Lögberg - 15.04.1926, Page 1
R O V I N C
THEATRE
ÞESSA VIKU
HOOT GIBSON í
“CHIP OF THE FLYING U
Tekið úr sögunni eftir B. M. Bowers
Áreiðanlega Gibsons bezta á þessu ári
E
ff
E
R O V I N <
THEATRE
NÆSTU VIKU
Mrs. Wallace Reid sýnir
<fTHE RED KIMONO”
Góð skemtun eingöngu, en sem þó hefir
skilaboð að færa
39. ARGANGUR
I!
WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 13. APRÍL 1926
NUMER 13
Helztu faeims-fréttir
Canada.
Mrs. Watson ráðsmaður The
Winnipeg Corporation of Canada,
sem hér var staddur í borginni í
eíðustu viku kunngjörði þær fyrir-
ætlanir félags síns að ákveðið
í fyrri viku lést hér í borginni
Dr. Ralph J. Horner, nafnkunnur
söngfræðingur, hniginn allmjög að
aldri. Hafði hann verið búsettur
hér um langt skeið og getið sér
hinn bezta orðtír, sem söngstjóri,
sönglagahöfundur og kennari í
væri að leggja fram um $15,00ð, hljómfræði.
000 til starfrækslu Flin Flon nám-
anna svo kölluðu í Norður Mani- ; Hinn 9. þ. m. létust í Toronto,
toba, þegar fengið væri leyfi til að ' Aaron, Sduier, 91 árs að aldri og
byggja þangað járnbraut. Byggja 1 kona hans Margaret 89 ára. Voru
málmbræðsluslóð þar norður, frá þau gefin saman í hjónaband 1855.
scm kosta ætti mikið fé og brætt Banamein beggja var lungnabólga
gæti um 2000 tonn af málmblend-
ingi á dag og einnig að byggja
rafmagnsstöð við iChurchhill-ána
sem framleitt gæti 30,000 hestaöfl.
Einnig kvað Mr. Watson að áform-
að væri að fá einkaleyfi á bæjar
stæði þar nyrðra og byggja á því
hús fyrir vinnufólk félagsins.
• * *
Eldur kom, upp í C. P. R. hótel-
inu í Banff í Alta og brann partur
þess til kaldra kola. Skaði met-
inn á 2 miljónir dollara. Canada
Pacific félagið hefir lýst yfir því
að byggingin verði tafarlaust end-
urreist.
$1500 töpuðust á miðvikudag
inn var úr pósti, sem fluttur var
með járnbrautarlest á leið til Good
eve Sask. Ekki vita menn enn
hvort þeim hefir verið stolið eða
þeir hafi týnst.
* * *
Þess var nýlega getið hér } blað-
inu, að sambandsstjórhin hefði
skipáð nefnd til þess að rannsaka
tollmálakerfi þjóðarinnar, og
koma síðar með tillögur í mál-
inu. 'Sú breyting hefir orðið á
samsetning nefndarinnar, að Mr.
Daoust frá Montreal hefir verið
strykaður út af listanum. Nú er
nefndin mönnum sem hér segir:
Rt. Hon. George P. Graham.
Albert Lambert, eigandi skófatn
aðarverksmiðju í Montreal. (
D. G. McKenzie, ritari samein-
uðu bændafélaganna í Mani-
toba.
Þá hefir stjórnin ennfremur
skipað konunglega rartnsóknar-
nefnd, til, þess að kynna sér út í
æsar, allan hag strandfylkjanna.
En þar hefir, eins og kunnugt er,
almenn óánægja gert vart við sig
út af ástandinu yfirleitt, bæði í
sambandi við kolaverkfallið mikla
í Cape Breton héruðunum og fleira.
Eftirgreindir menn eíga sæti í
nefndinni: ,
Sir Andrew Rae Duncan frá Eng
landi, forseti.
Hon. W. B. Wallace, héraðsrétt-
ardómari í Halifax.
Prófessor Cyrus MacMillan við
McGill háskólann. er hann tal-
inn að vera stórhæfur hagfræð-
ingur.
