Lögberg - 15.04.1926, Blaðsíða 3
LÖGBEMJ FIMfTUDAGINN.
15. APRÍL 1926.
Bls. 3.
' ?
1 Sérstök deild í blaðinu §íi®Bi[gia^,aiaps«^siii.ajsiaaaiagsiiaiaMa@S! SOLSKIN Fyrir börn og ungiinga 4 aaaiaaaaaaaaaaaaKiaaaaMMraaaaaaKiaiS
Jörundur.
Saga eftir Jóhönnu Spyri.
(Æskan.)
(Framh.)
Gamli maðurinn varð alveg frá sér numinn af
þessu heimboði malarakonunnar. Hann þorði varla
að treysta því, að hann væri búinn að finna varan-
legan samastað, svo að hann gæti nú varpað öllum
sorgum og áhyggjum fyrir borð. En Kórónan á
þessu öllu var þó það, að nú gætu þeir Jörundur
fengið að vera samvistum, meðan þeir lifðu báðir,
og það á heimili, sem þeir gætu með réttu kallað
heimili sitt. Þetta var miklu meira en hann hafði
nokkru sinni dirfst að láta sér til hugar koma.
Hann stóð lengi grafkyr, rétt eins og honum hefði
misheyrst. En Jörundur var þá heldur vissari í
sinni sök; hann þaut inn í herbergi afa síns og
tók þær fáu flíkur, sem hann fann þar inni, vafði
þeim saman í bagga og batt um snæri, lagði svo
baggann á bak sér og kom á harða spretti út til
þeirra.
“Það var rétt, Jörundur,” sagði amma glöð í
bragði, “nú verðum við undir eins að leggja af
stað.” Þá sá gamli maðurinn að þeim var full al-
vara. Hann hraðaði sér og tók í hönd Lenu og
kvaddi hana og gerði henni grein fyrir, hvert för-
inni væri heitið. Lena gamla varð himinlifandi
glöð, þegar hún heyrði, hverju láni hann ætti að
fagna. Þau komu nú líka, amma og Jörundur, til
að kveðja Lenu; því að hún hafði alt af verið svo
góð við fósturson gamla mannsins.
Þau gengu nú öll sem hraðast niður fjallið og
fyr en þau vissu af, voru þau komin að gistihúsinu.
“Beittu nú sem skjótast fyrir vagninn!” sagði
malarakonan við húskarl sinn, “og láttu svo Brún
þenja sig eins og honum er framast unt; nú ríður
á að komast heim sem fyrst.” — >—
Þegar heim kom, var fólkið í mylnunni nýbúið
að eta kvöldverð. Sveinar malarans voru gengnir
til herbergis síns, en malarinn sat aleinn við borð-
ið. Hann var ekki í sem bestu skapi. Loks heyrði
hann vagnskrölt úti fyrir. fíann hlustaði: “Nei, það
er ekki hún,” tautaði hann fyrir munni sér, “hún
er ekki búin, þó bún sé byrjuð, ef eg á rétt að þekkja
hana; hún verður áreiðanlega á ferðinni þessa vik-
una úr einum staðnum í annan og leitar jafnt ó-
líklega sem líklega, áður en hún gefst upp.”
Vagnskröltið færðist nær og nær og loks nam
vagninn staðar úti fyrir. Malarinn flýtti sér út.
“Komdu nú hingað, maður minn!” hrópaði kon-
an til hans, “komdu og taktu drenginn niður úr
vagninum; hann er okkur tilheyrandi. Jörundur er
sonur Melchiors!”
Malarinn kom nær og kom ekki orð frá munni.
Hann tók á móti drengnum og lét bjarmann af ljós-
kerinu falla framan í hann.
“Það er víst ómögulegt, Jörundur! Er það nú
ábyggiiegt?”
Því næst tók hann í höndina á honum og leiddi
hann inn í stofuna.
Þegar inn var komið, virti hann drenginn ná-
kvæmlega fyrir sér, en ekkert sagði hann. Litlu
síðar kom kona hans líka inn og með henni gamli
Alpa-foringinn.
