Lögberg - 27.10.1927, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 27. OKTÓBER 1927.
Bla. S
m DODD'S ■'»
Ikidneyj
i,;pillsJ
!HPimejJ£ý<ch
Dodds nýrnapillur eru beata
nýrnameðalið. Lækna og gigt feak-
verk, ihjartabilun, þvaffteppu og
önnur veikindi, sem stafa frá nýr*
unum. — Dodd’s Kidney Pilla
kosta 50c askjan eða s«x öskjur
fyrir $2.50, og fást hjá öllu'm lyf-
sölum eða frá The Dodd's Medi-
cine Company, Toronto, Canada.
atrorku, heldur haldið honum við
og bygt ofan á hann og aukið við;
eru fá dæmi þess, að systkini hafi
jafn vel haldið saman og varð-
veitt pundið, sem faðirinn fékk
þeim til að ávaxta, eins og Ara-
sons systkinin. Þeir bræður
standa í fremstu röð mestu mynd-
arbænda bygðarinnar.
Teir bræður, Halldór og Skúli
Árnasynir og Guðmundur Norð-
mann, námu land austast í bygð-
inni. Þangað fluttu þeir nú, Skúli
og Guðmundur strax, og fóru að
búa um sig á löndum sínum. Hall-
dór var þá ekki kominn til land-
náms síns. Verður þeirra bræðra
nánar getið síðar. Þeir voru all-
ir dugnaðarmenn og mestu mynd-
armenn, og hafa allir gert íslenzka
bændagarðinn frægan hér í Mani-
toba.
Þorsteinn Jónsson á Hólmi.
Á því sama herrans ári, er þeir
Skafti Arason, Sigurðnur Chris-
tophersson, Skúli Árnason og Guð-
mun'dur Norðman, lögðu upp í
leiðangurinn til Argyle, 1881, tók
sig upp annar hópur, en seinna
um vorið, til þessa nýja landnáms
Islendinga vestur í fylki. í þeim
hópi var Þorsteinn frá ísólfsstöð-
um á Tjörnesi í Þingeyjarsýslu,
Björn Jósephsson frá Vestara-
landi í Axarfirði, og Halldór Árna-
son, sem áður hefir verið getið og
frægur er orðinn fyrir griparekst-
urinn frá Nýja íslandi til Parson-
age við Pilot Mound með Frið-
birni S. Friðrikssyni árið áður.
Þorsteinn Jónsson, sem hér um
ræðir, sem flestir Vestur-fslend-
ingar kannast við, var, þegar hér
er komið sögu, kominn á fimtugs-
aldur. Kom hann til Nýja fs-
lands 1879 og átti að baki sér all-
merkilega sögu; var nafntogaður
glímumáður, búhöldur og sjóvík-
ingur. Hafði hann stundað sjó-
mensku sem formaður norður við
heimskautsbauginn og barist við
hinar geigvænlegu öldur Norður-
íshafsiris og borið sigur úr být-
um, og borið feng stóran að jafn-
aði úr skauti þess heim í bú sitt,
á Einarsstöðum í Núpasveit og ís-
ólfsstöðum á Tjörnesi, hvar hann
síðast bjó. Var hann hið mesta
heljarmenni að burðum og lík-
amsþroska, og hefði hann verið
uppi á hetjuöldinrii, hefði hann
óefað1 lagt ungur í víking og á-
valt borið sigur úr býtum, en samt
á drengilegan hátt. Honum hefir
ekki verið gjarnt um dagana, að
bera lægri hlut í einu eða öðru,
hvorki í hinu daglega starfi lífs-
ins, né heldur þegar kom til líkn-
arstarfs eða félagsmála alment.
Þorsteinn bjó góðu búi og farn-
aðist vel heima á ættjörðinni, og
þurfti ekki að flýja land fyrir það
að hann sæi bjargarskort fram-
undan. En það1 var hetjulundin
og æfintýraþráin, sem kallaði
hann ut yfir hafið, út á ókunna
stigu, eitthvað til þess að berjast
og sigrað, eitthvað meira og stór-
fenglegra heldur en það, sem
hann þurft'i að berjast við heima.
Það er eðli frumherjanna á öllum
sviðum lífsins, að hræðast ekki,
en sækja á móti óveðri lífsins, og
slíkir menn hafa orðið beztu borg-
arar landsins hér og mestu menn-
irnir.
