Lögberg - 12.05.1927, Side 8
Bls. 8
tiöGB<ERG, FIMTUDAGINN 12. MAÍ 1927.
Til leigu — bjart og rúmgott
herbergi með húsgögnum. Sími
89 180.
Jóns Sigurðssonar félagið, hef-
ir ákveðið að halda Old Timers’
Dance í Goodtemplarahúsinu þ.
19. þ.m. Verður þar ágætur hljóð-
færasláttur, og má yfirleitt búast
við hinni beztu skemtun.
Kvenféiag1 Sambandssafnaðar
heldur Baazar þann 17. og 18. þ.
m., að 631 Sargent Ave.. Verða
þar margir fyrirtaks munir á boð-
stólum; auk þess' verður við mjög
sanngjörnu verði seldur þar
heimatilbúinn matur.
Á laugardaginn í vikunni sem
leið, hinn 7. þ.m., voru gefin sam-
an í hjónaband, Miss Margaret
Ethel Johnson, og Mr. Thomas
Edgar Hall Jolly frá Hartford,
Connecticut. Brúðurin er dóttir
Mr. og Mrs. Thomas H. Johnson,
og fór hjónavígslan fram að heim-
ili þeirra, 18 Rothsay Apts., Win-
nipeg, við sjúkrabeð föður brúð-
urinnar. Séra Björn B. Jónsson,
D.D., gifti.
Hjónavíxla, framkvæmd af Dr.
B. B. Jónssyni að 774 Victor St.:
Oscar K. Magnússon, frá Hnausa,
og Anna K. I. Jóhannsson frá
Riverton, 30. apríL
Mr, og Mrs. F. S. Frederick3on
frá Glenboro, Man., hafa verið í
borginni undanfarna daga.
Séra Albert Kristjánsson hefir
verið útnefndur af hálfu Brack-
enstjórnar flokksins, sem þing-
mannsefni í St. Gorge kjördæm-
inu. Má því gera ráð fyrir, að í
því kjördæmi verði þrír íslend-
ingar í kjöri við næstu kosning
ar: Skúli Sigfússon fyrir frjáls-
lynda flokkinn, Páll Reykdal fyr-
ir íhaldsflokkinn og séra Albert
■Kristjánsson fyrir Bracken flokk-
inn. Liklega verða ekki fleiri
umsækjendur í þessu kjördæmi,
svo maður getur nokkurn veginn
reitt sig á, að það kemúr islenzk-
ur þingmaður á næsta þing frá
St. George, hver sem hann kann
að verða.
Séra N. S. Thorlaksson i Sel-
kirk, gaf saman í hjónaband 15.
marz s.l. þau Indriða Jón Indriða-
son og Miss Sveinbjörðu Jóhann-
esson. Hjónavígslan fór fram á
heimili foreldra brúðurinnar, Mr.
og ' Mrs. Magnúsar Jóhannesson-
ar. Fóru fram ágætar veitingar
á eftir. Er brúðguminn sonur
Sigurðar Indriðasonar í Selkirk,
eins af gæzlumönnum sjúklinga
á Mental Hosuital í Selkirk.
Annan apríl s. I. gaf séra N. S.
Thorlaksson saman í hjónaband
heima hjá sér, þau Ágúst F.
Thidrikson og Miss Runie Reyk-
dal, bæði til heimilis i Selkirk og
verða þar búsett. Brúðguminn er
sonur Ingimundar heitins Þið-
rikssonar, en brúðurin dóttir
Péturs Reykdals á Wpeg Beach.
Gunnar Árnason kom til borg-
arinnar á þriðjudagsmorguninn,
frá Chicago, þar sem hann hefir
verið í vetur hjá Oscari syni sín-
um. Hann gerir ráð fyrir að
vera hér í borginni í sumar.
