Lögberg - 22.04.1926, Síða 4
Bis. 4
LÖGBEKG FIMTUDAGINN,
22. AFRIL 1926.
Grfi?! ít livern Fimtudag af TLe Co!
umbia Press, Ltd., .Cor. Sargent Ave &
T oronto Str.. Winnipeg, Man.
. l«Uiir.zr, .V-G.32T oá >T-R^2«
JÓN J. BHDFELL, Editor
l/tan&sktift til blaðsins:
TK.E COLUMBIA PRE8S, Ltd., Box 3l7t. Wlnnlpeg. N|»n.
Utan&skrift ritstjórans:
ECtTOR LOCBEPC, Box 317» Winnlpeg, N|an.
The “Lfigberg-’ U prlnted and publlshed by
The Columbla Preee, Limited, in the Columbla
Building, €»5 Sargent Ave., Winnipeg, Manitoba.
Gleðilegt sumar
Veturt'nn er liðinn hjá. Eftir fáeinar vikur
klæðist jörðin litskrúði sínu enn á ný. Von iðju-
mannsins um farsæla framtið styrkist og glæðist.
Von hans lifnar með blómunum á vorin. Náttúran
lofar honum launum fyrir daglegt strit.
Margt bendir nú til þess, að erfiðleikar þeir,
sem stöfuðu af stríðinu mikla, séu að mestu liðnir
hjá. Verzlun er að blómgast, framleiðsla að aukast,
peningamarkaðurinn að verða rýmri, ný verzlunar-
fyrirtæki allmörg byrjuð. Hér í borginni er þegar
byrjað á mörgum byggingum, smáum og stórum.
Hlýtur það að veita þús,undum manna atvinnu. Lít-
ur nú út fyrir, að atvinnuskortur verði enginn og
kaupgjald sanngjarnt.
Fjármálin á þingi Canada.
Fjármálaræðu sína flutti Hon. J. A. Robb,
fjármála ráðherra Canada, á fimtudaginn var, á
þinginu í Ottawa, og hefir ræðan nú verið birt í
flestum blöðum landsins og vakið eftirtekt og að-
dáun rétthugsandi og sanngjarnra manna frá hafi
til hafs, • þvi hún flytur breytingar á skattalöggjöf
landsins, sem öllum eru kærar.
Fjármálaræðan er vanalegast í tveimur deild-
um; önnur þeirra fjallar um inntektir og útgjöld
3tjcrnarinnar um það fjárhagstímabil, sem liðið
er; hin deildin, eða hinn parturinn, um áætlaðar
tekjur og útgjöld á komandi fjárhagsári.
Ræða þessi, sem nú var flutt, sýnir, að tekjur
stjórnarinnar í Canada á fjárhagsárinu liðna námu
$376,800,000. Útgjöldin voru $342,890,000. Tekju-
afgangur því $33,910,000. Af þeirri upphæð hefir
stjórnin borgað ýmsar smærri -upphæðir, svo sem
$10,000,000 til járnbrautakerfis ríkisins, svo eftir
eru $22,353,000 sem ganga til þess að borga niður
í þjóðskuldinni.
Það er gleðiefni hverjum hugsandi manni, að
sjá hve fjárhagur ríkisins er í góðu horfi, og að
það var með öllu ástæðulaust fyrir andstæðinga
stjórnarinnar, að vera að hrópa fjárþröng og vand-
ræði yfir þjóðina eins og þeir gerðu um þvert og
endilangt landið við síðustu kosningár. Og auk þess
sem tekjuafgangurinn hefir orðið eins sómasam-
legur og ríkisreikningarnir bera með sér, þá, hefir
verzlunarhagnaður þjóðarinnar á fjárhagsárinu
numið $40(2,695,000.
Kingstjórnin í Canada hefir ekki heldur látið
við það s'tja, að leysa verk sitt af hendi svo prýði-
lega, sem fjármálareikningarnir bera vitni um, hún
hefir líka ákveðið að færa niður skatta svo nemi um
$25,000,000, eða skila aftur til þjóðarinnar 6% af
öllu innheimtu skattfé, því breytingar þær, sem
gerðar eru á skattalögunum og sem mestu varða,
gilda fyrir árið 1925, en það er niðurfærsla á tekju-
skatti. Auk tekjuskattsins er skattur á bifreiðum,
sem kosta alt að $1,200 færður niður um 15%, og
skattur á dýrari bifreiðum að miklum mun.
