Lögberg - 05.01.1928, Side 4

Lögberg - 05.01.1928, Side 4
Bls. 4 LöGiBERG, FIMTUDAGINN 5. JANÚAR 1928. Gefið út hvern Fimtudag af Tbe Col- umbia Press Ltd., Cor. Sargent Ave. & Toronto Str., Winnipeg, Man. TsUiman N-6327 ofi N-6328 Einar P. Jónsson, Editor Gtanáakrift til blaðains: THE SOLUMBIA PRE3S, Ltd., Box 3171, Winnlpog, Utanáakrift ritatjórana: EDÍTOR LOCBERC, Box 3171 Wlnnipog, M&n. Verð $3.00 um árið. Borgist fyrirfram Th« “LCgbarc" la prlntad and publlshad by Tha Columblfa. Prwa, Lómltad, in tha Columbla Bulldlng, SRt Sarirent Ara., Wlnnipeg, Mfcnitob*. * Aramót. Einu sinni enn, hafa vitar hverfanda árs sloknað út, en nýtt ár verið hringt inn í staðinn. Minningar, ýmist svipljúfar eða saknaðarkend- ar, fylgja gamla árinu úr hlaði. Hið nýja ár, er enn að mestu leyti fram undan, og flest það, er í skauti þess er falið, því að sjálfsögðu einn- ig á huldu líka. Þó mæna þangað miljónir manna og kvennu, björtum vonaraugum, því öllum er ljóst,'að hvernig sem lukkuhjólið snýst, þá er reifabarnið, árið 1928, óendanlega þýðingarmikill dropi í framtíðarfnnar mikla. megin sæ, dropi, sem framtíðar hafið má með engu móti án vera. Sérhvert nýtt ár, hlýtur ógrynnin öll af ó- ráðnum draumum í vöggugjöf. Hvernig fram úr þeim ræðst, er að miklu leyti undir oss sjálf- um komið, — hvernig, og með hvaða hjartalagi, að vér gefum oss við þeim liinum mikilvægu málefnum, er úrlauisnar bíða. Hví ekki að setja markið hátt, því ávalt er nógur tími til að hrapa! Við þessi áramót, sem og reyndar öll önnur, hlasa liinar ýmsu liliðar lífsins, vafalaust næsta misjafnt við auga einstaklingsins, — ‘ Einum lífið arma breiðir, öðrum dauðinn réttir hönd. Veikt og sterkt í streng er undið, istórt og smátt er saman bundið.” Ganga má út frá því sem igefnu, að ýmsir felli sölt saknaðartár nú um áramótin, um leið og náttvængjuð sorgin flögrar vfir heimilum þeirra, sökum ástvina missis, örbirgðar eða vanheilsu. Slíkt skal verða hlutskifti hins nýja árs, að veita öllum þeim, er svo er ástatt fyrir, fulltingi sitt og hvetja þá endurvngda og hug- hreysta, til fylgdar á ný við lífið og Mfstilgang- inn mikla. * # # Stofn-þjóð vorri hinni ástkæru, íslenzku þjóðinni heima á Fróni, mun hið nýMðna ár reynst hafa happasælt í góðu meðallagi, eða vel það. Veðráttufar kvað vfirleitt verið hafa, sem þá er bezt lætur, að því einu undanteknu, að vetur gek’k: með fyrra móti í garð, austan- lands og norðan. Afurðir þjóðarinnar voru yfirleitt rniklar og góðar, bæði til lands og sjávar, og mvndu veitt hafa allmikið fé í aðra hönd, ef eigi hefði verið fyrir þá sök, hve er- lend markaðsskilyrði voru lengi vel óhagstæð, einkum og sérílagi hvað sjávarafurðunum við- kom. Á sviði stjórnmálanna, gerðust þau tíðindi markverðust, að stjórnarskifti urðu í landinu. íhaldsflokkurinn, undir forystu Jóns Þorláks- sonar, beið ósigur við almennar kosningar til Alþingis, en bræðingsstjórn var mynduð af svo- nefndum framsóknarmönnum, jafnaðarmönn- um og verkamönnum. Við stjórnarforvstunni tók Tryggvi Þórhallsson, leiðtogi framsóknar- flokksins. Svo skamt er um liðið, frá því er hin nýja stjórn settist að völdum, að eigi er unt í það að ráða, hver áhrif hennar kunni að verða. En óskancli er, að þau verði þjóðarheildinni til blessunar. # # # Hagur kjörþjóðar vorrar, hinnar ungu, glæsilegu canadisku þjóðar, hefir brevzt mjög til batnaðar á ári því, sem nú er