Lögberg - 11.10.1923, Qupperneq 1
Það er til myndasmiður
í borginni
W. W. ROBSON
Athugiö nýja staöinn.
KENNEDY 8LDG. 317 Portage Ave. Mót Eaton
Þetta pláss í blaðinu
fæst til kaups.
35. ARGANGUR
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 11. OK.TÓBER 1923
NUMER 39
'ý ■ *****. . ;■_
HAUST.
Hrynja höfug tár
hausts um fölvar brár,
glitra köld á gráum foldar vanga.
Sumar sóldægrin,
sæla vorilminn,
syrgir haust í svartnættinu langa.
Eins og angurmóð,
eða kvíða-hljóð,
náttúran sé nú að hlýða á dóminn.
Vindsvals vængjaslag,
veinkent sorgarlag
kveði um sumarbömin dánu, blómin.
Hröð á hvahfa-veg,
haustrjóð, feimnisleg,
sólin brosir dapurt sem í draumi.
Vors og sumars vald
verður undanhald,
fyrir þungum freramagnsins straumi.
Hljóðnar söngva-her;
horfinn söngfugl er
þangað, sem hans sumar endist lengur.
Flytja fiðlur hlyns
forspil vetrarins;
angursstunu ómar sérhver strengur.
Haustsins andi í
úfin vindaský
dregur svip hins dána sumarblóma;
þegar þeim á brjóst,
þanin norðan-gjóst,
lætur bregða bliki af sólarljóma.
Dapra dánartíð!
Dauða og lífs við stríð
foldarblóm þó falli dauð í valinn,
aftur vaknar vor,
veitir frjóvi þor:
leysir neista lífs í moldu falinn.
Lloyd George, M. P.,
sem nú er á ferð um Canada, og kemur liingað til Winni-
peg á laugardaginn kl. 2.15.
Helztu Viðburðir Síðustu Viku.
Canada.
Eldur kom upp hinn 4. >. m., á
stórbýli Sir Montagu Allan, að
Beaconsfield, Cuebec, er orsakaði
$100,000 tjón.
Stjórnin í British Columbia,
hefir veitt $45,000 til hjálpar
nauðlíðandi fólki í Japan.
Samkvæmt fyrirskipun Rt. Hon.
W. S. Fielding, fjármála ráðgjafa
sambandsstjórnarinnar, hafa all-
ir stjórnendur Home bankans
veri ðteknir fastir og sakaðir um
að hafa gefið stjórninni falskar
og villandi skýrslur um hag téðr-
ar peningastofnunar. Menn iþess-
ir voru allir látnir lausir gegn
veði. Réttarrannsókn verður
hafin innan skamms. Varafor-
seti bankans var Mr- R. P. Gough,
er jafnframt hafði á hendi með-
stjórnenda sýslan við þjóðeigna-
kerfið — Canadian National Rail-
ways. ÍBanki þessi var að mestu
bændaeign og áttu margir þar
inni hvern einasta skilding, er
þeir höfðu dregið sa'man með súr-
um svita. Ekki er búist við
að innieigendur muni fá nema
sem svarar 25 cent af hverjum
dollar. —
Bankahrunin hér í landi, eru
að verða alvarlegt viðfangsefni
hverjum hugsandi manni. Mönn-
u'm er ekki úr mkini liðið Merc-
hants banka hneykslið, svo og
Dominion Finance Tioket Cor-
poration og Max Hoffmann far-
ganið hér í Winnipeg og loks
þetta alræ'mda Home banka
glæframál. Hver verður end-
irinn?
Nýlátinn er að Elgin, Ont.,
Dr. A. Finley, fyrrum sambands-
þingmaður fyrir Souris kjördæm-
ið, 57 ára að aldri.
Hon. T. A- Law, verzlunarmála-
ráðgjafi sambandsstjórnarinnar,
er rétt í þann veginn að leggja af
stað frá Ottawa, í mánaðarferð
um Vesturlandið.
Byggingarleyfi í Winnipeg
borg, fyrir yfirstandandi ár, ne<ma
rétt að segja fjórum miljónum
dala.
W. J. Egan, fyrrum starfsmað-
ur verzlunarráðuneytisins, hef'r
verið skipaður aðstoðar ráðgjafi
innflutningsmálanna.
