Lögberg


Lögberg - 23.12.1926, Qupperneq 4

Lögberg - 23.12.1926, Qupperneq 4
Bls. 4 LöGBERG, FIMTUDAGINN 23. DESEMBER 1926. Jogbcrg Gefið út hvern Fimtudag af Tle Col- umbia Press Ltd., Cor. Sargent Ave. & Toronto Str., Winnipeg, Man. Talainan N-6327 o& N-6328 JON J. BILDFELL, Editor Ut máskrift til blaSnin*: THt COLUMBIH P(|ESj, Ltd., Box 317*. Wmilpeg, H*n- UtanáakriH rit*tj6ran»: íOiTOR LOCBERC, Box 317* Wtnnlp*g, l^an. The “I.ttgtier*” 1* prlntad and publlshed by Th* Columbla Pr*e«, Ldmited. ln th* Columbla HuDdlnr, cts Sargent Av*., Wlnnlpe*. Manltoba. Ástandið í Kína. i. Víða í heiminum hefir ástandið verið alvar- legt á undanförnum árum, og er enn hvergi samt eins og í Kína. Það mikla land, sem skift er í 18 fylki eða ríki, sem sum eru nægilega stór til þess að vera heilt konungsríki útaf fyrir sig, er 1,500,000 fer- mílur að stærð og telur hátt á f jórða hundrað miljón íbúa er flakandi í sárum. Þar er hver höndin upp á móti annari. engin regla eða yfir- stjórn, er nokkru ræður eða vald hefir hjá þjóð- inni, sem heild. Það er samt ekki svo að skilja að þar séu ekki nógu margar stjómir, þær eru nú sem stendur einar sex, en þær eru allar að skara eldi að sinni köku, — reyna til þess að faxra út kvíar sínar og auka vald sitt, en ekki ein þeirra er fær um að tala eða ákvarða í nafni þjóðarinar í heild. Fvrst þegar sögur fara af Kínaveldi, var þar einvalds konungsstjórn og var hann valinn af vissum ættbálkum eða flokkum í landinu. Árið 2205 B. C. hófst í Kína óeyrðar tímabil þegar ríkisstjórnin var í höndum þeirra manna er mest máttu sín og hélst það nálega í 2000 ár, eða þar til árið 225 B. C., þá kom fram einn af hinum sterku mönnum Kína þjóðarinnar, Tsin, sem braut undir sig alla hina mismunandi flokka og krafði þá til hlýðni við einn þjóðhöfð- ingjia en Jiað var sjálfur hann og með honum er 9 keisarastjómar fvrirkomulagið í Kína stofnað og J)ó völdin liafi ekki ávalt verið í hondum sömu ættanna þá helst það fyrirkomulag að mestu óskert þar til árið 1911, en þá nevddu upp- hlaupsmenn, sem vaxið hafði stöðugt þróttur, frá því að Boxer uppreisnin átti sér stað í byrj- un tuttugustu aldarinnar, hinn síðasta keis- ara Kínaveldis til að segja af sér. Það var orðinn klofningur í þjóðfélaginu út af keisarastjóraar fyrirkomulaginu. Keisara- sinnar, sem sterkastir voru í Norður-Kína, studdu það. Lýðstjórnarmenn, sem kendir eru við Suður-Kína, einkum Oanton, stóðu fast á móti, svo engin varanleg sambandsstjóm hefir getað komist á síÖan. Af því, sem nú hefir sagt verið, geta menn skilið, að allmiklu leyti, ástæðuna fyrir ástand- inu, eins og það nú er — innbyrðis sundurlyndi og óeirðir, svo Jijóðin getur ekki notið sín á neinu sviði. En auk þess hefir megn óvild til útlendinga og útlendra þjóða magnast hjá henni. Ástæð- urnar til þeirrar óvildar eru margar og rót- t;ekar. Sú fyrsta tekur oss til baka til ársins 1497, þegar Vasco da Giama fann sjóleiÖina til Ind- lands. Þá tóku Vesturlandaþjóðir að sigla til Kína. Fyrst Portúgalsmenn 1516, þá