Lögberg - 29.07.1926, Síða 5
LÖGBERG FIMTUDAGINN,
29. JtlLl 1926
Bls. 5.
EFRIGERATO
í þessu heita veðri, metur móðirin það mikils að fá Arctic Refrigerator, fyltan af hrein-
um og glitrandi ís. pví? Sökum þess að með því er ráðið fram úr þeim vanda,
hvernig halda skuli fæðunni ferskri, svo framreiða megi matinn fyrirvaralaust.
Ekkert heimili ætti að vera án kæliskáps!
#############################################################«
Hringið oss upp og fáið Refrigerator gegn- 10 daga reynslu, ásamt ís, eða komið inn í
sýningarstofur vorar og litist um. Hagnýtið yður hið afarlága verð á Arctic kæliskáp-
iinum, sem fást með vægum afborgunum.
Þeir borga fyrir sjálfa sig með því sem þeir spara
phone F-2321 Xhe Arctic Ice & Fuel Co. Ltd.
281 Donald Street (Refrigerator sýningarstofur í Metropolitan Theatre byggingunni) §H
Phone F-2321
kjör að búa. Þær héldu áfram að
gegna þeirri stöðu, sem þeim
hafði verið eiginleg alt frá frum-
tímum, meðan þroski mannsins og
hættir tóku sífeldum stakkaskift-
um, — að ytri blæbrigðum, eins og
um vitsmunalíf og athafna. 1
klæðaburði hafa karlmenn samið
sig að því sem hagnýtast var fyr-
ir margháttuð störf, þeir hafa
kastað kuflunum 'til þess að pils-
in vefðust ekki um fætur þeirra
á ísnum, meðan kvenfólkið gat
haldið áfram að klæðast, innan
sinna fjögurra veggja, svipað og
rómvérskir höfðingjar, hvað sem
á gekk. Hlutverk konunnar var
eki það, að blanda sér í hvað sem á
gekk í heiminum, heldur eins og
frú Guðr Lárusdóttir heldur fram
réttilega: að elska manninn sinn,
eiga börn og passa þau. Nú bend-
ir hins vegar alt þjóðlífsástand
til þess, að konur muni halda upp-
teknum hætti um að rækja lífs-
kallanir, sem áður hefði þótt fyr-
irsögn að félli í hlut annara en
karla, og litlar líkur virðast á
því, að “heimilið” í hinum borg-
aralega skilningi endurrísi í ná-
inni framtíð. Flestar hugsjónir
borgarabyltingarinnar frönsku
virðast, því miður, vera dauða-
dæmdar, aðrar tekið myndbreyt-
ingum. Súfragetturnar (eða hvað
þær eru kallaðar), segja að karl-
maðurinn hafi áValt hvíslað að
konunni hinu sama og nýlendu-
ríkin hvísla að nýlendum sínum:
"Eg faðma þig” — en alt af skilið
undan meiningu málsins, nefni-
Iega: “Eg elska þig — til þess að
undiroka þig.”
Og úr því að búið er að færa
klukkkuna, þá er bezt að haga sér
eftir því. Það breytir engu hjá
Drotni, þótt klukkan sé færð og
jafnvel ekki þótt aldarfar taki
stakkaskiftum, en á hinn.bóginn
ekki talandi við fólk, sem veit ekki
að vér lifum á árinu 1926 e. Kr.
Kvenréttindin hafa þózt finna
viturlegar ástæður til að hefja
mótmæli gegn því, að konan haldi
áfram að vera það sem hún var;
því ætli þær megi ekki snoð-
klippa sig og fara á þing?
Úr því það er komið upp úr kaf-
inu, að konan er manninum jafn-
hæf til að gefa sig við hverskonar
menningarstarfsemi, en á hinn
bóginn ekki öllu hæfari til að tala
upp börn, því ætti hún þá ekki að
mega fara í Argaþrasið? Hún
tekur upp háttu mannsins, smátt
og smátt, í einu sem öðru, og hef-
ir gert þegar í stað, þó einkum
hneigst að því, að apa eftir ósiði
hans (t. d. tóbaksnautn og víns),
eins og frumrænum þjóðum er
gjarnast á að apa lesti höfðingj-
anna.
