Lögberg - 01.01.1925, Side 4

Lögberg - 01.01.1925, Side 4
Bls. 4 LOGBERG, J fMTUDAGíNN 1. JANÚAR 1925. 3£oqbna Gefið út hvern Fimtudag af Tbe Col- umbia Press, Ltd., (Zox. Sargent Ave. ftt Toronto Str.. Winnipeg, Man. Tálsimari N»6327 oé N-6328 JÓN J. BILDFELL, Editor Utan&skrift til blaðsins: THf C0LUM)BI«V PRESS, Ltd., Box 3l7l. Winnlpeg, M«H- UtanÁskrift ritstjórans: EOtTOR LOCBERC, Box 3172 Winnipeg, Wlan. The “Lögberg” la prlnted and publlshed by The Columbia Presa, Llmited, ln the Columbia Building, 695 Sargent Ave , Winnípeg, Manitoba. 19 2 4. ÁriS 1924 mun veröa taliö merkilegt ár i sögu mannkynsins, þegar tímar lí'ða, því á því hafa skeð atburÖir, sem almenna eftirtekt hafa vakiö um allan heim. Hér í landi, Canada, hefir árið veriÖ farsælt ár. Heilsufar fólks hefir veriÖ gott, og uppskera þess og atvinna yfirleitt hefir hepnast og blessast, AÖ vísu hefir árið liðna ekki getað bætt úr erfiöleikum þeim, sem menn hafa hér sem annars staöar átt við að búa, til fulls. En það hefir gert það að nokkru leyti — þaÖ hefir að allmiklu leyti hrint óhug þeim og lcvíða, sem lagst haf&i yfir menn eins og mara. Menn líta nú viÖ áramótin bjartari augum á frmatíðina hér í Canada, en þeir hafa gjört síðastliÖin fjögur til fimm ár. Bú- lendur manna hafa hækkað stórum i verði. Afurðir búlendanna hafa og stigið í verði og efnahagur bænd- anna í Canada hefir að mun batnað á þessu liðna ári, en undir efnahag þeirra og afkomu er vellíðan þjóÖ- arinnar komin á öllum sviðum. Um stórviðburöi í lífi canadisku þjóðrainnar á þessu liÖna ári, er ekki aÖ ræða—yfirborð lífs hennar hefir verið á árinu líkara líÖandi fljóti en straum- þungri á. Verkföll hafa verið sárafá, og þau, sem hafa átt sér staÖ. hafa verið jöfnuð á friðsamlegan hátt. Verzlun landsmanna jókst bæði inná við og út á við, og innbyrðis eining og bróðurhugur þjóðarinnar glæddist,—árið liðna var Canadaþjóðinni farsælt ár. Nágrannaþjóð vor, Bandarikjaþjóðin, er eins og menn vita, óendanlega miklu stærri og voldugri, en hin fámenna canadiska þjóð, enda hafa lífsstraum- arnir þar verið þyngri og stórkostlegri, og hjá henni hefir margt stprkostlegt og alvarlegt gjörst á árinu liðna. Hinar verklegu framkvæmdir hjá þeirri at- orkusömit stórþjóð hafa verið miklar—eru alt af miklar, því í þeim sökum stendur hún víst ílestum, ef ekki öllum, þjóðum í heimi framar; en þó munum vér ekki eftir, að nein sérstök mannvirki, sem sérstak- lega sé orð á gjörandi, hafi verið framkvæmd á árinu liðna hjá henni, og ekki heldur er neitt aÖ undra sig á því, þó auðurinn hafi aukist hjá þjóð þeirri á árinu liðna. Það er svo undur eðlilegt, hjá jafn hagsýnni þjóð. I>að er heldur ekki á því sviði, sem þjóðin hef- ir vakið sérstaka eftirtekt á sér, heldur eru það hinar andlegu hliðar þess. * Hryðjuverkin, sem framin hafa verið í Bandaríkj- unum á árinu liðna, eru ægileg—svo stórkostleg, að þau hafa vakið eftirtekt manna um heim allan, og fylt menn hrolli, bæði heima fyrir og út í frá. En þó eru það ef til vill ekki hryðjuverkin sjálf, sem mestum óhug og kvíða hafa valdið, heldur hugs- unarháttur sá, sem á bak við þau hefir staðið og í sam- bandi við þau hefir komið í ljós. Að myrða mann er ljótt, en ljótara er að hafa samhygð með þeim, sem það gjörir af ásettu