Lögberg - 06.10.1927, Side 3
LÖGBÐRG, FIMTUDAGINN 6. OKTÓBER 1927.
Bla. S.
Máttur sólar.
J?yrirlcstur fluttur af Jónasi Krist-
jánssyni héraðslœkni í Kvcnnaskól-
anum á Blönduósi nm sumartnálin
1925.
Flestir munu hafa heyrlt ^etið
þeirra þjóÖa, er eldsdýrkendur voru
kallaðar. Þær voru í raun og veru
sólardýrkendur og tignuÖu eldinn,
sem ímynd sólarinnar. Þessar þjóð-
ir stóÖu að mörgu leyti á lágu menn-
ingarstigi, en þær höfðu samt veitt
því eftirtekt, aö sólin er uppspretta
og viðhald alls, sem lifir á jörðinni,
þótt ofurmagn sólarhitans eyði-
leggi sumstaðar allan jurtagróður,
þar sem regn og vatn vantaði til
þess að vökva og draga úr áhrifum
hins brennandi sólarhita.
Sumir fomaldarmenn, forfeður
vorir, þeir er voru best siðaðir og
vitrastir, trúðu á þann er sólina
Fafði skapað, og fólu önd sína hon-
um, er þeir lögðu af stað í hina
hinstu för, leiðina, sem liggur út
yfir endimörk þessa lífs. Þessir
menn höfðu líka fengið vissu fyrir
■því, að sólin væri uppspretta og
viðhald alls, sem lifir, og þess vegna
hlyti sá að vera máttugur og gæsku-
ríkur ,sem sólina hefði skapað.
í hinu gullfagra Eddukvæði
“Sólarljóðum” segir svo á einum
stað: “Sól ek sá; svá þótti mjer
sem sæak göfgan goð; henni ak
laut hinzta sinni alda heimi í.”
Þegar menn rannsaka og athuga
sólarljósið eftir því, sem vísindaleg
þekking á því leyfir, þá birtist
mönnum heill heimur fullur drott-
ins dásemdarverka. Sólargeislarnir
eru fyrst og fremst uppspfetta og
fyrsta orsök nærri þvi allrar orku
á jörðu vorri, svo að segja hverr-
ar tegundar sem er. Sólin hefir nú
um óendanlega margar aldaraðir
helt yfir jörðina steypiflóði orku
og yls í mynd sólargeisla. Ekkert
verður að engu. Mikið af þessari
orku hefur safnast fyrir og myndað
heil lög í jarðskorpunni. Það er
þessi orkuforði, sem notaður er,
þegar skipin eru knúin áfram yfir
höfin eða gufúvagnar og bílar yfir
landið, með því að kynda í þeim
annað hvort kolum eða olíu. Það
er líka orka sólarinnar, sem veldur
því, að unt er að nota vindinn til
þess að sigla skipum yfir höfin,
eða að nota fossaflið til kraftfram-
leiðslu, t. d. til framleiðslu á raf-
orku.
Vér vitum að orka sú, er menn -
og dýr fá úr fæðunni, er orka sól-
argeislanna. Blaðgrænkan á grösum
og jurtum höndlar sólargeislana og
geymir þá. Með öðrum orðum,
fæða manna og dýra er að miklu
leyti ekki annað en sólarljósið breytt
í fast efni. Hvaðan kom ljfið til
jarðarinnar eða á hvern hátt? Það
vita menn ekki. Vísindin hafa, enn
sem komið er, a8 eins komið fram
með getgátur um það. Hitt vita
menn, að fyrst lengi vel, hefir jörð-
in verið svo heit, að á henni gat
ekkert lif þrifist, en þegar hún
kolnaði, fór að geta þrifist líf á
henni. Það lif hefir að vísu verið
fábreytt og ófullkomið í fyrstu. En
hvaðan kom lífið fyrst, eða hvernig
varð það til? Sennilegt er að það
hafi fyrst orðið til fyrir skapandi
öfl sólargeislanna, á sama hátt og
sólin eykur enn þá sífelt marg-
breytm alls þess sem lifir, þó sú
framþróun fari afarhægt, svo hægt,
að vér getum tæplega orðið þess
vanr á voru skamma æfiskeiði.