Um það leyti er Ferguson’s
stjórnin í Oatnrio tók við völdum,
Ikvaðst hún staðráðin í að leggja
niður sparibanka fylkisins, er
stofnaður var þar fyrir nokkru,
að dæmi Norrisstjórnarinnar i
Manitoba. Nú kvað Mr. Fergu-
son vera fallinn frá þeirri ' hug-
mynd, en í þess stað ætla að láta
fjölga útibúum téðrar stofnunar,
víðsvegar um fylkið.
Við aukakosninguna til fylkis-
þingsins í Quebec, sem fer fram
í Yamaska kjördæminu hinn 22.
þ. m., verður .Henri Niquette,
bóndi, í kjöri af hálfu íhalds-
B. Þ.
M
manna. óvtst er um þingmanns-
efni stjórnarinnar.
iKosningarétt til fylkisþingsins
í fBritish Columbia, hafa nú 195,-
078 konur og menn, samkvæmt
kjörskrá þeiri, sem nýbúið er að
semja.
Hon. Mrs- Ralph S’mith M.L.A. í
British Columbia fylkisþinginu,
er nú á heimleið eftir tveggja
mánaða dvöl á Bretlandi, þar sem
hún hefir verið að ferðast og
flytja fyrirlestra um Canada. För
hennar var gerð í þei'm tilgangi,
að auka fólksflutninginn frá
brezku eyjunum hingað tl lands.
Landspilda við búnaðarskólann
að Olds, Alberta, gaf af sér 105
mæla hveitis af ekrunni, sam-
kvæmt skýrslu umsjónarmanns
skólans, F. S- Grisdale, í vikunni
'sem leið. Mun þetta vera mesta
hveiti uppskera, sem nokkru sinni
hefir heyrst getið um í Canada.
Hon. John Hart fjármálaráð-
gjafi British Columbia stjórnar-
innar, hefir lýst yfir því, að
stjórn sín hafi afráðið að kaupa
$750,000 virði í hinu nýja ríkis-
láni sambandsstjórnarinnar.
Nýlátinn er í Ottawa. Lieut.
Col. Francois Gourdeou, fyrrum
aðstoðar flota og fiskiveiða ráð-
gjafi, maður hniginn að aldri.
Bæði korn og ávaxta uppskera
Ontario fylkis, er sögð að vera í
góðu meðallagi.
California, einn af þeim mörgu úr
hópi Republicana, sem augastað
hefir á forsetaembættinu, er jafn-
eindreginn andstæðingur Þjóð-
bandalagsins og nokkru sinni fyr.
Telur hann það blátt áfram óverj-
anlegt, ef Bandaríkin færu að
blanda sér hið allra minsta í Ev-
rópu glundroðann.
Frá íslandi.
Pétur A. ólafsson hefir ný-
lega verið skipaður konsúll Bra-
silíustjórnar hér. Er hann um
þessar mundir á ferð í Póllandi, í
erindum landstjórnarinnar, til
þess að kynna sér saltfisksmarkað
þar og í Eystrasaltslöndunum.
í bindindismálaerindum, og ef til
vill verður hann hér næsta vetur.
'Larsen-Ledet, bannmannafor-
ingi Dana og ritstjóri helzta mál-
gagns bindindismanna þar í
landi, er væntanlegur hingað inn-
an skamms og ætlar að halda hér
fyrirlestra.
i
Geir Sæmundsson biskup frá
Akureyri er fyrir skömmu kominn
hingað til bæjarins til þess að
vitja um frú isína, sem legið hef-
ir hér sjúk um tíma af slagi. Kom
hún ‘hingað fyrir nokkrum vikum,
hefir verið veik síðan, og þungt
haldin.
Bandaríkin.
\\ alton ríkisstjóri í Oklahoma
hefir ákveðið að kalla saman ríkis-
þingið hinn n. nóv. næstkomandi.
Kveðst hann þá munu krefjast
þess af þinginu, að það afgreiði
lög, er útrými með öllu Ku Klux
Klan félagsskapnum, eða forvígis-
mönnum “veldisins ósýnilega”, eins
og hann kemst að orði.
