Lögberg - 12.05.1927, Blaðsíða 1

Lögberg - 12.05.1927, Blaðsíða 1
4 iiQlief ð. 40 ARGANGUR WINNIPEG, MAN., FIMTUDAGINN 12. MAÍ 1927 NÚMER 19 Helztu heims-fréttir Canada. Bracken stjórnarformaður hef- ir skipað þriggja manna nefnd til að athuga orsakirnar að atvinnu- leysinu, sem jafnan á sér stað i Manitoba á vissum tímum ársins, sérstaklega í Winnipeg, sem er eini stórbærinn í Manitoba. Ger- :r stjórnin sér væntanlega ein- hverja von um, að af athugunum og rannsóknum þessarar nefndar megi það leiða, að einhver ráð finnist til þess að bæta úr at- vinnuleysinu, eða koma í veg fyrir það, að verkamenn neyðist til að ganga vinnulausir langan tíma á hverju ári, af því ekkert er hægt að fá til að gera. For- maður þessarar nefndar er R. W. Murchie, prófessor við búnaðar- háskóla Manitoba fylkis, en með- nefndarmenn hans eru W. H. Carter, sem er einn af eigendurh Carter-Halls-Aldinger bygginga- félagsins, og F. J. Dixon, fyrrum fylkisþingmaður og verkamanna- leiðtogi. Segir Mr. Bracken, að auðsjáanlega beri nauðsyn til að ráða bót á því mikla atvinnu- leysi, sem eigi sér stað í fylkinu á hverjum vetri og sem bezt'sjá- ist á því, að þá leiti fjöldi manns til hins opinbera um fjárstyrk til að geta komist af. Hinir séu þó vafalaust miklu fleiri, sem einn- ig séu atvinnulausir, en komist þó af hjálparlaust, en sá vinnu- kraftur, sem þar fari til ónýtis, sé mjög mikils virði, ekki að eins sjálfum þeim heldur líka rikinu, sem þeir tilheyra. * * * Á mánudaginn var komu 900 innflytjendur til Winnipeg, allir í einni járnbrautarlest, og er það stærsti innflytjendahópurinn, sem nokkurn tíma hefir komið til Vestur-Canada í einu. í þessum hópi var fólk frá.einum tuttugu löndum og talaði álíka mörg tungumál. Annars er innflutn- ingur fólks til Vestur-Canada á- kaflega mikill. Flest kemur fólk- ið frá Bretlandi, eins og vana- lega, en einnlg frá fíestum öðrum löndum Norðurálfunnar og þar á meðal marjgt frá Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Margir bændur frá ýmsum ríkjum Bandaríkjanna eru nú einnig að flytja sig til þessa lands. * * * Verkamenn strætisbrauta fé- lagsins í Winnipeg fara fram á kauphækkun, sem nemur þremur centum um klukkutímann fyrir þá menn, sem vinna á strætis- vögnunum. Forseti félagsins, A. W. McLimont, tekur ekki vel í það og færir það til meðal annars, að það séu að eins átta mánuðir síð- an samið hafi verið um kaup- gjaldið síðast, og það sé of snemt að fara nú aftur að breyta því, og þar að auki geti félagið ekki stað- ið sig við að hækka kaupgjaldið, því þessi kauphækkun þýði stór- mikil útgjöld fyrir félagið. * * * Queens háskólinn hefir sæmt Hon. Jó. A. Robb, fjármálaráð- herra, heiðurstitlinum LL.D. * * * Hon. John G. Foster, sem verið hefir aðal konsúll Bandaríkjanna í Canada í 23 ár og haft aðsetur í Ottawa, hættir að gegna því embætti 1. júlí næstkomandi. Sagt er að eftirmaður hans sé þegar útnefndur. * * * Tíðarfarið hefir nú í meir en mánuð verið mjög óhentugt; sí- feldar úrkomur og kalsa veður. Tefur þetta veður mjög tilfinn- anlega fyrir sáningu, svo enn er mjög litlu sáð af hveiti í Sléttu- fylkjunum, og er landið víða svo blautt, að enn verður ekki hægt að sá í nokkra daga, þó veðrið