“Nú máttu ekki efast lengur, maður minn,”
mælti konan og gekk til mannsins síns, en hann
þagði sem áður. “Eg hefi sannanirnar í höndum;
það er jafnvíst að hann er drengurinn okkar, eins
og Melchior var það.”
“Já, kona mín, eg er nú ekki lengur i neinum
vafa,” mælti malarinn svo ánægjule'ga, að ekki voru
dæmi til þess, að-hann hefði talað í slíkum rómi nú
langalengi. “Ef einhver hefði komið til mín og
sagt; “Þessi drengur þarna er sonur Melchiors,”
og enga sönnun haft í hön/ium fyrir því, þá hefði
eg nú samt trúað því nú á þessari stundu. Hver
hreyfing hans minnir á Melchior; alt leikur honum
. í höndum, hann veltir öllu fyrir sér og snýr eins og
Melchior var vanur að gera. Mér hefir oft orðið
órótt innanbrjósts, er eg hefi veitt þessu eftirtekt. —
Svo þú ert þá eftir þessu sonarsonur minn, Jörund-
Ur,” sagði malarinn og tók í höndina á honum.
“Þykir þér nú líka vænt um að vera kominn heim
aftur í mylnuna til afa?”
“Já, það þykir mér réyndar,” svaraði Jörund-
ur, "og mér þykir líka vænt um að fá að vera hjá
ömmu.”
“Þetta líkar mér,” sagði malarinn og tók fast
í höndina á Jörundi. “Komdu, amma, nú skulum
við gera okkur glatt kvöld; Jörundur skal nú verða
þess var, að hann er búinn að finna afa sinn og
ömmu.”
Nú .leiddi kona malarans fram gamla fjalla-
foringjann; hann hafði alt til þessa staðið grafkyr
úti í stofuhorninu.
“Her er maður, sem verður að fá að samgleðj-
ast okkur,” mælti hún, “hann er annar afi Jörund-
ar, hann hefir alið drenginn upp fyrir okkur; við
getum ekki þakkað honum það eins og vert er.”
Malarinn tók þétt og innilega í hönd gamla
mannsins. Kona malarans lék á allsoddi, meðan þau
sátu að borði, og sagði frá öllu, sem henni hafði að
höndum borið um daginn og öllu, sem gamli fjalla-
foringinn hafði gert fyrir Melchior fyrst, og síðan
fyrir drenginn hans. Malarinn tók þá aftur fast-
ara í hönd gamla mannsins og settist svo við hlið-
ina á Jörundi, klappaði honum áhöfuð og herðar og
mælti: n '
“Já, nú megum við vera glöð af því, Jörundur,
að þú ert nú loksins kominn hingað, því að hér áttu
heima. Hvað langar þig nú mest til að læra? Segðu
bara eins og þér býr í brjósti!”
“Eg vil verða malari I” svaraði Jörundur óðara,
og helzt við svona ágæta mylnu, eins og þú átt, afi
minn!”
'Malarinn hló af gleði. Það var hægur vandi
að sjá, að hann var svo hjartanlega ánægður með
þetta svar.
“Nú sjáum við það! Hann veit, hvernig hvað
eina á að vera og hefir augu í höfðinu!” kallaði afi
hans upp yfir sig og djúpu hrukkurnar í andliti
hans urðu alt af sléttari og sléttari.
“Á morgun ætla eg, Jörundur, að kenna þér
að aka með 'Brún og hinum hestunum. Já, nú skal
alt falla í ljúfa löð í mylnunni framvegis.”
Kona malarans gat ekki annað en virt manninn
sinn fyrir sér aftur og aftur; það var eins og hann
væri orðinn ungur í annað sinn; hann var að minsta
kosti orðinn tuttugu árum yngri á fáum augnablik-
um. Síðan leit hún til Jörundar með því augnaráði,
sem hann átti hægt með að skilja; hann varð sí og
æ að vera að taka í höndina á henni, til þess að
hún vissi það víst, að hún hefði sonarson sinn hjá
sér.
Það ljómaði stöðugt af andliti gamla fjalla-
foringjans eins og sólu. Loks spenti hann greipar
og mælti:
“Nú óska eg mér einskis annars en að eg mætti
syngjan lofsöng með Jörundi. Himnafaðirinn má
ekki fara á mis við þakklæti fyrir alt það, sem hér
hefir gerst, og þá þökk gjöldum við houm bezt með
því að syngja.”
