Lögberg - 24.06.1926, Blaðsíða 3
LÖGBEKG FIMTUDAGINH,
24. JÚNl 1926.
Bla. 8.
1 T 1
“ *k SOLSKl JNI g Fyrir börn og unglinga j
/Efintýrið u n bifreiðina.
Fyrir rúmum fimtíu árum vakti einkenni-
legt farartæki athygli Kaupmannahafnarbúa og
það með réttu. Það; var fyrsta bifreiðin, sem
kom til Kaupmannahafnar.
Og bifreiðin hélt áfram á sigurför sinni,
livað sem tautaði. Það var hæðst og hlegið að
henni, það var kepst við hana í illum hug og
hleypidómarnir dundu á henni. Ekkert hreif.
Rúmum 50 árum síðar en bifreiðin kom til Hafn-
ar, varð bifreiðin til að bjarga Frakklandi og
bandamönnum þeirra, þegar Þjóðverjar ætluðu
að taka Verdun í einum svip. Og nú fimtíu ár-
um síðar hafa þotið bifakfæri svo miljónum
skiftir um heim allan, af ýmsi gerð.
Sú tegund bifreiða, sem kom á markaðinn
um síðustu aldamót varð fyrst nothæf hjá ai-
menningi og samsvaraði kröfum tímans. En
hugmyndin var uppi löngu fyr og varð að
framkvæmd og kom oft og einatt að ekki svo
litlum notum.
Fyrsta bifreiðin, sem sögur fara af, var
smíðuð í Meiningen 1647. Hún var dregin upp
eins og klukka, en stóð auðvitað kyr í hvert
skifti sem hún var útgengin. Eiginleg bifreið
var þetta ekki, heldur undanfari bifreiðarinn-
ar., Jóhann nokkur í Nurnberg smíðaði aðra
gerð 1649 og bætti hana að nokkru, og seldi hana
síðan Karli Gústaf Svíakonungi. Þeir New-
ton og Papin gerðu ýmsar tilraunir með sjálf-
renninga. Betur tókst Cognot, frakkneskum
stórskotaliðsforingja 1770. Bifreiðin hans gekk
á þremur hjólum fyrir gufukrafti og gat borið
tvo farþega og gat farið 3—6 km. á klukkutíma.
Nú rak hver tilraunin aðra, bæði á Englandi og
í Frakklandi, en ónothæfar reyndust allar þær
smíðar. Vagnarnir voru þungir og mestu
skröltarar og erfitt að stjóma þeim, og rak
hvert slysið annað. Þeir gengu fyrir gufu. En
þó tókst tveimur Englendingum, Ogle og !Sum-
mers, að smíða “gufuvagn” 1830, sem farið
gat 50 km. á klukkutímanum; en, samt náði sú
gerð ekki tilgangi sínum. Árið 1871 vora smíð-
aðir fyrstu vagnar á gúmmíhjólum. En gufu-
keyrslan var svo þunglamaleg og erfið, að úr
þessu varð ekki annað en tilraunir einar.
Árið 1876 tókst Otto, þýzkum manni, að búa
til gasvél og sú vél varð upptökin að bifvélum
nútímans. Fóru þá óðar ótal mannvirkjafræð-
ingar að velta fyrir sér hugmyndinni um sjálf-
renning, eða hvernig gasvélinni yrði komið fyr-
ir svo, að hún gæti rent vögnunum. 0g 1886
tókst Daimler að koma einni slíkri bifvél fyrir á
hjóli. Og 1894 tókst loks verksmiðjunni Pan-
hard and Lfcvasson að smíða hinn fyrsta sjálf-
renning með bifvél í, er knúði hann áfram. Þá
var hnúturinn í raun og veru leystur. Nú fór
fram kappakstur milli Parísar og Bordeaux á
Frakklandi. Það var fyrsta bifreiða veðhlaup-
ið. Ritstjóri Parísar-blaðsins “Petit JouraaP’
gekst fyrir þessu veðhlaupi. Levasson vann
veðféð með því að fara að jafnaði 24 km. á kl-
tímanum. Á því sama ári smíðaði Wolfmuller,
þýzkur maður, fyrsta bifhjólið, og þá var veg-
urinn opinn að bifakfærum vorra tíma..