Þorsteinn Jónsson var ekki rík-
ur, eftir nútíðar mæl'ikvarða, þeg-
ar hann kom til Canada; mikið af
eigunum fór í ferðakostnað, en
þó mun hann hafa átt nokkuð og
verið í tölu þeirra, sem bezt voru
staddir er hingað kom. En það,
sem hann átti, gekk til þurðar í
Nýja íslandi. Þá voru erfið ár,
þar voru bágindi og fátækt mik-
il, og maður eins' og Þorsteinn gat
ekki upp á horft annað en hjálpa.
Hann bjó á Hólmi fyrir vestari
Gimli, nálægt Dvergastéini, þar
sem Skúli Árnason bjó. Leizt
honum ekki á framtíðarhorfunar
í Nýja fslandi, og afréð um vor-
ið 1881 að flytja til Argyle. Lagði
hann á stað í félagi við þá, sem
áður voru nefndir, með' þann litla
f’utning, sem hann hafði og sjö
nautgripi, sem var aleigan.
Keypti hann það, sem hann nauð-
synlega þurfti til ferðarinnar,
hjá Friiðjóni Friðrikssyni, sem þá
var kaupmaður á Gimli. Pen'inga-
laus var hann, er hann lagði á
stað; bað hann kunningja sinn,
er hann hugði þess megnugan, að
lán sér $5.00, en hann gat ekki
eða vildi, svo Þorsteinn varð að
bjargast sem bezt hann gat. Var
lagt á stað frá Nýja fslandi, og
var Halldór Árnason formaður
fararinnar; var hann forframaður
sfm áður er sagt og hinn mesti
dugnaðar og framkvæmdarmaður
cg skynsamur vel. Áttu þessir
menn allmikla svaðilför til Win-
nipeg, því vatnið stóð þá hátt og
bleytur voru miklar. Urðu menn
að vaða vatnselginn, hvar sem
farið var; lækjarsprænur, sem
nú eru, voru þá vatnsmiklar ár,
sem örðugt var að komast yfir.
Urðu þeir, sem búpening ráku, að
reka skepnurnar á sundi yfir sum
þessi vatnsföll, er beljuðu fram
með fullum krafti.
* * *
Prentvillur eru allmargar í rit-
gjörð þessari í síðasta blaði. Þess-
ar eru skaðlegastar: Á 5. bls., 1.
dálki, 17. línu: “sem kallaði huga
fjölda margra á Suðurhluta Nýja
fslands”, en á vera: sem kallaði
huga fjölda margra í suðurhluta
Nýja íslands; og á sömu bls., 2.
dálki, 41. I.: “Skafti Arason, sem
síðar varð mesti bændaöldungur
Vestur-fslendinga”, en á að vera:
Skafti Arason, sem síðar varð
mesti búnaðarhöldur Vestur-ís-
lendinga. G. J. 0.
Feneyjar.
Nikulás ábóti á Múnka-Þverá
var maður orðhagur. Meðal ann-
ars bjó hann til íslenzk nöfn á
nokkrum erlendum borgum. Ekki
þýddi hann nöfnin, heldur ís-
lenzkaði þau öðruvísi. Basel varð
hjá honum að “Buslaraborg”, en
úr Venezia var “Feneyjar.” —
Hvað snertir Buslaraborg, þá má
sennilega deila um hve réttmætt
nafn það sé — en kýminn hefir
ábótinn veriið. Aftur á móti
“Feneyjar” er svo vel valið heiti
á borginni við Adriuhafið, að
betra er ekki hugsanlegt.
Það var seint um kvöld í miðj-
um janúarmánuði 1920 að eg kom
til Feneyja. Dimt var og drunga-
legt yfir, svartamyrkur alt í
kring. Samferðafólkið var þreytt
og þegjandalegt, því fátt var eins
þreytandi og að aka langr leið-
ir í járnbrutarlest. En svo birti
smátt og smátt yfir. — Það voru
glampar af ljósunum frá Fen-
eyjum.
