Lögberg - 11.11.1926, Side 1

Lögberg - 11.11.1926, Side 1
PROVINcE TAKiö ðAKuEN t ilRŒTIS VaGN AÐ DYROMJM ÞESSA VIKU “The Flame of the Yukon’, ‘The Flame" hændi menn að sér og dansaði sig inn í hjortu þeirra. DDnVIWrr TAKIÐ SARGENT STRÆTIS riVUVinvEi VAGN AÐ DYRUNUM NÆSTU VIKU Ken Mayward og Kathleen Collins í “THE UNKNOWN CAVALIER” Hrífur mann meir en nokkur Circus 39. ARGANGUR || I Helztu heims-fréttir Canada> Mr. A. F. Kirkpatrick, forseti Empire Klúbbsiní; í Toronto, var nýlega staddur hér í borginni og flutti ræiSu. Hélt hann því meíSal annars; fram aS sökum sinnar norð- lægu hnattstöSu Canada, hlyti hér a« skapast með tiS og tíma, ein af harðsnúnustu og hraustustu þjóC- um heimsins. Saga HÖinna alda héfbi hvaÖ ofan í annað sannaö að þjóÖir hinna norölægu landa, hefÖu allla jafna verið betur gefnar til sál- ar og líkama, en þær suðrænu og myndi sú enn veröa reyndin á í framtíðinni. Mjög kvaÖst . Mr. Kirkpatrick harma þaö, hve margt ungra manna flytti árlega héban úr landi suÖur yíir landamærin og taldi þa« mestmegnis stafa af því, hve tilfinnanlega lítiÖ canadiskir skólar stuðluÖu að því, að glfeeöa þjóðræknismebvitundina í sálum nemenda sinna. Fylkisstjórnin i Saskatchewan kvað hafa ákveðið að láta fram fara á næstunni rækilegar land- mælingar um fylkið þvert og endi- langt, með það fyrir augum, að gera fólki auðveldara með að hag- nýta sér hina miklu málmauðlegö þess, einkum í hinum norðlægari héruðum. • > • Framkvæmdamefnd safnaðar hinnar Sameinuðu kirkju, í bænum \Moodstock í Ontario fylki, hefir í einu hljóði stranglega mótmælt af- stöðu Fergusonsstjórnarinnar til bindindismálsins við kosningarnar, sem fyrirskipaðar hafa v'erið þann x. desember næstkomandi og telur stjórnina hafa brotið i bága við skýlaus loforð sín og yfirlýstan vilja kjósenda í síðustu fylkiskosn- ingum. • * * * TaHa útfluttra bifreiða frá Can- ada, hefir aukist til mikilla muna á siðastliðnum tólf mánuðum. Hafa bifreiðir héðan verið fluttar út til sextíu ríkja, þar á meðal til Argen- tínu, Traq, Mexico og íslands. Nam peningagildi þessarar fram- leiðslutegundar $40,706,949. Á þeim tólf mánuðum, er enduðu 30. september, 1925, nam verðgildi út- fluttra bíla héSan úr landi, $33,814,- 829. • * • Elzbi kona í borginni Quebec heitir Mrs. James Cochrane og'hef- ir hún nú rétt nýlega haldið sinn hundraðast og þriðja afmælisdag. Hún man eftir ýmsu, sem fyrir kom fyrir nærri þvi hundrað árum. * * • Miss Verlie Jackson skólakenn- ari í Lindsay, Ontario, hefir verið svift stöðu sinni af hlutaðeigandi skólaráði, vegna þess að/sannast hafði að hún hafði reykt á jám- brautarlest, þar sem hún og margt annað fólk var á skemtiferð. • * • “Eplin, sem við ræktum í Canada eru að þvi leyti svipuð dætrum þjóðar vorrar, að þau taka öllu öðru fram,” sagði J. E. Carson ak- uryrkjumála ráðherra í Quebec, í ræðu sem hann hélt nýlega á á- vaxtasýningu, sem haldin var þar í fylkinu. * * * Maður nokkur. sem Harris heit- ir og vanalega er kallaður “Eski- móa Harris” vegna þess að hann er veiðimaður og er altaf norður í ó- bygðum og er mikill viriur Eskimó- anna, sem þar hafast við. Segir hann