Einna einföldust tegund lífs, sem
ver þekkjum, er amöban, örlitill
shmkekkur. Þessi litli slimkekkur
hefir þó lí.fræna byggingu, tekur til
sm fæðu, í honum verða einnig
efnaskifti, þó i ófullkomnara mæli
sé en hjá dýrum, sem komin eru
hærra i sköppnarstiganum. Smám
saman hefir( bygging líffæranna
orðið margbreyttari og tegundirnar
fleiri. Hvert líffæri hefir tekið að
séra eitthvert ákveðið starf i þjón-
ustu einstaklingsins. Þannig eru
augun í Iægstu dýrum aðeins örlít-
ill dökkur blettur, þakinn fínni húð,
Gott Fyrir Heilsulítið
og Taugaveiklað Fólk.
Fólk, sem er heilsulítið, tauga-
veiklað, máttfarið og kjarklítið,
ætti að.nota Nuga-Tone, því það
er ágætis meðal til að byggja upp
líkamann. Meðal þetta hefir að
geyma. átta af þeim efnum, sem
visindin hafa fundið að nauðsyn-
leg eru til þess að blóðið verði
rautt og heilbrigt, taugarnar
styrkar og heilsan haldist í góðu
lagi, eða nái sér, ef hún er farin
að bila.
_ Nuga-Tone er sérstaklega gott
við alla konar magaveiki, melting-
arelysi, gasi í maganum og
veikindum í nýrunum og lifr-
inni og fleira þess konar. Það
byggir upp allan Ifkamann, veitir
endurnærandi svefn, losar mann
við höfuðverk. og ýmsa fleiri
kvilla, og veitir þér aukinn áhuga
og dugnað og gerir líkamann
sterkari, svo hann hefir meira
mótstöðuafl gegn sjúkdómum. —
Fáðu þér Nuga-Tone í einhverri
lyfjabúðinni. Því fvlgir full á-
byrgð um að bú verðir fyllilega
ánægður með það, eða nen'ingun-
um er skilað aftur. Neitaðu eft-
irlíkingum, þvf ekkert getur jafn-
ast við Nuga-Tone.
viðkvæmri fyrir áhrifum ljóssins.
Fjölbreytni náttúrunnar hefir þann-
ig vaxið frá fyrstu tímum sköpun-
arinnar, og hún heldur áfram enn
þann dag í dag.
Maðurinn er fullkomnasta vera
jarðarinnar. Líffæri hans eru full-
komnust að gerð, sérstaklega heil-
inn og taugakerfið. Hann hefur
þess vegna yfirburði vitsins fram
yfir önnur dýr. Það er óhætt að
fullyrða, að maðurinn er ekki siður
en alt annað lifandi kominn út úr
sólarljósinu og til orðinn fyrir á-
hrif þess. Svo að segja sprottinn
upp úr jarðveginum fyrir áhrif
hinna skapandi krafta sólarljóssins,
aðeins ekki jarðfastur eins og tré í
skógi, heldur megnugur þess að
hreyfa sig og taka sér næringu úr
umhverfi sínu, þar sem hún er fyrir
hendi.
Sólin er allstaðar höfð sem tákn
birtu og yls, lífs og þróunar. Skáld-
in hafa vegsamað hana og kveðið
henni lof í yndisfögrum kvæðum.
T. d. “Ó, blessuð vertu sumarsól,”
“Blessuð sólin elskar alt” .... o. fl.
Þegar stofublóm eru sett út í
glugga, þar sem sólar nýtur, beygja
þau blóm sín og blöð í áttina til sól-
arinnar. Þau reyna að teyga sem
mest af geislum hennar. Á kvöld-
in loka 'blómin krónum sínum, eins
og þau búist við að falla í svefn.
En þegar hinir vermandi geislar
morgunsólarinnar gægjast inn um
gluggann, er eins og þau vakni. Þau
opna krónur sínar og breiða blöð
sín sem best á móti sólargeislunum,
til þess að njóta þeirra, eins og þau
vildu fagna ástvini útbreiddum
faðmi. Þannig hefur sólin vakið alt
til lífs á jörðunni, jafnframt því, að
hún viðheldur og endurnærir alt,
sem lifir, bæði jurtir og dýr. Að
vísu þarf meiri skilyrði til þróunar
öllu lífi en geisla sólarinnar, svo
sem jarðveg eða næringu, vatn eða
raka og loft eða súrefni, að öðrum
kosti brennir sólin allan gróður.