Það er nú að eins tíma spursmál, að Hudsons-
flóa brautin verði bygð. Stjórnin hefir lofað, að
það verk verði byrjað á komanda sumri og því lokið
eins fljótt og hægt er? Geta menn varla gert sér
fulla grein fyrir, hvaða þýðingu það hefir fyrir
Vesturlandið.. Við Port Nelson hlýtur að myndast
all-stór bær og járnbrautarsamband við flóann að
auka verzlunarmagn fylkisins að miklum mun.
Það er og sannað mál, að Norður-Manitoba er
náma-auðugt Iand. Á næstu árum, — ef til vill næstu
mánuðum — verða námur þær starfræktar. Eykur
það atvinnu og verzlun og verð á vörum bænda.
Alt virðist benda til þess, að á næstu árum
verði meiri framfarir í þessu fylki, en menn hefir
dreymt um til þessa.
Þetta eru gleðileg teikn tímanna. Þó lítum vér
svo á, að þ e 11 a út af fyrir sig nægi alls ekki til
þe^s, að gjöra æfi manns að sumri og veita sálum
manna sumargróður.
Eitt af helztu skáldum íslendinga, Kristján Jóns-
son, yrkir:
“Krýndur situr öðlingur konungsstóli á,
knéfallandi þegna lítur hann sér hjá” o.s.frv.
Tekjuskatturinn hefir verið færður niður sem
hér seg'r: Að einhleypur maður, sem áður borgaði
4% af tekjum sínum sem fóru yfir $1,000, borgar nú
2% af tekjum um fram $1,500. Giftir menn, sem áð-
ur þurftu^að borga skatt á öllum tekjum yfir $2,000
á ári, eru nú skattfríir, unz inntektir þeirra nema
meiru en $3,000 árlega. Þurfa að borga 2% unz
tekjurnar nema $4,000, og svo 1% af hverju þúsundi
þar eftir, og gildir það jafnt fyrir gifta sem ógifta.
Þessi breyting gengur í gildi strax og nær einnig til
ársins 1925.
í sambandi við þennan tekjuskatt er vert að
taka það fram, að undanfarandi hafa félög, sem
tekjuskatt greiða, orðfð að borga 10% á arði sínum.
Nú er sá skattur færður niður í 9%, en arður sá, sem
hluthöfum er greiddur af slíkum félögum, og ekki
var skattgildur undir gamla fyrirkomulaginu, verð-
uy nú að teljast sem tekjur þeirra hluthafa, sem arð-
inn fá, og þeir verða að greiða tekjuskatt af sem
hverjum öðrum tekjum sínum, en hlutaðeigandi fé-
lag er ekki skattgilt I sambandi við þann arð.
Skattur á kvitteringum er afnuminn, og sölu-
skattur lækkaður á ýmsum nauðsynjavörum, svo
sem á niðursoðnum fiski um 2%%. Söluskattur af-
numinn á byggi til manneldis, hálf-baunum, flutn-
ingsvögnum fyrir ferðamenn og munum, sem teknir
eru að erfðum.
En konungurinn grætur í sínu “konunglega rúmi”.
Áhyggjurnar, sem embættinu fylgja, valda honum
andvökunætur. Embættið hið-æðsta í heimi var
honum þá til böls og mæðu. Hann var konungur, en
vansælli en þegnarnir.
Til er Ijóð eitt á enska tungu, sem nefnist “The
Miller of the Dee.” Konungurinn ávarpar mylnu-
eigandann, er syngur við vinnu sína, og segir:
“And tell me what makes thee sing
With voice so loud and free,
While I am sad, though I’m a king
Beside the river Dee”.
0g svar mylnumannsins er á þessa leið:
“I love my friend, I love my wife,
I love my children three.
I owe no penny I cannot pay,
I thank the river Dee
That turns the mill that grinds the corn
To feed my babes and me.”
Og konungurinn kveðst öfunda hann.
