Lögberg - 28.01.1926, Síða 3
LÖGBERG FIMTUDAGINN,
28. JANÚAR 1926.
Bls. 3.
ng?aaaHM«KgKKKfe«iH»wigBOH«Be>iKga>a^^
Sérstök deild í biaðinu
SOLSKIN
Fyrir börn og unglinga
aaaa&a5£g)ts,:ct x'.*: »<^>tj>o«?<i><»><!g!>aw.í<M«a»«paHpa>a><ii><P<Mi><waiaKi8
Um hreiður fugla.
Fuglar eru án efa hin fegurstu dýr, sen: til
eru.. Það verður að fá á hvqrn mann að horfa á
þessi börn Loftsins og sólarljóssins, að sjá hina inni
legu gleði er þeir láta í ljósi þegar þeir heilsa hinni
uppreynandi sól, og heyra hljómfagran söng úr ótal
björkum, sem lofa fegurð náttúrunnar og gleðjast
við lífið og frelsið, sem er þeim svo kært. Fuglarn-
ir eru svo fagurtega skapaðir og litfríðir, að þeir
prýða alstaðar hvar sem þeir eru. Hvað væri nátt-
úran hjá oss á íslandi á vorin ef fuglana vantaði?
Hvernig væru skógarnir fuglalausir? Hvei'Viig væru
skerin og eyjarnar á fjörðunum, ef sundfuglarnir
ættu sér þar eigi bú? Hversu brosandi, sem nátt-
úran er, þá liggur þó á valt einhver deyfð og drungi
yfir henni ef eigi heyrast við og við kátar og glað-
ar fuglaraddir með barnslegum, saklausum og við-
kvæmum hljómblæ. — Hvergi finna menn hjá nokkr-
um dýrum eins mikla blíðu’ sakleysi og ást, eins og
hjá sumum söngfuglum. Hvar er móðurástin á
hærra stigi? Allir vita hve annt fuglarnir láta sér
um ungana sína og eggin, þeir verja hreiðrin sín
og leggja jafhvel oft lífið í sölurnar fyrir afkvæmi
sitt, og mörg móðirin sveltir sjálfa, til þess að geta
veitt ungunum næga fæðu.
Eitt af hinu nauðsynlegasta fyrir fúglana er að
hafa hentugan stað til að verpa á, enda sýna marg-
ir með vali sínu, hversu mikla hæfileika náttúran
hefir veitt þeim, því að segja, að þeir gjöri alt af
blindum náttúruhvötum, er bábilja ein. Fuglarnir
velja helzt þá staði, þar sem bæði er öruggt vígi og
skjól fyrir unga iog egg, og þar sem jafnframt er
nóg fæða í nánd. Af þessum orsökum verpa svo
margir sjófuglar í snarbröttum ógengum klettum,
í Ibjörgum og skerjum í hafi úti, því þar er næstum
ómögulegt að komast að þeim, og þar er lika nóg
fæða 1 nánd.
Hrafnar, fálkar, ernir og fleiri fuglar verpa
og í klettum, og sumir fuglar geta jafnvel falið svo
vel hreiður sín, að varla er hægt að finna þaú; það
leika sér t. d. eigi allir að því að finna músarindils
hreiður, svo vel eru þau falin, og svo er um fl^iri.
Þetta virðist þó eins og margt annað bendir á tölu-
verða hæfileika. skilning og skynsemi hjá fuglunum.
— Þegar litið er því næst á hreiðrin sjálf, er það
eigi undrunarvert aðsjá hvað haganlega þau eru
gjörð? Er ekki þolinmæði, iðni og ráðdeild fugl-
anna aðdáunar verð? — Það eru reyndar eigi allir
fuglar, sem gjöra eins fögur hreiður, en þó eru þau
oftast furðulega hentug og löguð eftir kringum-
stæðunum. Sumir sjófuglar gjöra jafnvel engin
hreiður, er svo megi kalla, en þeir verpa þá vana-
lega í klettaskorum og gljúfrum, en þar hafa eggin
nokkurt skSjól þó hart sé undir. Þetta gjöra t. d.
teisturnar. en náttúran hefir líka alstaðar séð svo
um, aði þar sem svo er háttað, eru ungarnir vana-
lega mjög btáðþroska og verða fljótt sjálfbjarga.