Bandaríkjastjórn áætlar, að hún
muni fá $500,000 tekjur í sköttum
af bardaganum milli Dempsey og
Firpo, sem fram fór 14. sept. síð-
astliðinn. *
Á nýafstöðnu þingi hinna sam-
einuðu verkamannafélaga i Banda-
! rikjunum, sem haldið var í Port-
j land, Ore., var feld með miklu afli
atkvæða tillaga, um að stofna póli-
tiskan verkamannaflokk.
Senator Borah frá Idaho, kveðst
því mótfallinn, að bændur stofni
sérstakan stjórnmálaflokk; hitt sé
jafn sjálfsagt, að þeir myndi með
sér öflug samtök, í þeim tilgangi,
að greiða sem bezt að verða megi
fyrir sölu landbúnaðar afurða, þvi
eins og nú sé ástatt, sé kringum-
stæður þeirra, hvað markað snert-
ir, litt þolandi.#
Senator Hiram Johnson frá
95 ára afmæli átti í gær (7. j ^
sept.) Sigurður Egilsson fyrrum
bóndi á pjótanda í Flóa, nú á
Njálsgötu 58. Hann er hress að
öðru leyti en þvi, að hann sér il'la;
hefir fótavist á hverju'm degi.
Síldarafli hefir nú verið all-
góður á Siglufirði undanfarna
daga. Eru sum skipin hætt
veiðu'm.
Ameriskur prófessor, Gregory,
að nafni, er starfar við Yale há-
skólann í Bandaríkjunum spáir
því, að ný ísöld muni leggjast
yfir Norður-Ameríku, ísland,
Skandinavíu, Skotland, nokkurn
§
hluta Englands 0g mikið af Asíu.
Ekki fylgdi það sögunni hvenær
■þetta mundi verða. Væri fróð-
legt fyrir þessar hræður, sem nú j
lifa á hinum 'komandi isslóðum,;
að fá að vita svona nokkurn veg- j
inn hvenær von er á ísnu'm, svo
að maður geti forðað sér i tíma.
Níutíu og fimm ára verður i
dag (29. ágúst) Jón Jónsson frá
Vopnafirði, nú til heimils á
Hverfisgötu 94. Hann er vel
ern enn, iles gleraugnalaust og
fer um alt ihjálparlaust.
Frá Sauðárkróki var simað í
gærkveld, að þar væri hríð og
versta veður og sennilega um alt
Norðurland.
Byrjað er nú að grafa fyrir
undirstöðunni að Ingólfslfknesk-
inu, og á það að standa nær því
upp á háhólnum á túninu- Er
rist ofan af allstórum bletti um-
hverfis sjálfan fótstallinn, sem
auðsjáanlega á að slétta og græða
upp.
Nú nýlega fór settur borgar-
stjóri austur að Alviðru í ölfusi
og sótti þangað 50 þúsund laxa-
síli, eins og áður var getið um
hér i blaðinu að ætti að gera.
Voru þessi ,síli flutt hingað í Ell-
iðaárnar. Flutningur sílanna
er ýmsum vandræðum bundinn, en
tókst í þetta sinni mæta vel,
drapst ekkert síli á leiðinni. petta
mun vera fyrsti flutningurinn
sem á sér stað á laxasílum hér
sunnanlands, og er Ivonandi að
góður árangur verði að.
Dáin er 22. þ. m. (ág.) á heim-
ili ’SÍnu hér í bænum Maria Lár-
usson, kona Karls Lárussonar
kaupmanns, fædd Thejl, frá
Stykkishólmi, góð kona og 'merk,
og áttu þau hjónin 9 börn, hið
elzta 16 ára. Banameinið var
lungnabólga.
Dvid östlund, bindindis erind-
reki, sem verið hefir í Noregi og
'Svíþjóð siðan hann fór ihéðan í
vor, kemur hingað aftur í haust,
Ú.r Hornafirði er skrifað 31-
júlí, að þar sé nýdáinn merkis-
bóndinn Þórarinn Sigurðsson I
Stórulág, oddviti í Nesjahreppi í
fjöldamörg ár.
