Lögberg - 27.11.1924, Síða 6

Lögberg - 27.11.1924, Síða 6
LÖGBERG, MMTUDAGINN, 27. NóVEIMBER. 1924. Hættulegir tímar. Eftir Winston ChurchilL áfram frásögunni iþar s«m Richter hætti, kom tómi vagninn með fjórum hestum fyrir og skrautbúnum reiðmönnum á vagnhestunum. Það var rétt eins og jarðarfðr, og allir rauluðu söng. Og við fórum hægt þangað til við komum að veitingahúsinu hjá myln- unni, þar sem við Ihöfðum háð margt einvígið við höfðingjaaynina. Og formaður félagsins hélt þar nniiir* lanfisniðuTn vínviðnum og við drukkum “Hvernig geta þau staðið sig við það?” epurði Virginía lágt. “Brinsmade hefir sagt mér, að Brice hafi unnið nokkuð mikilsvarðandi mál í vetur, og að siðanLafi hann haft þó nokkuð að gera. Hann sknfar l&a blöðin. Eg hefi frétt að hann hafi neitað ntstjóra- stöðu, af því að hann vilji heldur halda afram með málafærsluna.” “iOg þau ætla þá að flytja í húsið?” spurði hún eftir nokkra þögn. “Nei,” sagði ofurstinn. “Whipple afsagði með öllu að fara út á landábygð. Hann sagðiet með þvt vera að koma sér hjá því eina verki, sem hann myndi vinna til nokkurs gagns ó æfinni. Og Brice mæðgin- in verða þessvegna kyr í borginni.” Carvel ofursti stundi við um leið og hann lauk við setninguna en Virginía þagði. XXIII. KAPITULI. örið á Richter. þér til með öllum heiðri. Við drukkum þér til, Karl, okkar fræga einvígislhetja!” Og ondurminningin hafði fengið ,svo mikið vald yfir Tiefel að hann stóð upp, 0g hinir urðu hrifnir með og stóðu upp líka og héldu Ibjóirkönnunum hátt á lofti og hrópuðu: “Lengi lifí Karl! Lengi lifi Karl! Drekkum skál hans! Einn er einn, tveir eru tveir, þrír eru þrír! Lengi lifi hann. Og svona drukku þeir til hverjum manni, sem þarna var staddur, jafnvel Stephen, sem þeir hældu fyrir ræðuna, sem hann hafði haldið. Hann lærði fljótt að hrópa með þeim og núa ölkönnunni á borð- inu eins og Þjóðverjarnir gerðu. Hann var ekki lengi að sjá að Ridhter var í mesta afhaldi meðal þeirra og hafði allmikil stjórnmálaleg áhrif í Suður- St. Louis. Þegar skemtunin stóð sem ihæst kom aldraður maður ^sem Stephen kannaðist við, ,sem einn af leið- togum Þjóðverjanna (hann varð síðar yfiihershöfð- ingi í Bandaríkjaíhernum) inn og stóð Ibrosandi við íborðið og tók undir sönginn. En eftir nokkra stund fór hann bunt með Richter með sér. Þetta sumar byrjaði Stephen Brice að fást við opinber ræðuhöld. Fyrsta tilraunin tókst fremur vel en illa, en ekki var hægt að segja það um þær allar. Þetta var í dálitlu hverfi fyrir utan borgina. Þeir ^em komu ti’l þess að gera óp að ræðumanni og hæða hann, sátu þögulir og hluistuðu á hann. Meðan Stephen var að skrifa þá ræðu var hann að Ihugsa um ráð, sem Lincoln hafði gefið honum. “Talaðu svo að þeir ltilsigldustu geti skilið þig; hinir verða ekki í neinum vandræðum með að ski'lja. ’ Þetta iráð gafst vel. Fypst þegar hann var að byrja ræðuna áður en ihann var byrjaður að tala hiklaust, kastaði einhver til hans eggi, sem kom -samt hvergi nálægt honum, sem betur fór. Eftir þetta voru á- heyrendurnir forviða á mælsku hanis; einkum pó aldraður maður, sm ,sat á kassaræfli fyrir aftan aila ihina. Þessi maður hefir ef til vill verið Whipple dómari; en fyrir því höfum við enga sönnun. Það er ekki hægt að segja að þessi ræða Steplh- ená væri frumleg. Hann hlær nú, þegar minst er á