Mjög margir fuglar á íslandi verpa á flatri jörð, en
þótt hreiðrin virðist vera á bersvæði og mjög ó-
breytt og einföld, þá' er þó mjög nákvæmlega séð
fyrir að þau séu svo hentug, sem auðið er; fugl-
arnir leitast við að hafa þau þar sem óhultast er,
og gjöra þau hlý, svo eggin eða ungarnir eigi bíði
skaða af kulda og vosbúð; þennan tilgang hafa æð-
urnar, er þær reita af sér dúninn til þess að verma
eggin sín. Vanalega reyna fuglarnir að halda
hreiðrunum þurrum, en þó eru þeir fuglar til, sem
mjög eru elskir að vætu, t. d. keldusvín (Rollus
aquaticus), sefandir, lómar og sumar útlendar
stelkategundir.
Þótt einföld og óvönduð hreiður oftast geti
fullnægt þörfum íbúanna, þá eru þaú þó til dnnþá
hentugri og fegurri. Til þess að gjöra ból handa
eggjunum á sléttri grund eða milli þúfna, þarf eigi
nefinn sérlegan hagleik, en í heitulöndunum, þar
sem öll náttúran skreytir sig hinu bezta skranti, eru
hinir beztu hreiður smiðir, og eg ætla þá að nefna
nokkra af þeim.
Píróllinn (Qriolus Galbula) er gulur fugl á lit
með svörtum vængjum, hann á heima í miðhluta
Evrópu og sunnar. Þessi fugl gjörir mjög fögur
hreiður, þau hanga vanalega á trjágreinum og eru
lík í laginu og vandlaupar, fléttuð úr blöðum ogj
stráihn, eru fóðruð með mosa og ull; vindurinn vagg
ar þeim fram og aftur, og ungarnir mundu detta út,
ef randifnar væru eigi mjög bognar inn á við og
hreiðrið kúlumyndað. iNaumann, nafnfrægur þjóð-
verskur fuglafræðingur, segist eigi vita hvert hann
eigi meir að undrast starfsemi pírólanna eða hag-
leik, karl og kvenfugl eru ávalt að, stundum kemur
annar með langt strá og reynir að festa það við
grein með nefinu, en þegar ,það ekki tekst, grípur
hinn fuglinn í annan endanri og flýgur oftsinnis í
kringum greinina til þess að festa stráið með því,
að vefja því um hana. Karlfuglarnir viða að, en
kvenfuglarnir byggja. Þegar búið er að Idggja
nokkra sterka þræði eru margir aðrir fléttaðir við,
þogar hreiðrið er farið að geta haldið, sest kven-
fuglinn í það svo það verði nógu djúpt, fallegt og
vel lagað. —
Sef-söngvarinn (Sylvia arundinacea) dálítill
grár fugl gjörir hreiður innan um sef við tjarnar-
bakka ,og hefir 5 eða 6 sefstöngla, sem súlur eða
stólpa til að bera bygging þessa svo hún er rétt
yfir vatninu. Hreiður þetta er stórt og botninn
er þykkastur og sterkastur bæði til þess það sé
skjólbetra fyrir ungana og til þess það geti eigi bil-
að. —.