Kvenfélag Fyrsta lút. safnaðar
heldur Bazaar í samkomusal
kirkjunnar á fimtudaginn og
föstudaginn 19. og 20. þ.m. Sal-
an byrjar kl. 8 á fimtudagskveld-
ið og stendur yfir það kveld. Byrj-
ar svo aftur kl. 2 næsta dag ög
stendur yfir síðari hluta dagsins
0g um kveldið. Eins og æfinlega
verða þar margir fallegir og eigu-
legir hlutir til sölu með mjög
sanngjörnu verði. Sömuleiðis
verður þar kaffi til sölu 09 ýms-
ar aðrar góðgerðir. Allir íslend-
ingar í Winnipeg vita, að þegar
kvenfélagið heldur Bazaar, þá er
þar alt af gott að koma 0g gott
að kaupa það sem félagið héfir
að selja.
GJAFIR TIL BETEL.
The Maple Leaf Cl'eamery Co.,
Ltd., Lundar, á tuttugu og
fimm ára afmæli fél.... 100.00
Gefið að Betel í Apríl:
Stefán Sigurðsson, Wpg .... 2.00
A. S. Bardal, Wpeg......... 5.00
Mrs. Þorv. Sveinsson, Gimli 5.00
Mrs. E. Egilsson, Gimli ........ 3.00
Mrs. Laxdal, Mozart ....... 2.00
Mrs. Halldórsson, Wynyard 4.00
Sæm. Árnason, Gimli........ 2.00
Fyrir þessar gjafir er innilega
þakkað. J. Jóhannesson, féh.
675 McDermot Ave., Wpeg.
Misprentanir í “Andmælum”
Herra ritstjóri, ósköp væruð
þið vænir, blaðamennirnir, ef þið
vilduð gjöra svo vel að leiðrétta
nokkrar prentskekkjur, er skotist
höfðu inn í grein mína “And-
mæli” í Lögb. af 28. apríl, t. a. m.
þessar: “Frásaga á síðustu síðu
blaðsins,” átti að vera æðstu síðii
fjþ. e. fyrstu, mest áberandi hlið
blaðsins: skuggsjá blaðgildisins).
“Samkvæmt dómum” á að vera:
dómnum. “Takast á hendur” á a.
v.: takast á. “Þeirra hlið sé alls
vitnis megin”, á a. v.: vitsins.
Vinsamlegast, Jón Einarsson.
■Skemtisamkoma verður haldin í
Riverton Community Hall, þriðju-
daginn 24. þ.m. til arðs fyrir
mentasjóð Björgvins Guðmunds-
sonar.
Meðal annars hefir hið góð-
kunna listafólk, Prof. og Mrs. S.
K. Hall, og Mr. Paul Bardal, á-
kveðið að taka sér ferð á hendur,
til að skemta á þessari samkomu;
ætti það að vera nægileg hvöt
fyrir fólk að fjölmenna.
Æskilegt væri, að fólk í ná-
granna bygðunum etofnaði ekki
til samkomu penna sama dag, svo
að sem flestir gætu notið þeirrar
ágætu skemtunar, sem ofangreint
fólk er kunnugt fyrir að veita, um
leið og allir sem koma styrkja gott
málefni. Það er ekki á hverjum
degi, sem fólki út um bygðir gefst
tækifæri á svo góðri skemtun, og
ætti það því að fjölmenna.
Séra N. Stgr. Thorlaksson gaf
saman í hjónaband þau Egil S.
Ingjaldsson og Miss Sigríði Á.
Stefánsson, hjúkrunarkonu frá
Winnipeg. Hjónavígslan fór fram
að heimili stjúpa og móður brúð-
gumans, Mr. og Mrs. Magnús Jó-
hannesson^ Agnes ISt., Selkirk.
Brúðhjónin fóru sama kveld með
lestinni frá Winnipeg til Tan-
tallon, þar sem Mr. Ingjaldsson
á búgarð.
Þann 28. apríl s.l. gaf séra N.
Stgr. Thorlaksson í Selkirk saman
í hjónaband þau Bjarna Jónsson
Skagfjörð og Miss Mörthu K.
Freeman, bæði frá Selkirk. Hef-
ir brúðguminn búið með móður
sinni, Mrs. Helgu Skagfjörð, ekkju
Jóns heit. Jónssonar Skagfjörð.