sjálfur frá því, að fyrir skömmu hafi hann verið staddur fyrir norðan Fort Churchill og hafh hann sofið þar i bát sínum, en vaknað við það, að isbjöm stóð yfir honum og var að klóra í rúm- fötin hans. “Eg settist upp.” segir Harris “og seildist eftir byssunni minni og á meðan klóraði bjöminn mig dálítið á enninu, en eg hélt honum frá mér með hlaupinu með- an eg lét skotið i bvssuna. Síðan skaut eg í hausinn á honum, svo heilinn Iá úti. Þetta held eg að sé merkilegasta æfintýrið sem eg hefi enn lifað.” » • t október mánuði síðastliðnum. nam sektafé það, er lögregluréttur- inn i Winnipeg tók á móti $13,145. Þar af gengur til fyfkisins $9,580.50 en til bæjarins $3564.50. Á margan hátt hafa Winnipeg-búar orðið eitthvað litilsháttar sekir við lögin, eða einhverjar reglugerðir, en að- allega eru það bílar og brennivín, sem sektunum válda, eðh réttara sagt, hvernig með þessa hluti er farið. * * * Ráðherrar King-stjórnarinnar hafa nú allir verið endurkosnir gagnsóknarlaust. Bandaríkin. Stanley Bruce stjórnarformaður i Ástralíu hefir stungið upp á því að breskir stjórnarformenn haldi fund í Ottawa þegar hentugur tími vinst til og að farið sé fram á það við senatora Bandaríkjanna, að þeir sendi þangað nefnd manna úr sínum hóp. Frétt frá Washíngton segir að Coolidge forseti taki ekki vel i þetta mál. Segist hann ekki bú- ast við að senatorarnir kæri sig um að takast þá ferð á hendur, eða að slíkur fundur mundi hafa nokkra verulega þýðingu fyrir friðarmálin. ! • ------------------- | Fréttir frá Boston, Mass. segja að varðbátar stjómarinnar þar við ströndina, hafi verið notaðir til þess að filytja vínföng úr skipum þeim er þau fluttu eins nærri ströndinni, eins og þau þorðu að fara. En það er sérstaklega skykla varðbátanna að gæta þess að vín sé ekki flutt inn í landið sjóleiðis, eða tollskyldar vörur. Hafa því þeir, sem fyrir bátunum ráða brugðist skyldum sínum nokkurn veginn eins greinilega og hægt er,-ef fréttirnar eru sannar. Þetta virðist vera tölu- vert góð tekjulind fyrir þá sem vinna á bátum þessuni, því þetta er vel borgað, eða einn dollar fyrir hvern kassa af vínflöskum, sem þessir starfsmenn stjórnarinnar hjálpa til að taka úr skipunum og koma fyrir i hraðskreiðum bátum, sem flytja svo vínföngin þangað sem þeim er ætlað að fara. Er nú verið að grafast fyrir sannleikann í þessu máli. Bretland. George prins, yngsti sonur Breta- konungs er nú á leið frá Kína heim til London. Á þeirri leið ferðast hann þvert yfir Canada. * * * Ýmsar 'fréttir hafa borist af þingi því, er stjórnarformenn frá öllum brezkum löndum eru nú að Jaalda í London á Englandi. En flestar eru fréttirnar þannig enn sem komið er, að mjög erfitt er að átta sig á því hvað eiginlega hefir gerst, eða að l^aða niðurstöðu stjórnmálamennirnir hafa komist í þessu málinu eða hinu, af þeim setn fyrir hafa komið. En svo segir Baldwin forsætisráðherra á Eng- landi að aldrei hafi á slikum þing- um áður, verið eins gott samkomu- lag, eða samræmi í skoðunum og vilja stjórnmálamanna, sem þingin hafa sótt. Þetta þing hafi verið hið ánægjulegasta og af því muni mikið gott feiða fyrir breska ríkið og