Sumir fuglar lifa í stórhópum og gjöra hreiðr-
m * sameiningu, t. d. lýðveldisfuglinn (Ploceus
socius), þag er heldur ósjálegur grár fgul, og á
eima í suðurhluta Afríu. Þessir fuglar láta sér
eigi nægja þag_ ag þejr þyggja hreiður sín hundr-
u um saman á sama tré heldur gjöra þeir og allir
i sameiningu gitt þak yfjr þau gjj, Starfsemi þeirra
1 ,ni,er nærri ótrúleg, þeir eru allan daginn án af-
a s ra moigni til kvölds að viða að sér stráin og
flétta svo fast og þétt saman, að það getur haldið
a ri væ u og regni, auk þess hallar þaki þessu til
allra hhða, til þess að regnvatnið geti runnið nið-
Ur CmS °K húsþaki. Undir þessari stóru
regnhlíf eru öll hin eiginlegu hreiður, en svo þétt
saman, að þau líta út sem ein heild með mörgum
opum. A einu tré geta stundum orpið 6—700 fuglar,
on þeir taka sér líka áv*It bólfestu í stærstu og
sterkustu trjánum.Skraddarafuglinn (Orthotom-
us Iongicandatus) á heima á Indlandi; hann hefir
fengið nafn sitt af hreiðurbyggingunni, því hann
saumar hreiðrið alt saman. Hann leitar að ein-,
hverri plöntu með stórum og breiðum blöðum, safn-
ar síðan viðarull og* spinnur með nefi og fótum
langan þráð, síðan stingur hann smágöt á blöðin,
bindur hnút á hendann á þræðinum, dregur hann
svo í gegn og saumar blöðin saman, síðan fóðrar
hann hreiðrið með viðarull Varla er það hugsandi,
að þetta sé gjört án skilnings og skynsemi. —
Japu fuglinn (Cassius cristatus) frá Suður Ame-
ríku, er að mestu leyti kolsvaríúr og í ætt við hrafn
ana en gjöra hreiður sín betur en þeir; þau eru úr
seigum stráum, sem eru margflækt saman í laginu
hálfhnöttótt og fóðruð með viðarull. Hreiður þessi
eru í trjám og ná taugar úr þeim í margar greinar
til þess þau séu stöðugri og vindurinn eigi slíti
þau af og feyki þeim niður. Japú fuglarnir hafa
stundum hreiður sín á gráviðum og þá eru þau
miklu dýpri en annars, af því greinarnar á viði
þessum eru svo beygjanlegar og langar að vindur-
inn skekur þær ávalt en þó væri hætt við að ung-
arnir féllu út ef hreiðrin væru grunn. Oft búa
margir saman í sama trénu og þá er það eins og
dálítið þorp með mörgum stárfsömum íbúum. —
Vefara fugl (Ploceus Mahali) fléttar harða brodda
af jurtum utan á hreiður sín, svo höggormar og
önnur ill kvikindi eigi komist þar að þeim. —
Bayafuglipn (Melicurvius Baya) gjörir aflöng
hreiður og hengir þau neðan á greinar — einkum
pálmagreinar — og yfir vatni til þess að óvinir
komist ekki að. Á hverju ári bæta fuglar þesslr
nýju hreiðri neðan við hitt gamla ,svo stundum má
sjá mörg hangandi hvert neðan í öðru. Þeir bera oft
leii-hnausa inn í hreiðrið, líklega til þess að gjöra
það þyngra, svo vindurinn eigi^ekki eins hægt með
að feykja því fram og aftur. Stundum eru fugl-
arnir svo spakir að þeir hengja hreiður sín við
húsburstir og vindskeiðar. Fugl þessi er mórauð-
ur að ofan og gulur að neðan, lítill^ en kvikur, hann
á heima á Indlandi. — Rauðnefjaður vefarafugl
(Quelea sangvinirastris), sem lifir í Súdan og Mið-
Afríku, fléttar mislita þræði inn í hreiður sitt, svc
það verður alt rósótt; það er hnöttótt í laginu mcð