batnaði. f fyrra var búið að sá um 30 af huundraði af hveiti hinn 8. maí, en nú mjög litlu og víða alls ekki býrjað að sá hveiti. Það er nú talið áreiðanlega, að héðan af verði miklu minna hveiti sáð, heldur en verið hefði, ef tíðarfar- ið hefði verið hentugt. Sama er að segja um þyggingavinnu og aðra útivinnu í bæjunum, að það er ekki hægt að byrja á henni vegna votviðranna. * * * 'Fyrir fáeinum árum voru vin- bannsiög gildandi í öllum fylkjum í Canada nema Quebec. Nú er svo komið að vínsala er leyfileg í öllum fylkjunum, undir umsjón fylkis- stjórnanna, eða nefnda, sem stjórn- irnar skipa, nema í tveimur fylkj- um. Þessi tvö fylki, sem enn hafa vínbannslög eru Strandfylkin Nova Scotia og Prince Edward Island. Hið þriðja þeirra, New Bruns- wick, hefir nýlega afnumið sín vín- bannslög og komið á vínsölu und- ir stjórnar eftirliti, eins og hin fylkin hafa gert hvert eftir annað. Það lítur þvi út fyrir, að þess verði ekki langt að bíöa, að hægt sé að kaupa vín í öllum fylkjum landsins, þó vínsölunni sé nú hátt- að nokkuð á annan veg, en var i gamla daga. * * * Talið er, að fólksf jöldinn í Canada hafi 1. júní 1926 verið 9,389,300, og hefir þá fólkinu fjölgað um 600,817 síðan 1. júní 1921, að reglulegt manntal var tekið um alt landið. Hér er að vísu bygt á áætlun hvað öll fylk- in snertir, að undanteknum þrem- ur sléttufylkjunum, því þar var manntal tekið 1926, og er því fyllilega ábyggilegt. 1 öllum fylkjunum hefir fólkinu fjölgað nokkuð nema í Prince Edward Island og í Yukon. Á þeim tveim stöðum hefir því fækkað dálítið. Bandaríkin. Það er meira en ár þangað til forseta útnefningin fer fram og það er meira en hálft annað ár til næstu forseta kosninga, en samt sem áður er nú þegar mikið um þær talað og sjálfsagt enn meira um þær hugsað. Baráttan er ekki að eins milli hinna miklu stjórn- málaflokka, heldur fyrst og fremst innan flokkanna sjálfra. Það er talið mjög sennilegt, að Coolidge forseti geti fengið útnefningu síns flokks ef hann vill. En eng- inn veit enn, kannske ekki einu sinni forsetinn sjálfur, hvort hann vill vera í vali við næstu forsetakosningar eða ekki. Demo- cratarnir tala einna helzt um Al- fred Emanuel Smith, ríkisstjóra í New York, sem sitt forsetaefni, og telja margir hann manna lík- legastan til að vinna kosningarn- ar af hálfu Democrata. Smith ríkisstjóri er maður kaþólskur, og er það haft á móti honum sem forseta, þó undarlegt sé, þar sem trúarbragðafrelsi er vitanlega afdráttarlaust viður- kent í Bandaríkjunum. En ýmsir virðast hafa þa skoðun, að kirkj- an og páfavaldið geti haft þau áhrif á Mr. Smith, sem ekki séu holl Bandaríkjunum. Hefir Char- les C. Marshall, sem er lögmað- ur í Manhattan, skrifað Mr. Smith bréf, þar sem lagðar eru fyrir hann nokkrar spurningar þessu viðvíkjandi. Mr. Smith hefir svarað þessu bréfi mjög rækilega og var svar hans birt í “Atlantic Monthly” og síðar í mörgum blöðum. Segist Mr. Smith ekkert þekkja í trúarbrögðum eða lögum kaþ- ólsku kirkjunnar, sem komi í bága við stjórnarskrá Bandaríkjanna. Hann hafi aldrei rekið sig á nokkuð slíkt, og hafi hann þó um langt skeið þjónað ýmsum em- bættum og nítján sinnum aflagt embættiseið og í hvert sinn lofað því hátíðlega að fylgja