hina ýmsu hluta þess. Reist hafa verið á Skotlandi í sumar 43,886 íbúðarhús, með fjár- stuðningi úr ríkissjóði. , * * * Kvenréttindafélögin á írlandi hafa sent áskorun til samveldis- stefnunnar í Lundúnum þess efni's, að hlutast verði til um það, að írskar kqnur, er giftast útlendum mönnqm,. fái notið fæðingarréttar sins eftir sem áður. Er i því sam- 'bandi á það Ixent, að ekkja nokkur irsk, eftir italskan mann, búsett á frlandi, hafi orðið að fara á mis við ellistyrk, sökum þess að hún hafi verið talin til (sama þjóðernis og maður hennar. Þann 5. apríl næstkomandi, verða liðin 100 ár frá fæðingu brezka læknisins heimsfrægá, lá- varðar Lister. Hefir nú verið á- kveðið, að halda afmæli hans hátíð- legt í Glasgow og ef til vill fleiri borgum brezkum. WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 11. NÓVEMBER 1926 / NÚMER 45 Kona nokkur írsk, búsett í Dun- more héraðinu, erfði nýlega fjöru- tíu og þrjú þúsund sterlingspund eftir frænda sinn einn, er til Ástra- liu flutti fyrir fimtíu árum og nældi saman fúlgu þessari á búskap Hvaðanœfa. Leopold, koqungsefni Belgíu- manna og Ástríður prinsessa í Svía- ríki giftu sig í Stokkhólmi á fimtu- daginn í vikunni sem leið. Var þar stórmenni margt samankomið, f jórir kónungar og tvær drotningar. auk annara minniháttar höfðingja. Giftingin var borgarleg og fram- kvæmd af borgarstjóranum í ‘Stokkhólmi, en önnur kirkjuleg hjónavigsla fór fram i Brussel nokkrum dögum seinna. Brúðgum- inn er kaþólskur en brúðurin lút- ersk og hailda þau hvert um sig við sin trúarbrögð framvegis, þó þau séu hjón. en þó er prinsessunni heimilt að vera kaþólsk ef henni svo sýnist. Einu sinni fréttist, að þessi fagra mær mundi verða drotningarefni Bréta, en nú er út- séð um það. • * • r • Margir jarðfrsfeðingar halda að Norður-Ameríka sé smátt og smátt að sökkva í sæ, og rnuni hér um bil fjórða hluta úr þumlungi á ári, eða alt að þvi. Hafa nú sérfræðingar tekið til að rannsaka þetta og gert ráð fyrir að sú rannsókn standi yfir í ein 25 ár, svo maður má ekki gera sér vonir um að fá að vita vissu sina í þessu nú fyrst um sinn Douglas W. Johnson, prófessor við Columbia háskólann segir að þeir, sem fást við þessa rannsókn hafi hugsað sér hvemig þeir ætli að því að komast eftir þessu og á nú að athuga þetta nákvæmlega bæði á austur- og vesturströnd álfunnar. * • * Jarðskjálftarnir í Armeníu hafa haldið áfram og enn valdið miklu tjóni. Fréítirnar þaðan segja að fimtán hundruð manna, eða nálega það, muni hafa látið lifið og einir þrjátiu og fjórir bæir og þorp orð- ið fyrir miklum skemdum. Eigna- tjón ákaflega mikið. Or bœnum. S. G. Johnson eigandi Drexel Hotel Cor. 3rd and James St. Seattle, W|ash. er glaður að taka á móti og leiðbeina löndum sínum. Hrein og björt herbergi /Steam heatj mjög sanngjarnir prisar. Séra Valdimar J. Eylands kom til borgarinnar í vikunni, sem leið norðan frá Siglunesi P.O. við Manitoba-vatn, þar sem hann gegndi prestverkum síðastliðinn mánuð. Hann var á ;leið til Upham, N. D. þar sem hann á heima og þjónar Melankton söfnuði. Landar góðir! Styðjið Stúdenta- garðsmálið með því að rita nöfn yðar í Selskinnu, sem