Ár frá ári, eða öllu heldur dag tfrá degi
hafa menn sannfærst um nytsemi akfæra þess-
ara, og þeim hefir alt af farið fjölgandi með
feiknahraða. Hver verksmiðjan á fætur ann-
ari hafa þotið upp eins og sveppar, en ekki
horfið jafnhraðan aftur, eins og svepparnir,
heldur aukist og margfaldast svo á skömmum
tíma, að undrum sætir, því að eftirspurnin hef-
ir verið svo mikil. Fyrir nokkrum árum voru
eigi til fleiri en 20,000 bifreiðir í öllum heimin-
um, en nú eru taldar að vera um 20 mil. bif-
reiða í gangi, og þar að auki óteljandi bátar og
skip, sem fara um öll höf og ganga fyrir bif-
krafti og flugvélarnar eru líka afsprengur bif-
reiðanna, og eru nú þeir draumar mannkynsins
um loftfarir komnir fram, sem það hefir dreymt
þúsundir ára.
Bifreiðir voru í fyrstunni að eins hafðar
til skemtunar. Það! voru auðmenn einir, sem .
höfðu ráð á að kaupa þær. Og það voru auð-
menn einir, sem gátu lagt á þá hættu að verða
fyrir farartöfum, ef bifvélar biluðu, En milj-
ónir hugvitsmanna unnu nú að því nætur og
daga, hveraig bæta mætti bifreiðarnar, svo að
þær gætu komið að almennum notum og orðið
örugg og ódýr fararfæki. Og nú er sú öld kom-
in, að bifreiðar þykja einhver hin öyuggasta
og hraðskreiðustu farartæki á misjöfnum veg-
um og jafnframt hin ódýrustu. Nú eru bifreið-
ar hvarvetna notaðar, þar sem hestar voru not-
aðir áður, og í sumum borgum hafa þær alger-
lega útrýmt hestvögnum, sérstaklega í hverri
stórborg og sömuleiðis í landbúnaðinum, þar
sem hestar voru nær eingöngu notaðir áður til
flutninga. Nú geta bændur látið vinna að jarð-
yrkju á fáum dögum og flutt korn sitt og af-
urðir á markaðinn á fáum klukptímum. Kostn-
aðurinn er ef til vill meiri, en tíminn sparast
meira en að því^kapi, sem kostnaður hefir
aukist.
iSamfara þessu vaxa borgimar hröðum
skrefum, því bifreiðin gerir . allar samgöngur
svo fljótar og greiðar, hjá því sem áður var.
Fyrir 20 árum urðu kaupsýslumenn að búa sem
næst verzlunarbúðum sínum; en nú hika þeir
ekki við að búa í margra mílna fjarlægð frá
miðstöðvum stórborganna, því nú getur hver
þeirra átt sína bifreið vísa, en áður áttu þeir
undir högg að sækja far með járnbrautarlest-
inni, ef þeir bjuggn utan borgar. Og auðvitað
getur kaupmaðurinn fengið alt, er hann þarfn-
ast til heimilis síns á skömmum tíma með vöru-
bifreið.
Þá eru kirkjuferðirnar ekki erfiðar orðn-
ar. Nú þurfa menn ekki að vera að aka eða ríða
tímum saman til kirkjunnar.
Hér yrði of lngt mál að segja frá nytsemi
bifreiða og bifhjóla í heimstyrjöldinni síðustu,
Til dæmis að taka, þá voru það bifreiðar, sem
fluttu á næturþeli öll hergögn og vistir og ann-
an forða til Yerdun. Og þeim var það að þakka,
að Þjóðverjar gátu eigi náð þeirri kastalaborg
á sitt vald. Jámbrautir allar voru þeir búnir
að sprengja upp, svo að eimreiðum varð ekki
við komið. En fyrir bifreiðunum gátu þeir
ekki stemt stigu.