stjórnar- skránni, og hafi enn enginn orð- ið til að bera sér á brýn að hann hafi ekki gert það; hafi hann þó jafnan verið gott barn sinnar kirkju, eins og hann sé enn. Mr. Smith bendir einnig á, að yfir- dómaraembætttið í hæstarétti þjóðarinnar sé talið ekki öllu þýðingarminna eða óvirðulegra heldur en sjálft foretaembættið, en það hafi um langt skeið verið skipað kaþólskum mönnum, þeim I Roger Brooke Taney og Edward Douglas 'White. Margar fleiri á- stæður færir Mr. Smith fyrir því, að það sé fjarstæða ein, að hafna forsetaefni af þeirri ástæðu að hann sé kaþólskur maður en ekki mótmælandi. * * * * Svo segja síðustu manfitals- '•skýrslur, að í Bandaríkjunum séu 6,371,640 bændur. Eins og nærri má geta, ér efnahagur þeirra ær- ið misjafn. Það kalla þeir með- al bónda, sem á þær eignir, sem hér eru taldar, og geta þá aðrir Flokksforingi Liberala í Manitoba-fylki. varð mjög aðþrengdur, einkurn I og Noregi. En 1918 fékk, 'syndika- HON. H. A. ROBSON, er leiða skal frjálslyndu stefnuna til sigurs við næstu kosningar. bændur borið sínar eignir saman við það og þannig séð, hvort þeir eiga meðalefni, eða þá meira eða minna.—Eignir alls $7,776. Bygg- ingar, $1,847; vélar og önnur á- höld, $422; land, 145 ekr., $40.85 ekran; 64 ekrur bithagi, 24 ekrur skógland, 13 ekrur mais, 11 ekr- ur heyland, 8 ekrur hveiti,*6 ekr- ur hafrar, alfalfa 0. s. frv., 24 eplatré, 18 ávaxtatré (perur o. fl.), 60 vínberjatré. Uppskerán: 56 bushel lcartöflur, 6 bu. sætar kartöflur, 18 pd. tóbak, 24 bu. epli, 8 bu. perur 0. fl. ávextir. Skepnur: 3 hestar, 1 múll, 9 naut- gripii-, 8 svín, 6 kindur, 64 hæns. Það sem skepnurnar géfa af sér auk þess sem fjölskyldan not- ar sjálf: 300 dús. af eggjum, 36 pd. ull, 1672 pottar af mjólk, 28 pottar af rjóma, 166 pd. af smjör- fitu, 100 pd. af smjöri. Á einu>bóndabýli af hverjum fimm er veðskuld, sem nemur 40 af hundraði. Tvö býli af fimm eru við óbætta vegi. Eitt býli af tólf hefir “tractor”, eitt af sex hefir “radio”. Akuryrkjumáladeildin skýrir frá, að árið 1926 hafi 2,155,000 manns flutt úr sveitunum í borg- irnar. Þar á móti hafi flutt úr borgunum í sveitirnar 1,135,000. Fæðingar í sveitum urðu 371,000 fleiri en dauðsföllin, svo það sem sveitirnar hafa tapað af fólki, er þá 649,000, nægilegur fólksfjöldi í nýja stórborg á stærð við Pitts- burgh. — Akuryrkju ráðherrann, Jardine, æðrast ekki út af þessum straum fólksins úr sveitunum, en hann bendir á, að svona megi það ekki ganga, ef Bandaríkjamenn eigi að geta lifað á þeim matvæl- um, sem framleidd eru úr skauti náttúrunnar í landi þeirra. Bretland. Prinsinn af Wales hefir að und- anförnu verið suður á Spáni. Vildu Spánverjar gera honum vel til og stofnuðu til nauta-ats til að lofa prinsinum að sjá þennan þjóðlega leik. En hann vildi ekk- ert við það eiga og neitaði að þiggja boðið. Dýraverndunarfé- lag í Bandaríkjunpum sendi hon- um símskeyti til Madrid og þakk- aði honum fyrir að hafa neitað að horfa á þann ljóta leik, og þykir félaginu þetta sönnun fyr- ir því, að prinsinn sé góður drengur og vel innrættur. * * * í Angora á Tyrklandi er kona nokkur, sem Tatma Hanoum reit- ir og er 160 ára gömul; er hún nú talin elzta kona í heimi. Hún var fædd í Tirnoovo í