EftirJ stutta. Mund erum við
komin þangað, lestin staðnæmist
og við flýtum okkur út úr vagn-
inum. Þar var ys og þys og þar
ægði saman mörgum tungumál-
um. Mest bar á ensku, frönsku og
þýzku og höfðu margir hátt. En
hæst allra hrópuðu þó burðar-
karlarnir ítölsku og flyktust að
ferðafólkinu til að fá eitthvað
að gera, koma farangrinum niður
úr vögnunum og í bátana o. s.
frv. Nú var eftir að finna gisti-
húsið, og það var ekki árenni-
legt, því ógjörningur var að rata
fyrir ókunnuga að kvöldi dags.
Eg afréð því að ná í “gondól” og
láta róa með mig yfir á gistihús-
ið við “Canal Grande”. Það gekk
vel að ná í gondólinn og svo héld-
um við í áttina. En þessi siglinga-
leið var frábrugðin öllum þeim
sem eg hafði áður farið. Kol-
svartamyrkur var á og rétt ein-
stöku ljós sást í myrkrinu og
draugalegt þótti mér á þeirri
leið. Eftir þriðjung stundar vor-
um við komnir að tröppum gisti-
hússins og eg steig á land. Þá
var eftir að gjalda ferjutollinn og
20 líra setti karlinn upp. Mér
þótti það ærið m'ikið, greiddi það
þó, en karlinn stjakaði frá landi
glaður í bragði. Seinna komst eg
að því, að karlinn hafði reiknað
sér meira en tífalt gjald fyrir
vikið.
Eg hélt síðan inn í g'istihúsið
og svaf vært um nóttina, og er
eg vaknaði morguninn eftir var
glaða sólskin og þá ljómuðu Fen-
eyjar í #llri dýrð sinni.
Feneyjar! — Hver hefir ekki
heyrt Feneyjar nefndar? Senni-
lega eina einkennilegustu og feg-
urstu borg jarðarinnar; bygð á
eyrum og hólmum úti í lóninu
mikla (Lagune venezia) nyrst við
Adriuhaf. — Árnar á Norður-
ítalíu hafa borið feiknin öll af
aur og leðju út í sjóinn og mynd-
að eyjarnar. trt í þær flutti fólk-
ið frá Norður-ítalíu og bygði sér
ból þar til þess að hafa frið fyr-
ir Langbörðum, sem sí og æ herj-
uðu þar um slóðir. Feneyjalón
eru um 40 km. á lengd, en frá 10
til 15 km. á breidd og borgin
stendur rúml. 4 km. frá landi.
Járnbrautarbrú, mikið mannvirki,
hefir verið bygð þangað, svo nú
má aka alía leið til borgarinnar.
En hún er bygð á eyrum, sem
síðan hefir verið skift í 118
hólma eða smáeyjar og á þeim
eru húsin bygð. Voru staurar
gríðarstórir reknir á kaf niður í
leðjuna, hver við annan, síðan
lagðar hellur stórar þar á ofan
og á þeim grunni voru húsin
bygð.
í borgarsíkjunum er víða tals-
verður straumur, sem ber öll ó-
I hreinindi burt úr borginni.
Gegnum endilanga borgina
skerst síkið mikla — Canal
Grande — í laginu eins og S, og
um 4 þúsund m. á lengd. En út
frá Canal Grande gengur aftur
fjöldi síkja um alla borgina.
Sumstaðar eru gðtur milli síkj-
anna og húsanna, en víða standa
húsin alveg út við síkin og eru þá
tröppur frá þeim og beint út í
sjó, þar sem gondólar ög pramm-
ar geta lagst við.( Yfir síkin eru
bygðar brýr, alls um 400 og eru
þær úr marmara flestar, og fagr-
ar og fornar að útliti. Víða eru
stór og fögur torg, telst svo að
þau séu 200 í Feneyjum, stór og
smá. Yfir Canal Grande eru
bygðar 3 brýr, frægust þeirra er
iPonti di Rialto, sem bygð var á
árunum 1588'—91. Hún er bæði
há og bréið og gerð af mikilli list
og beggja megin á brúnni eru
sölubúðir, þar sem slyngir Fen-
eyjakaupmenn bjóða varning
sinn. Aðallega eru þar þó skart-
gripasalar, sem hafa dýrðlega
hluti að bjóða úr gulli og silfri,
og mikið er þar um gull og silf-
urvíravirki, eins og víðar á ítalíu,
þeir hafa löngum verið, ítalir,
gull- og silfursmiðir góðir, bæði
að fornu og nýju.