Lífsgleði raanna, — sumar sálarinnar — er ekki
fólgin í því, að vera ríkur eða voldugur, ekki heldur
í fátækt og umkomuleysi. Hún er í raun og veru alls
ekki komin undir ytri lífskjörum manna, heldur hug-
sjóna auði, lífsstefnu og jafnvægi sálarinnar. Eng-
inn maður er sælli en sá, er á sér hugsjónir svo
hjartfólgnar, að hann lifir þeim algerlega. Enginn
er vansælli en stefnuleysinginn.
»
Sé nokkuð eitt þess vert að gerast áfnaðarósk
vor til lesenda Lögbergs, þá er það óskin sú, að þeim
veitist á þessu nýbyrjaða sumri fleiri, stærri og göf-
ugri hugsjónir.
“örlög kappans æfislóðar
eru myndir vorrar þjóðar,
heiftum slungnar, hreysti fróðar,
hamingju litlar, fagrar þó”,
segir Matthías, er hann hugsar um þjóðina sína og
afarmennið frá Bjargi. Skáldið sér ímynd þjóðar-
innar í Gretti. Sannari orð hafa sjaldan verið í let-
ur færð. Oss hrýs hugur við því að verða að viður-
kenna, — því það er sögunnar dómur — að þjóð vor
hefir frá alda öðli eytt alt of miklu af dýrmætum
hæfileikum sínum, andlegu og líkamlegu atgerfi, í
“einksis vert þref og gjálfur”. íslenzk óbilgirni hef-
ir því miður bú;ð mörgum vorum beztu fyrirtækjum
og hugsjónum aldurtila Grettis.
Guð gefi, að sumarið nýbyrjaða, og árin, sem
fram undan eru, verði löndum vorum austan hafa og
vestan gullaldartífflábil samúðarinnar, sanngirninn-
ar og bróðurkærleikans.
Þá fyrst nær íslenzk þjóð fullum þroska. Þá
vinnur íslenzkt þrek hreystiverk, þá vinnur þjóðin
sér vegsauka. Þá verður sumar í islenzkum sálum.
En þótt þessir skattar og aðrir fleiri hafi þyngt
mjög á fólki hér í landi síðan á stríðsárunum, þá
hefir þó liklega enginn skattur náð til eins margra
og verið eins illa þokkaður og hækkun á póstgjöld-
um, sem gjörð var 1915, þegar það innan lands var
fært upp úr tveimur centuip og upp í þrjú á algeng-
um bréfum. Sú framfærsla var geysilega mikil, eða
33 1-3.%, og það á nálega hverju einasta mannsbarni
í landinu, því flestir eru það, sem skrifa og send^
fleiri eða færri bréf með pósti. Þessi aukaskatt-
ur hefir verið afnuminn og burðargjald á bréfum
verður aftur eins og það var fyrir 1915, eða eitt og
tvö cent innanlands, eftir 1. júlí n. k.
Tvent er það, sem gjörir þessa niðurfærslu á
sköttum mögulega. Fyrst, vaxandi velmegun, og í
öðru Iagi hagkvæm og heiðarleg meðferð á rikisfé.
Fyrri ástæðan er að þakka aukinni framleiðslu og
nýtni landsmanna, nema að því leyti sem stjórn
landsins hefir stutt að breytingum þeim, sem orðn-
ar eru, með hyggilegum ráðstöfunum og hagkvæm-
um framkvæmdum. En sú síðari er stjórninni einni
að þakka.
Eitt er það, sem öðru fremur er ánægjulegt
við þessi nýju fjárlög. Þau eru samin með sér-
stöku tilliti til heildarinnar, en ekki til sérstakra
flokka, og er það í nánu sambandi við stefnu frjáls-
lynda flokksins, sem ávalt hefir borið hag fjöldans
fjrrir brjósti. Fjárlög þessi hin nýju mælast óefað
vel fyrir hjá öllum þorra þjóðarinnar.
Lækkun verndartolls á bílum.