svo að segja ný-horfið í aldanna skaut. Þjóðin hefir búið í friði að sínu. Uppskeran varð fevki-mikil, þótt nokkuð kæmi að vísu misjafnt niður, ein3 og oftast nær á sér stað. Aftur á móti var verðlag korntegunda gott, og er hið sama að segja um verð búpenings, sem og fiskiafurða. Með stórtíðindum má það teljast, að sam- bandsstjórnin ákvað að flytja endastöð, eða hafnarstað Hudsonsflóa brautarinnar, frá Port Nelson til Fort Churchill. Þótti mörgum í fvrstu, sem slíkt væri helzti djarft í ráðist, án þess að leggja máMð fyrir þing. En að fengn- um frekari upplýsingum, bæði frá ráðgjafa járnhrautarmálanna, Hon. Charles A. Dunn- ing, sem og hafnarverkfræðingnum, Mr. Palm- er, er rannsakaði nákvæmle.ga háða hafnarstað- ina í sumar er leið, munu flestir orðnir nokk- urn veginn sammála um, að brevting hafn.stað- arins hafi ráðin verið af góðri forsjá. Verð- ur kos-tnaðurinn við hafnargerðina að Fort Churchill, samkvæmt upplýsingum Mr. Duuu- ings, nálega helmingi minni, en ef verkinu hefði haldið verið áfram við Port Nelson, auk þess sem fullgeming hnfnarinnar við hinn nýja stað, tekur helmingi styttri tíma, að því er járnbrautarmálaráðgja.famim segist frá. Sem eina. ómótmælanlega sönnnn þess, hve mjög er nú farið að birta vfir viðskiftaMfinu, og traustið á framtíðarmöguleikum landsins að aukast, má telja stórvúrki þau, sem nvleiga eru hafin í Flin Flon námiahéruðunum í Manitoba, ásasmtt járnbrautarálmu ‘þoirri, tjl þessara málmauðgu héraða, sem nú er þegar tekið að leggja þangað út frá Hudsonsflóa brautinni, skamt fyrir norðan bæinn Pas. Er það nú full- sannað, að í þessum norðlægu héruðum, sé að finna afar auðugar koparnámur, ef til vill þær auðugustu í heimi. Er þess fyllilega að vænta, að fyrirtæki þessi hin risavöxnu, þarna nyrðra, sem og þau önnur, er að sjálfsögðu hljóta að fylgja á eftir, muni reynast Manitobafylki og þjóðinni allri í heild, sönn lvftistöng til auk- innar farsældar. Þann 1. júlí síðastliðinn, voru liðin sextíu ár frá þeiin tíma, er stofnað var hið canadiska fylkjasamband (Confederation of Provinces). Var þess merka atburðar, minst með almennum hátíðahöldum um land alt, er í heild sinni urðu þjóðinni til stór sóma. Mun óhætt mega full- yrða, að hátíðahöldin liafi mjög stuðlað að auk- inni þjóðareining og glætt til muna canadiska þjóðemismeðvitund. Síðast, en ekki sízt, skal þess getið, að á hinu umliðna ári afgreiddi samhandsþingið ýmsar mikilsverðar þingsálýktunartillögur, með hliðsjón af gerðum samveldisstefnunnar i Lundúnum. Glöggvaj þær í ýmsum megin at- riðnm, stjórnarfarslega afstöðu eanadisku þjóð- arinnar til ve'ldisins brezka, og tryggja þjóð- réttindi hennar betur en áður var . Ber nú- verandi samhandsstjórn verðugt lof, fvrir af- skifti hennar af þessn mikilvæga máli. # # * A síðastliðnu sumri, var haldin i! Geneva, hin svokallaða þríveldastéfna, þar sem mættir vora fulltrúar trá Bretlandi, Bandaríkjunum og Japan, í þeim tilgangi að reyna að fá hrund- ið í framkvæmd, takmörkun hervarna á sjó. Var það Bandaríkjaforsetinn, Calvin Coolidge, er átti að því frumkvæði, að kvatt var til móts þessa. Gerði hann sér þegar í öndverðu, góðar ar vonir um heillavænlegan árangur. En nið- urstaðan varð nokkuð á annan veg. Eitt megin málið, sem til umræðu kom, laut að takmörkun beitiskipa, bæði hvað viðkom fjölda og stærð. Varð málið að lökum svo flækt, að því er sagt er, af