Þá mætti rétt minnast á, hver fyrir-taks
tæki bifreiðar eru, þegar hafa þarf hraðan á
borði, svo sem ef slökkvilið þarf að bregða sér
eða hjálparlið til herstöðva eða læknar til sjúk-
linga. Merki eru gefin, sem allir kannast við
og þá stökkva allir til hliðar, öll umferð hættir
og björgunarmennirnir bruna fram að hjálpa
og bjatga, þar sem eldurinn, neyðin eða slysið
steðja að. Með þessmn hætti hafa bifreiðamar
bjargað lífi óteljandi manna og ógrynni fjár-
muna á þeim fáu árum, sem þær hafa verið á
ferðinni.
1 Ameríku fara verzlunarbifreiðir 'brun-
andi til fjarlægra afsketra bygða og flytja vör-
ur tiil og frá. Það eru sölubúðir á veltandi
hjólum, sem hafa allan þann varning á boðstól-
um, sem viðskiftamennirair þurfa á að halda.
Þeir, sem búa langt frá þjóðvegum, þurfa nú
ekki áð fara í búðir lengur með æraum kostn-
aði og tímaeyðslu, heldur koma sölubúðiraar
brunandi heim að húsdyrunum þeirra.
Þá eru bifreiðamar eigi lítill hægðarauki
skógarhvggsmönnum, sem höggva skóg langt
frá alfaravegum og áður gátu eigi komið trjám
sínum til markaðarins, nema með hinum mestu
erfiðleikum, annað hvort með hestum fyrir eða
niður eftir fljótum. Nú sækja bifreiðar alt til
þeirra í löngum lestum. Kostnaðurinn minkar,
og meiru er afkastað síðan flutningur varð
svona greiður.
Þá eru nú ótaldar ferðabifreiðarnar. Áður
fóru menn í hópum með járnbrautarlest á til-
tekinn stað eða á stórum markaðsvögnum og
höfðu allar nauðsynjar með sér. En í Ameríku
og á Englandi eiga ferðamenn kost á afarstftr-
um ferðabifreiðum. Þær eru eins og hús eða
heimili á flugferð. Þar eru eldhús og svefn-
stofur og dagstofur. Og setjast ferðamenn
þessir að, hvar sem þeir hitta fyrir vænlpgan
stað, í skógi eða við vatn til langdvalar. Ekki
er nú þörf að komast til einhvers bæjar eða á
gistihús; alt, sem menn þarfnast, geta þeir haft
með sér. Við þingkosningar nota þingmanna-
efni farartæki þessr og geta þá farið ferða sinna
sem frjálslegast, þurfa þá ekki að vera bundnir
við járabrautaríestir né að leigja sér húsnæði,
og haldið svo ræður sínar hvar og hvenær sem
þá lystir.
Með verzlunarbifreiðum er líka séð fyrir
andlegri velferð þeirra, sem afsíðis búa. Smá
bókasöfn eru send til þeirra með millibilum og
á sunnudögum eða á kvöldum kemur kirkjan
sjálf veltandi á hjólum til þeirra.
Og enn er það óendanlega margt, sem bif-
reiðar kunna að verða notaðar til. Með hverj-
um degi, sem líður, er nýju blaði bætt við í hina
stórfeldu myndabók bifreiðanna. Og þó maður
fari, eins og hér er farið, á harða flugi yfir þá
bók, þá er þó auðsætt, með því að bera bifreið-
arnar frá 1890—1900 saman við bifreiðir vorra
tíma, miljónanna allra af brunandi bifreiðum,
að í þá bók er ritað eitt af heimsins undursam-
legustu æfintýrum — æfintýrið um bifreiðina!
—Ileimilisbl. B. J. þýddi.