Jörundur leit til afa síns óttasleginn; hann
vissi, að honum var ekki við annað verra en söng.
En afi hans kinkaði vingjarnlega kolli til gamla
mannsins og mælti:
“Já, gerðu það. Syngdu bara! Ef litli malar-
inn minn lætur ekki að eins á sér standa allan dag-
inn við mylnustörfin, þá má hann syngja uppá-
haldsljóðin sín á hverju kvöldi fyrir ömmu eins og
hann lystir.”
Þá fór gamli fjallaforinginn að syngja með
sterkri bassaröddu, en Jörundur söng yfir með
hlómskíærri röddu. í sömu svifum sótti amma
gígjuna og rétti Jörundi hana með hægð. Hún hafði
^ingum haft yndi af að heyra gígjutónana, þvr að
þeir vöktu hjá henni endurminningar um fyrri
daga, glaða og bjarta. Malarinn sat og hlýddi á
með glöðu bragði.
Þegar búið var að syngja, sátu allir hljóðir
augnablik; en skömmu seinna gekk kona malarans i
upp á loftið og hallaði sér út í gluggann. Tunglið
brá björtu skini á þjóðveginn. “Nú þarf eg -ekki
lengur að ganga upp hingað til að vita, hvort hann
komi ekki,” mælti hún og rendi augum út á veginn,
eins og hún hafði gert svo oft arum saman. “Nú
veit eg að hann kemur ekki; eg sé hann aldrei fram-
ar; hanp er farinn fyrir fult og alt; en sé hann að
eins þarna uppi að baki stjarnanna, já, þá skal ek
ekki mögla. Eg finn á mér, að hann hlýtur þar
að vera.”
Tárin streymdu niður kinnar hennar, en hún
þerraði þau vandlega af sér, því að hún vildi ekki
koma niður með grátin augu til þeirra, sem þar
voru allshugar glaðir.
Morguninn eftir, þegar alt heimilisfólkið var
saman komið og sezt að morgunverði, sagði kona
malarans skýrum rómi:
“Eg hefi nú í dag mikilvægt málefni að tjá
ykkur. — Þessi drengur hérna, hann Jörundur, er
sonarsonur minn og upp frá þessari stundu ber
ykkur að líta svo á, sem hann sé sonur okkar. Fað-
ir hans dó snögglega þegar hann var á leið heim
tíl okkar, og þessi valinkunni gamli maður tók Jör-
und að sér og ól hann upp, svo að hann er nú orð-
inn góður drengur og maklegur til að vera hérna,
þar sem hann á nú heima að réttu lagi. Þennan
mann skuluð þið nú virða og heiðra, eins og hann
sé annar afi míns kæra sonarsonar.”
Sveinar malarans voru ekki í sem bestu skapi,
þegar þeir gengu aftur til verka, því að þeim kom
til hugar, að Jörundur mundi nú segja af sínum,
hvernig þeirn, hefði farist við hann, og yrði þá, ef
til vill, vísað á dyr; langi Kaspar var sérstaklega
hræddur við það.
Nokkru seinna gekk Jörundur til mylnunnar til
að gera þar eitthvað, sem afi hans hafði beðið
hann fyrir. Hann var dálítið hræddur og kvíðandi
fyrir því, að nú mundu þeir verða fullir upp úlf-
úðar og öfundar, af því. að hann ætti nú framvegis
svo miklu láni að fagna. En þeir voru nú orðnir
allir aðrir; þeir keptust á í því að sýna honum vin-
semd í viðmóti; nú vildu þeir allir hjálpa honum, og
sýndu með því, að þeir vildu bæta fyrir það, að þeir
höfðu áður gert illa honum til handa.
Þessi breyting á þeim létti þungum steini af
hjarta Jörundar, því honum fór sem kalt vatn milli
skinns og hörunds, þegar hann hugsaði til þess, hve
vondir þeir höfðu verið honum. í gleði sinni sýndi
hann þeim nú í móti öll vinahót og lét aldrei á sér
finna, að þeir höfðu áður verið vondir við hann.