Efalaust hafa flestir veitt þeim
blómum eða grösum eftirtekt, er
vaxa í ónógri birtu, eða á sólarlitl-
um stöðum. Þau verða fölari en
önnur grös, hafa minni blaðgrænku
en þau grös og blóm er vaxa i sterk-
ari sólarbirtu. Að því leyti Svipar
blaðgrænkunni í grösum til rauðu
blóðkornanna í blóði dýra. Þær
jurtir, sem vaxa og lifa í ónógu
sólarljósi bera þess menjar á marga
lund. Þær verða linar og veiklu-
legar, ekki ósvipað börnum, sem al-
ast upp í þröngri, ljóslítilli og rakri
kjallaraholu. Þau börn fá bein-
kröm, eru blóðlítil og föl vegna
skorts á sólarljósi. Þannig er sólar-
ljósið jafn mikil lífsnauðsyn bæöi
jurtum og dýrum til vaxtar og
þrifa.
í hörundi þeirra manna, sem
dvelja að staðaldri í sterku sólar-
ljósi, myndast litarefni, svo þeir
verða dökkir á hörund. Plöntur
þær, er alast upp í sterku sólskini
fá líka sterkari grænan lit en ella,
á svipaðan hátt og litarefnið (V\g-
ment) myndast í hörundi manna,
vegna áhrifa sterkra sólargeisla.
Blaðgrænkan í jurtum og grösum
höndlar sólarljósið, safnar því sam-
an og notar það sem orkusafn til
þess að þær geti unnið sitt ætlunar-
verk. Það er talið að litarefnið í
horundi manna og þær frumur, er
því safna, hafi svipaða þýðingu
fyrir menn. Vér tölum oft um
kraftaverk, sólin vinnur kraftaverk
á hverjum degi, allstaðar þar sem
hún skín.
Sólarljósið styður á tvennan hátt
að þrifum, þroska og velliðan allra
dýra, og er þeim beinlínis lifsskil-
yrði. 1. með því að orka beint á þau
sjálf og umhverfi þeirra. 2. með
fæðunni, sem til er orSin vegna á-
hrifa solarljossins á jurtirnar.
Að því er fyrra atriðið snertir,
þá lifir engin skepna til lengdar sé
hún með öllu svift áhrifum sólar-
ljóssins. öll þau dýr, sem andann
draga, þurfa að and að sér hreinu
lofti, lofti, sem sólargeislarnir hafa
farið í gegn um, hreinsað og vermt.
Andrúmsloft, sem ekki hefur orðið
fyrir áhrifum sólarljóssins, er kall-
að dautt loft, og er vanalega ban-
vænt, ef sólarljósið hefur ekki náð
að verka á það í langan tíma, og
það ekki orðið fyrir hreyfingu. Þar
að auki verka sólargeislamir hress-
andi, lífgandi og vermandi á öll
dýr með skini sínu. Þeir magna
því orku í líkan hátt og þegar raf-
geymir er hlaðinn raforku, er svo
má taka til þegar nauðsyn krefur.
Sólargeislarnir örfa öll ^fnaskifti
líkamans, og sérstaklega þó þeir
geislar þess, sem kallaðir em ultra-
violettir geislar. Efnaskifti líkamans
eru daufari og tregari í myrkri en
í birtu, sérstaklega í sterku sólskini.
Gerlar og sýklar þola miklu ver
bein áhrif sterkra sólargeisla, held-
ur en holdið og frumur þess, sem
þakið er húð. Á því byggist lækn-
ing berklaveiki með sterkum sólar-
geislum. 'Hinsvegar styrkja sólar-
geislarnir allar frumur líkamans,
og færa þeim viðbótarorku, svo að
efnaskifti líkamans eða lífsbraninn
verður miklum mun öflugri en ella.
Ljósið á lampa lífsins brennur með
skærajri loga og meira krafti, svo
menn njóta lífsins í miklu fyllri
mæli en ella. Á þessu byggjast all-
ar ljóslækningar. Niels Finsen not-
áði fyrstur lækna sólargeislana til
þess að lækna berklaveiki og gerði
margar tilraunir um áhrif sólar-
geislanna á lifandi verur.
En sójskinið og veðráttan er stop-
ul í flestum löndum, þó mismun-
andi sé. í sólríkum löndum, svo
sem Svis3, hafa verið reist hæli fyr-
ir berklaveika, og hefur fengist
mjög góður árangur af því. Enn-
fremur hafa menn framleitt ljós
með raforku, ljós, sem að mörgu
leyti líkist sólarljósinu, þó ekki
komist til jafns við það. Sem slík
ljós má nefna Fjallasólina eða Ku-
artslampann og Kolabogaljósið.