ráði. Að stela miljónum dollara er glæpur frá laganna sjónarmiði og allra rétthugsandi manna, en sá hugsunarháttur, sem miklar þann verkn- að, og dáir þann, eða þá, sem það gjöra, er rotnun, sem engu góöu spáir. En alt þetta og meira í þá átt- ina, sem skeð hefir í Bandaríkjunum á hinu liðna ári, hefir vakið almenna eftirtekt, og almenna hrygð. Og sú hrygð er ekki hvað minst hjá hinum hugsandi og leiðandi mönnum þjóðarinnar sjálfrar, því þeir minn- ast hinna alkunnu orða: “Að hvaða gagni kæmi það manninum, þó hann eignaðist allan heiminn, ef hann liði tjón á sálu sinni?’’ Snemma á árinu lézt fyrverandi forseti Banda- ríkjaþjóðarinnar, Woodrow Wjilson. í Evrópu bar margt til tíðinda á árinu liðna. En það er sérstaklega tvent, sem á skal minst hér, og mesta þýðingu er líklegt að hafa í framtíðinni, ef menn bera gæfu til þess að notfæra sér það á hag- nýtan hátt, en það er Dawes-sáttmálinn, sem gjörður var á Englandi síðastliðið sumar, og sem vonast er eftir að verða muni grundvöllurinn til friðar og fram- þróunar hinum sundurlyndu og stríðandi Evrópu- þjóðum, og friðar og afvopnunar sáttmálinn, sem gjörður var á alþjóðaþinginu siðasta í Genf, en sem því miður fékk ekki eins góðar undirtektir á fundi þeim, sem haldinn var íRómaborg síðastliðið haust til frekari umræðu, um það mesta velferðarmál mann- anna, en sem þó vonandi verður til þess, að ein- hverjar verulegar framkvæmdir verði gerðar í því máli, áður en langt um líður, sem allir geta sætt sig við. í sambandi við friðar- og afvopnunarhugmynd- ina er vert að geta þess, að sósíalista stjórnin í Dan- mörku hefir lagt frumvarp fyrir þingið á þessu ári, sem fer fram á, að her dönsku þjóðarinnar sé lagður niður og hætt við herútbúnað. Stjórnarskifti hafa orðið víða í Evrópu á árinu, svo sem í Noregi, Danmörku, ‘Svíþjóð, Bretlandi, Frakklandi og í Þýzkalandi. í Noregi hafa þau nýmæli gerst á árinu, eða gerast nú við áramótin, að breytt verður nafninu á höfuð- borg Noregs, Kristjaníu breytt i Osló. Það er hið forna nafn borgarinnar, sem hún bar fram að árinu 1600. í Austurlöndum hefir árið verið viðburðaríkt, þó yfir gnæfi atburðir þeir sem gjörðust í Japan, hinir ægilegu jarðskjálftar og manndauði, og hið mikla eignatjón, sem þeim fylgdi. í Kína hefir blóðugt borgarastríð verið háð, og nú við árslokin er stór partur þeirrar þjóðar þjakaður og sár út af hörm- ungum þeim, sem stríðum ávalt fylgja. A ættlandi voru, íslandi, hefir árið liðna verið sér- stakt gæða ár. Heilsufar manna gott yfirleitt og at- vinna þjóðarinnar blessast í ríkum mæli bæði til lands og sjávar, þó einkum til sjávarins, því árið liðna mun eitt af aflasælustu árum til sjávarins, sem íslending- ar hafa lifað í lengri tíð, og sem hefir veitt þjóðinni í heild svo mikil og arðsöm föng, að hún hefir að miklu leyti komist hjá hinum fjármunalegu erfiðleik- um, sem svo margar aðrar þjóðir hafa átt við að stríða og er það öllum Islendingum gleðiefni. En árið hefir ekki að eins verið þjóð vorri farsælt að því er efnalega afkomu snertir, heldur hefir það og verið farsælt og frjósamt ár andlega talað. Oss virðist, að árið liðna hafi sýnt meira jafnvægi í Hfi hinnar litlu íslenzku þjóðar, heldur en það hefir gjört í lífi flestra annara þjóða, oss liggur við að segja