Þessi framkoma hans fékk mjög á þá, og þeir fóru
að hafa verulegar mætur á honum, svo það var ehtci
óttinn einn, sem knúði þá til að sýna honum vinahót.
Þegar Jörundur var aftur genginn út úr myln-
unni, sagði sá af sveinunum, sem elztur var: “Það
var víst og satt að við gerðum honum rangt til, en
það er ekki að sjá, að hann hafi í hyggju að hefna
sín á okkur.”
Allan liðlangan daginn var hann að velta ein-
hverju fyrir sér, og þegar hann og félagar hans
voru búnjr að syngja saman nokkrum sinnum, þá
gekk hann um kvöldið með þá út fyrir dagstofu-
gluggana og þar röðuðu þeir sér og sungu ofurlítið
velkomandaljóð, sem hann hafði ort sjálfur.
Malarinn opnaði glugga og bauð þeim öllum inn
og sökum gleði sinnar út af hluttekningu þeirra
sótti hann eina flösku af víni og veitti þeim.
Gleðin var nú aftur búin' að halda hátíðlega
innför í Stouffer-mylnuna. Þaðan hljómaði söng-
ur samfara gígjuslætti á hverju kvöldi. Aldrei leið
nú svo- dagur til enda, að malarinn segði eigi aft-
ur og aftur við konu sína: “Þú ættir bara að sjá,
hverju Jörundur fær afk'astað!” Hún kom aftur og
aftur í mylnuna, tilí þess að sjá og sannfærast um
það af eigin sjón, oð Jörundur væri eins duglegur
og afi segði, og hún varð að staðfesta það, sem
hann hafði sagt.
Já, nú var hamingjan og gleðin búin að taka sér
bólfestu á heimilinu.
En þegar hún svó fór fram hjá hvítum mjöl-
sekkjunum, fullum af mjöli, þá var hún oft vön að
minna mann sinn á það, sem hann hafði heitið
henni, með því að segja: “Þú veizt, hverju þú
hefir lofað mér. Jafnskjótt sem þú fær tóm til, þá
lyftum við okkur upp nokkra daga og förum upp í
Bernhards-klaustur; við eigum svo mikið að þakka
munkunum góðu þar, og erum þeim mjög skuld-
bundin. Við höfum þá með okkur fáeina af þess-
um fullu mjölsekkjum og meira til. — Mig langar
svo til að geta þakkað þeim. *— Og svo er það leiðið
hans iMelchiors okkar. Það verðum við að fá að )
sjá; þar langar mig til að dvelja um stundarsakir.
Þangað verðum við að far á ári hverju, meðan okk-
ur endist líf. Og Jörundur verður að fara með
okkur, og gamli fjallaforinginn verður líka að fara
með okkur, hann verður enn einu sinni að gera sér
ferð þangað. Við skulum gera honum ferðina
hæga; hann verður enn einu sinni að ferðast um
þær slóðir; og það verður ef til vill síðasta Alpa-
ferðin hans.”. \
Malarinn var konu sinni algerlega sammála um
þetta. “Þú ættir bara að vita, hve alt fellur í Ijúfa
löð í mylnunni!” sagði malarinn skömmu síðar við
konu sína. “Það er eins og návist Jörundar hafi
gerbreytt sveinunum; það er öldungis merkilegt,
hvað þeim kemur vel saman. Já, nú finst mér gam-
an að lifa.. Og þegar þeir syngja á kvöldin, þá
finst mér að eg hafi aldrei heyrt jafn yndislegan
söng fyrri.”
“Já, elsku maðurinn minn!” mælti konan,
“þungri sorg er létt af hjarta okkar og þess vegna
sýnist okkur lífið alt annað en það áður var. Auð-
vitað er Melchior sjálfur ekki kominn heim aftur;
en hann ætlaðil sér það, og blessun hefir hann að
minsta kosti sent okkur, er fær. okkur til að gleyma
liðnum sorgardögum og gerir okkur aftur ham-
ingjusöm og ánægð með lífið.”