háilfu hinna svonefndu “sérfræðinga”, er mótið sóttu, að sjálfir þrívelda fulltrúarnir sáu þann kost vænstan, að hverfa heim við svo húið. — Einn af fulltrúum Breta á þrívelda- mótinu, Robert Cecil, lávarður og ráðherra. kvað Baldwinstjóraina að nokkru leyti. bera á- byrgð á því, hvernig til tókst, og sagði þegar af sér embætti, er heim kom. Þó gera menn sér enn vonir um, að tilraunum til sjóvarna- takmörkunar sé enn eigi lokið, heldur verði þær hafnar á ný með vorinu. # # # Atvinnu- og iðnaðarlíf þjóðarinnar hrezku, hefir verið alt annað en ákjósanlegt á ári því, sem nú er rétt um garð gengið. Tala atvinnu- lausra manna, er eitthvað um miljón enn, og daufar horfur á, að hún fari til muna lækkandi á næstunni. Hefir þjóðin, enn sem komið er, hvergi nærri beðið bætur kolaverkfallsins mikla, er svo svarf að henni um hríð, að heita mátti að viðskiftahjarta hennar hætti að slá. En þrátt fyrir það, og sitthvað annað, sem amað hefir að, eru Bretar þó ein af þeim fáu þjóðum, er jafnt og þétt halda uppi afborgunum á lán- um sínum erlendis, þeim er frá stríðinu stöf- uðu. Andspyrnan gegn Baldwinstjórninni kvað svo vera að færast í vöxt, að vafasamt þykir, hvort stjórninni muni kleift revnast, að sitja við völd, kjörtímabil sitt á enda. — Með það fyrir augum, að revna að nálægja hugi verkveitenda og vinnuþiggjenda, og tryggja þar með iðnfrið í landinu, kvaddi Mr. Baldwin til fundar við sig þann 17! oktúber síð- astliðinn, ýmsa helztu iðnfrömuði þjóðarinnar, ásamt forvígismönnum verkamanna samtak- anna. Virtust allir aðiljar á eitt sáttir um það, að svo fremi að þjóðin ætti að geta haldið ó- trufluðum erlendum markaðssamhöndum, þá yrðu framleiðslumálin heima fyrir, að komast í nokkurn veginn sæmilegt ásigkomulag. Maðtir sá, er á áminstum samkomulagsfundi hélt uppi svörum fyrir verkamenn, var Frank Hodges, fyrrum flotamálaráðgjafi í stjóraar- tíð Ramsav MacDonalds. Má afstöðu hans til iðnfriðarmálanna, Ijóslega marka af eftir- greindum orðum: “Verkföll, verkhönn og ó- friður, skapa hvergi hrauð handa vinnulýðn- um. Þess vegna er nú friðarviljinn sterkasta aflið í stefnu verkalýðsfélaganna á Bretlandi.” # # # Hið nýliðna ár, hefir revnst frændþjóðum vorum á Norðúrlöndum. friðsamt og affara- sælt. Hagur Dana og Svía, stendur í óvenju- miklum hlóma, eftir því sem ráðið verður#af hagskýrslum þeirra þjóða. Lítil sem engin stórtíðindi, munu þar hafa gerst á sviði stjóra- málanna, en útfhitningur fólks þaðan verið með minna móti. Hagur Norðmanna mun tæp- ast eins góður og svsturþjóðanna tveggja. Veldur það mestu um, hve fiskiveiðarnar hrugð- ust á öndverðu árinu, sem og þröngur og óhag- stæðnr markaður fyrir afurðir sjávarins. fTt- flutningur fólks frá Noregi, aðallega til Canada og Bandaríkjanna, varð miklu meiri í ár, en á árinu þar á undan. — Almennar kosningar til ríkisþingsins norska. fóru fram í haust. er le:ð. og lauk þeim með ákveðnum sigri fyrir bænd- ur, verkamenn og jafnaðarmenn, er f samein- ingu skipa núverandi hræðingsstjórn í land- inu. # # # Eftir að þýzka þióðin geþk inn í þjóðbanda- lagið — League of Nations —, er eins og moiri festa hafi komist í hjóðlífið vfirleitt. Hefir þjóðin mætt stundví.slega sérhverri afhorgnn, er henni har að greiða af stríðsskaðabótunum, og hefir unnið ser á ný traust þeirra ýmsu þjóða, er móti hennil stóðu í styrjöldinni miklu. Tvö alvarleg verkföll áttu sér stað