* * *
Samkvæmt Ottawafregnum, hef-
ir hermálaráðgjafinn nýlega skip-
að svo fyrir, að Major-General
H. D. B. Ketchen, sem haft hefir
á hendi um langt skeið yfirum-
spón með 10. hermálaumdæmi og
búsettur verið í Winnipeg, skuli
frá 1. -október næstkomandi að
telja, takast á hendur tilsvarandi
embættií 11. umdæminu, með bú-
setu í Victoria, B. C. Við 10. um-
dæmi tekur BrigjGen. J. M. Ross.
* * *
Landstjórinn í Canada, lávarð-
ur Byng af Vimy, er væntanlegur
hingað tiil borgarinnar ásamt Lady
Byng og föruneyti, á þriðjudag^-
morguninn þann 20. þ. m. Er land-
stjóri á kveðjuför sinni um Vest-
urlandið með því að emþættis-
tímabil hans, er í þann veginn að
renna út.
# * *
C. H. Whitaker forstjóri Massay
Harris verkfæra - verzlunarinnar
hér í Winnipeg er í þann veginn
að láta af þeim starfa. Hefir verið
í þjónustu þess félags í fjörutíu
og fimm ár og átt 1 hvívetna mikl-
um vinsældum að fagna.
/ *
* * *
Frumvarp til laga um löggild-
ing Manitoba Northern járnbraut-
arfélagsins, þess er annast skal
um lagningu járnbrautar til Flin
Flon námuhéraðanna, hefir verið
aígreitt frá 2. umræðu í fylkis-
þinginu R. W. Emmond þingmað-
ur fyrir Swan River kjördæmið,
var flutningsmaður að frumvarpi
þessu.
og bar dauða þeirra að með aðeins
fárra klukkustunda miílibili. Son
einn láta þau eftir sig, David að
nafni, búsettan í Winnipeg. Systur
sonur gamla mannsins er Dr. F.
G. Banttng, sá er uppgötvaði
insulin meðalið við sykursýkinni.
* * *
Aðfaranótt síðastliðins laugar-
dags, nam tala sjúklinga á Al-
menna sjúkrahúsinu í Winnipeg,
655. Alls kvað vera þar rúm fyrir
660 sjúklinga. Sjúkrahús þetta er
nú alment talið ein hin fullkomn-
asta stofnun slíkrar tegundar hér
í landii og þó víðar væri leitað,
hvað útbúnaði og umönnun viðvík-
ur.
* * *
Samkvæmt fregnum frá Ottawa
hinn 10. þ. .m„ er talið nokkurn
veginn víst, að hertoginn af York
næst elsti sonur konungshjónanna
brezku, muni verða eftirmaður lá-
varðar Byng af Vimy, sem land-
stjéri í Canada. ’ ,
* * *
Taldar eru að vera á því miklar
líkur að Mr. Malcolm þingmaður
North Bruce kjördæmisins í Ont-
ario, muni verða innan skamms
skipaður verslunarmálaráðgjafi
Mackenzie Kink stjórnarinnar, og
far þar þá að sjálfsögðu fram
aukakosning. Hefir Mr. Meighen
þegar tilkýnt, að í því falli, að til
kosningar komi í North Bruce,
muni íhaldsflokkurinn hiklaust út-
nefna þingmannsefni.
* * *
Samkvæmt fregnum frá Ottawa
er þess getið, að fjármálaráðgjaf-
inn, Hon. J. A. Robb, muni til-
kynna, er fjárlagafrumvarpið verð-
ur lagt fram, tuttugu og fjögra
miljón dala lækkun á þjóðskuld-
inni.
* * *
Hveitisamlagið í Saskatchewan
hefir keypt allar byggingar hinna
Sameinuðu kornhlöðufélaga þar í
fylkinu. Var þessi ráðstöfun gerð
á hluthafa fundi hinna síðar-
nefndu félaga, er haldinn var ný-
lega í Regina. Talsvert voru
skiftar skoðanir um mál þetta, og
var Hon. George Langley, fyrrum
búnaðarráðgjafi, einkum mótfall-
inn sölunni, en hann hefir um
langan aldur verið allmikiðvvið
starfrækslu kornhlöðufélaganna
riðinn.