Og blessuð malarahjónin urðu ekki fyrir nein-
um vonbrigðum í því efni.
—Æskan. B. J. þýddi.
Aðeins títuprjónn.
(S. J. þýddi.)
“í gær sýndi forstöðumaðurinn í baðmullar-
verksmiðjunni mér títuprjón, sem hafði kostað eig-
andann mörg hundruð krónur,” sagði móðir okkar
við börn sín, Jóhann og Önnu.
“Það hlýtur að hafa verið skrautlegur títu-
prjónn,” sagði Anna litla. “Var demantshaus á
honum?”
“Nei, alls ekki,” svaraði móðirin. “Það var
bara venjulegur títuprjónn, samskonar og þeir, sem
maður kaupir og notar dags daglega og veit varla
af því ð maður gerir það. Eg hefi til dæmis stung-
ið einum hérna í kjólinn minn.”
“Það fær mig enginn til að trúa því, að einn
slíkur títuprjónn hafi kostað mörg hundruð krón-
ur,’ mælti Jóhann.
“Því er nú samt sem áður þannig farið,” sagði
móðirin, “og nú skal eg segja ykkur, hvernig á þvi
stendur.
Þið vitið, að þegar bómullardúkarnir eru
þvégnir og þrýst á þá litunum, þá eru þeir á eftir
þurkaðir og sléttaðir með því að láta þá renna um
stóra, heita sívalninga. Einu sinni vildi svo óheppi-
lega til, að títuprjónn hafði dottið niður á einn
stærsta sívalninginn og þrýstist hann smátt og
smátt inn í hann, þar til hausinn einn stóð út úr.
Enginn sá þetta og sívalningurinn snerist í sí-
fellu og einn meter bómullardúksins eftir annan
rann yfir hann þagað til dúkurinn var á enda.
Síðan var annar dúkur tekinn og látinn fara sömu
leiðina, og þannig var haldið áfram, þar til hundr-
að dúkstrangar voru tilbúnir. . Þeir voru ekkert at-
hugaðir, heldur lagðir til hliðar, þar til þeir voru
allir búnir. Þá var hver strangi athugaður grand-
gæfilega og þá kom það í ljós, að í hVerjum einasta
stranga voru ofurlítil göt á dúknum með tæpu
meters millibili. Það hafði litli títuprjónshausinn
afrekað í hvert sinn, sem sívalningurinn snerist
með dúkinn. Þessir strangar Jcostuðu til samans
yfir þúsund krónur óskemdir, en nú varð að selja
þá með helmings afslætti. Það var mörg hundruð
króna skaði fyrir eigandann, sem þessi litli títu-
prjónn hafði valdið.”
Þannig getur ein einasta smásynd, sem við
geruin okkur sek í, og það ef-til vill áp þess að við
veitum því eftirtekt, leitt til langrar syndakeðju,
sem að lokum yfirbugar okkur að fullu og öllu. —
Við skulum því hafa nákvæmar gætur á sjálf(im
okkur til orða og verka.”—Æskan.
GIMSTEINAR DROTTINS.
Það er sagt, að gimsteinarnir verði til úr 6-
hreinum efnum. Kolum, leir og sandi geta hin dá-
samlegu náttúruöfl breytt í dýra kristalla.
Leirinn verður smámsaman hvítari og hreinni,
gagnsæjari og fastari í sér og getur loks tekið í sig
sólargeislana. Úr leirnum verður sklnandi saffír.
Sandurinn lýsist og hreinsast meir og meir,
verður harðari; og harðari, að síðustu legst hann í
örsmáar samhliða rákir, þær geta svo endurkastað
hinum bláu, rauðu, grænu og fjólubláu geislum sól-
arinnar. Úr sandinum verður glitrandi ópall.
Kolin breytast, verða skær og gegnsæ, og geta
endurspeglað alla liti sólarinnar.
Úr svörtum kolamola verður ljómandi demant.
Þetta sama náttúrulögmál ríkir einnig í hinum and-
lega heimi. Kærleikur Guðs í Jesú Kristi, náðar-
sól hans og líknarstraumar geta myndað hina dýr-
mætustu steina úr hinum óhreinustu mannssálum.