Spán- verjar, Hollendingar og Bretar 1535. Við þess- ar heimsóknir Vesturlandamanna var Kínverj- um meinilla, og hefðu bannað öll samneyti við þá, ef þeir hefðu getað. Þeim leizt illa á vest- ræiní menninguna þegar í byrjun, því hún var að eins í eigin hagnaðar leit. Ópíumverzlunin, sem fram að þeim tíma var sára lítil í Kína og þá ópíumreykingar, óx gíf- urlega. Fyrir árið 1767 voru að eins 200 pakk- ar af því eitri fluttir inn til Kina árlega, en það ár nam tala þeirra þúsundi. Ópíumreykingarn- ar fóra /raxandi að því skapi, og stjórain var ráðþrota að stemma stigu fyrir útbreiÖslu plág- unnar. Hún lagði þunga hegningu við ópíum- nautn og vildi reyna að útrýma óvini þeim. En Jiað leiddi þjóðina og hana út í hin mestu vand- ræði. Hún lenti í stríði við Breta I84Q, og beið ósigur, sem von var. Árið 1855 lentu þeir aft- ur í stríði við Breta og Frakka til samans, og urðu þá aftur að láta af áformum sínum, og þar að auki láta Canton af hendi við þær þjóðir. Árið 1858 kröfðust stórþjóðimar, að Banda- ríkjunum meðtöldum, að ópíumverzlunin í Kína væri lögleidd. Það neituðu Kínverjar að gera. Aftur réðust Bretar og Frakkar á Kína, og tóku vígi }»eirra, sem voru á leiðinni til Pek- ing. Kínverjar urðu aftur að láta undan og dyrnar voru opnaðar Vesturlandaþjóðum inn í Kína. í gegn um þessar opnu dyr komu svo þjóð- irnar til Kína. .Japanar komu 1894-5 og tóku Formosa og Liao-tung skagann, ásamt Port Arthur og $158,400,000 herkostnað. Síðar fengu Rússar, Þjóðverjar og Frakkar því til leiðar koniið, að Kínverjar fengu að halda Liao-tung, með því að bæta $76,800.000 við herkostnaðinn. Svo komu Rússar og þröngvuðu Kínverjum til Jiess að veita sér leyfi til að leggja Síberíu- járnbraut sína í gegn um Kirin, Mukden og til Port Arthur og Peking, ásamt því að fá sér hendur yfirráðin í Manchuríu og leigja sér Port Arthur og Dairen. Þjóðverjar komu og fengu níutíu og níu ára leigusamning fyrir Kiaochow höfninni og helg- uðu þeir sér allan Hoang Ho dalinn. — Bretar fengu siglingarétt til fleiri hafna, en þeir höfðu áður haft, og eftir sumum af stórám landsins, og Frakkar fengu líka sinn hleif. Út af Jiessu öllu og öðru fleira. sem hér er ekki rúm til að minnast á, magnaðist ekki að- eins óvild Kínverja til Vesturlandaþjóðanna, lieldur jókst líka innhyrðis sundurlyndi og óá- nægja, og er enginn vafi á, að sú óánægja var orsökin til Boxer uppreisnarinnar árið 1900. En fyrir hana urðu Kínverjar að borga Vest- urlandaþjóðunum $293,850,000 í skaðabætur. Á þeim sama tíma fóru Rússar á ný að herða á kröfu sinni um öll yfirráÖ í Manchuria, og tók- ust Japanítar þá á hendur að jafna sakir við þá. Úr því varð stríðið á milli Rússa og Jap- aníta 1904—05. Það er sérstaklega þrent, sem festa verður í minni, þegar hugsað er um ástandið í Kína: Skort á festu í allri stjóra og innbyrðis óeirðir, sem hafa fariÖ vaxandi síðustu árin. Fjárskort þjóðarinnar, svo hún hefir orðið að taka fé að láni hjá erlendum þjóðum í stór- um stíl og Rótgróna óvild þjóðarinnar til útlendinga. II. Það