* • •
Látinn er hér i borginni Thom-
as Laidlaw, yfirkennari við
Greenway miðskólann, rúmlega
scxtugur að aldri. Var hann hinn
merkasti maður og frábærlega
vinsæll sem kennari. *
* * •
Hon. Frederick Martin hefir
verið endurkosinn borgarstjóri í
Montreal, með yfirgnæfandi at-
kvæðamagni. Er þetta í sjötta
skiftið, sem hann befir verið
kjörinn til að gegna þeirri vanda-
og virðingarstöðu.
Bandaríkin.
Sagt er að gefin séu út í Banda-
ríkjunum um 2,000’blöð og tímarit
á erlendum tungumálum, þar af 25
dagblöð. Fullyrt er að um éllefu
miljónir manna lesi blöð þessi.
Mesta útbreiðlu hafa þýsku blöð-
in en þar næst þau pólsku. Eftir-
greindir erlendir þjóðflokkar gefa
út blöð, sunnan landamæranna:
Albaníumenn, Arabar, Armeníu-
menn, Bæheimsmenn, Bulgarar,
Kínverjar, Croatan, Danir, Hol-
lendingar, Frakkar, Finnar, Þjóð-
verjar, Grikkir, Ungverjar, ítalir,
Japanar, Lithuaníumenn, Norð-
menn, Pólverjar, Portúgalsmenn,
Rúmeníumenn, Rússar, Rutheníu-
menn, Slovakar, 'Slóvenir, Spán-
erjar, Serbar, Svíar, trkraníumenn
og Welshmenn.
• • •
Hagstofa Bandaríkjanna áætlar
að þann 1. júlí næstkomandi muni
Frú Ólöf Sveinfríður Olson.
Fœdd 12. júU 1891. Dáin 31. dcs. 1925.
“Meðan þú átt, þjóðin góða,
þvílík kvennablóm,
átt þú sigur, gull og gróða,
Guð og kristindóm,”
Frú Ólöf Sveinfríöur Ólson var fædd 12. iúlí
1891. Foreldrar hennar voru heiðurshjónin Gísli
Sveinsson og kona hans Margrét Brynjólfsdóttir.
Hún ólst upp hjá foreldrum sínum á Lóni i greud
viö Gimli í Nýja íslandi. Hún naut alþýðuskóla-
mentunar á Gimli, og gekk síöar á æSri skóla í Win-
nipeg, unz hún hafSi náð fyrsta stigs kennaraprófi.
AS loknu námi starfaöi hún viö kenslu til vorsins
1913. Þann 18. sept. 1913 giftist hún eftirlifandi
manni sínum, séra Carli J. Ólson, sem þá var prest-
ur í suðurhluta Nýja Islands, og búsettur á Gimli.
Bygöu þau sér heimili á Gimli, eftir nokkurra mán-
aða dvöl hjá foreldrum hennar. Á Gimli dvöldu
þau til vorsins 1918, er séra Carl sagöi söfnuöum
sínum upp þjónustu. Voru þau hjón og dætur þeirra
tvær, kvödd meö söknuði, þvi þau -höfðu notið al-
mennra vinsælda. Héöan lá leið þeirra til Saslcat-
cliewan. Þar voru þau í þjónustu Methodista-
kirkjunnar, þar til sumarið 1922 að þau fluttu til
Brandon, Man. Þar lézt frú Sveinfríður 31. des.
1925 að nýafstöðnum uppskurði. — Fjögra barna
varð þeim hjónum auðið, eru þau: Katrín Margrét,
Ingi'björg Lillian, Carl Jónas og Gisli Robert. —
Lík frú Ólafar var flutt til Gimli og jarðsett þar 6.
janúar. að viðstöddu miklu fjölmenni. Fór kveðju-
athöfnin fram, fyrst frá heimili hennar á Lóni, og
síðar frá lútersku kirkjunni. Var hún jarðsungin
af séra Sigurði Ólafssyni, með aðstoð séra Jóhanns
Bjarnasonar.
Þetta eru aðal-atriðin í æfisögu hinnar góðu
og mikilhæfu konu, sem í blóma lífsins var svo ó-
vænt hrifin burt. Langorða lýsingu á henni, eða
ítarlega æfisöguj hennar, finn eg mig ekki færa til
að skrifa; því mér virðist að dauðinn hafi höggvið
og nærri mér til þess. En úr endurminningum frá
liðnum árum vildi eg vefa lítinn sveig og leggja á
leiði hennar, sem frá barnæsku reyndist mér ávalt
sönn og trygg. Þær endurminningar vona eg að
lýsi henni eins og hún var öllum er þektu hana bezt.