Þessi ljós era hin mesta hjálp í bar-
áttunni við berklaveikina. En eng-
inn skyldi ætla, að þessi ljós taki
sólarljósinu fram að læknandi
krafti og sem orkugefandi lind fyr-
ir heila og sjúka. Þessi tjós, sem
menn búa til, og kynda raforku,
eru aðeins eftirlíking og léleg stæl-
ing eða uppbót sólarljóssins, en
dýrmæt þó, þar sem aðaluppsprett-
una brestur eins tilfinnanlega eins
og á voru sólarsnauða og kalda
landi. í þessu sambandi má geta
þess, að sólskin gegn um gler kemur
ekki að fullum notum vegna þess,
að vanalegt rúðugler sleppir ekki
fjólubláu eða ultraviolettu geislun-
um í gegn um sig, en þeir geislar
eru lang kröftugastir til lækninga,
og sem orkugjafi. Þess vegna kem-
ur það ekki að fullum notum að
hafa stóra glugga í húsum. Kvarts-
glerið, sem kvartslamparnir era
búnir til úr, sleppa aftur á móti
bláu geislunum gegnum sig, en það
gler er bæði dýrt, og brothætt mjög.
Læknum er það vel ljóst, hvaða
áhrif það hefur á börn og unglinga
ef þau ala mestan hluta aldurs síns
í sólarlitlum og rökum húsakynnum,
t. d. kjölluram. Áhrifin verða hin
sömu og á grös og blóm, sem vaxa
upp á dimmum stöðum. Börnin
verða óhraust, blóðlítil, fá beinkröm
og ýmisleg vanþrif, sem stafa af
skorti á hinum skapandi krafti sól-
argeislanna. Þessum börnum er
miklu hættara, að öðru jöfnu, við
að fá berklaveiki, og það jafnvel
þó þau hafi sæmilegt fæði. Bein-
kröm er allmikið tíðari í þeim lönd-
um, þar sem er eyjaloftslag og mik-
ill loftraki, en þar sem sólar nýtur
vel. Svipað má segja um berkla-
veiki, þó margt komi þar fleira til
greina. ísland er svo norðarlega á
hnettinum, að sólargeislarnir, sem á
það falla eru dreifðir og strjálir.
Þess vegna er oss nauðsyn á, að
geta notið sem best þeirra sólar-
geisla, sem oss falla í skaut. En
mikið vantar á að vér njótum þess-
ara gæða, sem að oss era rétt, svo
sem unt væri. Vér lifum í sólar-
litlum, köldum og rökum húsa-
kynnum, og er óhætt að telja það
eina orsökina til hinnar útbreiddu
berklaveiki hér á landi. Berklaveik-
in hefur verið kölluð “Hvíti dauð-
inn.” Hún er sjúkdómur skuggans
og sólarleysisins. Orsökin til hinna
bágbornu húsakynna hér á landi er
ekkr eingöngu fátækt, heldur þekk-
ingarskortur, og lágt menningará-
stand. Margir hafa leitast við að
bæta húsakynni sín í sveitum lands-
ins síðustu árin, og kostað miklu fé
til, en sum af þeim húsum hafa
reynst jafnvel lélegri bústaðir en
görwlu bæirnir voru, sem þeir rifu,
vegna þess að nýju húsin reyndust
bæði köld og rök, þó bjartari væru.
Þessu olli þekkingarskortur.
Þá kem eg að hinu síðara atrið-
inu, þrifum þeim, er fæðan veitir
líkamanum. Það hefir verið tekið
fram, að öll fæða, bæöi dýra og
manna, væri til orðin og mynduð
fyrir áhrif sólarljóssins á plönt-
urnar. Menn neyta annað hvort
plöntufæðu eins og hún kemur fyr-
ir í náttúrunni, eða vér látum dýr
neyta henna fyrst, og étum svo hold
dýranna, látum dýr breyta jurtum
og grösum í mjólk og kjöt. Til þess
að fæðan geti kallast holl og heil-
næm, verður hún að innihalda næga
sólarorku. Að öðram kosti megnar
hún ekki til lengdar að viðhalda
líkamaniim, endurnæra hann og
bæta honum upp það slit og þá
eyðslu er efnaskifti og erfiði hafa
í för með sér. Ef mikið brestur á
þessa orku, fara efnaskifti líkamans
út um þúfur, lifsbraninn verður
dapur og daufur. Ljósið á lampa
lífsins dvínar og deyr að síðustu.