allra annara þjóða. Indíánarnir í Canada. I. Á íslenzku hefir undarlega lítið verið ritað um fólk þetta, sem reyndar er að búast við, því það hefir ávalt verið fjarri oss og vér fjarri því, og þá sjaldan, að á það hefir verið minst, þá hefir það verið til þess að aumkva það, en álasa öðrum fyrir illa meðferð, sem það hefir átt að verða fyrir — og sökum þess, að nú rétt nýlega var í opinberu blaði beinlínis sagt, að meðferð Englendinga á Indíánum í Canada, væri þeirri þjóð til vanvirðu finst oss ekki úr vegi að fara nokkrum orðum um afskifti hins op- inbera af Indíánunum, svo fólk geti betur áttað sig á því, á hve miklum sannleika eða sanngirni að sú ákæra er bygð. U.m sögu fólks þess er þetta land bygði, áður en hvítir menn tóku ser hér bólfestu, er hér ekki að ræða, því bæði er lítið um gögn fyrir hendi, sem byggjandi sé á, og svo hitt, að saga sú snertir ekki umtalsefni það, sem hér liggur til umræðu, — með- ferð Indíánanna i Canada. Á það er vert að benda í byrjun, að hvítir menn skoðuðu Indíánana í Canada sem hina ráðandi þjóð þessa mikla meginlands. Það voru þeir, sem búið höfðu í landinu, hver veit hvað lengi. Þeirra sið- ir voru ráðandi í landinu — þeir áttu landið. Þetta kemur skýrt fram þegar George III. tek- un við landi þessu, eftir að Parísar sáttmálinn var undirskrifaður 1763, þar sem Frakkar afsala sér öllu tilkalli til Canada, fjórum árum eftir að Wolfe tók Quebec. í staðinn fyrir þá að Hta á Indíán- ana í Canada sem sigraða þjóð, þá byrjaði konungur- inn sjálfur á því að viðurkenna Indiánana í Canada, sem ráðandi þjóðina í því landi, og sendir Indíána- höfðingjum vinargjafir, sem bæði báru vott um við- urkenningu hans og virðingu og svo að hann vildi eiga vingott við þá á friðsamlegan hátt. Þessi siður hélst uppi í öll þau ár, er Englending- ar höfðu stjórn Canada í höndum sér, ekki að eins frá hálfu konungsins heldur stjórnarinnar á Eng- landi líka og bendir það ekki á, að Englendingar hafi viljað misbjóða Indíánunum i neinu, sem þeir held- ur ekki gjörðu. Englendingar tóku við Canada árið 1763, eins og sagt hefir verið, og var stjórnin i þeirra höndum unz Canada tekur við stjórn sinna eigin mála árið 1847, e®a 1 84 ár. í öll þessi ár hélst þessi gjafasiður uppi til Indí- ánanna í Canada frá hálfu Englendinga, og þegar stjórnin i Canada tók við allri umsjón með Indíán- um, voru Indiánar orðnir svo vanir þessum gjöfum, að ekki þóttu tiltök að afnema þær, að minsta kosti ekki alt í einu. Indíánarnir litu á þessar gjafir frá Englandí, sem gjald, eða leigu fyrir að lofa hvítum mönnum landnám í landi sínu og bygðu á það upp á síðkastið, sem árlegar tekjur. Gjafir þessar voru margvíslegar: matvara, föt, skrautmunir, kirkjuklukk- ur og gefur eina þeirra að lita enn í dag i hinni kon- unglegu kirkju Mohawks nálægt Brantford, Ont- ario, sem George III. Bretakonungur gaf þeim flokk Indíana ásamt boðorðunum tíu prentuðum á þeirra eiginúnáli. Umhyggja Englendinga fyrir Indiánunum í Canada á meðan að þeir voru undir þeirra hendi, kom fram i fleiru en vinagjöfum. Það leið ekki á löngu áður en innfluttir menn fóru að hafa augastað á löndum þeim, sem Indíánar sátu á sjálfir og áttu og þeir gjörðust svo djarfir, að nota viðskiftaþekkingu sína til þess að lokka landeignir