opi á miðri framhliðinni. — Fugl einn frá Norður-
Ameríku, er kallast Baltimore Trupial (IcteVus
Baltimore) svartur og gulur á lit, gjörir njjög vönd-
uð og merkileg hreiður, þau hanga á mjóum grein-
um í streng, og fer bygging þeirra alt eftir því
hvort það er sunnarlega eða norðarlega í landinu
í suður héruðunum eru hreiðrin gjörð úr hinum
svo kallaða spánska mosa (Tillandsia usneoides),
sem alstaðar þar er á trjánum, og svo gisinn að
loftið kemst alveg í gegn, þar hanga öll hreiðrin á
móti norðri á trjánum, en í norðurríkjunum eru
hreiðrin ávalt gegn suðri og miklu þéttari og heit-
ari. — Hreiður Kolibrí-fuglanna eru oft mög snot-
ur, þó þau séu lítil. Að utan eru þau úr mosá, en
innan vanalega fóðruð með viðarull eða jurtasilki,
svo eggin, sem opt eru eigi stærri en matbaunir,
liggja á mjúkum bólstri. — Meisingur einn (Pardus
pendulinus) gjörir hnöttótt hreiður, setn hangir
yfir vatni, vanalega eru þau gjörð af ull, hárum og
plöntutaugum ,en innan í viðarull; inngangurinn er
í gegnum pípu, sem stendur út úr hliðinni eins og
flöskuháls. í ítalíu er sú hjátrú algeng meðal al-
múgans, að aldrei slái niður eldingu í það hús, þar
sem hreiður fugls þessa hangir yfir dyrunum.
Spetturnar gjöra hreiður sín öðruvísi en allir
aðrir fuglar, þær höggva híbýli sín inn i beinhörð
tré og eru ávalt að með ótrúlegu kappi og starfsemi
frá morgni til kvölds. Hreiðurholan er eigi fullbú-
in fyrr en eftir meir en hálfan mánuð, sem eigi er
heldur von, og það er hreint ótrúlegt, að fugl skuli
geta áorkað svo miklu með epgu öðru verkfæri en
nefinu, en það er nú reyndar bæði sterkt og hvast.
— Flest svölureiður eru ágætlega gjörð, en þó eru
hin ætu svöluhreiður orðin aliþektust. Fugl sá
ftSalangan Colloculia fucipbaga), sem býr þessi
hreiður til, lifir á Indlandseyjum, einkum á Java.
Suðurströndin á Java er ákaflega sæbrött, þver-
hnýptir klettar og björg ,mörg hundruð fet á hæð,
mæna alstaðar upp úr sæ. Alstaðar þar sem lítill
jarðvegur getur myndast, í hverri sprungu og stalii
eru há tré og blóm sumstaðar, en neðan til hafa
ibylgjurnar nagað hella inn í bcrgið, eins og á
mörgum stöðum hér á landi, þar sem brimlöðrið
kastast upp í háa loft er ótölulegur grúi af svölum
sem sæta lagi og skreppa inn í hellana við útsogið,
því þar eiga þær hreiður. Hreiður þessi eru á und-
arlegan hátt gjörð úr sjáfartjurtum og klínd saman
með slími, sem kemur úr eitlum í sarpi fuglanna.
Slím þetta storknar undir eins og loft snertir það.
HJreiðrin eru eins og skál í Iaginu og þeim er klínt
við klettana. Kínverjar etaxhreiður þessi og þau
þykjatmesta sælgæti. Til Sínlands er því flutt ó-
grynni af svöluhreiðrum, og það er hinn bezti ábata
vegur að safna þeim. Frá Java til Sínlands eru
árlega seld hreiður fyrir meir en 5 milónir króna. —
Annar hella fugl mjög undarlegur lifir í Suður-
Ameríku, hann heitir Gracharo eða fitufugl (Stea-
toinis caripensis), það er svölutegund,. sem eLkar
mjög myrkur; hún gjörir hreiður sín í mjög di;nm,
um og drungalegum hellum; fuglar þessir eru
drepnir þúsundum saman og brædd af þeim fitan.