var sagt, að alheimsstríðiÖ nýafstaðna hefði verið háð til þess, að binda enda á stríð. Þó að sú hugsjón sé enn ekki nema skamt á veg komin, þá er víst óhætt að segja, að margir menn liafi verið einlægir í því áformi, og séu það enn; að minsta kosti hafa þeir sýnt meiri viðleitni til þessi nú en áður, með því að stofna Þjóðbandalagið — The League of Nations. — í því sérstaka augnamiÖi. Hvað áhrifamikill að sá félagsskapur verð- ur í því sambandi, er ekki gott að segja. Tím- inn einn leiðir það í ljós. Vér höfum ekki mikla trú á, að nokkur ytri sambönd megni að varna þeirri ógæfu mannanna. Því til þess að hægt sé að útrýma stríðum, þarf fyrst að nema í burtu stríSs-ástæðurnar, en þær eru ávalt og ujndantekningarlaust óvild. óvild sú getur skapast af mörgu, svo sem ágirnd, valdafíkn, metorðagirni. 1 stuttu máli, öllu því, sem vek- ur óvild á milli ejnstaklinga og þjóða; og áður en aljijóða friður f:etur komist á, þarf að nema það í burtu úr hugsun mannanna, en setja þar í staðinn! kærleikann. Svo hverfum vér aftur að ástandinu í Kína, eins og það er nú. SíÖastliðið sumar kom atvik fyrir í Kína, sem snerti brezku stjórnina mjög ákveðið, og hefði að sjálfsögðu nægt til þess, að til vopna hefði verið gripið, ef allrar gætni hefði ekki verið gætt. Það hafði veriÖ siður eins af undirforingj- um Kínverja, Wu-pei-fu, að taka brezk skip í þjónustu sína til að flytja hermenn á frá einni höfn til annarar, þegar honum sýndist. Þetta gjörði hann síðastliðið sumar. Hann tók skipið Wanleir. Mikill hraði var á kín- versku hermönnunum, sem fóru niður eftir á einni á bátum, til þess að komast um borð í skipið. Einum bátnum, sem hlaðinn var með silfri og mönnum, hvolfdi. Þessu reiddust her- mennirair, þó s'kipverjarnir brezku ættu enga sök á því. Kínverjar tókn skipið í sínar hend- ur og skipuðu skipverjum að sigla með sig til Wanhsien. Þegar þangað kom, var þar annað brezkt skip fyrir, sem skarst í leikinn. En for- ingi Kínverja, sem var Yang Sen herforingi, tók þar önnur tvö hrezk skip. Tók hann skip verja til fanga, en hlóð skipin með mönnum sínum, og herútbúnaði. Brezka stjórnin reyndi að fá þetta lagfært og leitaði til stjórnarinnar í Peking, en hún gat ekkert lið veitt — hafði ekki vald til þess, og það fanst eingin stjóra eða maður í Kína, sem vald hafði til þess að skerast í leikinn, og svo var óreiðan mikil, að innheimta á tollum, á inn- fluttum vörum til Kína, hætti sökum þess, að engin stjórn hafði vald til þess að innheimta þá annari fremur. Stjórnin brezka leitaði þá að lokum til Yang Sen sjálfs, og bauð honum að leggja jafnmikið fé á banka í Kína í hans nafni og fé það var, cr hann misti í sjóinn, ef hann vildi láta brezku mennina og brezku skipin laus. En við það var ekki komandi, svo brezka stjórnin sendi her- skip til þess að leysa skipin og mennina. í þeirri viðureign féllu 20 brezkir hermenn og all- margir Kínverjar, en að leikslokum þarf ekki að spyrja. Við þetta létu Bretar sitja. Þeir stiltu hefndarhug sinn, og menn þeirra eru