á Þýzka- landi síðastliðið ár. Hó*fst hið fyrra þann 16. október síðastliðiim, er áttatíu þúsundir kola- námumanna, lögðu niður vinnu. Námamenn höfðu farið fram á kauphækkun, er nema skyldi fimtán af hundraði. Kröfu þesisari synjuðu eigendur námanna. Eftir að verkfallið hafði staðið yfir í viku, tókst Brauns, verkamálaráð- gjafa, að koma á sáttum. Varð niðurstaðan sú, að verkfallsmenn fengu tólf af hundraði launa- hækkun, og tóku samstundis til vinnu. — Hið síðara verkfallið átti sér stað, um mánaðamót- in október og nóvomber. Voru það um fjörutíu þúsundir tóbaksiðnaðarmanna í Hamborg, Bremen, Westphalíu og Mannheim, er þá lögðu niður vinnu. Orsakaðist verkfall það af því, að eigendur tóbaksverksmiðjanna, kváðu hafa hótað að loka verksmiðjunum, ef verka- menn vildu ekki sætta sig við kauplækkun. Lauk verkfalli þessu, eins og hinu, með tölu- verðri ívilnan verkfallsmönnum til lianda. # # # Ástandið á Italíu og Frakklandi, virðist næsta svipað því, er átti sér stað árið 1926. Fjárhagur beggja þjóðanna er þröngur, og hef- ir hvorug þeirra greitt nokkuð af stríðsskuld- um, svo teljandi sé. — Mussolini alræðismað- ur, heldur enn hátt á lofti steyttum stálhne'fan- um vfir höfði liinnar ítölsku þjóðar, svo að allir veroa að lúta hans boði og banni. Ritfrelsi og málfrelsi hafa nú yerið settar svo strang- ar skorður, að engum líðst að mæla eða rita nema á einn veg, — Mussolini veginn! — Kommúnistaflokkurinn rússneski, stofnaði nýlega til almennra hátíðarhalda um land alt, til minningar um það, að liðin vorn tíu ár, frá því er Iflokkur sá, undir leiðsögn þeirra Lenin og Trotzkv, brauzt til valda. Mun flokkurinn tæp- legast eins samstæður um þessar mundir og hann eitt sinn var. Hefir Trotzky nú verið gersamlega sviftur völdum, en hann var um langt skeið, einn áf allra mestu áhrifamönnum flokks síns. — Fjárhagisástand þjóðarinnar, mun þó nokkuð hafa breyzt til hatnaðar í seinni tíð, þótt enn virðist hún eiga nokknð langt í land með að komast á tryggan fjárhagsgrund- völl. Hefir leynibrugg sovíetstjórnarinnar, í sambandi við fylgisöflun meðal erlendra þjóða, staðið þjóðiimi fyrir þrifum og veikt traust hennar út á við. # # # Hagur nágrannaþjóðar vorrar sunnan landamæranna, hinnar voldugu Bandaríkja- þjóðar, mun reynlst hafa í góðn meðallagi á hinu nýliðna ári. Töluverð óánægja virðist þó ríkja meðal hænda, einkum í Mið-Yesturríkjun- um, út af afstöðu stjórnar og þings til landbún- aðarmálanna. Telja þeir stjórn ríkjasambands- ins augsýnilega drjúgum hlyntari fésýslumönn- um og stóriðjuhöldum, en bændum og búalýð. Þykir engan veginn ótrúlegt, að þeir'muni, við forsetakosningar þær, er í hönd fara, skipa sér í sérstaka fylking, með Senator Norris frá Neb- raúka, s«m forsetaefni. Verkfall hefir staðið yfir lengi, og stendur enn, í kolanámum í Coloradorikinu. Hefir það haft í för með sér, stórkostlegt tap, bæði fvrir námaeigendur og verkamenn þeirra. Mun það nokkurn veginn alment álit, að námaeigendur hafi sýnt allmikla ósanngirni í afskiftum sínum af málinu, og mun samúð þjóðarinnar því yfir- leitt, hallast að málstað verkfallsmanna. Með stórtíðindum mun það mega tejast, að Coolidge forseti hefir nú lýst vfir því á ný, að ekki komi til nokkurra mála, að hann gefi kost á sér við næstu forsetakosningar. Sem líkleg forsetaefni úr Republioanaflokknum, er nú mest talað um Herbert