— Fugl einn á heima í Suður-Ameríku, er kallast
leirkerasmiður (Furnarius rufus), hann gjörir
hreiður ólík hreiðrum allra annara filgla. Hreiður
þessi eru ekki á afviknum stöðum, heldur alstaðar
framan á klettum og trjádrumbum, því fuglinn
Ireystir því, hve þau séu rammgjör. Hreiður þessi
eru úr leir, eins og brauðofn í lögun; fuglinn hleð-
uri þau saman úr smá leirkögglum er hann ber að,
og lætur op vera á hreiðrinu miðju eins og hvelfd-
ar dyri Innan í þessum trausta kastala er hið eig-
inlega hreiður úr grasi fjððrum og ull. Það er
undrunarvert að sjá hvernig þessi litli fugl fer að
búa til hreiðrið sitt. Fyrst sækir hann leirinn og
ber hann þangað sem hann ætlar að byggja, breið-
ir hann síðan út méð riefinu og fótunum og gjörir
hringgarð, lætur hann síðan þorna, og gjörir svo
annan ofan á o. s. frv., en lætur garða þessa smátt
og smátt verða minni eftir því, sem hækkar, uns
þeir dragast saman og mynda hvelfingu efst. Fyrir
innan dyrnar er dálítill þyprgarður úr leir fyrir
framan hreiðrið. Brazilíumenn telja fugl þennan
helgan, af því sagt er, að hann vinni aldrei á sunnu-
dögum og snúi dyrunum ávalt mót austri! — Ýms-
ar tegundir af nashymingafuglum (t. d. Buceros
corrugtus, iBuc. boidrnis og Toccus erytíhrorhyn-
chus), er lifa á Indlandi og í Afríku, verpa í holum
trjám. Þegar kvenfuglinn er k#minn inn til þess að
liggja á eggjunum hleður karlfuglinn vegg úr leir
fyrir opið og hefir aðeins lítið gat á honum, sem
kvenfuglinn getur rekið nefið út um. Hún situr
þarna altaf á, en karlfuglinn fóðrar hana unz hún
er búin að unga út og unarnir eru fleýgir. Sjálft
hreiðrið gjörir kvenfuglinn af sínum eigin fjöðrum.
Konan fitnar þarna ákaflega af kyrsetunni og af.
því hve vel hún er fóðruð, en maki hennar horast
dag frá degi, af því hann dregur af sér til þess að
veita henni óg ungunum nægju sína. — Þótt þessi
hreiður séu enn frábrugðnari og undarlegri.
Flamingó ’inn (Phoenicopterus rafus) er stór vað-
fugl, sem lifir í heitu löndunum við fljót og ár í stcr-
um hópum, hann er hvítur á lit og slær á rauðum
blæ, vængirnir eru rósrauðir. Hreiður sín gerir fugl
þessi á votlendum slíöðum, eða jafnvel í grunnu
vatni við fljóts- eða vatnsbakka, þau eru úr leir
og mold, sem fuglinn hnoðar saman unz kominn er
há strýta, efst á strýtu þessari er hola og þar verp-
ir hann í. Heiður sitt hefir flamingó af því svo
lagað, að sköpulag hans er þann veg, að hann hefir
ákaflega háa fætur, sem hann gæti eigi lagt undir
sig ef hann sæti á eggjunum ájafnsléttu, en fyrst
hreiðrið er svona hátt þá situr hann yfir um það og
ungar svo út. — Fugl einn af hænsnaflokki, runn-
hæna (Tallegallus Lathaqii, er lifir á Nýja-Hollandi
er ólíkur flestum öðrum fuglum í því, að hann ekki
ungar sjálfur út eggjum. sínum. iSnemma á vorin
draga fuglar þessir saman ógrynni af visnum blðð-
um og ýmsum öðrum plöntuleyfum, og hrúga því
saman svo úr því verður stór býngur. Innn í býng-
inn láta þeir eggin í plöntuleyfunum hitnar, og
eggin ungast út af því. Býngir þessir geta orðið
ákaflega stórir, því margir bera saman og sami
býngurinn er oft notaður ár eftir'ár, en þá þarf
altaf að bœta í hann nýju. — Þess má og geta hér,
að hinn vanalegi gaukur (cuculus canorum) ungar
aldrei út sjálfur eggjum sínum, hann lætur þau 1