hana Og kallar Ihana ungæðislega tilraun, sem hún og var. Það er enginn vafi á að mörg af orðatiltækj- um Lincolns flutu með, því Stephen kunni flestar kappræðurnar og Cooper Union ræðu Lincolns utan- bókar. En það var meira en eintóm orðin, sem hann hafði lært; íhann vair svo gegnsýrður af anda Lin- colns að áheyrendur ihans urðu hrifnir, og þar með var lokið öllu fúHeggjakasti og kálhöfða. Þessi ræða er einkum eftirminnileg vegna þess að þegar henni var lokið, þyrptust menn utan um Stephen tikþo»s að leggja spurningar fyrir hann. Eitt af því sem hann hafði ekki nefnt á nafn, var þrælahaldsafnám- ið. Var það þá ekki satt, að þessi Lincoln vildi rífa þrælana frá húsbændum sínum, gefa þeim atkvæðis- rétt og fjárstyrk og gera þá jafna mönnum, sem hefðu átt þá?” “Þrælahald má vera, þar sem það er nú!” hrópaði ræðumaðurinn. “Séu menn ásáttir með það þar, þá erum við ásáttir með, að það haldi þar áfram. En við höldum því fram, að það sikuli ekki þokast einn þumlung inn í Norðurríkin.” Næsta skifti sem Stephen Brice hélt ræðu var hann einn af fleiri ræðumönnum á miklu stærri fundi sem ihaldinn var í garði einum í St. Louis. Áheyrend- urnir voru flestir þýiskir. Þetta var því jafnvel enn betri fundur fyrir Steplhen, vegna þesis að hann gat með allmikilli lei'kni rakið ®ögu föðurlands þeirra frá Napóleons stríðunum niður að átjórnarbylting- unni. Hann mintist á það hversvegna þeir hefðu flutt til þessa mikla lands frélsisins jsem þeir væru nú 5. Og þegar hann í ofurkappi mælskunnar mintist í sömu andránni á Abraham Lincoln og föður John, skulfu blöðin á trjánum af fagnaðarlátum. Á eftir borðaði hann kvöldverð, isem hann gleymdi aldrei, í tunglsljósi undir trjánum ásamt Ridhter og nokkrum háskólafélögum hans frá Jena. Þar var herra Tiefel, ibláeygur, irjóður og kátur, og Hauptmann, sem var langur og magur og gulur í framan; þar var Körner, sem var alvörugefinn og með mikið rautt skegg, sem snúið var upp á isvo að endarnir stóðu upp í loftið. Þeir ibörðu með bjór- könnunum sínum í borðið og sungu fallega stú- dentasöngva frá Jena. en Stephen var í sjöunda himni og hugur hans isveif yfir á Saxland — til litla háskólabæjarins með turnana og hlykkjóttu strætin. Og þegar þeir sungu stúdentasöngvana runnu tár niður eftir örinu, sem vair á kinninni á Richter. Kyrra næturloftið var þrungið af söknuði, þegar þeir luku við að syngja kveðjusönginn til Jena. Richter minti Stephen á það átakanlega. ‘tManst þú eftir deginum vinur minn, er þú kvaddir þinn kæra Harvard háskóla og Boston?” Stephen aðeins kinkaði kolli. Hann hafði aldrei talað um beiskju þeirrar stundar, jafnvel ekki við móður sína. í þesisu !á munurinn á Saxanum og Engilsaxanum. Richter reýkti pípu sína þegjandi, ein8 og hann væri að dreyma; augu hans voru enn tárvot. “Eg og Tiefel vorum saman við háskólann,” sagði hann loksims. “Hann man eftir deginum, þegar eg yfirgaf Jena fyrir fult og alt. Það, Stephen, er það sorglegasta, sem fyriir mann kemur í lífinu, næst því að yfirgefa föðurlandið. Við borðuðum saman miðdagsverð, allir, sem voru í okkar stúdentafélagi, í borgarkjallaranum, sem var dimm hola undir gömlu og ljótu hiúsi, en okkur þótti samt vænt um þann stað. Við sórum ií síðasta sinn að vera hreinlífir, heiðar- legir og hollir föðurlandinu, og reiðubúnir til þess að