Eins og sjá má af fjárlagafrumvarpi Sambands-
stjórnarinnar, því er fjármálaráðgjafinn, Hon. James
A. Robb, lagði nýlega fram í þinginu, er ákveðið að
lækka verndartollinn á bílum um fimtán af hundr-
aði. Þegar þetta varð hljóðbært, gerðist kurr mikill
meðal verksmiðjueigenda eystra, þeirra er setja
saman bíla: Gekk þetta svo langt, að 'General Mot*
ors, Ltd., í Ottawa, Ont., lokaði verksmiðju sinni til
mótmæla um hríð. Eigi leið þó á löngu, áður en tek-
ið var til starfa á ný. • |
Nokkrum dögum eftir að fjárlögin voru lögð
fram, gerði Dr. Manion, þingmaður íhaldsflokksins
frá Fort WiIIiam, breytingartillögu, sem, að minstá
kosti óbeinlín;s, felur-í sér vantrausts yfirlýeingu á
hendur stjórninni. Gerði hann mest veður út af
því, að verndartollarnir hefðu lækkaðir verið, áður
en hinni nýskipuðu tollmálanefnd hefði veizt kostur
á að rannsaka málið og láta í ljósi álit sitt. En
hvert er starfsvið þe;rrar nefndar? Engum heil-
skygnum manni getur blandast hugur um, að sá var
ekk' skilningur með nefndarskipuninni, að efna þar til
nýrrar stofnunar, er hafa skyldi töglin og hagldirn-
ar í tollmálunum og geta sett stjórninni, nær sem
vera vildi. stólinn fyrir dyrnar. Heldur er það tek-
ið skýrt fram í ástæðunum fyrir skipun nefnd-
arinnar, að nefndin skuli .að eins ráðgefandi vera,
er hagkvæmlegt geti verið fyrir stjórnina að leita
til, er sérstök vandaefni á sviði tollmálanna, liggi
fyrir henni til úrskurðar á skjótum tíma. Stjórnin
ber alla ábyrgðina, en tollmálanefndin ekki.
Ekki verður því móti mælt, að bílaframleiðend-
um beri til þess fullur réttur, að mótmæla lækkun
tolla á framleiðslu þeirri, er þeir senda frá sér á
markaðinn, — þeir um það. En hitt er engan veg-
inn óhugsandi, að svo geti farið áður en langt um
líður, að þeir neyðist til að viðurkenna, að lækkunin
verði bæði þeim sjálfum og þjóðinni í hag. Við
lækkun verndartollsins lækka bílar að sama skapi í
verði, en slíkt hlýtur að sjálfsögðu að hafa í för með
sér aukna sölu, og má því gera ráð fyrir, að með
þeim hætti fái framleiðendur miklu betur en bættan
upp halla þann, er af lækkuninni leiðir.
Að öllu athuguðu, er því eigi annað sjáanlegt,
en að lækkun tollverndunar á bílum, hljóti að verða
öllum aðiljum til drjúgra hagsmuna, er stundir líða.
Eins og I öllum öðrum greinum, er samkepnin
á sviði bílaframleiðslunnar, orðin feykimikil. Sú
þjóð, er lækkað getur mest framleiðslukostnaðinn,
stendur að sjálfsögðu margfalt betur að vígi, hvað
erlenda samkepni áhrærir. Og af þeirri ástæðu einni
ættu bílaframleiðendur fremur að fagna en hryggj-
ast yfir tolllækkun þeirri, er ákveðin hefir verið
með hinu nýja fjárlagafrumvarpi sambandsstjórn-
arinnar. r
Luther Burbank.
Þess var nýlega getið, að látinn væri i Cali-
forniu, jurtafræðingurinn víðkunni, Luther Burbank,
vafalaust einn hinn frægasti maður samtíðar sinn-
ar á því sviði, er starf hans lá. Vísinda starfsemi
þessa manns, hefir haft afar-víðtæk áhrif, ekki að-
eins þar sem hann sjálfur lifði og starfaði, heldur
og út um allan hinn mentaða heim. Starf hans hneig
að því, að veita mannkyninu betra korn, heilnæmari
og ljúffengari ávexti, betri og óýrari matjurtir, feg-
urri blóm, þolnari tré, og betri beitilönd en áður
þektust, og á öllum þessum sviðum, hefir starfsemi
hans borið sýnilegan árangur, mannkyninu til bless-
unar og þæginda.