Halldór Kiljan Laxness.
—Dagbl.
WONDERLAND.
Á fimtu- föstu- og laugardag í
þessari viku, sýnir Wonderland
leikhúsið myndina “The New Klom
dike”, með Thomas Meighen í að-
al hlutverkinu. Auk þess áfram-
hald af myndinni “Fighting
Hearts”. — Fyrstu þrjá dagana af
na^stu viku, getur að líta á Won-
derland mynd, sem nefnist “Mlle
Modiste” og hefir Corinne Griffith
megin hlutverkið með höndum. Er
hér um að ræða eina af First Na-
tional myndunum.
Það mun óhætt að fullyrða, að
þótt myndirnar á Wonderland sé
yfirleitt skemitlegar, þá sé þess-
ar myndir með þeim allra beztu,
er sýndar hafa verið hér í borg í
háa herrans tíð. Fer þar saman
snild í efni og leiklist. Lillian
Knight, er fyrir nokkru hlaut
krýningu sem Miss Los Angeles,
er ein af fyrirmyndunum í leik
þessum. Myndin er bygð á
frægri operettu eftir Victor Her-
bert, en filmuð undir eftirliti Ro-
berts Z. Leonard.
Frétt frá London segir, að ferða-
menn, sem þar koma frá París,
geri sér það til gamans, að líma
franska pappírspeninga á ferða-
kistur sínar og töskur og mynda-
vélarnar, sem margir þeirra bera
með sér. Er þess sérstaklega get-
ið, að margt fólk frá Bandaríkjun-
um og Canada geri þetta. Er þetta
vitanlega heldur ódýr leikur, þeg-
ar franski frankinn kostar ekki
nema tvö cents, eða þar um bil.
Silfurbrúðkaup.
Laða mig ljúfir tónar,
Litirnir hug minn fanga.
Úr þrengskmum vil eg þjóta,
ÞangaS sem blómin anga.
P. G.
Það var aö kvöldi hins 24. júní
síðastliðinn, aö nokkrir góðkunn-
ingjar þeirra hjóna, hr. Stefáns
Sigurðssonar og frúar 'hans Ragn-
hildar Sigurðsson söfnuðust saman í
J. B. skólahúsinu í Winnipeg í til-
efni, af því að þá voru liðin 25 ár
frá giftingardegi þeirra. ByrjaSi
samkvæmiö með þvi, að séra R.
Marteinsson skýrði frá tilefni sam-
sætisins og lét, eftir að silfurbrúð-.
hjónin höfðu verið ,sett í öndvegi
ásamt börnunum þeirra — syngja
sálminn alkunna: '“Hve gott og fag-
urt ög indælt er”, Ias hann síöan
biblíukafla og flutti bæn.
Þar næst hélt séra H. J. Leo
ræðu og tókst mæta vel. Enda kvað
ræðumaður það ávalt vera sína
mestu unun a'ð vera í hópi
alþýöumanna og mæla fyrir
minni þeirra, sem unniö hefðu
sitt dagsverk með dygð og trú-
mensku eins og þessi hjón hefðu
sannarlega gjört. Afhenti hánn aS
síðustu brúðhjónunum peningagjöf
á silfurdiski, sem átti aS sýna viS-
eigandi hlýhug þeirra vina, sem
þarna voru samankomnir; en jafn-
skjótt og presturinn hafði lokið
máli sínu, kom Miss Halldórson
(kennari J. B. skólaj inn í sam-
kvæmissalinn meS afarstórann og
fagran blómvönd, sem hún afhenti
Mrs. SigurSsson fyrir hönd kennar-
anna á Jóns Bjarnasonar skóla.
Þar næst skemti Mrs. B. H.
Olson með söng og þarf ekki að
lýsa hvemig henni tókst að skemta
fólkinu. Ennfremur skemtu kenn-
arar skólans, Miss Halldórson meS
hljóSfæraslætti og Miss Geir meS
því aS segja skoplega sögu.