Brúðurin er dóttir Björns Free-
mans, verkstjóra á Dredge í Sel-
kirk. Hjónavígslan fór fram á
heimili prestsins.
H'inn 4. þ. m. dó á Almenna
spítalanum hér í borginni, Miss
Elin Freemann, til heimilis að 934
Sherburn St., 59 ára að aldri.
Jarðarförin fór fram á Iaugar-
daginn, 7. maí, frá Fyrstu lút
kirkju, undir umsjón A. S. Bar-
dals útfararstjóra. Séra Björn B.
Jónsson, D.D., jarðsöng.
Þau Mr. og Mrs. Jónatan Magn-
ússoh, að 1828 Lincoln St., Broök-
lands, urðu fyrir þeirri sorg að
missa son sinn, á fyrsta ári, hinn
6. þ.m. Jarðarförin fór fram á
mánudaginn í þessari viku.
ROSE THEATRE
Fimtu- föstu- og laugardaginn
í þessari viku
Pola Negri
Hotcl Imperial
Laugard. Matinee aðeins
Richard Talmadge í
PRINCE of PEP ágaetis leikur
Mánu- þriðju- og miSvikudag
í næstu viku
Stórkosílegur leikur
“THE MIDNIGHT
SUN”
Allir beztu leikendur
Athygli skal hér með dregin að
auglýsingunni um Piano Recital
það, er hr. Ragnar H. Ragnar
heldur með nemendum sínum í
Y.W.C.A; byggingunni á Ellice
ave., þann 19. þ.m., klukkan hálf-
níu að kveldinu. Við samkomu
þessa aðstoða með söng, hin á-
gæta söngkona, Miss Rósa Her-
mannsson, er stundað hefir nám
í vetur hjá einni beztu söng-
kenslukonu borgarinnar, Miss
Lightcap, og söngvarinn góð-
kunni, Mr. Árni Stefánsson. Ætti
fólk að fjölmenna á samkomuna.
því búast má við uppbyggilegri
skemtun.
íslenzki söngflokkurinn, Ice-
landic Choral Society, undir for-
ystu Mr. Halldórs Thórolfssonar,
hélt samsöng í Fyrstu lút. kirkju,
síðastliðið 'þriðjudagskveld, við
svo mikla aðsókn, að hvert sæti
var skipað.' Lét fólk óspart í
ljós ánægju sína yfir söngnum.
Nánar í næsta blaði.
Frekari fregnir af þátttöku ís-
lendinga í hljómlistarsamkepni
Manitobafylkis, verða að bíða
næsta blaðs, sökum þrengsla.
Lífsábyrgðarfélögin
og yngingartilraunir.
Atburður hefir nýlega gerst í
Ungverjalandi, »sem vakið hefir
mikla athygli og minnir, þó und-
arlegt sé, ofurlítið á svipaðan at-
burð hér á íslandi, sem gerðist
fyrir stuttu, og allir muna eftir.
Ungverji einn hefir farið í mál
við lífsábyrgðarfélag nokkurt út
af því, að það neitar að borga
honum æfirentu hans. Hætti það
útborgunum 1. febrúar síðastlið-
inn, eða strax og það fékk að vita
um, að maðurinn hafði látið gera
á sér yngingartilraunir og orðið
sem nýr maður. — Heldur félag-
ið því fram, að ef menn taki upp
á þessu athæfi, þá verði það frá-
gangssök fyrir öll lífsábyrgðarfé-
lög að takast á hendur að borga
mönnum æfirentu, því alt af geti
svo farið, að sá sem yngdur er,
lifi mörgum árum lengur en
læknirinn sem skoðaði hann,
gerði ráð fyrir.
Maðurinn, sem farið hefir í mál
heldur því aftur á móti fram, að
jafnan hljóti lífsábyrgðarfélag að
taka á sig nokkra áhættu, þegar
það skuldbindur sig til að greiða
einhverjum æfirentu, því enginn
geti lofað því, að deyja á ein-
hverjum ákveðnum tíma. Og hann
spyr lífsábyrgðarfélagið að því,
hvort það mundi ekki vera því
samþykt, að einhver, sem hefði
vátrygt sig hjá því upp á lífstíð,
léti gera á sér yngingartilraunir,
svo iðgjalda borganir hans yrðu
máske miklu fleiri en ella, og út-
borgun miklu siðar.