Enginn skyldi því ætla, að hann sé svo synd-
ugur og óhreinn, að Guð geti ekki hreinsað hann
og frelsað, enginn er svo djúpt sokkinn, að Jesús
ekki bæði vilji og geti tekið í höpd honum og reist
hann við, því hann kom til að leita að því, sem
tapað var, og frelsa það. Honum er alt mögulegt.
'Syndugan mann getur hann gert að demanti, er
skína mun í kórónu hans.
Eins og leirinn, sandurinn og kolin við áhrif
náttúruaflanna verða fær um að taka á móti sólar-
Ijósinu og endurkasta geisla þess, þannig verður
og syndarinn fyrir kraft Guðs og starf andans, fær
um að taka á móti kærleiksljósi Guðs og dreifa þvi
út frá sér, — eða eins og ritningin kemst að orði:
Gegnum hann getur Guð veitt lifandi vatnsstraum-
um, hann getur* orðið bréf Krists, skrifað með anda
lifanda guðs.
'Eiguirí vér ekki að láta Guð starfa í oss svo að
vér getum orðið skínandi gimsteinar honum til
dýrðar bæði hér og í eilífðinni? “Þegar Drottinn
samansafnar sínum dýrmætu steium, skulu þeir
vera hans eign” (Mal. , 17.)—'Ljósvakinn.
DR. B. J. BRANDSON
216-220 Medical Arts Rldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phone: A-1834
Oíflce timar: 2_3
Heimili: 776 Victor St.
Phone: A-7122
Winnipegr. Manitoba.
THOMAS H. JOHNSON
og
H. A. BERGMAN
ísl. lögfræðingar.
Skrifstofa: Room 811 McArthur
Building, Portage Ave.
P. O. Rox 1666
Dhnnao- A.fiSiQ cr A.AiUA
Vér leggjum sérstaka áherzlu & a6
selja meSul eftir forskriftum lækna.
Hin beztu lyf, sem hægt er aS fá. eru
notuS eingöngu. pegar þér komiS
meS forskriftina til vor, megiS þér
vera viss um, að fá rétt þaS sem
læknirinn tekur til.
COLCLEUGH & CO.
Notre Dame and Slierbrooke
Phones: N-7658—7650
Vér seljurn Giftingaleyfisbréf
DR O. BJORNSON 216-220 Medleal Arts Bldg Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Office tlmar: 2—3. Heimili: 764 Victor St. Phone: A-7586 Winnipeg, Manitoba.
DR. B. H. OLSON 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Office Hours: 3—5 Heimili: 921 Sherburne St. Winnipeg, Manitoba.
DR. J. STEFANSSON 216-220 Medical Arts Bldg Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-1834 Stundar augna, eyrna nef og kverka sjúkdðma.—Er aS hltta kl. 10-12 f.h. og 2-5 e. h. Heimili: 373 River Ave. Tals.: F-2691
DR. A. BLONDAL 818 Somei-set Bldg. Stundar sérstaklega Kvenna og Barna sjúkdóma. Er aS hltta frá kl. 10-12 f. h. og 3—6 e. h. Office Phone: N-6410 Heimlli: 806 Victor St. Sími: A-8180
DR. Kr. J. AUSTMANN 724 % Sargent Ave. ViStalstlmi: 4.30—6 e.h. Tals. B-6006 Helmlll: 1338 Wolsley Ave. Sími: B-7288.
DR. J. OLSON Tannlæknir 216-220 Medical Arts Bldg. Cor. Graham og Kennedy Sts. Phone: A-3521 Helmlli: Tals. Sh. 3217
DR. G. J. SNÆDAL Tannheknlr 614 Somerset Block Cor. Portage Ave og Donald St. Talslmi: A-8889
DR. K. J. BACKMAN. Skin Specialist. 404 Avenue Blk., 265 Portage Ave. Office phone A-1091. Hours: 2—6
Munið símanúmerið A 6483 og pantiS meSöl ySar hjá oso.— SendiS pantanir samstundls. Vér afgreiSum forskriftir meS sam- vizkusemi og vörugæSi eru ðyggj- andi, enda höfum vér margra ára lærdómsríka reynslu aB bakl. — Allar tegundir lyfja, vindlan, is- rjómi, sætindi, ritföng, tóbak o.fl. McBurney’s Drug Store Cor. Arlington og Notre Dame
Giftinga- og Jarðarfara- Blóm með litliim fyrirvara BIRCH Blómsali 616 Portage Ave. Tals.: B-720 St. John: 2, Rlng 3
A. S, BARDAL 848 Shcrbrooke St. Selur líkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaSur sá bezti. Enn fremur seiur hann allskonar minnisvarSa og legsteina. Skrifst. Talsími: N-6607 Hcimilis Talsímt: J-8302