Þá talaSi Dr. B. B. Jónsson, lýsti
hann mjög ítarlega skyldurækni og
trúmensku silfurbrúðgumans, því
hann gleymdi aldrei stund né stað,
þar sem köllun hans er, og væri þvi
sérstök fyrirmynd í þvi efni.
Frú B. B.. Jónsson talaSi nokkur
mjög hlýleg orð til hjónanna, eins
og fyrir hönd kvenfélags Fyrsta lút.
safnaðar. Ennfremur flutti Mr.
Gunnl. Jóhannsson heiðursgestun-
um kveSu sína og Goodtemplara
stúknanna, því einnig þar er Mr.
Sigurðsson starfandi.
Einnig töluSu nokkrir af skóla-
ráSsmönnum: Mr. S. W., Melsted,
Mr. Sigurbj. Sigurjónsson og Mr.
A. S. Bardal og var það einróma
þakklæti frá þeim öllum, fyrir
hversu vel að Mr. og Mrs. SigurSs-
son (og þá ekki síÖur hún en hann)
hefðu unniÖ sitt verk meS trú-
mensku og móðurlegri umhyggju
sinni aS velferS skólans og ung-
mennanna sem þar stunda nám.
Loks talaSi silfurbrúðguminn og
þakkaSi fyrir samsætið og velvild-
ina, ,sem sér og konunni sinni væri
sýnd. Tók hann sér í munn orð
Gunnars á HlíSarenda, þá hann
forðum sagði við fornvin sinn:
“GóSar þykir mér gjafir þínar
Njáll, en meira "þykir mér vert um
viriáttu þina og sona þinna.”
SamsætiS mun hafa setið hátt
upp í hundraS manns, fór það
fram ágætlega, Veitingar voru eink-
ar vel á borS bornar og voru með-
teknar samtimis ræSunum og öðr-
um skemtunum.
Að endingu var silfur-brúðhjón-
unum árnaS til hamingju og bless-
unar, ásamt börnunum þeirra, sem
nú eru öll uppkomin og mannvæn-
leg, .— og að þau einnig megi eiga
bjarta 0g farsæla framtíS fyrir
hendi, og umfram a!t vera sínum
aldurhnignu og silfurhærðu foreldr-
um til stuSnings og sannrar gleði á
síSasta áfanganum.
Einn—af—gestunum.
THE EATON
SPECIFIED SUIT
Vér lítum svo á^ að þetta sé hið eftirtektaverðasta
nokkurs staðar er að finna í Canada. Verðið er
fataverð, sem
“Specified Suit’ vor eru Eaton gerð. Hvað eina
ákveðið af oss. Engu má breyta frá því. Hér er
er sérstaklega vel gerður og úr ágætis efni.
37 ófrávíkjamlegum reglum er fylgt við að búa
... til hvern sérstakan fatnað.
Og hver fatanður verður að vera gerður nákvæmlega eftir þeim
reglum. Hér eru fáeinar þeirra taldar:
Alt efni, svo sem Canvas og Hair-
Vvloth og því um líkt, er vandlega
hleypt og til þess notaSur vatnskald-
ur lögur.
Alt er pressaS vel og vandlega, svo
sem horn öll, boSungar og ermar.
Frá öllu fóSri er vandlega gengið,
og þaS lagt meS höndunum.
Kragarnir eru gerSir i höndunum
og vel saumaSir ofan og neSan.
Canvas er vandlega þrætt á meS
góSum þræSi og alt gert í höndunum.
Mjög vel gengiS frá öllum hnappa-
götum. Vax boriS á þráSinn, sem
hnapparnir eru festir meS.
Allir saumar eru gerSir meS silki-
tvinna og vel pressaSir.
AS eins Irish Lineá Canvas er not-
aS fyrir horn og boöunga.
Allur framhlutinn af 'treyjunni er
vel pressaður áöur en hún er saumuö
saman og svo treyjan öll þegar geng-
iS er frá henni.