Það er sagt svo, að máli þessu
sé fylgt með athygli hvar sem lífs-
ábyrgðarfélög starfa, því það sé
mjög þýðingarmikið, hvernig lit-
ið verði á þetta mál af dómurum.
—Mbl.
Á annað hundrað ungra manna
sóttu síðasta fund íþróttafélags-.
ins “Sleipnir” hér í borginni.
Voru það flest íslendingar. Held-
ur félagið fundi í Goodtemplara-
húsinu á hverju mánudagskveldi,
kl. 7.45. Hinn nýi kennari fé-
lagsins, hr. Haraldur Sveinbjörns-
son, er væntanlegur til borgar-
innar um næstu mánaðamót.
^ESE5ESH5ESE5ESE5E5E5ESESE£E5H5E5E5E5E5ESH5HL5E5ESHSESE5E5E5E5E5E5E5E!qi
Leikurinn Tengdapabbi
-Q
í verður sýndur í Glenboro 12. og 13. þ.m., að Brú
þann 17. og í Baldur þann 19.
Tj
Leikurinn hefst í Glenboro klukkan 8 bæði kveldin,
en 8.30 á báðum hinum stöðunum.
Aðgangur 50c fyrir fullorðna, en 25c. fyrir börn.
FJÖLMENNIÐ!
5H5HSH5H5HSH5H5H5HSH5HSHSHSHSH5HSH5H5H5H5HSH5H5H5H5H5H5HSHSH5H5H5HSH5H5
Ábúðarjarðir til sölu.
í íslenzku bygðunum í Saskatchewan.
Vér kaupum lönd, skiftum þeim og
seljum. Vér erum umboösmenn fyrir
Hudson’s Bay lönd. Upplýsingar
gefnar samstufidis. SkrifiS eftir vor-
um nýja Farm Land Catalogue.
SkrifiS McMilIan, Needham and j
Sinclalr Limited, Saskatoon, Sask.
WONDERLAND.
“Eagle of the Sea” heitir kvik- í j
myndin, sem sýnd verður á
Wonderland leikhúsinu, fimtu-|
dag, föstud. og laugard. í þessari i
viku. Myndin er sögulegs efnisj
og sýnir hún Andrew “Old Hic-j
kory” Jackson, herforingja í ó-j
ófriðnum 1812 og síðar forseta
Bandaríkjanna, og Jean Lafitte,
hinn ófyrirleitnasta sjóræningja,
sem sögur fara af. Hinn fyr- \
nefnda leikur hinn ágæti leikari
George Irving, en hinn síðara
Ricardo Cortez og gerir það svo
vel, að flestum mun finnast að
þeir sjái þar Lafitte sjálfan.
THE
WONDERLAND
THEATRE
Fimtu-Föstu- og Laugardag
ÞESSA VIKU
The
Eagle of the Seas
Romance on the High Seas
ThrilU, sea fights, old lace, crinoline
Napoleon, the Spanish Main, the
crossbones, midnight revels, love in
moonlight gardens.
Aukasýning
The Fire Fighters
Mánu-Þriðju-og Miðv.dag
The
Prince of Tempters
með
Louis Moran og Ben Lyon
DÁN ARFREGN.
Hinn 24. marz síðastl. andaðist
að Maryl Hill P.O., Sigríður Ei-
ríksdóttir, kona Halldórs Þor-
steinssonar. Hún var 77 ára, er
hún lézt. Foreldrar hennar voru
Eiríkur Magnússon og Guðný
Bjarnadóttir kona hans. Bjuggu
þau lengi í Másseli í Jökulsár-
hlíð í Norður-Múlasýslu.