-
W. J. Lindal. J. H. Lindal
B. Stefansson.
fslenzkir lögfræðingar.
708-709 Great-Wesb Perm. Bldg.
356 Main St. Tals.: A-4963
Peir hafa einnig skrífstofur aS
Bundar, Riverton, Gim’i og Piney
og eru þar aS hitta á eftirfylgj-
and tlmum:
Lundar: annan hvern miSvikudag
Riverton: Pyrsta fimtudag.
Gimli: Fyrsta miSvikudag.
Piney: priSja föstudag
I hverjum mánuBi.
A. G. EGGERTSSON
fsl. iögfræðingur
Hefir rétt til aS flytja mál bæSl
I Manltoba og Saskatchewan.
Skrifstofa: Wynyard, Sask.
Seinasta mánudag I hverjum mán-
uSi staddur l Churchbrldge
DR. ELSIE THAYER
Foot Specialist
Allar tegundir af fótasjúkdómum,
svo sem likþornum, læknaðar fljótt
og vel. Margra ára æfing.
(Islenzka töluð á lækningastof unni.
Room 27 Steel Block
Cor. Carlton & Portage Tals. A9686
A. G. JOHNSON.
907 Confederatlon I.ife Bldg.
WINNIPEG
Annast um festeigmr manna.
Tekur að sér að ávaxta sparifé
fólks. Selur eldsábyrgð og bif-
reiða ábyrgðir. Skriflegum fyr-
irspurnum svarað samstundis.
Srifstofusíml: A-4263
Hússíml: B-38M
J. J. SWANSON & CO.
Selur bújarðir. Látið það félag
'selja fyrir yður.
611 Paris Buildlng, Winnipeg.
Phones: A-6349—A-6310
STEFAN SOLVASON
TEACHER
of
PIANO
Ste. 17 Emlly Apts. Emlly 9t.
Ernil Johnson
SERVIOE EI.ECTRIC
Rafmapm Contracting — Allt-
kyns rafmagsndhöld seld og viO
þau gert — Eg sel Moffat og
McClary Eldavélar og heft þasr
til sýnis d verkstœSi mínu.
524 SARGENT AVE.
(gamla Johnson’s byggingin viS
Young Street, Winnipeg)
Verskst. B-1507. Helm. A-7286
Verkst. Tals.: Heima Tals.:
A-8383 A-9384
G. L. STEPHENSON
ITI'MBI’.R
Allskonar rafmagnsáhöld, svo sem
straujám, vira, allar tegundir >f
glösum og aflvaka (batteries)
VERKSTOFA: «76 HOME ST.
Sfini: A-4153. Isl. Myndastofa.
Walter’s Photo Studio
Krlstfn Bjarnason, eigandl.
290 PORTAGE Ave., Winnlpeg.
Næst biS Lyceum lelkhásiS.
Islenzka bakaríið
Selur beztu vörur fyrir lægsta
verð. Pantantr afgrciddar l>æH4
fljótt og vel. rjölbreytt Arval.
Hreln og Ilpnr viðsklfti.
Bjarnason Baking Co.
676 SARGENT Ave. Wlnntpeg.
Phone: B-429S
MRS. SWAINSON
; að 627 SARGEM Ave., Wiimli>eg,
hefir ávalt fyrirllfagjandi úrvals-
hlrgðir af nýtízku ku>iiiu>ttuia
Hún er eina ísl. konan. sem slíka
j verzlun rekur í Wtnnipeg. fslenit-
ingar, látið Mrs. Swahison njóta
viðskifta yðar.