hreiður lítHla söngfugla og lætur þá klekja þeim út
og fæða upp ungana, sem eigi er hægðarleikur fyrir
svo litla fugla. Þegar gauks ungarnir skríða út úr
egginu, eru þeir ákaflega gráðugir og éta alt frá
ungum fóstru sinnar og sparka þeim jafnvel út úr
hreiðrinu þegar þeir stækka og þeim vex fiskur um
hrygg. Fóstran megrast dag frá degi, af því hún
sí og æ tínir alt sem hún nær í þessi átvögl, sem
eigi launa nema illu einu og hún sveltir sjálfa sig
af því að hún ætlar að ótætis gauksunginn sé sitt
eigið afkvæmi. — Vaðfugl einn, er lifir í Afríku og
kallast skuggafugl (Scop^s umbretta) klínir sam-
an stóru húsi úr leir og kvistum uppi í trjám; það
getur orðið 6 fet að þvermáli, í því eru 3 herbergi,
fordyri, skemma eða búr og svefnherbergi. í svefn-
herberginu er mjúk sæng úr viðarull og plöntum,
þar skiftast makarnir á að liggja á eggjunum, í
miðrúminu eða skemmunni er matarforði geymdur
og 1 fremsta herberginu stendur ávalt annar fugl-
inn og heldur vörð og gargar ef einhver hætta er
í nánd.
' t
Á Nýja-<Hollandi er flest öðru vísi en annars
staðar, þar eru t. d. hvítir hrafnar og svartar álftir
o. s. frv. Þar er lítið af spendýrum, en því meira af
hinum litfegurstu fuglum. Innan um hin svar-
grænu lauf á gúmmítrjánum fljúga mjallahvítar
kakadúfur og fagur-rauðir og ljós-grænir páfagauk-
ar og ógurleg mergð af öðrum fuglum margvísleg-
um og undarlega sköpuðu. Þar er t. d. fugl, sem
heitir hörpufugl (Menura superba) af því stélið,
sem er ákaflega stórt er eins í laginu og strengjuð
harpa. í frumskógunum um miðbik Nýja Hollands
er mjög raka og sagga samt og kemur það því til
leiðar, að þar er alt þakið mosa, trjástofnarnir eru
svo gjörsamlega huldir af honum, að hvergi sést í
þá, og niður af greinunum hanga langir mosaskúf-
ar. Þessir mosaskúfar eru stundum yfir alin á
lengd. Fugl einn á þar heima,
hann gjörir hreiður innan í skúfunum
en svo vel eru hreiðrin falin að ómögulegt er að
greina skúfana með hreiðrunum frá hinum, enda
eru fuglarnir þar svo óvarir um sig, að það má
takai þá með höndunum á hreiðrinu. Hreiðrið er
vanalega fóðrað innan mei þurru grasi og fjöðr-
um.
Nú hefi eg talað um ýms undarlega löguð og
fögur hreiður en eg á eftir að tala um eitt íþrótta
smíði, sem fuglakyn tvö (Ptilonor hynchus og
Qhlamydora), er á Nýja-Hjollandi lifa, gj<öra sér
til gamans. Það eru nokkurs konar laufskálar úr
laufmynduðu 'hrísi, allar hríslurnar eru beygðar og
sameinaðar að ofan og mynda hvelfing. Hjá
,fChlumyder” eru lufskálarnir þaktir grasi og við
undirstöðurnar eru miklar hrúgur af steinum. sem
eru lagðir þannig, að þeir styðja grasið og hrísl-
urnar. Eitt er enn merkilegt við Iaufskála þessa, að
fuglarnir safna þangað allskonar glingri úr öllum
áttum, beinum, glerbrotum, skeljum o. s. frv. Lauf-
skálar þessir eru eigi hreiður, heldur nokkurskonar
skemtistaðir í tilhugalífinu, þangað koma elskend-
ur á hverjum degi, og oft eru mörg pör í sama lauf-
skála. — Yfir höfuð að tala gjöra karlfuglarnir alt
sem þeir geta til að þóknast kvenfuglunum í tilhuga
lífinu; það er þá algengt að karlfuglarnir, sem oft
eru mjög fagurlega litir hoppandi og syngjandi
breiða út stél og vængi til að sýna unnustum sín-
um sem bezt alt fjaðrarskraut sitt. Sumir fuglar, t.