Glæsilegar eru hinar gömlu
hallir aðalsættanna v ið Canal
Grande, bygðar úr ýmislega lit-
um marmara. Snýr framhlið
húsanna að síkinu og má þar sjá
margskonar byggingarstíl frá
ýmsum tímum og mikið útflúr.
Margar eru framhliðar húsanna
gftiggalausar, en aftur á móti,
fagurlega skreyttar svölum og
súlnagöngum. Víða kemur glögt
fram, hve mikil áhrif hertoga-
höllin hefir haft á gerð aðals-
hallanna. Fyrlr utan hallirnar
úti í síkinu standa margir staur-
ar, venjulega tvílitir, oft hvítir
og bláir o@ speglast fagurlega í
sikjunum þegar logn er. Á staur-
um þessum, sem notaðir eru til
þess að festa gondólana við, voru
áður skjaldarmerki aðalsættanna,
sem hallirnar áttu. En aðalsætt-
ir þær, sem áður lifðu glæstu lífi
í h'inum skrautlegu sölum, eru nú
flestar horfnar úr sögunni og
hallirnar eru gengnar úr ættar-
greipum. Auðmenn ýmsra þjóða
hafa keypt margar þeirra og búa
þar part úr árí. En sumar þeirra
eru nú notaðar í þarfir bæjarfé-
lagsins á einn og annan hátt, t.
d. sem ráðhús, skólar, bankar,
pósthús o. s. frv.
Á Canal Grande er gríðarmikil
umferð, óteljandi gondólar,
prammar og einstöku vélbátar
þjóta fram og aftur um síkið. Og
í stað strætisvagna, sem tíðkast
í öðrum borgum, geungur vélskip
eftir síkinu stóra og staðnæm'ist
hér og þar, til þess að farþegar
geti gengið um borð eða í land.
En þegar prammarnir eru komn-
ir út úr síkinu stóra og út á
Canale di San Marco, sem er
miklu bréiðari; þá vincfe þeir
upp segl, ef byr gefur — topp-
mjóu segl'in sem eru svo einkar-
sérkennileg og sem eg hefi óvíða
séð annarsstaðar en í Feneyjum.
Manni verður starsýnt á gon-
dólana, þeir eru langir og renni-
legir, stafn og skutur liggur hátt,
svo að lítur út fyrir að þeir
naumast snerti sjóinn og er þeim
róið með e'inni ár. Sjómenn áttu
Feneyjar ágæta fyrrum, sem
sigldu dýrum herskipum og kaup-
förum um þvert og endilangt
Miðjarðarhaf. Og þó ekki þurfi
mikla “sjómensku” til að stýra
smábát um borgarsíki, þá var
eftirtektarvert að sjá hve lipurt
og létt gondólunum var stjórnað.
Oft var þröng mikil á síkjunum,
en þó tók eg aldre'i eftir að tveir
gondólar kæmu hvor við annan.
Enda hafa ræðararnir, sumir
hverjir, ekki heldur gert annað
um æfina en að “gondólast” fram
og aftur borgarsíkin.
Síkin eru víða svo mjó, að
bátar geta naumlega mæzt þar.
Húsin eru há með flötum þökum
úr rauðum steini. Mér er minnis-
stætt eitt síkið — Rio Albrizzi —
þar sem hávaxin tré voru ofan á
húsunum og brú á milli húsaþak-
anna yfir síkið. Trén slúta fram
yfir síkið, svo staðurinn er ekki
ósvipaður gljúfri, þar sem vatn
rennur á botninum og bjarkirnar
hafa tylt sér eins framarlega og
komist verður á gilbarminum.
Víða eru götur meðfram síkj-
unum og vanalega er hægt að
fara fótgangandi um borgina
alla.
Eitt af því sem ferðamaður,
sem kemur til Feneyja, tekur
fyrst eftir, er- það, hve öll um-
ferð er kyrlát og laus við allan
skarkala. Eg var nokkra stund
að átta m'ig á hvernig á því stend-
ur. En í Feneyjum er því svo
varið,^ að þar eru engir vagnar.