Það köllum vér sjúkdóm og dauða.
Á hinum síðustu árum hafa
menn orðið margs vísari um þau
efni, sem á útlendu máli eru köll-
uð “Vitamina,” en sem eg kalla hér
lífgjafaefni. Af þeim eru nú þekt-
ar 4 tegundir. Lífgjafaefnin koma
fyrir í blaðgrænku allra jurta og
grasa. Þaðan fá dýrin þau. Þau
safnast saman í líkama þeirra og
koma fyrir í mjólkinni, svo ung-
viðin fá strax með móðurmjólkinni
nægilegt af lífgjafaefnum sér ti
vaxtar og þrifa. Sýnir þetta meðal
annars hversu náttúran er hög og
forsjál í búskap sinum.
* 1 öllum korntegundum og ávöxt-
um er meira og minna af lífgjafa-
efnum, og koma þau næstum ein-
göngu fyrir undir hýðinu á korn-
inu eða ávöxtunum. En hvað er
svo þetta, sem við köllum “lífgjafa-
efni,” þetta kynjasamband eða
kynjaefni, sem er næstum því álíka
nauðsynlegt fyrir alt, sem lífsanda
dregur, og sjálft lífsloftið eða sól-
arljósið? Þessu er að miklu leyti
ósvarað ennþá. Það er langt frá því
að vísindin hafi rannsakað það til
hlítar. En ekki virðist nein fjar-
stæða að segja, að vitamina eða líf-
gjafaefni séu að miklu leyti "mate-
rialiserað” sólarljós eða sólargeislar
föstu formi og bundnir í efni.
Lífgjafaefnin hafa sams konar þýð-
ingu fyrir þrif líkamans og sólar-
geislarnir á líkamann og umhverfi
hans. Því það er þegar löngu kunn-
ugt, að ekkert dýr lifir til lengdar
ef lifgjafaefnin eru annað' hvoirt
tekin burtu úr fæðunni eða eyði-
lögð á einn eða annan hátt. Það
er kunnugt, að lífgjafaefnin hafa
vald á eðlilegum vexti og þrifum
ungra dýra, og stjórna yfir höfuS
efnaskiftingum likamans, svo lífs-
bruni allra dýra verður á hverfanda
hveli ef fæða þeirra inniheldur ekki
nægilega mikið af þessum lifs-
elexír.
Sólargeislarnir eða sólarorkan
verkar því á menn og málleysingja á
tvenns konar hátt, eða bæði útvortis
og innvortis, bæði með beinni út-
vortis geislun og svo með innvortis-
geislun fyrir áhrif lífgjafaefnanna í
fæðunni. Áhrif sólargeislanna verða
xmnig á allan líkamann í heild
sinni. Menn, dýr og jurtir, eða alt
lifandi, er til orðið fyrir áhrif sól-
arorkunnar. Það má svo að orði
kveða, að maðurinn sé genginn út
úr sólarljósinu. Það er líka sólar-
Ijósið, sem fóstrar hann og fóðrar
og elur önn fyrir honum á alla
lund meðan hann Iifir.
Framh.
brunaelifarnar voru alls óhreyfð-
ar þar undir. Getur verið, að Sig-
urður hafi komist niður á gólf I
eldhús'i, sem þarna hefir staðið
síðar og leifar fundust af ofar.
Þar fann eg seyði, sem síðan hef-
ir verið bygð eldstó ofan á og voru
þar ýmsar brunaleifar í kring eft-
ir eldamensku. En ekki hefir Sig-
urður komið alveg þar niður á,
því að þetta var óhreyft. Ef til
vill hefir hann grafið niður við
hliðina á eldastónni og komið þar
niður á torfösku og brunaleifar
frá mateldun.
Fornleifarannsóknir
á BergþórshvolL
Þeim er nú lokið á þessu sumri.
Frásögn Matthíasar Þórðar-
sonar, þjóðminjavarðar.
Matthías Þórðarson þjóðminja-
vörður, er nýkominn til bæjarins
austan frá Bergþórshvoli, og er
hættur rannsóknum þar á þ essu
sumri. Kom hann ekki alveg tóm-
hentur, því að hann hafði með-
ferðis rúmlega 20 kassa fulla af
allskonar gripum, sem hann hef-
ir grafið úr jörðu þar eystra.