nú liggur frammi á skrifstofu Lögbergs. Bér er um nytsemdarmál mikið að ræða, sem óskandi er að sem allra flestir vildu ljá lið. Skip Scandinavian—American línunnajf, “Oscar II.” sigldi frá Oslo 30. oktöber og kom til Hali- fax 8. nóvember nteð 115 farþegja til Canada. Skipið fer frá New York 18. þ. m. til Christiansand, Oslo og Kaupmannahafnar. v Goodtemplarar eru nú að efna til íslenskra sjónlei.kja fyrir kont- andi vétur. Hafa fengið Mr. Ólaf Eggertsson til að standa fyrir ’því að æfa leikendur og velja leiki. Goodtemplarafélagsskapurinn hefir alt af verið einn öflugasti þáttur ís- lenzks félagslífs í bænum. Þegar þeir fyrir rúmum tuttugu árum réð- ust i að byggja stórt samkömuhús þotti mörgum í mikið ráðist, en það bætti úr bnmni þörf, og er enn eini almenni samkomustaður, sem fs- lendingar eiga hér fyrir utan kirkj- urnar. Á þes9ti ári hafa verið gerð- ar breytingar og umbætur á hús- inu, sem kostað hafa ærið fé. Og mun ágóði, ef einhver verður af þessum siónleikjum eiga að ganga til að greiða þann kostnað. Er von- andi að þetta fyrirtæki hepnist vel. Mr. Ólafur Eggertsson er svo vel þektur bæði meðal íslendinga og lllllMllllllllíllllMlíilllllllllW Heilrœði Brynhildar til SIGURÍ>S FAFNISBANA. (Sjá Völsunga saga, einkum 21. kap.) Heilræðum ef hlítir mínum Hjálparrúnir þér eg sel: Fyrirgef oft frændum þínum, Frændsemina ræktu vel. Óvitrir, með1 æðishótum, Orðasennur girnast mest. Ver þeim lítt á mannamótum Mishugi, — gef slíkum frest. • Ef að náttstað þarftu þiggja, Þjpðbraut manna stefndu frá; Oft þar vættir vondar byggja, Varúðar skal gæta þá. Hygg sem bezt að hegðan þinni, Hugarekka á ginxda veig. Oft er flagð í fögru skinni, Fljóðin ei með kossum teyg. Girnst ei fláar, fagrar konur, Fiekar einatt veizludrótt; Þar fann margur manna sonur Meinum blandna vökunótt. Þótt að heimskra höfuð óra Heyrir, — ger þeim engin skil. Deil ei þar sem druknir þjóra, Dró það margan heljar til. Hetjur sízt af hólmi renna, — Hugprýðinnar skyldur ræk; Engan lát þig inni brena, Óvin heldur vopnum sæk. Sver ei rangt að liörg né hofi, \ Haltu jafnan svarinn eið. — Grimm er hefnd við griðarofi.— Goðin sjálf því munu reið. Ulfur mun í ungum syni Ættmenn nána’ ef hönd þín vó. Einkum þína eigin vini [Ættirðu að varast þó. Vöit er trú á mátt og megin, Mansöngva og Rínarbál. — Nem þú vel, unz rjúfast regin, Rúna minna kærleiksmál. — Ást sú yarð að ofurharmi, Eiðrof, hatur Sigurð vó. — Blóðtár stukku af björtum hvarmi, — Brynliildur sig einnig sló. Vizka, fegurð, virða, kvenna, Verður stundum heiftarbál. — Heilræðin er hægt að kenna, Að halda þau — er annað mál. Jónas A. Sigwrðsson. IIIIIIIIIMllllllllllMM hérlendra manna, aö meö honum þarf ekki að mæla. Undir hans urn- sjón verða leikirnir vafalaust vel valdir og meðferö jjeirra eins góð og kringumstæSur framast leyfa. Veglegt heiðurssamsæti. Síðastliðið föstudagskveld komu saman í Fyrstu lútersku kirkjunni um 70 manns í þeim tilgangi að sýna heiður nýgiftu hjónunum, Mr. Paul Bardal, söngvaranum góðjkunna og frú Oddnýju. Það var söngflokkur safnaðarins, er fvrir mannfagnaðinum stóð. Org- anleikari