Bílar, reiðhjól eða önnur ökutæki,
jafnvel barnakerrur eru þar ekki
til. — Við, sem þekkjum hraðann
á ökutaakjunum, stórum og smá-
um, hér í Reykjavík og grendinni
og höfum ef til vill lent í hálf-
gerðum lífsháska á horninu á
Austurstræti og Pósthússtræti,
við finnum fljótt hve þægilegt
það er, að dvelja um stund á þeim
stað, þar sem alt sem á hjólum
rennur, er bannfært..
Eg reikaði um götur Feneyjar,
og eg lét berast með fólksstraumn-
um, því erindi átti eg þá ekki
annað en að taka eftir því, sem
fyrir augun bæri. Fyr en varði,
var eg kominn á opið svæði eða
torg svo fagurt, að eg hefi aldrei
séð annað fegurra.
Þetta var “Piazza San Marco”—
eða Mrkúsrtorg, sem er álitið
h’ið fegursta torg hér í álfu og
jafnvel þó víðar væri leitað. En
alls eru um 200 torg í Feneyjum,
stór og smá. öll eru þau nefnd
‘Campo” eða “Campiello”, aðeins
hin tvö stærstu og glæsilegustu
eru kölluð “Piazza1 og “Piaz-
zettan.”
Framh.
. O O •
« £T FV./V^'L j)
f
f
f
f
f
f
f
f
f
f
❖
f
f
f
f
Y
f
f
Y
f'
f
f
f
♦:♦
’gvwv
Litil Börn-
Gamalmepni, sjúkir, blindir, bilaðir,
Þarfnast hjálpar
Án tillits til trúarbragða eða þjóðernis, eru
þeir sem bágt eiga og heima eiga í Winni-
peg og nágrenninu, fæddir og klæddir,
þeim veitt læknishjálp og þeir gladdir cg
huggaðir af 26 velgjörðafélögum, sem öll
eru hluttakandi í Líknarsamlaginu.
Hvert þetta félag hefir sitt verk að vinna
og þau gera það hyggilega og nákvæm-
ega og sparlega.
Peningar þurfa að fást til þess að félögin
geti haldið áfram líknarverkum sínum ár-
ið 1928.
Viljið þér hjálpa? Viljið þér
styrkja Líknarsamlagið?
é
Gerið yðar hluta.
Gefið örlátlega.
Þátttakendur.
1. Benedictine Orphanage.
2. Canadian National Institute
for the Blind.
3. Children’s Aid Society.
4. Children’s Bureau.
5. Children’s Home.
6. Children’s Hospital.
7. Convalescent Hospital.
8. Federated Budget.
9. Home of the Good Sheperd
and St. Agnes Prior.
10. Home Welfare Association.
11. Infant’s Home.
12. Jewish Old Folks Home.
13. Jewish Orphanage and Child-
ren’s Aid.
14. Joan of Arc Home.
15. Kindergarten Settlement Ass’n
16. Knowles Home for Boys.
17. Mothers’ Association.
18. Old Folks Home.
19. Providence Shelter.
20. St. Boniface Orhapnage and
Old Folks Homee.
21. St. Joseph’s Orphanage.
22. Victoria Hospital.
23. Victorian Order of Nurses.
24. Winnipeg General Hospital.
25. Y. M. C. A.
26. *Y. W. C. A.
Messuboð.
Séra Jónas A. Sigurðsson, prest-
ur iSelkirk-safnaðar, biður þess
getið, að messum í Selkirk, verði
þannig hagað: Sunnudagsskóli á
hverjum sunnudegi kl. 10.30 f. h.
og að í sambandi við'hkólann sé
guðsþjónusta flutt fyrir börn.
Aðal guðsþjónusta safnaðarins
kl. 7 að kveldi. — Þá er það og á-
kveðið, að siðbótarinnar verði
minst, samkvæmt ráðstöfun fram-
kvæmdarnefndar Selkirk-safnað-
ar, þann 30. þ.m. að kveldi og að
sr.mskot og gjafir við þá guðsþjón-
ustu, renni í heimatrúboðssjóð
kirkjufélagsins.
WALKER.
Fíöldi fólks sækir Walker leik-
húsið nú á hverjum degi til að
sjá og heyra hinn mikla töfra-
mann, Ralph Richards. Skemti-
skráin er löng og þar er margt að
sjá og heyra, svo sem margskonar
töfrar, huglestur, hljóðfæraslátt-
ur og dans. Seinni partinn á
föstudaginn verður samkoma hald-
in fyrir konur einar; á laugar-
daginn verður samkoman sérstak-
lega fyrir börn. Síðasta samkom-
an verður á laugardagskveldið.