deyja fyrir það, ef það væri vilji Guðs. Og svo gengum við hægt, bveir og tveir saman á undan fjölda fólks út í gegnum gamla Vesturhliðið; gömlu meðlimirnir fyrst, svo refaforinginn og refirnir.” “Refirnir?” greip Stephen fram í. “Yngstu, sbúdéntamir eða nýsveinamir, ein/s og þið kallið iþá,” svaraði Ricfhter brosandi. *Og á eftir refunum,” sagði Tiefel, sem hélt “Hvílíkur föðurlandsvinur hefði hann ekki ver- ið, hefðum við notið föðurlands okkar!” hrópaði herra Köning. “Eg held að hann hafi verið sá fimasti maður með sverð, sem nokkurn tíma hefir verið til í Jena. Jafnvel Körner kærir sig ekki um að mæta Ihonum, þótt hann sé með grímu og skilmingahatt og í sboppuðum fötum. Erþað ekki ,satt, Rudolph?” IHerra Körner nöldraði eitthvað til samþykkis ofur góðlátlega. “Eg er ennþá með þrimlum, ®em eg fékk í viður- eign við ihann fyrir mánuði,” sagði hann. “IHann hefir barið á mörgum höfðingjanum svo að á honum Ihefir séð.” * “Og hversvegna barðist hann ávalt við höfðingj- ana?” spurði Stephen. Allir reyndu að svara honum i einu, en Tiefel var sá eini sem gat látið til ®ín heyra. “Vegna þess að þeir vildu gera land okkar undir- gefið Austurríki, vinur minn,” isvaraði hann; “vegna þes,s að þeir voru uppivöðslusamir og undirokuðu fá- tæklingana; vegna þe'ss að þeir voru siðlausir flest- ir hverjir eins og Frakkar, en við vissum að föður- land okkar yrði aðein,s frelsað með siðgæði og hrein- lífi. Og svo stofnuðum við félög á móti þeim. Við sórum að lifa samkvæmt fyrirskipunum hin® mikla Johns, sem þú mintist á; við sórum að vinna fyrir frelsi Þýskalands með hugrekki og djörfung. Og þegar við vorum ekki í einvígum við höfðingjana, háðum við margar brandasennur meðal okkar sjálfra. “Með isverðum?” spurði Stephen hissa. ‘'Já reyndar,” sagði Körner og blés þungt. Það mátti sjá skarðið í nefinu á Ihonum í tungl,sljósi. Við gerðum það til þess að ihalda okkur við. Þið Ameríkumenn eruð djarft fólk án þess að þið berjist. En við börðumst til þess að við yrðum ekki kveifar- legir.” Stephen vogaði að spyrja spurningar, sem hann hann hafði lengi langað til að spyrja. Hvernig atvikaðist það annars, Kðrner, að Richter fékk örið, sem hann hefir. Hann verður altaf sóbrauður í framan, þegar eg spyr hann um það. Hann segir mér aldrei frá því.” “Já, því get eg vel trúað,” svaraði Körner. “Eg sikal segja þér frá því, ef þú ,segir ekki Kairli frá því, vinur minn. Hann myndi aldrei fyrirgefa mér, ef hann vissi að eg hefði ,sagt frá því. Ég var í Berlín um það leyti. Þá gekk nú á ýmsu. Tiefel veit hvort það er ekki satt.” “Já,já,” sagði Tiefel með ákefð. “Herra Brice,’ hélt Körner áfram, ‘Ihefir aldrei heyrt getið um von Kalback greifa? Nei. auðvitað ekki. Við í Jena höfðum heyrt hansi getið og allir á Þýskalandi. Margir í okkar féalgsskap báru merki eftir sverð hans. Von Kalback fór til Bonn, þar sem háskóli höfðingjalýðsins er, og þar var hann tilbeð- inn. Þegar hann kom til Beríln með systur sína, þá ,safnaðist fólk saman í hópa til þess að horfa á eftir þeim. Þau voru eins og Óðinn og Freyja, sem eg er lifandi maður! Hvað sem hver segir, þá er eitthvað varið í ættgöfgina. Hann var beinn Og stebkur eins og eikarbré í Svartaskógi, og ihún var fögur eins og ösp.. Það er svona vaxið fólkið í Pomm- ern. Það var árið 1847, þegar Karl Richter