Þessi “Specified iSuit” eru nú til sýnis í karlmanna fata-
deildinni. Hér er fatnaður, sem þér getið reitt yður á að þér
verðið ánægður með, bæði hvað snertir efni og allan frágang, og
endingu, og það með verði, sem jafnvel tekur fram því bezta, sem
Eaton hefir haft að bjóða.
Karlmanna fatadeildin. Á fyrsta gólfi. Hargrave Stræti.
T. EATON C
LIMITED
Silfurbrúðkaupsveizla
í Riverton.
Sunnudaginn 4. júlí síðastl. voru
Mr. og Mrs. Jón S. Pálsson og
kona hans Kristín Björnsdóttir,
sem búa eina og hálfa mílu vestan
við Riverton þorpið, búin að vera
í hjónabandi 25 ár. Eftir tízk-
unni var viðeigandi að halda silf-
urbrúðkaup, og gengust aðallega
fyrir að hrinda því á stað systur
Jóns, þær Guðrún, kona Jóhanns
Briem, og Elín kona Valdimars
Hálfdánarsonar, sem báðar eiga
heima skamt frá Riverton, ásamt
bornum hinnar fyrnefndu, sem
öll eru uppkomin. Nánir ættingj-
ar Mrs. Jón Pálson eiga engir
heimili þar í grendinni. Tveir
bræður hennar voru norður á
Winnipeg vatni við veiðar, hitt
annað náið ættfólk Mrs. Pálsson
á heima í Framnes og Víðir bygð-
um, en sem fyrir nýafstaðið
steypiregn gat ekki komið á stað-
inn, þar sem samsætið var haldið,
sem var í samkomuhúsi Riverton
þorpsins. Byrjaði það ekki fyr en
á sjötta tímanum e.h. sökum þess,
að prestur þeirra hjóna og að-
standendur þeirra, var enn ókom-
inn, og um sáma leyti kom í gegn
um síma orðsending frá prestin-
um, sem er séra Jóhann Bjarna-
son, að hann gæti ekki komið veg-
arins vegna. — Var þá brugðið við
að fá samsætisstjóra, og varð fyr-
ir því vali Guttormur J. Guttorms-
son skáld, sem leysti það hlutverk
rösklega og myndarlega af hendi.
'Samsætið byrjaði með viðeig-
andi sálmasöng og bæn. Sex ræðu-
menn töluðu og voru íslenzkir
uppáhaldssöngvar sungnir a milli
ræðanna. Ræðumenn voru þessir:
Capt. Sigtr. Jónasson, dr. S. O.
Thompson, Sigvaldi Sigurðsson,
Gísli Einarsson, Thorvaldur Thor-
arinsson og Tímóteus Böðvarsson
og öllum þótti þeim segjast vel.
Meðan á ræðuhöldunum og söngn-
um stóð, var drukkið kaffi og etið
brauð og annað sælgæti, sem fram
var borið af rausn og með þeim
myndarbrag, sem kvenþjóðin vest-
ur-íslenzka er orðin svo kunnug
og jafnvel fræg fyrir. 'Samsætis-
stjóri G. J. G. flutti ljóð, sem þvi
miður eru ekki fyrir hendi. Þá
afhenti hann og silfurbrúðhjón-l
unum silfurdisk, er hann sagði aðj
væri frá Systrum silfurbrúðgum-
ans, en að silfurpeningar þeir,
sem í diskinum væru, væru frá
samsætisgestunum og vinum þeirra
Mr. og Mrs. Pálsson. — Þá flutti
silfurbrúðguminn, Jón Pálsson,
stutt en einkar lipurt erindi, sem
endaði með þessari vísu:
“Hafið þökk fyrir gleðina, gjöf-
ina og sjóðinn,
þann góðvinafagnað þið veittuð
oss hér;
hafið þökk fyrir ræðurnar, list-
fengu Ijóðin,
Ijúft þess að minnast ávalt skal
mér.”-
Hafði þá samsætið staðið yfir í
fulla þrjá tíma. Lét þá forseti
syngja “Eldgamla ísafold” og
“God Save the King.”