Morgunblaðið hefir átt tal við
Matthías um rannsóknirnar og
spurt hann um ýmislegt, þeim
viðvíkjandi. ,
— Hvað hefir verið grafið
djúpt?
—Gryfjan, sem við höfum graf-
ið á Bergþórshvoli, er yfirleitt 2.30
metra djúp, en prófgryfjur lét
eg gera niður úr þriggja metra
dýpt, eða alveg niður á óhreyfða
jörð. Er þó dálítið misjafnlega
djúpt niður á hana, því að þarna
hefir áður verið ávali á hólran-
anum.
Leifar Njálsbrennu?
—^Fundust nokkrar leifar Njáls-
brennu?
—Rétt norðaustan við hið eigin-
lega bæjarstæði komu fram mjög
glöggvar brennuleifar svo djúpt
niðri, að kalla má að þær séu á ó-
hreyfðrii jörð. Var brunalagið um
5--15 cm. þykt. Þama fundum við,
auk rafta og viða, kornstengur og
korn, jafnvel heil öx. Hús þetta
hefir snúið frá suðvestri til norð-
austurs, eða nær þvert við þau
bæjarhús, sem hafa staðið þarna
hjá síðar. Suðvesturendinn var ó-
glöggur, hefir eitthvað verið
hróflað við honum, en fyrir norð-
austurendann fór eg ekki alveg,
Nær hann út undir grafarbakk-
ann, sem var nú Orðinn allhár
þarna. Er það ætlun mín, að
þarna hafi staðið útibúr eð korn-
skemma, og að kornið, sem við
fundum, sé íslenzkt bygg, sem
ræktað var hér í fornöld.
Tel eg miklar líkur til þess, að
brunaleifar þessar starfi frá Njáls
brennu, þar sem hús þetta hefir
staðið á óhreyfðri jörð, svo að
segja, og árdiðanlega brunnið
En aðrara minjar frá Njálsbrennu
fundust ekki, svo fullvíst verði
talið. Ef bær Njáls hefir verið á
þessum hól, hefir hann staðið
sunnar, þar sem nú er kálgarður-
inn fyrir sunnan og útsunnan
nýja íbúðarhúsið.
—Hvar gróf Sigurður Vigfús-
son, eða funduð þér grafir hans?
—Ekki gátum Við fundið nein-
ar skýrar minjar eftir grafir Sig
urðar Vigfússonar, er hann gróf
að húsabaki 1883 og 1885; en þeg
ar gryfjubakkinn fór að þorna
virtist hann bera annarlegan og
sérstakan lit á einum stað, 0g má
ver, að það stafi frá greftri Sig-
urðar, enda á sVipuðum stað og
mælt er að Sigurður hafi grafið,
Er það nærri því rétt yfir bruna
rústunum, en ekki mun Sigurður
hafa grafið svo djúpt, því að
Leirkerið.
—Hvað segið þér oss um Is-
lenzka leirkerið?
—Úti undir norðurhorni gryfj-
unnar fann eg le'irkerið, sem áð-
ur hefir verið getið. Er það gert
úr mjúkum, ljósbleikum leiri á
þann hátt, að leirnum hefir verið
hnoðað í gróf, sem gerð hefir ver-
ið í gólfið. Kerið er alveg heilt,
og eins og frá því var gengið, því
að það hefir haldist rakt í vætu
úr jarðveginum. Menn vissu ekki
til þess áður, að slík ker hefði ver-
ið gerð hér á landi. Þarna hefir
sennilega verið smiðja, og kerið
notað undir vatn til að kæla eða
herða járn í. Þar var mikil aska
umhverfis og eldbrunnar hellur,
og aska var í kerinu sjálfu. Rétt
hjá voru tvær grófir, önnur hring-
mynduð, en hin aflöng. Hefir
ekki verið hnoðað leir innan í
þær, en málmsteypusandur virtist
vera í annari. Eftir því sem mæl
ingar 0g rannsóknir á svæðinu
benda til, mun kerið og grófirnar
vera frá því um 1200.
Því miður er ekki hægt að flytja
kerið á safnið, því að það mun alt
molna sundur er það þornar.
Verður því að láta nægja myndir
af því, eða afsteypu.
Það, sem fundist hefir.
—Hvað er merkast af því, sem
fundist hefir?