var kom- inn Iheim til Berlín til þess að heimsækja föður sinn fyrir síðasta missirið sitt í háskólanum. Einn góðan veðurdag reið von Kalback á svörtum hesti gegnum iBrandenlborgarfhliðið. Hann stærði sig af því, að eng- inn í hinum fyrirlitlegu sbúdentafélöigum þyrði að mæta sér. Og Karl Richter tók hólmgönguáskorun- ina. Allir Berlínarbúar höfðu frétt, áður en kvdld vair komið, um dirfsku þessa unga frjálslynda með- lims stúdentafélagsins í Jena. Við, sem þektum Karl og vorum honum vinveittir, vorum hálfhræddir um hann, okkur til mestu vanvirðu. Karl kau® Ehhardt fyrir hólmgönguvott. Ebhardt var meðlimur germanska klú'bbsins okkair í Jena. Hann var seinna drepinn í Breiðugötu. Og eg skal segj þér, vinur minn, þótt þér þyki það máské ótrúlegt að Karl var kominn til hólmgönguvallarin,s um sól- arupplcomu með pípuna sína í munninum. Þar var f jöldi manns samankominn: /höfðingjasynir öðru meg- in og stúdentafélagamenn hinum megin. Þetta var rétt um það leyti er sólin var var að koma upp yfir trjátoppana. Richber vildi ekki fylgja ráðum okkar, ekki einu sinni læknisins. Hann afsagði að láta vefja silki um handleggina á sér og hann vildi ekki vera í stoppuðum brókum og ekki hafa hálsibjörgina eða neitt. Ebhardt setti á hann haniskana og upp- mjóu húfuna og brjóstdúkinn með merki Germaníu- félaganna. “Greifinn stóð þar rétt eins og myndastytta í hvítri skyrtu. Og þegar menn sáu að Richter var líka verjulaus og var hinn rólegasti að reykja úr stuttri pípu, útbrunninni pípu, þá sló þögn yfir alla. Von Kalback stappaði með hælnum í jörðina, þegar hann sá pípuna, og þegar merkið var gefið, æddi hann að Richter eins og villidýr. Þú, vinur minn, sem hefir aldrei heyrt hvininn í bitru sverði, veist ekki hvernig vel æfður armleggur getur látið syngja í góðu blaði, það lét í eyrum eins og hljóðfærasláttur þennan umrædda morgun. Þú hefðir átt að ,sjá þessi^ voðahögg, sem aðalsmaðurinn gaf — fyrsta og annað oig þriðja og fjórða. Og þú hefðir getað séð hvernig Riclhter bar af sér hvert högg. Von Kalback tók aldrei augun af bláa reyknum úr pípunni. Hann barðist af afskaplegri bræði, og eg iskelf niú við að hugsa til þes,s, hvernig við félagarnir nötruðum á beinunum, þegar við sáum að okkar maður hopaði undan, fyrst eitt spor og svo' annað. Það er, eins og þú veist, æ- varandi skðmm, ef maður verður hrakinn út yfir ihólm göngutakmörkin 8ín megin. Það lá við að við ætluð- um ekki að igeta staðist þessa raun. Og svo alt í einu meðan við töldum; isíðulstu sefeúndiurnar af fyrri tímahelmingnum, kom hvinur eins og svipuól væri smelt — og hausinn af pípu Richters lá í grasinu. AðaLsmaðurinn hafði höggvið pípuna sundur eins og hún væri tág; og þarna stóð Richter með munn- stykkið á milli tannanna og með leiftrandi augu, og blóðið streymdi úr kinninni á honum. Hann ýtti frá sér lækninum sem kom til hans með nálarnar. Greif- inn brosti um leið og hann slíðraði sverð sitt, og vinir han,s þyrptust utan um hann, en Ebhardt kall- aði upp og sagði að sinn maður gæti háð seinni Ihelminginn af einvíginu — þó að sárið á kinninni á honum væri þriggja nála lengd. Von Kalback kallaði upp, að hann skyldi drepa ihann. En hann hafði ekki séð inn í augun á Richter; við sáum þar nokkuð, ®em kom okkur til þess að hug,sa, er við vorum að þvo sárið. En hann