Luther Burbank var sýknt og heilagt að gera
tilraunir á sviði jurtafræðinnar. Stóðu margar þeirra
yfir árum saman, áður en látið var nokkuð uppi um
árangurinn, því svo var samvizkusemin djúpt rót-
fest í huga þessa merka manns, að hann hélt upp-
götvunum sínum gersamlega leyndum, þar til reynsl-
an hafði sannað, að þær þoldu dagsljósið og urðu
undir engum kringumstæðum hraktar.
Luther Burbank var barn náttúrunnar og stóð
viö hana í þrotlausum samböndum alla sína æfi.
Við brjóst hennar hafði hann numið leyndardóma
þolinmæðinnar, er einkendu alt hans líf og veittu
honum sigursæld í margri raun. Maðurinn vissi ekki
hvað yfirlæti var. Hann sýndist muna eftir öllu öðru
betur en sjálfum sér. Það stóð öldungis á sama, hve
marga stórsigra hann vann. Þeir voru sigrar mann-
kynsins í heild, en ekki hans, eins og hann var vanur
að segja. Þó er það á allra vitorði, að plönturæktin,
einkum rækt nothæfra jurta, beinlínis skifti um
svip, fyrir aðgerðir þessa kyrláta manns.
Megin starf Luther Burbanks hneig að því, að
endurbæta núþektar plöntur, ávexti, matjurtir og
beitilönd, og í þeim efnum vanst honum feykimikið
á, — svo mikið, að margar hinna algengustu fóður-
jurta, hafa margfaldast að gildi, að hinu ógleymdu,
hve fagurfræðilegur skilningur almennings á gildi
skrautlegra blóma, jókst einnig til muna við ná-
kvæmni hans í blóm og trjárækt.
Minni Rangárþings.
Þú opnast sjónum, fagri fjallahringur,
í faðmi þínum vagga okkar stóð.
Þar halda vörðinn Hekla’ og Þríhyrningur,
en hljóðlát Rangá kveður draumkend ljóð.
Og fætur þínir laugast bröttum bárum,
er bylta sér við dökkan Eyjasand.
Við lifðum hjá þér okkar bernskuárum.
Þú ert vort sanna drauma’ og vökuland.
Og frá þér stafar ljómi’ af liðnum dögum,
sem lýsti gegnum margra alda stríð.
Og Njála ber af öllum íslandsögum,
er endurspeglar þína fræðartíð.
Og frægra Oddaverja vizkublóma
vítt um okkar köldu foldu bar,
og lengi Sæmundssonar rödd mun hljóma,
er sannur heilla’ og óskamögur var.
Og hvar var íslands harpa snjallar knúin
en hjá þér, sagnafræga Rngárþing?
v Að skáldum varstu öðrum betur búin
með Bjarna, Guðmund, Þorstein Fljótshlíðing.
Og Merkjá leikur enn í bugðum bláum,
og brosa’ í heiði tigin austurfjöll,
og inn á Þórsmörk, ofar vegum háum,
enn þá heyrist þrastaraustin snjöll.
Vér sendum kveðju heim til austurheiða,
sem hingað frá þér straumur tímans bar,
og öll vér þráum blóm á veg þinn breiða,
því bjartast lífíð hló við okkur þar.
Og vaxi hjá þér mentun, manndómsandi,
og magn og hreysti, fagra Rangárþing,
á meðan báran syngur fyrir sandi,
og sélin roðar Heklu’ og Þríhyrning.
Sigurj. Guðjónsson, frá Vatnsdal.
—Vísir.
ÞEIR SEM ÞURFA -
LUMBER
KAUPl HANN AF
The Empire Sash& D oorCe.
Limited ,
Office: 6th Floor Bank of Hamilton Chambers
Yard: HENRY AVE. EAST. - - WINNIPEG, MAN.
VERÐ og GŒDI ALVEG FYRIRTAK
Manitoba Dairy Farms
A Good Farm — Profitable Cows — a Home
— Everything ready to start — that’s the
“DAVIDSON PLAN”
íslendingum er það þegar kunnugt, að hér við Winnipeg hefir
verið sett á stofn nýlenda með fyrirkomulagi, sem nefnt er “David-
son Plan” og sem um all-mörg ár hefir reynst afbragðsvel víða um
Bandaríkin. Landtakendum eru boðin þar þau kjör, sem standa
öllum öðrum framar sem menn eiga völ á og mælt er með af þeim
mönnum, er láta sig nokkru skifta heiðarlegt og affarasælt nýlendu-
fyrirkomulag til framboðs bændum og bændaefnum þessa lands.