“Abe’s Irish Rose”, skemtileik-
urinn, sem öllum þótti svo góður
þegar hann var hér áður, verður
leikinn á Walker leikhúsinu mánu-
dágskvöldið 31. okt., og alla þá
viku. Þeir sem séð hafa þennan
leik, muna vel eftir Gyðingapilt-
inum og írsku stúlkunni, sem létu
mótmælendaprest gifta sig og svo
Gyðingaprest og síðast kaþólskan
prest. Það verða nú sömu leik-
endurnir og áður og þarf ekki að
efa, að vel takist. Aðgöngumiðar
eru nú til sölu.'
á WONDERLAÍÍD
Fimtu- FÁjstu- ogr Laugardag
Siglingar« Gamla Landsins
CANADIAN
NATIONAL
hefir sérstakar járnbrautarlestir og svefnvagna í nðvember og desember,
sem koma tU hafnarstaðanna á réttum tíma til að ná í skip, sem sigla
til Bretiands og annara landa i Evrðpu.
ANNAST VERÐITR
UM VEGABRÉF
Tryggiðfar nú
OG FÁIÐ PANNIG BESTA
SEM HÆGT ER AÐ HAFA
LÁGT
FAR
1 DESEMBER
—Til—
HAFNARBÆJANNA
CWtNOiW!
NMiOHM:
The Caraadian Na-
ttonal félagiC selur
farbréf með öllum
skipalínum yfir At-
lantshafið og ráðstaf-
ar öllu viðvikjandi
ferðinni með skipun-
um og jámbrautar-
svefnvögnunum.
EF ÞER EIGIÐ VINI
í GAMLA LANDINU
FARBRÉF
TIL OG FRA
Allra staða
SEM pÉR VILJIÐ HJALPA TIL AÐ
KOMAST TIL pESSA LANDS, PA
KOMID OG SJÁID OSS. VÉR GERUM
ALLAR NAUÐSYNLEGAR RAÐSTAF-
ANIR.
HEIMI
ALLOWAY & CHAMPION
667 MAIN ST„ WINNIPEG, SIMI 26 861
Umboðsmenn fyrir
CANAÐIAN NATI0NAL RAILWAYS
Federated Budget
6th Annual Campaign.
Nóvember 12., 3. og 4.
t
Y
Y
Y
Y
Y
Y
Y
Y
Y
Y
!
I
I
Y
Y
Y
Y
Y
Y
Y
Y
Y
Y
T
♦?♦
♦ ♦:♦
Heim til Gamla Landsins
FYRIR
JÓLÍN O G NÝÁRIÐ
Ferðist með
Sérstakar Lestir
tii
Hafnarstaða
Lág Fargjöld
Allan Desembermánuð
til Hafnarstaðar
FER FRA WINNIPEG Klukkan 10.00 f. m.
„NÁ SAMBANDI VIÐ
JOLA-SIGLINGAR
Frá Winnipeg—
Nov. 23 — S.S. Melita frá
Des. 3 — S.S. Montclare “
Des. 6 — S.S. Montrose “
Des. 11 — S.S. Montnairn “
Des. 12 — S.S. Montcalm “
Montreal — Nov. 25 til Glasgow, Belfast, Liverpool
St. John — Des. 6 “ Belfast, Glasgow, Liverpool
“ — Des. 9 “ Belfast, Glasgow, Liverpool
“ — Des. 14 “ Cobh., Cherb. Southampt.
“ — Des. 15 “ Belfast, Liverpool
I
VID LESTIR í WINNIPEG TENGJAST SVEFNVAGNAR FRÁ ED-
MONTON, CALGARY, SASKATOON, MOOSE JAW OG REGINA og
fara alla leið austur að skipsfjöl.
Frekari upplýsingar gefa allir umboðsmenn vorir
Jity mtNÉ
Cor. Main and Portage
Phone 843211-12-13
PP _ _
City Ticket Office. Ticket Office A. Calder & Co. J. A. Hebert Co.
C. P. R. Station
Phone 843216-17
663 Main St.
Phone 26 313
Provencer & Tache
St. Boniface
CANADIN PACIFIC