Halldór og Sigríður giftust ár-
ið 1890, og bjuggu fyrst um nokk-
ur ár á íslandi. Til Ameriku
komu þau 1903 og fluttu beina
leið til Álftavatnsbygðar og hafa
dvalið hér síðan, og áttu þannig
sinn þátt í frumbyggjalífi því,
sem veitti nýlendu þessari vöxt
og þroska. — Ekki lét hún mikið
á sér bera utan heimilis, en ann-
aðist því betur heimili sitt, og
skyldustörf. Trúarbrögðum Sín-
um, er hún nam sem barn, sýndi
hún trygð til dauða.
‘ Hún var jarðsett 31. marz. At-
höfn þá framkvæmdi sá, er lín-
ur þessar ritar, samkvæmt hinstu
ósk hinnar látnu. H. J. L.
Exchange Taxi
Sími B-500 $1.00 fyrir keyrslu
til allra staða innan bæjar.
Gert við allar tegundir bif-
reiða, bilaðar bifreiðar dregnar
hvert sem vera vill. Bifreiðar
geymdar.
Wankling, Millican Motors, Ltd.
ROSE CAFE
641 Sargent Ave. Winnipeg
Nýjasta oj? fullkomnasta, íslenzka
kaffi og matsöluhúsið í borginni,
Fyrirmyndarskyr, kaffi, pönnukök-
ur og ramfslenzk rjómaterta.
Asta B. Sœmundsson
A. SŒDAL
PAINTER and DECORATOR
Contractor
Painting, Paperhanging and
Calsomining.
475 Toronto St. Ph.: 34 505
The Viking Hotel
785 Main Street
Cor. Main and Sutherland
Herbergi frá 75c. til $1.00
yfir nóttina. Phone J-7685
CHAS. GUSTAFSON, eigandi
Ágætur matsölustaður í sam-
bandi við hótelið.
^#################################
Dr. Gibbs í Selkirk hefir verið.
útnefndur sem þingmannsefni | j
frjálslynda flokksins við næstu j
fylkiskosningar, í Kildonan og St. j
Andrews kjördæminu.
Séra Jónas A. Sigurðsson og
frú Stefanía kona hans áttu tutt-
ugu og fimm ára giftingarafmæli
hinn 26. apríl síðastliðinn. Safn-
aðarfólk séra Jónasar hélt þeirft
hjónum þann dag samsæti, sem
svo að segja alt íslenzka fólkið í
Þingvallanýlendunni tók þátt í.
Voru þeim gefin við það tækifæri
mjög vandaður silfur borðbúnað-
ur (Tea Service) af safnaðarfólk-
inu og öðrum vinum.
J. Olson frá
samsætinu, sem var mjög á
«HXHXHXHXHXHXHXHXHXHXHXHXhXHXkXHXHXHXHXBXHXHXHXHXHXH>
Piano Hljómleika
heldur Mr. R, H. RAGNAR með nemendum sínum á
Fimtudaginn 19. Maí nœstkomandi
í Y.W.C.A. byggingunni á Ellice Ave.
Miss Rósa Hermannson og Mr. Árni Stefánsson
aðstoða með söng.
$50.00 verðlaun
Ef Mér Bregst að Græða Hár.
ORIENTAL HAIR
ROOT HAIR GROWER
Frægasta hármeðal í heimi. Sköll.
óttir menn fá hár að nýju. Má
ekki notast þar sem hárs er ékki
æskt,
Nemur brott nyt í hári og aðra
hörunds kvilla í höfðinu. $1.75
krukkan.
Umboðsmenn óskast.
Prof. M. S. Crosse
839 Main St., Winnipeg, Man.
Hefst stnndvíilega kl. 8.30 e.h.
Þér fáið beztu
handsaumuð föt
með því að finna að máli
Tessler Bros.
Aðgangur 50c. m í Ave. Sími27951
Séra Carlll
Wynyard stýrði! aL5a5asasa5a5a5asa5'a5asa5'a5S5asa5a-5a5a5a5Wasasa5a5a5a5a5asasa5a5a5asa51
C. J0HNS0N
hefir nýopnað tinSmiðaverkst-ofu,
að 675 Sargent Ave. Hann anr>
ast um ait, er að tinsmíði lýtur og
leggur sérstaka áherzlu á aðgerði*
á Furnaœs og setur inn ný. Sann-
gjarnt verð, vönduð vinna og lip-
ur afgreiðsla. Sími: N-0623.