út úr þeim fyrir lítið eða ekkert. Þá tók stjórnin á Engandi undir eins í tuamana og leiddi í| gildi lög, sem banna sölu á lönd- um Indiána til nokkurs manns, nema að stjómin á Englandi gefi samþykki sitt til sölunnar. Eiginlega voru þau lög í gildi frá 1763, því innihald þeirrra er þá tekið fram í yfirlýsingu Georgs konungs III., er hann gerði í sambandi við réttarstöðu manna í Can- ada. Um önnur afskifti stjórnarinnar á Englandi af Indiánum í Canada á þeim stutta tíma, er þeir voru undir hennar hendi, er ekki að ræða. Landrýmið var þá yfirfljótanlegt og þeir gátu hennar vegna verið hvar sem þeir vildy og lifað lífi sínu að öllu leyti ó- háðir og óhindraðir, eins lengi og þeir héldu sér frá ofbeldisverkum. Skipulagið á þjóðfélagi þessa lands var þá í bernsku. Mentamálin í óreiðu. Eftirlit með heilsu og heilbrigði lítið eða ekkert, hver og einn sigldi sinn sjó eins og bezt hann gat. Og það gerðu Indíánarnir Hka—nema hvað þeir höfðu þá yfir óendanlega miklu stærra og auðugra landflæmi að ráða en nokkrir aðrir i landinu. II. Eftir að stjórnin í Canada tók við málum Indíán- anna, fór málið að vandast að ýmsu leyti. Vér höfum áður tekið fram, að Indíánarnir vöndust við að fá ár- legar gjafir á meðan þeir voru í umsjón og undir verndarhendi stjórnarinnar á Englandi. Þeim vana, sem á var kominn, kröfðust þeir að stjórnin í Canadá héldi áfram, og hún áleit ekki kleift að skella skoll- eyrum við þeirri kröfu þeirra. En það var fleira, sem stjórnin í Canada varð að athuga í þessu sambandi. Canada, sem hafði verið óþekt land, var nú að( verða þekt um allan heim; kostir þess og lífstækifæri drógu til sín miljónir manna. Hvað átti stjórnin að gjöra? Halda landinu lokuðu fyrir þeim, sem hingað vildu koma og leita gæfunnar, til þess að vernda lendur Indíánanna, eða það sem að gjört var, að opna landið almenningi tíl afnota? Um það mætti deila út í það óendanlega, en sú deila mundi samt ekki hafa nein veruleg áhrif á atriði það, sem hér er til umræðu, nefnilega hvernig að stjórninni í Canada hafi farist við Indíánana. Stjórninni varð það Ijóst þegar í byrjun, að sam- búð Indíánanna og hins innflutta fólks, gat aldrei blessast, svo hún tók það ráð, eins og mönnum er kunnugt, að setja til síðu landspildur f'reserves) víðs- vegar um landið, handa Indíánum — landspildur, sem þeir áttu sjálfir, eða gátu eignast, en ekki selt, nema með samþykki stjórnarinnar. Landspildur þær voru í öllum tilfellum valdar þar sem hægt var, þannig, að þær höfðu til að bera bæði fiskiveiði, fugla- og dýra- veiði, sem Indíánum var ómissandi til Hfsviðurværis Spildur þessar voru valdar þar sem bygðir Indíánanna voru, st'o þeir þyrftu ekki að flytja sig búferlum nema sem allra minst, og var þar um að ræða sum af bezt settu og verðmestu landsvæðum í Canada. Og land- veiting sú var ekki bundin við neina vissa staði, er ekrufjöldinn bundinn við fermílu lands, handa hverri Indíána fjölskyldu, sem fimm voru í, og helst sú reglugerð enn í dag. En hún gjörði meira í byrjun og gjörir enn. Til þess að verða við kröfum þeirra um árlegar gjafir eða leigufé, eins og þeir litu þá á að þeir hefðu fengið frá stjórninni á Englandi, þá gjörði Canada stjórnin við þá samninga, að hún skyldi borga þeim mötufé, sem næmi $5.00 á hvert