Hoover, verzlunarmála- ráðgjalfa; Dawes, varaforseta, og Lowden, fvrrum ríkisstjóra í Ulinois. En af hálfu Dem- ókrata, þvkir Alfred Smith, ríkisstjóri í New Yor'k, Mklegastur til útnefningar. # # # Skuggahliðar liins liðna árs, hafa lík- legast hvergi gert átakanlegar vart við sig;. en í Mexico og.Kína. Má svo að orði kveða, að þar hafi staðið yfir látlausar styrjaldir. Upp- reisn gegn Callesstjóminni í Mexico, hefir nú verið bæld niður, að minsta kosti til bráða- brigða, og hafa uppreisnarforingjarair, allir undantekningarlaust, verið teknir aif Mfi. 1 Kína er hvergi nærri séð enn fyrir endann á blóðsúthellingunum. 1 vopnaviðskiftunum yfirleitt, mun Cantonstjóminni, eða hinum svokölluðu Nationalistum, hafa veitt drjúgum betur. Enda hefir sá flokkur þá megin stefnu- skrá, að endurreisa sameinað Kínaveldi á grundvelli fornrar frægðar. # # # Við byrjun síðastliðins desembermánaðar, var helzt ©kki annað fyrirsjáanlegt, en að til öfriðar mundi draga með Lithuaniumönnum og Pólverjum. Skarst framkvæmdarstjórn Þjóð- bandalagsins, að loknm í leikinn, og tókst henni til allrar hamingju, að koma á sáttum. Er þýð- ingi þeirrar dásamlegu stofnunar fyrir varan- legan frið á jörðu, ávalt að verða skýrari og skýrari, með hverju Mðanda ári. # # # Gleðilegt ár! Megi hið nýfædda ár verða vakandi vitni að hálför úlfúðar, tortrygni og hefndarhugs, en greiða íþess stað veg, sólskini og sættarhug, inn að sérhverju mannlegu hjarta! ÞEIR SEM ÞURFA LUMBER KAUPI HANN AF The Empire Sash& Door Co. Limited Office: 6th Floor Bank of Hamilton Chambers Yard: HENRY AVE. EAST. - - WiNNIPEG, MAN. VERÐ Og GŒDI ALVEG FYRIRTAK Þeir Islendingar, er í hyggju hafa aS flytja búferlum til Canada, hvort heldur er heiman af íslandi eða frá Bandaríkjun- um, sendi skriflegar fyrirspurnir til ritstjóra Lögbergs. The Royal Bank of Canada. Aðal Reikningsski 30. Nóvember 1927 SKULDIR. Capital Stock Pald up .............................................. $ 30,000,000.00 Reserve Fund ..............................^........................$ 30,000,000.00 Balance of Profits carried forward ................................. 1,809,831.87 $ 31,809,831.87 Dividends Unclaimed ............................................. 17,626.79 Dividend No. 161 (at 12% per annum), payable lst Decem- ber), 1927 ................................................. 897,748.00 Bonus of 2%, payable lst December, 1927 ........................ 598,828.00 ------------- 33,324,034.66 $63,324,034.66 Deposits not bearing interest ......................................$208,073,871.65 Deposits bearing interest, including interest accrued to date of Statement ............................................. 514,562,219.15 Total Deposits ..........................................$722,636,090.80 Notes of the Bank in circulation ................................. 42,556,200.94 Balances due to other Banks in Canada ............................ 868,199.55 Balances due to Banks and Banking Correspondents else- where than in Canada .......................................... 23,003,141.20 Bills Payable ....................................................... 5,028,058.15 Liabilities not incliided in the foregoing ....................... 250,596.82 ---------------- 794,342,287.46 Letters of Credit Outstanding .................................... 36,997,581.33 894,663,903.45 EIGNIR. Gold and Subsidiary Coin on hand ..................