safnaðariná, próf. S. K. Hall stýrði samkomunni og árn- aði ungu hjónunum heilla í nafni söngflokkanna beggja, um leið og hann fyrir hönd viðstaddra vina og samverkamanna afhenti þeim afar vandaðan hægindastól, með skrautlega útskornu baki. Dr. B. B. Jónsson, prestur safn- aðarins mælti fyrir minni heið- ursgestanna og lét í ljósi aðdáun sína yfir hinu mikla og veglega starfi Mr. Bardals í þá átt að íegra og efla v safnaðarsönginn í öll þau mörgu ár, er hann hefði starfað í söngflokjc hins Fyrsta lúterska safnaðar. Mr. Bardal hefir verið sóló- söngvari kirkjunnar um tólf ára skeið og söngstjóri síðastliðin fjögur ár og látið hvorttveggja meistaralega vel. Mr. Bardal þakk- aði gjöfina og vináttumerkin og taldi það sem áunnist hefði, að því er bættan söng í kirkjunni á- hrærði, stafa af því hve innileg samvinna hefði alt af ríkt innan vébanda söngflokksins. Hvatti hí.nn jafnframt meðlimi til enn meiri áhuga í starfinu á komandi árum. Mrs. S. K. Hall skemti með söng og hreif huga áheyrendanna að vanda. Eimreiðin Þriðja hefti, þrítugasta og ann- ars árgangs, er rétt nýkomiö og er innihald þess það sem hér segir: Stjórnmálastefnur III. Jafnaðar- stefnan eftir Ólaf Friðriksson. Einar Benediktsson: Alhygð /ritgerð). Sveinn Sigurðsson: Ný-íslenzk myndalist — Ríkarður Jónsson — (með 9 myndumj. Guömundur Finnbogason: Nám og starf. Jón Kr. Jóhannesson: Sonnetta. Guðmundur Einarsson frá Mið- dal: Háborgin (með 3 myndumj. Ólína Andrésdóttir: Áttaviltir fuglar /Hannes stutti). Sigurður Helgason: Urðardóm- ur (saga). Fundabók Fjölnisfélags, með skýringum eftir Matthíás Þórðar- son. Fr. G. og Sv. S.: Ritsjá. éSkýrt frá ýmsum bókum innlendum og útlendum, en sem þó allar snerta ísland, eða jxað sem íslenzkt er, að einhverju leytij. A. B. Olson er útsölumaður Eimreiðarinnar. Þftkklœtishátíðar-samkoman. Samkoma sú, sem Kvenfélag Fyrsta lúterska safnaðar í Winni- peg hélt í kirkju safnaðarins á þakklætishátíðinni (8. nóv.J var afar f jölsótt. Skemtiskráin var aug- lýst í síðasta blaði og fór hú'n fram eins og til stóð, að öðru en því, að Mrs. ísfdld gat því miður ekki komið vegna þess að hún var lasin. Prófessor F. W. Kerr flutti fróðlegt og skemtilegt erindi um Alþjóðabandalagrð. Hefiir bann sjálfur verið í Geneva um tíma og 'kynt sér vandlega hið mikla verk, sem Alþjóðabandalagið er að vinna Prófessor Kerr er mikill ræðu- rnaður og þykir mjög mikið til hans koma. Alt annað sem fram fór var hljómlistinni viðkomandi og flest fólkið, sem hér kom fram er svo vel þekt vor á meðal, að allir vita, að það leysir æfinlega hlutverk sin prýðisvel af hendi. Það brást held- ur ekki í jxetta sinn. Þó söng einn maður á samkomu jxessari, sem ekki mun áður hafa sungið á opin- berum samkomum í Winnipeg. Það var Mr. Árni Stefánsson. Hefir hann stundað söngnám í nokkur ár á ítaliu. Síðan hann kom heim hefir hann .verið óhraustur til heilsu, og því ekki getað stundað list sína • en nú er hann að ná sér aftur og er vonandi að Winnipeg- búar og aðrir eigi eftir að njóta inargra ánægjustunda af því að hlusta á Mr. Stefánsson syngja Hér skal ekki mikið út i það farið að dæma um söng hans, en það dylst