Ef eg bara alténd vissi—
1 járnbrautarlest á Þýzkalandi voru allir
gengnir til hvílu í svefnvögnunum, nema, einn
maður, sem gekk um gólf með ungbarn á hand-
leggnum og var að reyna að hugga það með
blíðmælum, og það grét eigi að síður látlaust.
Eftir litla stund fóru að heyrast kvartanir
og reiðiorð úr rúmunum í kring: að ferðamenn-
irnir gætu ekki sofið, og það væri ekki leyfilegt
að lialda vöku fyrir þeim. Loks kallar feitur
maður og segir:
“Því eruð þér hér með þennan krakkavarg,
öllum til leiðinda? Því farið þér ekki með
bamið til móðurinnar?”
Því svaraði maðurinn með barnið og sagði
í klökkum róm, að því miður gæti hann það
ekki þótt hún væri með sömu lestinni, því hún
væri liðið lík.
Eftir fáar mínútur voru f jórar konur hálf-
klæddar komnar á ganginn milli rúmanna, sem
buðust til að hugga baraið — og sjá um það á
leiðinni. Auðmaðurinn klæddi sig einnig og
gekk til ekkilsins og sagði: “Eg bið yður að
fyrirgefa þau særandi orð, sem eg sagði. Eg
vissi ekki hvemig á stóð — hefði eg bara
vitað-----”
Ein af konunum tók barnið sér í fang með
blíðu, svo að það hætti að gráta og sofnaði.
Þær sáu allar um að því liði sem bezt það sem
eftir var ferðarinnar.
Já, hefði eg bara vitað! Ef menn hefðu
þessi orð oft í huga þá væri mörg reiðiorð og
særandi ótöluð. Vissu menn um þá byrði, sem
margir bera þegjandi, þá mundu flestir ekki
vilja á hana bæta/
óskastundin.
Til er munnmælasaga um hinn ágjama
Midas konung í Austurlöndum. Hann óskaði
sér eitt sinn, að alt, sem hann snerti, yrði að
gulli. Hann hitti á óskastundina og óskin var
uppfylt. En það varð honum ekki til ánægju.
Maturinn og vínin sem hann snerfi og ætlaði að
neyta varð að gulli, bækurnar sem hann ætlaði
að lesa urðu að gulli, og dóttir hans, sem honum
þótti mjög vænt um varð að gulli, þegar hann
tók í hönd hennar. *
Þá sá hann loks, að margt í heiminum er
meira vert en gullið. Hann baðst því fyrir í
margar vikur, að hann væri leystur úr þessum
álögum.
Gimsteinarnir.
Ein af konum miljónamæringanna í Ame-
ríku var orðlögð fyrir skraut og þá gimsteina
og skrautgripi, sem hún átti.
Einu sinni kom til hennar mikils métin vin-
kona hennar, sem bað hana að lofa sér að sjá
skrautgripina. Frúin tók því glaðlega og gekk
burt; hún kom bráðlega aftur með tvo syni sína
og sagði: “Þetta eru mér dýrmætustu gim-
steinarnir, sem eg á. ’ ’
Þrír lceknar.
Þegar hinn frægi læknir Dumoulin lá fyrir
dauðanum, voru margir læknar hjá honum. —
Undir andlátið sagði hann: “Eg læt eftir mig
þrjá góða lækna.” Hinir viðstöddu læknar
héldu hver um sig, að hann mundi vera einn af
þessum þremur, en þá bætir Dumpulin við:
“Það er vatnið, vinnan ög hófsemin.>>
—Þjóðvfél. Alm. 1915.
HEILRÆÐI.
Vertu áreiðanlegur. Vertu svo, að menn
geti treyst þér. Efndu það, sem þú hefir lofað
Hafðu taumhald á hverju ótöluðu orði þínu, en
þjónaðu því, sem þú hefir talað.
Þetta er gullvægt heilræði, og sé því fylgt í
öllu, sem að höndum ber í lífinu, þá kemstu úr
mörgum vanda og hjá mörgum óþægindum. Það
er hægðarleikur að lofa, en hitt er erfiðara að
efna það, sem þú hefir lofað.