Tfl Grænlands ætlar Sig. Sig-
urðsson Ðúnaðarfélagsforstjóri
nú i haust; fer ihann með “fs-
landi” til kaupmannahafnar og
svo þaðan með Grænlandsfari. Er
hann fenginn til þess að fara för
þessa af dönsku stjórninni til þess
að athuga landbúnaðarhorfur á
Grænlandi og segja álit sitt um
þær. Gerir hann ráð fjrrir að
dvelja á Grænlandi fram í nóv-
ember, en ís er minstur við suður-
hluta landsins á haustmánuðun-
um. ----
8. þ. m. lézt í Borgarnesi’ á
heimili stjúpdóttur sinnar, Frið-
borgar Friðriksdóttur, konu
Kristjáns Jónssonar kaupm., Jó-
sep Jónsson, fyrrum bóndi að Hof-
akri í Dalasýslu, 87 ára gamall.
—Vísir 12. sept.
Halldór Daníelsson hæðstarétt-
ardómari andaðist á heimili sínu
hér í bænirm í gær, siðdegis, eft-
ir hálfsmánaðar legu í lungna-
bólgu, 68 ára gamall.
Hann var fæddur í Glæsibæ i
Eyjafirði 6. febrúar 1855. For-
eldra hans voru Daníel prófastur
Halldórsson og Jakobina Magnús-
dóttir Thoroddsen. ,— Hann varð
stúdent 1877 og kandidat í lögum
1883. Sama ár varð hann sýslu-
maður í Dalasýswlu og gengdi
því embætti í þrjú ár, en bæjarfó-
geti í Reykjavík 1886—1908. Þá
varð hann yfirdómari og loks
hæðstaréttardómari. Kvæntur var
hann frú önnu dóttur Halldórs
Kr. Friðrikssonar yfirkennara.
Ha'lldór Daníelsson var orð-
lagður fyrir dugnað, röggsemi og
samvizkuse'mi í embættisrekstri
og var mjög önnum hlaðinn með-
an hann var bæjarfógeti og lagði
afarmikið á sig. — Hann varð R.
af Dbr. 1904, Dbrm. 1907 og stór-
riddari Fálkaorðunrar 1922.
—Vísir 17. sept.
'Carl J. Guðmundsson kaupmað-
ur á Stöðvarfirði, druknaði 14.
þ. m. — féll fyrir borð á bát á
heimleið frá Fáskrúðsfirði. Hann
var bróðir Stefáns kaup'manns
Guðmundissonar á Fáskrúðsfirði.
—Vísir 17. sept.
Tvö skip rak á land á Siglufirði
um síðustu helgi. Annað var
norskt og brotnaði allmikið. Hitt
var íslenzkt, heitir "Ingólfur”
frá Akranesi. Það brotnaði lít-
ið eitt. —Vísir 15. sept.
Jakob Gíslason fyrrum söðla-
smiður á Akureyri, andaðist í
gærmorgun. Krabbamein varð
honum að bana, og hafði hann
legið rúmfastur eina þrjá 'mán-
uði. Hann var 65 ára að aldri.
Jakob var ættaður frá Neðri-
Mýrum í Húnavatnssýslu, sonur
Gísla bónda Jónssonar, er þar
bjó, og bróðir frú Ingibjargar
Möller, móður Jakobs Möller rit-
stjóra. Kvæntur var hann
Maríu Daviðsdóttur, systur ólafs
Davíðssonar verzlunarstjóa á Isa-
firði. — Vísir 15. sept.
Gis'li Árnason laxklaks-for-
stöðumaður, frá Skútustöðum,
hefir undanfarið starfað að laxa-
klaki í pingeyjarsýslu. Hefir
nýlega verið klakað út um 100 þús.
seyðum í Laxamýrarstöðinni, sem
hann hefir komið upp. Fleiri
stöðvar hefir hann einnig stofn-
að og stjórnar þeim, bæði fyrir
laxa og silungaklak og hefir það-
an miklum fjölda seyða verið
slept í ýms veiðivötn þeirra Þing-
eyingaanna. Hafa þeir mikinn á-
huga á þessum efnum, og hafa
framkvæmdir 1 málum þessum
mikið aukist og frágangur orðið
skipulegri og betri síðan G- Á.
tók við aðal umsjón þessara mála,
en hann hafði kynt sér þau í
Noregi og auk þess starfað að
þessu áður hér heima. En
nokkrir áhugasamir menn höfðu
áður brotið upp á þessu, eins og
fyr er frásagt hér í blaðinu.
