra F. J. Bergmanns á ekkert annað að tákna en einmitt
þetta í huga hans sjálfs.
Nýja kirkjufélagið hefir því lítinn rétt að bera fyrir sig stefnu
séra F. J. Bergmanns, eða vera mjög hávært um samræmið við hina
Lút. þjóðkirkju íslands.
En allra síst fer séra Friðrik það vel að halla því rétta máli:
Að hið Ev. Lút. kirkjufélag Islendinga í Vesturheimi stendur á sama
Ev. Lút. grundvellinum og þjóðkirkjan á tslandi, og er í fullu sam-
ræmi við hana. Og enginn söfnuður þess er neyddur til að setja
trúarjátningarrit lúterskunnar ofar samvizku og beztu vitund. En
þar sem slíkt frjólslyndi er innan lútersku kirkjunnar, þar er
stefna séra F. J. Bergvnanns —”
Mér þykir fyrir að hafa orðið að skrifa svona í garð séra
Friðriks Friðrikssonar. Persónulega er mér hlýtt til hans og vlt
honum vel, og ber engan óvildarhug í brjósti til hans. En eg
hefi verið ti'l neyddur að skrifa svona. Samvizka mín og bezta
vitund neyða mig. Vona eg að séra Friðrik verði þess vegna auð-
veldara að misskilja mig ekki, og skilja orð mín rétt. Hví að vera
að ófrægja eitt þótt annað sé víðfrægt? Eða heldur séra Friðrik
að hann vinni sambandsfélagi sínu rnesta gagn með því að ha'll-
mæla Lút. kirkjufélaginu. Ekki veit eg til að neinn hafi opin-
berlega verið að leitast við að niðra hinuvn nýja kirkjufélagsskap.
Og það sé fjærri mér að gjöra það. pó séra Friðrik beri það á
brýn heilum hópum af fólki að vanþekking þeirra á Únítörum og
þeirra andans ljósum blindi þeim sýn, þá þekki eg þá samt nokkuð
og hefi margt hjá þeim lært, þó eg viðurkenni ekki kirkjulegt sam-
ræmi á milli þeirra og lúterskra, sem eg veit að þeir viðurkenna
heldur ekki sjálfir. Geri eg ráð fyrir að hinir ungu menn að
heiman líti svo á, að hinn nýji kirkjufélagss'kapur íslendinga hér
sé “undenominational,” og séra Friðrik virðist geðjast betur að
því en að lúterskunni eða nokkurri annara “denomination.” Við
það er ekkert að athuga, vildi hann a» eins kannast vlð það, verl
ekki að hanga í ímynduðu samræmi við Lút. þjóðkírkjuna á Islandi
og gera öðrum getsakir. öllum er frjálst að skifta um skoðanir
og lika lúterskum presti. En þar til þess sést vottur að hinn
KirKjutelagiö lutersKa 1923. *
Hver söfnuður hefir fullkom-
inn rétt innan kirkjufélagsins:
I. , sem trúir að Jesús Kristur
og fagnaðarerindi hans sé grund-
völlur trúar og lífernis; og játar
trú á guðdóm Jesú Krists, sam-
kv. kenningum N. T. og samkv.
post. trúarjátningunni.
II. —III., sem hefir í heiðri játn-
ingar lúterskrar kirkju og kristn-
innar í heild, sem mikilvæg og
söguleg skilríki, —og \íll tileinka
sér guðs orð og notfæra það í
anda hinnar Ev- Lút. kirkju.
Hver er nú munurinn hér?
Eg