sagði eikki neitt, þegar við töluðum til hans og við gátum ekki náð munnstykkinu af pípunni út úr honum. “Herra minn trúr!” hrópaði Körner, þó með lotningu, ‘feg vona að eg sjái aldrei annað eins og þetta einvígi, þó að eg verði hundrað ára gamal’. Merkið var gefið og sverðin sveifluðust svo ihratt, að við bara sáum bjarta rák í loftinu og heyrðum hvin- inn. Og áður en við gátum áttað okkur á hvað gerst ihafði var greifinn kominn út fyrir sín takmörk og Ibúinn að kasta frá isér sverðinu upp í stórt tré, og hann æddi burt af hólmgönguvellinum með höfuðið niðri í bringu og tárin streymdu niður eftir andlit- inu á Ihonum.” Allir þögðu. Körner lyfti upp ölkönnunni sinni og tæmdi hana með hægð. Það var að hvessa og með vindinum barst ómur af söngvum og hlátrum frá f jarlægari hópum — það voru þýskir söngvar og hlát- ur. Tunglisljósið skein titrandi gegnum trjálaufin. Stephen fann til einhverrar meðvitundar um undra- verða hluti. Honum fanst næstum sem að þessi hólm- ganga, sem hafði svo mikla þjóðlega þýðingu í aug- um Þjóðverjans hefði verið háð í öðrum iheimi. Hann gat ekki trúað því að þessi látlausi lögmaður, sem hann þekti svo vel og i3em nú var orðinn Ameríku- maður í Ihúð og hár, hefði verið hetjan í henni. Það var undarlegt hvernig ibarátta þessara leiðtoga ibylt- ingarinnar í Norðurálfunni hafði orðið að engu þegar hún var með sem mestum krafti. Stephen fékk alt í einu þennan dýpri og alþjóðlega skilning á við- buðrunum, sem einkennir sanna stjórnmálaskörunga. Var það ekki guðdómleg fyrirætlun að þessi tak- markalausi kraftur föðurlandsástar og hárra hug- sjóna hafði veist hinni yngstu meðal þjóða heimsins, svo að hennar göfuga hlutverki yrði afkastað? Ungfrú Russell hafði heyrt getið um ræðuhöld Stephens. Hún og bræður hennar og Jack Brinsmade stríddu honum á þeim, þegar hann kom að heimsækja þau á Bellefontainveginum. Það var þá ekki orðinn siðui;, að nágrannar litu hverjir aðra hornauga eða gamlir vinir gengju hver fram hjá öðrum án þess að Mta hver til annars. Enginn lét sér detta í hug að Lincoln, höfðingi ihvíta sferílsins, yrði kosinn. Og Jack, esm hélt ræðu fyrir Breckenridge, þrátt fyrir isambandsstefnu herra Brinsmades, hló að Stephen, þegar hann kom til þess að vera nótt hjá þeim. Hann hjálpaði Lóu Russell til þess að hæðast að hinum heimsku Þýskurum ,og Stephen! hafði vit á að taka það í gamni. En einu sinni eða tvisvar, er hann hitti Clarence Oolfax á þessum heimsóknum varð ihann var við að afstaða hans gagnvart sér var allmikið breytt orðin. Þetta olli honum meiri óþægilegra hugsana en hann Ikærði sig um að kannast við. Honum féll vel við Clarence, ®em minti hann á Virginíu ___en endurminningin um hana var hvorttveggja í senn þægileg og sársaukakend. Það sakar ekkert þó frá því «é sagt (sálarrann- sóknarfélaginu til góðs) að Stephen dreymdi enn um hana. Hann var utan við sig allan fyrri hluta dags- ms, er hann var við verk sitt, því draumarnir fyltu huga hans, og mynd stúlfeunnar var svo Ijóslifandi fyrir augum hans, að hann gat varla trúað því, að hun væri á ferðalagi yfir á Englandi, eins og ung- frú Russell sagði að hún væri. Bæði ungfrú Russell og Anna sáu um, að hann visisi hvað ferðalagi henn- ar liði. Stephen skoðaði það sem alveg sjálfsagt, að þær héldu, að allir ungir menn vildu gjarnan