$26,730,568.45 Gold deposited in Central Gold Reserves ........... 8,400,000.00 -------------$ 35,180,568.45 Dominion Notes on hand ............................$41,187,574.00 Dominion Notes deposited in G^entral Gold Reserves ..................................... 7,600,000.00 ------------- 48,787,574.00 United States and other Foreign Currencies 26,238,115.01 $110,156,257.46 Notes of other Canadian Banks .................................. 3,237,424.66 Cheques on other Banks ......................................... 38,350,978.06 Balances due by other Banks in Canada .......................... 2,489.90 Balances due by Banks and Banking Correspondents else- where than in Canada ...................................... 31,904,401.11 Dominion and Provincial ttovernment Securities, (not exceeding market value) (.......................... 73,307,380.36 Canadian Municipal Securities and British. Foreign and Coioniai Public Securities other than Canadian, (not exceeding market value; .......................... 31,296,226.90 Railway and other Bonds, Debentures and Stocks, (not exceeding markct value) ............................... 15,890,650.17 Oall and Short (not exceedlng thirty days) Loans in Canada on Bonds, Debentures and Stocks and other Securlties of a sufficient marketable value to cover .................. 53,338,787.44 Call and Shört (not exceeding thirty days) Loans elsewhere than in Canada on Bonds, Debentures and Stocks and other Securities of a sufflcient markotable value to cover 97,949,246.74 ---------------$455,433,842.80 Curreht Loans and Discpunts in Canada (less rebate of interest) after making full provision for ail bad and doubtful debts .............................................$225,536,860.84 Current Loans and Discounts elsewhere than in Canada Uess rebate of interest) after making full provision for all bad and doubtful debts ................................. 153,411,835.01 Non-Current Loans, estimated loss proyided for .................. 2,241,802.58 Bank Premises at not more than cost, less amounts written off ......... Real Estate other than Bank Premises ................................. 'Mortgages on Real Estate sold by the Bank ............................. Liabilities of Customers under Letters of Credit as per contra ........ Shares of and Loans to GVintrolled Companies ........................... Deposit with the Minister for the purposes of the Circulation Fund Other Assets not included in the foregoing ............................. 381.190,498.43 13,670,^15.46 1,917,113.95 1,462,119.72 36,997,581.33 2,171,636.59 1,300,000.00 520,795.17 $894,663,903.45 H. S. HOLT, C. E. NEIHi , President General Manager. Skýrsla Yfirskoðunarmanna Till hluthafa The Royall B»nk of CanaJda: ViS höfum yfirsko?5a?5 frajmanskrá?5a fjánhiagisökýxslu hinm 30. nóvem- ber 1927 og bori?5 hana saman við bækur Royal bankans á aðalskrifstofu ha.ns og einndg vottfestar skýrslun frá úbibúun.um. VÍS höfum taiið pen- inga og yfirfarið tryggingiarskjöl 911 á aðallskrifstofunmi i enida fjárhags- ársins og á áninu höfum við gert hiB sama á ýmsum af ihinium heistu útibúum bankans. ViiB höfum fengiB a/Mar þær upplýsingar og skýrtngar, sem viB höfum ðskaB og er Þ»8 skoBun vor, aB öll viBskifti ibankans, þau or viB höfum yfirfartB séu fiyfflilega samkvæm bamkailögun u m. I>aB er skoBun vor aB framanprentuB ekýrsla sé rétit ge.rB, og sýni hag bankans, ein® og hann I raun og veru er 30. nóvember 1927, samkvæmt bðkuni bankans. Montreal, Canada, 27. dresember 1927. JiAiS. G. ROSS, C.A., 'Of P. S. Ross & So'n's. A. B. BRODTE, C.A., of Prioe, Watorhouse & Co. Auditors REIKNINGUR UM AVINNING OG TAP Balance of Profit and Loss Account, 30th November, 1926..