engum, sem á hann hlusta, að hér er söngmaður. Röddin er sterk og hrein og þýð og svo vel æfð. að hann hefir fullkomið \ald á því, sem hann fer með. Þegar skemtiskráin var á enda fóru allir ofan í samkomusalinn og nutu þar ágætrar máltiðar, sem kvenfólkið framreiddi. Þó gátu ekki allir setið til borðs í einu og varð það vitanlega til töluverðrar tafar. en ekki óártægju, því allir fóru heim glaðir og ánægðir. Kveðjusamsæti. Á miðvikudagskveldið í vikunni sem leið var þeim mæðgum, Mrs. Christiönu Anderson og móður hennar, haldið ánægjulegt kveðju- samsæti að heimili jteirra Mr. og Mrs. Björn Hallson, 638 Alver- stone Street hér í borginni. Var til- efni samsætisins það, að þær mæðg- ur voru í þann veginn að leggja af stað til Vancouver, þar sem fram- tiðar heimili þeirra verður. Mr. Bergjjór E. Johrtson hafði orð fyr- ir gestum og afhenti Mrs. Ander- son í lok tölu sinnar, vandaða ferðatösku, en móður hennar, Mrs. Thorsteinsson, skrautlegt sjal, frá viðstöddum vandamönnum og vin- um. Mrs. Anderson þakkaði gjaf- irnar og vináttumerkin með nokkr- um velvöldum orðum. Auk J>ess sagði Einar P. Jónsson nokkur orð, fyrir hönd Mrs. Thorsteinsson. Með söng og hljóðfæraslætti skemtu þau próf. S. K. Hall og frú hans. Rausnarlegar veitingar voru og framreiddar, er gestir gerðu hin beztu skil. Samkvæmið fór að öllu leyti vel fram og var hið ánægju- legasta í hvívetna. Heiðursgestirnir lögðu af stað vestur að hafi á sunnudagskveldið. Fylgja þeim hugheilar árnaðaróskir frænda og vina. Einkennileg erfðaskrá. Charles Vance Miller, hét lög- maður einn í Toronto, Ont.. sem nú er nýlátinn. Hann var ókvæntur og^ barnlaus, en efnaður vel. Það Iitur út fyrir að han hafi verið tölu- vert einkennilegur náungi, farið sinna ferða. enda átt marga mót- stöðumenn, sérstakáega presta og bindindismenn og þá sem börðust á móti því að hestaveðreiðar væru leyfðar. Erfðaskrá hefir hann eft- irskilið, sem er einkennileg, því þar er helstu mótstöðumönnum hans ætlaður mestur hluti f járins. Halda vinir hans að erfðaskráin, sem er frá árinu 1921, hafi í fyrstunni verið gerð meira í gamni en alvöru, en ef önnur erfðaskrá finst ekki, þá verður Jæssi að gilda. Mr. Miiller átti hlutabréf í félagi, sem býr til öl og vín, sem er $750,- 000 virði. Þessi hlutabréf gefur hann sjö Methodista-prestum í Ont- ario. Skilyrðin eru ]>au að prestarn- ir verði að þiggja árlegan arð af hlutum }>essum og greiða atkvæði á hluthafafundum félagsins. Við þetta hefir Miller gert þá athuga- semd að J»etta sé gert til að sjá hvort ágirndin yrði ekki yfirsterk- ari áhuganum fyrir málefninu. Þá eru $25.000 virði af hluta- bréfum, sem þessi maður átti í fé- lagi sem á veðreiðahesta og gengst fyrir veðreiðum. Þetta fé ánafnar hann W. E. Raney, fyrverandi dómsmálaráðherra i Ontario, Rev. Ben Spence, sem er ákveðinn vín- bannsmaður og Hon. N. W. Roæell K.C., sem barist hefir móti því að veðreiðar væru leyfðar. Þá eru $10,000 ætlaðir kaj>ólskum presti tiil að syngja sálumessur til frelsun- ar einhverjum heldri manni í Ont- ario, sem muni þurfa þess með, hvar sem hann sé.” Erfðaskráin kvað gera ráð fyrir að enn séu