Bulgariu árið 1767. Enn heldur hún full- um sönsum 0g lætur töluvert til sín taka. Gamla konan hefir eignast tíu börn, sem öll eru dáin fyrir löngu, en hún á mörg barna- barnabörn á lífi. * * * Yfir verkfræðingur Marconi- félagsins segir, að nú í sumar verði hægt að talast við milli Bretlands og Canada, eins og nú má gera milli London og New York, en símagjaldið verði tölu- vert lægra. * * * Rt. Hon. Ramsay MacDonald, fyrrum stjórnarformaður á Bret- landi, hefir að undanförnu verið veikur suður í Philadelphia. Ekki er sjúkleiki hans talinn hættuleg- ur og gera læknarnir, sem stunda hann, sér von um að hann muni bráðum verða jafngóður. Sagt er að dóttir hans, sem er með hon- um, eigi erfitt með að fá föður sinn til að hafa nógu hægt um sig, því hann vill lesa blöðin, að minsta kosti þingfréttir frá Bret- landi og helzt margt fleira. Frá Noregi. Flokkaskifting í Stórþinginu norska. Árið 1926 var að mörgu leyti viðburSaríkt í stjórnmála- og at- vinnulífi Norðmanna. Er fyrst á að minnast stjórnarskiftin, sem þar urðu á öndverðu árinu, þegar vinstrimanna stjórn Mowinckels fór frá völdum. Hún lagði fram fjárlagafrum- varp sitt i Stórþinginu í janúar- mánuði. — Hægrimannaflokkur þíngsins: hóf þá strax mjög ákveðna árás á frumvarpið, og taldi það vera ógætilegt, og að þar væri litil tilraun til þess gerð að lækka út- gjöldin og létta af ríkisborgurum tollum og sköttum. Á hvferju ári hefst Stórþingið með almenum umræðum um há- sætisræðu konungs og fjárlög stjórnarinnar. Meðan stóð á þessum umræðum, sem náðu fram í febrúarmánuð, lögðu hægrimenn og frjálslyndir, sem hafa 54 þingsæti til samans, og bændaflokkurinn, sem hefir 22. eða alls 76 af 150, sem eiga sæti í Stórþinginu, fram sitt frumvarp- ið hvor, og var í þeim báðum farið miklu lengra í lækkunaráttina, en stjórnin gat samþykt. Þó þessi frumvörp fengju ekki fleiri atkvæði en þeirra þingmanna, er töldust til flokka þeira, sem áð- ur er getið, lýsti stjórnin því, að hún liti svo á hvort frumvarþið fyrir sig, sem það væri vantrausts- yfirlýsing og sagði af sér. Hægrimenn tóku að sér að mynda stjórn, og tók hún við völd- um fyrir rúnni ári, og er Lykke forsætisráðherra. Atvinnumálin. , í byrjun síðasta árs gerðust þeir atburðir á sviði atvinnumálanna, sem vöktu mtklu meiri athygli en stjórnarskiftin og sá öldugangur í stjórnmálunum, sem þeim fvlgir. Hækkun norsku krónunnar hafði það í för með sér, að iðnaðurinn vegna hins háa kaupgjalds frá lág- gengistímabilinu. Af hálfu atvinnu- rekenda voru þessvegna gerðar kröfur til allmikillar launalækkun- ar eða alt að 25—30%. Eins og kunnugt er, fékst ekkert samkomulag um kaupgjaldið, þó farin *væri löng og erfið samninga- leið. Skall því yfir í aprílmánuði verkfall, er náði yfir 30 þúsund manns í járniðnaði, byggingum, námuiðnaði, skóiðnaði o. fl. Eftir 1% mánuð samþyktu verka- menn kauplækkun sem nam 17%, í byggingariðnaði nokkru minna. Og þegar fram á sumarið kom, komst sanjkomulag á við hina aðra verka- menn, en kaupið lækkaði hjá þeim um 16%. í ágústmánuði kom upp kaup- deila við pappírsgerðarmenn. Eftir nokkurra daga verkfall, var valin sú leið, með samþykki beggja aðila, að láta gerðardóm skera úr þræt- unni og urðu málalok þau, að kaupið lækkaði um 15—17%. Þrátt fyrir það, þó öll kaupdeilu mál síðasta.