Landtakandinn kaupr 160 ekrur, þar af 20 ekrur brotnar, íbúðar-
hús 22x26, fjós 30x50 fyir 18 kýr og fjögur hross og brunn, ‘silo’ 12
fet í þvermál og 32 fet á hæð úr konkrít, sem tekur 65 tonn fóðurs.
Landið með byggingum kostar $5,500, einn fjórði verðsins borgist
strax og afgangrnum jafnað niður á 20 ár með 6% rentu. Fyrstu
3 árin þarf ekki að borga í höfuðstól.
Landtakandinn getur þá fengið það sem hann þarf til búsins,
hross, landbúnaðarverkfæri hreinkynjaðar Holstein-mjólkurkýr, eins
margar og hann getur starfrækt, fugla, svín og sauðfé, ef honum
svo sýnist, gegn þvi að borga helming af rjóma- eða mjólkurtekjun-
um mánaðarlega. Það er tækifæri fyrir íslenzka fjármenn að stunda
þar sauðfjárrækt. Fá þeir í hendur beztu tegund sauðfjár, sem til
er í landinu, eins er um allar aðrar skepnur, sem landtakendum eru
í höndur fengnar—í þeim efnum fer félagið að ráðum búnaðarskóla-
ráðs Manitoba fylkis. Aðal-áherzluna leggur, þó félagið á mjólkur-
búið, þvi góð kúahjörð hefir alt af verið og mun ávalt verða merki
stöðugleikans og farsæls búskapar — mjólkurkýrin meginstoð heim-
ilisins. Mjólkurvélar eru nú svo fullkomnar, að erfiðleikarnir sem
eru við það að mjólka margar kýr, eru hverfandi; má nú fá mjólkur-
vél, sem er ígildi fjögra manna að mjólka, fyrir lægra verð en eitt
hundrað dali.
Hér er eigi rúm til að útskýra nákvæmar þetta “Davidson
Plan” — enda áður að nokkru gert, en senda skal eg þeim, sem þess
æskja, prentaðan bækling með uppdráttum og góðu yfirliti yfir alt
er að því lýtur. Bezt fer á því að þeir, sem hug hafa á því að setjast
að í þessu landnámi, fari þangað sjálfir og athugi nákvæmlega það,
sem í boði er. Ágæt svefnrúm og máltíðir framreiddar öllum, sem
þangað koma, frítt.
Skrifið mér eða finnið að máli,
Ólafur S. Thorgeírsson,
674 Sargent Ave., Winnipeg, Canada.
OpiS bréf
til kunningja minna,
Nú cr langt síðan þiS hafiö
heyrt frá mér 'í Lögbergi. Sonar-
mis’sirinn, í fyrra, vanheilsa móSur
hans, hnignun sjálfs mín fjártjón
og óreiöa austur frá, sem snertir
bæöi mig og ykkur, og fleira sem
ekki er vert aS telja upp alt, hefir
gjört mig áhygjufullann og þöglan.
Samt veit eg aö þiS beriS hlýjan
hug til okkar, þaS sannar f jöldi af
jóla og nýjárs heillaóskaskeytum
næstli/ðinn vetur, og fleiri sending-
ar og 'bréf. Fyrir þaS alt þökkum
viö ykkur innilega. Ekki dylst mér
aS nokkur vandi er aS skrifa opið
bréf, sem öllum gefst tækifæri aS
lesa, þar veröur aS stýra rétt á milli
skers og báru ef ekki á að hljótast
af árekstur. En þiS allir vitiö aS
ekkert er mér ógeSfeldara en aS
tala rósamáli eða eiins og eg meina
ekki, og þessvegna læt eg ykkur
fyrirfram vita aö þetta bréf er mein-
ing mín hvaS sem aðrir kunna að
álíta. Lí'ka ;biS eg ykkur aS vita aö
þegar eg skrifa “þiS” þá meinar
þaö ekki aSeins vini núna og kunn-
ingja, heldur bæSi þá og alla aSra,
sem eiga hlut aS máli.