Endurminningar frá bernskuárunum koma þá
fyrst í huga minn, er við lékum saman, gengum sam-
an á skóla, og dvöldum saman á heimili hennar.
Sem leiksystir var hún ljúf og kát og sérstaklega
skemtileg. Gleðin var svo innileg, að aðrir gátu
ekki annað en, glaðst með henni. En samfara þvi
að vera svo lífsglöð, var hún mjög alvarlega hugs-
andi, og hafði jafnvel þá unun af að tala um alvar-
leg efni, enda hafði sorgin orðið á leið hennar.
Einkabróður sínum hafði hún séð á bak, og mótaði
sá missir barnshjarta hennar dýpra en almenningur
vissi. Enda sýndi hún þá, að eins tólf ára að aldri,
frábæran skilning, með því að reyna að létta hina
þungu byrði, sem foreldrum hennar var lögð á
berðar.
Á skólaárum hennar kom soemma i ljós, hve á-
gætum gáfum hún var gædd og hve námfús hún var.
Hún hafði sérstakt yndi af ljóðum, var einkar
hneigð fyrir bókmentir. og hafði ágæta dómgreind
á öllu er að þeim laut. Var það draumur okkar
margra, er vorum með henni á æðri skóla, að ein-
hvern tíma myndi hún inna störf af hendi í þarfir
islenzkra bókmenta.
Sem kennari var hún vinsæl, lipur og þýð; ávann
hún sér hylli nemenda sinna. Virðingu þeirra og
annara átti hún líka, því framkoman öll var sérstak-
lega vönduð og virðuleg, í fylsta samræmi við hið
háleita starf, að hafa leiðsögn hinna ungu með hönd-
um. Veit eg að þau áhrif, sem hún hafði á því
starfssviði voru bæði mikil og góð.
Eg minnist tímabilsins, er hún starfaði hér í
Nýja Islandi við hlið mannsins sins, og aðstoðaði
hann af fremsta megni. Þá sem fyr, var heimili
hennar henni helgur staður. Af hjartá unni hún
málefni kristindómsins, en hún starfaði i kyrþey og
gerði aldrei tilraun til að láta mikið á sér bera. Á
þeim timum mun efnahagur þeirra hjóna oft hafa
verið þröngur, og heilsa hennar veilli en almenning
grunaði. Heimilisannir og áhyggjur voru oft þung-
ar. því maður hennar ^tarfaði, part úr ári hverju,
fjarri heimili sínu, við heimatrúboðsstörf.
Missir elskaðrar systur lamaði líka krafta henn-
ar, því lát hennar tók hún sér mjög nærri, þó hún
léti ekki mikið á þvi bera. Ef til vill var þetta ekki
almenningi ljóst, sökum þess, að hún kunni ekki að
kvarta; en lét þess betur að bera harm sinn í hljóði.
sælu, sem hún ávalt naut á æfileið sinni, því, eins
og þegar er á minst, var heimilið konungsríki henn-
ar. Þau hjón voru sérstaklega alúðleg heim að
sækja, mun og margur hafa 'fundið til þess, að stórt
“skarð fyrir skildi” varð við burtför þeirra úr
þessu umhverfi.
Leiðin lá nú burt frá æskustöðvum hennar Vel
vissi eg. að hún lagði út í hið nýja starf, sem þá
beið hennar, með gleði og öruggri von um það, að
verða öðrum til blessunar. Ávalt báru bréf henn-
ar vott um það, hve mikið hún þráði að afkasta, og
hve lítið henni fanst sér verða ágengt. — Er sú til-
finning vanalega einkenni þeirra, er af trúmensku
sá, en fá ekki að sjá uppskeruna.