árs hafi endað á þá leið, að vinnulaun lækkuðu all-verulega, þá hafa þó atvinnumálin verið erfið og allmikið los á öllu athafnalífi þess vegna. Bannið. 18. október 1926, fór fram þjóð- aratkvæðagreiðsla um það, hvort bannið skyldi úr gilái numið eða ekki. Af 1,470,000, sem höfðu atkvæð- isrétt, greiddu atkvæði 951, 939. ' Af þeim greiddu 530^441 at- kvæði gegn banninu, en 421,498 með. Bannið var því felt með 108,- Vínbannið norska er upphaflega styrjaldar-ráðstöfun. Fyrsta vín- bannsákvæðið var i gildi sett 4. ágúst 1914, en var afnumið eftir fáar vikur. 28. júní 1917 var enn sett bráðabirgðareglugerð, og eftir henni var öllum nema ríki og lyf ja- búSum bönnuð sala og kaup, inn- flutningur og útflutningur af brennivíni óg vínum, sem sterkari væri en 12%. Bindindis- og vannvinir kröfðust ]>ess, að þessi reglugerð yrði látin gilda til frambúðar. En til þess að láta þjóðina skera úr þvi, var þjóð- aratkvæði látið fram fara í október 1919, og þá greiddu 489,017 með innflutningsbanni á vinum og brennivíni, en 304,673 gegn því. Með lögum 16. sept. 1921, var aðflutningsbannið staðfest. Vegna þessara lagafyrirmæla fengu Norðmenn að kenna á ýms- um örðugleikum, þegar um samn- inga var að ræða við þær þjóðir, sem framleiða mikið af vínum. En til þess 48 létta alla samninga við vínframleiðslulöndin, var samþykt, a8 flutt yrði inn ákveðinn fjöldi lítra, t. d. 400 þús. af koníaki frá Frakklandi, árlega og 500 þús. af léttum vínum frá Spáni. Andúðin gegn innflutningi þess- ara vina, sem ekki var vitanlega frjáls sala i Noregi, magnaðist smátt og ?>mátt, og einkum eftir að Portúgalar bætust við, og kröfðust þess, að flutt yrði inn allmikið af portvini frá þeim. Varð þessi and- úð til þess, að bann gegn innflutn- ingi portvins, madeira og sherrys var afnumið í marz 1923. \rar þá aðeins um bann gegn sterkum drykkjum a8 ræða. Hægrimannastjórnin lagði því til 1924, að brennivinsbannið yæri af- numið, en frumvarpiÖ til þessara laga var felt í Stórþinginu, og sagði þá stjórnin af sér, en Mowinkel- stjórnin tók við í júlí 1924. Þá var ástandið þannig, að jafn- vel fylgjendur bannsins samþyktu, að enn skyldi fara fram þjóðarat- kvæðagreiðsla um málið. Voru sérstök lög samþykt um það vorið 1926, og skyldi Tatkvæðagreiðslan fara fram í október sama ár. Urðu úrslitin þatt, sem fyr er frá sagt, og kunn eru. Verkalýðshreyfingin. Á sviði verkalýÖshreyfinvarinn- ar norsku, gerðust þeir atburSir síðasta ár, aS alt útlit er fyrir, aS þeir muni hafa miklar stjórnmála- legar afleiðingar. Jafnaðarmannaflokkurinn norski og verkamannaflokkurinn ákváðu í fyrra að sameina sig i einn flokk. Átti sú sameining sér stað 30. jan- úar sl. Til þess að skilja þýðingu þess- arar sameiningar, verður maður að athuga það: að þangað til 1918 var verka- tnannaflokkurinn norski i raun og veru jafnaðarmannaflokkur, er stóð á þingræðislegum grundvelli, og hafði sama vald ig sömu áhrif og samskonar flokkar í Danmörku listisk’ og byltingakend stefna meirihluta á ársþingi flokksins, og hafði það þær afleiðingar, að flokksstjórnin sagði af sér, og varð þá flokksforingi kommúnistinn Martin Tranmæl. Jafnaðarmennirnir