d. klettakænurnar (Rupicola crocea) í Perú dansa
mljög skringilega á flötum klettahellum. Það eru
aðeins hvatfuglarnir, sem gjöra þetta, enda eru þeir
mjög léttir og liðugir í snúningum, en unnustur
þeirra horfa á. Karlfuglarnir eru mjög litfríðir
fagurgulir með purpura litum kabmi eða kórónu á
höfði.
Þorvaldur Thoroddsen.
Professional Caras
DR. B. J. BRANDSON
216-220 Modical Arts Islclg.
Cor Graham og Kennedy Sta.
Phone: A-1834
Offlce tlmar: 2_3
Heimili: 77 6 Victor St.
Phone: A-7122
Winnipég, Manitoba.
Vér Ieggjum sérstaka Aherzlu á. a6
selja mefiul eftir forskriftum lækna.
Hin beztu lyf, sem hægt er aB fá, eru
notuB eingöngu. pegar þér komiS
meB forskriftina til vor, megiB þér
vera viss um, aB fá rétt þaB sem
læknirinn tekur til.
COLCLEUGH & CO.
Xotre Dame and Sherbrooke
Phones: N-7668—7650
Vér seljum Giftingaieyfisbréf
THOMAS H. JOHNSON
H. A. BERGMAN
ísl. lögfrseðingar.
Skrifstofa: Room 811 McA-rthur
Building, Portage Ave.
P. O. Box 1666
Phones: A-6849 og A-6840
DR O. BJORNSON 216-220 Medical Arta Bldg Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Office tímar: 2—3. Heimili: 764 Victor St. Phone: A-7686 Winnipeg, Manitoba.
, *DR. B. H. OLSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Plione: A-1834 Office Hours: 3—6 Heimili: 921 Sherburne St. Winnipeg, Manitoba.
DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arta Bldg Cor. Graham og Kennedy Sts. Plione: A-1834 Stundar augna, eyrna nef og \kverka. sjúkdóma.—Er aB hitta kl. 10-12 f.h. og 2-6 e. h. Heimili: 373 River Ave. Tals.: F-2691
DR. A. BLONDAL 818 Somei-set Bldg. Stundar sérstaklega Kvenna og Barna sjúkdéma. Er aB hltta frá kl. 10-12 f. h. og 3—5 e. h. Office Phone: N-6410 Heimili: 806 Victor St. Stmi: A-8180
DR. Kr. J. AUSTM^NN 724 Vá Sargent Ave. ViBtalstlmi: 4.30—6 e.h. - Tals. B-6006 Helmlli: 1338 VVoLsley Ave. Stmi: B-7288,
DR. J. OLSON Tannlaeknir 216-220 Medical Arts Bldg. 'Cor. Graham og Kennedy Stfl. Phone: A-3521 Heimili: Tals. Sh. 3217
DR. G. J. SNÆDAL Tannlæknir 614 Somerset Block Cor. Portage Ave og Donald St. Talstml: A-8889
DR. K. J. BACKMAN. Skin Specialist. 404 Avenue Blk., 265 Portagý Ave. Office pbone A»1091. Hours: 2—6
Munið símanúmerið A 6483 og pantiS meBöl yBar hjá oss.— SendiB pantanir samstundis. Vér afgreiSum forskriftlr meB sam- vizkusemi og vörugæBi eru óyggj- andi, enda höfum vér margra ára lærdómsrlka reynslu aS baki. — Allar tegundir lyfja, vindlan, ts- rjómi, sætindi, ritföng, tóbak o.fl. McBurney’s Drug Store Cor. Arlington og Notre Dame
Giftinga- og Jnrðarfara- Blóm með litlum fyrtrvara BIRCH Blómsaii 616 Portage Ave. Tals.: B-720 St. John: 2, Ring 3
A. S. BARDAL 848 Sherbrooke St. Selur líkkistur og annast um út- f&rir. Aliur útbúnaBur sá bezti. Enn fremur seiur hann allskonar mlnnisvarSa og legsteina. ) Skrifst. Talsími: N-6607 Heimilis Talsími: J-8302