Sagði hann því næst samsætinu
slitið og virtust allir skilja ánægð-
ir yfir því hvað alt fór vel fram.
Þau Mr. og Mrs. Pálsson njóta
almennrar virðingar í bygð og ná-
grenni, sökum góðrar framkomu,
bæði í Bræðrasöfnuði og í bygðar-
málum í heild sinni. Ber og sam-
sætið vott um hlýhug 0g sæmd, er
vinir og bygðarfólk yfir höfuð
hafa að verðugu viljað sýna þeim
hjónum. —Fréttar. Lögb.
sem döguðu uppi þegar þingið var
rofið, var frumvarp það, sem
kent er við Campbell og sem er
viðauki við kornsölulögin í Can-
ada. Efni þessa frumvarps er, að
veita bændum rétt til að kjósa
sjálfir til hvaða hafnar hveiti
þeirra sé flutt. Þenna rétt hefir
bóndinn haft síðan 1900, en var
tekinn af honum í fyrra með lög-
um, er þá voru samþykt. Þetta
Campbells frumvarp mætti ekki
móhstöðu í neðri málstofunni, en
hafði þar fylgi allra flokka. Það
fór svo til efri málstofunnar og
var lagt þar fram af Senator Wil-
laughby frá Moose Jaw. Frum-
varpinu var vísað til nefndar, sem
hafði bankamál 0g viðskiftamál
til meðferðar. Nefndin hefir eina
tíu fundi og kallaði fyrir sig,
meðal annara, meðlimi hveiti-
r.efndarinnar. Mr. G. H. Burnell,
fcrseti hveitisamlagsins í Manito-
ba, skýrði málið frá sjónarmiði
bændanna, og einnig T. J. Mur-
ray, K.C., en fyrir hönd hveiti-
kaupmanna mættu Dr. Magill og
I. Pitblado K.C.
Fulltrúar hveitisamlagsins sýndu
ljóslega fram á nauðsyn málsins
og nefndin vísaði málinu aftur til
þingdeildarinnar. Efri málstofan
tók svo málið fyrir og þegar þing
var rofið, höfðu verið gerðar við
það þrjár viðauka tillögur:
1. Að frumvarpið skyldi hljóta
lagagildi í eitt ár samkvæmt
stjórnarákvæði.
2. Að grein sé bætt við frum-
varpið, er veiti hveitisamlögum
rétt til að kaupa kornhlöður hvar
sem er í sveitum landsins og verð-
ið sé ákveðið af gerðardómi.
3. Að gömul grein kornlaganna
frá 1912 sé tekin inn í lögin, og
dómstólunum falift að skýra hana.
Hvernig farið hefði um frum-
varp þetta að lokum, ef þing hefði
ekki verið rofið, er ekki hægt að
segja.
En meðferð þessa laga frum-
varps hefir vakið bændurna í
Austur-Canada til að hugsa alvar-
lega um þetta mál, og hefir vænt-
anlega þær afleiðingar, að bænd-
urnir í Ontario mynda sitt hveiti-
samlag, enda eru helztu menn
þeirra mjög hlyntir því.
Lesendum er boðið að leggja
fram spurningar viðvíkjandi
hveitisamlaginu, og Verður þeim
svarað í þessu blaði.
Hveitisamlagið.
Campbells frumvarpið.
Eitt af lagafrumvörpum þeim,
Dr. Valtýr Guðmundsson segir
álit sitt um “Sögu”.
Eftirfarandi bréfkafli til Þ. Þ.
Þorsteinssonar, er hér birtur með
leyfi höf., dr. Valtýs GuSmundsson-
ar, háskólakennara i Kaupmanna-
höfn og fyrrum ritstjóra “EimreiS
arinnar.”