höfuð, karla, kvenna og barna, á ári eins lengi og þau lifðu, $20.00 á ári hverjum flokks höfðingja fchief), og $10.00 á ári hverjum með- ráðanda (councellor) ; að borga fyrir skotfæri þau, er þeir þurfa og leggja þeim til netagarn, net til fiski- veiða og skaffa þeim ákveðna tölu akuryrkju verk- færa. Og stjórnin í Canada hefir gert þetta í öll þau ár, sem síðan eru liðin og hún hefir gert meira. Hún hefir bygt skóla um þvert og endilangt landið fyrir Indíánana, bæði barnaskóla og iðnaðarskóla. Aðsókn að barnaskólum Indiánabygðanna á þessu síðastliðna ári, var 13,500 börn að meðaltali. Ekki vitum vér hvað margir ganga á iðnaðarskólana; um það eru eng- ar skýrslur' fyrir hendi, en þeir hafa hlotið að vera margir, því skólar þeir eru settir víðsvegar um landið, frá hafi til hafs, þar sem Indíánarnir geta sem bezt notið þeirra, og til þeirra skóla leggur Canadastjóm svo hundruðum þúsunda skiftir í peningum á hverju ári; og lækna hefir stjórnin sett til þess að annast um sjúklinga í öllum bygðum Indíána ("reserves) og borgar þeim. Auk þess, sem nú er talið, hefir Canadastjóm veitt Jndíánunum tilsögn i landbúnaði, heimilisstjórn og í öðru er velferð þeirra snertir, og gjörir enn. Henni var líka ljóst þegar i byrjun, að eitt af því sem spilti Hfi og velferð Indíánanna, var vínnautnin, svo hún setti ekki að eins lög, sem banna alla ,vínsölu til Indíána, heldur hefir hún í langa tíð veitt $4,000 á ári til löggæzlunnar, er sífelt er á verði að aftra því. að þeim sé selt vín. Eitt er enn ótalið, sem stjómin í Canada hefir fundið sig skylda til þess að gera og hefir gjört og gerir 1 hvert skifti sem á þarf að halda, en það er að sjá Indíánunum fyrir matbjörg, þegar uppskera eða veiðiföng bregðast hjá þeim, sem tíðum hefir komið fyrir. III. Það sem nú hefir verið talið, er ærið nóg til þess að sýna og sanna, að það er svo langt frá öllum sann- leika að segja, að illa hafi verið farið með Indíánana í Canada, og þó er sagan ekki nema hálfsögð. Þegar að Canadastjórn tók við málum Indíána— gjörðist vergi þeirra, voru þeir allslausir—kunnu ekk- ert nema að veiða dýr, fugla og fiska; áttu ekkert, sem þeim var verðmætt, annað en tjöld sín, hesta og vagna. Nú er komin breyting á þetta. Þeir hafa lært jarðyrkju og framleiða feikimikið af korni og öðrum jarðargróðri árlega, og standa þar Htt að baki annara ibúa landsins. Sumir þeirra hafa og gengið menta- veginn og staðið í opinberum embættum og allur þorri þeirra les og talar enska tungu, og hefir þannig öðlast aðgang að miklum hluta af beztu l>ókmentum heims- ins. (Kr það að fara illa með þá ?) En á sama tima hafa þeir haldið við máli sínu og því, sem nothæfast var í þjóðararfi þeirra. Vér sögðum, að þegar stjórnin hefði gjörst vergi þeirra, þá hefðu þeir verið nálega eignalausir. Nú eru eignir þeirra, það er innleysanlegar eignir, um $62,000,000. Þar af yfir 18,000,000 í sjóði, sem stjórn Canadaríkis annast. Tala Indíánanna i Canada, þeirra, sem innan fylkjanna búa, er rétt 100,000, sem gerir $620 á hvert einasta mannsbarn á meðal þeirra. Á þessu ári, sem nú er nýliðið, höfðu Indánarnir í þremur sléttufylkjunum 70,000 ekrur af vel ræktuðu og vel unnu landi, sem þeir sáðu korni í. Uppskera þeirra nam 1,250,000 mælum af korni. Það tók á