fá að vita um Virginíu Carvel. Því þarf ekki að bæta (Við, að Virginía mintist aldrei á Steplhen í bréfum sínum, þótt Lóa gætti þess vel, að minnast á það í hvert skifti er hann hélt ræðu á fundum svertingjavina. Ungfrú Carvel gaf þeim fregnum engan gaum. En hún leyndi ekki því, að sér væri ant um Whipple dómara. Anna skrifaði um hann, h|versu vel hann þyldi alla erfiðleika kosning- arbaráttunnar, sem væri jafn óskiljanlegt vinum hans sem óvinum. Ný bók um Island. í fyrra sumar var á ferð hér á Islandi sænskur rithöfundur, Harry Blomberg að nafni. Sté hann fyrst á land á Akureyri, fór þaðan til Mý- vatns og til baka aftur, frá Akur- eyri suður fjöll, og síðan um sveit- irnar hér austanfjalls, og kom á helztu sögustaðina. Um þessa ferð og minningar sínar héðan og athug- anir á landi og þjóð, Ihefir hann skrifað allmikla bók, er hann nefn- ir “Bland vulkaner ooh varma káller.” Þessi bók er að mestu leyti laus við þær stórvitleysur, sem oft sjást MAKXPS -uso or Í DWAinJSRURC SILVi;U tiLOS.S STARCH - CAN/VOA COUNJ STAUCH í bókum og greinum þeirra manna, er hér dvelja um stundarsakir og skrifa um landið. — Blomberg at- hugar flest rétt, er fljótur að átta sig á aðal atriðum og stórum drátt- um þess, sem fyrir ber. Smávit- leysur koma víða fyrir. En þær eru fyrirgefanlegar manni, sem hér dvelur jafn stutt og H. Blomberg, er á hraðri ferð oftast og verður að hlíta frásögn þeirra manna sumra, sem hann skilur tæplega og þeir illa hann. Getur auðveldlega af því stafaö margskonar misskilningur. Helstu missagnirnar í þessari bók eru þær t.d. að Haraldur Níelsson próf. sé foringi guðspekinga hér á landi, og að “Morgunn” sé tímarit þeirra, aö mikið kveði að óeiningu innan kirkjunnar hér á landi, aö klæöaverksmiðjan Gefjun á Akur- eyri sé ríkiseign, að presturinn á Breiðabólsstað heiti Einar, og að húslestrarbók Hallgríms Pétursson- ar sé enn mikiö lesin. En þetta, sem nú hefir verið nefnt, er smá- vægilegt hjá hinu, sem rétt er með farið og athugað. Höfundur bó’karinnar segir fjör- lega og skemtilega frá. Honum finst mikið til um landið, dáist að ljóðelsku og ljóöakunnáttu íslend- inga, og heldur að hér sé gott að vera skáld. Lítið fanst honum koma til höfuðstaðarins svo sem vonlegt var, kallar hann kofaborg, og segir að samræmi og fegurð í byggingar- stíl og gatnagerð sé ekki enn orðið ljóst íbúum bæjarins. Hann telur lítið vera um fallegar konur á sögu- eyjunni, en meira af skyri og mjólk. —Kvartar hann um að hafa aldrei fengið annað að borða á ferðinni um landið. íslenzku hestunum hælir hann mjög. Inn í sjálfa ferðasöguna fellir hann víða yfirlitskafla um sögu landsins á þessum og þessum tíma, og er alt rétt farið meö, sem hann segir um það. Að öllu samanlögðu er þessi ferðabók hin bezta og skemtileg- asta. — Mbl. Hallgríms kirkjan í Saurbæ. Hinn 27 okt. í hauist eru 250 ár liðin frá dauða séra Hallgrímis Péturssonar, og eftir tilmælum biskups verður hins ágæta sálma- skáldis vors minst á prédikunar- stölum hinnar íslensku kirfeju & 19. sunnudag eftir Tirínitatis (26. okt. næstk.) í samibandi við þetta leyfi eg mér að minnast á samskotin til hinnar fyrirhuguðu Hallgrímis’kirkju í Saurbæ. Þau voru við næstliðin áramót kr. 7833, 85, auk 5 þús. króna tillags frá Saunbæjarsöfnuði, eða samtals tæp 13 (þúls. kr., og mun það thrökfeva