Alls hefi eg skrásett 716 nú-
mer af fundnum munum og er
fjöldi þeirra úr steini. Meðal þess
merkasta er fundist hefir af mun-
um, má nefna skyrsáina, sem áður
er getið, og þrjú kerför önnur,
sem fundust djúpt í jörð. Var eitt
)eirra mjög stórt, en hin tvö, sem
eru rétt hjá, eru lítil. Utan um
stóra kerið og annað litla kerið,
hefir verið látinn sandur, en utan
um hitt leirmold fyrst og sandlag
jar fyrir utan og Undir. Kerför
)essi hafa haldið sér fullkomlega
eins vel og sáirnir, og sáust leifar
af gjörðunum innan í þeim. —
Þykir mér ekki ólíklegt, að ker
jessi hafi verið notuð til ölgerð-
ar á sínum tima.
Þá eru rauðablástursgrófirnar
ekki síður merkilegar, sérstaklega
hin stærri, sem í var járngrýtið.
Seyðamir eru og mjög merki-
legir. Hafa þeir geymst svo vel,
að fyrirkomulag þeirra sást alt
glögt 0g vita menn nú hvernig
seyðar hafa verið í fornöld. í
Njálsbrennu er getið um seyð í
frásögunni um brennuna: “Þá
sagði Skarphéðinn: Eld kveykið
þér nú sveinar, eða hvárij skal nú
búa til seyðis? Grani Gunnars-
son svaraði: Svá skal þat vera og
skalt þú eigi þurfa heitara at
baka.”
Seyðin og rauðablástursgrófirn-
ar verður því miður ekki hægt að
varðveita og verður að láta sér
nægja myndir og lýsingar af
þeim.
*Var þar mikilli ösku at moka.”
—Funduð þér fleiri brunaleif-
ar?
— Syðst í grófinni komum við
niður á afarþykt öskulag, en það
er ekki með vissu frá Njálsbrennu
nema því að eins, að askan hafi
verið færð þarna saman við rann-
sóknir eða byggingar. Þyknaði
lag þetta er sunnar dró og sýnir
að hólnum hefir á þeim tíma hall-
að þar til suðurs. öskulag þetta
nær suður undir kálgarðinn, og
varð eigi enn rannsakað alt. Get-
ur verið, að það stafi frá Njáls-
brennu og hafi þá bærinn staðið
þar sem kálgarðurinn er nú, eða
jafnvel vestar en við grófum. Það
má sjá það á yfirborðinu fyrir
vestan gryfjuna, að bæjarhús
hafa stundum náð lengra vestur
en á seinustu öld; þótt þar sé nú
gróið tún, mótar enn fyrir húsa-
tóftum. Er því ekki síður ástæða
til þess að rannsaka hól'inn lengra
vestur, heldur en þar sem nú hef
ir verið rannsakað, og eins sunn
an og austan við húsið.
Ýmsar fornminjar.
Það yrði of langt mál, að telja
gripi þá, sem eg fann, en geta má
vetlingar, slitur af sokk og ef til
vill strútur af hettu úr vaðmáli.
Margt af þessu fanst í gömlura
sorpgryfjum — þær fundust þrjár
— og má vera að það hafi varð-
veizt þar betur fyrir fúa, heldur
en ef annars staðar hefði lent.
Húsaskipan
þarna á hverjum tíma má sjá
nokkurn veginn, en ekki hve oft
hefir verið bygt eins. Gólfskánir
fundum við margar og mismun-
andi, en það var ekki ætíð gott aí
átta sig Ijóslega á þeim. Bæj-
arhúsin hafa staðið þarna.á sama
stað öld eftir öld. Fyrst hafa hús-
in verið hvert við endann á öðru,
en á seinní tímum hvert við ann-
ars hlið. 1
Rannsókninni er nú lokið í sum-
ar og verður grófin látin halda
sér, nema hvað eg mun láta setja
mold yfir leirkerið, ef ekki næst
góð mynd af því eða gott mót.
* * *
Eins og sjá má á þessu, hafa
rannsóknirnar á Bergþórshvoli í
sumar borið stórkostlega mikinn
árangur, enda þótt þær hafi ekki
fyllilega leitt í ljós enn hvar
bær Njáls hefir verið. En sjálf-
sagt verður rannsóknunum þarna
haldið áfram. Má vísa um það til
álits H. Kjær, sem þirtist hér í
blaðinu, hve mikil nauðsyn er %
því að halda rannsóknunum þarna
áfram þangað til að öll kurl eru
komin til grafar.—Mbl. 2. sep.