Frá þeim árum minnist eg sérstaklega einnar
myndar af henni, er hugur minn verndar og sem ef
til vill er mér kærari en allar aðrar: Heilsa henn-
ar hafði bilað, varð hún þá að láta af heimilisstörf-
um um hríð, og dvaldi fjarri ástvinum sínum á
heilsuhæli í Fort Qu’Appelle, Sask. Var eg svo
heppin, að geta verið gestur hennar þar um nokkra
hríð. Aldrei fanst mér hún indælli en þá, og aldrei
fann eg betur, hve sterk og þrekmikil hún var, þrátt
fyrir líkamlega vanheilsu. Eg gleymi ekki hvernig
hún kom mér fyrir sjónir, eri eg kom þangað að
kveldi dags. Hún hafði gengið á móti mér, eins
langt og reglur heimilisins leyfðu, og hafði sezt
niður að hvíla sig, og beið min á fögrum stað við
vatnið. Að sönnu var! hún fölari og veiklulegri en
'hún átti að sér að vera. En rósemi og styrkur lýsti
sér í svip hennar, og mér kom hún fyrir sjónir sem
hetja, er sigrað hafði þrautir og kvíða. Enda sann-
færðist eg um það, dagana sem eg dvaldi þar, að
svo var. Öðrum miðlaði hún af lífsgleði sinni og
öruggleik. Hún lifði i samfélaginu við Guð, og
horfði því ókvíðin fram á veginn, hvort heldur sem
leiðin kynni að liggja aftur til heimilis hennar, þar
sem ástvinurinn og börnin biðu og sem hún þráði
að lifa, fyrir, — eða þá ef leiðin lá út yfir landa-
mæri lífs og dauða. — Síðan eru liðin rúm fimm ár.
Á þeim tíma breyttust kringumstæðurnar. Hún
hafði fengið bót á heilsubresti sínum; sinti sjálf
heimilisstörfum sínum: framtíðin brosti við björt
og fögur. Oftar en einu sinni mintist hún þess, að
aldrei hefði sér liðið betur, en einmitt nú. Allir
væntu þess, að fram undan lægi löng og fögur, ó-
gengin æfileið.
Síðast er eg sá hana, hafði dauðinn enn þá eintt
sinni sótt heim æskuheimilið hennar kæra og hún
kom þangað til að standa við líkbörur föður síns.
Hve þung þau spor voru, skilja þeir, er sjálfir
hafa reynt ástvinamissir, og sem vissu hve innilega
traust það band var. er tengdi dóttur og föður. Eg
hvgg, að aldrei hafi faðir og dóttir ver.ið samrýmd-
ari en þau voru. í þeirri sorg var hún róleg og
styrk, sem fvr; var hugur liennar fullur þrá að geta
nú orðið, ásamt systur sinni, aldraðri móður þeirra
sem mestur styrkur.
Og rúmum þrem mánuðum síðar kom kallið
hinzta, þar sem hún svo fýrirvaralítið var kölluð að
heiman frá elskuðum eiginmanni og börnum. og
kölluð heim til föður og systkina, 'er gengið höfðu
grafarveg á undan henni. Fregnin um lát hennar
vár þungbæf vinum og vandamönnum, er í fjarlægð
bjuggu. En sérílagi aldurhniginni einmana móður,
er áður hafði séð á bak svo mörgum ástvinum —
og systurinni, sem nú er ein eftir skilin af fjórum
systkinum. En ríkar í endurminningum biða þær,
og sjá með útsýn trúarinnar gegn um móðupa, sem
skilur þær frá ljóssins landi, þar sem sameinaður
ástvinahópurinn bíður eftir þeim.
Vinirnir allir geyma minningu hennar í þakklát-
um hjörtum. Þeir þakka Guði fyrir að hafa mátt
njóta ástar hennar, og fyrir að hafa haft kynrri af
henni. Við burtför hennar hefir orðið frámunaleg
auðn hér, en til er sú vinátta, sem nær út yfir gröf
og dauða.
Mörnin hennar ung og elskuleg geyma minn-
ingu ástríkrar móður. Þótt þau ekki skilji nú, hve
ósegjanlega mikið þau hafa mist, þar sem þau eru
svift leiðsögn slíkrar móður, þá munu þau síðar á
árum minnast hennar, sem hins bezta er Guð gaf
þeim. Óg hann, sem nú er í húmskuggum sorgar-
innar, finnur til þess, að endurminningin um hana
mun lýsa leiðina óförnu, huggast við þá vissu. að:
“Andá sem unnast,
fær aldreigi
eilífð aðskilið.”