skamt til byggingar hinn- ar skrautlegu kirkju. Samsfeot hafa nú upp á síðkastið verið mjög lít- il; þó er vert að geta þess, að séra Magnús Bjarnartson, prófastur á Prestabakka, sem var hér á ferð í sumar, gaf 50, kr. til kirkjunnar. — Nú eru það vinsamleg tilmæll mín til presta landsins og annara góðra manna, að jafnframt því, sem þeir minnast hinnar miklu þakarskuld, sem hvílir á oss ís- lendingnm við hið mikla trúar- skáld, fyrir hina ódauðlegu sálma hans, að þeir þá leggi í þakklœtls- sfeyni þó ekki sé nema lítinn skerf til Hallgrímskirkjunnar. Eg hefi áður skrifað um þetta mál og fer því ekki fleiri orðum um það að nýju, en eg vil aðeins þakka ðllum þeim, sem gefið hafa til þessa góða fyrirtækis og sömuleiðis vil eg fyrirfram þakka öllum þeim, er leggja vilja framvegis fyrirtæki þessu liðsyrði í orði og verki. Væntanlegum samskotum veita móttöku hr. ibiskupinn og alllr prestar landsins. Féð er ávaxtað í hinum almenna kirkjusjóði. Herrann Jesús elsfei þá alla, ssm vilja stuðla að því, að kristindóms og trúarlíf elist meðal þjóðar vorrar og megi bera ávexti í fórn- fýsi og kærleika. Saurbæ, á Mikaelsmessu 1924. Einar Thorlacius. ------o------- Frá Islandi. Talið er víst að farist hafi mót- orkútterinn Rask frá ísafirði. Hef- ir ekkert til skipsins spurst í hálf- an mánuð. Voru á iskipinu 15 menn. Guðmundur Finnbogason pró- fessor hefir verið iskipaður lands- bókaVörður frá 1. þ. m., en Jón Jacobson fengið lausn frá því em- bætti. Legst þá niður af sjálfu sér prófessorsembættið í. hagnýtri sál- arfræði. Mænusóttin vikuna 5. til 11. okt. Héraðslæknirinn á Sauðárferóki símar mér að hann hafi fundið einn sjúkling með væga ('abortiv’) mænusótt. Annars hefir veikin hvergi gert vart við sig þessa viku* Mislingarnir hafa magnast í Reykjavík. Sáu læknar síðustu viku 100 nýja sjúklinga. Enginn hefir látist. Annarsstaðar á land- inu er sóttin sem fyr mjög hæg- fara. Taugaveikin. Hennar hefir ekkl frekar orðið vart í Reykjvíkur hér- aði og hvergi getið um hana ann- arsstaðar. Barnaveiki. Hefi frétt af einum sjúkling í Rangárhéraði; annars'- staðar ekfeert. G. B. Vélbáturinn Elín úr Hafnarfirði var á leið isuður frá Siglufirði um eíðustu mánaðarmót. Hrepti stór- viðri við Born, tók út einn mann, Böðvár Sigurðsson, ókvæntan rnann ungan héðan úr bænum. Látinn er í Kaupmannahöfn stúd. polyt. Magnús Kristinnson prófasts Daníelssonar. Hann var 24 ára að aldri, efnismaður mesti. Berklar urðu honum að bana. Síðastliðinn laugardag hrapaðl maður í klettum fyrir ofan Seyðis- fjörð og beið bana. Hann hét Sig- urður Gunnarsson og var frá Dvergasteini. Tíminn 18. okt. --------o-------- Frost var hér fyrst I gær, og var þá vægt frost um land alt, nema í Vestmannaeyjum, þar var 1 st. hiti. Á Norður- og Austur- landi kvað hafa snjóað úálítið víða. Lögrétta 21. okt. RJOMI Styðjið heimaiðnað með því að styrkja yðar eigið félag og fá fult verð fyrir framleiðsl- una. Hafið hugfast, að samvinnu markaðurinn er eini framfaravegurinn að því er landúnaðinn snertir. Látið ekki glepja yður sjónir, farið að fordæmi annara þjóða, sem hafa sannað, að samvútnumarkaðs aðferðin er sú eina, er skapar gott verð á mjólkurafurðum. SENDIÐ RJÖMANN TIL The Manitoba Co-operative Dairies LIMITED

x

Lögberg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.