Fyrst ætti nú eftir kúnstarinnar
reglum aS koma fréttabálkur héS-
an frá Calif., en nú í siSari tiS eru
millliferSir orSnar svo tíSar aS
fréttir flytjast héSan án bréfa, og
þar aS auk láta góSar fréttir héSan
eftir minni reynslu, misjafnlega í
eyrum ykkar austur frá, svo vegna
þess aS fátt er til, sem skugga gæti
kastaS á þaS góSa sem héðan er aS
frétta þá fer eg fram hjá öllum
fréttum og sný mér aS öSru fyrst,
minnist máské síSar ef þolinmæSin
endist á ýmislegt bæSi gott og iit
héSan. ,
Islcnsku blöðin hér í landi.
Finst ykkur ekki eins og mér aS
ísi. blöSin hér séu aS fara aftur
á bak ‘í gagnsemi og til gamans Is-
lendingum, IbæSi hér og heima á
Islandi ?
Finst ykkur ekki aS margt, sem
þau nú flytja lesendum sínum viku-
lega sé aS verSa, ekki aSeins ó-
íslenskt, heldur einnig dauöans
leiðinlegt aS lesa? Finst ykkur ekki
aS þau ættu aS bæta ráS sitt og
gjöra íslendingum s,em eru jieirra
einu lesendur betri skil? Eg vil aS-
eins' benda á meS fáum dráttum, á
hvern hátt eg get hugsaS mér aS
þetta mætti verSa gjört, þaö er aö
sleppa öllu stjórnmálastagli á milli
‘kosninga, öllu trúmálaþrefi, öllum
breytiþróunar vísindum, draga
fundargjörninga ofurbtiS saman,
grynna hveitisamlagiS svo aS ein-
hverntima grilti í botn á því, og yfir
höfuö ganga fram hjá öllu því, sem
íslendingum ,sem sérstökum flokki
manna kemur ekki mikiö viS sér-
staklega. En flytja í þess staS frétt-
ir frá öllum stöSum, sem Isl. búa á,
ef mögulegt er oftar en áSur, flytja
skáldskap og um aörar listir ísl.
hér og heima, flytja æfiminningar
sem flestra Isl. sem deyja, flytja
meira en átt hefir sér áöur staS af
fréttum og blaSagréinum frá Is-
landii og útleggja á íslensku, þaS
sem komist verSur yfir af merki-
legum viöburSum, sem gerast og
getiö er um í öSrum blööum hér í
Iandi, og eySa ekki þeim tíma vitS
aS flytja stjórnmál neinna flokka
hér, eins og áSur hefir veriö helst
gjört, óefaö í hugsunarleysi, en sem
ísl. lesendum getur ekki veriS ant
um og er þeim því aöeins sviplaus
augnahliksmynd sem þeir renna aug
um yfir eSa fara fram hjá. Eg segi
þetta ekki i óvildaranda til ísl. blaS-
anna hér, þaS er nú svo langt frá
því, þaS er bara bendimg. Eg þakka
bæöi Lögbergi og Heimskringlu
fyrir góS skil til min hingaS og
hlakka ætíS tJl aS fá þau, sem er
á þriSjudag viku hverja.
lslcndingar sem Islendingar.
Nýlega gafst mér færi aS lesa
bók ,sem nefnist “History of races,”
nafn höfundarins man eg nú ekki,
en tók þó eftir aS þaS benti e'kki
til aS hann hafi veriS Skandinavi.
Eg vil aöeilns minnast á þaS eitt
lítillega í þessari mjög fróSlegu
bók, sem áhrærir uppruna og for-
feSur íslendnga. Eftir aö höfund-
urinn hefir gjört grein fyrir upp-
runa NorSurlanda þjóSanna yfir
höfuS, og hverrar fyrir sig og hefir
gefiS út þaö álit greinilega aS
Skandinavar hafi veriö “The hest,”
kemur hann aS þeim tíma, sem
Haraldur konungur beitti ofbeldi
ofbeldi i Noregi svo aS besti partur
þar gat ekki viS unaö, og kaus
heldur að víkja á burtu þaöan til
annara landa og til íslands sérilagi.