óbættir. Á annað atriði verður að minnast í þessu sambandi, sem lítiÖ á skylt við mannúð eða bróðurkærleika. Eins og gefur að skilja, þá eiga Kínverjar í vök að verjast í fjármálum sínum, en þó höfðu þeir hrotist í að borga hið svo nefnda níu ára heimalán sitt, svo að það verður uppborgað snemma á árinu 1927, og þóttust þeir sjá þar veg til að ná í fé nokkurt til nauðsynlegustu þarfa sinnsl Ráðstafanir voru því gerðar við bankastjóra í Kína að enduraýja lán þetta og taka að tryggingn þann part tollinntektanna, sem áður stóðu fyrir láninu. En 25. ágúst s. 1. tilkynnir sendiherra Banda- ríkjanna, Mr. McMurray, Kínverjum í nafni þjóÖabanka ráðsins, að þeir mættu ekki taka þetta nýja lán —- að þeir eigi ekki með það; að þeir skuldi óhemju fjár, sem verði að borg- ast, áður en þeir sjálfir fái einn eyri. Ef að tollatekjur þeirra séu leystar undan veði, þí verði skuldiraar að ganga fyrir öllu öðru — skuldirnar við J. P. Morgan and Co. og allra skuldirnar við J. P. Morgan and Co. og öll hin félögin, sem þeir skulda, víðsvegar um heim. Þetta er ekki ÞjóðbandalagiÖ, sem fer með slíkan boðskap til þjóðar, sem er aðfram komin og ráðjirota, en þessi sendiboði bankasam- bandsins talar fyrir munn manna, og þjóða, sem eru í bandalaginu. Prédikun á 4. sunnud, í aðventu. Út af Jóh. 3, 22—36. ÞEIR SEM ÞURFA LUMBER KAUPl HANN AF The Empire Sash& Door Co. Limited Office: 6th Floor Bank of Hamilton Chambers Yard: HENRY AVE. EAST. - - WINNIPEG, MAN. VERÐ og GŒDI ALVEG FYRIRTAK Eftir séra N. Steingr. Thorlaksson. ■^miiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimimimimniiimiimimimiiiimiMimmimimmmuimiu: Úr vegi méð alt, sem fyrir er! “Konungurinn kemur! Úr vegi fyrir honum! I D.D.Wood&Sons 1 Úr vegi með alt, sem fyrir er!” — þannig hrópuðu fyrirrennarar konunga tál forna, — menn, sem á undan þeim hlupu og tilkyntu fólki komu þeirra. Jóhannes skírari var fyrirrennari, mestur og dýr- legastur allra fyrirrennara, enda var hann fyrirrenn- ari konungsins mesta, konungs konungnna, konungs allra manna. Af því staðan hans var þessi, vitnaði Jesús það, að hann væri meiri en nokkur hinna gömlu spámanna, og að enginn melri honum hefði fæðst. Og sömuleiðis vitnaði Jesús, að Jóhannes hafi verið sendiboð'inn, sem átt var við, þegar Guð fyrir munn spámannsins Malakí sagði: “Sjá, eg sendi send'iboða minn og hann mun greiða vegínn fyrir mér” (3, 1). Og með honum rættist orð Jesaja.spá- manns um röddina kallandi í eyðlmörkinni: Greiðið götu Drottins, ryðjið Guði vorum veg í óbygðinni! (40, 3). Með komu Jesú var Guð að koma til síns lýðs, elns og hann hafði heitið og á þann hátt, sem hann hafði heitið. Og Jóhannes, sendiboði Guðs og fyr- irrennari Jesú, var að greiða götu Guðs, þegar hann var að greiða Jesú veg. Jóhannes kom. Hann vissi, að Guð hafði fengið honum verk að vinna. Og honum þótti vænt um verkið, af því það var verk, sem Guð hafð’i fengið honum að vinna — það var verk Guðs—, og honum var ant um að inna það af hendi e'ins og Guð vildi í þeirri trú, fullviss