milli 50 og 60 þreskivélar, sem Indíánarnir sjálfir áttu og starfræktu, til þess að þreskja það korn. Auk ak- uryrkjunnar hafa þeir 2,400 kýr og 22,000 hesta, og eru þeir gripir svo vel útlitandi, að þeim hafa verið veitt verðlaun fyrir þá á almennum sýningum. Mikið lengra mál hefðum vér getað ritað um þetta efni til þess að sýna mönnum, hvernig með Indíánana hefir verið farið og hve miklum framförum að þeir hafa tekið. En rúmsins vegna verðum vér að hætta og vonum að nóg sé komið til þess að allir sjái og skilji, að það er ekki einasta ósanngjarnt, að nalda því að mönnum, að illa hafi verið með þá farið, held- ur blátt áfram ranglátt. ------o------ Bókmentafélags-bækur. Þær eru nýkomnar vsetur og hafa mikinn fróð- leik að geyma, eins og menn hafa átt að venjast svo oft áður. Skírnir, xcviii. ár, með mörgum ágætum ritgerðum, og stórmerkilegu kvæðí eftir skáldjöfur- inn islenzka, Einar Benediktsson. Innihald rits þess er sem fylgir: I. Ritgerð um dr. Jón Þorkelsson þjóðskjalavörð, með myndum, eftir Hannes Þorsteinsson. II. Nokkrar athugasemdir, bendingar og tillögur um alþýðufræðslu í sveitum, eftir Ófeig Vigfússon. III. Kerlinganöldur; Herdís Andrésdóttir. IV. Um Magnús Eiríksson, éftir Ágúst H. Bjarnason. V. Áhrif geðshræringa á líkamann, eftir Guð- mund Hannesson. VI. Minning séra Björns prófasts Halldórssonar á Setbergi; Hannes Þorsteinsson. VII. Frosti, kvæði. Einar Benediktsson. VIII. Átrúnaður Egils Skallagrímssonar. Sig- urður Nordal. IX. Hvenær er Jón Arason fæddur? Klemens Jónsson. X. Um Þórsdrápu, nokkrar athugasemdir; Guð- mundur Finnbogason. XI. Heimsveldi Breta. Hallgrímur Hallgríms- son. XII. Islendingar og Norðmenn. Árni Pálsson. XIII. Latnesk erfiljóð eftir dr. Jón Þorkelsson. Ritfregnir, eftir Árna Pálsson, Magnús Helgason, Jóhannes L. L. Jóhannesson, Matt. Þórðarson, Jón Ófeigsson, Sigurð Nordal, Kristján Albertsson og Hallgrím Hallgrímsson. Að síðustu skýrslur og reikningar Bókmentafélagsins. 1923. Á þessari efnisskrá geta menn séð, hve f jölbreytt efni Skírnis er að þessu sinni, og þegar menn hugsa um, að það eru sumir af bezt þéktu mentamönnum þjóðarinnar, sem ritgerðirnar hafa samið, þá vita menn á hverju þeir eiga von. Auk Skírnis eru þrjú fylgirit: Annálar frá 1400— 1800, 7 arkir. Þrjár arkir af fornbréfasafninu og sérstakt rit eftir Einar Arnórsson um þjóðréttarsam- band íslands og Danmerkur í fimm köflum. Bækur þessar allar verða tafarlaust sendar öllum félagsmönnum, sem i skilum hafa staðið, og þeir, sem gerast vilja nýir félagar í Bóknæntafélaginn og fá bækur þessar, geta það með því að senda Finni Jóns- syni bóksala, 666 Sargent Ave., Winnipeg, $3.00 árs- gjald félagsins, og verða þeim þá tafarlaust sendar bækumar meðan upplagið hrekkur. Hijómbrot Ljóðmæli prentuð hjá City Print- ing and Publishing Co. Winnipeg. Eg hefi um nýafstaðin jól átt kost á að lesa Hljómbrot — nýja ljóðabók eftir M. Markússon, mann bem flestum fslendingum, austan hafs og vestan er lðngu kunnur fyrir ljóðlist hans, og lesturinn hefir veitt mér óblandna ánægju. iEg minnist þess, að hann gaf út nokkurn tíma lesið. Eg staðhæfi að lesendur muni yfirleitt verða mér samdóma um að það kvæði megi með réttu metast hrein perla í íslenskum bókmentum. Með slík kvæði sem hér hefir