NSHXHIHHjXHSHSIIStiSHSHIHXKSHIHtHIKISHSHINEflSHIilZHSHXHXJI
Fire Prevention Week
October 9th to 15th, 1927.
Fire is either an indispensable friend or a vicious enemy,
according to the way we treat it. Whilst fire has many ad-
vantages, when combined with carelessness, it is the most
dangerous enemy with which we have to deal.
Carelessness is the cause of 70% of our fires, and the aim
of Fire Prevention Week is to impress upon the public con-
sciousness the enormity of our fire waste to the end that coft-
ditions may be improved and fire carelessness eliminated.
Therefore, prevent fire in your home. Remove all waste.
Do not take risks. Better be safe than sorry. CULTIVATE
CAREFULNESS.
MANITOBA FIRE LOSS
H
X
H
S
H
s
H
H
S
H
H
S
N
S
H
■
I
|
K
S
H
S
s
H
S
H
55
M
55
H
HSHSHSHXHSHXHXHXHXHSHSHSHSHSHSHSHSHXHXHSHXHXHXHXHSHSH
þess, að í neðstu lögunum fanst
ýmislegt merkilegt, svo sem stein
lampi eða stéinkola, heil og mjög
vel gerð úr móbergi, og er með
stétt undir. Er hún að öllu vand
aðri en aðrar steinkolur, sem
fundist hafa hér á landi.
Það sem fanst af málmleifum
var mjög ómerkilegt. Sýnist svo
sem málmgripir hafi geymst miklu
ver í jörðu þarna heldur en ann
að. Djúpt fanst t. d. nokkuð af
spýtum og margskonar vefnaði
sem var furðu lítið fúið. Flikur
vor þetta að vísu, ekki nema belg-
Total loss Bs- X
timated by Per Capita Lives Losses Actually §
Year Dominion Loss Sacrificed Paid by Insur- H
Fire ance Companies M
Commissioner s N
1922 .. $3.300,000.00 $5.26 30 $2,893,036.00 *
1923 .. 3,722,630.00 5.84 9 2,952,998.00 g
1924 .. 3,174,296.00 4.91 8 2,547,788.00 *
1925 .. 2,637,430.00 4.02 14 2.097,790.00 *
1926 .. 2,449,186.00 3.73 9 1,750,058.00 x
Seventy lives lost and over fifteen million dollars wasted
by fire in five years.
Help to reduce this terrible sacrifice of human lives and
wasted dollars by being careful!
Published by authority of HON. W. R. CLUBB,
Minister of Public Works and Fire Prevention Branch.
H. McGRATH,
Provincial Fire Commissioner, Winnipeg.
x
H
X
■
X
K
X
H
X
H
H
X
55
H
X
H
Það eru 2 vegir til að
kaupa brúkaðan bíl
1. —Að fara úr einum stað í annan og
eyða tíma, kaupa svo bíl frá hinum
og þessum ókunnum, sem ef til vill
er ekki hægt að reiða sig á.
eða
2. —Þegar þér eruð í Winnipeg, að fara
þá beint til elzta og bezt þekta bif-
reiðafélagsins í Canada, THE Mc-
LAUGHLIN MOTOR CAR COM-
PANY, LIMITED
Þér keyptuð beztu kerruna hjá okkur, og
nú getið þér fengið hjá oss bezta bílinn.
1925 Star Sedan ...... $695
1924 Maxwell Sedan .... 770
1925 Essex Coach ...... 545
1924 Chevrolet Touring 345
1924 Oakland Touring ... 595
1924 Oakland Four Pass
Coupe ............... 795
1824 Hudson Coach..... 795
1921 Willis Knight .... 695
1921 Nash Touring ..... 650
1926 Oldsmobile Sedan $995
1925 McLaughlin Master
Six Coach...........1250
1923 Studabaker Light
Six Touring ........ 550
1922 McLaughlin S i x
Touring ............ 450
1925 Dodge Coupe ...... 850
1923 Spec. Six Studabekar
with winter top .. 650
1923 McLaughlin 7 Pas-
senger Touring ..... 800
Ef þér kaupið hjá oss bíl, og framvísið þeis-
ari auglýsingu, þá endurgreiðum vér járn-
brautarfargjald yðar.
Show Room & llsed Car Lot Used Car Stiow Roooi
Cor. Maryland and Portage
216 Fort Street.