W. J. Lindal. J. H. Lindal
B. Stefansson.
Islenzklr lögfrwSingar.
708-709 Great-West Perm. Bldg.
356 Main St. Tals.: A-4963
peir hafa einnig skrifstofur aB
Lundar, Riverton, Gimli og Piney
og eru þar aB hitta á eftirfylgj-
and tlmum:
Lundar: annan hvern miBvikudag
Rlverton: Pyrsta fimtudag.
Gimll: Fyrsta mÍBvikudag.
Pineyj ýriSja föstudag
I hverjum mánuBi.
■I
A. G. EGGERTSSON
fsl. lögfræSingur
Hefir rétt til aB flytja pi&1 bœC1
I Manltoba og Saskatchewan.
Skrifstofa: VVj-nyard. Sask.
Seinasta mftnudag i hverjum mán-
u81 staddur I Churchbridge
J. J. SWANSON & CO
Selur bújarðir. Látið það félag
selja fyrir yður.
611 Paris Building, Winnipeg.
Phones: A-6349—A-6310
STEFAN SOLVASON
TF.ACHKR
of
PIANO
Ste. 17 Emllv Apts. Emily St.
Eiuil Johnson
SKRVIOK ELEOTRIC
Rafmagns Contracting — AUs-
kyns rafmagsndhöld seld og viO
þau gei~t — Eg sel Moffat og
McClary Eldavélar og hefi þœr
til sýnis d verkstœði minu.
524 SARGENT AVE.
(gamla Johnson’s byggingin viB
Young Street, Winnipeg)
Verskst. B-1507.’' Heim. A-7286
Verkst. Tals.:
A-8383
Helma TaLs.:
A-9384
G. L. STEPHENSON
PLUMBER
Allskonar rafmagnsáhiild, svo sentj
straujám, víra, allar tegundir af
glösum og aflvaka (batterles)
VERKSTOFA: 67« HOME ST.
Sími: A-4153. fsl. Myndastofa.
Walter’s Photo Studio
Kristín Rjamason, clgandl.
290 PORTAGE Ave., Winnlpe*.
Næst biB Lyceum leikhúsiB.
JOSEPH TAYLOR
Iiögtaksmaður
Heimatalsími: St. John 1844
Skrif ntofu-Tals.: A-6557
i)ekur lögtaki beeiBi húsalleiguskuld-
”, veBskuldir og víxlaskuldir. — Af-
jreiBir alt, sem aB lögum lýtur.
Skrifstofa 255 Vlain St.
Islenzka bakaríið
Selur beztu vömr fyrir bcgsta
verð. Panlanir afgreiddar bæðl
fljótt og vel. Fjölbreytt úrval.
llrein og lipur viðskifti.
Bjarnason Baking Co.
676 SARGENT Ave. VVrinnipeg. '
Plione: B-4298
MRS. SWAINSON
að 627 SARGENT Ave., VVinnlpeg,
liefir Avalt fyrirliagjandi úrvals-
hlrgðir af nýtízku kvenhöttum.
Ilún er cina M. konan, sem sllka
verzlun rekur í VV’innipeg. fslend1-
ingar, látið Mrs. Swainson njóta
viðskifta yðar.
/