peningar afgangs, og einnig geti skéð að prestarnir þiggi ekki það sem þeim er ætlað. Féð á þá að geymast í níu ár, en ]>á á því að vera skift milli þeirra foreldra í Ontario, sem flest börn hafa eign- ast á þessum niu árum. Harry Houdini látinn. Hinn nafnkunni töframaður og sjónhverfingamaður Harry Hudini, sem staddur var i Detroit Mich. i siðustu viku október mánaöar er nú genginn veg allrar veraldar. Hann var J>ar að syna list sína a leikhusi í borginni Jxegar hann kendi van- máttar og litlu síðar sarra þrauta þó lauk hann við sýningu þá sem yfir stóð, en var svo tekinn á sjúkrahús þar sem holdskurður var gerður á honum við botnlanga- bólgu. Iivorki hann sjálfur né heldur aðrir töldu skurð þann hættulegan. En það er með Jxessa holdskurði eins og siglingar á sjó að }x> kóngur vilji sigla, þá hlýtur byr að ráða Spilling kom i sárið, sem leiddi þeinpan einkennilega töframann vorfa tíma til bana. Ein af töfraraunum Hudini var að láta smiða ramgerðar likkistur, leggjast i þær og komast svo hjálp- arlaust úr þeim eftir að J>eim var lokað. Eina slíka hafði hann nýlega látið gjöra úr “bronze”. Var hún loftheld og ramgjör. í þeirri kistu hvílir hann nú liðið lik. Úr veikind- um sinum, sem vöruðu aðeins í viku var Hudini sánnfærður um að hon- um mundi takast að sleppa eins og úr svo mörgum öðrum þrautum er honum var svo létt að leysa en við dauðanum gat kunnátta hans og “kúnstir” ekki séð — þar varð hann að lúta sama lögmálinu og allir aðrir. S'kömmu áöur en hann lést kom bróðir hans Theodofe Hudini inn til hans. Var hanty þá enn með fullri rænu og mælti: “Eg býst við að baráttu minni sé lokið.” Síðustu orðin, sem til hans heyrð- ust voru ógreinileg, þvi lífsþróttur- inn var að þrotum kominn, en eitt- hvað voru þau í sambandi við Ro- bert Ingersoll en samhengi þeirra skildist ekki. Harry Hudini var 52 ára þegar hann lést. Blöðin hafa flutt ummæli ýmsra merkra manna um Hudini látinn, þar á meðal Sir Arthur Conan Doyle. Farast honum þanmg orð um hinn látna. Dauðsfall heimsins mesta töframanns kom óvænt sem reiðarslag og dularfull raðgata. Hann smakkaði aldrei vín, né held- ur brúkaði hann tóbak og lifði hreinna og reglubundnara lífi en nokkur annar maður, sem eg hefi þekt. Eg dáði hann mjög og get ekki skilið hví hann var kallaður í burtu svo ungur. Við vorum góðir vinir og hann sagði mér margt í trúnaði, en aldrei J>ó neitt um töfra sína. Hvemig að hann framkvæmdi J>á er mér hulið. Við vorum sammála um alt nema I andatrúna.” SONNETTA. Sól er að hníga, sjá nú líður dagur, Sveipað er Iandið kvöldsins geisla og skugga, draumblíða nóttin guðar enn á glugga, gyllir þig, himinn, aftanroði fagur. Hægur við grandann heyrist báru sláttur, —helgi’ er um fold við komu sumarnætur — blómþakin grundin döggum laugast lætur; léttur er náttúrunnar andardráttur. Ómarnir þagna, sólskríkjunnar sætur svifinn er yfir kvöldsins lokaóður. — Alheimur þegir, alt er kyrt og hljótt. — Draumhuginn elskar þessu þýðu nætur, þögult og hlýtt er um hans Beru-rjóður, - lýruna stilliy Ijósa sumarnótt. ,—Eimreiðin. Jón Kr. Jóhannesson.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.