verið bent á er það ekkert undar- legt þó ljóð Magnúsar Markús- sonar séu huglþekk alþjóð Vestur- íslendinga — ein® ljóðelsk og hún er; hitt mætti telja markverðara, ef hún ekki metti þau og ynni um- fram kvæði ýmsra annara skálda, sína fyrstu ljóðabók fyrir 17. ár- um, með rúmlega eitt hundrað lcvæðum og sem þá istrax vakti svo mikla almenna athygli Vestur- ís- lendinga á hionurn, >ví ljóð þau voru alþýðu fólks svo Ihugnæm, að hún keypti alt upplagið á örskömm um tíma, og skipaði Magnúsi þá strax í fremstu röð vestur-ís- lenskra skálda. Mér líkaði ljóð þau vel, fy.rir bragsnild höfundarin® og fo.rmfegurð kvæðanna. Og þó sérstaklega fyrir þá hlýju fóstur- landsálst sem ljóðin sýndu að hann bar til Canada, sem hann hafði gjört að kjörlandi sínu og að föð- urlandi Ibarna sinna. 'Nú við lestur þessarar nýju ljóðabókar, sem er um 280 blað- síður í 8 blaða broti og með rúm- lega 150 kvæðum, finn eg höfund- inn hafa andlega þroskast að miklum mun á s. 1. 17 árum. Kvæð- in eru fjölllbreytilegri að efni en þau í fyrri bókinni, formfegurðin og rímsnildin söm og fyr, en fram- setningin þróttmeiri með dýpri hugsan og rökfestu enn fyrrum, þótt hinsvegar hvergi kenni slíkra djúpisæis hugsana-tilþrifa, sem inna má í ljóðum aftourða stór- skálda íslenskra, og má færa kvæðum þessum það til gildis, að þau eru öll hrein að efni og votta fojartsýni höfundarins og vissu um sigur hinis góða á öllum sviðum, þau eru uppörfandi, hughreystandi huggandi og trústyrkjandi. Fyrsta kvæði foókarinnar, <‘Ljóðadísin,” er að mínum dóml 8V0 gullfallegt, að eg set það hér í heild, til sýnis. Helga dís! þú bendir blítt íböli frá til sólargeima, landið þitt er ljósum prýtt, líf í æðum streymir nýtt. Hver fær töfra/þróttinn þýtt þinna djúpu strengja hreima? Helga dís! þú hendir blítt Iböli frá til sólargeima. Þegar særir sorg og þraut syngur þú í hjartað friðinn. Andans háa, bjarta braut forosir við þitt hlýja skaut, ælska jafnt sem elli hlaut yl við þinna strengja kliðinn. Þegar særir sorg og þraut syngur þú í hjartað friðinn. Göfga dís! þín guðleg sól geislar meðan aldir renna; hvert það blóm sem andinn ól inst við djúp þitt finnur skjól. Skært frá sálar Isjónarhól sannleikiseldar þínir brenna. Göfga dís! þín guðleg sól geislar meðan aldir renna. 'Mér er ekki kunnugt um að nokk urt skáld hafi betur kveðið um þetta efni en hér er gert, og er þetta gott sýnishorn af efnismeð- ferð og formfegurð á kvæðum höfundarins yfirleitt. önnur tvð kvæði má benda á sem sýna hugarstefnu höfundar- ins “Harpan mín” á bls. 115 visur 5 og 8. Því hvað er skáldsins skylda hæst á jörð? að skreyta geíslum dimma tímans voga, 0g mýkja þjóðlífis-meinin köld og ihörð. í mannelskunnar skæra vafurloga. En það er eitt sem met eg ætíð mest í minni fátækt, gefna lífs um daga, að hljóma það, sem helgast er og foest frá hjartans reit á strengi minna foraga. ■Ekkert skáld getur skapað sér heilbrigðari né göfugri stefnu \i notkun Ijóðgáfu sinnar, eú þá sem hér er framsett og lesendur mega treysta Magnúsi til að halda fast við hana. Þá er minni kvenna—ætíð hug- næmt yrkiefni—á Ibls. 137, 8. og 9. það fegursta í sinni röð, bæði að huglsun o.g bragsnild, sem eg hefi að iþeim öllum ólöstuðum. Magnúsi er létt um að yrkja, ljóðin streyma af vörum hans