Vertu því heldur vrkár í því að lofa, en gáttu
rakleitt að því að efna loforð þín.
Áreiðanlegur maður vinnr sér traust og
virðing annara, hveraig sem högum þínum er
liáttað ; en talir þú þvert um huga þinn, þá fyr-
irlíta þig allir. Orð er orð og hafirðu bundið
eitthvað fastmælum, þá máttu aldrei rjúfa það
aftur. '
Gleymdu því heldur ekki, að hvert léttúð-
arorð, sem fer þér af vörum og öll kaldyrðin, sem
koma kunna frá köldu og kærleikslausu hjarta
'þínu, geta haft hin verstu áhrif. Af þeim leið-
ir ilt eitt og sé þau töluð verða þau ekki aftur
tekin. — Það, sem kemur frá hjartanu, nær til
hjartans.
En vingjaraleg, ástrík orð eru græðandi
smyrsl særðum huga. Láttu þér því heldur góð
orð en vond um munn fara. Og mundu um fram
alt eftir því, að í orðum þínum er fólgið vald,
sem þú átt að beita vel, en ekki misbeita.
Hugsaðu áður en þú talar. Hugsaðu þig
um áður en þú lofar. Þá talar þú færri þarf-
laus orð og efnir fleiri loforð. — Heimilisbl.
TRÚBOÐINN.
Hindúi einn, sem Abdur hét, hafði tekið
kristna trú og var að tala við landsmenn sína,
sem heiðnir voru. Þeir greðu háð og narr að
hans ósýnilega guði og sögðu: “Okkar guð
getum við séð og þreifað á honum, en hvaða
gagn getur þú haft af þínum guði, sem þú getur
ekki séð og veizt ekkert hvemig er?”
Þá sagði A.: “Hafið þið séð tollheimtu-
menn?”
Hinir: “Já marga og margoft.”
A.: “Hafið þið landshöfðingjann?”
Hinir : “Já, en örsjaldan.”
A.: “En hafið þið séð keisarann?”
Hinir: “Nei! En hveraig getur þú búist
við að við, fátækir og umkomulausir, höfum ráð
til þess að geta séð sjálfan keisarann?”
A.: “Hvernig stendur þá á því, að þið
vegsamið keisarann og hlýðið hans boðum, sem
þið þó getið ekki séð? Við sem erum fátækir
og lágt settir í í menningarstiganum, sjáum
daglega. okkar jafningja, en stórmennin sjáum
við sjaldan eða aldrei.
“Ykkar guði getum við séð næstum því á
hverju götuhomi,1 af því að þeir eru svo smáir;
en minn guð býr á himnum, af því að hann er
svo stór, og þess vegna getum við ekki séð hann.
Hann er mælanlega stór, en við erum í saman-
burði við hann ómælanlega litlir.” —Þv. Alm.
EIGINGIRNI OG SJALFSELSKA.
Eigingirni veðjaði eitt sinn við vini sína um
það, að hún væri sú valdamesta í heiminum.
Hún sagði, að allir menn væru sínir þrælar, allir
beygðu sig fyrir sér„£g allir viðurkendu að hún
drotnaði yfir heiminum.
Hún skoraði á þá, sem höfðu veðjað við
hana, að þeir skyldu ferðast með henni um heim
allan, svo hún gæti sannað þeim, að hún hefði á
réttu að standa. — Þeir urðu við áskorun Eig-
ingirninnar og fóru með henni land úr landi.
Alstaðar sáu þeir, að allir höfðu hana í háveg-
um og báru hennar ok með ánægju.
Loks hélt liún mjög f jölmennan fund í þétt-
bygðu landi. 1 byrjun fundarins gekk hún fram
og kallar með hárri rödd, svo að allir heyrðu:
“Er nokkur sá hér í þessu fjölmenni, sem ekki
vill viðurkenna, að eg sé sú voldugasta drotning
á þessari jörðu og sú, sem mestu ræð?”