$ Profits for the year, after deducting charges of man&gement, accrued interest on deposits, full provision for all bad and doubtful debts and rebate of interest on un- matured biils ....................................... APPROPRIATED AS FOLLOWS: Dividends Nos. 15S, 159, 160 and 101 at 12% per, annum Bonus of 2% to Shareholders ........................... Transferred to Officers’ Pension Fund ................. Appropriation for Bank Premises ....................... Reserve for Dominion Government Taxes, including Tax on Bank Note Circulation .............................. Balance of Profit and Loss carried forward ............ Montreal, 27th December, 1927. 1,409.674.58 5,370,145.69 -------------$ 3,386,010.40 698,978.00 100,000.00 400,000.00 485,000.00 1,809,831.87 6,779,820.27 6,779,820.27 Canada framtíðarlandið. Fyrir nokkrum árum komu all- margir bankamenn til Canada, frá New York og Ohio ríkjunum, á leið til hins árlega bankastjóraþings í Los Angeles, Cal. Fulltrúar sam- bandsstjórnarinnar, mættu ferða- mannahóp þessnrn við landamærin, ásamt umboðsmanni The Bank of Montreal. Alls voru í gestahópn- um 450 menn. Veður var hið feg- ursta, er inn til Canada kom; skein sól í heiði á hina gróðurþrungnu akra Vesturlandsins. Bankastjórunum voru veittar upplýsingar um það, að vestur- fylkin framleiddu árlega þetta frá $250 til $350 miljóna virði af hveiti, og þótti þeirn slíkt furðu sæta. Við gullgröft, verður eins og leiðir af sjálfu sér, tonni færra eftir í nám- unni við hvert tonn, sem unnið er úr henni og sama gildir um kol. En mismunurinn á hveitifram- leiðslunni er sá, að ár eftir ár, fæst oft af sama blettinum, eigi aðeins jafnmikið af hveiti, heldur stund- um margfalt meira. Bandastjórunum var og leitt það fyrir sjónir, með órækum sönnun- um, að Canada framleiddi meira af hveiti á mannsbarn hvert, en nokk- / uð annað land í heimi. Gestunum fanst sem hveitiflæmi þessi tækju engan enda. Urðu þeir heldur en ekki undrandi er þeir fengu vitn- eskju um, að hveitibeltið væri 800 mílur á Iengd og 500 á breidd frá norðri til suðurs. Aðeins 10 af hundraði þeirra miklu landfláka, sem hæf þykja til hveitiframleiðslu, eru enn undir rækt. Einn banka- stjórinn komst þannig að orði: “Land með jafn óþrotleg skilyrði til akuryrkju og Canada, þarf sannarlega ekki að kvíða framtíð- inni. Það er stórveldi innan vé- banda stórveldis. Um þær mundir er 50 af hundraði af hinum cana- disku sléttum verða komnar undir rækt, framleiðir landið meira hveiti en öll Bandaríkin til samans.” Yfirleitt leizt ferðamönnum þessum einkar vel á ástandið, jafnt til sveita, sem bæja. Árangurinn af svona lagaðri heimsókn, hlýtur að verða til stór- hagnaðar fyrir hina canadisku þjóð. Menn þessir eiga yfir $200,000,000 virði í ýmsum fyrirtækjum þessar- ar þjóðar og þegar þeir koma heim, auglýsa þeir veg hennar og gengi, hvar sem leiðir þeirra liggja. Hér fara á eftir ummæli fárra manna af þeim mörgu, er fagna

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.