Ingibjörg J. Ölafsson.
reyna að komast að sannleikanum
í þessu efni, hefir neðri málstofu-
þingmaður Oden L. Mills frá New
York, borið fram þingsályktunar
tillögu, er fram á það fer, að
verslunarráðgjafinn skuli tafar-
laust láta fram fara nákvæma
rannsókn í málinu og tilkynna
þinginu síðan úrsliitin.
* * •
Látinn er að Santa Rosa í Cali-
orníaríki, Luthte'r Burbank, heimsí
frægur jurtafræðingur, sjötíu og
sjö ára að aldri.
Bretland.
Communistar á Bretlandi, hafa
fyrir skemstu leitað samvinnu við
verkamannaflokkinn til undirbún-
ings undir næstu kosningar. Nú
hafa leiðtogar verkamanna svarað
því til, að eins lengi og Commúm,
istar haldi óbreyttu ákvæðinu um
vopnaða uppreist í stefn^skrá
sinni, séu allar samningatilrauhir
óhugsanlegar.
efni íhaldsflokksins. Eftir að úr-
slitin urðu heyrinkunn fylktu
Commúnistar liði, gengu í skrúð-
gcngu um helztu stræti borgarinn-
ar og sungu þjóðsöng Bolshevik-
anna rússnesku.
í ráði er að reist verði í Cairo
vegleg dómkirkja, til minningar
um þá egypzka hermenn, er létu
lífið í heimsstyrjöldinni miklu. Á-
ætlað er að kirkja þessi muni kosta
um þrjátíu þúsund pund sterling.
* * *
Sjálfsmorð út úr ástamálum,
hafa verið alltíð í Berlín nú upp
á síðkastið. Á einni viku voru þar
fimtíu og sjö sjálfsmorð framin, er
öll stöfuðu af mishepnuðum ásta-
r.iálum, að því er lögreglunni seg-
ist frá.
Fregnir frá Glasgow hinn 11. þ.
m., segja að allmikið sé nú farið
að ráðast fram úr atvinnuleysi því
hinu geigvænlega, er sorfið hefir
svo tilfinnanlega að borgarbúum,
undanfarin ár. Eru þar nú flestar
verksmiðjur starfræktar við full-
an mannafla. Tala atvinnulauss
fólks á Bretlandi, er nú tæp miljón
og hefir því lækkað um hálfa mil-
jón á síðastliðnum átján mánuð-
um.
Lloyd George fullyrðir, að al-
mennar kosningar til brezka þings
ins muni fara fram innan árs, og
að frjálslyndi flokkurinn muni
vinna frægan sigur í þeirri orra-
hríð
Afarskæð kvefsýki hefir geysað
í Glasgow undanfarandi, en kváð
þó heldur vera í rénun. Hefir hún
orðið 622 mönnum að bana.
Ur bœnum.
íslendingar hér í borg, eru vin-
samlega mintir á að sækja vel
Sumarmálasamkomu þá, sem
kvenfélag Fyrsta lút. safnaðar
efnir tH í kirkju safnaðarins\á
sumardagskveldið fyrsta, hinn 22.
þ.m. Er skemtiskráin sérlega
vönduð, eins og auglýsingin ber
með sér, og getur fólk því reitt sig
á góða og uppbyggilega skemtun.
Það er gamall og góður siður, að
fagna sumri. Hittumst á sumar-
daginn fyrsta í Fyrstu lútersku
kirkju og árnum hver öðrum gleði-
legs sumars.
Meðal þeirra er kennaraþingið
sátu hér um daginn, var Mr. J. E.
Sigurjónsson skólastjóri frá Ken-
ville, Man. Dvaldi hann hér hjá
foreldrum sínum til síðastliðins
mánudags, er hann hélt vestur
aftur.
Miss Guðrún Marteinsson kenn-
ari frá Árborg, var stödd hér í
borginni í páskafríinu.
Hvaðanœfa.
Frá Lundúnum hefir sú fregn
borist, að konungsefni Norð-
manna, Olaf, sé trúlofaður Lady
May Cambridge, frænku núver-
andi Bretadrotningar. Er hún
dóttir Alice princessu og lávarð-
ar Ahtlone. Hún er rétt tvítug
að aldri, en Norðmannaprinsinn
tæpra tuttugu og þriggja ára.