Meðan fjöldinn var að kalla og vegsama
vald Eigingirninnar, gekk fram að hásæti henn-
ar fátæklega búin kona með ungbara á hand-
leggnum og tvö böra, sem héldu í hennar út-
siltnu föt. Hún var einörð, djarfmælt og sagði
“Eg beýgi mig ekki fyrir þínu valdi og viður-
kenni ekki, að þú sért voldugust allra á þessari
Professional Cards
— :. . -■ ■■ ■ " --------
DK. B. J. BRANDSON
flÖ-2i,0 Mcdical Arts Bldg.
Cor Graham og Kcnnedy Sta.
Phone: A-1834
Ofíicc ttmar: 2_3
Heimili: 776 Victor Slt.
Phone: A-7122
Winnipeg:, Manitoba.
Vér leggjum sérstaka áherzlu & atS
selja meðul eftir forskriftum lækna.
Hin beztu lyf, sem hægt er atS fá, eru
notuS eingöngu. I>egar þér kómitS
metS forskriftina til vor, megitS þér
vera viss um, at5 fá rétt þatS sem
læknirinn tekur til.
Notre Daine and Slierbrooke
Phones: N-7658—7650
Vér seljum Giftingaleyfisbréf
DR O. BJORNSON
216-220 Medical Arts Bldg
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phone: A-1834
Office tlmar: 2—3.
Heimili: 764 Victor St.
Phone: A-7586
Winnipeg, Uanitoba.
DR, B. H. OLSON
216-220 Medical Arts Bldg.
Cor. Graham og Kenivedy Sts.
Phone: A-1834
Office Hours: 3—5
Heimill: 921 Sherbume St.
Winpipeg, Manitoba.
DR. J. STEFANSSON
216-220 Medical Arts Bldg
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Phone: A-1834
Stundar augna, eyrna nef og
kverka sjúkdóma.—Er ati hltta
kl. 10-12 f.h. og 2-6 e. h.
.Heimili: 373 River AVe.
Tals.: F-2691
Dr. K. J. Backman
404 Avenue Block
Lækningar með rafurmagni,
Rafmagnsgeilsum (ultra violet)
Radium, o.s.frv.
Stundar einnig hörundskvilla.
Office tímar 10-12, 3-6, 7-8
Phone, office A-1001. H. N8538
DR. A. BLONDAL
818 Somerset Bldg.
Stundar sérstaklega Kvenna og
Barna sjúkdöma.
Er aö hltta frá kl. 10-12 f. h.
og 3—6 e. h.
Office Pbone: N-6410
Heimili: 80'6 Victor St.
Simi: A-8180
DR. Kr. J. AUSTMANN
724% Sargent Ave.
Viötalstlmi: 4.30—6 e.h.
Tals. B-6006
ITeimill: 1338 Wolsley Ave.
Slmi: B-7288.
DR. J. OLSON
Tannlæknir
216-220 Medieal Arts Bldg.
Cor. Graham og Kennedy Sts.
Plione: A-3521
Heimill: Tals. Sh. 3217
DR. G. J. SNÆDAL
Tannlirknir
614 Somerset Block
Cor. Portage Ave og Donald St.
Talslmi: A-8889
Giftinga- og Jarðarfara-
Blóm
með litlum fyrirvara
BIRCH Blómsali
616 Portage Ave. Tals.: B-720
St. John: 2, Ring 3
A. S. BARDAL
848 Sherbrooke St.
Selur llkkistur og annast um út-
farir. Ai’.ur útbúnaöur sá bezbi.
Enn fremur seiur -hann allskonar
minnisvaröa og legsteina.
Skrifst. Talsími: N-6607
Heimilis Talsími: J-8302
MRS. SWAINSON
að 627 SARGENT Ave., Winnipeg,
hefir ávalt fyrirlbagjandi úrvals-
birgðlr aí nýtízku kvenliöttunv
Hún er eina fsl. konan. sem slikn
verzlun rekur í Wtnnipeg. lslend-
ingar, látlð Mrn. Swainson njóta
viðskifta yðar.