efíidu til mót- spyrnu gegn þessari nýu stjórn, en gengu þó ekki úr flokknum. En smátt og smátt varð stefna flokks- in fyrir áhrif rússneskra kommún- ®ista, meir og meir byltingakerjdari og svæsnari, þar til loks, að flokk- urinn samþykti 1921 aS ganga í 3 alþjóðabandalag kommúnista, er sæti hefir í Moskva. Þetta varð jafnaðarmönnum í flokknum ofraun, og gengu þeir úr honum, en foringi þeirra varð Magnus Nilsen. Eftir 1921 varð því um tvo flokka að ræða, jafn- aðarmenn, og kommúnista. Kommúnistaflokkurinn gekk í raun og veru með sigur af hólmi. Hann lifði á góðu og gömlu skipu- lagi, hann hélt stærstu og víðlesn- ustu blöSunum, en það kom aftur til af þvi, aS flokkurinn er ekki myndaður af einstaklingum, heldur af ýmsum verkalýðsfélögum og þau áttublöðin og skrifstofur flokks- dei|jJanna. Sigur kommúnista varð þó skammvinnur. 1923 komu kröfur frá Möskva um samþykt á bylt- ingakendari ályktunum en áður hafði verið. Kröfurnar voru bornar fram á þingi flokksins í Ósló af fulltrúa Rússa með hótun um að flokkurinn skyldi verða kúgaður, ef hann ekki beygði sig. Flokkur- inn beygði sig ekki, og var því rek- inn úr 3. alþjóSasambandinu. Á floksþinginu var þó í þetta sinn allmikll fjöldi manna, er vildi samþykkja boö Rússa. Og eftir að __. • - , , . r, , ,' . , . ,& . heimkynnum trjanna, þar sem þeim flokkurinn var rekinn ur alþjoða- __ \ vt , , /n. , ,. v u er eðhlegt að hfa og þroskast. Dr. sambandinu, sagði þessi minm hluti • v , 1 ,, ,, * , v ' Metcalf segir meðal annars. sig ur flokknum, og myndaði ; “kommúnistaflokk Noregs.” For- I Vanalega hefir tréð gnægS af ingi hans varð Olav Scheflo, rit- hreinu lofti og jörð til að váxa i, stjóri. j sem £hki er steinlögð eða troðin Frá árinu 1923 hafa því í raun ni6ur> en hefir ^nægð af næring- Paul Frederickson. Þessi harðsnúni, ungi íslend- ingur, Mr. Paul Frederickson, seytján ára að aldri, er ættaður frá Baldur, Man. Vann hann ný- lega hér í borg titilinn, sem hnef- leikakonungur Canada í “feather- weight” flokknum, og þykir næsta líklegur til þátttöku í Olympisku leikjunum, áður en langt um líður. og veru verið 3 verkamannaflokkar í Noregi. Norski verkamannaflokkurinn, ó- háður öllum kommúnistaböndum og fyrir utan öll alþjóðasambönd. Norski jafnaðarmannaflokkur- inn; er í 2. alþjóðasambandinu, og loks norski kommúistaflokk- urinn, meðlimur 3. alþjóðasam- bandsins. Engum vafa er það undirorpiS, að samsteypa tveggja stærstu jafn- aöarmannaflokkanna, sem áður er getið um, hefir a-farmikil áhrif við næstu Stórþingskosningar. Svo sem að líkindum lætur, vann kommúnistaflokkurinn að því af miklu kappi, að hindra samsteypu flokkanna. En það hafði engin á- hrif. Samsteypan átti sér stað, og ganga þeir nú sameinaðir til næstu kosninga, og er þaS talið vafalaust, að þeir muni sameinaðir bæta viS sig allmörgum þingsætum. —Mbl. GOODWILL DAY. arefnum, sem jafnan er haldið viS af laufnum, sem árlega falla af trjánum og verða oftar að næring- arefnum til að halda þeim við. Lauf trjánna sem vaxa í borgunum eru þar á móti gegnsósa af reyk. Efist einhver um þetta þarf hann ekki annað en taka trjálauf rétt eftir rigningu og nugga því við skyrtu- ermina sína. En það er ekki aðeins sótið og