*• * *
Þau tíðindi gerðust í Rómaborg,
hinn 7. þ.m., að gerð var tilraun
til að myrða Mussolini yfirráð-
gjafa. Mussolini var að koma af
skurðlæknaþingi, þar sem hann
hafði verið að flytja ræðu. En
rétt í því, er hann var að stíga
upp í bíl sinn, reið af skot, er
særði yfirráðgjafann lítilháttar í
nefið. Ensk kona, Violet Albifta
Gibson, fimtug að aldri, framdi
banatilræði þetta. Er hún dóttir
Ashbourne lávarðar, sem látinn
er fyrir nokkrum árum. Fylgir
það sögunni, ^ð konan sé veikluð
á geðsmunum.
Stjórn Tyrkja, hefir falið em-
bættismönnum sínum í Constant-
inopel að leggja hald á allar eignir
grískra borgara þar um slóðir um-
svifalaust. Kvað þetta stafa af því
að Grikkir vildu eigi láta lausa
nokkra tyrkneska borgara, er þeir
höfðu hneptá varðhald.
Þeir Jón Sigurðsson frá Mary-
hill P. O. og Stefán Ólafsson frá
Lundar, komu til borgarinnar síð-
V
astliðinn mánudag til þess að vera
við jarðarför Jóns Sigfússonar
Olson, ^em getið er um á öðrum
stað hér í blaðinu.
Mrs. S. B. Benediktsson, að 564
Victor St. var flutt á St. Boniface
spítalann fyrir viku síðan, til að
ganga þar undir uppskurð við inn-
vortis meinsemd. Hún er þar und-
ir eftirliti dr, Brandsons, sem
gjörði uppskurðinn. Tókst hann
vel og líður henni eftir vonum. —
Maður hennar hefir einnig verið
veikur lengstan hluta vetrar, en
er nú á góðum batavegi.
íbúatala þjóðarinnar verða 117,135
817. Mun fólksfjölgunin síðan 1920
því samkvæmt nema 11,420,197.
* * *
Senator La Foílette, ber fram
þingsályktunar tillögu þess efnis,
að skipuð skuli nefnd til þess að
rannsaka ástæður allar, er leiddu
til verkfalls í Passaic vefnaðar-
verksmiðjunum.
Charles R. Forbes fyrrum for-
stjóri War Weteran’s Bureau, hef-
ír nú verið fluttur til ríkisfangels-
isins að Leavenworth, Kansas, þar
sem honum hefir ákveðin verið
tveggja ára hegning fyrir svik á
vörum til hinna ýmsu hermanna-
spítala, meðan á stríðinu stóð.
Upphæð sú, er hin nýja
skatts löggjöf veitti ríkissjóði
Bandaríkjanna í síðastliðnum marz
mánuði, nam $420,000,000.
Fjármálaráðgjafi Bandaríkja,
Andrew Mellon, flutti nýl. ræðu í
Union League félaginu í Philadel-
phia um samninga þá, er stjórnin
hefði gert um innheimtu fjár þess
er hinnar ýmsu Norðurálfu þjóðir
skulduðu Bandaríkjunum. Kvað
hann samninga þessa yfirleitt vera
ein^ hagvænlega og frekast hefði
mátt gera sér von um.
Utanríkisráðgjafi Bandaríkj-
anna, hefir tilkynt að stjórnin
muni senda erindreka fyrir sína
hönd á vopnatakmörkunarstefnu
þá, sem ráðgert er að haldin verði
í Geneva í maímánuði 1927.
* * *
Kjörbréfanefnd efri málstofunn-
ar hefir lagt til, að Senator Smith
W. Brockhart, Republican frá Iowa
skuli tapa þingsæti sínu, fyrir
margvíslega óreglu í síðustu kosn-
ingum og keppinautur hans, Dan-
ifcl F. Steck, Demokrat skuli
tekju-1 hreppa hnossið. Er það nú talið
til þjóðþingsins, er fram eiga að
fara 1928.
* * *
Utanríkisráðgjafinn, Mr. Kell-
ogg, tilkynnir að Perú og Chile
Segulmagn hins sólkysta suðurs
dregur íslendinga til sín
Til íslands, hins bera og klaka-
bundna lands á Norðurjaðri ver-
aldarinnar, hafa fréttirnar um
Californíu borist og haft sín áhrif
að því er virðist.