um, að hann væri erindreki Guðs, kom hann fram fyrir lýð'inn og kallaði svo að kvað vlð unf alt landið: Konungurinn kemur! Búið yður undir að taka á móti honum! Og úr vegi með alt, sem fyr/lr honum er, svo að þér megið fagna hon- um og þér eignist hann fyrir konung! — Og að þessu verki sínu, og ryðja Drotni braut og búa lýðinn und- 'ir komu hans, vann hann með því að prédika gegn syndinni. Og hann prédikaði ekki um syndina í al- mennum orðatiltækjum, sem fóru fyrir ofan höfuð- ið á fólkinu, h’eldur svo, að fólk gat skilið, hvað hann átti við. Og hann var ekki hræddur Við að tala við fólk um syndina og um synd þess. Hann var ekkert hræddur við að styggja það; því um það var hann ekki að hugsa, hvað því væri geðfelt, eða hvað ætti við tíðarandann, heldur hvað Guði væri þóknanlegt. Hann dró því ekki fjöður yfir synd/na né klæddi hana í loðin orðatiltæki, sem komu hvergi við. Hann kallaði syndina synd og sýndi hana eins og Guð leit á hana og vildi að fólk lærði að líta á hana. Fyrir hugskotssjónum hans stóð það lifandi og í sálu hans var löngunin logandi að vinna að verkinu, sem Guð hafði fal/ð honum, og flytja boðskapinn, sem Guð hafði fengið honum, og ekki neitt annað. Það var s y n d i n, sem var í vegi fyrir Guði. Það var h ú n, sem var því til fyrirstöðu, að konung- inum yrði fagnað. Hún var fyr/r — syndin, sem skipaði öndvegi í hjartanu — syndin, sem fólk vildi ekki sjá og kannast við og iðrast og játa. Burt því með syndina! úr vegi með hana, svo að konungur- fnn komist að! úr vegi með guðleysið í hjartanu_____ skortinn á óttanum og lotningunn'i fyrir hinum heil- aga Guði! úr vegi með kærleiksleysið og óhlýðnina og mótþróann gegn Guði og vilja hans! Úr vegi með hræsnina og óeinlægnina alla! úr vegi með sjálfs- elskuna og eiginréttlætið og sjálfsálitfð og hrokann! Úr vegi með útvortis guðræknis-tildur og tál, sem þér treystið á og teljið gilda fórn Guði tll handa! Til Guðs í iðrun hjartans! Og svo út í lífið með breytni, sem samboðí’n er iðraninni! Þannig hrópaði Jóhannes: úr vegi með alla syndina, sem fyrir er, svo að þér fáið fagnað kon- unginum, sem er að koma Og frá þessu er oss sagt og frá fyrirrennaranum mikla á jólafösthnni, til þess að við skulum gá að því, að undirbúnings- laust sé engum unt að fagna Jesú Kristi né heldur að njóta jólagleðf í sannleika. Þess vegna hefir Jó- hannes enn erindi til vor og prédikunin hans: Úr vegi alt, sem fyrir er! Jóhannes kom ekki sjálfur undirbúningslaust fram fyrir lýðinn. Hann kom vel undirbúinn; því Drottinn sjálfur hafði fengið að undirbúa hann. Hjá honum hafði hann gengið í skóla. Þess vegna var hann maður til þess að segja með guðdómlegum myndugleik: “úr vegi með alt, sem fyrir er!” Af því hann hafði fengið undirbúning sinn í skólanum hjá Drotni, var undirbúningur hans eklqi tómur ut- anað lærdómur eða fræðsla. Undirbúningur hans var persónulegur, eins og allur sannur undirbún- ingur fyrir lífið þarf að vera. Hann hafði sjálfur með samvizku sína verið undir áhrifum hins heilaga ög l'fanda