“Eg hefi lesið 2. hefti af “Sögu”
yðar með mikilli ánægju. Það, er
engu síður en það fyrsta, bæði
skemtilegt og alþýðlegt, og óvana-
lega gott mál. Og prófarkir auðsjá-
anlega mjög vandlega lesnar. Því
þó einstöku prentvillur finnist, þá
eru þær.svo fáar, að furðu gegnir.
Og efnið er alt gott, ekkert alveg
ónýtt. Sögurnar eru góðar, t. d. er í
“Hjálp í viðlögum” sérlega vel
dregnar myndir. Og það sem mér
þykir bezt við sögur yðar og efnis-
valið yfirleitt, er þaö, að þar cr ekki
verið aö fimbulfamba út i loftið,
bara til að skemta heldur um leið
aS kenna, læða óbeinlinis inn holl-
CAPITOL
MIÐSUMARS
0 T S A L A
Fjölbreyttar birgðir af skófatnaði
kvenna úr hvítu kid, patent, suede
dökt kid, kálfskinni. Miðs.sala
#############################################################
Frá 10%“25% afsláttur gefinn
á öllum hinum verðhaerri skótegundum
á útsölu þessari.
í Shuteria deild vorri
Þúsund pör af kvenskóm úr hvítu
kid, patent, satin, suede.dökku kid,
og kálfskinni, á Miðsumarssölunni
#############################################################
Capitol Boot Shop Ltd.
301 Portage Ave.
um kenningum fyrir lífið, svo
menn geri tvent í einu: “aö gleðja
og &aRna- Þann skáldskapinn álít
eg mest virði, sem hefir eitthvert
takmark. En auðvitað þarf list aö
vera með í leiknum til að ná tak-
markinu. —- En “listin fyrir listina,”
er ótæti. Þeir sem eru aðeins að
skrifa og yrkja fyrir sjálfa sig, eiga
ekkert erindi til annara, og ættu
aldrei aö láta neitt á 'prent út ganga.
“íslenzkir bústólpar,” eru snildar-
kvæði, bæði vel kveðin og lýsing-
amar ágætar. Mér þótti mikið til
þeirra kvæöa koma, og þau eru
ramíslenzk.
“Saga er ekki aðeins skemtirit,
heldur og holt uppeldisrit, og þó
list og smeklóvísi í meöferðinni. Ef
yður tekst að halda svona áfram,
getiö þér unniö mikið gagn meö
bókinni.”
• • •
Fyrra hefti annars árgangs miss-
irisritsins “Sögu” (vor og sumar
bókinj, er nú í prentun og veröur
sent til áskrifenda í lok ágústmán-
aöar. Eru það vinsamleg tilmæli út-
gefandans til hinna ýmsu lestrarfé-
laga í bygðum Islendinga og bæj-
um aö þau settu “Sögu” ekki í um-
ferð meðal félaga sinna, fyrri en
ár væri liðiö frá útkomu hvers ár-
gangs. Með þvi eina móti myndu
þau ekki spilla mikiö fyrir áskrift-
um og sölu hennar. En ef hvert
hefti er strax látiö ganga manna á
milli, þegar það kemur út, ^ður en
áskriftum befir verið safnaö, er
auðsikiliö að í jafrl-fámennum hóp
og íslendingar eru vestan hafs verði
kaupendur fáir, einkum þar sem aö
líkum ræöur, aö í félögunum séu
þeir menn og konur, sem einna
mest sinna íslenzkum lestri. En eitt
einasta eintak álitið nægilegt fyrir
heilar og hálfa sveitir og bæi.
Lestrarfélögin eru ein af heilla-
drýgstu og gagnlegustu félagsstofn-
unuin vestan hafs. Þaö er því gagn-
stætt ætlunarverki þeirra og af mis-
skilningi sprottið, ef þau verða
Þrándur í Götu og jafnvel banabiti
islenskrar bókaútgáfu í Vestur-
heimi.
Alveg óviðjafnanlegur
drykkur
Sökum þess Kve efni og útbúnaður er
(fuilkominn.
Kievel Brewing Co. Limited
St. Roniface
Pbones: N11T8
N1179