ein® létt og óbund- ið mál af vörum mælskra ræðu- skörunga. Hann hefir borið gæfu til þess að ná með ljóðum sínum föstum tökum á samhygð fólfcsins. Kvæði hans hafa Iblásið hlýhug og þrótt inn að instu hjartarótum þess svo að ekkert vestur-ísl. skáld hefir 'betur gert. Allur andi ljóð- anna er þrunginn siðmennilegum hugsunum og hreinferðugu hugar- fari höfundarins og hugheil ást hans til Canada og þjóðarinnar hér skipar hönum á bekk efst o.g fremst allra vestur-íslenskra skálda. Þessi innfolásna ræktar- semi við þetta land verðkisuldar að kvæðum hans verði hvervetna vel tekið og eg efa ekki að svo verði. Eg get ekki stilt mig um, í þessu sambandi, að foenda á, að nýlega hafa tvö af vestur-ísl. skáldunum gefið út allstórar ljóðabækur eft- ir sjálfa sig- Annar þeirra bóndi en hinn skólakennari. Báðir hafa þessir mann búið hér vestra um eða yfir 40 ára skeið. Báðir komu þeir hingað fulltíða og þó ungir, hvorugur gat sætt sig við að láta föðurland sitt njóta starfskrafta sinna á komandi manndómsárum þeirra . Báðir hafa þeir kveðið hlý- leg ættjarðarljóð um ísland, ágæti þetes 0g endurminningar þaðan en hvorugum hefir komið til hugar að minnast Canada í Ijóðafoókum sínum, landið, sem alið hefir þá mestan aldur þeirra 0g veitt þeim öllum skilyrði til að gera sig að eins miklum manndómismönnum eins og meðfæddir hæfileikar þeirra hafa gert þeim mögulegt að verða. Maður freistast til að spyrja sjálfan sig hvernig þjóð- rækni það muni foafa verið, sem skólakennarinn innrætti nemend- um sínum í þau 40 ár, sem hann foefir fengist við kenslustðrf. Þjóðrækni Magnúsar Markús- sonar er í fullu samræmi við þegn- hollustueið þann, sem hann lagði af er hann tók foér borgararéttindi Þess ættu Vestur-íslendingar að láta hann njóta. B. L. Baldwinson. “Earl Kitchener,, Blöðin hafa sagt frá dómi þeim, sem skipstjórinn á “Earl Kitchen- er,” Thomas Worthington, fékk fyrir veiðar í landhelgi. Var hann dæmdur í 30 þúis. kr, sekt (ekki gullkr.) og 3 mánaða fangelei. Ýmsir ihafa furðað sig á því, hve þessi dómur væri þungur. En hann byggist á því í fyrsta laigi, að hér er um ítrekað forot að ræða. Togarinn var sektaður í Vest- mannaeyjum 18. júl„ og síðan var hann staðinn að veiðum 25. sama mánaðar, og það er kæran fyrir það brot, sem hefir verið undir rannsókn undanfarið og hann hef- ir nú verið dæmdur fyrir. En jafn- framt mun hafa nokkur áhrif á dóm inn framkoma skipsmanna við menn þá er kærðu togarann, og eins þrjóslka skipstjórans við yfirmenn á "Islands Falk.” Eöstudaginn 25 júlí í sumar fóru þrír menn, Hjörtur Helgason, Guðm. Benediktsson og Egill Páls- son, á vélbátnum óðni frá Sand- gerði úr frá Kirkjuvogi til þess að grenslast eftir tveim togurum, er þeir þóttu'st vissir um að væru að veiðum í landhelgi. Fýsti þá að sjá nöfn og merki skipanna, ef unt væri. Fara þeir beina leið út að togurunum, og stefna á þann sem nær var landi. Þegar báturinn á eftir skamt að togaranum, sjá þeir að skipið er að veiðum, og er að spila inn vörpuna. Og þegar enn nær dregur skipinu, «já þeir, að breitt er fyrir nafn og númer skipsins. — Hugsa þeir sér þá, að renna ®vo nærri skipinu, að þeim mætti takast að svifta bnrtu ,þvi, sem breitt var fyrir merkið. En

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.