Bjarni Sæmundsson hafði skrifað
um það og pingeyingar gert til-
raunir. Er þetta alt mjög lofs-
verður áhugi og ætti að auka og
bæta mikið veiðarnar og gera þær
stærri og arðvænlegri atvinnuveg
en áður. G. Á. ætti að kOma
upp slíkum stöðvum víðar, þar
sem vel hagar til og ættu menn að
'hagnýta sér sem víðast þá reynslu
0g þekkingu, sem þegar er fengin
■í þessum efnum. Annars er
lesendum blaðsins þessi mál 'kunn
af ýmsum greinum pórðar Fló-
ventssonar, sem ferðast hefir all-
víða til að leiðbeina mönnum í
þessum málum.
Magnús Snæbjörnsson læknir
Flatey á Breiðafirði hefir fengið
lausn frá embætti frá 1. júlí þ.
á., sökum 'heilsubtlunar.
ÍBiering-Pedersen jarðfræðing-
ur, er í sumar hefir verið á ferða-
lagi uppi í óbygðum, m. a. norð-
an Hofsjö'kuls og í öskju, fór með
Esju síðast vestur á Snæfellsnes
og verður þar við rannsóknir
þangað til Gullfoss fer til út-
landa næst- Er hann hinn
efnilegasti vísindamaður og fékk
síðasfliðið ár gullpening háskól-
ans fyrir úrlausn á verðlauna-
ritgerð. Hann tekur Magist-
erpróf í vetur og er jarðfræði ís-
lands sérfræðigrein hans.
Maður, sem er nýkominn ofan
úr Borgarfirði, skýrir Morgun-
blaðinu svo frá, að þar hafi hey-
skapur gengið viðast hvar vel til
þessa og sumstaðar gangi hann
ágætlega. Sumir bændur i
Andakil eru þegar að ljúka við
heyskapinn og hinir verða búnir
um næstu ihelgi. Tún voru ná-
The Icelander.
“Where Mississippi’s mighty deep is flowing
Through murky woods, with music in its streams;
The evening sun in all his glory glowing,—
And choral song-birds wake their wonder-themes; ”
There sat and mused, beside the mighty river,
A son of Iceland long within the West,
And in his heart he thanked the gracious Giver
Who gave so much, and, oh, so richly blesst.
I mind—he thought—my silver-mantled Mother
With eyes of blue and dress of flowered green;
And, though I’ve left her lap and found another,
I keep her image in my soul, serene.
And oft, in dreams, I see her valleys studded
With peaceful homes, and tranquil waters gemmed;
Her mountain-peaks, with evening sunlight flooded,
In robes of rose with fringes purple-hemmed.
There stood our Stead beside a prattling river
That mirrored many rapid-changing hues,
Now dark and frowning, then with light a-quiver,
Or filled with lace-like weaves of grays and blues.
And when the night, her mystic mantle flinging
About our dale, revealed her starry height;
Then shone our jewelled river, softly singing; —
A silver flood aflame with million lights.
Such were the scenes of youth—and well i mind them—
But dreams of riclies, jvaiting in the West,
Awoke ambition’s urging flame to find them;
To find our fortune in a land more blesst.
But, oh! the pang tha't smote our hearts that morning
When Iceland mingled with the sea and sky,
And sank, at last, amid the breakers scoming,
In speachless grief we stood—my love and I.
What years, what years of toil we knew together;
Those early years in our adopted land!
But Love and I did every tempest weather
To found a home upon this Western strand. . . .
And now it is the golden harvest hour,
The fmits of labor in our toil-worn hands.
And with its fondest hopes in fairest flower
The hranch out-planted treasure-laden stands.
And so I dream, contented, here at even
And calmly view the years m retrospect.
And thank the gracious Giver for the given;
The gifts of Earth, of soul or intellect.
And let a stream, I pray, of Western treasures
Flow ever Home-ward, as a love-born feast,
(Where Ránar’s daughters, darkly, dance their
measures)
Unto our grateful Mother in the East.
Christopher Johnston.
lega alstaðar í Borgarfirði vel
sprottin, vall-lendi sæmilega, en
mýrar lakar.