Theodore Oddson fasteignasali
kom að máli í gærdag við skrá-
setjara Brainard B. Smith á land-
skrifstofu Bandaríkjanna og
spurði hann að hvort nokkurstað-
ar vperi til land, þar sem 2000 ís-
lenzkir bændur gætu sest að og
notið heimilisréttar. Kvað Mr.
Oddson að þessir hugdjörfu ís-
lendingar hefðu yfirgefið hin ís-
lensku holt og heiðar feðralands-
ins til þess að geta fullnægt þeirri
þrá að komast til California.
Fclkið sagði Mr. Oddson að
Fregnir frá Rómaborg láta þess
getið að tveír þeirra manna, er
sakaðir voru um að hafa verið við- | hefði tekið bráðabirgðar bólfestu
riðnir morð jafnaðarmannaþing- nálægt Winnipeg í Canada. En
sannað, að við atkvæðatalningu
hafi ranglega verið af honum höfð
1,420 atkvæði.
» * *
’Senator Edge, Republican frá
New Jersey, ber fram tillögu til
þingsályktunar þess efnis, að þjóð
aratkvæði skuli tekið um vínbanns
málið, jafnhliða kosningum þeim
hafi þakksamlega tekið því tilboði! mannsins Mattetotti, hafi verið þráði að komast til California.
' með öllu sýknaðir, en þrír dæmdir “Það verður annað hvort að kom-
í tólf ára fangelsi. Er þess þó jafn ast til Clifornia eða verða öreigi,"
framt getið til, að hegningartíma- sagði Mr. Oddson.
bil þeirra verði stytt til muna.
Bandaríkjastjórnar að reyna að
ráða til lykta á friðsamlegan hátt.
Tacna-iArica deilunni.
• • •
Sá atburður gerðist fyrir
skömmu, að stigamenn nokkrir í
Mexico, réðust á ameríska náma-
íræðinga, er voru að verki við
Durangónámurnar og rændu þá
öllu því fémæti, er þeir höfðu með
sér. Nú hefir Kellogg utanríkis-
ráðgjafi skorist í leikinn og sent
Mexicostjórn skorinort erindiebréf
þar sem þes er krafist, að illræð-;
ismönnum þessum verði þannig
i Mr. Smith, eftir að leita í bók-
* * * um og landabréfum, sagði Mr.
Nýlega afstöðnum kosningum í oddsyni að nóg heimilisréttarland
Rúmeníu, lauk með tilfinnanleg-; handa þessu íslenska fólki væri í
um ósigri fyrir frjálslynda flokk- 0g í nánd við Mojave eyðimörkina.
inn, er setið hefir J)ar all-lengi að
völdum, undir forystu Bratiano
yfirráðgjafa. Var hann ráðríkur
n'.jög og beitti oft valdi sínu, sem
væri hann alræðismaður.
refsað,
gjöld.
að þeir fái makleg mála-
Látinn er að heimili sínu í
• _
Pal-:
Sá orðrómur hefir verið á sveimi
undanfarandi, að frá því er harð-
kolaverkfallinu í Pennsylvania
náfnunum lauk, hafi eigendur nám-
anna okrað á almenningi, sem
svarar $250,000 á dag. Til þess að meirihluta, umfram þingmanna-
Mr. Oddson kvað áform sitt vera
að koma með alt þetta fólk til
Califoríu eftir fáa mánuði og að
það væru fleiri hundruð annara
íslendrnga, sem mundu koma á eft-
(r ef fýsileg vist fengist.
Fólk það, sem nú bíður nálægt
ermo á Sikiley, hertoginn af Orle-; Winnipeg, eftir orðsendingu frá
ars, Louis Philippe, sá er þóttist j Mr. Oddson er alt hraust fólk og
eiga löglegt tilkall til konungdóms vinnugefið og tiltölulega vel efn-
á Frakklandi. i að. Fyrsta athöfn íslendinganna,
* * * j þegar þeir koma, verður að sækja
Tveir Communistar *iáðu nýlega j um fyrsta stigs borgarabréf svo
kosningu í París til neðri málstofu þeir geti fest sér heimilisréttar-
þjóðþingsins, með l,f>0O atkvæða j lönd.”
Los Angeles Times.
V