THOMAS H. JOHNSON
H. A. BERGMAN
ísl. lögfræðingar.
Skrifstofa: Room 811 McArthur
Bullding, Portage Ave.
'p. O. Box 1656
Phones: A-6849 og A-6840
W. J. Lindal. J. H. Lindal
B. Stefansson.
Islenzkir lögfræðingar.
708-709 Great-West, Perm. Bldg
356 Main St. Tals.: A-4963
þelr hafa einnig skrifstofur aö
Lundar, Riverton, Gimli og Piney
og eru þar að hitta S. eftirfylgj-
and tlmum:
Lundar: annan hvern miövikudag
Riverton: Fyrsta fimtudag.
Gimli: Fyrsta miövikudag.
Piney: þrlöja föstudag
1 hverjum m&nuöi.
A. G. EGGERTSSONx.
fsl. lögfræðingur
Hefir rétt til aö flytja mál bæöl
1 Manitoba og Saskatchewan.
Skrifstofa: Wynyard, Sa.sk.
Seinasta mánudag 1 hverjum mía-
uöl staddur I Churcbbridge
Athygli!
Komið með næstu lyfjaávísun-
ina yðar til vor. Þaulæfðir sér-
fræðingar annast um alla lyfja-
samsetningu.
INGRAM’S DRUG STORE
249 Notre Dame Ave.
Gagnvart Grace kirkjunni.
A. G. JOHNSON
«07 Confederation Llfe Bldg.
WINNIPEG
Annast um fasteignir manna.
Tekur atS sér að ávaxta sparifé
fólks. Selur eldsábyrgð og bif-
reiða ábyrgðir. Skriflegum fyr-
irspurnum svarað samstundis.
Srifatofusfml: A-4263
HAssfmi: B-SS26
J. J. SWANSON & CO.
Selur bújarðir. Látið það félag
selja fyrir yður.
611 Paris Building, Winnipeg.
Phones: A-6349—A-6310
STEFAN SOLVASON
TEACHER
of
PIANO
Ste. 17 Emlly Apts. Emlly St.
Erail Johnson
SICKVICE ELEOTRIC
Rafmagns Contracting — AH»-
kyns rafmagsnáhöld seld og viO
þau gert — Eg sel Moffat og
McClary Eldavélar og hefi þœr
til síinis á verkstæOi minu.
524 SARGENT AVE.
(gamla Johnson’s byggingin við
Young Street, Winnipeg)
Verskst. B-1507. Heim. A-7286
Verkst. Tals.: Heima Tals.:
A-8383 A-9384
G. L. STEPHENSON
PLUMBER
AUskonar rafmagnsáhöld, svo seim
straujiím, víra, allar tegundir af
glösum og aflvaka (batterles)
VERKSTOFA: 676 HOME ST.
I Sími: A-4153. ísl. Myndastofa
NewLyceum Phato Studio
Kristín Bjarnason eig.
290 Portagc Ave, Winnipeg
Næst við Lyceum leikhúsið.
Islenzka bakaríið
Selur beztu vörur fyrir lægata
verð. Pantanlr afgrelddar bseM
fljótt og veL Fjölbreytt úrval.
Hrein og lipur vtðskifti.
Bjarnason Baking Co.
676 SARGENT Ave. Whmtpe*.
Phone: B-4298
jörðu. Eg ber í brjósti mínu það, sem er vold-
ugra en þú og getur drepið þig.” Þegar konan
hafði Iokið máli sínu stóð Eigingimin upp og
sagði í ergilegum róm: “Eg hefi tapað veðmál-
inu; eg gleymdi móðurástinni, þegar eg veðjaði.
Hún er neisti frá kærleikans guði, sem alt sigr-
ar.” Tr. G.—Þv. Alm.