Á Hvanneyri lítur út fyrir á-
gætan heyskap. Það er haft
eftir Halldóri skólastjóra, að hey-
skapur þar muni verða með allra
bezta móti eða svipað og 1917,
eða jafnvel ’meiri. En þá heyj-
aðist á Hvanneyri um 3700 bestar.
Um miðja síðastliðna viku voru
al'lar hlöður þar fullar. Sömu-
leiðis á Hvítárvöllum og víðar- —
Firningar frá vetrinum hjálpa og
til.
Nýlega druknaði maður úr ön-
undarfirði, á fertugsaldri, uppeld-
issonur séra Janusar Jónssonar.
Enn fremur duknaði maður af
Akureyri í Ólafsfirði á þriðju-
dagskveldið var, Jóhann Stefáns-
son fi'skimatsmaður. Druknaði
hann í ós, sem fellur úr Ó'Iafs-
fjarðarvatni 0g hafði fallið út af
trébrú. Hann var mágur Ás-
geirs Péturssonar.
Dr. Jón Helgason biskup fór á-
leiðis til Svíþjóðar og Nroegs með
“íslandi” í gærkvöldi. För
þessa fer hann fyrir áskorun frá
félaginu “Norden,” því biskupa-
fundur sá sem tilstóð að haldinn
yrði í Noregi í sumar, ferst fyrir
og verður ekki haldinn fyr en
næsta sumar- Jón biskup
Helgason verður fyrst við hátíða-
höld í Lundi 1 Svíþjóð. Dóm-
kirkjan þar á 800 ára afmæli, er
halda skal hátíðlegt 17. og 18.
september, en í Lundi eru vígðir
margir hinir eldri biskupar okk-
ar, meðan íslenzka kirkjan laut
erkibiskupastóliium þar. Á
þeasari minningarhátíð er ráð-
gert að Jón biskup Helgason haldi
fyrirlestur, um íslenzku kirkjuna
á lýðveldistímunum, en annan,
um eitthvert trúfræðilegt efni, á
trúmálaþingi sem hefst að kirkju-
minningarhátíðinni lokinni. Frá
Lundi fer hann tfl Kristjaníu og
ætlar að halda fyrirlestur þar á
háskólanum 25. september um nú-
tímalifið á íslandi, og annan í
norska sfcúdentafélaginu 27. sept-
Cmber um íslenzku kirkjuna undir
norskri stjórn- Frá Kristjaníu
fer hann til Bergen, heldur þar
fyrirlestur og prédikar þar 30.
september. Gerir svo ráð fyrir
að halda þaðan heimleiðis með
“Síríusi” snemma í október.
50 ára prestskaparafmæli á í
dag (5. sept) séra Páll ólafsson í
Vatnsfirði. Hann er fæddur 20.
júlí 1850, stúdent 1869 og kandí-
dat frá Prestaskólanum 1871, en
vígðist 31. ágúst 1873. Hann er
enn hraustur og ern, hefir verið
mikilhæfur maður og merkis-
prestur-
Freysteinn Gunnarsson cand.
theol., kennari við kennaraskól-
ann, er nýkominn heim hingað
aftur frá Færeyjtrm. En þar
hefir ihann dvalið um sex vikna
tíma og kent íslenzku á kennara-
námskeiði, sem færeyska kenn-
arafélagið gekst fyrir. Var þar
einnig Norðmaður nokkur, sem
flutti fyrirlestra sögulegis efnis,
en annars var á námsskeiðinu
kend að eins íslenzka og færey-
i izka.
Þeir sem hafa verið að grafa
I undir fótstallinum undir líkneski
Ingólfs á Arnathólstúni hafa
komið niður á rústir af húsi, er
þeir ætla áð verið hafi í fyrstu
peningshús, um tveggja metra
breitt, og lá frá norðri til vesturs.
Voru þar ummerki eftir flór og
heybálka. Undir þeim neðsta
fanst koparpeningur frá ríkis-
stjórnarárum Kristjáns III. Dan-
merkur konungs og á svipuðum
stað hluti af koparskærum; þarna
voru og hlóðir og kolaaska, en
steinarnir ákaflega brunnir, svo
ætla má, að síðar hafi verið þarna
smiðja- Enda fundust þarna
lóðarsteinar og ljábakkabrot.