Guðs. Hann hafði prédikað fyrst fyrír sjálfum sér: úr vegi með alt, sem fyrir er! Því Guð hafð’i talað við hann um synd hans ogmannsins synd, og að hann og hver maður yrði að iðrast-s i n n- a r syndar og lifa lifið sitt fyrir auglit'i Guðs og þjóná honum í einlægni hjartans. Og orð Guðs náði tökum á samvizku hans, og Guð fékk svo að skipa öndvegissætið í sálu hans. Þess vegna var Jóhann- es und,:rbúinn — og svo v e 1 undirbúinn. Textinn sýnir okkur þetta svo vel. Við sjáum að lærisveinar Jóhannesar taka upp þykkju fyrir meist- ara sinn út af því að frézt hafði, að fleira fólk kom dl Jesú en til Jóhannesar. Þeir þóttust sjá þar vott þess, að álitið á Jesú væri að aukast, en álitið á meistara þeirra að minka. út af þessu fyllast þeir öfund og gremju. Búast þá við, að Jóhannes muni taka í sama streng. Þeir þektu ekki hugarfar meist- ara síns betur en það. Það var nú svo fjarri því að fréttin um aukinn veg Jesú og vinsældir ylli honum sársauka. Það varð honum einmitt hið mesta gleði- efni. Fréttin var honum fagnaðarbíðindi. Þetta var i selja allar beztu tegundir KOLA tuttugu og, sex ár höfum vér selt og flutt heim til almennings beztu tegundir eldsneytis, frá voruYard E | Horni Rcss Avenue og Arlington Strœtis | = Pantið frá oss til reynslu nú þegar. 5 I Phone 87 308 ( 3 símalínur E ................................................ EiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiimiiiiimiimiiiiiiiiiiiiii^ I KOL! KOL! KOL!| I ROSEDALE KOPPERS AMERICAN SOURIS I | DRUMHELLER COKE HARD LUMP § I Thos. Jackson & Sons 1 | COAL—COKE—WOOD | | 370 Golony Street | | Eigið Talsímakerfi: 37 021 f I POCA STEAM SAUNDERS ALLSXONAR | 1 LUMP COAL CREEK YWUR Íiiiiiiiiimmmmmmmmmmiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimmmmimmimiiiiiiiiiiiiiiiig það, sem hann þráði. Undir það hafði hann verið að búa með starfi smu. Hann var að eins brúðar- sveinninn. Jesús var sjálfur brúð- guminn og átti brúð|ina. Hann sá, að verk sitt hafð'i ekki verið til ó- r.ýtis. Um sjálfan sig hagði hann aldrei verið að hugsa, að búa í hag- inn fyrir sig eða auka álit sitt. Leitaði ekki að sinni eigin dýrð. Var ekki að keppast eftir að verða mikill sjálfur, heldur að Jesús gætj orðið sem mestur. H a n s dýrð sem mest. H a n n á að vaxa, en e g að minka—segir hann. Og það er ekk'i nein ólund í honum, þegar hann, segir þetta, eins og hann væri ekki sem ánægðastur með þessi kjör sín. öðru nær.—Þann- fg á það að vera. Þetta er einmitt það sem Guð vill,—hugsaði hann. Svo það er honum stórkostlegt fagnaðarefni. Hann veit, að Jes- ús er að ofan, öllum æðri, en hann, Jóhannes, af jörðu — að eins maður. Það er dýrlegt, að verða var við göfuglyndið og hina sönnu mikil- mensku, sem kemur hér fram hjá Jóhannesi. Það vekur hrifning. Það er svo mikið af smásálarskap og ógöfuglyndi með okkur mönn- unum, að það gerir okkur gott að kynnast sönnum mikilmennum. Hið smáa verður þá svo smátt og lítilfjörlegt og færist okkur fjær, þegar það, sem í sannleika er hátt og dýrlegt, færist