Heimasími — N-8026.
ROSi: HBMSnCHING SHOP.
G leyrrrið ekki ef þl8 ihafiS, sanma
eSa Hemstichinig eða þurfið aS láta
yfirkliæða hnappa áð koma meS
það tiil :804 Sarsent Ave.
S&rsrtakt athyg'li veitt mail ordörs.
VerS 8c bómrulil, lOc silki.
HELGA (iOODMAN. eigandl.
Blómadeildin
Nafnkunna
Allar tegundir fegurstu blóma
við hvaða taekifæri sem er,
Pantanir afgreiddar tafarlaust
Islcnzka töluð í deildinni.
Hringja má upp á sunnudög-
um B 6X51.
Robinson’s Dept. Store,Winnipeg
“Það er til Ijósmynda
smiður í Winnipeg”
Phone A7921 Eatons opposite
W. W. R0BS0N
317 Portage Ave. KennedyBldg
ÞJÓÐLEGASTA
Kaffi- og Mat-söluhúsið
sem þessl borg hefir nokkurn tíma
baft lnnan vébanda slnna.
Fyrirtaks máitlðir, skyr,, pönnu-
kökui, rullupyísa og þjóörsaknis-
kafík — Utanbæjarmenn fá sé.
ávalt fyrst hressingu á
WEVKt CAFE, 692 Sargent Ave
3imi: B-3197.
Rooney Stevens, eigandi.
GIGT
Ef þu hefir gigt og þér er llt
bakinu eöa I nýrunum, þá gerðir
þú réct I aö fá þér flösku af Rheu
matic Remedy. pað er undravert
Sendu eftir vitnisburðum fólks, sem
hefir reynt það.
$1.00 flaskan. Póstgjald lOc.
SARGENT PHARMACY Ltd.
709 Sargent Ave. Phone A3455
LINGERIE VERZLUNIN
625 Sargent Ave.
Látið ekki hjálíða að líta inn í búð
vora, þegar þér þarfnist Lingerie
eða þurfið að láta hemistitcha.
Hemstitching gerð fljótt og vel.
lOc Silki. 8c.Cotton
Hár Lrullað og sett npp hér.
MltS. S. GCNNLACGSSON, KtgaoAl
Talsími: 26 126
Winnipeg
G. THQMAS, C. THQRLAKSON
Við seljum úr, klukkur og
ýmsa gull og silfur-muni,
ódýrar en flestir aðrir.
Allar vörur vandaðar og
ábyrgðar.
Vandað verk á öllum úr
aðgerðum, klukkum og
öðru sem handverki okkar
tilheyrir.
Thomas Jewelry Co.
666 Sargent Ave. Tals. 34 152
DRS. H. R. & H. W. TWEED
Tannlæknar.
406 Standard Bank Bldg.;
Cor. Portage Ave. og Smith St.
Phone A-6545 Winnipeg
Meyers Studios
224 Notre Dame Ave,
Allar tegundir Ijós-
mynda ogFiImsút-
fyltar.
Stœrsta Ljósmyndastofa í Canada;
nægjulegt. Allmargir gestir frá
Wynyard og víðar úr Vatna-
bygðunum voru einnig viðstaddir. i
Mr. og Mrs. Gúðmundur Árna-
son, sem í allmörg undanfarin ár
hafa búið í Ashern, Man., hafa
nú flutt til borgarinnar.
Nýkomin er á markaðinn, bók
ein allmikil og merkileg, eftir hr.
Aðalstein rithöfund Kristjáns-
son, er nefnist “Svipleiftur sam-,
tíðarmanna”, 310 blaðsíður að
stærð, með bráðvel sömdum for-j
mála^ftir séra Jónas A. Sigurðs-
son, ásamt kvæðum um Theodore
Roosevelt og Woodrow Wilson í
íslenzkum þýðingum eftir Steph-
an G. Stephansson og Einar P.
Jónsson. Fylgir þar og með
frumsamið kvæði um Robert M.
La Follette, eftir ó. T. Johnson.