reykurinn, sem er trjánum óholt, heldur einnig gasið og enn fleiri lofttegundir, sem stöðugt sækja að trjánum í borginni og vinna þeim tjón og eiga bílarnir þar mikinn hluta aS máli. Segja má aS rúmt sé um borgar tréð, ef það hefir niu fet af jörðu, sem ekki er steinlögð. Þegar ræturnar ná undir steininn eða asfaltið þá kemst ekki vatnið að þeim til að vökva þær og heldur ekki sú nær- ing, sem laufin leggja til eða þá einhverskonar áburður. Þau tré, sem ræktuð eru í skemtigörðum, eSa smærri görðum viS íbúðarhús- in, eiga við hið sama að stríða, en aðeins ekki í jafn stórurn stíl. Þau Síðan 1922 hefir árlegur há-1 lifa í sama óholla andrúmsloftinu tíðisdagur verið haldinn í ýms-jOg þótt þessir garðar séu ekki um löndum, hinn 18. maí, sem steinlagðir, þá er grasið næstum nefndur er “Goodwill Day”. Til-; æfinlega slegið og laufunum er gangurinn er sá, að glæða samúð j rakað saman og þau flutt burtu. og bróðurhug meðal mannanna, Jarðvegurinn er vanalega þur og hvar sem þeir búa og hvaða þjóð sem þeir tilheyra. Þessi dagur er á miðvikudaginn í næstu viku, og verður hans minst hér í Win- nipeg, meðal annars með sam- komu, sem haldin verður í Cent- harður og trjánum óhentugur og mikill skortur á hollum næringar- efnum fyrir þau. Borgartrén eiga viS margskonar sjúkdóma að striSa og verða oft fyrir meiðslum, en það eru þó bara smámunir í saman- ral Congregational kirkjunni og burði við skortinn á næringu, þar hefst kl. 3 e. h. Ræður verða ( sem þeim er varnað að njóta henn- fluttar og söngvar sungnir. Kon-1 ar frá sínum eigin laufum. þar sem ur af ýmsum þjóðum verða þar trén úti í skógunum geta notið klæddár sínum þjóðbúningf og j allrar þeirrar næringar óhmdrað. meðal íslenzkar konur. j Vitanlega má bæta toluvert ur þar á Vafalaust verður þessi samkoma bæði uppbyggileg og ánægjuleg, og er því æskilegt, að sem flestar íslenzkar konur sæki hana. Allar konur eru velkomnar. Vesalings borgartréð. þessu með áburði, þegar um tré er að ræSa, sem plöntuð eru í skemti- görSum. En trén á borgarstrætun- um eiga við svo erfið kjör að búa, að það er vafalaust skvnsamlegast að planta þar þeim trjám einum, sem eru sérstaklega hörð og lífseig, því maður getur ekki búist við, að hin, sem viðkvæmari eru haldi lifi Þegar maSur athugar hvað trén j til lengdar, vegna þess hve lífsskil- hafa við að stríða þau sem ræktuð j yrðin eru lítil fyrir hendi. Þegar eru víðsvegar i borgum og bæjum, um þaö er að ræSa að rækta tré í þá furðar matin að nokkurt þeirra ; skemtigörðum og öðritm slíkum skuli halda lífi, segir Dr. Metialf í I stöðum, þá þarf maður jafnan að “Daily Science News Bulletin.” hugsa tuttugu og fimm ár fram á rWashington). Hann segir að það j veginn. Sé tréð veikburða og ekki séu aðeins hinar harðgerðustu og ! líklegt til að lifa nema fáein ár, þá lifseigustu trjátegundir, sem lifaS er langbest að höggva þa^ og planta geti í borgum, þar sem strætin eru ! öðru í staðinp. Á slíkum stöSum öll steinlögð og þar sem kolareyk- ! j)arf maður ávalt aS hafa ungviði ur er mikill og loftiS alt öðruvísi i til að taka við af gömlu trjánum, heldur það er úti í skóginum, í j Seni smátt og smátt hljóta að deyja.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.