nær. Verðum Vjið ekki oft vör við þetta, er við lesum æfisögur mik- illa og góðra manna? Er ekki eins og þá birti yfir lífinu? Og er ekki eins og yl leggi þá um okk- ur, yl nýrra hugsjóna og nýrra langana? Og þegar hið góða og göfuga í Viðureigninn(i við • var- menskuna, ber hærra hlut, fer þá ekki um okkur hrifningarylur sigurhróssins? Að vísu Virðist varmenskan oft vérða ofan á, jafnvel í hinni helgu sögu, en er þó að eins sjónhverfing. í raun og veru er það vegur hins góða til sjgurs. Jóhanpes skírarj var í sann- leika mikilmenni, einhver mestl og bezti maðurinn, sem uppi heflr verið. Og göfugastur og beztur birtist hann einmitt í því, hvernig hann gleymjr sjálfum sér í hinu mikla starfi sínu og vill sjálfur hverfa, til þess að Jesús megl verða sem mestur og dýrlegastur. Um það hugsar hann mest, og að því lýtur aðallega starfið hans. Hann vill ekki vera í vegi fyrir Jesú né skyggja á hann, heldur láta hann sjást sem bezt. Og ein- mitt vegna þess varð hann hið dýrlega verkfæri í hendi Guðs. Guð gat notað hann svo vel, af því hann hafði lært svo frábærlega vel að gleyma sjálfum sér. Og þess vegna eru það svo margir, sem Guð fær ekki notað til þjón- ustu sinnar. Þeir hugsa um of um sjálfa s'ig. Líta of stórum augum á sjálfa sig. Finna of mikið til sín. Ef þeir eru miklum hæfi- leikum gæddi^, þá verða hæfileik- arnir í vegi fyr/r drotni, í stað þess að vera í þjónustu hans. Það er því engin furða, þó til séu menn, sem þykjast ekki sjá Guð eins og hann hefir opinberað sig mönnunum til sáluhjálpar — sjá hann alls ekki í dýrlegustu op- inberun hans, í náðaropinberun hans fyrir Jesúm Krist, — af því að til eru menn, sem líta svo stórt á sjálfa sig og verða svo fypir- ferðarmiklir í sínum éigin aug- um, að þeir verða fyrir opinber- uninni, skyggja sjálfir á sólina, sem upp rann af hpeðum með græðslu undir vængjum sér. Valda sjálfir sólmyrkvanum. Þeir telja sér sjálfir trú um, að þeir séu svo vel sjáandj fyrir þekking sína og gáfur, að þéir s j á i, að ekkert sé í þessari opinberun, sem kristnin hefir álitið og álítur að varpað hafi svo dýrlegu ljósi yfir heiminn og inn í himinjinn. En sannleikurlnn er sá, að það er ekki þekking þeirra og gáfur, sem hafa gert þá “sjáandi”. Hinn í- myndaði risavöxtur þeirra, hefir valdið sólmyrkva. Þe/r eru í vegi. Sjá ekki til sólar fyrir sjálfum sér. Eru sjálfum sér svartasta ský'ið, sem skyggir á sól Guðs í augliti Jesú Krists. Eðlilega geta þeir þá ekki fagnað komu hans. Ef þeir fagna á jólunum, þá er það ekki út af barninu, sem fædd- ást á jólunum, heldur út af brúðu- barni, sem þeir búa sér til. Og fátækt er það og aumlegt að faðma að sér brúðubarn, þegar kostur er á að leggja að brjósti sér lifandi barn. En það eigum við kost á að sjá og að eignast og eiga fyrir það að lifa og verða eilíflega að mönnum •— fyrir barn- ið 1 i f a n d i, sem fæddjst á jól- i(num. Því m'inni sem maðurinn verð- ur í eigin augum og því betur sem úr vegi ryðst það, sem hjá honum

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.