Um tuttugu myndir prýða bók
þessa, sem í alla staði er hin
vandaðasta að frágangi.
er
félaginu,
Ungmenna-söngkenslan
sem hr. Brynjólfur Þorláksson, söngstjóri, hefir tekið að
sér í Vatnabygð á þessu sumri. byrjar:
í Wynyard, langardaginn 28. Maí
“ Foam Lake, snnnudaginn 29. Maí
“ Leslie, mánudaginn 30. Mai
“ Elfros, þriðjudaginn 31. Maí
“ Mozart, miðvikudaginn 1. Júní
‘‘ Kandahar, Fimtudaginn 2. Júní
F. h. Þjóðrækni.deildin “Fjallkonan"
^ STJÖRNARNEFNDIN,
ChXhXhXhXhXhXhXhXhXhXhxhXhXbXhXhXhXhXhXhXhXhXhXhXhXhXí
llEI»aíaEHEI!aEMSHESia53SKSIXlStSEHSMaiaEMEIHgHSHSSf5StSE!aBM»eS5EHEMBH
H
S
ta
s
Bókin 11
prentuð hjá Columbia Press j §
fæst þar til kaups ^
og
fyrst um sinn. ; Kostar $3.00 í i g
bandi.
M
I
Trúboðsfélag kvenna í Fyrsta
lut. söfnuði er að undirbúa mjög
merkilega myndasýning, er jap-
anskur mentamaður skýrir bg
haldin verður 8. júní. Nánar
verður frá þessu skýrt síðar.
Þegar vorið kemur
þarf alt að endurnýjast og fágast.
Reynið verk vort,
sem alt er ábyrgst
Fötum breytt og annast um 'aðgerðir
FORT GARRY
Dyers and Cleaners Ltd.
Phones: 37-061 37-062 37-063. 324 Young Str, Winnipeg
A Strong Reliable
Business School
MORE THAN 1000 ICELANDIC STUDENTS HAVE
ATTENDED THE SUCCESS BUSINESS
COLLEGE OF WINNIPEG SINCE 1909.
It will pay you again and again to train in Win-
nipeg where emplojunent ls at its best and where you
can attend the Success Business College whose
graduates are given preference by thousands1 of em-
ployers and where you can step right from school
into a good position as soon as your course is finished.
The Suc.cess Business College, Winnipeg, is a strong,
reliable school—its superior service has resulted in
its annual enrollment greatly exceeding the combined
yearly attendance of all other Business Colleges in
the whole province of Manitoba. Open all the year.
Enroll at any time. Write for free prospectus.
i
■
s
g
*
NSH3MSHSH3H3HSH3HSMSHSHSHXHSHSH3HSH3HSHSHSH3HSHSM3HSR
BUSINESS COLLEGE, Limited
3851/2 Portage Ave. — Winnipeg, Man.
SE5E5ESEÍ E^SESESESESESESESESESEí 5? :itó.‘-i5E5ESE£ESE5E5H5E5E5ESESHF
=•> —
Frá gamla landinu,
Serges og Whipcords
við afar sanngjörnu
verði.
Sellan & Hemenway
MERCHANT TAILORS
Cor. Sherbrook og William Ave.
Phone N-7786
CANADIAM MCIFIC
NOTID
Canadla.n Paclfio elmskip, þei?ar þét
ferðlst til gamla landslns, Islanda,
eCa þegar þér sendiS vinum yðar far-
gjald til Canada.
Ekki hækt að fá betri aðbúnað.
Nýtlzku skip, útibúin með öllum
þeim þægindum sem skip má velta,
Oft farið & milll.
FargjaJd á þrlðja plássi iriilll Can-
ada og Roykjavíkur, $122.50.
Spyrjist fyrir um 1. og 2. pláss far-
gjald.
LeltiB frekari upplýslnga hjá um-
boðsrnanni vorum á ata’Bnum «8»
skrifið
W. C. CASEY, General Agent,
Canadian Padfo Steamshlps,
Cor. Portage & Main, Wlnnlpeg, Man.
eða H. S. BardaJ, Sherbrooke St.
Winnlfæg